Lögberg - 01.03.1928, Side 8

Lögberg - 01.03.1928, Side 8
BIs. 8. LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1 MARZ 1928. Gerirbökunina þœgilega Nú er bökunardagurinn skemtilegur. Með Robin Hood mjöli er hægðarleik- ur að baka brauð, kökur og pies. Fyrirtaks bragðgott HANGIKJÖT og góður harðfiskur fæst hjá J. G. Thorgeirssyni Matvörusala j 798 Sargent Ave. Tals. 36 382 RobínHood FIiOUR ÁBYGGILEG PENINGA TRYGG ING í HVERJUM POKA 1 kveld, fimtudag, verður af- mælishátíð Betel haldin í Fyrstu lút. kirkju, eins og auglýst var í síðasta blaði. Fólk geri svo vel og hafi það í huga. Byrjar kl. 8.15. Niðurlagið af “Ferð til Minnes- ota” eftir Mr. G. J. Oleson, verð- ur að bíða næsta blaðs sökum þrengsla. Árni G. Eggertsson, lögm. frá Wynyard, Sask., var staddur í borginni um síðustu helgi. Mr. Sigurjón Bergvinsson frá Brown, Man., hefir verið staddur í borginni undanfarna daga. Misprentast hefir í síðasta blaði nafn Hrefnu Finnbogadóttur. — Nafn hennar er Dr. Harriet G. McGraw, en ekki McGaw, eins og þar stendur. Mr. J. S. Gillies frá Brown, var einn af þeim sem þjóðræknisþing- ið sátu og var hann hér í borginni fram yfir helgina. Mr. Guðmundur puðmundsson frá Lundar, Man., var staddur í borginni í vikunni sem leið. Gefin saman í hjónaband af séra iSigurði ólafssyni á Gimli, á heimili hans, þann 21. febrúar, Mr. Guðmundur Erlendsson og Mrs. Þórey Ketilsson. Framtlðar- heimili þeirra verður á Gimli. — Viðstaddir voru vandamenn brúð- hjónanna, ásamt nokkrum vinum; naut fólk gleðistundar við söng og samræður, eftir að hjóna- vígslan fór fram. Til leigu, nú þegar, tveggja her- bergja íbúð, án húsgagna, fyrir $15 um mánuðinn. Upplýsingar að 676 Sargent. Sími: 34 298. Mr. B. I. Sigvaldason, oddviti Bifröst sveitar, var staddur borginni síðastliðinn þriðjudag. Miðvikudagskveldið þann 22. f. m., efndu Hnausabúar í Nýja ís- landi til skemtisamkomu til arðs fyrir hina veglegu samkomuhöll, sem þeir hafa nýlokið við, sjálf um þeim og bygðarlaginu í heild til sóma. Fór þar fram margt til skemtana, svo sem söngur, píanó- spil, ræðuhöld og dans. Samkom unni stýrði Mr. Kárdal. Meðal þeirra, er í skemtiskránni tóku þátt, voru ritstjóri þessa blaðs. Miss Helga Ólafsson og Jón skáld Runólfsson. 'Kvenfélag bygðar- innar stóð fyrir veitingum, og voru þær að öllu leyti í samræmi við íslenzka risnu. GJAFIR til Jóns Bjarnasonar skóla. Albert Samúelsson, Gardar $5.00 Rún. Sigurðsson, Mozart .... 5.00 John T. Johnson, Edinburg 5.00 G. V. Leifur, Pembina..... 5.00 Halldór Anderson, Hensel 5.00 Ingim. Johnson, Brow...... 5.00 A. M. Ásgrímsson, Hensel 2.00 B. Thorbergsson, Churchbr. 10.00 S. A. Anderson, Baldur .... 5.00 L. A. Snidal, Baldur ...... 5.00 A. R. Magnusson. Riverton 5.00 J. A. Sveinsson, Glenboro .... 5.00 Mrs. Guðr. Olson, Bowman 10.00 G. J. Markusson, Bredenb.. 10.00 G. T., Chicago............ 10.00 L. J. Snydal, Baldur....... 5.00 Séra H. Sigmar, Mountain 5.00 Með alúðar þakklæti, S. W. Melsted, gjaldk Látinn á Gamalmennahælinu Betel, þann 13. jan., Alexander Davíðsson Westman. Var hann fæddur 10. júní 1853, í Snóksdal í Dalasýslu. Kom til Ameríku 1887, dvaldi þar á ýmsum stöð- uð, svo sem Sayreville, N. J., Du- luth, Minn., og víðar. Kom til Canada 1903. Hafði dvalið á Betel um nokkurra ára bil. Var maður vinnuhneigður og trúr í verkum. “örgeðja og hreinskil- inn að skapferli og allur þar sem hann var séður.” Einmana maður á æfileið sinni, ókvæntur og barnlaus. Systkini 'hans voru: Guðrún, kona Kristjáns Jónsson- ar, Duluth, Minn., og Bjarni West- mann, Churchbridge, Sask. Messuboð.— 4. marz: að Kan- dahar (á ensku) kl. 2 e. h.; að Wynyard (á ensku), kl. 8 e. h. — 11. marz; Wynyard, kl. 2 e. h. (á íslenzku), í Elfros kl. 7.30 (á ensku). — Fyrri messan að Wyn- yard verður aðallega fyrir unga fólkið. Seinast fyltist kirkjan af ungu fólki, nú verður hún að troðfyllast. — Við megum ekki vera ánægðir með neitt nema framför á öllum sviðum. — Eftir seinni messuna að Wynyard verð- ur ársfundur safnaðarins hald- inn. — Kæru vinir, fjölmennið báða sunnudagana, á öllum stöð- unum. Vinsamlegast, C. J. O. Meðlimir stúkunnar “Heklu” I. O.G.T., og aðrir Goodtemplarar, eru beðnir að veita því athygli, að næsta föstudagskvöld, þann 2. marz, verður ekki stúkufundur; enginn fundur fyr en föstudags- kvöldið þann 9. marz. Eru með- limir vinsamlega beðnir að fjöl- menna á þann fund. Undirritaður óskar eftir að fá ráðskonu fyrir sumarið, á heimili út í sveit. Ekki til fyrirstöðu, þó hún hafi eitt eða tvö börn. Frek- ari upplýsingar með því að skrifa hlutaðeiganda, Herman ísfeld, Cypress River, Man. • Leikfélag stúk. “Heklu” I.O.G.T., er nú að æfa sjónleik, er það hef- ir ákveðið að sýna hér í Winni- peg eftir miðjan marz. Ágóðinn, sem kann að verða af þessari sjónleiks sýningu, gengur í Björg- vinssjóðinn. Takið vel eftir aug- lýsingu um sjónleik þenna í næstu blöðum, og gleymið svo ekki að styrkja þarfasta málið, sem ís- lendingar vestan hafs eiga, sem íslendingar, með því að sækja þennan sjónleik. Eg undirritaður flyt guðsþjón- ustu á íslenzku sunnudaginn 11. marz kl. 3 e.h. í St. Marks’ ensku lút. kirkjunni í Bellingham, Wash. Umræðuefni: “Leitið guðsríkis og hans réttlætis fyrst af öllu” íslendingar bæði í Bellingham og Marietta ættu að nota sér þetta tækifæri og hafa húsfylli. Jóhannes Sveinsson, stud. theol. IÐUNNAR PISTILL Síðasta hefti 11. árgangsins er nú komið til mín, eftir óvenjulega langa útivist, og sendi eg það taf- arlaust til útsölumanna og kaup- enda. Innihald þessa heftis fjöl- breytt og vel til þess vandað. Finst þar ekkert skrum eða skjall, en víða vel skeiðað af ágætum rithöfundum. Iðunn hefir átt að fagna vin- sældum bæði austan hafs og vestan síðan hún hóf göngu sína, og þykist hún enda hafa vel til þess unnið. Hún hefir alla jafna verið djarfmælt og á blaðsíður hennar hafa sett sitt innsigli margir af fslands ritfærustu mönnum og konum. Hér vestra hefir Iðunni ætíð -verið haldið í svo lágu verði sem unt var, þeg- ar allur kostnaður var tekinn til greina. Og nú er verðið einn dollar og áttatíu cent fyrir 350 bls. af haldgóðu viti. Eg hefi óseld nokkur eintök af þremur síðustu árgöngum (1925, 1926 og 1927) og býð eg nýjum kaupendum ókeypis hvern þennan árgang er þeir kjósa. Sendið pöntun nú strax, — látið ekki dragast þar til á morgun það, sem hægt er að gera í dag. Magnus Peterson, 313 Horace St., Norwood, Man. JOHN J. ARKLIE, R. O. Sérfræðingur í augnaprófun og gleraugnavali, verður að Lundar Hotel, miðv.d. 7. mar., Ericsdale Hotel fimtud. 8. marz, og Ashern Hotel föstud. 9. marz. WALKER Canada’s Finest Theatro Ljósálfar Mér hafa verið send fáein ein- tðk af nýrri ljóðabók, er nefnist “Ljósálfar”. Höfundurinn er Sig- urjón Jónsson, sem nú er orðinn þjóðkunnur á íslandi fyrir fimleik á ritvelli, jafnt í bundnu sem ó- bundnu máli. “Ljósálfar” er mjög vönduð bók, að öllum frágangi, pappír leðurþykkur og letur stórt og skýrt, og bundin í prýðilegt skrautband. Það mun enginn ljóð- vinur sjá eftir að hafa kejmt þessa bók. Verðið er $1.50, að meðtöldu póstgjaldi. Þeir sem vilja eignast “Ljósálfa” verða að panta skjótlega, pví eg hefi aðeins fáein eintök til sölu. Magnus Peterson, 313 Horace Street, Norwood, Man., Canada. LAND TIL SÖLU. Eg hefi til sölu ljómandi gott land við Bay End pósthús við Manitoba vatn. Bygðin er ís- lenzk. Ágætt hús á landinu, og landið inngirt með gaddavír; 1 % mílu frá skóla, pósthús og verzl- un.nál. IV2 inílu rjómafutningur að sumrinu; frjósamur jarðvegur 'steinalaus), nægur eldiviður á landinu og töluverður heyskapur. Þetta er ekki flæðiland, sem er mikill kostur; ágætt fiskimið rétt við hendina. Selt á gjafverði með góðum skilmálum, Jón Árnason, Moosehorn, Man. Pétur Magnússon og Einar Thorsteinsson frá Leslie, Sask., komu til bæjarins um helgina og dvelja hér einhvern tíma. ís’enzk stúlka óskar að fá fæði og húsnæði á íslenzku heimili hér í borginni. Þeir sem kynnu að vilja sinna þessu, geta snúið sér til The Columbia Press, Ltd., 695 Sargent Ave. WALKER. Seymour Hicks, hinn ágæti enski leikari skemtir fólkinu ágætlega þessa viku á Walker leikhúsinu. Leikurinn ”The Man in Dress Clothes’, sem hann leikur það sem eftir er af þessari viku, er jafnvel enn skemtilegri heldur en leikurinn sem hann lék fyrri part vikunnar. Að honum geta allir hlegið hjartanlega. Góður eldiviður fyrir þetta^ veður: PINE | TAMARAC POPLAR * Fáið vorn nýja Verðlista. Aorrse 9 Daga, B/rjar Fimtud. 8. Marz Kvcðju leikur Mrs. BrandonThomas Allur flokkurinn frá London Fimtud. 8. marz, í 6 daga. Eftirm.d. Laugard. og Miðv.d. “Lord Richard in the Pantryv 3 daga, byrjar Fimtud. 15. marz. “Big Fleas” Sama ágætisfélagið, sem sýndi "Charley’s Aunt” hér I innipeg með miklu lofi. Evegs., 25c, 50c, 75c, $1.00, $1.50 $2.00 Sat. Mat. 25c, 50c, 75c, $1.00, $1.50 Wed. Mat. 25c, 50c, 75c, $1.00 Plus 10% Tax AXDERSON, GREENE & CO., LTD. námasérfræðingar Meðlimir f Winnipeg Stock Ex- change. Öll viðskifti afgreidd fljótt og vel. Lindsay Bldg. 226 Notre Dame Wpg. Löggilt af stjórn Manitoba-fylkis. Sími: 22 164. Finnið oss I sam- bandi við námuviðskifti yðar Meira um SJÓNLEIKASAMKEPNINA. EftiÝ fjölda þeirra fyrirsprna, að dæma, sem nefndinni hafa bor- ist frá Winnipeg-íslendingum við- víkjandi samkepninni, eru þeir ekki margir, sem ætla að láta það undir höfuð leggjast, að fylgja henni eftir frá fyrsta kvöldinu til þess síðasta. Tölumerkt sæti fyrir öll kvöldin fást fyrir $2.00, en eru 75c. ef eitt er keypt. Einnig fást sæti fyrir 50c. er verða seld þeim, sem fyrst koma, en sem að eins fást keypt fyrir eitt kvöld. ólafur Eggertsson hefir sætasölu með hendi í bókaverzlun O. S. Thor- geirssonar,. samkvæmt því sem auglýst er á öðrum stað í blað- inu. Árborgar leikflokkurinn, sem vann sigurmérkið gefið af Olafi Eggertssyni í fyrra, ver það í ár, og leikur fyrst. Er það “Syndir annara,” eftir E. H. Kvaran; og leikendur eru: Mrs. H. Daniels- son, Mrs. I. Fjeldsted, Mrs. M. M. Jónasson, Rúna Johnson, Thora Finnsson, Mabel Reykdal, Karl Thorkelsson, Sigm. Jóhannsson, Arnþór Sigurðsson, og Bjarni Bjarnason. Leikfél. Sambandssafnaðar leik- ur á þriðjudagskvöldið í sal kirkjunnar. Allir hinir Ieiknirn- ir fara fram í Good Templara hús- inu. Um “Brúðkaupskvöldið” þarf ekki að fjöldyrða, en þeir sem hafa séð leikinn vita, að hann muni hleypa kappi í samkepnina. “Stormar” eftir Kristínu Sig- fúsdóttur, höfundar “Tengda- mömmu”, verður leikið í fyrsta skifti í Winnipeg af leikflokki Geysis-bygðar, sem að sögn fer vel með efnið. Atburðirnir í þess- um leik snúast utan um samband- ið milli verkamanna og vinnuveit- enda á íslandi, — og svo er hann auðvitað kryddaður með ástasögu, en hvort alt fer vel á endanum, skal ekkert sagt um hér. Leik- endurnir eru: Miss K. L. Skúla- son, Mrs. W. Pálsson, G. J. Magn- ússon, iE. Benjamínsson, J. G. Skúlason, J. / S. Nordal, Björn Bjarnason og T. Böðvarsson. Árni Sigurðsson, sem er Win- nipeg fslendingum vel kunnur á leiksviði, vitjar gamalla stöðva með “Apann”, sem Wynyardbúar 1II1I11III!!IIII1II1II1IIII11IIII11III!!1IIIIII1IIIII1IIIIIIIIIiII!IItIIItlIIIIIIIIIII1IIIII1!IIIII1111; HIN ÖNNUR ÁRLEGA =| Sjónleikasamkepni Sambands íslenzkra Leikfélaga í Vesturheimi fer fram Mánud., Þriðjud., Miðvikud. og Fimtud. kvöldin 5., 6., 7. og 8. Marz Mánud.: “Syndir annara” ............... Leikfél. Árborgar Þriðjud.: “Brúðkaupskvöldið” .... Leikfél. Samb. safn. Wpg Miðv.d.: “Stormar”.............. .... Leikfél. Geysis bygðar Fimtud.: “Apinn” ................... Leikfél. frá Wynyard Allir leikirnir, nema “Brúðkaupskvöldið” verða sýndir í Good Templars Hall. “Brúðkaupskvöldið” í samkomu- sal Sambandskirkju. Inngangur 75c. (númeruð), 50c uppi á lofti. Heildarsæti (númeruð, fyrir 4 kvöld), $2.00 Til sölu í bókaverzlun O. S. Thorgeirssonar, kl. 10 f.h. til kl. 6 e. h. hvern dag. — Tjaldið dregið upp kl. 8.30 hvert E kvöld. Engir leiddir til sætis, meðan á leiksýning stendur. E 'Tl 111111111111111! 111111111111111111111111111111111 i 111 i 11111111111111111111111111111111111111111111111 l~r o s Theatre E Fösud. og Laugard. Glom steypir sér í loftinu með Wallace Beery Raymond Hadon í Now We’re in the Air Back of the Scotland Yard Aukasýning fyrir börnin á Laugardag Komið snemma, að eins lOc Mánudag og Þriðjud. LAURA La PLANTE í “Silk Stockings,, THE W0NDERLAND THEATRE Sargent and Sherbrooke Leikið daglega frá kl. 2 til 11 e. h. Verð e.h. 15c ogiOc fyrir börn, en að kveldi 20c fyrir fullo. börn lOc og 15c Fréttir bera fram' síðasta kvöldið. Þeir töldu “Apann” sinn bezta leik af öllum þeim, sem þeir höfðu í vali, og líklegastan til þess að vinna þeim sigurmerkið.. Nú er eftir að sjá. Það virðist sem allir flokkarnir standi mjög jafnt að vígi, og að samkepnin muni verða skörp. — Komið öll kvöldin, svo þið getið fylgst með samkepninni og dæmt um, hvort úrskurður dómaranna á fiifitudagskvöldið er samkvæm- ur ykkar eigin. Hljóðfæraslátt- ur verður til skemtunar öll kvöld- in. Nefndin.. Þann 20. þ.m. lézt á sjúkrahúsi í Regina, Sask., íslenzk kona, Margaret Gertrude, gift C. E. Jackson, bónda nálægt Pense, skamt vestur frá Regina. Mrs. Jackson varð að eins 32 ára- Auk ekkjumannsins og tveggja ungra barna, harma frá- fall hennar foreldrar og þrjár systur. Hún var jarðsett í Regina graf- reitnum tveim dögum síðar. Sorg- arathöfn sú var fjölmenn, látlaus en hátiðleg. iBlómkranasagjafir í stórum stíl. Söngur og hljóð- færaspil viðkvæmt og prýðilegt, og átti það vel við, því hin látna var einkar sönghæf og lék á hljóð- færi af mikilli list. Fimtud. Föstud. Laugard. þessa viku: Ein stórsýningin enn REGINALD DENNYí “Out All Night” mesti gamanleikur ársins. AD AUKI byrjunin á “HAWK OF THE HILLS” nýr kapítula leikur Og seinasti þáttur í “MELTING MILLIONS” Skemtnir á leiksviðinu fyrir börnin á laugardags- eftirmiðdag Mánud. Þriðjud. Miðv.d. LILLIAN GISH í “Annie Laurie,, Larry Semon félagið og og fleiya. Foreldrar Mrs. Jackson eru Jón Anderson og kona hans, til heim- ilis í Regina. Faðirinn: bróður og fóstursonur Jóns A. Hjaltalín, fyrrum skólastjóra á Möðruvöll- um. Móðirin: dóttir Bergþórs Jónssonar, sem um langt ára skeið var vel kunnur vestur hér. Hann var bróðir Janusar prests föður Jóns Janussonar við Foam Lake, Sask. Enskur prestur, Rev. A. C. Met- calfe, stýrði útfararathöfninni og flutti þar ágæta ræðu. Regina, 25. febr. 1928. W. H. P. Baby Chicks Nokkrar tegundir hænsna, sem verpa eggjum í vor, gefa yður margar varphænur, sem gefa mik- ið af eggjum næsTa vetur. Miklir peningar fást fyrir vetrareggin. Við höfum 56 stjórnar viðurkend- ar tegundir, og enn fleiri úrvals- tegundir, sem vér getum valið úr. Útungun með raforku er nýjasta og bezta aðferðin.—Vöruskrá með verðlista og upplýsingum um hænsnarækt A. 74 bls., send gef- ins með hverri pöntun. Hambley Electric Hatcherv 601 Logan Ave. Winnipeg. KOL KOL! KOL! ROSEDALE KOPPERS AMERICAN DRUMHELLER COKE HARD SOURIS LUMP iiiiiiniiiiiiii Thos. Jackson & Sons CQAL—-COKE—WOOD 370 Colony Street Eigið Talsímakerfi: 37 021 FOCA STEAM SAUNDERS ALLSKONAR LUMP COAL CREEK VIDUR A Strong, Reliable Business School MORE THAN 1500 ICELANDIC STUDENTS HAVE ATTENDED THE SUCCESS BUSINESS COLLEGE OF WINNIPEG SINCE 1909 It will pay you again and again to train in Win- nipeg where employment ls at its best and where you can attend the Succe88 Business College whose graduates are given preference by thousands of em- ployers and where you can step right from school into a good position as soon as your course is flnlshed. The Success Business College, Winnipeg, is a strong, reliable school—its superior service has resulted in its annual enrollment greatly exceeding the combined yearly attendance of all other Business Colleges in the whole pro.vinee of Manitoba. Open all the year. Enroll at any time. Write for free prospectus. BUSINESS COLLEGE, Limited S85l/2 Portage Ave. — Winnipeg, Man. “Það er til ljósmynda smiður í Winnipeg,, Phone A7921 Eatons opposite W. W. R0BS0N 317 Portage Ave. KennedyBldg ÞJ0ÐLEGASTA Kaffi- og Mat-söluhúsið sem þessl borg liefir nokkurn tima haft innan yébanda sinna. Fj'rirtaks má.ltI8ir, skyr,, pönnu- kökui, rullupyllsa og þJóCrteknla- kaffl — Utanbæjarmenn ífi. sé. fivalt fyrst hressingu & YVEVEIi CAEE, 6»2 Sargent Aie 3imi: B-3197. Kooney Stevens, eigandi. Vér seljum NUGA-T0NE fyrir90c og öll önnur meðöl við lægsta verði. THE SARGENT PHARMACY, DTD. Sargent & Toronto - Winnipeg Sími 23 465 HERBERGI $1.50 OG UPP EUROPEAN PLAN LELAND HOTEL City Hall Square TALS.A5716 WINNIPEG FRED DANGERFIELD, MANAGER A. SŒDAL PAINTER and DECORATOR Contractor Painting, Paperhanging and Calsomining. 407 Victor St. Phone 34 505 DRS. H. R. & H. W. TWEED Tannlæknar. 406 Standard Bank Bldg. Cor. Portage Ave. og Smith SL Phone A-6545 Winnipeg Fiskimenn! Umboðssala á þíðum og frosnum fiski verður bezt af- greidd af B. METHUSALEMSON, T09Gr©at West PermanentBldg. Phones: 24 963 eða 22 959 Exchange Taxi Sími 30 500 $1.00 fyrir keyrslu til allra staða innan bæjar. Gert við allar tegundir bif- reiða, bilaðar bifreiðar dregnar hvert sem vera vill. Bifreiðar geymdar. Wankling, Millican Motors, Ltd. Tals. 80 623. Heimili: 88 026 C. J0HNS0N 675 Sargent Ave. Umboðsm. fyrir Hecla Furnace Allar viðgerðir gerðar. Áætlanir gerðar ýður að kostnaðarlausu. Rose Hemstitching & Millinary G'leymið ekkl að á. 804 Sargent Ave. fáM keyptir nýtízku kvenhattar. Hnappar yflrklæddir. Hemafiitching og kvenfataaaumur gerður. Sórsrtök athygli veitt Mail Ordeirs. H. GOODMAN. V. SIGURDSON. Blómadeildin aA Nafnkunna Allar tegundir fegurstu blóma við hvaða tækifæri sem er, Pantanir afgreiddar tafarlaust Islenzka töluð í deildinni. Hringja má upp á sunnudög- um B 6151. Robinson’s Dept. Store,Winnineg

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.