Lögberg - 12.04.1928, Síða 2
I
«!■. 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN i2. APRÍL 1928.
,5^52525252525252525252525252525252525252525252525252525252525252525252525252525252525252525252525252525252525252525H52S2525252525252525B52S?.,ní
Sérstök deild í blaðinu
SOLSKIN
Fyrir börn og unglinga
525252525?ci 5fc5e5dS2S25252S2525252525H525252S25252525252S25H525252525252525HliH55252S252525252S252525252525252SE525H5252S2S2525252S252S2525HSHS252S25H525252S252 5HS25H525252C
ó, Ijóssins faðir, lof sér þér! - og öruggir halda áfram verki voru.” — Smár. Þá skaltu verða lánsamur hér í lífi, og hólp-
ö, ljóssins faðir, lof sé þér, 1 f ^r’
að líf og heilsu gafstu mér
og föður minn og móður.
Nú sezt eg upp, því sólin skín;
þú sendir ljós þitt inn til mín.
ó, hvað þú, Guð! ert góður.
1 austri rennur signuð sól
og sveipar gulli ský
og brunar yfir bjargastól
og borg og land á ný.
Matth. Joch.
BÆNAHÚSIÐ.
GRAFSKRIFT.
Andvana fæddust mér ótal þrár
— þá englarnir grétu með votar brár —
eg reisti þeim varða um vökunótt,
í vögguna mína svo læddist hljótt.
A. E. Isféld.
VERNDARENGLAR ÆSKUMANNSINS
á vegi dygðarinnar.
1 CUij\ h ra’fívln.
inn og sæll annars heims.
2. Ihugun.
.
Stíktu hendínni í barm þinn, maður! og í-
hugaðu, hvers vegna þú ert skapaður.
Skoðaðu kosti þína og ókosti, og þá stöðu,
sem þú ert í á jörðinni; þá skulu ekki leyna
sér fyrir þér skyldur þínar í lífinu, og þú skalt
eiga að vísan leiðarvísir í öllum athöfnum.
Byrjaðu ekki á neinu tali, og ráðstu ekki í
nokkurt verk, fyr en þú ert búinn að íhuga orð
þín, og skoða, hve áríðandi hvert atvik er, sem
fyrir liggur; þá skal ólán aldrei fyrir þig koma,
og blygðun aldrei á bæ þinn sækja.
A vt.rwii-M nlr r\l A C1 ob 1 O Clf
Faðir-vor er eins konar bænahús, þar er vér
getum gengið um, og skoðað allar guðs há-
leitu ráðstafanir oss til handa. Drottinn sýn-
ir oss þar sjálfur alla fjársjóði sinnar náðar,
með því að hann eins og leiðir oss úr einu her-
bergi í annað.
í fyrstu bæninni leiðir hann oss inn í hirð-
Jcirkju sína, og sýnfr oss hvernig vér eignm að
vegsama hans heilaga nafn með bæn og þakk-
argjörð, með iðulegri heyrn guðs orða og með
kristilegu líferni; þar syngur hin sigri hrós-
andi kirkja á himnum, englar og útvaldir, 0g
hin stríðandi kirkja á jörðinni samróma hvor
með; annari; heilagur, heilagur, heilagur, er
drottinn allsherjar!
í annari bæninni leiðir hann oss inn í kon-
ungshöll sína; þar sjáum vér hið ljómandi há-
sæti, og í því konung konunganna með kórónu
dýrðarinnar á höfðinu, og veldissprota kraft-
arins í hægri hendi, er hann stjórnar með al-
heimi, og leggur að velli óvini sína.
í þriðju bæninni leiðir hann oss inn í ráð-
stofu leyndardóma sinna, og birtir oss þar sinn
góðan og algjörðan vilja, það sem í frá eilífð
er ákvarðað eftir ráðsálýktum hins þríeina
guðs, og það sem hann í lögmálinu og evan-
gelio heimtar af oss.
í fjórðu bæninni Ieiðir drottinn oss inn í
sitt mikla forðabúr, og upp á sín auðugu korn-
loft, og sýnir oss þar allsnægtir sínar, er hann
bæði getur og vill seðja með þarfir vorar hér
í lífi, þegar hann upplýkur sinni mildu hendi,
og seður alt sem lifir með blessun sinni.
f fimtu bæninni leiðir hann oss inn í sitt
himneska gjaldhús, og sýnir oss skuldabækurn-
ar, þar sem hin tíu þúsund pund synda vorra
eru talin og tilfærð oss til skuldar, en kvittuð
með borgunarmannsins dýra blóði, svo framar-
lega sem vér auðsýnum náunga vorum bróður-
legan kærleika og þolinmæði.
í sjöttu bæninni sjáum vér, eins 0g í dýrð-
legu hertygjahusi, mikla gnægð af andlegum
vopnum til sóknar og varnar,- sverð andans,
skjöld trúarinnar, brynju réttlætisins, hjálm
hjálpræðisins; og með þeim getum vér, vissir
um kórónu sigursins með guðs hjálp, veitt mót-
stöðu og staðist allar árásir óvina vorra.
Loksins í sjöundu bæninni leiðir drottinn
Jesús Kristur oss inn í sína himnesku paradís,
í hinn inndæla aldingarð með sífrjófum blómum
og lifandi vatnslindum, þar sem vér skulum
hfa eftir lausn vora héðan, skoða drottin aug-
hti til auglitis, og fagna af þeirri dýrðarsjón
um aldur og æfi. — Smárit dr. P. P.
FILIPP MELANKTON OG UNGBÖRNIN.
Arið 1530 ritaði Jóhann kjörherra bréf til
þeirra Lúters, Melanktons, Bugenhagens og
Justus Jónasar, og bað þá að koma hið allra
fyrsta til Torgá, til að taka sig saman um þær
truargreinar, er þeir skyldu fylgja fram á þing-
mu 1 Agsborg. Guðfræðingar þessir, sem allir
voru mjog ákafir fyrir trúarbragða frelsinu,
brugðu skjótt við, komu á ákveðnum tíma og
setust að hjá prestinum þar á staðnum. Þeir
voru allir glaðir í anda, nema Melankton; hann
^ar dapur í bragði, því hann kveið fyrir þeim
haska, sem hann þóttist sjá fyrir, að búinn
\æri hinum nýja lærdómi. Sat hann svo fyrstu
dagana fálátur, dapur og sorgbitinn, þangað
til honum var sagt eitt kveld, að maður væri
kommn, sem vildi tala við hann. Melankton
stendur upp hugsjúkur, og ætlar út til manns-
ms, en villist innan um húsið, og lendir loks í
herbergi því, þar sem prestskonan og kona að-
stoðarprestsins sátu með börn; lágu sum börn-
m á brjóstum mæðranna, en sum stóðu með
krosslögðum höndum við knén á þeim, og
höfðu eftir bænir, sem mæðurnar voru að
kenna þeim.
Það var eins og torfu Iétti af Melankton,
þegar hann sá börnin þarna; hann benti mæðr-
unum, að þær skyldu halda áfram, en stóð
sjálfur og hlustaði á. Eftir því sem hann stóð
þar lengur, eftir því glaðnaði meir yfir honum
og léttist honum fyrir brjósti. Og þegar hann
varð loks að fara út úr herberginu til að af-
greiða manninn, var hann orðinn fullkomlega
hress, svo að glaðværðin skein út úr honum,
þegar hann kom aftur til félaga sinna.
“ Nú þykir mér vænt um, vinur minn!” kall-
ar þá Lúter á móti honum, “eg sé það á því,
hvað þú ert glaðlegur í bragði, að þú hefir
fengið góð tíðindi.”
‘Já, bróðir minn!” svarar Melankton, “eg
hlustaði á bæn saklausra barna, 0g þá flugu
mér í hug og stypktu hjarta mitt þessi orð ritn-
ingarinnar: “af munni barna og brjóstmvlk-
inga hefi eg mér lofgjörð tilbúið.” Eg hefi
fengið að kalla nýjan og öruggan huga. Vér
skulum nú allir treysta hjálp almáttugs guðs,
Einn er guð, höfundur alls, stjórnari og við-
haldari heimsins, almáttugur, eilífur og órann-
sakanlegur.
Honum, sem einn er æðstur, alvitur og al-
góður, ber guðdómleg tilbeiðsla, lofgjörð og
þakkargjörð.
Honum, sem myndaði himininn með hendi
sinni, og mældi stjömunum veg með fingri
sínum.
Sem setti skorður við hið ómælandi haf,
er það eigi getur yfir komist, og segir við ofsa-
vindana: verið þið hægir!
Sem hristir jörðina, og allar kynkvíslir
skjálfa; sem sendir út eldinguna, og allir óguð-
legir skelfast.
Sem gaf heiminum tilveru með orði munns
síns, og þarf ekki annað en snerta hann með
armlegg sínum, til að afmá hann aftur.
“Berðu lotningu fyrir hátign hins almátt-
uga, og baka þér eigi reiði hans, svo að hann
ekki tortýni þér!”
Forsjón guðs vakir yfir öllum sköpuðum
hlutum, og hann stjórnar þeim með óendanlegri
speki. #
Hann hefir sett viss lög, er hann stjórnar
heiminum eftir; hann hefir haft við dásamlega
margbreytni á öllum lifandi skepnum; og sér-
hverju gaf hann það eðli, sem honum líkaði.
1 honum eru fólgnir allir fjársjóðir vizk-
unnar, 0g leyndardómar hins ókunna liggja
berir fyrir honum.
Hugsanir hjarta þíns blasa fyrir augliti
hans; og hann sér hlutinn fyrir, áður en hann
er áformaður.
- Alvizka hans sér yfir alt, og forsjón hans
ræður yfir öllu, svo enginn hlutur verður af
hendingu.
Aðdáanlegur er hann á öllum vegum sínuirt;
ráð hans eru órannsakanleg, og speki hans
skilningi þínum of vaxin.
“Veittu þess vegna vísdómi hans heiður og
lofdýrð, 0g beygðu þig fyrir skipunum hans
með auðmjúkri og sonarlegri hlýðni.”
Drottinn er miskunnsamur 0g góðgjarn;
hann hefir skapað heiminn af einskærri náð.
Gæzka hans skín í öllum hans verkum; hann
er höfundur alls, sem ágætt er, 0g fullkomnari
en alt, sem fullkomið er.
Skepnurnar, sem hann hefir skapað, bera
ljósast vitni um gæzku hans, og allar unað-
semdir þeirra kunngjöra hans lofgjörð; hann
skreytir þær með fegurð, seður þær á fæðu, og
viðheldur þeim frá kyni til kyns.
Ef vér upplyftum augum vorum til himins,
hversu ljómar þá ekki dýrð hans þar! Ef vér
rennum þeim aftur niður á jörðina, sjáum vér,
að hún er full af hans gæzku. Hálsar og dal-
ir bergmála af lofgjörð hans; grundin, árnar
og engjarnar syngja af fögnuði.
En þér hefir hann veitt, maður! miskunn
siína mesta, og sett þig ofar öllum dýrum.
Hann gaf þér skynsemina, svo að þú gætir
haldið tign þinni; hann gæddi þig málfærinu,
svo að þú gætir verið nytsamur í mannlegu fé-
lagi; hann veitti sálu þinni íhugunarafl og
greind, svo að þú gætir skoðað fullkomleika
hans, og tignað hann fyrir þá.
Og lögin, sem hann ætlaðist til, að þú skyld-
ir laga breytni þína eftir, hefir hann svo náð-
arsamlega tilbúið, að öllum þínum skylduverk-
um er hagað eftir eðlisfari þínu, svo að hlýðnin
við boð hans er vegur til þinnar eigin vellíð-
unar.
“Æ, vegsama gæzku hans með lofsöngum,
0g skoða í einrúmi undraverk hans miskunnar!
Láttu lofgjörð og þakkargjörð streyma út frá
hjarta þínu! Láttu málið þíns munns fram-
bera það honum til dýrðar, og láttu allar at-
hafnir þínar bera vitni um hollustu þína við
skipanir hans.”
Drottinn er heilagur og réttlátur; hann mun
dæma heiminn réttvíslega og sanngjarnlega.
Hafi hann sett lög sín öll af miskunn og
gæzku, mun hann þá ekki hegna yfirtroðslu-
mönnunum!
Hugsaðu ekki, barn! að hönd guðs nái ekki
til þín fyrir það, þó að hegningin bíði; og
hræsna ekki fyrir þér með þeirri von, að hann
muni sjá í gegn um fingur við illverk þín!
Auga hans grannskoðar hugsanir sérhvers
hjarta, og hann gleymir þeim ekki að eilífu; hjá
honum er ekki heldur manngreinarálit.
Ægri og lægri, ríkir 0g fátækir, vísir og fá-
vísir skulu allir jafnt, þegar sálin er orðin
laus við þessa þungbæru líkamsfjötra, fyrir
dómstóli guðs fá réttvís og eilíf gjöld athafna
sinna.
Þá skal hinn óguðlegi skelfast 0g kvíða-; en
hjarta hins réttláta skal fagna dómi sínum.
“óttastu þess vegna drottin alla þína æfi-
daga, og gakk á þeim vegi, sem hann hefir vís-
að þér á.” ' "
svip þinn setjast.
Gálaus maður hefir ekki taumhald á tungu
sinni; hann eys orðum út í bláinn, og hefir slys
af heimskumælgi sinni.
Sá maður, sem flanar að verki, áður en
hann hefir íhugað afleiðingarnar, er eins og
gapinn, sem stökkur yfir garð, 0g fellur niður
í sýkið, sem er hinum megin, og hann gáði ekki
að.
Hlýddu því röddu forsjállar íhugunar! ráð
hennar eru viturleg og holl, og för hennar
liggja til friðar og farsældar. Smár. dr. P. P.
(Meira.)
LITILL SUMARLÆKUR—
Lítill sumarlækur
leikur sér um blómagrund,
gegnum fagurgróinn lund
hann braut sér ryður beina.
Milli grænna greina
blítt við smáum blómum hlær,
botn og svarta steina þvær,
hann vill þá vaska hreina.
Stóra og smáa steina
strauma sína lætur létt
lækur skola jafnt og þétt
og af þeim aurinn fágar.
Lækjarbárur bláar
ljóta steina leiruga
laugað hefir gullhreina,
en þvo mig einnig á hann.
Hjálpa mér nú má hann,
láttu vatn í lófa minn,
litli hjartans vinurinn,
svo vel mig vaska megi.
Æ, þú heyrir eigi,
bara rennur beinan veg,
bíður ei þó kalli eg.
En hvað á það að þýða?
Biddu hann að bíða,
elsku litla lóa mín,
lækur skilur orðin þín,
og hlýtur þér að hlýða.
Litla lóan fríða
hleypur o’ní lækinn létt,
laugar sína vængi nett.
Það sá eg áður eigi.
Finst mér fuglinn segi:
“Hjálpa sjálfur þú skalt þér,
þarna í læknum vatnið, er,
en sæk það, vinur, sjálfur.
Vertu’ ei veill né hálfur,
aldrei gæfan eltir þann,
ekkert sem til hennar vann,
þú veizt eg sannleik segi.”
Litli fuglinn fleygi
upp í loftið lyftir sér,
létt um himingeiminn fer
í bláum bárum þveginn.
Ó, hvað eg varð feginn,
Lóan sjálf er sýndi mér
svona hvernig farið er
að nota lækinn ljósa.
Henni skal eg hrósa.
Eg í vatnið óðar næ,
andlit mitt og hendur þvæ,
nú gullhreinn orðinn er eg.
Fljótt til mömmu fer eg,
sýni henni hvað eg þá
hreinn og fríður er að sjá,
þá fæ eg koss og fleira.
—Kv. og Leikir. Páll Jónsson,
MINNINGAR.
S'kuggar sundrast — sólir rísa
— sortna og hverfa í geiminn auða,
Skamt er millum skers og báru,
— skamt er millum lífs og dauða.
Eitt er þó, sem aldrei strandar
yzt við dauðans köldu grynning,
það er ljómi liðins tíma,
— leiftur hugans — fögur minning.
Ef við sjáum út í dauðann
eftir konu — systur — móður,
okkur mun þá mest til yndis
minninganna perlusjóður.
Hver er sinnar sólar smiður,
Sannleiksfegurð kynninganna
verður ávalt efni í grunninn
undir hallir minninganna.
Böðvar Guðjónsson,
frá Hnífsdal.
Professional Cards
/
DR. B. J. BRANDSON
216-220 Medlcal Arta Bld«.
Oor. Graham og Kennedy Sta.
PHONE: 21 824
Offlce ttamr: 2—3
Phone: 27 122
Wlnnlpeg, Manltobe.
COLCLEUGH & CO.
Vér leggjum eérataka Iherzlu & atS
eelja meðul eftir forskrlftum Uekna.
Hin beztu lyf, sem hœrt er aB fá( eru
notuB elngönru. Pegar þér kómiB
meB forskrlftlna tll vor, meglB þér
vera vlss um, aB fá rétt þaB sem
læknirinn tekur tll.
Nötre Dame and Sherbrooke
Phones: 87 659 — 87 66«
Vér seljum Giftlngaleyflsbréf
DR O. BJORNSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Grabam og Kennedy Sta.
PHONE: 21 834
Office tlmar: 3—3.
Helmlll: 764 Victor St.
Phone: 27 586
Winnipeg, Manitoba.
DR. B. H. OLSON
216-220 Medical Arts Bldg
Cor. Graham og Kennedy Sta
Phono: 21 824
Ofílce Hours: 8—5
Heimili: 921 Stherburtve Bt.
Wlnnipeg, Mnnitoba.
DR. J. STEFANSSON
216-220 Medical Arts Bldg
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Pliole: 21 834
Stundar augna, eyrna nef og
kverka sjúkdóma.—Er aB hlOta
kl. 10-12 f.h. og 2-6 e.h.
Heimili: 373 Rlver Ave.
TöjIs. 4,2 691
DR. A. BLONDAL
Medlcal Arts Bldg.
Stundar sérstaklega Kvenna og
Barna sjúkdóma.
Er aB hltta frá kl. 10-12 f. h.
og 3—6 e. h.
Offloe Phone: 22 208
Helmili: 806 Victor St.
Slmi: 28 180
Dr. Kr. J. Austmann,
Wynyard, Sask.
DR. J. OLSON
Tannlæknlr
216-220 Medicak Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sta.
Phone: 21 834
Heimilis Tais.: 38 626
DR. G. J. SNÆDAL
Tannheknlr
614 Somerset Block
Cor. Portage Ave og Donald 8t.
Talsími: 28 889
Dr. S. J. Jóhannesson
stundar almennar
lœkuingar
532 Sherburn St. Tals. 30 877
G. W. MAGNUSSON
Nuddlæknir.
607 Maryland Street
OÞriðja hús norðan við Sarg.)
Prone: 88 072
Viðtalstími: kl. 3-7 e.h. og á
Sunnudögum frá 11-12 f.h.
ið aftur öðlast hana með
TaliB viB
DR. WM. IVENS, M.A. M.L.A.,
926 Somerset Blk., Winnipeg.
Slmi: 21 179 Heima: 66 485
FOWLER □ PTiCAL UD.
294 CARLTON ST.
NEXT TO FREE PRESS
THOMAS H. JOHNSON H. A. BERGMAN íaL lögfrseBLngar. Skrifstotfa: Room 811 McArtbur Buildlng, Portage Ave. P.O. Box 1656 Phonee: 26 849 og 26 840
LINDAL, BUHR & STEFÁNS0N fslenzklr lögfræBlngar. 356 Main St. Tala.: 24 963 peir hafa etnnig skrifsbofur aB Lundar, Riverton, Gimli og Plney og eru þar aS hitta á eftlríylgj- andl tlmum: Lundar: Fyrsta miðvikudag, Riverton: Fyrsta flmtudag, Gimli: Fyreta mlBvikudag, Piney: priBja föstudag I hverjum mánuBi
JOSEPH T. THORSON ísl. lögfræðingur Scaoth, Guild & Thorson, Skrifstofa: 308 Great West Permanent Building Main St. south of Portage. Phone 22 768
G. S. THORVALDSON, B.A., LL.B. Lögfræðingur 709 Electric Chambers Talsími: 87 371
Residence Office Phone 24 206 Phone 24 107 E. G. BALDWINSON, LL.B. Barrister 905 Confederation Life Bldg. Winnipeg.
A. G. JOIINSOM H07 Confederation Lite Bldg- WIN’NIPEG Annast um fasteignir manna. Tek- ur að sér að ávaxta spariíé fölks. Selur eldsábyrgð og bifredða ábyrgð- ir. Skriflegum fyrirspurnum svarað samstundis. Skrifstofusími: 24 263 Heimasimi: 33 328
J. J. SWANSON & CO. LIMITF.l) R e n t a 1 s Insurance RealEstata Mort, gagei 600 PARIS BLDG., WINNPEG. Phones: 26 349—26 340
Emil Johnson SEUtVICE ELEOTRIC líafmagns Contracting — Allskyné ralfrrvagnsáhöld seld og viO pau gvrt — Eg sel Moffat og CcClary elda- vélar og hefi pwr til si/nis á verk- stæði minu. 524 8ARGENT AVK. (gamla Johnson’s bygglngin viB Young Street, Wlnnipeg) Verkst.: 31 507 Heima:27 286
«4
A. S. BARDAL 848 Sherbrooke 8t. Selur likkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður eá beaOL Ennfremur selur hann aiLskonar minnisvarðla og legsteina. Skrifstofu tals. 86 607 Hcimllls Tals.: 58 881
*<Dr. C. H. VROMAN Tannlæknir 505 Boyd Building Phone 24 171 WINNIPEG.
SIMPSON TRANSFER Verzla með egg-á-dag hænsnaföður. Annast einnig um allar tegundir flutninga. 647 Sargent Ave. Sími 27 240
Holmes Bros. Transfer Co. Baggage and Furniture Moving Phone 30 449 668 Alverstone St., Winnipeg Viðskiftilslendinga óskað.
Giftinga- og Jarðarfara- Blóm með litlum fyrlrvara BIRCH Blómsaii 583 Portage Ave. Tals.: 30 720 St. John: 2, Rlng 8
ANDERSON, GREENE & CÓ., LTD.
námasérfræBingar
Meðlimir í Winnipeg Stock Ex-
change. Öll viðskiftl afgreidd fljött
og vel.
Lindsay Bldg. 226 Notre Dame Wpg.
Löggilt af stjórn Manítoba-fylkis.
Sími: 22 164. Finniö oss I sam-
bandi viB námuviðskifti yBar
DRS. H. R. & H. W. TWEED
Taimlæknar.
406 Standard Bank Bldg.
Cor. Portage Ave. og Smith St
Phone A-6545 Winnipeg
t