Lögberg - 12.04.1928, Page 3

Lögberg - 12.04.1928, Page 3
LöGBERG, FIMTUDAGINN 12. APRÍL 1928. BU. 3. Gigt og þrautir í bakinu læknast. Þetta Segir Kona Ein í Quebec Eftir að Hafa Reynt Dodd’s Kidney Pills. Melle Jeanette Thibault Hefir Þær Ávalt Við Hendina. St. Cuthbert, P.Q., 9. apríl — (Einkaskeyti)— “í 5 mánuði þjáðist eg af gigt. Eg hefi reynt Dodd’s Kidney Pills og þær hafa læknað mig”, segir Melle J. Thibault, sem heima á í St. Cpthbert — “Eg reyndi Dodd’s Kidney Pills í fyrra við kvölum í bakinu, sem eg pat varla þolað, ög batnaði ágætlega. Eg fullvissa yður um, að eg hefi Dodd’s Kidney Pills æfinlega við hendina.” Dodd’s Kidney Pills eru reglu- legt nýrnameðal. Þær eru orðnar verulegt húsmeðal, út um allan heim, af því fólkið hefir reynt Íær og fundið að þær eru góðar. ær eru eingöngu nýrnameðal. Þær lækna gigt, lumbago, bak- verk og blöðrusjúkdóma, vegna þess að þessir sjúkdómar stafa af því að nýrun vinna ekki verk sitt sem vera b'er. Kirkjufélagsmál. - 1. Heiðingjatrúboð. Enn aftur ber að minna á það hlutverk, sem kirkjufélag vort hefir tekið að sér í sambandi við þetta mál. Það er að greiða $1,200 á ári til launa trúboðans, séra S. O. Thorlaksson í Japan. Næst- liðið ár gekk fjársöfnun í því augnamiði frábærlega vdl. Á kirkjuþingi 1926 var sjóðþurð, sem nam á fjórða hundrað doll- ara. Að greiða þá sjóðþurð og hið venjulega $1,200 árstillag, tókst á næsta ári. Stöpdum vér því mun betur að vígi nú, en um sama leyti í fyrra, áður en aðal tillögin frá söfnuðunum fóru að koma inn. Sú upphæð, sem nú er þörf á til að standa í skilum við samþykt síðasta kirkjuþings, er um $950. Því meira, sem kemur fram yfir þá upphæð, því betra. Á þetta er nú bent öllum söfnuðum og ein- staklingum kirkjufélagsins og öðrum trúboðsvinum, sem reglu- lega minnast þessa máls með gjöfum. Einnig félög innan safn- aðanna, sem málinu eru sinnandi. Trúboðsfélög og kvenfélög hafa sérstaklega reynst málinu vel. Nú síðast á ársþingi kvenfélag- anna, kom svo greinilegur trú- boðsáhugi í ljós, að það var hið mesta gleðiefni ðllum, sem málið bera fyrir brjósti. Ef nú allir reynast samtaka, er málinu borg- ið. Þeir, er lesa hinar ágætu skýrslur trúboðshjónanna á ári hverju, fá þá sjón á þessu bless- unarríka starfi, að með fögnuði ættu þeir að leggja fram sinn skerf. Ætti Iíka að hafa það hug- fast, að taka sig snemma í vakt, svo að helzt öll tillög mættu vera komin til féhirðis um 1. júní, ef ekki fyr. Utanáskrift hans er: Mr. Finnur Johnson, 668 McDer- mot Ave., Winnipeg. En það er stærra atriði í sam- bandi við þetta mál en fjárhags- hliðin, þó hana beri ekki að van- r®kja. Það er trúboðshugsjónin, sem er svo nátengd hjarta krist- indómsins, að hún verður ekki frá því skilin. Hún þarf að vaka fyrir kennimönnum og safnaðar- iýð í anda nýja testamentisins. í Því augnamiði þarf hún að fá að nlóta sín í boðskap kennimann- anna, í kenslu sunnudagskólanna, 1 bænum og Iofgjörð safnaðanna, 1 hugsun og bænalífi einstakling- anna. Þá þarf ekki að óttast, að málefnið verði ekki fúslega styrkt. Þekking á og hlutdeild í bugsjónum nýja testamentisins erfc bezta stoð þess 0g annara starfsmála kristninnar. Járnefni úr Skepnun Hefir Und . ^etta Járnefni e íi^ir ÞIoðlS°g það S! 001 efnum í líkaman yel, þar sem önnur áður hafa verið not ekki. Af þessu íf®nn reitt sig á heili urnyjaða krafta, ef <? ruattvana, tauga kjarklitlir, eru að n hnft ^atarlyst og slæ nafa b°fuðverk og s’ ast ekki á nóttunni, ?7 fleir.a þvílkt. ken .íarnefni í blóðinu. Nuga-Tone hefir t að geyma í ríkum mi ems hreint og heiln oezt ma vera. __ f ] líka phosphorus, sem betra til að styrkji Einnig fleiri efni, sei amann og lækna sj heilsan er ekki gó? veiklaðar, kjarkurini Iitill, eða þú hefir heilsubrest að stríðf af ónógu járnefni i faðu þér flösku af h ef það reynist ekki e yon á, eftir að þú það 1 nokkra daga, I ganginum og fáðu a r'ina. MARTIN & CO. NYTIZKU V0R-FATNAÐUR Búðarskápar vorir eru fullir og meir en það af ágætis fatnaði. er valinn hefir verið með mestu nákvæmniog vandvirkni. Vér erum verulega upp með oss af þeim vörum sem vér höfum nú að bjóða og vorum Sérstöku þægilegu borgunarskilmálum O A vikur til að borga Afganginn meðan þér eruð að brúka fötin, Notið yður þetta mikla tœkifæri. Veljið f'ótin sem fyrst. KAPUR Tricotine, Charmeen, Foilles, Poiret Twill, Tweeds, Koshos. $1975 til $49.50 AL-KLÆÐNAÐUR Charmeen, Poiret Twill, Tweed, Kasha. $29.50 til $49.50 Kjólar Kasha, Wool Georgette, Flat Creþes, allar stœrðir. $12.95 til $29.50 Einnig mikið úrval af karlmanna fatnoði og yfirfrökkum. Auðveldir borgunarskilmálar. Portage og Hargrave MARTIN & Co. f Annað Góíf Winnipeg Piano. Bldg. EASY PAYMENTS, LTD. 2. Heimatrúboð. Samkvæmt ráðstöfun síðasta kirkjuþings hefir framkvæmdar- nefndin gefið söfnuðunum bend ingar um þær upphæðir, sem frá þeim þyrftu að koma til þessa máls á árinu, ef framfylgja á að vera hægt samþykt síðasta kirkjuþings. Upphæðin er sú sama og til heið- ingjatrúboðs $1,200. Margir af söfnuðum vorum hafa fljótt og vel styrkt þetta rriál, en þess væri þörf, að hver söfnuður liti eftir því hjá sér, að hans hluti til þessa máls hafi verið lagður fram. Leik- menn hafa á undanförnum kirkju- þingum verið mjög hvetjandi í sambandi við þetta mál, og er það vel farið. Nýafstaðið þing kven- félaganna sömuleiðis. Ef sá á- hugi beitir sér heimafyrir, verð- ur framför og takmarkinu með fjársöfnun á þessu ári auðveld- lega náð. Um miðjan febrúar var liðlega helmingur kominn af þeim $1,200, er safna átti. Von- andi bregða vinir málefnisins f jær og nær við, er þeir vita hvernig ástatt er. 3. National Luth. Council. Kirkjufélag vort er meðlimur þessa sambands lúterskra kirkju- félaga. Hefir það verið takmark- ið, að sameina í þessum félagsskap krafta lútersku kirkjunnar hér í álfu í þeim efnum, sem ætti að varða allar deildir hennar, og skapa þannig heildar meðvitund innan kirkjunnar. Þannig hefir verið unnið nauðsynlegt líknar- starf í Norðurálfunni og víðar, liðsint trúboði, komið til liðs lút- ersku kirkjunni á Rússlandi og svo frv. Auk þess gefið út hið merkilega rit, Lutheran World Almanac, fréttasafn snertandi lút- ersku kirkjuna, og haft opið auga fyrir því, er snertir kirkjuna sem heild. Á síðasta kirkjuþingi var samþykt, að greiða til þessa fé- lagsskapar á árinu vorn hlut úr kirkjufélagssjóði, og láta öll til- lög, er inn kæmu til þessa máls, ganga þangað. Er á þetta minst hér, til þess að minna söfnuðina á málið og að ljá því liðsinni. Ef allir söfnuðirnir létu smá-upp- hæð, mundu fást þau rúm þrjú hundruð, er nefnd eru í kirkju- þingssamþyktinni. 4. Sunnudagsskólarnir. Þeir eru eitt vort aðal velferð- armál. Þar sem ekki er sunnu- dagsskóli að vetrinum, er þörf á því snemma á vorin að gera und- irbúning undir sumarið. Það má ekki dragast þar til skólinn á að byrja. Þá vantar oft alt, sem til v rksins þarf, fyrstu sunnudag- ana. Menn og konur þurfa að finna hjá sér köllun að liðsinna málinu með því að gerast kennar- ar og á annan hátt. Og að því þarf að miða, að það sé framför ár frá ári. Til vakningar í sambandi við þetta mál, hefir kirkjuþingi hug- kvæmst að útnefndur skuli einn sérstakur sunnudagur á árinu, er sérstaklega sé helgaður því. For- seta hefir verið falið að velja daginn. Vil eg í því augnamiði tilnefna sunnudaginn 13. maí næstkomandi og hvetja til þess, að prestar og söfnuðir styðji að því, að þessi ráðstöfun megi verða sem bezt að tilætluðum notum. 1 prédikunarstólnum á vel við, að rætt sé um kristilega uppfræðslu, og í sunnudagsskólanum ætti að vera eitthvað sérstakt til að vekja áhuga fyrir starfinu. Annars haga menn sér eftir ástæðum á hverjum stað. Glenboro, Man., 19. marz ’28. K. K. Ólafsson, forseti kirkjufélagsins. UPPSÖGN SAMBANDSLAG- ANNA \ Khöfn, 27. febr. Sameiginlegt fyrir flest um- mæli blaðanna í Kaupmannahöfn út af yfirlýsingunum á Alþingi er, að íslandi sé heimilt að segja up sambandssaihningunum, en margt geti breyzt fyrir 1940. Dan- ir hafi ekki misbrúkað borgara- réttindin. Umsögn blaðanna er þannig: Politiken birtir viðtal við Arup, sem segir, að núverapdi fyrir- komulag utanríkismála, strand- varna og borgararéttar sé til mik- ils hagnaðar fyrir íslendinga. — Hvort ísland vilji takast á hend- ur utanríkismál, verði sennilega komið undir kostnaðinum. Berlingske Tidende birtir við- tal við Halfdan Henriksen. Seg- ir hann, að íslendingar geti breytt um skoðun fyrir 1940, einnig sé hugsanlegt, að Danir óski þá upp- sagnar. Zahle segir, að upTsögn sambandssamningsins muni veikja norræna samheldni. Social-Democraten segir, að uppsögn sambandslaganna þurfi ekki að þýða afnám laganna. Köbenhavn segir, að Danir hafi búist við uppsögn, að minsta kosti í þeim tilgangi, að koma á breyt- ingum, sem reynslan kunni að sýna nauðsynlegar. óhugsanlegt, að Danir vilji halda fast við fyr- irkomulag, sem meiri hluti Islend- inga séu mótfallnir, slíkt væri skaðlegt norrænni samheldni. Nationaltidende segir, að ef ís- lendingar vilji segja upp sam- bandslagasamningunum og síðan slíta ríkjasambandinu, þá vilji Danir ekki hindra það. Island mundi tapa fjárhagslega við sam- bandsslitið. Málið enn fremur “in- ternationelt”. Hugsanlegt, að Is- land njóti raunverulega minna sjálfstæðis á eftir en nú.—Mbl. UM STRAND “JÓNS FORSETA” segir svo í Morgunblaðinu frá 28. febrúar, nýkomnu hingað; Klukkan eitt í fyrrinótt, eða þar um bil, strandaði togarinn “Jón forseti” á Stafnnesi. Er það rétt hjá Stafnnesvita. Er þar að allra sögn einhver hin versti og hættu- legasti staður hér á landi, fyrir skip, sem stranda. Rifið er langt frá landi og er þar sífelt brim, þótt sjór sé hægur annars staðar. En að þessu sinni var brim mikið. Skipið var að koma vestan úr Jökuldjúpi og ætlaði suður á Sel- vogsgrunn. Brimið fór vaxandi með flóð- inu, og gengu brotsjóir yfir skip- ið hver á fætur öðrum. Reis skip- ið nokkuð að framan, og leituðu hásetar sér skjóls frammi undir “hvalbak”. Skipið sendi út neyð- arskeyti og varð fyrsta skipið á vettvang “Tryggvi gamli”. Kom það þangað kl. 6 um morguninn. Var þá niðamyrkur svo dimt, að “Tryggvi gamli” sá skipið alls ekki fyr en fór að birta, eða um klukkan 7Vá. Komu nú þarna smám saman fleiri skip, togarinn “Ver” og “Hafsteinn”, en gátu enga björg veitt mönnum um borð í “Jóni for- seta.” Litlu seinna kom björgun- arskipið “Þór” einnig á vettvang og tveir bátar frá Sandgerði, mannaðir mönnum, sem eru gjör- kunnugir á þessum slóðum. í allan gærdag fram í myrkur, var björgunartilraunum haldið áfram af mesta hetjudug og dugn- aði. En brotsjóirnir slitu sjó- mennina af skipinu, einn af öðr- um, án þess við yrði ráðið. Þeg- ar fram á daginn kom sáu skipin, sem þarna voru, að þau fengu ekkert að gert og tíndust burtu smám saman. — Eitt hið seinasta, er fór af vettvangi, var “Tryggvi gamli.’ Kom hann hingað í gær- kveldi klukkan 10 og flutti hing- að lík fimm manna, af skipshöfn “Jóns forseta”, sem höfðu fundist á reki fram undan skerinu, sem hann strandaði á. 1. gærkvöldi kom “óðinn” á strandstaðinn og mun hafa hald- ið þar vörð í nótt til þess að bjarga ef unt væri. Höfðu þá þegar bjargast tíu menn af skips- höfninni, og er nafna þeirra getið hér síðar. Morgunbl. hitti Kristján Schram, skipstjóra á “Tryggva gamla”, að máli í gærkvöldi um það leyti, sem skipið kom hingað, og spurði hann tíðinda. Honum sagðist svo frá: —Þegar birti svo í morgun, að við sáum “Jón forseta’> þar sem ahnn lá á skerinu. lá hann þannig að hann hallaðist mikið á bak- borða, og var þá bátlaus, að því er bezt varð séð. Sáust þá engir menn uppi. Höfðu þeir leitað sér skjóls fram undir “hvalbaknum”. Skipið virtist þá óbrotið að ofan. Skömmu eftir að við komum þar að, komu mennirnir út á þilfar. Skiftu þeir sér þá. Fóru nokkrir á “hvalbak”, sumir í reiðann og sumir upp á stýrishúsið. Sáum við þar þrjá menn. Nú leið og beið og komumst við hvergi nærri til að bjarga, en lcvikan fór vaxandi og ruggaði skipið mjðg á grunninu og gengu brotsjóir yir það að aftan. Klukk- an rúmlega 10 skall á það brot- sjór svo ægilegur, að haivn tók með sér stýrishúsið og reykháf- inn. — Eftir það fór skipið að síga að framan, og leituðu þeir þá í reiðann, sem áður höfðu haldist við á “hvalbaknum”, og röðuðust þar alveg upp í siglutopp. Gekk nú sjór altaf yfir skipið, en er fór að fjara, dró úr kvikunni nokkuð, en þó voru brotsjóir alt umhverf- is skipið, svo að hvergi var hægt að koma nærri. Bátur frá landi náði þá sam- bandi við “Þór” og fékk hjá hon- um björgunartæki 0g síðan var björgunartilraunum haldið áfram frá landi, þótt aðstaða væri þar afar slæm. Við biðum fram eft- ir deginum, eða fram til kl. 6%. Var þá skollið á inyrkur. — Vél- bátarnir frá Sandgerði voru sí- felt á sveimi fyrir utan rifið til þess að leita að líkum manna, er skolast höfðu fyrir borð, vegna þess að þeir gátu ekki veitt neina aðra aðstoð. Fundu þeir þessi fimm lík, sem við komum með. Er eitt þeirra af ólafi Jóhannssyni, 2. vélstjóra (38 ára að aldri), ann- að af Stefáni Einarssyni bryta (47 ára að aldri) og hið þriðja af syni hans Árna, sem var hjálpar- matsveinn hjá föður sínum (18 ára að aldri). Hin tvö líkin hafa ekki þekst enn. Allir voru menn þessir með bjðrgunarbelti, og bar útfallið líkin út yfir rifið. Þegar við fórum, sáum við enn fyrir víst þrjá menn í reiðanum. Mennirnir sem björguðust. Þegar blaðið fór í pressuna seint í' gærkveldi, hafði það aflað sér áreiðanlegrar vitneskju um það, að þess’r menn höfðu bjargast, ð minsta kosti: Bjarni Brandsson, bátsmaður, Selbrekkum. Magnús Jónsson, Hverfisg. 96. Pétur Pétursson, Laugaveg 76. Sigurður Bjarnas., Selbrekkum. Kristinn Guðjónss., Selbrekkum. Steingr. Einarsson, Framnes- veg 61. Gunnlaugur Jónsson, Króki, Kjalarnesi. Steinþór Bjarnason, ólafsvík. Frímann Helgason, Vík, Mýrd. ólafur I. Árnason, Bergþóru- götu 16. “Jón forseti” mun hafa verið smíðaður árið 1906. Hann var minstur af íslenzku togurunum, 233 “brúttó” smálestir, eign h.f. Alliance. Skipstjóri var Guð- mundur Guðjónsson, en hann var ekki með skipinu í þessari ferð, né í hinni riæstu þar á undan, því að hann hefir legið rúmfastur um hríð. Stýrimaðurinn, Magnús Jó- hannsson, var skipstjóri báðar þessar ferðir.—Mhl. MÁL VERKASÝ NINGIN íslenzka í Þýzkalandi. íslenzka málverkasýningin vek- ur mikla eftirtekt í Þýzkalandi og hlýtur lofsamleg ummæli í blöð- um þar. Birtast hér á eftir nokk- ur ummæli þeirra, tekin úr neð- anmálsgrein í “Politiken” 26. jan, eftir Georg Gretor ritstjóra og umsjónarmann sýningarinnar. “Málverkasýningin íslenzka hef- ir vakið mjög mikla eftirtekt í ðll- um þýzkum blöðum. Og hve rétt- mætt það er. að mæla hina ísl. listmálara eftir ströngum alþjóð- armælikvarða sýndu dómarnir þýzku. “Lubecker Volksbote” ritar: “Borið saman við hina alt of fyrirferðarmiklu sænsku listsýn- ingu í Lubeck í fyrra, vekur ís- lenzka sýningin svo miklu meiri aðdáun, enda þótt hún sé mikíu minni áð fyrirferð.” í “Hamburger Fremdenblatt” segir svo: “Hin unga, íslenzka málaralist er ekki síður eftirtektarverð en málaralist meginlandsins. Hún þarf ekki á velvilja að halda, þeg- ar um hana er dæmt, en sýnir hinn sama þjóðlega, listræna blæ og skapandi þrótt, eins og skáld- skapurinn íslenzki.” “Listdómari “Hamburger Nach richtens” kemst svo að orði, um leið og hann gefur í skyn, að hin einstöku verk muni verða tekin til nákvæmrar gagnrýningar und- ir eins og sýningin komi til Ham- borgar, í marz: “En eitt skal tekið fram nú þeg- ar: Að hér er um listrænan við- burð að ræða, sem er svo miklu merkilegri en venjulegar sýning- ar framandi þjóða.” í hinum þýzku ummælum um hina einstöku málara, er einkum hælt Jóni Stefánssyni og Jóhann- esi Kjarval, en einnig hinir yngri, sérstaklega Gunnlaugur Blöndal, Jón Þorleifsson og Guð- mundur Einarsson (frá Miðdal) vekja meiri eftirtekt í Þýzkalandi heldur en í Danmörku.” R. Á. —Tíminn. WINNIPEG, MAN. Buúrion’ri T3o» .CLompunu. INCORPORATEO 2“ MAY 1670. WINNIPEG, MAN. MENT Engar eftirkröfur. Engar símapantanir. Enginn útflutningur. Hin Fyrsta Mikla Kjólasalaí BarpÍH 83SLIH6nt Hver kjóll nýr. Hver kjóll af nýustu gerð. Hver kjóll nokkrum dölum meira virði. Látið ekki hið lága verð villa yður sjónar. Vér fengum framúr skarandi góð kaup á kjólum í Austurfylkjunum Komið og búist við reglulegum kjör- kaupum, og þér fáið þau. Það er yðar hagur að kaupa hér og nú. Kjólarnir eru allir ágætir, þó að verðið sé svona lágt. LJÓMANDI FUJI SILKI KJÓLAR Sérstök kjörkaup $4.75 Kjólar í einu og tvennu lagi, með hekluðum hálsborðum, laglegum vösum, mjóum beltum margvíslega löguðum. Rauðleitir, bláleitir, græn- leitir, gulleitir, móleitir. Margar stærðir úr að velja, 38 til 50. 200 EINLITIR OG RÓSÓTTIR SILKI KJÓLAR Gjaíverð $6.95 Yður mun furða hve fallegir þessir kjólar eru. Margir þeirra voru gerðir í New York og sýna nýjustu kjólagerð. í einu og tvennu lagi, með fallegum hnöppum og spenn- um, með tveimur samstæðum litum, pleats, tuckings og pipings. Stærð- ir 14 til 50. 100 RÖNDÓTTIR OG RÚÐ- ÓTTIR Celanese KJÓLAR. Gjafverð $4.50 Þeir eru bæði laglegir og þægilegir og hægt að halda þeim hreinum. Röndóttir og köflóttir. í einu eða tvennu lagi og kragar með tvennu móti. Langar og stuttar ermar. Þér sparið peninga með því að færa yður þetta í nyt. 200 KVEN. OG STÚLRNA SILKI KJÓLAR Gjafverð $7.95 Eftirtektaverðir kjólar, sem þeir er sjá þá mundu halda að kostuðu helmingi meira. Litirnir og það, sem þeir eru skreyttir með, veldur því, að þær sem klæðast þeim sýnast sérstaklega unglegar. Bláleitir, gul- leitir, móleitir, dökkleitir, grænleitir og rauðleitir.— Stærðir 14 til 40. 150 NOVELTY JERSEY KJÓLAR Gjafverð $4.75 Fara vel og eru laglegir og hentugir fyrir allskonar sport. Einnig góðir fyrir ferðalög og til daglegs brúks. Með Jersey og Novelty röndum, sérstaklega fall- egir litir. I einu og tvennu lagi. Frámunalega falleg gerð og öðru vísi heldur en kjólar eru vanalega. — Stærðir 14 til 40. H.B.C. BARGAIN BASEMENT

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.