Lögberg - 03.05.1928, Síða 1

Lögberg - 03.05.1928, Síða 1
41. ARGANGUR | Helztu heims-fréttir Canada. Hinn frægi flugmaður, Floyd Bennett, andaðist í Jeffrey Hale spítalanum í Quebec hinn 25. apr- íl. Lungnabólga varð hans bana- mein. Hann kom frá Detroit og ætlaði til Greeny Island til að hjálpa hinum þýzku flugmönnum, sem þar strönduðu, og færa þeim það, sem álitið var að þeir þyrftu til að gera við flugvél sína, “Bre- men.” Mr. Bennett var ekki vel frískur, þegar hann lagði á stað frá Detroit, en fékk lungnabólgu á leiðinni og komst til Quebec og dó þar eftir skamma legu. * * * Eftir því sem “The Financial Post” segir, þá eru yfir fimtíu iðnaðarfélög og verzlunarfélög og bankar í Canada, sem eiga svo miklar eignir, að þær nema fim- tíu miljónum dala, eða þar yfir. Af öllum þessum félögum eru járnbrautafélögin tvö einu biljóna félögin. Annað þeirra er nú þjóð- eign, eins og kunnugt er, og eru eignir þess taldar tvær biljónir og hundrað og sextíu þúsundir, en eignir C. P. R. félagsins eru tald- ar nærri miljón dala minna virði. Þá eru þrír bankar, sem eiga yfir fimm hundruð miljónir, og tveir af þeim eiga meira að segja yfir átta hundruð miljónir. Þá er heill hópur af félögum, er eiga eignir er nema hundrað til fjögur hundruð og fimm miljónir, og enn j nokkur, sem ,eiga innan við hundrað miljónir, og þó fimtíu miljónir eða þar yfir. Hluthafarnir í þessum mörgu félögum, skifta hundruðum þús- unda, svo ekki verður sagt, að þessi mikli auður sé fárra manna eign. Félög, sem einstakar fjöl- akyldur eiga, eru að eins fá, og «r T. Esrton félagið helzt þeirra, «n eignir þess eru áætlaðar um $150,000,000. Þar að auki eru allmörg félög í öðrum löndum, sem Canadamenn eiga, og aðallega er stjórnað frá Canada. * * * í Souris, Man., hefir farið fram atkvæðagreiðsla um það, hvort þar skuli leyfð bjðrsala eða ekki. Voru 436 atkvæði greidd með bjórsölunni, en 277 á móti. Sagt er, að atkvæðagreiðslan hafi ver- ið sótt af töluverðu kappi., * * • Á laugardaginn 1 næstsíðustu viku fórust tveir menn af flug- slysi norður við The Pas, Man. Flugmaðurinn, sem þarna var á flugi í sinni eigin flugvél, var Carl Sherritt, sem árum saman var veiðimaður í norðurhluta Manitobafylkis. Hann fann síðar hinar auðugu koparnámur þar nyrðra og var orðinn stórauðug- ur maður. 1 vetur var hann suð- ur í Plorida og lærði þar að fljúga og kom í vor þaðan að sunnan í sinni eigin flugvél. Hafði hann verið í The Pas um tíma og flog- ið eitthvað meira og minna flesta daga, sem hann var þar. Með honum var í flugvélinni, þegar slysið vildi til, ungur maður, Walt- er Johnson að nafni. Sherritt féll úr flugvélinni, þegar hún var um þrjú hundruð fet uppi í loft- inu, og dó strax þegar hann kom niður, en Johnson kom niður með henni og meiddist svo, að hann dó skömmu síðar. * * * Það hefir þótt eitthvað vafa- samt, hvort konur mættu eiga sæti í öildungadeild sambandsþingsins eða ekki. Sanngimi þykir mæla með því, að konurnar megi þar vera, eins og á öllum öðrum þingum og þingdeildum í land- inu. En hér var ekki eftir öðru að fara en stjórnarskránni, British North America Act, og þá var að komast að því, hvernig bæri að skilja þau lög í þessu atriði, og var hæstarétti Canada falið að s'kera úr því. Það sem dómararn- ir áttu að skera úr í þessu efni, var það, hvort orðið “jjerson” í 24. kafla fyrnefndra laga, næði einn- ig til kvenfólksins, eða til karl- manna aðeins. Rétturinn skildi þetta þannig, að honum bæri að svara því, hvort lögmætt væri að konur ættu sæti 1 öldungadeild- inni, eða hvort karlmenn einir msfettu vera útnefndir af stjórn- inni í þau embætti. Rétturinn komst að þeirri niðurstöðu, að hér væri átt við karlmenn að eins og að konur gætu ekki átt sæti í öld- ungadeildinni, samkvæmt stjórn- arskránni. Gömlu mennirnir verða þar því einir um hituna fyrst um sinn, eins og verið hefir. * * * í vikunni sem leið vildi það slys til skamt frá bænum Petrolia í Ontario, að fólksflutningalest valt út af teinunum. Fjórar manneskj- ur meiddust all alvarlega, þar á slysi þessu er enn á huldu. * * * Sáning í suðurhluta Alberta- fylkis, er nú víða komin vel á veg, eftir fregnum frá Calgary að dæma. * * * Látinn er í Torontoborg, A. W. IFritchard, sá er um langt skeið var einkaritari Greenways, stjórn- arformanns í Manitoba, rúmlega sjötugur að aldri. * * * Hreinn ágóði af stjórnarvínsöl- unni í Saskatchewan, yfir fjár- hagsárið, sem endaði þann 31. marz síðastliðinn, nam að sögn $2,114,866.44. * * * E. G. Hingby, forstjóri hagl- ábyrgðarfélagsins í Saskatche- wan, framkvæmdarstjóri hveiti- samlagsins, hefir nú sagt hinni síðarnefndu sýslan lausri. * * * Canaon Burd frá Saskatchewan, var einn þeirra manna, er nýlega mættu fyrir nefnd þeirri í sam- bandsþinginu, er um innflutnings- málin fjallar. Var hann næsta harðorður í garð innflutnings- máladeildarinnar yfir því, hve margir “útlendingar”, það er að segja annara þjóða en brezkir, þyrptust inn í landið. Mr. George McPhee, sambandsþingmaður fyr- ir Yorkton kjördæmið, mótmælti stranglega ummælum Mr. Burds, og kvað alt þetta “útlendinga” hjal mestu fásinnu, því það væri á allra vitorði, að innflytjendur frá hinum ýmsu Norðurálfuþjóð- um, stæðu í engu brezkum inn- flytjendum að baki. * * * Hon. Geo. G. King, senator, andaðist í Edmonton, Alta., hinn 28. f. m., 92 ára að aldri. Hann var einn með allra elztu mönn- um í öldungadeildinni og hafði átt þar sæti síða árið 1896. Bandaríkin. W. H. s. Thomson, dómari í Pittsburgh, hefir úrskurðað, að Ku Klux Klan félagið sé ólögleg- ur félagsskapur, sem misbjóði rétti og frelsi almennings og eigi því ekki rétt á að njóta verndar laganna. Tilefnið til þessa úr- skurðar dómarans var það, að fé- lagið hafði höfðað mál gegn nokkrum, mönnum, sem það hafði rekið úr félagsskapnum, fyrir að nota nafn félagsins. * * * District Supreme Court, í Wash- ington, DjC., hefir sýknað Harry F. Sinclair í New York, af þeirri kæru, að hann sé meðsekur í sam- særi gegn stjórninni, til að hafa af henni fé á ólöglegan hátt í sambandi við hið svo nefnda Teapot Dome olíumál. Kellog utanríkisráðherra og ít- alski sendiherrann, Nobile de Mar- tino, hafa undirskrifað samninga um að leggja ágreiningsmál þeirra þjóða fyrir gerðardóm, en fara ekki í stríð út af þeim. * * * Vatnsflóð, sem valdið hafa all- miklu eignatjóni, hafa fyrir 1 WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 3. MAÍ 1928 NÚMER 18 —>r>< --->o< ~>o< vrv 1 ->rw >r>< —~>nr — (■iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiwiiiiiiiiiiiiiiMiiMiiiiiiiiiiiiiMiiiiffl^^^ ° Eg ann þér vor. |(j Eg ann þér vor; þú vekur alt af svefni; livert vona blómstur angar sætt á ný; eg ann þér vor; þú leysir alt úr læðing; nú löndin sokknu brosa röðul-hlý. M ° Eg ann þér vor; þú lilý.iar mér um lijarta; eg liarðan sálar-klaka þiðna finn; eg ann þér vor; þú víkkar sjónhring andans; í vegfaranda lít eg bróður minn. • ~ O Eg ann þér vor; þú opnar undra-heima, svo auga hverju dásemd lífsins skín; eg ann þér vor; þinn himinn lyftir huga; |ö af hæsta tind er löngum fegurst sýn. jH O Richard Beck. ■Illlllllllllll^ IIIIIIIIIIUII!! >Q<---------->o llllllilillllllllllllllllllllllllilllllilillllllllllllliilllllllllllllll OCIT>OCZOO<----------------------->CX,------->OCZ3QC >o<y rrr skömmu gengið í Georgia, Ala- bama og Florida. Bretland. Winston Churchill, fjármála- ráðherra Breta, lagði fjárlaga- frumvarp sitt fyrir þingið á þriðju daginn í vikunni sem leið. Hann gat þess þá, að tekjuafgangur á fjárhagsárinu, sem nú er að enda, mundi verða um $22,500,000. Tel- ur hann þann tekjuafgang hæfi- legan og vafalaust kærkominn þingi og þjóð. Hann býst við, að á næsta fjárhagsári verði tekju- afgangurinn nokikru meiri, eða um $31,510,000, þrátt fyrir það, að skattar hafa verið lækkaðir tölu- vert og tollar færðir niður, eins og t. d. á sykri og einhverjum fleiri nauðsynjum. Þakkar hann þennan tekjuafgang því aðallega, hve mikillar sparsemi hafi verið og sé gætt í ðllum efnum og haldist fjármálin í því horfi, sem þau nú séu, verði þjóðsikuldin borguð að fullu eftir hálfa öld. Hvaðanœfa. AlmeHnar þingkosningar fóru fram á Frakklandi fyrra sunnu- dag. Fóru þær þannig, að Ray- mond Poincaré forsætisráðherra vann þar mikinn sigur yfir öllum öðrum flokkum og stjórnmála- leiðtogum. Eins og kunnugt er, tók Poincaré við forystunni fyr- ir eitthvað tveimur árum, eftir að stjórnarskifti höfðu orðið hvað eftir annað og frankinn var alt- af að falla í verði og allur fjár- hagur ríkisins sýndist vera að komast í kalda kol. Hefir fjár- hagur frönsku þjóðarinnar mjög færst í betra horf síðan Poincaré tók við völdum, og bera þessar kosningar vott um, að Frakkar virði það og viðurkenni. • * # Capt. George Wilkins og Carl B. Eielson hafa flogið alla leið frá Point Barrow, Alaska, yfir norð- urpólinn, til Spitzbergen, og voru þeir tuttugu og hálfa klukku- stund á leiðinni. Þessi langa og hættulega flugferð hepnðaist vel og slysalaust, og flugmennirnir náðu Svalbarði heilu og höldnu. Sagt er, að frá Spitzbergen ætli þéir að fljúga til Parísar og koma við í Oslo og Kaupmannahöfn. * * * í Milan á ítalíu varð sprengi- kúla fimtán manns að bana og særði um f:mtíu hinn 12. f.. m. Er( álitið, að sprengikúlunni hafi verið varpað í þeim tilgangi, að ráða ítalíukonung af dögum, sem þar var á ferð, en hann slapp ó- skemdur. * * * Miklir jarðskjálftar hafi fyrir skömmu gengið í Búlgaríu, Rúm- eníu og Jugo^Slavíu. Um tuttugu manns hafa farist. Eignatjón er stórkostlegt. JÓHANN ERLENDSSON, Dánarfregn. Að morgni þess 14. apríl varð öldungurinn Jóhann Erlendsson bráðkvaddur að heimili sínu í Akrabygð í Norður Dakota. Hann var fæddur 14. september 1844, í Kaupangi í Eyjafjarðarsýslu, son- ur hjónanna Erlendar ólafssonar bókbindara, og Sigurbjargar Ein- arsdóttur. Sextán ára gamalll fluttist hann yfir í Fnjóskadal í Þingeyjarsýslu, og kvæntist þar, er hann var kominn nokkuð yfir tvítugt, Sigurbjörgu Guðlaugs- dóttur frá Steinkirkju í Fnjóska- dal, er nú lifir mann sinn. Voru þau all-lengi búsett á Akureyri, og fluttu þaðan til Ameríku árið 1886. Búsett í þorpinu að Gardar í Norð- ur Dakota þar til 1890, að þau keyptu jörð í Akrabygð. Voru þar til heimilis ætíð síðan. Áttu eina dóttur og sjö syni. Dóttirin er Vilfríður, kona Jóns Norman í Hensel. ISynirnir: Guðlaugur, lyf- sali 'í Wyndermere, N. Dak. Egg- ert, ritstjóri í Grafton, N. Dak.; Jakob, bóndi á föðurleifð sinni í Akrabygð; Erlendur, í þjónustu Gt. Northern félagsins í Grafton, N. Dak.; Friðrik, bóndi í Akra- bygð; Tryggvi, til heimilis hjá Friðriki bróður sínum, og Ólafur, látinn fyrir hálfu þriðja ári. Jóhann Erlendsson var skarp- gáfaður maður, er átti fáa sína líka að andlegu atgerfi meðal sjálfmentaðra manna. Hann var víðlesinn og fróður um öll íslenzk efni. Einnig stálminnugur, þ’ar til ellin tók að buga hann. Hann var mjög vel að sér í íslenzkum skáldskap, kunni mestu ógrynni af ágætis ljóðum utanbókar og átti bæði smekk og dómgreind í þeim efnum. Var vel hagmæltur sjálfur, en lét lítið á því bera. Bókband hafði hann numið heima á íslandi, og stundaði hann það nokkuð hér. I^om þar fram smekk- ur og vandvirkni sem í öðru. Trú- maður var hann einlægur og á- kveðinn, einnig mjög vel að sér í trúarljóðum og öðrum kristnum fræðum. Heimili þeirra hjóna, Jóhanns og Sigurbjargar, var annálað fyrir gestrisni og góð- semi, þó ekki væru þau stórefnuð, og eiga margir endurminningar um ánægjustundir á heimili þeirra. Síðustu árin var Jóhann blindur, og var konan honum þá bæði auga og hönd. Með honum er fallinn einn hinn merkasti mað- ur í hópi eldri kynslóðar Vestur- íslendinga. Fjölmenn var útför hans þriðju- daginn 17. apríl. Séra H. Sigmar jarðsöng, en séra K. K. ólafson talaði einnig í kirkjunni. K. K. O. Fundurinn stóri. Samkvæmt fundarboði, auglýstu í báðum íslenzku blöðunum, var fundur haldinn um heimferðar- málið, eða öllu heldur styrkbeiðni heimfararnefndarinnar til fylkis- stjórnanna í Manitoba og Saskat- chewan, í St. Stephens kirkjunni, á horni Spence íg Portage, síðast- liðið þriðjudagskveld. Fundurinn var afar fjölsóttur, líklega eitt- hvað á tólfta hundrað manns. Fundarstjóri var kosinn í einu hljóði, Dr. B. J. Brandson, en skrifari Einar P. Jónsson. Um- ræður urðu langar, en engin á- lyktun var tekin í málinu. Frá ýmsu því, er fram kom í umræð- unum, verður nánar skýrt í næsta blaði. Listanámsskeið. undir umsjón Emile Walters. Ákveðið hefir verið, að lista- námsskeið það, undir forystu Mr. Emile Walters, er getið hefir áð- ur verið um í báðum íslenzku blöðunum, hefjist að Gimli um þann 15. ágúst næstkomandi, og að það standi yfir í sex vikur. Kenslan verða $20.00 fyrir allan námstímann. Kensluáhöld öll og liti verða nemendur að leggja sér sjálfir til. Áætlað er, er að fæði og húsnæði fáist fyrir dollar á dag. Allmargar umsóknir hafa þeg- ar borist forstöðunefndinni, og er því hér með skorað á listræn ung- menni af þjóðflokki vorum, að láta ekki hjá líða að senda inn umsóknir sínar til Dr. Ágúst Blöndal, að 806 Victor Street, ekki síðar en 15. júnl. Cr bœnum. Söfnuðir kirkjufélagsins eru á- mintir um, að senda ársskýrslur sínar, eins fljótt og auðið er, til skrifara kirkjufélagsins, séra Jó- hanns Bjarnasonar í Árborg. — Nálægt einn fjórði safnaðanna eiga enn eftir að senda skýrslur sínar, og eru þeir beðnir um að sinna máli þessu hið fyrsta. Ársfundur íþróttafél. Sleipnir” verður háður í neðri sal Good- templarahússins mánudagskveldið þann 7. þessa mánaðar. Afar á- ríðandi er, að félagsmenn fjöl- menni, því mörg mikilvæg mál bíða úrlausnar. Mr. J. Ragnar Johnson, lög- fræðingur, hefir nú opnað skrif- stofu í 704 Mining Exchange bygg- ingunni, 356 Main Street. Sími á skrifstofunni er 21 033, en heim- ilisins 29 014. Leikurinn, “The Manacled Man”, verður endurtekinn í Good Templ- ara húsinu, næstkomandi þriðju- dagskveld, 8. maí, og byrjar kl. 8.30. Allur ágóðinn gengur til gamalmenna heimilisins Betel. G ta því þeir, er leikinn sækja, gert hvorttveggja í senn, styrkt ágætt málefni og skemt sjálfum sér, því leikurinn er ágætur og prýðis vel leikinn. Mr. O. Eggerts- son hefir aðstoðað við leikæfing- arnar og leiðbeint 'leikendunum og er það meðal annars trygging fyr- ir því, að leikurinn muni vel tak- ast. Aðgöngumiðar kosta eins og áður 50c. og þarf ekki að efa, að íslendingar fylli G. T. salinn þetta kveld — þriðjudagskveldið 8. maí. Jóns Sigurðssonar féíagið held- ur fund næstkomandi mánudags- kveld, þann 7. þ.m., að heimili Mrs. Steindór Jacobson, 676 Agnes Street. Mr. Kolbeinn Thordarson frá Leirá, er fyrir skömmu kominn til borgarinnar frá California, þar sem hann hefir dvalið undanfarin ár. Laugardaginn 28. aríl, voru þau Gísli Jón Gíslason og Steinunn Margrét Sigurðsson, bæði frá Silver Bay, Man., gefin saman í hjónaband, af séra Rúnólfi Mar- teinssyni, að 493 Lipton St., Brúð- hjónin leggja af stað til héimilis síns, að Silver Bay, í þessari viku. Guðmundur Thorsteinsson frá Langholti í Hraungerðishreppi í Flóa, kom til borgarinnar siðastlið- inn fimtudag. Kom hann austan frá Halifax, þar sem hann hefir stundað togaraveiði frá í október, er leið. Guðmundur er bróðir Sig- urðar Þorsteinssonar glímukappa, þess, er vann glímubeltið á íslend- ingadaginn í fyrra hér i Winnipeg. Á föstudaginn í vikunni sem leið, bárust þær fréttir hingað til borgarinnar, að landi vor Magnús (Mike) Goodman, íþrótta- maðurinn góðkunni, hefði all- hættulega slasast við skautaleik í Los Angeles, í California, þann- ig, að annar maður hefði rekist á hann á skautasvellinu, og hefði mænan bilað. Fylgdi sú tilgáta, að litlar líkur væru til að hann mundi nokkurn tíma aftur verða fær um að taika þátt í skautaleik. Sem betur fer, mun þetta vera nokkuð orðum aukið, en hitt er því miður satt, að hann meiddist töluvert og mun ekki geta stund- að íþrótt sína fyrst um sinn; en síðustu ftéttir segja, að hann sé á góðum batavegi og góðar vonir séu um, að hann verði jafngóður. Canada framtíðarlandið. Sambandsstjórnin hefir í Al- berta, útmælt svæði til skemti- garða ((Parks), er nema 4,357,660 ekrum. Eru þau kölluð: Jasper, Rocky Mountain, Waterton Lakes, Buffalo, Elk Island og Antelope. Jasper svæðið er um 2,816,000 ekrur, en Antelope skemtigarðs- svæðið 5,020. Skemtigarðar hafa stórmikla þýðingu fyrir þjóðfélagið. Eru þeir fyrst og fremst til hvíldar og eins eykur blómskrúð þeirra mjög á fegurðartilfinningu fólks og ást þess á dýrð náttúrunnar. Draga svæði (þessi árlega að sér mikinn straum ferðafólks, einkum þó frá nágrannaþjóðinni— Banda- rikjunum. Allmikið af ferðafólki heimsækir Canada að usmrinu til bæði frá orðurálfunni og eins úr Austurlöndum. Jasper Park liggur meðfram að- albraut þjóðeignakerfisins — Can- adian National Railways, um 260 mílur vestur af Edmonton borg. Getur þar að líta fljót og stöðu- vötn, skóga og hið fegursta fjall- lendi. Streymjir þangað fjöldi fólks að sumrinu til; og skemtir sér við fjallgöngur og veiðar. Rocky Mountain Park, þar sem Banff liggur, er einn af þeim stöð- um, sem hafa dregið að sér mesta athyglina. Er hann um 80 mílur fyrir vestan Calgary. Ber þar fleira hrífandi fyrir auga, en í nokkrum öðrum skemtigarði á þessu mikla meginlandi. Nátt- úrufegurð er þar óviðjafnanleg. Stór og hagkvæm gistihús er þar rááSlpoTPPo laðUnnsgf tið ð:þ að finna, með öllum þeim nútíð- arþægindum, er hugur ferða- mannsins frekast fær ákosið. Eru þar heitar laugar.'sem mjðg eru notaðar til heislubóta. Þyrp- ist fólk þangað úr öllum áttum, einkum það, er af gigtveiki þjá- ist. Buffalo Park, sem liggur við Wainwright, tekur yfir meira en hundrað þúsund ekrur. Er þar mikið af alls konar cíýrum, Eru þar nú um fjórar þúsundir af Buffalos og auk þess mikið af elks. Waterton Park, 270,720 ekrur að ummáli, liggur* í suðvestur- lhuta fylkisins; er landslag og út- sýni þar hið allra fegursta. Sæk- i rþangað mjög fólk frá Leth- bridge, Macleod, Pincher Creek, Cardston og fleiri bæjum og bygðarlögum. Er þar mikið af ám og vötnum og skemtir fólk sér þar við siglingar, róðra og veiði- farir. i Elk Island Park, er fullar tíu þúsund ekrur að ummáli. Er þar mikið um elkdýr, músdýr og Cari- bou, en lítið um buffalos. Svæði þetta liggur í grend við Lamont. Antiloe Park liggur í suðveíl- urhluta fylkisins. Er þar tals- vert af Antilópu-hjörðum. Samgöngur í Alberta-fylki eru upp á það allra bezta. Megin- braut C. P. R. félagsins liggur um þvert fylkið gegn um Calgary. Aukalína frá Moose Jaw, liggur norður og suður til Lacombe. Og önnur braut, er ilggur um Saska- toon, tengir íEdmonton við Wiri- nieg. Einnig hefir C. P. R. félagið línu, er tengir fylkið við Great Falls og Montana, og einnig er nú fullger önnur járnbrautarlína, er tengir saman Lethbridge og Weyburn. ' ‘ Línur þjóðeignakrefisins — Can- adian National Railway, er áður nefndist Canadian Northern og Grand Trunk Pacific, liggja einn- ig þvert um fylkið, gegnum Ed- monton. Aukalína tengir saman Saskatoon og Calgary og önnur, er nær til Fort Murray við Lower Athabaska, frá Edmonton. Báðar meginlínur þjóðeignabraut- anna liggja um Edmonton og Cal- gary. Einnig hefir félagið marg- ar hliðarálmur, er liggja inn í flest akurjrrkju og námahéruð fylkisins. Edmonton, Dunvegan og Brit- ish Columbia járnbrautin gengur frá Edmonton til Sirit River, til afnota fólki því, er býr sunnan megin Peace árinnar. Frá Mc- Lennan bænum liggur járnbraut- arlína norður til Peace River og yfir um ána, til mikilla hagsmuna fyrir fólk, er að norðan og vest- an býr, og þá, sem þangað kunna að flýtjast í framtíðinni. Fylkisstjórnin hefir alla jafna látið sér næsta umhugað um, að bæta samgöngurnar, svo bændur hefðu sem allra greiðastan gang að markaði fyrir vörur sínar. Héraðsvegi er stöðugt verið að leggja og er búist við að notkun tjörusands úr Athabaska hérað- inu tiíl ofaníburðar, muni hafa mikil og góð áhrif á vegalagning- ar og viðhald vega. í viðbót við það, sem fylkis- stjórnin og stjórnir hinna ýmsu sveitarfélaga leggja til vegabóta, leggur sambandsstjórnin fram allmikið mé til lagningar þjóðvega og viðhalds þeirra. Fjórir þess- ara aðalvega liggja frá austri til vesturs. Einn liggur um Medi- cine Hat og fylgir aðallínu C. P. R. félagsins um Calgary og Bánff til Brltish Columbia; annar frá Crow’s Nest Pass; hinir ná lengst inn í fylkið um Lacombe, Wetas- kiwin og Edmonton. í norður og suður liggja þjóðvefir frá Atha- vaska um Edmonton, Calgary og Lethbridge, alla leið til Coutts. Símakerfið er eign stjórnarinn- ar eða fylkisbúa. Firðlínur liggja frá Ooutts til Athabaska og frá borgum austurfylkisins, til Banff og Entwistle. Veita línur þessar not fólki á 7,500 fermílna svæði, þar sem íbúatalan er um 600,000. Firðlínurnar eru til samans um 25,000 mílur á lengd. Alls eru 719 bæir í fylkinu, er not hafa af símasamböndum þessum. Yfir 40,000 símaáhöld eru í notkun einstakra manna, þar af eru 12,000 á bændaheimilum. Bæði járnbrautarfélögin, Can- adian Pacific félagið og Canadi- an National Railways, hafa sín eigin ritsímakerfi. Frá Islandi. Reykjavík, 20. marz 1928. Jarðarför Haralds Níelssonar prófessors og háskólarektors fór fram í gær. Hófst hún með hús- kveðju að heimili hans, í Laugar- nesi, og voru þar að eins nánustu vinir og venslamenn viðstaddir. Fylgdu þeir líkvagninum til bæj- arins í bifreiðum og mættu á Lækjartorgi fylkingu stúdenta, er siðan gekk á undan að and- dyri háskólans. Báru nokkrir guð- * fræðastúdentar kistuna inn í and- dyrið og flutti rófessor Sigurður Sívertsen, eftirmaður hins látna sem háskólarektor, minningar- ræðu. Háskólakennarar báru kistuna út úr skólanum aftur. Prófessor Haraldur hafði æskt þess, að jarðarför sín færi fram frá frikirkjunni og var haldið þangað frá skólanum. Gengu stú- dentar á undan. 1 kirkjunni tal- aði Einar H. Kvaran, og var það einnig að ósk hins látna. Séra Friðrik Hallfrímsson flutti einnig ræðu í kirkjunni. Mann- fjöldi mikill var viðstaddur, og komust hvergi nærri allir í kirkj- una. Var því, er þar fór fram, því útvarpað og hátalarar í kirkju turninum, svo að þeir heyrðu, er úti biðu. Kirkjan var tjölduð hvítu, og fagurlega skreytt lif- andi blómum. Stórstúkufélagar báru kistuna í kirkju, en út úr henni háskólakennarar. Á leið- inni í kirkjugarðinn gegnu fyrst frímúrarar og síðan stúdentar á undan líkvagninum. Stúdentaráð háskólans bar kistuna inn í garð- inn, en frimúrarar siðasta áfang- ann að gröfinni. Séra Friðrik Hallgrímsson kastaði rekunum. Stúdentakórinn annaðist allan söng við jarðarförina__Vísir.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.