Lögberg - 17.05.1928, Síða 1
Helztu heims-fréttir
41. ARGANGUR |
Canada.
Sagt er, að nú hafi verið gert
•svo við flugvélina “Bremen”, að
hægt sé að fljúga henni frá Green-
ly Island, þar sem hún hefir ver-
ið síðan fyrir miðjan apríl að hún
strandaði þar. Hafa menn verið
þar nú all-lengi til að gera við
það, sem bilaði í vélinni, þegar
flugmennirnir urðu að lenda
henni þarna, og segja þeir, að það
hafi hepnast svo vel, að hún sé
flugfær, eða jafngóð.
* * •
Það er ehn óvíst hvenær elli-
styrkslögin í Manitoba ganga í
gildi. Það fréttist einu sinni, að
það mundi verða 1. júlí, en stjórn-
in segir, að það hafi enn ekki ver-
ið ákveðið. Sagt er, að um tólf
hundruð manna og kvenna hafi
nú þegar sótt um þennan elli-
styrk.
* * *
Kona nokkur, Mrs. McKee að
hafni, höfðaði nýlega mál gegn
Winnipeg-bæ og krafðist 28,000
skaðabóta, af því hún hefði dott-
ið á hállku á Sherbrooke St. og
meitt sig töluvert mikið. Kvið-
dómurinn ákvað henni $2,500
skaðabætur.
* * *
P. Burns sláturfélagið mikla í
Galgary, hefir selt eignir sínar all-
ar The Dominion Securities Cor-
poration Ltd., sem hefir aðal-
hækistöð sína í AusturÆanada,
fyrir $15,000,000. — Félagið P.
Burns and Co., Ltd., var stofnað í
Calgary, Alberta, árið 1890 af
ungum hjarðbónda þar vestur frá,
sem Pat Burns heitir, og sem jafn-
an hefir verið aðal eigandi þess
og ráðsmaður. Hefir það siðan
tekið ákaflega miklum vexti og
hefir nú útibú í öllum helztu bæj-
um Vestur-Canada og einnig í
Kenora og Fört William, Ont., og
enn fremur hefir það útibú í Ev-
rópu og Asíu. Félagið hefir 95
kjötsölubúðir og 40 rjómabú og
smjörgerðarhús. Aðallega verzl-
ar félagið með kjötmat allskonar,
smjör, osta, garðmat og ávexti..
* * *
í síðastliðnum aprílmán. skein
sólin á Winnipeg og nágrennið í
215 klukkustundir samtals. Það
®r ellefu stundum meira heldur en
talið er meðaltal fyrir þann mán-
uð. Til samanburðar má geta
hess, að Montreal hafði að eins
113 sólskins klukkustundir, og er
það 2 klukkustundum minna en
vanalega. í Ottawa voru 138 sól-
skins stundir í apríl, eða 55 kl.-
stundum minna en vanalega.
# * *
Hin svo nefnda Steel Block á
Portage Ave. og -Carlton Street
hvað hafa skift um eigendur fyrir
$500,000. Byggingin er sex hæð-
H og var bygð 1903. Eigandinn
var The Royal Bank of Canada,
«n um kaupanda er ekki getið, enn
sem komið er.
* * *
Joseph P. Foley, K.C., andaðist
á föstudaginn í síðustu viku eftir
skamma legu, fimtugur að*aldri.
Hann var einn með merkustu lög-
mönnum Winnipegborgar og með-
limur lögmannafélagsins Tupper,
McTavish, Foley and Tupper.
* * *
Hon. John Bracken, forsætisráð-
herra í Manitoba, kom heim til
Winnipeg á laugardaginn var. Hef-
lr hann verið suður í Bandaríkj-
um og austur 1 fylkjum nú all-
lengi. Er sagt að hann hafi feng-
ið mikla heilsubót og sé nú
hraustari heldur en hann hafi
lengi verið. 1
' Er hann var spurður um Sjö-
systra fossana, sagði hann, að nóg
hefði verið um það mál talað.
Lét þó á sér skilja, að líklegt væri
að það mál yrði bráðum útkljáð
og varla mundi þess verða langt
að bíða, að Winnipeg Electric fé-
lagið fengi leyfi til að virkja foss-
ana. Lítur nú út fyrir, að ílestír
af sámbandsþingsmönnunum frá
Manitoba séu komnir á þá skoð-
un, að það sé helzta úrlausnin á
þessu máli, að félágið fái þetta
leyfi, en all-hörð málstaða gegn
því kemur þó úr ýmsum áttum, að
nokkurt félag fái slíkt leyfi og
vilja margir, að fossarnir séu
ekki virkjaðir þangað til hið op-
inbera sér sér fært að gera það.
* * *
Það hefir lengi viðgengist, að
ferðafólk frá Canada hefir átt
erfitt með að fá fult verð fyrir
peninga sína á ýmsum stöðum í
Bandaríkjum. Þetta hefir oft
valdið mikilli óánægju , sem von
er, þegar Canada peningar hafa
verið fult eins mikils virði eins
og Bandaríkja peningar, en það
hefir oftast verið. Hafa margir
Canadamenn haldið að hér væri
um ágengni nágranna að ræða eða
þá fávizku þeirra. Nú kemur sú
fregn frá Ottawa, að hér eftir
verði Canadiskir peningar teknir
fullu verði, hvar sem er í Banda-
ríkjunum, alveg eins og Banda-
ríkjapeningar eru hér teknir fullu
verði og mun mörgum þykja það
góðar fréttir.
Bandaríkin.
Á árinu sem leið, urðu flugferð-
irnar 164 manns að bana í Banda-
ríkjunum og 149 meiddust meira
og minna, samkvæmt opinberum
skýrslum stjórnarinnar.
♦ * *
Hinn 3. þ.m. samþykti neðri
málstofan MöNary-Haugen lögin
svonefndu, með 204 atkvæðum
gegn 121. Frumvarp þetta fer
fram á opinberan styrk til akur-
yrkjubændanna.
* * *
Fjármáladeild Bandaríkjastjórn-
arinnar, hefir verið að krefja Sen-
ator James S. Cousens um skatt,
sem nemur yfir $30,000,000, og
átta aðra menn, sem allir voru
meðeigendur í Ford félaginu, en
seldu Henry Ford sinn hluta 1919.
Leit stjórnin svo á, að þessum
mönnum bæri að borga svona mik-
inn skatt, en TheUnited States
Board of Tax Appeals, hef^- úr-
skurðað, að, þessum mönnum beri
ekki að borga þenna skatt.
Hvaðanœfa.
Alt af heldur innanlands. ófrið-
urinn í Kína áfram og sú hugsjón
virðist enn eiga langt í land, að
Kínaveldi sameinist undir einni
aðalstjórn, eða verði1 eitt lýðveldi
með mörgum ríkjum, svipað því
sem er I Bandaríkjunum. Nú hef-
ir fyrir skömmu lent í miklum
skærum milli Japana og Kínverja
og margir menn fallið af báðum.
Hafa blöðin haft ýmsar sögur um
það að segja og hefir verið búist
við, að Japanar mundu þá og þeg-
ar segja Kínverjum reglulegt stríð
á hendur. Samt hefir ekki orðið
af því enn þá, en þeir hafa sent
þangað mikið herlið og mörg her-
skip og óeirðirnar þeirra á milli
halda áfram og þykir líklegt, að
til fullkomins ófriðar dragi milli
þessara þjóða áður en langt líður.
* * *
Tveir prófessorar í Bandaríkjun-
um voru nýlega á ferð í bíl ekki
all-langt frá borginni Sofia í Bul-
gariu. Þegar þeir áttu svo sem
tuttugu mílur til borgarinnar, bil-
aði vélin í bíl þeirra, og gátu þeir
með engu móti gert við hana, eða
jafnvel komist að því, hvað var að.
Þeir stríddu við bílinn fram á
kveld og voru þá orðnir uppgefn-
ir og vonlausir um að geta gert við
hann. Kom þá þar að annar bíll
og spurði sá, sem honum stýrði,
hvað væri að og hvort hann gæti
nokkuð gert fyrir þá. Hann tal-
aði mál Búlgaríumanna. Þeir
sögðu honum að vélin væri biluð,
en bjuggust ekki við að hann gæti
gert mikið við hana, því þeír hefðu
sjálfir verið að reyna það í þrjá
klukkutíma og ekkert getað. Þessi
ungi maður, sem Bandaríkja-
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 17. MAÍ 1928
mönnunum sýndist all-ólíkur vana-
legum keyrslumönnum, fór úr
treyjunni, bretti upp skyrtuerm-
ar og fór að gera við vélina. Eftir
litla stund sagði þessi ókunni
maður prófessorunum, að nú
skyldu þeir reyna vélina. Þeir
gerðu það og nú var hún í bezta
lagi, en keyrslumaðurinn ókunni
var allur orðinn útataður af olíu
og óhreinindum. En þeir gleymdu
alveg að borga honum fyrir fyrir-
höfnina og þótti það mjög leiðin-
legt, þegar þeir loksins mundu
eftir því, og vissu þá ekkert hver
maðurinn var, sem hafði hjálpað
þeim. Þegar þeir komu nærri
borginni, náði þessi sami maður
þeim aftur og þótti þeim undar-
legt að allir sem á vegi hans
urðu heilsuðu honum með mestu
virðingu, en fljótt komust þeir að
því, að þeSsi miskunnsami Sam-
verji var Boris Búlgariukonung-
ur.
Leikhús fréttir frá
Islandi.
Haraldur Björnsson leikari, er
hinn fyrsti fslendingur, sem hefir
lokið fullnaðarprófi í leiklist .við
útlent leikhús. Tók hann próf í
fyrra vor við kgl. leikhúsið í Kaup-
mannahöfn, og hlaut ágætiseink-
unn. Gaf leikhúsið honum einnig
ko.,t á að “debutera”, sem Kári í
Fjalla-Eyvindi” og tókst sýningin
mjög vel.
í vetur hafa leikfélögin hér
heima fengið Harald til þess, að
leika með þeim og stjórna æfing-
um. Byrjaði hann á því að sýna
“Galdra-Loft” á Akureyri, og lék
hann sjálfur aðal-hlutverkið.
Teiknaði hann búninga, húsgögn
og tjöld. Lét leggja nýtt ljósa-
kerfi inn á leiksviðið, og réði fasta
hljómsveit að leikhúsinu, >— und-
ir stjórn Benedikts Elvars. Ekk-
ert var tilsparað, enda var sýn-
ing þessi áreiðanlega hin bezta,
sem hér hefir sézt, bæði hvað
snerti leik og allan útbúnað. ■—
Þegar síðustu tónar forspilsins
liðu út yfir salinn, var Innra
tjaldið dregið upp. Gegnum hálf-
gagnsæja blæju, með gyltum rún-
um og leyndardómsfullum teikn-
um, sést inn í híbýli hins stolta
Hólastóls fyrir 200 árum, þar sem
Guðsölumennirnir sitja í þögulli
hrifningu og hlusta á kirkju-
klukkur hinnar heilögu dóm-
kirkju, sem kalla menn til kvöld-
tíða. — Blæjan er dregin frá, þá
opnast útsýni—út um stofuglugg-
ana—yfir Hjaltadal í sólskini.
Leikurinn hefst. Hinn strangi
ráðsmaður stólsins setur sinn blæ
á þáttinn, og hin tígulegu bisk-
upshjón gefa áhorfendanum skýra
mynd af hinni voldugu stétt þeirra
tíma, sem nefnd hefir verið bisk-
upsvald.
vel, og Ingibjörg Steinsdóttir —
af ísafirði — Agnesi. Var leikn-
um tekið afarvel, og leikinn tíu
sinnum fyrir fullu húsi.
iNæstu sýningar Haraldar voru
“Ljenharður fógeti” og “Gjald-
þrotið”. Lék hann þau stykki með
Leikfélagi ísafjarðar. Var svo
mikil aðsókn að “Ljenharði”, að
útselt var fyrir fram þrjú fyrstu
kvöldin, með hækkuðu verði.
Nú dvelur Haraldur í Reykja-
vík, þar sem hann í tilefni af 100
ára afmæli Ibsens leikur “Vild-
anden” með Leikfélagi Reykja-
víkur, sem nú á við mjög erfið
kjör að búa. — Einnig hefir hann
lesið upþ, og við bezta orðstír.
Er það ánægja og gleði íslend-
ingum, að þeir eiga svo vel ment-
aðan leikara og leiðbeinandi (In-
structor), sem blæs nýju lífi í
leiklistlna hér heima, og sem mik-
ils er hægt að vænta af í fram-
tíðinni. Anna Borg Odóttir Stef-
aníu leikkonu) útskrifaðist af Kgl.
leikhúsinu jafnt Haraldi. Fleiri
góðir leikkraftar eru nú komnir
fram á sjónarsviðið, svo mál er
til komið að íslenzka þjóðleikhús-
ið komist á laggirnar. Enda er
það heitasta ósk og von allra list-
elskra manna hér heima. Kjör
þau, sem leiklistin á við að búa í
Reykjavík, er algerlega óboðleg,
— leikurunum og þjóðinni til
minkunar.
er það vel af stað farið. En því
miður eru þær svo dýrar, að þeir,
sem bezta hafa aðstöðu, rísa
naumast undir kostnaðinum. En
engar framkvæmdir sem rafveitur
mundu hafa svo víðtækar umbæt-
ur í för með sér á íslenzkt sveita-
líf yfirleitt.
Andlegt líf.
Hin röksamlega grein Kristjáns
Albertssonar, “Andlegt líf á ís-
lahdi”, sem birtist í Vöku og síð-
an í Lögbergi, gefur tilefni til
margvislegra hugleiðinga. Tæp-
lega held eg að sagt verði með
sanni, að lestrarfíkn manna fari
minkandi, enda væri ólíkt að svo
væri, því svo miklu fé er árlega
varið til bóklegs náms. En hitt
er því miður rétt, að fróðleiksfýsi
og bókelska er heldur í rénun, og
mönnum, sem leita sér sjálfs-
mentunar og hafa yndi af að safna
bókum og hirða þær vel, virðist
fara fækkandi, og er slíkt þó ó-
svikinn menningarvottur.
Áður fyr studdu blöðin þessa
bókelsku menn drjúgum með þvl
að prenta neðanmáls ýmislegt,
sem hafði verulegt gildi. Nú er
miklu minna um það, enda oft
svo gengið frá því í blöðunum,
að ekki er hægt að halda því sam-
an. T. d. má nefna blaðið Lög-
réttu, sem oft flytur mikið af svo
veigamiklu efni, að skaði er að
geta ekki haldið því saman.
Aths.—Ofanskráð grein var oss
send heiman af íslandi til birt-
ingar.—Ritstj.
Bréí frá Islandi.
Þjóðrækni.
Ættjarðarástin er sú tilfinn-
ing mannsins, sem næst guðs-
trúnni er Jionum helgust. Fyr-
ir þessa tilfinningu hafa bæði
þjóðir og einstaklingar lagt svo
mikið í sölurnar, að það er næg
sönnun þess, að hún er ekki
hugarburður einn, þótt finna
megi þá menn, sem lítið gera
úr henni.
Þegar mér berst Lögberg í
hendur, þá fyllist eg af lotningu
fyrir þessari tilfinningu, sem
þrátt fyrjr daglega erfiðleika
heldur tungu vorri við í stórborg-
arglaumnum í fjarlægri heims-
álfu. Eg er ekki að gera lítið úr
ættjarðarást heimalninganna hér,
hún kemur fram í mörgu og með
mörgu móti, en hún gæti komið
fram i meiri samúð og bróðurhug
með frændunum fjarlægu. Það
væri t. d. góður siður, að senda
vestanblöðunum við og við bréf
úr öllum fjórðungum landsins;
því líklega eru íslendingar vestra
ættaðir úr hverri einustu sýslu á
Islandi og eiga þar einhvern kær-
an blett, — enda ættmenn, og
stöðugir lesendur vestur-íslenzku
blaðanna tel eg víst að þeir séu.
Stórhuga er höf. í tilögum sín-
um um að koma upp heimilis-
bókasöfnum, en þótt að bið verði
á því, að uppástungur hans verði
framkvæmdar, má benda á, að nú
þegar eru ýmsar leiðir opnar fyr-
ir menn, sem eru bókelskir og
langar til að safna bókum, t. d.
Búnaðarritið, og enn fremur Bók-
mentafélagið, sem gefur út góðar
bækur og lætur þær fyrir mjög
lágt tillag, til félaga sinna.
En þótt örari samgöngur og
meira félagslíf og enda útvarp,
geri heimilisbókasöfnunum að ein-
hverju leyti erfiðara fyrir með
því að draga fólkið frá lestri, er
vonandi, að alt af verði til bók-
lskir menn og að þeim takist að
safna sér bókum og halda þeim í
heiðri. Og því á höf skilið beztu
þakkir fyrir sína þörfu hug-
vekju.
Árgst. í Rangárvallasýslu,
18. apríl 1928.
Bergst. Kristjánsson.
Yfirlýsing.
Á íslendingafundinum, sem
haldinn var 1. maí Winnieg, var
þess farið á leit af einum ræðu-
manni, að stjórnarnefnd Þjóð-
ræknisfélagsins lýsti þvi yfir, að
hún væri því andvíg að stjórnar-
styrkur yrði þeginn eða notaður
til undirbúnings heimförinni 1930.
Annar þáttur með stormi og
regni liður hjá. — Eftir seinustu
hljóma millispilsins, hefst þriðji
þáttur. Hin mikilfenglega Hóla-
dómkirkja með súlum og bogum
blasir við áhorfendanum, tungls-
ljósið flöktar fyrir hina gömlu
djúpu bekki, Kristslíkneskið mikla
og prédikunarstólinn með dýrð-
lingamyndunum. Gegnum rökkr-
ið gryllir inn í kórinn með háalt-
arinu og litlu Kristsmyndinni.
Heilög kyrð drúpir yfir þessu
helga húsi, þar sem svipur bisk-
upanna, beinagrindur og önnur
dauðra manna bein umkringja
Loft í hringiðu brjálseminnar, í
Þáttarlok.
í uppsetningu Haraldar hafði
leikurinn mjög mikil áhrif á á-
horfendurna, einkum síðasti þátt-
ur. Haraldur er sá eini af ís-
lenzkum leikurum nú, sem gat
lyft því Grettistaki, að sýna leik
þennan. iHann einn á það hug-
myndaflug og þann þrótt, sem
til þess þarf, að leika Loft, — hið
erfiðasta af íslenzkum leikhlut-
verkum. Sérstaklega var leikur
hans tilkomumikill í þriðja þætti.
Var “Loftur” leikinn níu sinnum,
oftast fyrir fullu húsi.
Síðan sýndi Haraldur “Dauða
Natans Ketilssonar”, eftir dansk-
an höf, frú Eline Hoffmann, þar
sem Ág. Kvaran lék Natan, mjög
Veturinn, sem er að kveðja, hef-
ir verið góður. Fram til nýárs
snjólaust og frostvægt, og fénað-
ur því ekki hýstur fyr en um há-
tíðir. Janúar og fram eftir feb-
rúar úrkomusamt og frost nokkur,
snjóar miklir og hagleysur, — en
þar frá og fram til sumars, ein-
muna góð tíð — frost vægt, snjó-
létt og litlar úrkomur. — Heil-
brigði manna og dýra. almenn.
Framfarir.
Þeim þokar áfram smátt og
smátt. Bílflutningar hafa nú auk-
ist svo, að heita má að þeir hafi
útrýmt hestum og kerrum til
lengri flutninga á skömmum tíma.
Vegir eru árlega bættir nokkuð
og brýr bygðar á smærri og stærri
torfærur. — En húsagerðinni er
mjög ábótavant; að vísu víðast
nægilega stór, björt og loftgóð
hús, en köld og endingarlítil. í
húsagerðinni þarf snögga breyt-
ingu, byggja úr steinsteipu í fögr-
um og þjóðlegum stíl, þótt það
kosti meira erfiði í bili, er til
mikils að vinna, að láta ekki
næstu kynslóð taka við landinu
húsalausu. Hingað til hefir alt
of mikið fjármagn farið í þá bar-
áttu, kynslóð eftir kynslóð.
Helztu nýjungar í framförum í
Rangárvallasýslu, eru rafveitur.
Þeim hefir verið komið upp á átta
bæjum í sýslunni árið 1927, og
Eg varð að gefa þau svör á fund-
inum, að eg gæti engar yfirlýs-
ingar gefið fyrir hönd félags-
stjórnarinnar sökum þess, að mér
væri ókunnugt um hennar afstöðu
í málinu. Hins vegar gat eg þess,
að mál þetta mundi verða tekið
fyrir á næsta stjórnarnefndar-
fundi og almenningi síðan birt
niðurstaðan.
Fyrir þessa sök leyfi eg mér að
skýra frá því, að fundur var
haldinn í stjórnarnefnd félags-
ins 10. þ.m. Málið var tekið fyr-
ir og rætt. Og niðurstaða fund-
armanna var sú, að með því að
formaður heimfararnefndarinnar,
Mr. Jón J. Bildfell, hefði birt í
blöðunum yfirlýsing þess efnis, að
aðalfundu nefndarinnar stæði fyr-
ir dyrum, þar sem ræddar yrðu
þær umræður >( sem fram hafa
opinberlega farið um málið, og
þess enn fremur getið, að nefndin
mundi leggja hið mesta kapp á að
gera atl, sem henni væri unt til
þess að sameina Vestur-íselndinga
um heimfararmálið í heild sinni,
þá sá stjórnarnefnd félagsins ekki
neina ástæðu til þess að taka fram
fyrir hendur heimfararnefndar-
innar eða gefa henni bendingar
um meðferð þessa máls. Var sam-
þykt tillaga á fundinum er í þessa
átt fór og greiddu henni allir
NÚMER 20
fundarmenn atkvæði sitt. Einn
stjórnarnefndarmaður var fjar-
staddur.
14. maí 1928.
Ragnar E. Kvaran,
fors. Þjóðræknisfél.
Skólalokahátíð Jóns Bjarnasonar-
skóla.
öllum íslendingum í Winnipeg
og annars staðar, er hér með boð-
ið að sækja skólalokahátíð Jóns
Bjarnasonar skóla í Fyrstu lút-
ersku kirkju, miðvikudaginn 23.
maí, kl. 8 að kveldinu. Ágætur
mentafrömuður, frá einum æðri
skólanum hér í Winnipeg, hefir
verið fenginn sem aðal ræðumað-
ur. Einn nemandi skólans flytur
kveðju-ræðu. Tilkynt verður
hverjir hafa unnið til að fá nöfn
sín okráð á Arinbjarnar-bikarinn.
Samkoman verður öll með miklu
hátíðasniði. Sumt hið ágætasta
hljómlistarfólk; hefir verið fengið
til að skemta.
VEITIÐ ATHYGLI.
Útsala á heimatilbúnu brauði,
og allskonar fyrirmyndar réttum,
fer fram í sunnudagsskólasal
Fyrstu lút. kirkju, næstkomandi
laugardag þann 19. þ.m., eft;r-
miðdaginn og að kveldinu. Verð-
ur þar um alveg sérstök kjörkaup
að ræða. Meðal allra þeirra
mörgu tegunda, sem á boðstólum
verða, má nefna rúgbrauðin óvið-
jafnanlegu, sem allir sækjast eft-
ir. — Svo vel er til útsölu þess-
arar vandað, að búast má við
margfalt meira fjölmenni, en
nokkru sinni fyr.
Or bœnum.
Frá íslandi komu á þriðjudags-
kveldið fimm ungir menn. Þor-
lákur Björnsson, Jón Björgvin Guð-
laugsson og Lúðvík L. Guðnason,
frá Reykjavík, Vilhjálmur Björns-
son frá Hólmavík í Strandasýslu,
og Davíð Jensson frá Þingeyri í
Dýrafirði.
Athygli skal hér með dregin að
auglýsingunni frá McLaughlin bif-
reiðafélaginu, er nú birtist í þessu
blaði. Félag þetta verzlar aðeins
með ágætustu bíltegundir, svo sem
Buic og Pontiac, auk þess sem
það hefir úr miklu að velja af
brúkuðum bílum er seljast við afar
sanngjörnu verði. — í þjónustu
þessa góðkunna félags, er landi
vor, Mr. E. Breckman, lipurmenni
og ábyggilegur í viðskiftum. —
Ættuð þér að finna hann að máli
og spyrjast fyrir hjá honum um
söluskilmála.
Vinur minn var á ferð í Wyom-
ing ríkinu, á leið til Yellowstone
Park. Þar í óbygðunum kom hann
auga á eitthvað gult í skógar-
buska, skamt frá veginum. Hann
fór út úr bílnum og hann fann
þarna mikið af ljómandi fallegum
og sjaldgæfum blómum.
Meðan hann var að skoða þessi
undur fallegu blóm, sem náttúr-
an hafði framleitt á þessum eyði-
lega stað, kom afar stór bíll eftir
sama veginum á fleygiferð, en
stöðvaði ferðina rétt hjá bíl vinar
míns.
“Þurfið þér nokkra hjálp?” sagði
maðurinn, sem bílnum stýrði.
Hann var þreytulegur og bar þess
ljós merki, að taugar hans voru
ofreyndar og óstyrkar.
“Nei, þakka yður fyrir. Það er
alt í góðu lagi.”
“Hvern skollann eruð þér þá
að gera, á þessari eyðimörk?”
“Eg er að skoða hérna einstak-
lega falleg blóm. Þér ættuð að
koma og sjá þau líka. Þau eru
mjög sjaldgæf.”
“Eg að fara að tefja mig á því,
að skoða blóm! Eg á nú ekki ann-
að eftir,” og var auðheyrt, að
honum þótti þetta hin mesta
fjarstæða. “Garðyrkjumaðurinn
minn hefir heila ekru af allskon-
ar blómum. Eg er á leiðinni til
Yellowstone til að sjá eitthvað,
sem er þess virði að sjá það, og
þangað skal eg komast í kveld,
eða eitthvað verður unda nað láta.
Eg hefi haldið áfram síðan eg
lagði af stað.”
Einhvern veginn flæktist eg til
að vera með í dálitlu samkvæmi í
vikunni sem leið. Þar sá eg eina
i nítján menn, sem voru að reyna
að halda uppi glaðlegu samtali,
en hepnaðist það ekki, og samtal-
ið var einstaklega dauflegt. “Því
gefa þeir okkur ekki eitthvað, sem
er meira hressandi, heldur en
þetta gutl?” sagði einn þeirra. En
það var áreiðanlega eitthvað
“hressandi’” í því, sem þeir fengu
að drekka. Það kom mjög greini-
lega í ljós, þegar þeir höfðu feng-
ið sér nokkra drykki. Glaðværðin
fór vaxandi. Spaugsyrðin hrutu
af hvers manns vörum og hlátr-
arnir heyrðust langar leiðir.
Þegar eg fór út úr húsinu glumdu
hlátrarnir og sköllin enn 1 eyrum
mér.
Þetta gerði mig dálítið óánægð-
an og önuglyndan.
“Hvað gengur að þér?” sagði
vinur minn, sem eg hitti um
kveldið.
“Eg er að hugsa um hraðann
og hávaðann,” svaraði eg. “Eg
er að hugsa um iþað, að nú ham-
ast menn áfram með vélhraða,
eins og þeir eigi lífið að leysa, og
keppast við að komast sem allra
fyrst frá einum stað til annars,
án þess að veita nokkra eftirtekt
fegurðinni og ánægjunni, sem á
leið vorri er. Eg er að hugsa um
það, hve mikið af lífsgleðinni fer
að forgörðum hjá þeim mönnum,
sem leita sér ánægju í því að æsa
huga sinn með umhugsuninni um
það, hve langt þeir geti komist á
gallóninu, eða látið hugann fljúga
hátt á potti víns.”
— :The American.”
PASSIUSÁLMARNIR
á kínversku.
Nú er búið að þýða útdrátt úr
Passíusálmum Hallgríms Péturs-
sonar á kínverska tungu. Býst eg
við að öllum íslendingum þyki
það góðar fréttir. Kínverskan er
tungumál fjórða hluta mannkyns-
ins. Engum mun þykja óviðeig-
andi, að Passíusálmarnir verði
fyrsta íslenzka ritið, sem snúið er
á kínversku. Þarf ekki að færa
ástæður fyrir því.
Þýðingu þessa hefir amerískur
maður, prófessor Harry Price,
annast að mestu leyti, fyrir til-
stilli undirritaðs. Því Mr. Price
treysti eg manna bezt; hann hefir
unnið í Kina að þýðingum í fjöl-
mörg ár, og hefir marga, mjög vel
færa kínverska samverkamenn.
Þarf ekki að efast um, að þessi
þýðing hans á Passíusálmunum er
ágæt. — Mun eg segja nánara frá
henni seinna. Mr. Price hefir að
mestu leyti fylgt hinni ágætu
ensku þýðingu prófessor Pilchers.
Stuttur formáli og all-ítarleg æfi-
saga sálmaskáldsins á að fylgja
þessari kínversku útgáfu.
Ábyggilegur maður í Hankow
hefir tekið að sér að sjá um út-
gáfuna í fjarveru undirritaðs. En
eg hefi lofað að kosta hana að
öllu leyti. Það hefi eg gert í því
trausti, að landar mínir myndu
ekki skorast undan, að hlaupa
undir bagga með mér og styrkja
útgáfuna fjárhagslega.
Eg hefi hugsað mér að gefa
sálmana út í litlu broti, og selja
þá svo eins ódýrt og unt er, á
meðan menn eru að kynnast þeim,
en stækka svo útgáfuna, auka
hana og vanda seinna eftir
getu.
Hr. bankaritari Árni Jóhanns-
son, Bragagötu 31, Reykjavík, hef-
ir lofað að taka á móti fégjöfum
til þessa fyrirtækis. — Fyrsta út-
gáfan hefi eg hugsað mér að yrði
tvö þúsund eintök; mun hún kosta
hér um bil 1,000 krónur. — Gef-
ins langar mig til að geta sent
ýmsum kristniboðum í Kína eitt
eintak. Þeim hér í landi, sem
eitthvað leggja af mörkum til út-
gáfunnar, lofa eg að senda eitt
eintak gefins. En þá verður að
láta nafns síns og áritunar getið.
Staddur í Þrándheimi,
Ólafur Ólafsson,
kristniboði. ,
Áritun: Fannrem, pr. Trondhjem,
Norway, Europe.
‘Maður horfðu þér nœr’