Lögberg - 22.11.1928, Blaðsíða 5

Lögberg - 22.11.1928, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22. NÓVEMBER 1928. Bls. 5 I meir en þriðjung aldar hafa Ðodd’s Kidney Pills verið viður- kendar rétta meðalið við bak verk, gigt, þvagteppu og mörgum fleiri sjúkdómum. Fást hjá öll- um lyfsölum, fyrir 50c. askjan eða 6 öskjur fyrir $2.50, eða beinl frá The Dodds Medicine Co., Ltd. Toronto, ef borgun fylgir. að ræða. Gjaldendur greiða at- kvæði um þessar stefnur 30. þ.m. og skera þá úr, hvora þeirra þeir aðhyllast. Það er alls ekki sjaldgæft hér í fylki, að “Administrator” sé skip- aður fyrir sveit, sem lendir í fjárhagslegri kreppu, og allstaðar þar sem eg hefi spurnir af, hefir það bætt fjárhaginn, með meiri sparnaði og betri innheimtu og lækkun skatta. Stjórnin ber auð- vitað ábyrgð á gjörðum þessa em- bættismanns síns, og fólkið getur Iátið í ljós velþóknun eða van- þóknun á gjörðum hans við fylk- iskosningar. Sveitin stendur eft- ir sem áður algjörlega á stnum eigin fótum og borgar sjálf allan kostnað við reksturinn. Þess vegna sýnist Iþað fjarstæða ein hjá rit- stjóra “Hkr.”, að kalla þetta fyrir- komulag “að segja sig til sveitar”. Undir kringumstæðunum er það að eins ódýrari og í flestum til- fellum “business“-legri stjórn. Og þegar, eins og hér á sér stað, að þriðjungur af skattinum, eða 30 mills, fara í að “renna” sveitinni °g gjald til Sveitamálaráðgjafans Municipal iCom. Levy), þá er það nokkuð þýðingarmikið atriði í augum fátækra bænda. En samt eru eflaust sumir svo sinnaðir, að þeir vilja borga vel fyrir þá á- nægju, að mega kjósa sér með- ráðendur eða oddvita til að af- henda iþeim fé sitt til umráða. En hvað viðvíkur sveitarómegð, Þá hygg eg að þeir af kaupmanna- stéttinni hér, sem hafa mest á móti sanngjarnri og lögmætri virðing, svo þeir komist hjá að borga sinn réttmæta skatt, séu án efa þyngstu sveitarómagarnir, og verður þá öllum, sem kunnugir eru, Ijóst, hverjir skipa þar fyrsta og annan sess. Þrátt fyrir alla þeirra mótpyrnu, fer hér fram ný virðing undir umsjón stjórnarinn- ar á næsta ári, hvort sem sveitar- stjórn helzt eða ekki. Sveita- málaráðgjafinn lét þá ákveðnu skoðun sína í Ijós á samtalsfundi við sveitarráðið 4. okt. síðastl., að virðing sveitarinnar væri órétt- lát og óhafandi og það yrði að fara fram, eins fljótt og unt er, rétt og lögmæt virðing. Við þessa staðhæfing gerði að eins einn meðráðandi athugasemd, sem ráð- gjafinn tók all-fjarri. Leiði eg athygli gjaldenda að þessu hér vegna þess, að mikil áherzla er lögð á það af Thorwaldsons sinn- um, að ef fylkið taki við sveitinni, láti það fara her fram nýja virð- ingu og aðal skattbyrðinni verði skelt á hinn íslenzka hluta sveit- arinnar. Þetta er að eins gert til að þyrla upp ryki og villa fólki sjónir. öllum þorra af íslending- um, sem öðrum, er það fyrir beztu, að réttlát virðing sé gerð og vissulega hafa þeir eins gott og betra tækifæri en nokkrir aðrir, til að halda uppi rétti sínum í þeim efnum. Eg get staðhæft ?að, að ný virðing fer hér fram, með eftirliti af hálfu stjórnarinn- ar, hvernig sem þessar kosningar fara. I fyrra, þegar ákveðið var að áfrýja íStadnek málinu til hæsta réttar í Canada, færði ráðið því til stuðnings þá ástæðu, að mál þetta yrði að vinna, eða sveitin að gefast upp vegna þeirra alvarlegu afleiðinga, sem af því hlytust. Nú er málið tapað að fullu og öllu og tvö ný mál ^fin með stórum skaðabótakröfuni, og alls ekki ó- líklegt, að fleiri mál komi á eftir, því nóg er tilefnið. Og væri nú nokkurt samræmi í framkvæmdum ráðsins, mundi það hafa, þegar svona er komið, kannast við þann sannleika hreinskilnislega, að af- leiðingarnar frá áflæði af Góðra- vega skurðunum,, væru alvarlegri en svo, að það gæti rönd við reist, og leitaði til þess afls — fylkis- ins—, sem hefir bolmagn til að höndla þetta mál. Eg álít, að fylkið geti ekki los- ast við (ábyrgð í feamjbandi við Good Roads, sem hér hafa verið bygðir, og að þetta sé því í sjálfu sér yfirgnæfandi ástæða til að fá ‘,Administration” meðan á úr- lausn þessa máls stendur. Ef ráðið væri sjálfrátt, trúi eg því ekki, að það mundi halda lengra út á þessar hálu brautir. En sterkari vilji ræður, og bak gjald- enda er nógu breitt, þó byrðiA sé aukin og þúsundir ofan á þús- undir kastað á glæ í lögmenn og málskostnað. Vera má, að lög- maður sveitarinnar kunni að njóta góðs af glóðinni. Um síðustu áramót átti eg, á- samt Mr. Ingaldson, tal við Sveita- mála ráðgjafann um það, hvernig «k það mundi ganga, að fá sveitina minkaða þannig, að sex mílna breið spilda væri tekin vestan af röð eitt, og norðan af Township 24 frá hádegisbaug austur að vatni, og það, sem er þar fylrir norðan, ásamt Mikleynni og “un- iprgainized” svæði þéssarar af- klippu. Kvað ráðgjafinn alls ekki við komandi, að klippa spildu vestan af sveitinni”, því þar mynd- aðist mjó sneið af “disorganized territory”, milli tveggja sveita, “Chartfield og Bifröst. En við- víkjandi Township 24 og Mikley, gæti það máske komið til mála. — Þegar eg spurði hann, hvort fylk- ið mundi vilja borga sveitinni eitthvað fyrir útistandandi skatta á þessu svæði, ef það tæki við við því, svaraði hann því, að við yrðum að skoða það sem tapað fé. Sömu hugsun, í öðrum orðum, lét hann í ljós á samtalsfundinum 4. okt. Af því að það er aðal atriðið í stefnuskrá Sveins-manna, að með því að losast við Township 24, — en um Mikley er víst ekki talað— muni alt falla í ljúfa löð, er vert að athuga þessa miklu úrlausn vandamála okkar. Bændur í þessu áminsta Township, fengu mesta hveitiuppskeru af öllum hér í sveit þetta haust, einn fékk þar 2,100 bush. og annar 1,300 bush., svo af því má ráða, að landið er ein- hvers virði, og skattar ættu því að vera meira og minna innheimt- anlegir. Þar að ai^ki eru nú ull- miklar líkur til, að C.P.R. félagið lengi Árborgarbrautina norður á bóginn á næsta sumri, sem og mundi auka verðmæti þessa 'and3 að mun. Útistandandi skattar á þessu svæði, ásamt löndum. som sveitin hefir hald á, mun nema nær $20,000, og þó ekki hepnaðist að innkalla af því meira en helm- inginn, finst mér sveitin vera of fátæk til að kasta frá sér $10,000 fyrir ekkert, nema ef vera kynni að gefa 8. Thorwaldson og bitl- ingaliði hans betra tækifæri að ná fullum og varanlegum yfirráð- um í sveitinni. Enn fremur hefi eg góða ástæðu til að álíta, að Municipal Commissioner muni nú alls ekki fús að mæla með því, að jafnvel þessi hluti sé tekinn af sveitinni, eins og sakir standa. Skattar hér eru nú orðnir hærri eftir virðingu, en í nokkurri ann- ari “rural” sveit í fylkinu — að jafnaði yfir 90 mills, og í sumum héruðum upp í 110 mills. Lönd, sem gefa af sér nokkur tonn af heyi, og sum eru umflotin af vatni, verða að greiða skatt, sem er frá $60 til $70, og þó þau séu átta til Fólkið að leggjast í eyði og mörg lönd að verða eign sveitarinnar. Skatt- greiðendum fækkar og byrðin þyngist því á þeim, sem eftir eru. Hver er bótin við þessu? Sveit- aráðið segir: hærri skattar. — Gjaldendum hér er það þó sjálf sagt ljóst, hver þau skuggavöld voru, sem stóðu á bak við þá, sam- þykt meiri hiluta ráðsins, að hækka skattbyrðina um $20,000 þetta ár. Þeim er það einnig Ijóst, hverjir það voru, sem komu því til leiðar, að 10 prct afsláttur var síðar samþyktur og skatturinn þar með færður niður um $9,000. íslendingar hér eru ekki svo skyni skroppnir, að þeir sjái ekki grilla í peningavaldið og grímu- klædda einveldið á bak við þessa marg-lofuðu og dásamlegu sveit- arstjórn okkar. Eg tel það vel hægt, undir “Administration” fyrirkomulagi, að lækka útgjöld og spara sem nemur $10,000 á ári f rá því sem nú er, og halda við skólum og veg- um, og ennn fremur að innheimta af sköttum $7,000 til $8,000 á ári fram yfir það, sem nú á sér stað. Væri því hægt að lækka skattinn sem nemur $10.00 á kvartinum, borga $5,000 árlega í bankaskuld- inni, sem fór upp í $45,000 á stjórnartíð fyrverandi oddvita, og þó hafa nokkurn afgang til að bæta úr því, sem er hér nú brýn- ust nauðsyn að gera, sem er að auka og bæta framræslu skurði sveitarinnar, ef vissir partar eiga ekki að leggjast í eyði vegna á- flæðis. Að endingu legg eg, og þeir, sem sömu stefnu fylgja, þessi mál undir úrskurð kjósenda í sveit- inni og treysti því, að þeir skeri úr eftir beztu vitund. B. I. Sigvaldason. munu hittast vonglaðir í vináttu og friði, meðal hinna hljóðu hamra- veggja, sem eitt sinn voru bráöið hraun. Enginn mun fá með sanni sagt, að hin vopnlausa, gestrisna, hugprúða þjóð hins tígulega eylands, sé eigi jafnoki hvaða þjóðar sem vera skal. íslendingar munu þá bera höfuðin hátt, ekki í drambsemi drotn andi þjóðar, heldur i stærilæti þeirra manna ,sem skilja verðmæti friðar- ins.”—Vísir. Oft er þörf, eu nú er nauðsyn. Síðan í júní síðastl. hafa 60 bíl- stjórar verið teknir fastir og fundnir sekir að því, iað vera und- ir áhrifum víns, þegar þeir voru að keyra. Sumir af þeim hafa verið undir kæru fyrir manns- morð, og þeir með fleirum sitja í fangelsi. Það verður haldinn almennur fundur þann 28. þ. m. í Goodtempl- arahúsinu, er byrjar kl. 8 e.h., til að ræða um bindindismálið. Þetta snertir okkur öll, íslend- inga ekki síður en aðra. Einn af okkar ungu og mynd^rlegu mönn- um leniti undir þessu fargi, og of fáir urðu til þess að rétta honum hjálparhönd. Valdir, vanir ræðumenn tala á þessum fundi, og svo verður á- gæt músík þar til skemtunar. Aillir velkomnir. Sitjið ekki heima, því máske þið þurfið hjálp- ar við bráðum. Virðingarfylst, A. S. Bardal, S. T. Frá Islandi. Reykjavík, 31. okt. Dáin er 25. þ. m. frú Jensína Matthíasdóttir, kona Ásgeirs Ey- þórssonar kaupmanns og móðir Ásgeirs fræðslumálastjóra og þeirra systkina, fríðleikskona og vinsæl. tíu mílur frá járnbraut. er að flytja í burtu, löndin ERIK BYE Baritone-söngvarinn norski, Erik Bye, efnir til hljómleika á Royal Alexandra hótelinu hér í borginni, á tfimtudagskveldið þann 22. (þ.m., kl. hálf níu. Aðgöngumiðar kosta 75c og $1.00. Mr. Erik Bye, er víðkunnur mjög af söng sínum og þykir í hvívetna hinn glæsilegasti lista- maður. Syngur hann að þessu sinni skandinaviska söngva á dönsku, norsku og sænsku. Er þess að vænta, að íslendingar sitji sig ekki úr færi, heldur fjölmenni sem allra mest á hljómleika þá, er nú hafa nefndir verið. Aðgöngumiðar fást hjá Winni- peg Piano félaginu, dagana 20., 21. og 22. þessa mánaðar. WONDERLAND. Kvikmyndin, sem sýnd verður á Wnderland, síðustu dagana af þessari viku, “Hawk’s Nest” veitir miklar upplýsingar um Aust- urlandaþjóðirnar, einkum Kín- verja, og sýnir siðu þeirra og háttu. Þau Milton Sills og Doris Kenyan leika aðal hlutverkin. Fyrstu þrjá dagana af næátu viku sýnir leikhúsið myndina “Old San Francisco”, þar sem Dolores Costello leikur aðal hlut- verkið. Hin fagra Dolores leikur spanska hefðarmey, sem kemst hendurnar á óaldarlýð, en sýnir Mývatnssveit og taldi eg það mikið góða tilraun til að láta silungssílið i Hólavatn til reynslu, að vita hvort það þrifist þar og stækkaði, því það getur vel verið, þó eg teldi vatnið ekki gott, og væri ómissandi að herra Pálmi Hannesson rannsakaði það, því hann hefir tæki til þess. En silungsvötnin bæði tel eg mik- ið góð eftir stærð, til þess að flytja þangað bleikjusilungssíli frá Vatns- endahúsi. En til þess að byggja gott laxa- klakhús. þarf að brúka þá gullfal- legu vatnslind, sem rennur rétt sunn an við túnið á Möðrufelli, og tel eg það mjög nauðsynlegt og sjálfsagt, að Eyfirðingar geri það, og ekki eru fossarnir til að hindra uppganginn alla leið til fjalls. En sjálfsagt að gera veiðisamþykt, setn allsstaðar annarsstaðar. bórffur F^óventsson. frá Svartárkoti. rrHE' Veitið athygli! Á næstkomandi mánudagskvöld, þann 26. þ.m., taka þátt í víðvarpi Canadian Na- tional járnbrautarfélagsins, frá ki. 6.30 til 7.30, Mrs. S. K. Hall, er syngur einsöngva, og Thorstína Jackson, er flytur stutta tölu um ísland. Einnig verður víðvarpað þjóðsöng íslands, “Ó, Guð vors lands” og fleiri lögum. Víðvarps- öldurnar flytja prógram þetta um 3844 metra vegalengd, og ná að sjálfsögðu til meginþorra íslenzkra bygða í landi hér. íslendingar! Látið ekki tækifæri þetta ganga yður úr greipum! Séra Þórmóður kjörinn prestur kalli. MR. DAVID N. MACKAY hreskur lögfræðingur á ferð í sumar, hefir ritað skáldlega lýsing á Þingvöllum, sem birtist í blaðinu “The North Star” í Ding- wall. Segir hann þar og í fám orð- um frá uppruna Alþingis. Loks segir hann frá hinum væntanlegu há ÞAKKARAVARP. Hér með vottum við hjartans þakk- læti öllum þeim, er veittu styrk og hluttekningu við fráfall Mrs. Sigríð- ar sál. Sigurðson, Yorkton, Sask. Peningasending' safnað af B. Thord- - arsyni, Leslie, Sask.: Th. Thorsteinsson ....... $10.00 ...» , ... Sigvaldi Johnson ............ 10.00 mikið snarræði og hugrekki, og er j_j j myndin afar spennandi. Sigurðsson er í Þóroddsstaða- tíðahöldum 1930 og 'býst við, að þá Á Siglufirði var nýlega brotist inn í sparisjóðinn og stolið 200 krónum. tslenzk sön^mær. Hin ágæta, þekta söngkenslu- kona Ella Schmucker hélt nem- enda-konsert í Bechstein-sal í Ber- lín 27. september með 10 beztu nemendur sína. Michael Rauch- isen, sem er álitinn einhver mesti núlifandi snillingur í -undirleik, lék undir. Ungfrú María Markan var meðal nemenda þessara og fékk ágæta dóma fyrir frammistöðu sína. Sérstaklega eftirtektarverð- ir eru þessir dómar, þegar tekið er tillit til iþess, að María hefir aðeins stundað nám í sex mánuði, en hinir nemendurnir allir stund- að nám svo árum skiftir, upp að 8 árum. Þess utan hafði hún leg- ið í kvefi í 3 daga og fór á fætur daginn áður en hún átti að syngja með eldheitum vilja til að leysa hlutverk sitt sem bezt af hendi, þó hún væri ekki nærri því orðin laus við kvefið. Dómar úr þremur helztu mús- íkblöðum Berlínar birtast hér á eftir í lauslegri þýðingu: Dr. Fritz Brust í “Algemeine- Musikzeitung: “María Markan sýndi sig verðuga til áframhald- andi náms með sinni sérstaklega þægilegu, blæfögru, lítið eitt skarpt norrænt hljómandi rödd, sem með áframhaldandi æfingu og námi virðist vera rödd, sem verður fær í flestan sjó.” Hans Pahche í “Signale”: — “Meðal; þeirra, sem sérstaklega sýndu hæfileika, má nefna Maríu Markan (íslenzka?) sópran-söng- konu, sem kann að beita sinni á- gætu rödd svo, að hún nær hinum fegurstu hljómbrigðum.” Dr. Schr. í “Steglicher Anzeig- er”: “María Markan, sem vér höfum ékki áður heyrt, gerði menn forviða með þremur íslenzk- um lögum í alþýðustíl, og hinum framúrskarandi hæfileikum sín- um, sem með áframhaldandi vand- legri æfingu geta trygt henni það, að verða fyrsta flokks söngkona.” —Vísir. muni mörg og stór skip koma hingað frá útlöndum og leggjast að hinum ágætu hafnarbökkum höfuðstaðarins, en bráðabirgða-viðbúnaður verði hafður til þess að taka á móti. tugum þúsunda manna, en nafnið Þingvellir muni þá sjást í flestum iblöðum ver- aldarinnar. Niðurlag greinarinnar er á þessa leið: “íslendingar eiga engan landher og engan herskipa- flota, en hafa að eins fáa lögreglu- i þjóna. Enginn einasti byssustingur mun sjást á Þingvöllum né annars- staðar á landinu. Engin ' fallbyssu- skot mu'nu boða “veldi” íslands á 1000 ára hátíð Alþingig. Sú við- höfn verður eftir skilin “hinum voldugu heimsveldum,” sem hafa efni á að eyða fé, en skortir getu til þess að hefjast til þeirrar andlegu göfgi, sem gefin er hinni ágætu þjóð, er byggir Island. Þingvellir munu fagna öllum landsins börnum á þess- ari hátíð, fjölmörgum Islendingum 'frá Vesturheimi og hinum mörgu fulltrúum erlendra þjóða, er þar LAXINN KEMUR AFTUR Nú fyrir fjórum árum flutti her.M Gísli Árnason klakfræðingur eitt cða tvö þúsund af laxasíli inn í Eyja- fjarðará og slepti þeim i ána ofan- undan Stokkahlöðum, og í vetur sem leiðvar mér skrifað til Reykjavíkur, að lax hefði veiðst í Eyjafjarðará. Þegar eg frétti það og kom til Ak- ureyrar, þ. 14. júnk, vildi eg fá vissu mína um það og fór fram Eyjafjörð- inn, og var mér sagt að tveir ung- laxar hefðu veiðst á Munka-Þverá í vetur á því þroskastigi að þeir gæti verið af þessum sílumr—Svo fór eg fram með allri Eyjafjarðaránni og skoðaði nokkuð víða, bæði laxa og silungsátu í ibotni hennar, og eftir minni reynslu og þekkingu gat eg ekki ‘betur séð en hún væri talsverð. Líka athugaði eg hylji ejða hvílu- staði fyrir laxinn og voru þeir mjög góðir víða, þó einkum frá Stóra- hamri og fram undir Möðruvelli og sem hér var svo af og til alla leið fram að Tjörn- um, sem er fremsti bær við ána, og fann eg bóndann þar og spurði eftir silungsveiði; hana stunda mest synir bónda, en því miður gat eg ekki íundið þá heima. En bóndinn sagði mér að í vor hefðu veiðst um 40 sil- ungar; það voru mikið vænir silung- ar, en ekki gat hann sagt mér um hvort þar hefði fengist lax, en hélt að það gæti éel verið. Hann sagði mér að vænsti og stærsti silungurinn sækti mest þar langt fram í ána, en vont að veiða hann þar, sakir stór- grýtis. Eg kom í Halldórsstaði. og sagði bóndinn þar mér að hann hefði veitt lítið eitt af silungi þar í ánni. En talsvert veiðst í Torfufelli, enda var þar að sjá ágæta veiðistaði, bakkar og nokkrir hyljir. Svo fór eg út að Vatsnenda; þar er Jón bóndi að byggja gott klakhús. En eitt var þar að at- huga, sem var, að vatnið var þar helst til lítið til þess að fullnægja hússtærðinni. En Jón bóndi sagði mér að hann gæti bætt við það með litilli 'fyrirhöfn. Þar var líka stadd- ur Vigfús málari, sonur bóndans og sagði mér að 'hanri hefði pantað á næsta hausti nokkur þúsund af bleJkjusilungs hrognum frá Garði í Annari kjördeild Bæjarráðsmaður il.AJcKerchar æskir atkvæðis yðar og áhrifa við kosningarnar þann 23. nóvember Stefnuskrá: Lækkaðir skattar Helgson ............. 10.00 O. P. Helgason ............ 5.00 G. Olafson .................. 1.00 Mrs. Halldóra Helgason .... 5.00 N. A. Narfason .............. 5.00 S. Sigurðsson ............... 1.00 M. Guðmundson ............... 1.00 Walter Paulson .............. 1.00 G. Narfason ..................1.00 H. B. Narfason.............. 1.00 J. Thocsteinsson ............ 1.00 B. Jasonson ................ 2.00 P. A. Howe .................. 3.00 J. Daviðson ......•........ 1.00 A. C. Peterson .............. 2.00 Th. F. Björnson ............. 2.00 G. Gabrielson................ 5.00 J. Olafson 1................. 2.00 Olafson Bros. .............' 5.00 COHTAINS HQAL'I Hvar sem þér kaup- ið og hvenær sem þér kaupið Magic bökun- arduft, vitið þér, að það er ætíð hægt að reiða sig á það og er hið besta, ávalt á- byggilegt og hreint. BÚIÐ TIL I CANADA MACIC BAKINC POWDER S. Ander^on ................ 5.00 P. Thorgrimson .............. 2.00 E. Anderson ................ 5.00 L. B. Nordal ................ 2.00 Ónefndur ..................... 0.50 Th. Guðmundsson .............. 2.00 iHj. Josephson .. ......... ' 1.00 S. l'Sigurbjörnsson ......... 1.00 I. !nge ...................... 5.00 G. Johnson ................... 1.00 Sólskin, kvenfél., Foam Lake 25.00 ) : ------------------------------- \ Alls. $123.50 Maffur og börn hinnar látnu. Yorkton, Sask., 19. nóv. 1928. Alderman Thos. Boyd Leitar erdurkosnirgar 2. kjördeild Hann hefir átt sæti í bæjar- stjórninni í 8 ár, og býður sig nú fram á ný. FISHERMENS SUPPLIES LTD. 401 Confederation Life Bldg., Winnipeg. TANGLEFIN NETTING “Veiða meiri fisk” Efnisgæðin fyrst, nafnið á eftir. Tilbúin af National Net and Twine Co. Vér höfum vanalegar stærðir fyrirliggjandi og sendum pant- anir yðar með næsta pósti. Verðlista, sem gefur allar upplýsingar um þær vörur, sem vér höfum fyrirliggjandi, verður sendur yður ókeypis, ef þér óskið þess. FISHERMEN’S SUPPLIES, LTD. 401 Confederation Life Bldg., Winnipeg. Sími 28 071 >0<HCH«H«H><H«HKH>)KHKH>0<HKHKH«HKH><HKHWHKH«><HKHKH«HK«H«H> Greiðið honum No. 1 Kosningarnar fara fram alKVŒOl. 23. Nóvember Rosedale Kql Lump $12.00 Stove $11.00 FORD COKE $15.50 ton SCRAIMTON HARDKOL POCA LUMP og CANMORE BRICQUETS Thomas Jackson & Sons 370 COLCNY ST. PHONE: 37 021 Stofnað 1882 Löggilt 1914 Gerið svo vel að merkja MnkorphQrNffe 1 kjörseðilinn bannig: IflulVuI ullul llU. I aj-: D, 0. Wood & Sons, Ltd. KOLAKAUPMENN Vér þorum að hætta mannorði voru og velgengni á viðskiftin. SOURIS — DRUMHELLER FOOTHILLS — SAUNDERS CREEK POCAHONTAS — STEINKOL Koppers, Solway eða Ford Kók Allar tegundix eldiviðar. Not - Gæði - Sparnaður Þetta þrent hafið þér upp úr því að s'kifta við oss. SÍMI: 87 308 Ross Ave. and Arlington St. Vér færum yður kolin hvenær sem þér viljið. 0

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.