Lögberg - 17.01.1929, Qupperneq 4
Bla. 4.
LÖGBERG FIMTUDAGINN 17, JANÚAR 1929.
Högberg
Gefið út hvern fimtudag af The Col-
umbia. Press, Ltd., Cor. Sargent Ave.
og Toronto St., Winnipeg, Man.
Talsímar: 86S27 og 86 328
Einar P. Jónsson, Editor
Utanáskrift blaðsins:
The Columbia Press, Ltd., Box 3172
Winnipeg, Man.
Utanáskrift ritstjórans:
Editor Lögberg, Box 3172, Winnipeg, Man.
Verð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram.
The “Lögberg" ia printed and published by
The Columbia Press, Limited, in the Columbia
Building, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba.
Vínsmyglun
Á meðal þeirra liinna mörgu vandamála, er
krefjast alvarlegrar yfirvegunar af hálfu sam-
bandsstjórnar og þings, er vínsmvglunar farg-
anið, eða smyglun áfengra drykkja héðan úr
landi, suður yfir landamærin. Því þótt ástand-
ið hafi að vísu breyst allmjög til hinsi betra upp
á síðkastið, þá verður samt engan veginn með
sanni sagt, að það sé að öllu leyti komið í æski-
legt horf. Ekki mun þó sambandsstjóm vorri
vterða uffl kent, nema þá að litlu leyti, því
mjög hefir hún lagt sig í framkróka með að
kippa í lag því, sem ábóta var vant, og orðið
mikið ágengt. Mun smyglun sú. er enn á sér
stað, stafa flestu fremur frá slælegu eftirliti
amerískra stjórnarvalda, sem og því, hve örð-
ugt sambandsstjórnihni hefir veizt að ná
æskilegri samvinnu við sljómarvöldin syðra
um framkvæmdir í málinu.
Fyrir ítrekaðar áskoranir af hálfu canadísku
stjómarinnar, er mál þetta nú, sem betur fer,
komið á þann rekspÖLl, að kvatt hefir verið til
fundar í Ottawa, þar sem mættir verða full-
trúar frá stjórnum Canada og Bandaríkjanna,
í þeim tilgangi að samræma betur þau öfl frá
iðum þjóðum, er það sérstaka hlutverk hafa
.eð höndum, að fyrirbyggja vínsmyglun, en
ð hefir gengist á liðnum árum. Er þess að
/ænta, að af fundi þessum leiði margt og mikið
rott, eigi aðeins fyrir þjóðina canadísku, held-
ur og hina voldugu nágrannaþjóð vora, sunn-
.n við landamærin.
Hin canadíska þjóð á því láni að fagna, að
eiga í ráðgjafasessi um þessar mundir mann,
er sökum eiribeitni og annara yfirburða, virð-
ist til þess næsta líklegur, að koma smyglunar
ófögnuðinum fyrir kattarnef. Er hér átt við
tollmálaráðgjafann, Mr. Euler, frá North
Waterloo, en undir hans stjómardeild kemur
sérstaklega yfiramsjón með framkvæmd þeirra
laga, er að því miða að litiloka smvglun á toll-
skyldum varningi. Hefir Mr. Euler, þann
skamma tíma, er hann hefir setið í embætti,
getið sér þann orðsfir, er lengi mun halda nafni
hans á lofti í stjóramálasögu hinnar canadísku
þjóðar, sem eins af hennar árvökrustu og ágæt-
ustu sonum.
Við síðustu sambandskosningar, bar toll-
smyglunarmálið mjög á góma, sem standa mun
flestum enn í fersku minni. Bar íhaldsliðið
þungar sakir á hina frjálslyndu stjórn, er setið
hafði að völdum í Ottawa og situr enn, fyrir
óverjanlegt eftirlitsleysi með tollgæzlunni. Eft-
ir að Mackenzie King, og aðrir leiðtogar frjáls-
lynda flokksins liöfðu skýrt málið fyrir kjós-
endum, sannfærðist þjóðin um það réttilega, að
ólag það, er átt hafði sér stað í sambandi við
vínsmyglunina væri eldra, en frá tímum Mac-
kenzie King-stjóraarinnar, og þessvegna gæti
hún ekki borið ábyrgð á því, nema þá að mjög
litlu leyti. Hét Mr. King því mjög ákveðið, að
svo fremi að flokkur sinn ynni koísninguna,
myndi hann tryggja þjóðinni §ins rækilegt eft-
irlit með framkvæmd tollgæzlunnar, og fram-
ast mætti verða. Þjóðin tók Mr. King trúan-
legan þá og hún gerir það enn. Að afstöðnum
kosningum, tók hann svo Mr. Euler inn í ráðu-
neyti sitt, og fal honum á hendur forystu toll-
máladeildarinnar.
Eins og vikið hefir verið að hér að framan,
mun Bandaríkjastjóra eiga nokkra sök á því,
að enn hefir eigi lánast að stemma betur stigu
fyrir smyglun áfengra drykkja, en raun hefir
orðið á. Með það fyrir augum, að ráða málinu
til happasælla lykta, kom núverandi sambands-
stjóm því til leiðar fyrir tilstilli hins canadíska
sendiherra í Washington, að kvatt skyldi til
fundar þess, sem nú hefir verið getið um, þar
sem mæta skyldu fulltrúar frá þjóðunum báð-
um, til þess að ráða ráðum sfnum.
Astæðulaust væri það með öllu, og óverjan-
legt, að reyna að draga fjöður yfir þá hryggi-
legu staðreynd, að hér í landi hafi verið, og sé
enn að finna, þá menn, er virt hafi landslögin
að vettugi og rakað saman stórfé á smvglun á-
fengra drvkkja. Slíkir menn eru bölvun í
hvaða þjóðfélagi, sem er og ættu af almenningi
áð verða dæmdir óalandi, óferjandi og óráðandi
öllum bjargráðum. Að slíkir menn hafi fundið
náð fvrir augum canadískra atjórnarvalda,
verður ekki mieð sanni sagt. En hitt er kunn-
ugra, en frá þurfi að segja, að í sumum tilfell
um að minsta kosti, er helzt svo að sjá, sem
ýmsir þeirra háttsettu sunnan landamæranna,
hafi haldið hlífisskildi yfir lögbrjótunum, og
jafnvel greitt götu þeirra.
Hin unga, canadíska þjóð, er í eðli sínu lög-
hlýðin og vill ekki vamm sitt vita í neinu. Þess-
vegna súrnar henni sjáldur í augum í hvert sinn
og eitthvað það ber að, er varpað gæti skugga á
sæmd hennar. Vínsmyglun skoðar hún afdrátt-
arlaust beint brot á almennu velsæmi og afneit-
ar allri vægð í þeim efnum. Bíður þjóðin með
óþreyju úrslitanna af fundi þeim í Ottawa, sem
nú hefir nefndur verið.
Óverðskulduð árás
í Heimskringlu frá 9. þ. m. birtist ritstjóra-
'argrein, er “Næsta sambandsþing” nefnist.
Þótt grein sú sé í flestum atriðum markleysu
hjal, þá er hún þó þess eðlis, að ekki væri rétt:
að láta hana þegjandi fram hjá sér fara. Gerir
ritstjórinn þar til þess eina tilraunina enn, a*ð ó-
frægja innflutningaráðgjafá sambandsstjórn-
arinnar, Hon. Robert Forke, í augum íslenzkra
kjósenda, sem og liberal-progressive þing-
mennina úr Manitoba, er honum fylgja að mál-
um.
Ritstjóri Heimskringlu virðist hafa á því þó
nokkra trú, að bændaflokks þingmennimir frá
Alberta, eða “þversum-menn” eins og þeir
vafalaust miyndu hafa kallaðir verið á Fróni,
muni ganga ódeiglega að Mr. Robb í kröfum
sínum um endurskoðun og lækkun tolla. Hann
um það. Um Mr. Forke og samþingismenn hans
frá Manitoba, flesta hverja, finst ritstjóranum
nokkuð öðru máli að gegna. Kemst hann í því
sambandi þannig að orði: “En því miður höf-
um vér litla trú á hinum svokölluðu framsókn-
arþingmönnum héðan úr Manitoba, undir for-
ystu Mr. Forke í því efni sem öðru. Þeir sýndu
sig í fyrra svo greinilega þýbundna á alla
stjóraarklafa. að ekki virðist miklar vonir vera
hægt að byggja á þeim í vetur. ” Svo mörg eru
þau orð.
Það skiftir nú sennilega ekki svo miklu máli
hvaða “trú” ritstjóri Heimskringlu hefir á
Mr. Forke og fylgismönnum hans í sarabands-
þinginu, frá Manitoba, því kjósendur finna oft-
ast nær furðu fljótt hvar fiskur liggur undir
steini.
Meginþorra íslenzkra kjósenda í Manitoba,
er það fyllilega ljóst, þótt farið hafi það, eins
og margt annað fyrir ofan garð og neðan hjá
ritstjóra Heimskringlu, hvílíkur nytsemdar-
maður að Mr. Forke hefir jafnan verið. og er
enn. Þeim er það Ijóst, að Mr. Forke hefir um
langan aldur sökum hagsýni, mannkosta og
framtaks, skipað hverja trúnaðarstöðuna ann-
ari meiri í héraði sínu, sjálfum sér og hlutað-
eigandi bygðarlagi til sæmdar. Og þeim er það
líka ljóst, að bæði sem sambandsþingmaður og
ráðgjafi, hefir hann ley.st störf sín , af hendi
með frábærri samvizkusemi. Um hina liberal-
progressive þingmennina frá Manitoba, má
það einnig með sanni segja, að þeir hafi rækt
skyldur sínar vel og reynst kjósendum sínuiri
trúir þjónar. Eftir engu þessu virðist rit-
stjóri Heimskringlu hafa tekið. Honum virð-
ist það jafnvel enn ekki ljóst, undir hvaða skil-
vrðum að menn þessir voru kosnir á þing.
Engan veginn er það óhugsandi, að ritstjóri
Heimskringlu kynni að hafa orðið til þess til-
leiðanlegur, að hlaða lofi á Mr. Forke og fylg-
ismenn hans í sambandsþinginu, ef þeir hefðu
gengið í berhögg við yfirlýstan vilja kjósenda
‘og brugðið fæti 'fyrir þá stjórn, er þeim, sam-
Jcvæmt kosningaloforðum sínum, bar og ber að
styðja.
Næst þegar ritstjóri Heimskringlu “otar
gönguteinum'’ sínum broddalaus út á rit-
svellið, og veitist að Mr. Forke fyrir að
hafa eMi svikið kosningaloforð sín, væri ekki
úr vtegi, að hann benti lesendum sínum á, hvað
það nú eiginlega væri, sem ráðgjafinn hefði
brotið af sér.
Ný viðskiftasambönd
Frá Ottawa berast þær fregnir, að á næst-
unni muni þess mega vænta, að viðskiftasam-
böndin milli Vestur-Indlands eyjanna og Can-
ada, verði gerð drjúgum greiðari, en hingað til
hefir viðgengist. Mun þetta að all-miklu leyti
því að þakka, hve lækkuð hafa verið mikið
farmgjöld með skipum þeim í þjónustu hinnar
canadísku stjórnar, er milli þessara tveggja
landa sigla.
Vörur þær, sem framleiddar eru á Vestur-
Indlands eyjum, hafa yfirleitt fátt sameigin-
legt við þær vörutegundir, sem framleiddar eru
hér í landi, og myndi þessvegna ekki verða um
neina þá samkepni að ræða, er canadískum iðn-
aði, eða eanadískum verkamönnum gæti stafað
hætta af. Virðist sanngjarat, að lækkaður
yrði innflutningstollur á vörum frá áðurgreind-
um eyjum, að minsta kosti í samræmi við það,
sem nú á sér stað um innfluttar vörur frá
Ástralíu.
Allstaðar þar sem tollmúrar standa í vegi
fyrir heilbrigðum viðskiftasamböndum, virð-
ist sjálfsagt að rífa þá niður. Á þá sveifina
hallast nú\»erandi sambandsstjórn, með fjár-
málaráðgjafanum, Mr. Robb í broddi fylkingar.
Með tilliti til viðskiftanna við Ástralíu, fór-
ust Mr. Robb nýlega þgnriig orð:
“Ákvæði þáu í viðskifta samningi þeim, er
núverandi stjóra gerði við Ástralíu, og að lækk-
un innflutningstolla lúta, hafa leitt af sér'
margt gott fyrir þjóðirnar báðar. Og eg þori
að fullyrða, að svo fremi að stjórn Ástralíu sé
fús til frekari gagnskifta við Canada, mun
ekki standa á ráðuneyti því, er eg telst til. Ná-
kvæmlega hið sama, ætti að gilda um viðskiftin
við Vestur Indlands eyjarnar.
“Hin canadíska þjóð hefir til umráða all-
öflugan verzlunarflota. Og það er stjórain, er
á því ber fylstu ábyrgð, að skip hennar sigli
ekki tóm um höfin, söfcum óeðlilegra og úreltra
tollmúra.”
Tíu ára tækifæri.
“Engar sögur segja þeir,
sem að dáið hafa.”—Sig. Breiðfj.
III.
í síðasta kafla var þess getið, að Þjóðræknisfé-
lagið hefði haft tíu ára tækifæri til Iþess að gera
“Tímaritið” svo úr garði, að fólk fengist til að lesa
það og kaupa; þess var einnig getið og það sýnt,
hvernig því tækifæri hefði verið slept; vonandi
verður þeirri stefnu breytt, sem staðið hefir út-
breiðslu og vinsældum ritsins fyrir þrifum. Skal
ekki meira rætt um það að þessu sinni.
En það var margt fleira, sem vakti fyrir þeim
mönnum, er einlægastir voru í því að vilja koma á
þjóðræknissamtökum meðal Vestur-íslendinga. Um
ýmislegt af því hafði verið ritað, þegar félagsmynd-
unin var til umræðu í blöðunum.
Um sumt af þessu kom mönnum ekki saman,
en um sumt voru flestir á sama máli.
Eitt atriðið, sem allir töldu sjálfsagt verkefni
félagsins, var það, að safna saman og bjarga frá
glötun og gleymsku sem mestu af öllum gögnum, er
snertu baráttu og líf frumbyggjanna hér í Vestur-
heimi meðal íslendinga. öllum fanst það áríðandi.
að ná í sem flest skjöl, rit, bréf og blöð frá þeim
tímum; fá upprituð öll möguleg atriði, er snertu
sögu frumbyggjanna eftir minni þeirra öldnu ís-
lendinga, sem þátt tóku í baráttunni sjálfir, eða
vissu um hana. Var álitið nauðsynlegt að hraða
því verki sem mest, til þess að því yrðr komið sem
lengst áleiðis áður en gamalmennin legðust í gröf-
ina. Það duldist ekki, að allar þess konar upplýs-
ingar færðust með degi hverjum nær gröf og dauða,
ef ekki var að gert.
'Eg var kosinn skrifari Þjóðræknisfélagsins á
fyrsta þingi þess og endurkosinn á næsta þingi. í
grundvallarlögum félagsins er það tekið fram,
hvaða störf ætlast sé til að hver um sig í stjórnar-
nefndinni leysi af hendi. Mér skildist það í upp-
hafi, að það væri í verkahring ritara, að gera sitt
bezta til þess að safna þeim gögnum, sem eg hefi
minst á.
Af þessum ástæðum var það, að eg auglýsti í
blöðunum, sem ritari félagsins, að þeir, sem einhver
skjöl eða bréf hefðu í höndum af því tagi, og viljugir
væru að láta þau eða lána, væru vinsamlega beðnir
að senda þau ritara Þjóðræknisfélagsins.
Þegsfr næsti fundur stjórnarnefndarinnar var
kallaður, var eg atyrtur af forseta fyrir það ger-
ræði, að hafa auglýst þetta án þess að hafa til þess
heimild frá nefndinni. Kom mér þetta mjög á ó-
vart, þar sem eg vissi ekki betur en að eg hefði ein-
ungis sýnt tilraun til þess að gera skyldu mína. En
til þess að valda ekki innbyrðis deilum í nefndinni,
hætti eg tafarlaust því starfi, að safna gögnum fyrir
félagið og skilaði því aftur, sem mér hafði verið sent
samkvæmt auglýsingunni.
I
Síðan hefir félagið starfað nálega tíu ár; síðan
hafa margir menn og margar konur hinnar fyrstu
íslenzku kynslóðar hér í álfu — landnemar og braut-
ryðjendur — hnigið til moldar og með þeim farið í
gröfina ‘gögn og fróðliekur í svo stórum stíl, að
þar verður engum áætlunum að komið. Mér vitan-
lega' hefir félagið lítið eða ekkert gert til þess að
leysa af hendi skyldu sína í þessu atriði.
Hvert einasta ár, sem líður án þess að nokkuð
sé aðhafst, flytur marga öldunga yfir línu lífs og
dauða, og það sannast sem skáldið segir:
“að fellur penni úr fölvri hönd
og fæst ei orð af vörum.”
Já, á hverju einasta ári tapast þannig tækifæri, sem
aldrei geta komið aftur, hvað þá á heilli aldar tíund.
Hér er ef til vill um hina alvarlegustu og skað-
legustu vanrækslu að ræða af hálfu Þjóðræknisfé-
lagsins. Hefði ritari þess stöðugt . auglýst eftir
gögnum, munnlegum og skriflegum, og skrifast á
við alla, sem líklegir voru til þess að geta látið eitt-
hvað þess háttar af hendi rakna eða veita einhverjar
sögulegar upplýsingar í öll þessi tíu ár, þá er ó-
mögulegt að segja, hversu mikið og merkilegt safn
væri nú þegar í höndum félagsins; það gæti verið
meira virði, en með tölum verði talið, sérstaklega
vegna þess, að sumt af því er nú glatað fyrir fult og
alt vegna þessarar vanrækslu.
Þegar eg stend yfir moldum gamals íslendings
og það hefir oft komið fyrir síðastliðin tíu ár —
karls eða konu, sem staðið hefir í baráttunni hér
vestra, skapað part af sögu Vestur-íslendinga, verið
einn þátturinn í þeim margbreytta leik, þá dettur
mér það æfinlega í hug, að hér sé ef til vill verið að
varpa í faðm gleymskunnar og kæruleysisins ein-
hverjum miklum fróðleik, sem enginn veit um nema
þessi dáni bróðir eða látna systir; og jafnframt
dettur mér í hug Þjóðræknisfélagið, skyldur þess,
tíu ára tækifæri og vanræksla.
, , Sig. Júl. Jóhannesson.
Canada framtíðarlandið
Sambandssjórnin hefir í Al-
berta útmælt svæði sem skemti-
garða (Parks), er nema 4,357,660
ekrum. Eru þau kölluð: Jasper,
Rocky Mountain, Waterton Lakes,
Buffalo, Elks Island og Antelope.
Jasper svæðið er um 2,816,000 ekr-
ur, en Antelope skemtisvæðið um
5,020.
Skemtigarðar hafá stórmikla
þýðingu fyrir þjóðfélagið. Eru
þeir fyrst og fremst til hvíldar og
eins eykur blómskrúð þeirra mjög
á fegurðartilfinningu fólks og ást
þess á dýrð náttúrunnar. Draga
svæði þessi að sér árlega mikinn
straum ferðafólks, einkum jþó frá
nágrannaþjóðinni, Bandaríkjun-
um. Allmikið af ferðafólki heim-
sækir Canada að sumrinu til,
bæði frá Norðurálfunni og austan
úr löndum.
Jasper Park liggur með fram
aðalbraut þjóðeignakerfisins —
Canadian National Railways, um
260 mílur vestur af Edmonton-
borg. Getur þar að líta fljót og
stöðuvötn, skóga og hið fegursta
fjall-lendi. iStreymir þangað mik-
ill fjöldi fólks að sumrinu til, og
skemtir sér við fjallgöngu og
veiðar.
Rocky Mountain Park, þar sem
Banff liggur, er einn af þeim
stöðum, sem hafa dregið að sér
mesta athyglina. Er hann um 80
mílur fyrir vestan Calgary. Ber
þar fleira hrífandi fyrir augu, en
í nokkrum öðrum skemtigarði á
þessu meginlandi. Náttúrufegurð
er þar óviðjafnanleg. Stór og hag-
kvæm gistihús er þar að finna,
með öllum þeim nútíðarþægind-
um, er hugur ferðamannsins frek-
ast fær ákosið. Eru þar heitar
Iaugar, sem mjög eru notaðar til
heilsubóta. Þyrpist fólk þangað
úr öllum áttum, einkum það er af
gigtveiki þjáist.
Buffalo Park, sem liggur við
Wainright, tekur yfir meira en
hundrað þúsund ekrur. Er þar
mikið af allskonar dýrum. Eru
þar nú um fjórar þúsundir af
Buffaloes, og auk þess mikið af
Elks.
Waterton Park, sem er 270,720
ekrur að ummáli, liggur í suðvest-
urhluta fylkisins. Er landslag og
útsýni þar hið allra fegursta.
Sækir þangað mjög margt fólk
frá Lethbridge, Macleod, Pincher
Creek, Carston og fleiri bæjum og
bygðarlögum. Er þar mikið af ám
og vötnum, og skemtir fólk sér
þar við siglingar, róðra og veiði-
farir.
Elk Island Park er fullar tíu
þúsund ekrur að ummáli. Er þar
mikið um elkdýr, músdýr og Cari-
bou, en lítið um buffaloes. Svæð-
ið liggur í grend við Lamont.
Antelope (Park liggur í suðvest-
ur hluta fylkisins. Er þar tals-
vert af antelopa hjörðum.
■ Samgöngur í Alberta fylki eru
upp á það allra bezta. Meginbraut-
ir C.P.R. félagsins liggja um þvert
fylkið gegn um Calgary. Aukalína
frá Moose Jaw liggur norður og
suður til Lacombe. Og önnur
braut, er liggur um Saskatoon,
tengir Edmonton við Winnipeg.
Einnig hefir C. P. R. félagið
línu, er tengir fylkið við Breat
FaLls og Montana sunnan landa-
mæranna, og innan skamms verð-
ur fullgerð önnur járnbrautarlína
er tengir saman Lethbridge og
Wayburn.
i ‘
Línur Þjóðeignakerfisins —
Canadian National Railway, er áð-
ur nefndist Canadian Northern
og Grand Trunk Pacific,— liggja
gegn um Edmonton og einnig um
þvert fylkið. Aukalína tengir
saman Saskatoon og Calgary og
önnur er nær til Ft. McMurrey við
Lower Athabaska frá Edmonton.
Báðar meginlínur Þjóðeignabraut-
anna liggja um Edmonton og Cal-
gary. Einnig hefir félagið marg-
a rhliðar línur, er liggja inn í
flest akuryrkju- og námahéruðin.
Edmonton, Dunwegan og Brit-
ish Columbia járnbrautin gengur
frá Edmonton til Spirit River, til
afnota fólki því, er býr sunnan
megin við Peace fljótið. Frá Mc-
Lennan bænum liggur járnbraut-
arlína norður til Peace River og
yfir um ána, til mikilla hagsmuna
fyrir fólk, er að norðan og vestan
býr og þá, sem þangað kunna að
flytjast í framtíðinni, og á síðasta
sumri var mikill innflutningur á
svæði Iþetta.
Fylkisstjórnin hefir allajafna
1 meir en þriðjung aldar hafa
Ðodd’s Kidney Pills verið viður-
kendar rétta meðalið við bak-
verk, gigt, þvagteppu og mörgum
fleiri sjúkdómum. Fást hjá öll-
um lyfsölum, fyrir 50c. askjan
aða 6 öskjur fyrir $2.50, eða beint
frá The Dodds Medicine Co., Ltd.
Toronto, ef borgun fylgir.
látið sér næsta umhugað um, að
bæta samgöngurnar, svo bændur
hefðu sem allra greiðastan að-
gang að markaði fyrir vörur sínar.
Héraðsvegi er stöðugt verið að
leggja, og er búist við, að notkun
tjörusands úr Athabaska hérað-
inu til ofaníburðar, muni hafa
mikil og góð áhrif á vegalagning-
ar og viðhald vega.
í viðbót við það, sem fylkis-
stjórnin og stjórnir hinna ýmsu
sveitarfélaga leggja til vegabóta,
leggur sambandsstjórnin fram all-
mikið fé til lagningar þjóðvega og
viðhalds þeirra. Fjórir þessara
aðalvega liggja frá austri til vest-
urs. Einn liggur um Medicine
Hat og fylgir aðallínu C. P. R, fé-
lagsins um Calgary og Banff, til
British Columbia; og annar frá
Crow’s Nest Pass; hinir ná lengst
inn í fylkið um Lacombe, Wetas-
kiwin og Edmonton. í norður og
suður liggur þjóðvegur frá Atha-
baska, um Edmonton, Calgary og
Lethbridge, alla leið til Coutts.
íSimakerfið er eign stjórnarinn-
ar, eða fylkisbúa. Firðlínurnar
liggja frá Coutts til Athabaska og
frá borgum austurfylkisins til
Banff og Entwistle. Veita línur
þessar not fólki á 1,508 fermílna
svæði, þar sem íbúatalan er um
600,000.
Firðlínurnar eru til samans um
25,000 mílur á lengd. Alls eru
719 bæir í fylkinu, sepi not hafa
af símasamböndum þessum. Yfir
46,000 símaáhöld eru í notknun
einstakra manna, þar af eru um
14,000 á bændaheimilum.
Bæði járnbrautarfélögin, Can-
adian iPácific félagið og Canadian
National brautirnar, hafa sin eig-
in símakerfi.
Víðáttumikil flæmi í Alberta,.
einkum suður og suðaustur hlut-
anum, eru.því nær skóglaus, eða
skógurinn þá svo smáger, að lítt
hæfur getur talist til húsagerðar.
Talsvert er þó um all-hátt kjarr,
sumstabar, er veitir búpeningi
sæmilegt skjól, Með fram ánum,
er aftur á móti víða talsverður
skógur, einkum greni. í hinum
norðlægari héruðum fylkisins er
timburtekja mikil og góð, Skóg-
lendi það, er mesta hefir timbur-
tekjuna, er um 1,416,000 ekrur að
ummáli, og er gizkað á, að timbr-
ið á þeirri spildu muni nema ná-
lægt 21 miljónum feta. Aðal-
timburtegundirnar, er framleidd-
ar eru sem verzlunarvara, eru
greni, birki, fura, tamarac og wil-
low (viðir). Mest er um timbur-
tekju í Crow’s Nest héruðunpm,
með fram Old Man ánni, 1 Porku-
pine hæðunum, einnig við High
River, Sheep Creek, Bow River,
Red Deer, Athabaska, Saskatche-
wan, Brazeau, Pembina og Mc-
Leod. Ganga má út frá því sem
gefnu, að í hinum norðlægari hér-
uðum muni timburtekjan aukast
mjög, er fram líða stundir og
fleira fólk tekur sér þar bólfestu.
Sý deild sambandsstjórnarinn-
ar, er annast um eftirlit með skóg-
unum, hefir í vörzlu sinni víð-
áttumikil skógflæmi. Er þar gætt
sérstakrar varúðar, að því er elds-
hættu snertir og ströngum fyrir-
mælum fylgt í samandi við beit
og grisjun. Þessi eru aðal svæð-
in, er stjórnin hefir eftirlit með:
Crow’s Nest, Bow River, Clear-
water, Brazeau, Cooking Lake og
Athaaska og Lesser Slave.
iRéttindi til timburtekju á stöðv-
um þessum, eru seld við opinberu
uppoði á skrifstofu umboðs-
manns samandsstjórnarinnar í
timdæmi því, sem um er að ræða^
0
*