Lögberg - 17.01.1929, Page 8
Bls. 8.
LÖGBERG FIMTUDAGINN 17, JANÚAR 1929.
íi*." rrs'->
_
....
Glóðheitar bollur
búnar til úr
RobínHood
FI/OUR
Herra M. J. Borgford, Elfro»,
Sask., hefir gerst umboðsmaður
fyrir Canadian General Realty,
Ltd., í Vatnabygðunum, og eru
allir í því bygðarlagi, er kaupa
vilja hluti, eða krefjast upplýs-
inga, beðnir að snúa sér til hans.
J, J. Swanson and Co., Ltd.
601 Paris Bldg., Winnipeg.
VEITIÐ ATHYGLI!
Tvö Sfcholarships við einn elzta
og fuljkorpnasta verzlunarskóla
hér í borginni, fást keypt nú þeg-
ar á skrifstofu Lögbergs. Leitið
upplýsinga sem allra fýrst, það
sparar yður peninga.
Fyrirlestur verður haldinn í
kirkjunni nr. 603 Alverstone St.,
sunnudaginn 20. jan., klukkan 7
síðdegis. Efni: Kærleikur Guðs.
Hvenær og á hvaða hátt kom elska
Guðs, sem Jesús bendir á í Jóh. S:
16, í ljós, þar sem hann segir:
“því að svo elskaði Guð heiminn,
að hann gaf son sinn eingetinn,
til þess að hver, sem á hann trúir,
glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.”
- Allir eru boðnir og velkomnir.
Virðingarfylst.
Davíð Guðbrandsson,
Goodtemplarar eru beðnir að
athuga, að stúkan iSkuld er að
skifta um fundarkvöld. Verða
fundirnir framvegis haldnir á
þriðjudagskvöldum, og byrja í
næstu viku, þann 22.
Mitt innilegasta hjartans þakk-
læti vil eg hér með flytja djákna-
nefnd Fyrsta lút. safnaðar, er gaf
mér í fátækt minni og basli $10,
afhenta af Mr. S. 0. jerring, sem
og Mr. Agnari Magnússyni, er gaf
mér $1. — Fyrir þessa góðfúslegu
hjálp geymi eg i hjarta mínu ó-
gleymanlega þkjf.
Winnipeg, 14. janúar 1929.
Mrs. Julius Sæther.
WONDORLAND.
Kvikmyndin, “Warming Up”, er
Wonderland leikhúsið nú sýnir,
kemur blóðinu í hreyfingu. Base-
ball er eitt af því, sem allir fylgja
með áhuga, sérstaklega þegar
Richard Dix er annars vegar.
“The Mysterious Lady”, myndin
sem leikhúsið sýnir fyrstu þrjá
dagana af næstu viku, er með af-
brigðum skemtileg. Þar leikur
hin mikla sænska leikkona, Greta
Garbo, aðal hlutverkið, og er
leikurinn bæði efnisríkur og til-
komumikill.
Rose Leikhúsið.
“The Cameraman”, kvikmyndin,
sem Rose leikhúsið sýnir síðustu
þrjá daga vikunnar, hefir svo mik-
ið af fyndni og gamansemi, að
hún skemtir ágætlega öllum sem
hana sjá. Þar leikur meðal ann-
ars Buster Keater, og fleiri vel-
þektir leikarar.
Á mánudaginn í næstu viku og
næstu tvo daga, sýnir leikhúsið
myndina “Drums of Love”, sem
er eftir sama höfund eins og
“Birth of Nations” og fleiri al-
þektar kvikmyndir, sem mjög mik-
ið þykir til koma, og stendur þessi
mynd D. W. Griffiths öðrum
myndum hans ekki að baki.
.Efingar heldur Icelandjp Choral
Society hvert þriðjudagskveld, kl.
8, í fundarsal Fyrstu lút, kirkju.
Nú er farið að æfa fyrir Musical
Festival, og nauðsynlegt að allir
sæki.
Lesið auglýsingu stúk. Heklu í
þessu blaði um tombólu og dans,
sem haldin verður 21. þ.m. Gleym-
ið ekki deginum — og komið.
GJAFIR TIL J. B. SKÓLA.
Samskot vfð guðsþjónustu í Ár-
borg, 7. okt. 1928.... . $5.00
Jón Helgason, Wpeg......... 5.00
Mj\ og Mrs. T. O. Sigurdson,
Brown P. 0................. 5.00
Jóhann Sigbjörnsson^ Leslie 5.00
'Dr. O. Bjornson, Winnipeg.... 10.00
Mr. og Mrs. Magnus Peterson,
Langruth.....'............ 5.00
Með alúðarþakklæti,
S. W. Melsted, gjaldk.
Símskeyti barst frú Guðfinnu
T^iorlacius, að 326 Albany Street
hér í borginni, þann 8. þ.m., að
látlst hefði í Reykjavík daginn
áður, þann 7., móðir hennar, frú
Þórunn Jánsdóttir frá Skipholti,
átræð að aldri. Hún lætur eft-
ir sig þrjár dætur, frú Guðfinnu,
sem áður var nefnd, ' konu Árna
Thorlacíusar; frú Þóru, gjfta
Þórði kaupmanni Jónssyni í Rvík,
og Ragnheiði, gifta Jóni Jónssyni,
fyrverandi kaupmanni, einnig í
Reykjavík. — Hin framliðna var
vinsæl kona og vel metin.
Næsta sunnudag, þ. 20. janúar,
er áformað að séra Jóh. Bjarnason
messi í islenzku kirkjunni í Bran-
don, á þeim tíma dags, sem þar er
venjulegur. íslendingar þar í bæ
og nágrenni eru beðnir að veita
þessu eftirtekt.
Hið Sameinaða kvenfélag Hins
ev. lút. kirkjufélags íslendinga í
Vesturheimi, heldur ársþing sitt í
Fyrstu lút. kirkju í Winnipeg mið-
vikudag og fimtudag 13. og 14.
febrúar 1929. öll kvenfélög, sem
ætla sér að senda fulltrúa á þing-
ið, eru beðin að tilkynna það, os
eins hverjir það eru, skrifara
Hins sameinaða kvenfélags, Mrs.
B. S. Benson, 757 Home St., Win-
nipeg, eins fljótt og mögulegt er.
Þingið verður nánar auglýst
síðar..
GJAFIR TIL BETEL.
Frá kvenfél. Síons safnaðar,
Leslie, Sask........... $25.00
Þorst Jónsson, Osland, B.C. $5.00
Leiðrétting við gjafalista kvenfél.
Frelsissafn, í desember; ar hafa
fallið úr tvö nöfn:
J. K. Sigurdsson ......... $2.00
og Mr. og Mrs. J. Björnson 2.00
Fyrir gjafirnar er þakkað,
J. Jóhannesson, féh.,
675 McDermot Ave., Wpg.
HJÁLPRÆÐISHERINN.
Yfir hershöfðingi Hjálpræðis-
hersins, Bramwell Booth, hefir
lengi verið veikur og því ekki fær
um að gegna embætti sínu. Vilja
margir af fyrirliðum hersins, að
hann segi af Sér, en það vill hann
ekki gera, og hefir gengið í tölu-
verðu þjarki út af þessu nú að
undanförnu. Hvað úr þessu kann
að verða, er erin ekki fullséð, þeg-
ar blað vort er prentað og munum
vér skýra nánar frá þessu í næsta
blaði.
Hr. Brynjólfur Thorlaksson
söngkennari, sem haldið hefir
uppi söngkenslu 1 Argylebygð frá
því í haust, hefir verið ráðinn til
samskonar starfa meðal íslend-
inga í Mouse River bygðinni í vor
er kemur, að minsta kosti um mán-
aðartíma. Annast Melanktons-
söfnuður um ákveðinn hluta kostn-
aðarins í sambandi við þá kenslu.
Mr. og Mrs. O. S. Arason, Glen-
bora, Man., komu til borgarinnar
á þriðjudaginn. Þau eru að leggja
af stað vestur á Kyrrahafsströnd.
Þau búast við að verða að heiman
svo sem sex vikna tíma.
Mr. G. J. Oleson frá Glenbora,
Man., var staddur í borginni á
miðvikudaginn.
Mr. og Mrs. B. A. Anderson og
Mr. og Mrs. T. S. Arason, frá Cyp-
ress River, Man., eru stödd í borg-
inni.
Mrs, Margrét Edwards, frá Cal-
gary, Alta., hefir verið stödd í
borginni nokkra undanfarna daga.
Er nú á förum til Ebor, Man., til
að heimsækja foreldra sína, Mr.
og Mrs. Hinirik Johnson.
Elzta Eimskipa-samband Canada.
1840—1928
SkrtfW tU:
THE CUNARD LINE
270 MAIN STREET,
WINNIPEO, MAN.
Cunard eimskipafélairlS býCur fyrirtaks fðlks-
flutninga sambönd við Noreg, Danmörk,
Finnland og Island bæði til og frá canadisk-
um höfnum, (Quebec f sumar).
Cunard eimskipafélagriO hefir stofnsett ný-
lendu- og innflutningrsmála skrifstofu I Win-
nipeg- og gretur nú útvegað bændum skandi-
naviskt vinnufólk, bæði konur og karla.
Skrifið á yðar eigin tungumáli til undirritaðs
félags, er veita mun allar upplýsingar 6-
keypis.
Pað er sérstaklega hentugt fyrir fólk, sem
heimsækja vill skandínavfsku löndin, að ferö-
ast með Cunard skipunum.
Eitt meðal hinna mörgu hlunninda, er Cun-
ard félagið býOur, er það að veita gestum
tækifæri á að svipast um I London, heimsins
stærstu borg.
eOa tU
10,053 Jasper
Ave.
EDMONTON
eOa
209 Eight Ave.
CALGARY
eOa
100 Pinder
Block
KONUNGURINN.
Af heilsufari hans eru þær góðu
fréttir að s«gja, að heilsa hans er
að smástyrkjast, og er nú álitið að
fullar líkur séu til, að hann muni
aftur ná heilsu, þó þess verði að
sjálfsögðu langt að bíða, að hann
verði jafngóður eftir þau miklu
veikindi, sem hann hefir orðið að
líða.
BJÖRG FREDERICKSON
Teacher of Piano
Ste 8, Acadia Apts. Victor St.
Teleph^fM 30 154
Um uppruna Islendinga
Svo heitir all-löng rigerð eftir
norska mannfræðinginn Halfdan
Bryn, og er hún perntuð í “Fest-
skrift til, rektor J. Quigstad”
(Tromsö museums skrifter, Vol.
II). Hiln var sencf xAér fýriFhokkr-
um mánuðum, en ýmislegt annríki
hefir valdið því, að eg hefi ekki
getið fyr um hana. ..
Það eru að vísu mikil tíðindi fyr-
is oss, að svo fróður maður, sem
Halfdan Bryn lætur uppi álit sitt
um þetta efni, þó ekki hafi hann
haft tækifæri til þess að gera
mannfræðisrannsóknir hér á landi.
Hann er allra manna kunnugast-
ur mannfræði Noregs, en hún er
grundvallaratriði, er dæma skal
rnn íslendinga. Auk þessa er hann
með beztu fræðimönnum í mann-
fræði yfirleitt. Það er því ekki
nema eðlilegt, að allir yeiti því
eftirtekt, er hann leggur til mál-
anna, og greinin er rituð á þýzku,
svo víðsvegar verður hún lesin.
Höfundurinn byrjar á stuttu yf-
irliti yfir landnám á íslandi og
j helztu atriði í sögu lands og þjóð-
ar, sem koma þessu máli við.
I Leggur hann sérstaka áherzlu á,
j að af mannlýsingum Landnámu
og íslendingasögum sé það aug-
ljóst, að jafnvel á landnámsöld
! hafi hér verið að minsta kosti
jtveir kynþættir, annar hávaxið,
i ljóshært og bláeygt norrænt kyn,
en hinn kynþátturinn hávaxinn,
stutthöfða og dökkur. Virðist
þetta dökka kyn hafa verið með
öðrum hætti, en gerist á vestur-
strönd Noregs, því þab er lágvax-
ið “Alpakyn” og stingur ekki svo
mjög í stúf við norræna kynið eins
og íslenzku mannlýsingarar gefa
í skyn. Að dökka kynið hafi ver-
ið hávaxið, má meðal annars ráða
af því, að íslendingar eru, eftir
mælingu G. H., hávaxnari en svo,
að kynblöndunin geti stafað af lág
vöxnu “Alpakyni”. Þá reyndist
og G. H., að háralitur íslendinga
yrði nokkru dekkri eftir því sem
hæðin var meiri. Það styður og
þetta mál, að fslendingar eru yf-
irleitt tiltölulega langleitir, en
Alvakyið er stuttleitt (kringlu-
leitt). Munur er og á fótleggja-
lengd íslendinga og dökka kyns-
ins í Noregi.
En hvaða kynþáttur voru þá
þessir hávöxnu dökku menn, sem
fluttu til íslands? Höf. telur all-
ar líkur til þess, að það hafi verið
Dínarakyn. Það er hávaxið, dökt,
langleitt og hnakkalítið, en á nor-
ræan kyninu hvelfist hnakkinn
all-langt aftur. Því verður ekki
neitað, að mjög fátítt er það ekki
að sjá íslendinga með lítinn
hnakka og þá jafnframt stutt höf-
uð, svo að nálega er slétt af hálsi
að aftan og upp í hvirfil,
Því fer þó fjarri, að dínarakyn-
ið eitt hafi blandast saman við
norræna kynið á íslandi. Meðal
ánnars talar hin mikla höfuglengd
íslendinga á móti því. Hún bend-
ir frekar til þess, að Miðjarðar-
hafskynið hafi blandast saman
við hin, en það er dökt, langhöfða
og fremur lágvaxið. Svo var þetta
á Bretlandi og höfuðlag íslend-
inga minnir að ýmsu leyti á Breta,
'þó líkamsvöxturinn sé yfirleitt
hinn sami og í Noregi eða nauða-
líkur.
Þó alt þetta sé að nokkru leyti
tilgátur, þá er það ómótmælan-
legt, að hárlitur íslendinga og ef
til vill hörundslitur, er miklu
dekkri en gerist í Noregi. Hið
bjarta hár er mjög fátítt hér
nema á börnum og unglingum.
Þetta er full sönnun fyrir því, að
dökt en hefir blandast á íslandi
við norska kynið, og þá að öllum
líkindum bæði dínarakyn og Mið-
jarðarhafskyn. Norðmenn og ís-
lendingar eru að vísu náskyldir og
nauðalíkir, en þó eru þeir í ýmsu
ólíikir, bæði andlega og líkamlega.
Höf. tilfærir ummæli John Bed-
does um íslendinga: “It has been
suggested also, that the captives
they brought from Ireland, and
occaaionally intermarrieges with
the Iriah and Scottish G^el, gave
them the the range of poetic ima-
gination, which sometimes bright-
ens their wonderful but sanguin-
ROSE
THEATRE
Sargent and Arlington
Fallegasta leikhúsið í vest-
urhlufa borgarinnar.
Fimtud. Föstud. Laugard.
Þessa viku
BUSTER KEATON
í síðasta leik sínum
“The Cameraman’,
Yellow Cameo No. 5
Mánud. Þriðjud. Miðvdag
Næstu viku
D. W. GRIFFITHS
Mikilfenglegasta mynd síðan
,‘The Birth of Nations”
var sýnd
“Drums of Love”
Leikin af
MARY PHILBIN
Gaman.
Fréttir
HLUTAVELTA og DANS.
verður haldinn að tilhlutan stúkunaar Heklu, I.O.G.T,
mánudaginn 21. þ. m., í efri sal Goodtemplara hússins.
Margir góðir drættir, þíft- á meðaj eitt tonn af kolum
frá D. D. Wood and Sons, 1038 Arlgington Street.
Samkoman byrjar klukkan 8 e, m., og að lokinni hluta-
veltunni, byrjar dansinn og varir til kl. 12. — Góður
hljóðfærasláttur.
Aðgangur 25 cents, með einum drætti.
ary sagas. We know from these
Sagas what men they were in per-
sonal appearance. They had the
same variety of complexion and
heir-colour tha we have, and in
some cases Irish features came
out with Irish blood, thus Kjartan
had dark hair.” — Telur hann, að
Beddoe hafi hér getið rétt*líklega
til og að íslenzka kynið sé af lík-
um rótum runnið og hið ,brezka
og írska. Skapferli íslendinga og
lyndiseinkenni bendi og á hið
sama. Deilugirni þeirra og flokka-
dráttur, en ekki sízt skáldskapar-
gáfa þeirra, minni á íra og kelt-
neska kynið. Að minsta kosti
stingi ritsnild þeirra og skáld-
skaparhneigð mjög í stúf við
strandabúa í norsku landnáms-
héruðunum.
Eins og vænta má, eftir því sem
hér er sagt, telur Bryn, að dökka
kynið á íslandi hafi einkum kom-
ið frá Bretlandseyjum. Það sé
augljóst, og ómótmælanlegt eftir
Landnámu, að um 12% landnáms-
manna hafi flutt hingað vestan
um haf, en líklegt, að þeir hafi
í raun og veru verið fleiri. Nor-
ræna fólkið var hér í miklum
meiri hluta og norrænir höfðingj-
ar réðu hér lögum og lofum. Þeg-
ar sögurnar voru ritaðar, var því
miklu meiri áherzla lögð á sögu
hinna ráðandi manna og ætta
heldur en aðskotadýra af ólíku
kyni. Af þeim fóru því fæstar
sögur. — Þá telur og höf. ekki ó-
líklegt, að eitthvað hafi orðið hér
eftir af írum þeim, sem bygðu
landið, er Norðmenn fundu það,
og hafi svo verið, má ganga að
því vísu, að þeir hafi blandast
saman við landnámsfólkið og þess
kyn, þó ekki sé þess getið í sögum.
Höf. lýkur máli sínu með þess-
um orðum:
“Enginn, sem hefir kynst ís-
lendingum, getur verið í vafa um,
að íslendingar séu frábrugðnir
Norðmönnum í skapgerð og and-
legu atgjörfi. Það er erfitt að
segja, í hverju munurinn liggur,
en auðfundinn er hann. Oss finst
einhver útlendingsbragur á íslend-
ingunum. Það er sjálfsagt hann,
sem kemur í ljós í sögunum og
hefir gefið íslendingum skáld-
skapargáfu þeirra.
Það er auðvitað óþægilegt fyrir
oss Norðmenn að þurfa að viður-
kenna það, að elcki sé alt gott í
fari íslandinga og allir þeirra
góðu hæfileikar runnir af norræn-
um rótum. En það hygg eg, að
vér verðum eigi að síður að kann-
ast við, að nokkuð af sínu erfða-
góssi, og sumt af hinu dýrmæt-
asta, hafa íslendjngar fengið frá
útlendum kynstofni. Þennan arf
hafa þeir fengið við kynblöndun
við Engla, Skota og Ira.
Að þessu er þannig farið styð-
ur það mál, að stundum getur kyn-
blöndun orðið til góðs. Það hefði
sízt orðið norsku þjóðinni til
meins, þó hún hefði hlotið nokkuð
af skma arfi og íslendingum féll
í skaut.”
Continuous Telephone 87 025 Saturday
2-mL, Wonderland sl,ow
starts 1 p m
FIMTUD. FÖSTUD. LAUGARD. þessa vilku
RICHARD DIX
IN
“WARMING UPU
Comedy and Tarzan Also Felix the Cat
MANUD., ÞRIDJUD. MIDVIIKUD. 21, 22. og 23. jan.
GRETA GARBO
IN
THE MYSTERIOUS LADY
Comedy and Screen Snapshots TELEPHONE 870X3
Vafalaust er, að landnámið vest- j Til Hallgrímskirkju.
an um haf hefir haft nokkur áhrif ^Th. Thorvaldson, Riverton $5.00
hvort sem þau eru svo mikil sem Mrs. Th. Kolbeinsson, Kuroki, 1.00
Bryn ætlar eða ekki. Það verður
fyrst úr þessu skorið, þegar ný
mannfræðileg rannsókn hefir ver-
ið gerð hér, víðtækari og full-
komnari en eg gat gert.
Ef trúa má sögum vorum, höf-
um vér ekki þurft að sækja há-
vaxna dökka kynið til Bretlands,
sízt áð öllu leyti. Um Skallagrím
er það sagt, að hann var “höfði
hærri en aðrir menn og sköllótt-
ur. “Er þetta hann Skallagrím-
ur,” sagði konungur, “hinn mikli
maður?” Að Skallagrímur og
faðir hans hafi verið svarthærðir,
segir Egla ótvírætt: “Grímur
vrir svartur maður og Ijótur, lík-
ur feður sínum, bæði yfirlits og
að skaplyndi”. Sama er sagt um
Egil Skallagrímsson: “Mátti
brátt sjá á honum, að hann myndi
verða mjög ljótur og líkur feður
sínum, svartur á hár,” — Mýra-
mananættin var norsk, en vel má
vera, að hún hafi verið af dínar-
kyni. Úr Landnámu má nefna þá
bræður Geirmund heljarskinn og
Hámund syni Hjörs Hörðakon-
ungs. Um báða er sagt, að þeir
voru “svartir mjög” á hörund,
svo að faðir þeirra “lést eigi slík
heljarskinn séð hafa”, enda var
Ljúfvina móðir þeirra dóttir
Bjarmakonungs. Því miður er
ekki getið um vöxt Geirmundar,
en naumléga hefir hann smámenni j
verið, slíkur höfðingi sem hann
var.
Hvernig svo sem þessu er farið,
þá verður aldrei mikið fullyrt um
íslenzka kynið eftir sögunum ein- j
ufti. Grandgæfileg rannsókn á.
landsmönnum er eina ráðið til
þess að fá sæmilega vissu um ætt j
vora og eiginleika. Þó eg hafi
brotið ísinn, er mikið verk óunnið, j
sem oss er skylt að léysa af hendi. j
Eitt af því fáa, sem vér gætum ;
skarað fram úr öðrum þjóðum í, j
er vísindaleg rannsókn á íslend-
ingum. G. H.
—Lesb. Mbl.
Áður auglýst 519.10
Alls nú ....... $525.10
E. iP. J.
RADTOS
Fyrir Hálfvirði
Kaupið Radio beint frá verk-
smiðjunni og
SPARIÐ HELMING
VERÐS
15 dagar til reynslu
Ábyrgst að þér verðið
ánægður.
THORDARSON GENERAL
AGENCIES
105 Hurst Bldg.
Gegnt Orpheum
PRINCESS FLOWER SHOP
Laus blóm—Blófn í pottum
Blómskraut fyrir 611 tækifæri
Sérstakl. fyrir jarðarfarir.
412 Portage at Kenned. 87 876
Veitið Athygli! — Silver Tea
verður hfeldlð í Jóns Bjarnasonar
skóla, föstudagskveldið þann 18.
þ.m'., klukkan hálf-níu. Styðjið
gott málefni með því að fjöl-
menna í skólann þetta tilgreinda
kveld.
R
0
Ð
Leggið litla upphæð í bank-
ann vikulega. Yður mun
furða hversu mikið það er
orðið í árslokin. Bara einn
dollar á viku gerir nærri því
fimtíu og fjóra dali á ári.
3Vz prct.. Vextir
Opið 9 til 6. Laug. 9 til 1.
$1.00 byrjar viðskiftin.
Province of Manitoba
Savings Office
Donald and Ellice
and 984 Main St.
“Conducted to Foster the
Thrift and Welfare of the
People.”
Eg hefi nú reynt að lýsa aðal-
efninu í ritgerð Halfdan Bryns.
Sú kenning, að íslendingar séu að
töluverðu leyti ættaðir vestan um
haf og skyldir Skotum og írum, er
ekki ný. Meðal annars var það
álit Guðbrandar Vigfússonar.
Hann fór eftir sögunum, en Bryn
kemst að sömu niðurstöðu út úr
mælingum mínum, þó sammála sé
hann mér um það, að íslendingar
og Norðmenn séu afar líkir í
mörgum greinum og báðir sverja
sig mjög í ætt norræna kynsins.
DIX0N MINING
C0.
LIMITED
Löggilt undir lögum Canada-ríkisins.
Höfuðstóll 2,000,000 hlutir
Ekkert ákveðið verð.
Félagið hefir í sínum vörzlum 800,000 hluti.
Félagið hefir alls ekki nema 100,000 hluti til sölu.
fyrir 50c hvern hlut
HUGSIÐ YÐUR!—Að þannig eru eftir í vörzlum félagsins..
700,000 hlutir. Allar vélar og; önnur áhöld.
NÁMALÖND—Hér um bil 5,000 ekrur af landi, sem að
líkindum er auðugt af málmum, og sem alt er nærri járn-
braut. Ekki langt frá Flin Flon og við Flin Flon brautina.
12 spildur af námalöndum
Dixon Spildan
Allar nauðsynlegar bygging-
ar og úbúnaður. Tré verið
feld og lándið hreinsað og
grafið niður að málmæðum
á 3000 feta svæði og sést af
því að landið er auðugt af
gulli, silfri, blýi og kopar.
Málmæðin sumstaðar 11 feta
breið.'
Waverley Spildan.
Allar nauðsynlegar bygging-
ar og útbúnaður. Þessi spilda
sýnir að hún hefir mikið af
málmpm, jafnvel ofan jarð-
ar á svæði, sem er 200 feta
langt og 4 feta breitt. Sýn-
ishorn, sem tekin eru af
handa hófi, sýna að þarna er
meira en $54 af gulli, silfri,
blýi og kopar í tonni.
AÐRAR SPILDUR
Þær rannsóknir, sem gerðarhafa verið, sýna, að þar er að
öllum líkindum mikið af málmi.
100J)00 Hlutir Til Sölu fyrir 50 cent. hver hlutur.
á skrifstofu vorri
408 PARIS BUILDING - Winnipeá
eða hjá umboðsmönnum vorum: Wood Dudley and Hilliard Ltd.
305 McArthur Building, Winnipeg. Man.