Lögberg - 07.02.1929, Side 8
Bls. 8.
LÖGBERG FIMTUDAGINN 7. FEBRÚAR 1929.
Robin Hood hveitimjölið
gerir meira og betra bi auð
heldur en annað hveit -
míði.
RobínHood
FI/OUR
ÁBYGGILEG PENINGA TRYGG-
ING í HVERJUM POKA.
Mr. Sigurgir Pétursson frá Hay-
land, Man., hefir verið í borginni
um tíma.
Mr. Páll Bjarnason frá Wym-
yard, var staddur í borginni í vik-
unni sem leið.
Mr. L. P. Bancroft, sambandsþing-
rraður fvrir Selkirk kjördæmið, leit
inn á skrifstofu vora síðastliðinn
föstudag. Lagði hann af stað til
Ottawa á mánudaginn.
Þriðjudaginn 22. jan. urðu þau
Mr. og Mrs. A. F. Björnson, við
Mountain, N. D., fyrir þeirri sáru
sorg, að missa fulltíða dóttur
sína, Sigríði. Hún var 27 ára að
aldri, er hún lézt, fædd og uppal-
in í þessari bygð og öllum kunn að
góðu. — Sigríður sál. var* ágæt
is stúlka, sem naut almennra výt-
sælda. Hún var geðprúð, bjart-
sýn og ljóselsk. Og var hún heim-
ilisfólkinu mjög hjartkær. Er því
heimilið lostið þungum harmi við
fráfall hennar, og þeir margir,
sem finna sárt til með ástvinum
hennar út af þeirra sáru sorg
Hin látna var jarðungin af sókn-
arprestinum frá heimUinu og
kirkjunni að Mountain, föstudag-
inn 25. jan. Var fjöldi fólks við
útförina. H. S.
Þann 25. janúar andaðist, eftir
þriggja mánaða legu, Kristófer
Eyjólfsson, á Prince Rupert, B.C.
spítalanum. Hann var 24 ára,
sonur Thorsteins heit. Eyjólfs-
sonar og konu hans, sem lengi
bjuggu í grend við Lundar, Man.
Hann syrgja öldruð móðir, 7 bræð-
ur og 2 systur.
Hjónavíglur framkvæm'dar af
séra Rúnólfi Marteinssyni, að 493
Lipton St., fötudaginn 1. febrúar:
Bud Júlíus Halldorson og Tillie
West, bæði frá Winnipeg Beach.
Leslie Fostgr Gordon Gorvett, og
Solveig Goodman, bæði til heimil-
is í Winnipeg.
Veitið Athygli!
Verið er að undirbúa hið árlega
miðsvetrarmót (Þorrablót), sem
haldið verður í Leslie þann 15.
febrúar. öllum, sem setið hafa
þessi mót Leslie-búa að undan-
förnu, ber saman um, að þau séu
hinar veglegustu og ánægjuleg-
ustu samkomur, sem haldnar séu
í Vatnabygðujn, og er fyllilega
búist við, að þessa árs blót verði
að engu leyti eftirbátur hinna
fyrri.
Skemtiskráin verður fjölbreytt,
en á sama tíma frábrugðin því, er
fólk hefir átt að venjast. Ræður
verða fluttar, islenzkir söngvar
sungnir, sögur sagðar og frumort
kvæði upplesin. Einnig verður
reynt að fá góðan kvæðamann til
að kveða íselnzkar rímur.
Allur innri gafl veizlusalsins
Verður hulinn með málverki af
íslenzkri fjallasýn. Þessa stór-
kostlegu mynd er ungur listamað-
ur bygðarinnar að mála, og annar
ungur maður bygðarinnar flytur
erindi um hinn sögurika stað, sem
myndin sýnir.
íslendingum í Vatnabygðum og
nærliggjandi sveitum, er svo vel
kunnugt um, hverníg máltíð bú-
stýrurnar og heimasætujmar í
Leslie héraðinu bera fram við slík
tækifæri, að óþarft er að fara um
það mörgum orðum. Þó skal það
tekið fram, að flestur sá íslenzkur
matur, sem fáanlegur er í þessu
landi, verður fram borinn.
Landar eru beðnir að muna eft-
ir deginum 15. febrúar næstkom-
andi. Nefndin.
Séra Rúnólfur Marteinsson fer
norður til Gimli á morgun (föstu-
dag) til að flytja erindi um Ferð
til Panama á samkomu, sem kven-
félag lúterska safnaðarins held-
ur.
Sér Hjörtur J. Leo lagði af stað
snemma í vikunni sem leið, áleið-
is til Blaine, Wash., Ætlar hann
að dvelja þar fyrst um sinn og
gegna prestsvrkum fyrir íslenzku
og lútersku söfnuðina í Blaine og
þar í grendinni.
Mf. Sigurður Sigurðsson og Mr.
G. B. Olgeirsson frá Gardar, N.D.,
v»ru staddir í borginni í vikunni
sem leið. Fóru heimleiðis á laug-
ardagsmorguninn.
KENNARA vantar fyrir Ebb and
FIow S. D. No. 1834, frá 15. marz
til 30. júní 1929. Umsóknir taki
fram mentastig, æfingu og kaup,
sem óskað er eftir. — J. R. John-
son, sec.-treas., Wapah, Man.
Skemtifund heldur deildin Frón
í efri sal Goodtemplara hússins
þriðjudagskveldið þann 12. þcssa
mánaðar, kl. 8.15. Verður þar
ýmislegt til skemtanp.
Gefin saman í hjónaband af
sér Sigurði Ólafssyni á Gimli, 2.
febr., Thorsteinn Thorsteinssrn
og Guðrún Kristbjörg Thorberg-
son, bæði frá Glenboro, Man.
Efni fyrirlestursins í kirkjunni
nr 603 Alverstnoe stræti, sunnu-
daginn 10. febr., kl. 7 síðdegis,
verður: Mun Kellogg sáttmálinn
leiða heiminn inn í þúsund ára
friðartímabil? — Þú ert velkom-
inn. Virðingarfylst,
Davíð Guðbrandsson.
Mr. Arnljótur B. Olson, var skor-
inn upp við kviðsliti á Almenna
sjúkrahúsinu hér í borginni síöast-
liðinn lauganlag. Dr. B. J. Brand-
son gerði uppskurðinn. Er oss tjáð
að Mr. Olson líði upp á hið bezta.
Mr. Árni G. Eggertsson lög-
maður frá Wynyard, kom til borg-
arinnar fyrir helgina.
“Ramona’, myndin sem á minna
en sex mánuðum varð heimsfræg,
verður sýnd af John S. Thorstein-
son á eftirfylgjandi stöðum:
Langruth, 11. febr.; Oak Point,
13. feb.; Steep Rock, 14. feb.; Er-
iksdale, 15. feb.; Lundar, 16. feb.
Sagan gerist í Californiu um
miðja 19. öld, eða um það leyti,
sem gulltekjan stóð þar sem
hæst. Sagan m. a. gengur út á
kúgun Indíána og ást kynblend-
ingsstúlku til tveggja vina —
annars Indíána, en hins af hvít-
um ættum.
Mrs. Thorsteinson syngur
“Ramona” og mörg af gömlu,
góðu, angurblíðu lögunum, sem
við, hverfandi kynslóðin, rauluð-
um fyrir svona tuttugu til þrjá-
tíu árfim síðan — áður en “jazz”
og “blackbotoms” tóku við stjórn-
inni. Mr. Telmer spilar á píanó.
Aðgangur 75c, 50c, 25c.
WONDERLAND.
Ráðsmaður Wonderland leik-
hússins, Mr. Rost, lætur þess get-
ið, börnum og unglingum til mik-
illar gleði, að Rin-Tin-Tin sýni
sig á leikhú-’inu í leiknum “Jaws
of Steel”, síðustu þjá dagana af
þessari viku. Það þarf ekki annað
en minna á ‘Rinty”. Flestir kann-
ast við hann og allir hafa ánægju
af að sjá hann.
Fyrstu þrjá dagana af næstu
viku sýnir leikhúsið kvikmyndina
“The Shepherd of the Hills”. Það
þykir framúr skarandi fallegur
tilkomumikill leikur, og þeir sem
leika eru flestir úrvalsleikarar.
Canada framtíðarlandi^
Tiltölulega auðvelt er, enn sem
komið er, að eignast lönd í Al-
berta, við sanngjörnu verði. Ný-
ræktað land gefur þar skjótt af
sér arðvænlega uppskeru og auk
þess má nær allstaðar hafa mikla
búpeningsrækt.
Land í Alberta steig ekki í
verði meðan á stríðinu stóð, í
hlutfalli við það, sem það gaf af
sér. Vinnukraftur var takmark-
aður þegar fyrir stríðið, og eftir
að fjöldi hinna ungu manna gekk
í herþjónustu, var, eins og leiðir
af sjálfu sér, enn örðugra að afla
sér vinnumanna.
Meðan á stríðinu stóð, var eng-
inn fólksfuntningur inn í fylkið,
inn fólksflutningur inn í fylkið,
né hldur nokkurt utan að kom-
hækkaði land allmikið í verði i
Bandaríkjunum; fór það í hlut-
falli við verðhækkun hinna ýmsu
landbúnaðarafurða.
í Alberta eru enn feykistór land-
flæmi ónumin með öllu, og sökum
þess hve tiltölulega fátt fólk hef-
ir fluzt þangað inn hin síðari ár-
in og eftirspurnin verið lítíl eftir
jarðnæði, hafa ónumin lönd hækk-
að tiltölulega lítið í verði.— Öðru
máli er að gegna með Bandarík-
in, þar sem megnið af öllu byggi-
legu landi er undir rækt. Enda
hækka landeignir þar jafnt og
þétt í verði, með hverju árinu sem
liður. Meðalverð ræktaðs lands i
Alberta, nemur svo sem einum
þriðja af landverðinu sunnan lín-
unnar.
Jafnvel beztu lönd í Alberta,
mega erin kallast í lágu verði.
Land í Iowa selst fyrir $169 ekr-
an, en meðalverð í Illinois ríkinu
er $144, þótt á sumum stöðum
seljist það fyrir $400 til $450 ekr-
an. Svipaður mismunur á sér
stað milli verðs á bújörðum á
Englandi og í Adberta. Gott land
i Alberta fæst keypt fyrir það sem
svarar ársleigu á líku landrými í
Bandaríkjunum og á Bretlandi.
Óyrkt land! fæst fyrir þetta frá
$20 til $40 ekran, en ræktað land
frá $25 til $75 hver ekra, e'ftir því
hve miklar umbætur er um að
ræða. Áveitulönd seljast fyrir
frá $50 til $75, og þar sem þau
eru fullræktuð, fyrir $75 til $125
ekran.
Á Alberta fylki eru markaðs-
skilyrði fyrir korn, hin ágætustu.
Ströngum lögum er fylgt í sam-
bandi við sölu kornsins; hafa um-
sjónarmenn stjórnarinnar eftirlit
með flokkuninni. AIls eru í fylk-
inu fimm hundruð kornhlöður og
eiga nú bændur sjáifir í samein-
ingu flestar þeirra.
Kornkaupmenn verða að hafa
stjórnarleyfi og leggja fram veð,
er tryggi bændur gegn tapi, ef
kornkaupmaður kynni að verða
gjaldþrota, eða sýna af sér ó-
ráðvendni.
Bóndinn getur sent korn sitt til
kornhlöðunnar og fengið fyrir það
alt peninga út í hönd, eða hann
getur fengið það geymt þar og
beðið eftir betra verði, ef ráðlegt
þykir. Fær hann skýrteini, er sýn-
ir flokkun og magn kornsins.
Selt getur hann kornið, nær sem
vera vill. Vilji hann senda korn-
ið beina boðleið, getur hann flutt
það sjálfur til stöðvarinnar og lát-
ið það í járnbrautarvagninn, því
hleðslupallar eru þar hvarvefna,
og má aka upp að þeim alla
leið. Jt
Markaður fyrir búpening er og
hinn hentugasti. Gripasölutorg-
um er stjórnað samkvæmt fyrir-
mælum laga, er hefnaðt The Live
Stock and Live Stock Products
Act. — í Edmonton og Calgary
eru stærstu markaðirnir fyrir af-
urðir bænda. Kornyrkjumanna-
WALKER
Canada’s Finest Theatre
Fimtudag, Föstudag, Laugardag,
14.-15.-16. Febr.
Einnig e.h. á Laugardag
FerSin tmi Canada er undir sér-
stakri vernd landHtjöraníf og
Mathe3on erkibiskups vfirmanns
énskii kirkjunnar í Canada.
Westm inster
Glee Singers
Frá. Westminster Abbey,
St. Paul’e og öörum helztu
eíisku dómkirkjum
Fjórir ágœtir Konsertar
gjörbreytt söngskrá í hvert sinn.
(Lions Club hefir umsjón með söng-
flokknum í Winnipeg)
Bérstaklega lágt verð
Að kveldinu—50c, 75c, $1.00, $1.50.
Eftirmiðdag—26c, .50c, 75c, $1.00
Enginn skemtanaskattur.
ROSE
THEATRE
Sargent and Arlington
Fallegasta Ieikhúsið í vest-
urhluta borgarinnar.
félögin og eins félög hinna sam-
einuðu bænda, hafa starfað að þvi
allmikið á hinum síðari árum, að
koma á samtökum, að því er snert-
ir sölu hinna ýmsu búnaðar af-
urða. Gripakvíar *Stock Yards)
eru undir ströngu stjórnar eftir-
liti. Skal þar föstum reglum
fylgt, að því er snertir vigt og
meðferð markaðsfénaðar.
Smjörgerð fylkisbúa stendur
undir beinu stjórnar eftirliti. —
Landbúnaðardeild fylkisins á ís-
hús í Calgary og þangað geta
bændur sent smjör sitt, selt það
þegar í stað, eða fengið það
geymt þangað til markaðsskilyrði
batna. Smjör alt er flokkað,
samkvæmt lögum, er nefnast The
Dairymens Act. Fer flokkun fram
bæði í Calgary og Edmonton,
jafnskjótt og sýnishornin berast
þangað í hendur umboðsmanni
stjórnarinnar.
Lögin um samvinnumál — The
Alberta Co-operative Act, heimila
30 bændum, að afla sér láns í
sameiningu gegn sameiginlegri
ábyrgð og lána það síðan út aftur
til meðlima sinna. Sérhver með-
limur leggur fram $100, síðar kýs
félagsskapur þessi embættismenn,
er semja við löggiltan banka um
að kaupa eiginhandar víxla fé-
lagsmanna, gegn ábyrgð félagsins
í heild sinni. Slík lán eru veitt til
eins árs í einu og eru vextirnir
venjulega sex af hundraði.
The Live Stock Encouragement
lögin, sem ofí eru nefnd The Cow
Bill, voru samin í þeim tilgangi að
gera nýbyggjum kleift að útvega
sér kýr og koma sér upp naut-
gripastofni. Fimm eða fleiri
bændur geta samkvæmt þeim lög-
u,m stofnað með sér félagsskap í
þeim tilgangi að afla láns. Eigi
má lána einstökum félagsmanni
meira en $500. Umboðsmaður
stjórnarinnar hefir eftirlit með
lánveitingum, en fylkissjóður á-
byrgist lánin. Slík lán eru veitt
til fimm ára, gegn sex af hundr-
aði í vöxtu.
Til þess að standast kostnað
við skrifstofuhald, greiðir sér-
hver meðlimur þess félagsskapar
$1 í sameiginlegan sjóð. Ábyrgð
stjórnarinnar á lánum samkvæmt
lögum þessum, nemur nú orðið
meira en hálfri annari miljón
dala.
Hmtud. Föstud. Laugard.
Þessa viku
MARION DAVIES and
WILLIAM HAINES
in
“SHOWPEOPLE”
A unique comedy of fitm life.
YELLOW CAMEO No. 9
Comedy — Fables
Mánud. Þriðjud. Miðvikud.
næstu viku.
“STREET ANGEL”
with
JANET GAYNOR and
CHARLES FARRELL
Comedy — News
TWO BIG PICTURES
DON’T MISS EITHER
OF THEM
Dauður í þrjú ár
en kominn heim aftur.
Continuous
Daily
2-1 I p.m.
Telephone 87 02»
Wonderland
Saturday
Show
starts 1 p m
FIMTUD. FÖSTUD. LAUGARD. þessa viku
RIN-TIN-TIN
IN
“JAWS OF STEEL”
Extra, William Desmond in The Mystery Rider.
Added, Charlie Chaplin in The Immigrant.
Last Chapter of Tartan and Screen Snapshots
3 GIFTS TO EACH CHILD SATURDAY MATINEE
MANU, ÞRIÐJU og MIDVIKUD., 11. 12. og 13. FEBR.
(líillEPtlE
jfllllU
Uarold Bell
WRIGH
Collegians and Scenic
Telephone 87 025
Það vakti mikla eftirtekt í Ber-
lín hér á dögunum, er maður einn,
sem allir héldu að dauður væri og
grafinn fyrir þremur árum, kom
alt í einu í ljós, eins og ekkert
hefði í skorist, og var hinn bratt-
asti.
Maður þessi hafði selt blom á
torgi einu í borginni. Alt í einu j
kom hann einn morgun og kvaðst
ætla að byrja fyrri atvinnu sína.
Kunningjar hans á torginu urðu
fyrst skelkaðir, er þeir sáu hann,
og ætluðu ekki að geta trúað sín-
um eigin augum, er hann kom
þarna labbandi.
Maður þessi hvarf frá heimili
sínu fyrir þrem árum. Skyldmenni
hans skýrðu lögreglunni frá
hvarfi hans. Lögreglan fann
nokkru síðar dauðan mann úti í
skógi, er hafði hengt sig þar í tré.
Teknar voru ljósmyndir af lík-
inu, og þær sýndar konu hins
horfna blómasala. Sagði hún að
þær væru af líki manns síns. Og
í þeirri trú var líkið kistulagt og
jarðað, og settur legsteinn á gröf-
ina og hvað eina.
En nú er það komið á daginn,
að líkið hefir verið af öðrum
manni, og blómsalinn lifir og lifir
enn. Verður nú vandinn meiri
fyrir lögregluna að finna út hver
jarðaður var fyrir þrem árum. —
Lesb. Mgbl.
/ Passiusálmar
Hallgríms Péturssonar.
Ný útgáfa er komin á markað-
inn. Það er bqkaverzlunin Emaus,
sem, gefur út. Textinn er sam-
hljóða vísindaútgáfu Fræðafé-
lagsins, sem út var gefin 1924, og
er vandaðasta útgáfa, sem til er,
gerð eftir frumhandriti og sýnd
ýms afbrigði í lesháttum. — Þessi
nýja útgáfa er hin snotrasta og
vandaðasta og myndarleg í alla
staði. Pappír ágætur, letur skýrt
og glögt, bil milli versa og biblíu-
textinn með skáletri, eins og sið-
ur var 1 eldri útgáfum. — Bindin
eru smekkleg, þó mundu sumir
kjósa þau heldur svört en blá. Að
öðrum útgáfum ólöstuðum, mun
þetta vera ein sú myndarlegasta,
sem komið hefir um langa hríð.
Samt er verð mjög lágt, aðeins 4
krónur.
Sálmunum sjálfum þarf ekki að
mæla með. Það gera þeir bezt
sjálfir. Hingað til hafa menn
kunnað að meta þá, eins og sjá
má af því, að komnar eru ekki
færri en 47 útgáfur af þeim. Þeir
ættu að vera í eigu hvers íslend-
ings, sem kominn er til vits og
ára. Þessi útgáfa mun gera sitt
til, að svo verði. Fr. G.
—Vísir.
fslenzk þjóðlög.
Innan skamms kemur út hjá
þýzku forlagi hefti með tuttugu
og fimrn íslenzkum þjóðlögum og
tvísöngvum, sem Jón Leifs hefir
sett út til alþýðlegrar notkunar.—
Heftið verður mjög ódýrt, kostar
aðeins tvö mörk í lausasölu, en
hverju lagi fylgir vísa á íslenzku,
norsku og þýzku. Hefir hr. dr.
Erik Eggen annarst norsku þýð-
ingarnar, en próf. dr. Felix Genz-
mer, sem frægur er fyrir Eddu-
þýðingu sína, hefir þýtt allar vís-
urnar 1 heftinu á þýzku. Frágang-
ur allur er svö einfaldur, að jafn-
vel börn og byrjendur geta leikið
og sungið lögin, og hafa íslenzku
þjóðlögin aldrei, sízt rímna og tví-
söngslögin, komið áður út í slíkri
framsetningu.—Mgbl.
RAMONA BEAUTY PARLOR
íslenzkar stúlkur og konur. Þeg-
ar þið þurfið að klippa, þvo, eða
laga hárið, eða skera eða fága
neglur, þá komið til okkar. Alt
verk ábyrgst. Sanngjarnt verð.
251 Notre Dame Ave.
_ Sími: 29 409
Inga Stevenson. Adelaide
Jörundson.
Hafið þér nóg af raf-
magnslömpum?
Æfinlega goti að hafa
nokkra fyrirliggjandi
Laco lömpufn og fá-
Kaupið box af sex
ið brúðuhús gefins.
Vér höfum beztu gas- og raf-
magns áhöld með sérstak-
lega hægum borgunarskil-
málum.
WINNIPEG ELECTRIC CO.
“Ábyrgjast góð viðskifti”
Þrjár búðir: Áhalda deildin,
A neðsta gólfi Electric Rail-
way Chbrs., 1841 Port. Ave,
St. James, Cor. Marion og
Tache, St. Boniface.
Elcctrically
Hatched
BABY
CHICKS
"Fyrir afurSir, sem eg hefi selt
og það, sem eg á óselt hefi eg feng-
ið $125.00 ágóða af þeim $18.00, sem
eg í aprll í fyrra borgaði yður fyr-
ir 100 Barred Rock unga,” skrifar
oss Mrs. C. B. Denny, Milden, Sask.
pessi vitnishurður, eins og margir
aðrir, sem oss berast án þess við
biðjum um þá, er oss sönnun þess.
að það borgar sig vel fyrir bændur
að fá eitthvað af vorum kynbættu
varphænúm. Bók, sem er 32 bls. og
með litmyndum fáið þér gefins.
Hún gefur yður allskonar upplýs-
ingar um hænsni og hvernig með
þau á að fara. 10% afsláttur á öll-
um pöntunum fyrir 1. marz.
Hambley Windsor Hatcheries, Ltd.
601 Logan Ave., Winnipeg, Man.
Hænu ungar, sem verða beztu
varphænur í Canada; ábyrgst að
ungarnir komi allir lifandi. Skýrsla
um kyn unganna látin fylgja þeim.
Ýmsar tegundir, svo sem Leghorns,
Barred Rocks, Reds, Anconas, Min-
orcas, Wyandottes, Orpingtons 12
mánaða tilsögn Kostnaðarlaust. Út-
ungunarvélar og áhöld til að ala
upp ungana. ókeypis verðlisti.
Alex. Taylor’s Hatchery, 362 Furby
St., Winnipeg, Man.
PRINCESS FLOWER SHOP
Laus blóm—Blóm í pottum
Blómskraut fyrir öll tækifæri
Sérstakl. fyrir jarðarfarir.
412 Portage at Kenned. 87 876
BJÖRG FREDERICKSON
Teacher of Piano
Ste 8, Acadia Apts. Victor St.
Telephone: 30 154
ARSÞING
Fjórða ársþing Hins sameinaða kvenfélags Hins ev. lút.
kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi, verður haldið í kirkju
Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg, 13. og 14. febrúar.
Fyrsti fundur—settur kl. 2.30 e. h. á miðvikudag, þann 13.
febr. — Hefst með bænagjörð.
Dagskrá—Tekið á móti erindsrekum hinna ýmsu félaga.
Tekið á móti skýrslu Framkvæmdarnefndar, og skýrslum fé-
laganna. Ný félög tekin inn. — Ýms mál rædd.
Annar fundur — Byrjar kl. 8 að kveldinu
Erindi flutt af Mrs. A. Bper: Kristilegt barnauppeldi.
Miss J. Joímson innleiðir umræður um sunnudagsskóla-
starfsemi.
Söngflokur: Miss G. Bildfell stjórnar.
Þriðji fundur — Settur kl. 2.30 e. h. 14. febr. /
Umræður um Bindindi, málshefjandi Miss Aðalb. Johnson.
Solo, sungin af Mrs. B. H. Olson/ •
Mrs. R. Marteinsson innleiðir umræður um Heimilið.
Fjórði fundur — Settur kl. 7.30 e. h.
Kosning Framkvæmdarnefndar.
Erindi flutt af Mrs. Thordur Thordarson, Fargo, N. D.
Solo sungin af Mrs. Lincoln Johnson.
Solo sungin af Mrs. S. K. Hall.
Þinglok — Veitingar.
Allar íslenzkar konur, yngi og eldri, eru velkomnar.
A Strong, Reliable
Business School
UPWARD OF 2000 ICELANDIC STUDENTS HAVE
ATTENDED THIS COLLEGE SINCE 1909.
•L
The Success College, of Winnipeg, is a strong,
reliable school—its superior service has resulted
in its annual enrollment greatly exceeding the
yearly attendance of all other Business Colleges
in the whole Province of Manitoba. Open all
the year. Enroll at any time. Write for free
prospectus.
BUSINESS COLLEGE, Limited
385^2 Portage Ave. — »Vinnipeg, Man.