Lögberg


Lögberg - 14.03.1929, Qupperneq 1

Lögberg - 14.03.1929, Qupperneq 1
42. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 14. MARZ 1929 NÚMER 11 f9QC=>OC=DOC=>OC=DO<-=>OCIDO<—-I>Q< ---»Qd3Q<--->Q<—>OC ~>o<----do< >n<--------->r> Helztu heims-fréttir ■s ru >n< >o t >Q< >Q<Z^D Q<ZZZX3<ZZDO< >Q< ?Q< —>0< >Q< >OCZZDO' 9 J Canada Frank S. Jacobs hefir verið skipaður í tollanefndina (The Tariff Advisory Board) í staðinn fyrir Hon. D. G. McKenzie, sem sagði því embætti af sér til að .gerast einn af ráðherrum stjórn- •arinnar í Manitoba. Mr. Jacobs er búfræðingur og hefir nú nokk- ur ár búið í grend við Dewinton, Alberta. Hann var um tíma kenn- ari við búnaðarskóla Manitoba- fylkis, en hefir annars lengst af fengist við blaðamensku og ritað fyrir bændablöð. * * * Archibald F. Jamieson, frá Ed- ínonton, Alberta, hefir verið veitt bókavarðar embættið í Winnipeg og tekur hann við því hinn 15. þ. m. Kemur hann í staðinn fyrir W. J. MeCarthy, sem sagði af sér bókavarðarstöðunni. * * * Konunglega rannsóknarnefnd- in lét kalla fyrir sig nokkur vitni S vikunni sem leið. Þeirra meðal Var F. G. Taylor, leiðtogi íhalds- manna, sá er kærur þær hafði borið á Bracken-stjórnina, sem nefndin er að rannsaka. Hafði hann heldur lítið fyrir sig að bera annað en það, að maður nokkur, ít. K. Elliott að nafni, hefði sagt borið ) á Bradkenjstjórnina, sem Hracken-stjórnin hefði fengið $50,000 hjá Winnipeg Electric fé- laginu. Kannaðist Mr. Taylor við, að Elliott þessi neitaði því nú þverlega, að hann hefði nokkurn tíma sagt sér þetta, eða hann hefði sagt það nokkrum öðnfm. Þá var F. Y. Newton, íhalds- þingmaður frá Roblin, kallaður sem vitni. Er eftir honum haft, að Bracken hafi fengið stóra summu af peníngum fyrir að veita Winnipeg Electrc félaginu leyfi til að virkja Sjö-systra-foss- ana. Var enn fremur eftir hon- um haft, að hann hefði átt að sjá einhverja bankaávísun, sem sann- aði að þetta hefði átt sér stað. , Ekki vildi Mr. Newton kann- ast við, að hann hefði borið þess- ar sakir á Mr. Bracken, eða stjórn- ina. Hitt kannaðist hann við, að hann hefði séð bankaávísun, sem hann hafði álitið eitthvað grun- samlega. En þessi bankaávísun var ekki upp á fimtíu þúsund, heldur hundrað og fimtíu eða tvö hundruð dali, eða eitthvað þar um bil. Heldur hefði hún ekki verið stíluð til neins manns í stjórninni, heldur til J. K. Downes, fyrverandi fylkisþingmanns og andstæðings stjórnarinnar, og þetta hefði verið 1925 eða 1926. Um þessar margumræddu fimtíu þúsundir vissi Mr. Newton ekk- ert. . Enn sem komið er, verður ekki sagt, að nokkuð það hafi í Ijós komið, er réttlæti ákærur þær, sem F. G. Taylor hefir borið á stjórnina. Bæði rannsóknarnefndin og lög- mennirnir fyrir alla málsaðila töldu það mjög þýðingarmikið, að fá vitnisburð Mr. MdLimonts, fyrverandi forseta Winnipeg El- ectric félagsins Hann er nú í California. Var reynt að fá hann til að koma til Winnipeg, en það kvaðst hann ekki geta gert, vegna heilsu bilunar. Rannsóknarnefnd- in öll og nokkrir lögmenn frá Winnipeg, lögðu því á stað á laugardaginn áleiðis til Californ- íu) til að yfirheyra Mr McLimont þar. Búast þessir menn við að verða að heiman einar tvær vik- ur að minsta kosti. Þegar þeir koma aftur, eiga þeir eftir að yf- irheyra nokkur vitni. Bandaríkin Fyrverandi forseti Coolidge og frú hans, hafa nú flutt til North- ampton, Mass., þar sem þau ætla eiga heima framvegis. * * * Uréttir frá London fullyrða, að hinar almennu þingkosningar á Bretlandi fari fram annað hvort 30. eða 31. maí. Allir stjórnmála- flokkarnir búa sig nú undir kosn- ingarnar af miklu kappi. * * * Prinsinn af Wales er að taka að sér sem mest af embættisverk- um konungsins, föður síns. Sagt er, að hann muni setja þingið, þegar það mætir eftir kosning- arnar og lesa hásætisræðuna. * * * Hoover forseti hefir myndað ráðunejrti sitt, og skipa það þeir, sem hér segir: Henry L. Stimson, New York, utanríkisráðherra. James W. Good, Iowa, hermála- ráðherra. William D. Mitchell, Minnesota, dómsmálaráðherra. Walter F. Brown, Ohio, póst- málaráðherra. Charles Francis Adams, Massa- chusetts, flotamálaráðherra. Ray Lyman Wilbur, California, innanríkisráðherra. Arthur M. Hyde, Missouuri, bún- aðarmálaráðherra. Robert P. Lamont, Illinois, við- skiftaráðherra. Andrew W. Mellon, fjármála- herra, og James D. Davis, verkamálaráð- herra. — Tveir hinir síðasttöldu voru í ráðuneyti Coolidge forseta og þjóna sömu embættum áfram. George A. Kerson, er skrifari forsetans. Hefir hann síðastlið- in þrjú ár verið aðstoðarmaður Mr. Hoovers. * * * Ellefu innflutninga uniboðs- menn í Detroit, Mich., hafa verið látnir segja af sér. Var þeim að öðrum kosti hótað, að þeir skyldu klagaðir fyrir eitthvert makk við þá, sem ólöglega vínsölu stunda og flytja áfengi til Bandaríkjanna frá Canada. * * * Charles A. Lindbergh hefir ver- ið skipaður ráðnuautur í viðskifta- máladeild stjórnarinnar. Flug- ferðir, sem nú eru svo mjög að fara í vöxt, er það sem hann á isérstaklega að hafa umsjón með. * * * Við almennu kosningarnar, sem fram fara á Bretlandi nú innan skamms, verða það konurnar, sem mestu ráða. Það eru aðeins 38 kjördæmi í öllu landinu, þar sem karlmenn eru í meiri hluta, og þó ekki nema lítið eitt. Er það að- allega í námahéruðum, þar sem kvenfólkið hefir orðið að fara burtu til að fá eitthvað að gera annars1 staðar Þar á móti er þannig ástatt í langflestum kjör- dæmunum, að kvenfólkið er miklu fleira og munar svo miklu sum- staðar, að þar eru nálega 250 kon- ur á móti hverjum 100 karlmðnn- um. Að jafnaði eru 140 konur á móti hverjum 100 karlmönnum, sem atkvæðisrétt hafa, svo á því er enginn efi, að það er aðallega kveitfólkið, sem mestu ræður um úrslit næstu þingkosninga á Bretlandi. Á kvenfólkinu brezka hvílir þvf nú mikiþ ábyrgð. Mr. og Mrs. Emile Walters Listmálarinn nafnkunni, hr. Emile Walters, og frú hans Thór- stína, komu til Reykjavíkur þann 27. febrúar síðastliðinn, eftir að hafa fengið ágæta ferð alla leið frá New York. Höfðu þau nokk- urra daga viðdvöl í Lundúnum, og sátu þar meðal annars veizlu hjá einum háttsettum embættismanni hins konunglega landfræðifélags. Að lokinni dvölinni í Lundún- um, tóku þau hjónin sér far með loftskipi til Parísarborgar, og höfðu þar nokkurra daga viðdvöl. Á málverkasafninu í Rúðuborg, er málverk eitt mikið og fagurt, eftir hr. Walters. Er það af am- erísku landslagi að vetrarlagi. Stofnaði yfirmaður málverka- safnsins til veglegs samsætis, í heiðursskyni við þau, Mr. og Mrs. Walters. Var þar margt stórmenna saman komið, svo sem borgarstjóri Rúðuborgar og frú hans. X ÚTLAGI Jeg er útlagi’ á erlendri strönd, livort sem auðgar mig gleði’ eða sorg; jeg er faðmvíðra fjallanna bam, ætíð framandi’ í þrönghýstri borg. Jeg er fjarða og sævarins son; hvorki silfur nje gull fá mjer bætt S skort á útsýn um ögrandi haf; ^ jeg er útlagi; hvað hef jeg grætt? | ^ Richard Beck. I I I I I Fyrsti marz á Betel 1929 Fyrsti marz er ávalt hátíðis- dagur á Betel, er sá dagur af- mælisdagur stofnunarinnar. Nú langar mig til að gefa yfirlit yf- ir hvernig sá dagur leið á heim- ilinu í þetta sinn. Prestur heimilisins messaði þar að morgni kl. hálf-tíu. Á hverj- um degi er lesinn húslestur á þeim tíma, en ætíð er það sér- staklega kærkomin breyting, þeg- ar presturinn messar. í kring um kl. 2 eftir hádegið, fór gesti að bera að garði. 1 nokkur undanfarin ár hefir kven- félag lút. safnaðarins á Gimli haldið upp á afmæli Betel; hafa félagskonur þá fjölment þangað, og boðið vinum með sér. Með- ferðis hafa þær góðgerðir fyrir heimilisfólk og gesti. Klukkan hálf-fjögur safnast fólkið svo í hina rúmgóðu setu- stofu heimilisins. Allir vistmenn, sem gátu farið úr herbergjum sínum fyrir lasleika, voru þar I viðstaddir. Gleðiblær var yfir I öllum, allir voru nýstaðnir upp frá kaffiborðinu, og hlökkuðu til skemtunar, sem í vændum var. Samkvæmt ósk kvenfélagsins tók séra Sigurður ólafsson við stjórn. Eftir að sálmur hafði ver- ið sunginn, flutti hann bæn; var svo. byrjað á skemtiskrá, sem var að nokkru frábrugðin þvi, sem áður hefir verið, að því leyti, að einn maður talaði þar á ensku til heimafólksins. Var það Judge Cory, sem þar var staddur. Líka tók heimafólk meiri þátt í skemti- skránni, heldur en vanalega. Mrs. Hinriksson talaði nokkur orð, mintist mjög fagurlega liðinna ára á Betel og þakkaði gestum fyrir komuna. Þrír vistmenn skemtu: Jón skáld Runólfsson las tvö gullfalleg kvæði eftir sjálfan sig; les hann kvæði sín svo sér- lega vel, að hin mesta unun er á að hlústa. Halldór Daníelsson talaði mjög vel að vanda; þakkaði kærleika til heimilisins fyr og síðar. Jakob Briem flutti tvö kvæði, las eftir minni “Gamli stál” og “Sveinn dúfa”; mun hann kunna mestu ógrynni af ís- lenzkum! Ijóðum, þó hann láti lít- ið á því bera. Aðal-atriði skemtiskrárinnar var all-langt erindi, flutt af séra Sig- urði Ólafssyni. Mintist hann starfs Betel á mjög fagran hátt. Talaði um hin fjórtán ár, sem lið- in væru síðan heimilið hefði ver- ið stofnað. Sérstaklega mintist hann á, hve aðdáanlega að stjórnendur heimilisins hefðu staðið í stöðu sinni. Forstöðu- konurnar báðar, Mrs. Hinriksson og Miss Júlíus, hafa verið á heim- ilinu síðan það var stofnað. Ráðsmaður heimilisins, Mr. Oli Olafsson, byrjaði sitt starf litlu síðar. Taldi séra Sigurður, að vinsældir heimilisins væru að mestu leyti þessu fólki að þakka, og kvaðst hann álíta, að heimilis- fólkið, kirkjufélagið, og ' Islend- ingar vestan hafs stæðu í stórri þakklætisskuld við þau. Sömu- leiðis mintist hann heimilsfólks- ins, og hve margar dýrmætar end- urminningar hann mundi ávalt geyma frá þeim átta árum, sem hann hefði verið prestur heimil- isins. Margir íslenzkir söngvar voru sungnir. Lauk ekki skemtun fyr en kl. hálf-sex; fóru gestir þá að búast til heimferðar. I hugum þeirra allra mun hafa verið ein- læg bæn til drottins um að blessa elliheimilið Betel, blessa stjórn- endur, starfsfólk og hið aldraða langferðafólk, sem komið er þang- að til að hvíla sig um hríð. Viðstaddur. Stutt svar Halldór Kiljan Laxness þyrlar upp óskapa moldviðri í Löghergi 28. febr. s.l. Augsýnilega viti fjær af reiði, reynir hann að koma þ“í inn hjá íslenzkum lesendum, að ummæli min honum viðkomandi, hafi verið árás á Upton Sinclair. Ragmenni fortíðarinnar skutust að baki annara, þegar hættu bar að höndum, og svipar H. K. L. mjög til þeirra. En nú kemur það örþrifaráð honum að haldi, því flestir munu hafa lesið grein mína með dágóðu athygli. Eg var alls ekki að andmæla Sinclair, enda væri það til lítils í íslenzku blaði. Fyrir Upton Sinclair ber eg sæmilega virðingu, sem rithöf- undi og einlægum umbótamanni, þó ekki eigum við skoðanalega samleið í öllum (jr’álum. Saman- borinn við H. K. L. og aðra and- lega “farandmenn”, er Upton Sin- clair stórmenni. Hann dvelur í eigin landi og er ótrauður að segja eigin þjóð til syndanna. Það er bjargföst sannræring mín, að H. K. L. hefði hæglega getað skrifað um Upton Sinclair á fimtugsára afmæli hans, án þess um leið að gera tilraun til að brennimerkja Bandaríkjamenn (og Bandaríkja-íslendinga) sem “fífl” og “bjálfa”. Borinn og barnfæddur hér í landi, af ís- lenzkum uppruna og mörgum af íslenzkum þegnum þessa lands nákunnugur, leyfi eg mér að full- yrða það, að all-flestir séu þeir vakandi fyrir öllum þeim málum, er miða til þjóðþrifa — málum, er H. K. L. hnoðar í eitt stórt orð: “þjóðfélagsmál”. Mér fanst lýs- ing H. K. L. á Bandaríkjamönnum svo ófögur, að eg afréð strax að hefja andmæli gegn slíku fargani. Og ekki var það tiltæki mitt til einskis, því n ú segist H. K. L. ekki óttast Bandaríkja-íslendinga, ‘jafnskynsamir og þeir flestir eru”! Bandaríkja bjálfarnir eru alt í einu orðnir of skynsamir, til að taka mark á orðum þess manns, sem tók málstað þeirra, þegar á þá var ráðist! Hvaða “manneskja” O. T. J. er, kemur málefni því, er fyrir liggur, ekki nokkurn hlut við. Hvort hans er að nokkru getið í bókmentum Canada og Bandaríkj- anna, er umræddu máli algerlega óviðkomandi. Eða hvað myndi H. K. L. halda um það, ef O. T. J. tæki að spyrja: Hver er Halldór Kiljan Laxness? Hvaða menta- stofnanir veraldar hafa sæmt hann heiðri fyrir framúrskarandi námshæfileika og lærdóm? Var ferill hans við Mentaskólann í Reykjavík (svo við nefnum ekki háskólann) rósum stráður? Myndi H. K L ekki telja þær spurningar út i hött — og hefði hann þar ekki rétt fyrir sér? Vissulega hefir maður þessi lítið kynst blaðamensku Bandaríkjanna, því annars væri hann tekinn að átta sig á því, að persónulegar skamm- ir auðga ekki málstað hans. Gæti hann í þeim efnum mikið lært af Upton Sinclair. H. K. L. þykist ekki skilja orð- ið “sjálfmerkur”. Væri leitt, að láta hann vaða lengi í þoku í þeim Hon. W. D. Euler Skattamála ráðgjafi sambands- stjórnarinnar. sökum. Orðið sjálfmerkur á við þann mann, sem sífeldlega reynir að upphefja sjálfan sig og trana sér fram, þar sem umgetningar eða frægðar er von, jafnvel þó hver sú tilraun mishepnist. Vilji H. K. L. að eg útskýri fyrir hon- um orðið “sjálfmentaður”, þá er guðvelkomið að eg segi honum kafla úr æfisögm minni. Langmáll er H. K. L. um vin- sældir Upton Sinclairs í Evrópu. Grunur minn er, að margur Bandaríkja-íslendingur brosi dátt í kamp að þeim “vísdómi.” En ekki mega menn kippa sér upp við það, að H. K. L. ristir ekki dýpra en þetta. Ef til vill er hann ekki bráðþroska, og hlýtur að dvelja lengur hérlendis, áður en hann botnar nokkuð í því, að þær svo- nefidu “vinsældir” séu nátengdar óhug og ö f u n d Evrópu í garð Bandaríkjanna. Hið unga land í vestri, er nú skotspónn ment- aðra((?) uppskafninga í allflest- af löndum Evrópu. Við Banda- ríkja menn óttumst ekki að bíða og sjá hvað setur. Eg hefi lesið mikið af skrifum H. K. L. og dáist lítið að. Undan- skilja vil eg þó eina ritgerð eftir hann í íslenzkum blöðum. Og þó ótrúlegt sé, hefi eg grúskað tölu- vert í bókmentir (og félagsmál) Canada og Bandaríkjanna. Verka- félags meðlimur þeirrar stéttar, er eg tilheyri, hefi eg að líkindum verið í eins mörg ár og H. K L. hefir á skóla gengið. Af eigin reynslu staðfesti eg því, að verkamannastéttir þessa lands líti tortrygnisaugum á þá “sjálf- kjörnu” leiðtoga, sem tilheyra engum félagskap og eru eins og talandi úti- á þekju í öllum henn- ar málum. Við, alþýðumenn Bandaríkjanna, berum sáralítið traust til “gangandi kjaftavéla” — manna, er stefna í átt til einka- auðs og frama í bókum og blöðum. Fúslega viðurkenni eg van- kunnáttu í “frumatriðum” ís- lenzks talsháttar! Við, Vestur- íslendingar, hlójtum að baglast við þá íslenzku, sem við kunnum og höfum viðhaldið gegn um þykt og þunt — af rækt til feðra og mæðra og ættlandsins góða. Það má vel vera, að H. K. L sé há- lærður málfræðingur, sem kapp- kostar að vera “eftirspurðastur” allra rithöfunda; gerir mun á ó- hreinum bjálfum og “hreinum” og er maður, sem “biðst undan gaspri”! Eg áskil mér rétt til þess, á meðan sérkennilegur rit- háttur (style) er ekki úr gildi numinn, að hanga við það, sem eg hefi tamið mér — alveg eins og H. K. L. hangir á afar sér- vizkulegri réttritun. En alt þetta er óviðkomandi deilumálinu, og hefði mér ekki dottið í hug að fara út í þessa sálma, ef H. K. L. hefði ekki haf- ið þann leik að fyrrabragði. O. T. Johnson. Hinn 4. þ. m. andaðist að heim- ili sínu við Brú í Argyle-bygð, Albert Oliver, nálega 67 ára gam- all. Var hann einn af hinum eldri bændum bygðarinnar. Vin- sæll maður og vel kyntur og ;drengur góður. Vænt^nlega verð- ] ur hans síðar minst frekar. s> VIKIVA Eftir Guðmund Kamban. Að ofan helkaldar stjörnur stara með strendu sjáaldri úr ís á funakoss milli kaldra vara, svo kaldri að andi manns frýs. Og máninn skín á oss skyldurækinn, vill skilja milt okkur við. Við stöndum tvö hér við Tunglskinslækinn, og teljum áranna bið. En ég er feimin, með jörpum lokkum, og ég er saklaus og fróm, í brúnum upphlut, á bleikum sokkum, og blásteinslituðum skóm . . . Hvað tjáir mildi þín, tunglið ríka, hvað tjáir skjöldur og sigð? Hann vildi fá mig og fékk mig líkai— hann fór með dygð mína og hrygð. Daginn eftir til allrar furðu ég ennið frjálslega bar. Og allar stöllur þver aðra spurðu, en engin stalla fékk svar. Þær áfram töldu til átta og níu, það alt var mánaðatal — en þegar þær höfðu talið tíu, þá týndist alt þeirra hjal. Svo kom stundin, með sól á bárum, er Sörli fór út í lönd. Eg sat eftir sem álft í sárum þau ár, sem nú fóru‘ í hönd . . . En heyri ég síðan í iSörla nartað, þá sé ég tungl skína í sigð, og ljósblátt auga, sem lykst um hjartað og lofar eilífri trygð. Vappar ósyndur ungi á bakka með augun blikandi af þrá: en sumir þora ei til þess að hlakka, sem þeim er annast að fá. Gegn svo mörgu, sem guð þeim sendir, menn gera kvíðann að hlíf, og kvíða oft því, sem aldrei hendir, og enda í kvíða sitt líf. Sörla beið ég, og síglöð undi við síðustu orð hans og heit, og bjó mig undir að fagna hans fundi í fjarlægri, íslenzkri sveit. Brenni jörð undir berum fótum, * og blikni sól í þeim eim: aldrei skifti eg við annan hótum, því eitt sinn kemur hann heim. Þót heyri ég sögur af honum, frúnni, með húsum, görðum og trjám, ég leik mér áfram og lifi í trúnni, unz lýgin gengst upp að hnjám. Ef Sörli hefir á svikum lumað, þá sýnið mér þennan streng: þá fyrst skal é g hætta að geta gumað af góðum íslenzkum dreng. Margur leitar þess alla æfi, sem átt gat hann hverja stund. Margur heldur, sá markið hæfi sem mat sér annara pund. Margur beið þess, að Guð sér gæfi það gull, sem lá í hans mund: Sá er fátækur alla æfi, sem ekki á barnglaða lund. Rík var gjöf sú. er gaf mér drottinn: að gleðjast vorlangan dað við litla týsfjólu, túnin sprottin, og tístað sólskríkjulag, og vetrarmorgun við marr á grundum sem magnar sérhverja taug, með hélu á rúðum, og svell á sundum og sól í steingeitarbaug. Hvað er ártalið, eitthvað lætur í eyrum mér, færist nær . . . ? Hjartað syngur og hjartað grætur, og hjartað tryllist og slær. Hófatök berast heim að bænum, þau hóftök ein þekki ég — ég fer mér stilt eftir grundum grænum, og gesti mínum í veg: Vantraust Guðrúnar, vonsvik Kjartans eð vopnum enda sinn fund. En þetta er vísan um vissu hjartans, og vonglaða íslenzka lund . . . Stína rakar, og Bjössi bindur, og bóndinn hirðir sinn arð. Nú er sólskin og sunnanvindur, og Sörli ríður í garð. — Lesb. Mgbl. misiiiniiniiiiiii;K!nsiniiiji!;iiiiiiiiBi!naniiii!iiii!utiiiai&iiiiiiniHiiii;ii!a'S!iiiiiiiiii

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.