Lögberg - 09.05.1929, Page 1

Lögberg - 09.05.1929, Page 1
PHONE: 86 311 Seven Lines uélc' d d *rgg* For Service and Satisfaction PHONE: 86 311 Seven Lines __ Better w0>' ‘ Dry Cleaning and Laundry 42 ARGANGUR I WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 9. MAÍ 1929 NÚMER 19 r? oc u Helztu heims-fréttir o<=\) ~>rw-->n<--->nrm>O<rZZDQCZIZ>0<--->OC o J Bandaríkin Hoover forseti hélt fyrir skömmu ræðu í New York, sem vakið hefir mikla eftirtekt alls- staðar í Bandaríkjunum og víðar. Var aðal efni ræðunnar, eða “pré- dikunarinnar”, eins og sum blöðin kalla ræðuna, það að forsetinn var að brýna fyrir þjóð sinni, að henni bæri nauðsyn til að virða lögin meira en hún gerði nú og hallda þau betur. Þau miklu laga- hrot, sem þar eiga sér stað, taldi forsetinn aðallega stafa af því, að réttarmeðvitund þjóðarinnar væri ekki nógu vel vakandi. Al- menningur virtist finna lítið til þess, þó lögin væru brotin, og það á herfilegan hátt, eins og t. d. með morðum og ránum. Forsetinn tók svo sterklega til orða, að þjóð- inni riði á þvf öllu öðru fremur, að læra betur að virða lögin og hlýða, og ætti það bæði við alrik- islögin og lög einstakra ríkja. Sagði hann, að nú væri þjóðin að gjalda þess, hve afskiftalaus og áhugalaus hún hefði verið í þess- um efnum. Því til sönnunar sagði hann meðal annars, að árlega væru yfir níu þúsundir manna drepnir í Banadríkjunum á ólöglegan hátt. Þeir, sem tekn- ir væru fastir út af þessu, væru nálega helmingi færri heldur en morðin. Þeir, sem sekir væru fundnir, væru ekki fullkomlega ■einn isjötti hluti af þeim, sem í raun og veru væru sekir, og þeir, sem teknir væru af lífi, eins og lögin ákvæðu, væru tiltölulega mjög fáir. Að tiltölu við fólks- fjölda, sagði forsetinn, að morð væru tuttugu sinnum tíðari í Bandai-íkjunum, heldur en á Bret- landi, og rán að minsta kosti fimtíu sinnum tíðari. “Enginn hluti landsins, borgir eða sveitir, er undanþeginn, eða óhultur. Lífi og eignum manna er hér meiri hætta búin, heldur en í nokkru öðru siðuðu landi í heiminum,” sagði forsetinn. Mr. Hover mintist á vínbanns- lögin og lét þá skoðun sína í ljós, áð orsökin til þess hve þau séu tfðbrotin, sé aðallega sú, hve litla virðingu þjóðin yfirleitt beri fyrir landslögunum. 270 að minata kosti særst tölu- verið teknir fastir, og er gert ráð vert. Mörg hundruð manna hafa fyrir, að margir þeirra verði að sæta einhverjum refsingum. Blöð- in í Berlín kenna þessar óeirðir rússneskum áhrifum og segja, að leiðtogarnir séu fná Rússlandi. * * * Þjóðverzkur maður, Paul Mull- er að nafni, hefir siglt á 22 feta löngum iseglbát yfir Atlantshafið. Lagði hann til hafs frá Canaray eyjunum og lenti í Cuba. Hann km þangað á sunnudaginn var, en þess er ekki getið, hvenær hann lagði út á hafið, en frá Hamborg fór hann 6. júlí 1928 og hefir víst verið að miklu lejdi í hátnum íðan. Hann fór fyrst ihægt og bítandi suður með Evrópu og Afr- íkuströndum, en lagði út á At- latnshafið, frá Canary eyjum, eins og fyr segir. Báturinn heitir “The Aga” og notaði þessi sjógarpur bæði segl og árar. Sannleikanum verður hver sárreiðastur Hvaðanæfa Vikum saman hefir nefnd manna, fulltrúar Þjóðverja og fulltrúar frá sambandsþjóðunum, sem þátt tóku í stríðinu við Þjóðverja, set- ið á rökstólum í París og verið að reyna að komast að einhverri niðurstöðu um það, hvað miklar skaðabætur Þjóðverjar skyldu borga sambandsþjóðunum ^og hvernig og hvenær. Er það marg- brotið mál og afar-flókið„ og verð- ur með engu móti skýrt, nema í löngu máli, en í stuttu máli má geta þess, að sambandsþjóðirnar krefjast $3,094,000,000 meiri pen- inga, heldur en Þjóðverjar vilja borga eða þykjast geta borgað. Það er hvorttveggja, að hér er breitt bil á milli, enda hefir þeim mönnum, sem hér að vinna, ekki hepnast að brúa það enn sem kom- ið er. Hefir hvað eftir annað heyrst, að allar samningatilraun- jr væru að hætta, því alt sam- komulag sýndist ómögulegt. Þetta hefir þó eíkki orðið enn, og nú síð- ustu dagana isýnist ekki alveg vonlaust um, að til samkomulags kunni að draga. * * * Það er orðið svo að segja al- gengt, að óeirðir eigi sér stað í ýmsum borgum 1. maí á hverju ári, sérstaklega á meginlandi Norðurálfunnar. Svo varð líka 1 þetta sinn, en ekki hefir þó oft meira að þeim, kveðið í Berlín á Þýzkalandi. Þar var bariist á strætum borgarinnar dag eftir dag og voru kommúnista flokkar annars vegar, en lögregluliðið hins vegar. Um helgina sögðu fréttirnar, að 23 menn hefðu þá mist lífið í þessari viðureign, en Afmælishátíð 1889 r- 1929. í tilefni af því, að kirkja Frels- issafnaðar í Argyle-bygð er 40 ára gömul á þessu ári, hafa allir söfnuðirnir í prestakallinu, sem lengi áttu allir sókn að þessari kirkju, afráðið að halda hátíð, sunnudaginn 2. júní n. k., til að minnast þess. Um eitt skeið var þetta fjöl- mennasta sveitakirkja í Manitoba og miðstöð íslenzku bygðarinnar á þessum slóðum. Væri söfnuð- inum því sönn ánægja að því, að sem flestir gætu tekið þátt í þess- ari athöfn, sem minnist þess þátt- ar í kristnihaldi Vestur-íslend- inga, sem svo mörg hjörtu eru knýtt við. Athöfnin byrjar með hátíða- guðsþjónustu í kirkjunni, kl. 12 á hádegi. Á eftir guðsþjónustunni verður hátíðarskemtiskrá, einnig í kirkjunni, sem vandað verður til eftir föngum. íslendingar, hvar sem eru, eru boðnir og velkomnir, en nefndin býður sérstaklega öllu gömlu bygðarfólki til hátíðarinnar, og óskar, að sem flestir geti hagnýtt sér það tækifæri, að sameinast gömlum vinum á fornum stöðv- um á þessari hátíðlegu stund. Fyrir hönd Frelsis, Fríkirkju- Immanúels og Glenboro safnaða. B. S. Johnson. Stefán Sigmar. G. J. Oleson. LANGFERÐ A HJÓLI. Ungur stúdent, Einar Wilhelm- sen, frá Hortens, hefir sennilega sett met í langferð á hjóli. Hann lagði á stað frá Moss í Noregi hinn 3. júní og fór gegn um Tiste- dalinn inn í Svíþjóð og til Stokk- hólms. Þaðan lagði hann á stað með 30 aura í vasanum og hjól- aði norður alla Svíþjóð, ýfir til Finnlands og komst til Helsing- fors. Vann hann sér fyrir fæði á leiðinni. Frá Helsingfors fór hann með skipi til Danmerkur, hjólaði yfir eyjarnar og Jótland og inn í Þýzkaland. Lagði leið sína um Flensborg, Lubeck, Ber- lín, (Wittenberg, Leipzig, Frank- furt, Köln. Þaðan meðfram Rín til Hollands, yfir Holland og Belgíu. Þar réðist hann á skip, sem fór til Newcastle on Tyne, og hjólaði svo þaðan norður um alt Skot- land og til baka aftur, suður með vesturströnd Englands, um Liver- pool og tBirmingham og þaðan til Lundúna og Dover. Þaðan komst hann með' skipi til Antwerpen og steig nú enn á hjólið og fór suður til Frakklands, yfir vigstöðvam- ar og til Parísar. Enn ætlaði hann að halda lengra áfram, en þá varð hann fyrir því óhappi að rekast á annan hjólreiðamann. Hjól hans brotnaði og hann meiddist á handlegg. Fór hann þá til Rouen og ikomst þar í skip, sem fór til ósló, og var kominn heim fyrir jól. — Lesb. Mgbl. Ef nokkur hefði efast um sann- leiksgildi þessa spakmælis, þá hefði hann sannfærst til fulls við að lesa seinasta tölublað Hedmkringlu og séð allan þann ofsa, sem í heim- ferðarnefnd Þjóðræknisfélagins fór við það að sjá sínar eigin gjörðir lagðar fram fyrir almenning til yfirvegunar. Þar sem greinar þær, sem þar birtast, eru að mestu leyti persónuleg árás á mig, sem eiginlega koma málinu ekkert við, þá hefði ef til vill verið rétt af mér að svara þeim engu, því í sjálfu sér eru slíkar árásir ekki svaraverðar. En vegna ærumeiðandi staðhæfinga, sem þar eru settar fram, er eg knúð- ur til þess að taka fáein atriði þess- ara greina til stuttrar yfirvegunar. Það sem mest áherzlan er lögð á, er að eg hafi náð hinum umtöluðu bréfum í mínar hendur á óheiðar- legan hátt, að eg hafi notað undir- ferli og slægð til þess að ná þeim til birtingar. Sem svar upp á þessi ósannindi vil eg benda til bréfs þess frá Dr. McKay, sem birt er hér í blaðinu. Það segir svo skýrt í fá- um orSum sögu þess máls, að óþarfi er að fjölyrða um þaS. Ef mér hefði dottið það í hjartans hug að heimfararnefndin kysi það heldur að þetta mál yrði gjört að þíngmáli, þar sem mönnum gæfist tækifæri til þess, að gjöra gys að íslendingum fyrir það aS sækja um stjórnarstyrk til þess að fara skemtiferð til ætt- jarðan sinnar, þá hefði eg eflaust orðið við ósk þeirra þótt eg sæi nú eiginlega engan gróða í þvi fyrir neinn, sízt þann, sem íslendingum er vinveittur. En þegar menn grípa til slíkra úrræða eins og nefndin hefir hér gjört, þá er það sannar- lega að grípa í hálmstráið, sem þeir ásaka mig um aS gjöra með því að birta hin áminstu bréf. Hér, sem oftar er talsmönnum heimfarar- nefndarinnar ómögulegt að stinga niður jjenna án þess að úr honum renni ósannindin og rangfærslurnar; að halda sig við efnið, sem um er verið að deila, sýnist þeim vera alls- endis ofvaxið. Aðal áherzlan er lögS á að gjöra mönnum sjónhverf- i'ngar þar til þeir missi sjónar á aðalatriðinu. Setjum nú svo að eg væri eins ómerkilegur maður eins og þeir vilja telja mönnum trú um, voru þeir nokkuð meiri menn fyrir það? Að mála mótstöðumann sinn svartan, gjörir engan mann hvítan. Eg sýndi hreinskilni mína i þessu máli, meðal annars með því, að birta eina bréfið, sem eg skrifaSi Mani- toba stjórn um þetta mál. Auð- vitað reynir nefndin að tortryggja staðhæfingar mínar og sýna að eg fari ekki meS rétt mál i frásögu minni. Sérstakléga er véfengd sögusögn mín af fundinum í St. Stephens kirkjunni, og svo það að þessi styrkumsókn kunni að vekja “óhug” á íslandi. Eg er alls ó- hræddur hvað fyrra atriðiS snertir að leggja það fyrir dóm þeirra, sem á fundinum i St. Stephens kirkj- unni voru, hvort eg halla þar réttu máli. Til frekari sönnunar mínu máli vil eg leyfa mér að leggja fram það, sem ritstjóri Héimskringlu segir um þetta atriði i blaði sínu 20. febr. síðastl.. Honum farast þannig orð: “Hefði tillagan er borin var fyrst fram af sjálfboðum á “stóra fundinum” í Stephens kirkjunni einungis farið fram á þaS að fundurinn lýsti því yfir, að hann væri mótfallinn féþágunni, þá játa jafnvel heimfararnefndarmenn að su tillaga myndi hafa náð sam- þykki 75—go af hundraði hverju fundarmanna.” Ef eg fer með ó- sannindi í þessu atriði, þá er aðal- talsmaður heimfararnefndarinnar mér samsekur og á skilið hirtingu engu síður en eg. Eg er ennþá sannfærður um, að hætt sé við að stjórnarstyrks leitun nefndarinnar, mæti ekki vinsældum á íslandi. Ef við settum okkur í spor hinnar íslenzku þjóðar, hvern- ig myndurn við líta á málið ? Ef til vill geta þar verið tviskiftar skoð- anir engu síður en hér, en mér finst að Vestur-íslendingar ættu ekki að gjöra sig seka í neinu, sem óánægju eða misskilningi getur valdið. Vestur-lslendingar eru ekki að halda þessa hátíð, heldur taka þeir þátt í henni sem gestir íslands. Gest ert þurfi að fyrirgefa eða afþakka i nafni gestrisninnar ? Hér vil eg benda á orð Sveinbjöms Johnson’s fyrverandi hæstaréttardómara i Norður Dakota sem stóðu í Lög- ibergi 12. júlí siðastl. “Eg get ekki hugsað mér stór- kostlegri móðgun af hálfu gesta gagnvart þeim, sem býður þeim, heim, en þá, sem í þvi væri fólgin, að hópur Vestur-íslendinga stjórn- aðist að einhverju leyti af áhrifum peninga, sem ekki væri löglega hægt að eyða til neins annars en þess, að eggja heimafólkið á að fara burtu; og gera þetta á sama tíma sem landið er heimsótt í heiðursskyni.” Og nú einmitt þegar menn hafa fengið að vita hvers konar skilyrði það voru, sem heimfararnefndin undirgekst þegar um peninga frá Manitoba-stjóm var að ræða, sjá menn betur en nokkru sinni fyr sannleikann, sem er innifalinn í þessum orðum sama manns. “Aðal alvöruefnið er það, að opinbert fé, sem stjórnin gaf og gat ekki gefið í nokkra öðra skyni en því, að auka innflutninga er notað af oss til að efla áhuga fyrir Islandi og hátið inni 1930. Ef vér notum það 1 þeim tilgangi, iþá fáum vér það og höldum þvi undir fölsku yfirskyni, sem eg skil ekki betur en að jafn- gildi svikum; en ef vér notum féð samkvæmt þeim skilningi, sem það er veitt af stjórninni, þá móðgum vér þjóðina og stjórnina á Islandi, sem vér sitjum heimboðið hjá.” Eitt af því, sem mér er fundið til foráttu, er að eg sem einn af eigendum Lögbergs, selji auglýs- ingar, sem miði að því að fegra Canada og auglýsa þetta land á ís- landi. Þeir, sem mest af þessu láta til sín heyra, höfðu ekkert út á það að setja þegar Heimskringla hafði tækifæri til hins sama og notaði það. Að flytja innflutninga aug- lýsingar er í sjálfu sér ekki lastvert og meira að segja að vera innflutn- ings agent, er ekki heldur lastvert, ef rétt er nv'.ð farið. Um þetta ætti heimfaramefndin að gtta dæmt þar sem tveir af þeim, sem hana skipa eru gamlir vesturfara agentar Auglýsingadálkar eins dagblaðs er markaðsvara og ekkert blaö nú á dögum getur haldið áfram að koma út, ef ekki er hægt að selja þá vöru. En nú taka talsmenn heimfarar- nefndarinnar þetta sem hliðstætt dæmi og vilja sanna, að af því eg er meðeigandi í blaði, sem selur aug- lýsingar, þá ætti eg ekki að setja út á gjörðir nefndarinnar. Með þessu kveður nefndin upp þann dóm að stórhátíð íslands sé ekki neitt dýrmætari í augum hennar en auglýsingar dálkar í einu dagblaði. Þeir álíta það forsvaranlegf, að selja hátið íslands sem þeim er boðið til sem gestum, eins og menn selja auglýsingu í dagblaði. Þeir eiga ekkert i hátíðinni, en eru samt eg veit til, fyrir neinum persónu- legum árásum í Lögbergi að fyrra bragði, en “svo má deigt jám brýha að bíti,” og eftir að búið er að skamma menn mánuðum saman, þá er ekki nema von að menn leyt- ist við að bera hönd fyrir höfuð sér. Eða hefir heimfararnefndin sér- stakt leyfi til þess að svívirða þá, sem henni eru ósamdóma, en þeir, sem hún ræðst á eigi að taka því öllu með þolinmæði? Líka vil eg minna hann á, að það var hann, sem dróg Ingólfsmálið inn i þessa deilu þar sem það átti aldrei neitt erindi og kom deiluefninu alls ekkert við. Hér eins og viöar var verið að dreifa hugum manna og leitast við að leiða þá frá aðalefninu. Það sem Sigfús Ilalldórs beinir sérstaklega að mér og lýsir mig þann óþokka, sem sé “nú öldungis óalandi og óferjandi” byggir hann aðallega á því, sem honum finst ó- hæfileg aðferð við að fá bréfin í mínar hendur. Er hann nú virki- lega svo heimskur, að halda að eg færi að nota nókkur óheiðarleg meðöl til þess að ná bréfunum, einkanlega þar sem þess gjörðist nú engin þörf? Mér hefir oft þótt gaman að fljótfærni hans og gleið- gosaskap en ódreng hefir mér aldrei fyr fundist ástæða til þess að halda hann vera. Þegar hann nú sér hvaða gönuskeið hann hefir hlaupið í tilraun srnni að svívirða mig að ástæðulausu, þá sæmdi það honum bezt að játa yfirsjón sína og biðja opinberlega afsökunar á gjörræði sínu. Ef hann ekki gjörir það, þá hefir hann meiri ódreng- skap að geyma en eg hefi hingað til hugsað mér að hann ætti. Að endingu vil eg endurtaka það sem eg sagði fyr, að eg vil að al- menningur dæmi heimfararnefndina samkvæmt hennar eigin orðum og gjörðum. Eg vil samt minna menn á að lesa vandlega þetta seinasta innlegg nefndarinnar til þessa máls, því þar er sú mesta vandræða yfir- lýsing, sem eg hefi nokkru sinni séð frá nokkrum mönnum i nokkru al- mennu máli. B. J. Brandson. nefndar íslenzka Þjóðræknisfélags- ins. Eftir því, sem mér virðist i sambandi við þær upplýsingar, er eg hefi fengið, er um herfilegt rang- hermi að ræða i þessum greinum, að því er málsgögnin snertir. Eg leyfi mér þvi að gera yfirlýsingu um þá þátttöku, er eg átti í mál- inu. Fyrst og fremst mætti eg benda yður á, að bréfaviðskifti .milli hvaða einstaklings, eða einstakl- inga, sem er, og stjórnarinnar, era almenningsmál. Dr. Brand- son bað mig að útvega áður- nefnd bréf, og eg hafði þegar skrif- að beiðni um það, að fá þau lögð fram í þinginu. Áður en til þess kænii að þessi beiðni birtist á dag- skránni, gerði eg Bracken forsætis- ráðgjafa aðvart um fyrirætlun mína. Hann gat þess, að með því að þetta mál snerti aðallega Islend- inga, þá teldi hann það óhyggilegt, að bera það fram á þingi, þar sem út af því kynnu að spinnast deilur, og kvúð hann Dr. Brandson geta fengið afrit af bréfunum á skrif- stofu sinni. Eg átti tal við Dr Brandson, og kvaðst hann, fyrir sitt leyti, vera ánægður með þetta. Samkvæmt þessum ráðstöfunum, voru bréfin fengin, og afrit tekið af þeifn af vélritara, sem Dr. Brandson sendi í því skyni. Ef að bréfin hefðu ekki verið fengin á þennan liátt, þá hefði þeirra verið krafist, og þau lögð fram í þinginu, og þar hefðu þau getað valdið bitram deilum. Það hryggir mig, að þetta mál- efni skyldi valda svona miklu upp- þoti, því eg er viss um, að allir, sem hlut áttu að máli, unnu að því í fúllri einlægni. Yðar einlægur, M. McKay, M.L.A. “Oft er flagð uadir fögru skinni, og dygð undir dökkum hárum til með að kasta eign sinni á hana til þess að selja auglýsingagildi hennar öðru landi til væntanlegs á- göða. Sjálfsagt þykjast þeir allir miklu meiri þjóðræknismenn en eg, en samt, þótt eg sé til með að selja auglýsingar í dagblaði, vildi eg ekki selja þjóðhátíð íslands eins og aug- lýsingadálk. Ekki heldur vil eg sjá Vestur-íslendinga senda á þá hátíð með tilstyrk stjórnarfjár eins og aðra sýningargripi. Enn eitt er eftirtektarvert hjá þessum stórmennum, þeir segja að það sem hin umtöluðu ’ bréf hafi að sýna, sé ekkert nýtt, því menn hafi vitað þetta alt áður. En ein- mitt í sömu vikunni og bréfin voru birt, er grein skrifuð af talsmanni nefndarinnar og einum meðlimi hennar, þar sem verið er að hftðast að því að Lögberg skuli halda því fram að um nokkurt auglýsingafé væri að ræða, þar sem rneðal ann- ars forsætisráðherrann í Manitoba hefði lýst því yfir að slíkt ætti sér ekki stað. Svo koma bréfin og sýna það gagnstæða. Hafa nokkr- ir menn í sögu Vestur-íslendinga staðið frammi fyrir öllum lýð í annari eins andlegri eymd og vol- æði, eins og heimfararnefndin nú stendur ? Að elta nefndina á hringrás henn- ar í kringum málefnið, sem eg byrj- aði að ræða er mér ofvaxið, og í sjálfu sér þýðingarlaust. En áður en eg lýk máli mínu verð eg að minnast ritstjóra Heimskr., herra Sigfúsar Halldórs með örfáurn orðurn. Sumt risni er ein af hinum fegurstu lynd- | Rf ]>vi, sem hann skrifar er gamalt, iseinkunnum hinnar íslenzku þjóð- I sem oftsinnis er búið að sýna að sé ar, og í hennar nafni eða vegna | ranghermi, en ofurlítið er þar nýtt. hennar, er margt fyrirgefið. En er j Viðvíkjandi þvi sem hann segir um það ekki skylcla vor Vestur-Islend- j persónulegar árásir þá vil eg minna inga að koma þannig fram, að ekk-1 hann á að enginn hefir orðið, það Transcona, May 4th, 1929. Bditor Heimskringla, Winnipeg. Dear Sir:— I have been advised of an article and also an editorial in your paper of May ist, in reference to my con- nection with the publication of cer- tain correspondence between the Manitoba Government and a com- mittee representing the Icelandic Patriotic League. As it seems to me, according to my information, that in those articles there is a gross misrepresentation of the facts of the case, I would, therefore, like to make a statement of the part I played in the matter. In the beginning I might remind you that correspondence between any individual or individuals and the Government is public property. Dr. Brandson asked me-to secure the letters referred to and I had an order prepared asking for the tabl- ing of the same in the House. Be- fore placing this on the order paper I advised Premier Bracken of my intention. He intimated that as this was a matter that primarily in- terested the Icelandic people he thought it inadvisable that it should be brought into the House where it might become material for factious discussion, and that Dr. Brandson could secure a copy at his office. I spoke to Dr. Brandson and he stated that so far as he was concerned this was satisfactory. According to these arrangements the correspond- ence was secured and copied by a stenographer sent by Dr. Brandson for that purpose. If the correspondence had not been secured in this way it would have been called for and tabled in the House where it might have be come a subject of contentious dis- cussion. I regret that this matter should cause so rnuch disturbance for I feel certain that all parties concerned were acting in good faith. Yours truly, M. McKay, M.L.A. ÍSLENSK ÞÝÐING Transcona, 4. maí, 1929. Ritstjóri Heimskringlu, Winnipeg. Kæri herra:— Mér hefir verið bent á aðsenda grein og ritstjómargrein í blaði yðar 1. maí, í sambandi við afskifti mín af birtingu vissra bréfa, milli Manitöbastjórnarinnar og fulltrúa- ur prestahatari, Þetta gamla spakmœli kom mér í hug, er eg las grein Halldórs Kiljans: Um þrifnað á íslandi, sem út kom í síðasta Iðunnnarhefti. Nú er þetta Iðunnarhefti nýkom- ið í xnínar hendur, svona eru samgöngurnar góðar á íslandi. Kiljan þreytist ekki á að lýsa því, hversu miklir sóðar vér séum íslendingar. Hann hefir ritað um þau efni áður, og orðið þjóð- kunnur fyrir. Sjálfsagt tfer hróð- ur hans eigi minkandi eftir þessa ritgerð, því alt af herðir Kiljan sóknina, með meiri og meiri öfg- um, stærri orðum og verri. Eg viðurkenni það, að í mörgu mun oss áfátt um þrifnað, og það er þanft verk, að vekja þjóðina til umhugsunar og umbóta á því sviði. Eg efast bara um það, að Kiljan verði mikið ágengt með þessari aðferð, sem hann beitir. öfgarnar eru svo miklar í lýs- ingum han’S, orðbragð ihans svo ljótt um menn eða heilar stéttir, að viðbjóð vekur flestum siðuð- um mönnum. Eg set hér svolítið sýnishorn ag rithætti Kiljans: “Væri nokkuð meiri þðrf á því, að ríkið styrkti sveitamenn til að koma sér upp sæmilegum salern- um, heldur en að launa í hverri sveit presta, sem aldrei láta frá sér tfara vel sagt orð né leggja þjóðheillamáli liðsyrði, heldur eru að flækjast fyrir hunda og manna fótum, öllum til sorgar og skapraunar, meðan þjóðin verður að viðundri í augum siðaðra manna fyrir óþverraskap. Fyrst, þegar þjóðin hefir lært að þvo sér og hafa um hönd annan almenn an þrifnað, er tími til kominn að hugleiða það, hvort hún, eigi að hafa presta . . . .”.............. Neðar á sömu blaðsíðu (317). standa þessar fögru setningar: “Það er nefnilega eitthvað djðfullegt í þeirri hugmynd, að prédika trú og syngja fögur Ijóð fyrir skítuga, tannlausa og sal- ernislausa þjóð, sem hefir ekki einu sinni lært að gera hvers- dagslegar krötfur siðaðs fólks. Það er eitthvað áþekt og vera að sýna hinum fordæmdu til himna- ríkis gegn um glóandi ristarnar neðra.” Þetta sýnishorn læt eg duga, en margir staðir eru álíka fagrir og þetta. Þetta er dálaglegur dómur, sem benda Kiljan, að heimili prest- um. Mér, sem hefi verið orðlagð- blðskrar hann svo, að eg á naumast nokkur orð til að lýsa viðbjóði mínum á slík- um rithætti. Hvaða þörf er á því, að gerá svona upp reikning prestanna, þótt haldið sé fram þörtf á salernum? — Auðvitað er með þessum dómi um prestana skotið svo langt yfir maúkið, að alt fellur um sjálft sig og er ekki svara vert. Á það vil eg samt benda Kiljan, að heimili prest- anna hafa löngum verið fyrir- myndarheimili í sinni sveit, hæði um þrifnað og annað. Þangað var, áður en skólarnir voni reist- ir, komið ungum stúlkum til þess að læra eitt og annað, sjálfsagt ekki hvað sízt híbýlaprýði og þritfnað. Þjóðin hefði efalaust sokkið dýpra niður í sóðaskap og eymd, ef prestarnir hefðu engir verið. Margir þeirra héldu líka uppi einu alþýðuskólunum, sem til voru. Þeir tóku pilta, bæði til að kenna þeim undir skóla og búa þá undir lífið. Við verðjum að viðurkenna prestana fyrir margra hluta sakir, þótt vér höfum ekki getað fallist á alt, sem þeir hafa sagt aif stólnum. Þá telur Kiljan það “ðfugsnú- ið í íslenzkum hugsunarhætti,” að -kólaskylda barna hefir setið í fyrirrúmi fyrir lögskyldu um al- mennan þrifnað. “Lestrarkunn- átta er íslendingum gerð að skyldu, en látnar frjálsar hendur um hverja tegund óþriifiaðar, sem nöfnum tjáir að nefna,” segir hann. Hann virðist gera lítið úr gagnsemi lestrarkunnáttu og skólagöngu barna. Kiljan hefði eflaust aldrei orðið þessi brenn- heiti þrifnaðarpostuli, hefði hon- um aldrei verið kent að lesa og skrifa. Hann hefði þá að minsta kosti aldrei skrifað svona mikið um málið, og væri það ‘bættur bagi. Annars virðist Kiljan vera þarna í mótsögn við sjálfan sig, >ví hann segir einhvers staðar — og það með réttu —, að fátækt og jekkingarleysi séu orsakir sóða- skaparins. Þetta sýnir Ijóslega, hvað hann hefir lítinn hemil á sjálfum sér og vandar verk sín lítið. Sama kemur fram, þegar hann talar um, að ritsmíðar sfnar frá 1926 “þarfnist nokkurrar end- urskoðunar.” Manni dettur þá í hug, að eitthvað þyrfti að lappa upp á þessa Iðunnnargrein eftir eitt eða tvö ár. Alt ber þetta að sama brunni ásamt öfgunum og illyrðunum, fólkið tekur ekki mark á neinu, og þá heldur ekki því, sem réttilega er fram tekið í skrifum höfundarins. lýiljan segir einhvers staðar í hinni umræddu Iðunnnargrein: Hreinn líkami veldur þokkalegu sálarlítfi.” Vera má, að eitthvað sé hæft í þessu, en ekki sannast þetta á höf. sjálfum. Kiljan segir það sjálfur, að hann hafi þriggja herbergja íbúð með bað- klefa, svo hann sjáltfsagt þvær sér rækilega, þótt hann svitni sjaldan af líkamlegu striti. Þá held eg að hann eigi fáeina tann- bursta, þótt of fáa segist hann eiga handa allri þjóðinni. Hann er sem betur fer svo í sveit settur og við starf, að hann fær aldri kvef. Nei, eg efast ekki um, að hann breyti alveg eftir kenning- um sínum. Hann hefir ekki “svart undir nöglunum.” Samt eru skrif þessa manns öll ötuð í óhreinind- um. Hann hefir svart undir tungurótunum. Hann á forar- vilpu í hugskotinu, sem óspart seitlar úr, þegar hann ritar. Þessi vilpa atar hann meira sjálfan, en þá menn, sem hann slettir til. Þetta er illa farið um efnilegan 0g gáfaðan mann. Hann ætti fyrst að þrífa til þarna hjá sjálf- um sér„ — Sá þrifnaður er enn þá meira áríðandi en sá, sem Kiljan ræðir um. 13. febrúar 1929. Gísli Helgason. WONDERLAND. Þar sem um kvikmyndina “White Shadows in the South Seas” er að ræða, þá fer alt sam- an, sem kvikmyndir mega mest prýða, Ijómandi útsýni, ágætis eiginlegleikar og atburðir, sem vekja áhuga allra, er myndina sjá. Aldrei hetfir fallegri ástasaga verið kvikmynduð. Þá er og myndin, “The Ware Case”, mjög lærdómsrík, og j“Runaway Girls sömuleiðis.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.