Lögberg - 22.08.1929, Síða 5
KU. i.
Hátíðahald
Allir dagar ihafa sína sögu, og
4. ágúst hefir iþá sögu, að íslend-
ingar hér í Californíu komu sam-
an í einu skógarrjóðri, að Syca-
more Grove, Pasadena Ave., Los
Angeles, Calif., til að hafa íslend-
ingadag. i
Á þessum stað eru bekkir og
borð fyrir fjölda manns, og þar
var ræðupallur, og hafði píanó
verið flutt þangað. Hiti var tölu-
verður, en af hverju var breytt
til með samkomustað, er mér ekki
kunnugt. Það kom samt töluvert
margt fólk, eg hugsa úr flestum
sýslum íslands, og ætla eg að
nefna fáeina af þeim, sem eg
þekti, því eg veit að einhverjir, er
lesa þessar línur, hafa gaman af
að leita eftir hvort þeir þekki
enga af þeim, sem hér mættu.
FVrst var forseti dagsins, Mr.
H. Halldórsson frá önundarfirði
í ísafjarðarsýslu, með frú sína,
sem er dönsk, og eitthvað af börn-
um þeirra. —r Þá var Mr. Hjalti
Sigurdson Andréssonar prests,
bróðir Ásgeirs Sigurðssonar ræð-
ismanns Breta, með fjóisar upp-
komnar, efnilegar dætur, einnig
ættaður úr Isafjarðarsýslu. Þá
var Páll Jónsson, bróðursonur
Sveins Sveinssonar, sem lifði í
Kvilt við önundarfjörð, ísafj.s. —
Þá var Mr. Sigurður Helgason,
tónskáld, sonur hr. Helga Helga-
sonar snikkara og tónskálds í
Reykjavík í Gullbringus., frú hans
og uppkomnir synir. — Miss Lov-
ísa, dóttir Mr. N. Ottensonar, sem
var mörg ár umsjónarmaður í Riv-
er Park í Winnipeg, ættaður frá
Látrum í Barðastrandarsýslu. —
Mr. Guðjón Jónson, ættaður úr
Öxney á Breiðafirði, og frú hans,
ættuð frá Svarfhóli í Mýrasýslu.
Mr. Jóhannes Sveinsson, ættaður
úr Mýrasýslu og Borgarfjarðar,
með dóttur sína, ungling. Tvö
börn Mr. Christians Fr. Nelsons,
umboðssala, sem var á ísafirði,
en móðir þeirra, frú Nelson, af
hinni alkunnu Reykjahlíðarætt við
Mývatn. Þar var ekkjufrú Mál-
fríður Anderson, ekkja eftir Mr.
Ólaf Árnason, sem um eitt skeið
var gestgjafi á Kolviðarhóli, sem
er greiðasölustaður við Hellis-
heiði; hann var ættaður frá Hlíð-
arendakoti í Fljótshlíð, en hún er
uppalin hjá séra Stefáni Thorar-
ensen á Kálfatjörn í Gullbringu-
sýslu; hún var með tvö uppkomin
börn sín. — Þá var Mr. E. Skjöld
lyfsali, með frú sína, sem er dótt-
ir Stígs sál. Thorvaldsonar, frá
Kelduskógum á ÍBerufjarðarströnd
í Suður-Múlasýslu. iOg þar var
systir hennar, frú Björns Hjálm-
arssonar ættað ur frá Brekku í
Mjóafirði. Þar var Thorgils Ás-
mundsson, ættaður úr Árnessýslu.
Þar var lika hr. og frú Stivenson;
hann er hérlendur, en hún heitir
Auðbjörg Guðmundsdóttir, og er
ættuð úr Árnessýslu.
Svo var elzti fslendingur hér,
frú Sigríður, systir ;hr. Jóhannes-
ar Nordal íshússstjóra í Reykja-
vík; hún er á níræðisaldri, og er
vel ern og hress. — Þá var Mr.
Rétur Fjeldsted, Sonur Egils
Gunnlaugsonar, sem var í Arabæ
1 Reykjavík, með frú sína, sem er
®ttuð úr Skagafirði og S. Þing-
^yjarsýslu. Þá var Mr. A. Thor-
ífrímsson, sem ættaður frá Flata-
tungu í Skagafirði, ásamt frú
sinni, sem er ættuð úr N. Þing-
eyjarsýslu (Þistilfirði); með þeim
var og tengdamóðir hans og eitt- j
hvað af nær því uppkomnum i
dætrum. — Þá var Th. Oddson,
^eð frú sína, og eru þau bæði ætt-
u^ úr S.-Þingeyjarsýslu; einnig!
var hér dóttir þeirra, sem er gift
hérlendum manni, og er það kona
smá vexti, en fríð og skemtileg.
var Mr. Gunnlaugur Jóhanns-
s°n og frú hans; hann er Eyfirð-
’ngur að ættum, en frú hans syst-
lr Sveins sál. búfræðings Sveins-
s°nar, sem setti á laggirnar
^vanneyrar búnaðarskóla í Borg-
arfirði; hún er ættuð úr Mjóafirði
* S. Múlasýslu. Þá var frú Þor-
hjörg Friðgeirson; hún er Há-
k°nardóttir, Snæbjörnssonar frá
^reggstöðum á Barðaströnd; börn
hennar Mr. F. G. Th. Friðgeirs-
s°n og Miss Jóhanna Anna Frið-
Seirson. Einnig Miss Valgerður,
^óttir séra Einars Pálssonar
hrests í Reykholti í Borgarfirði,
Miss Ástríður Josephs, frá
eildartungu í Borgarfirði. Hér
^ar og Mr. Hjálmar sonur Hall-
rs Hjálmarssonar búfræðings
Brekku í Mjóafirði, bróðir
jörns Hjálmarssonar, er eg áð-
hr hefi talið. Þá er frú Guðbjörg
orkelsson, ekkja eftir Th. Thor-
6 ®son kaupm.; han var ættaður
LÖOBERG FíMTUDAGINN 22. ÁGÚST 1929.
úr Svarfaðardal í Eyjafjarðars.,
en hún úr Skagafirði.; og hér var
dottir hennar, Hekla að nafni, og
er hún gift hérlendum manni; og
einnig var sonur hennar Njáll að
nafni, með frú sína, sem er ættuð
af Jöludal, N. Múlasýslu. Þá var
ekkjufrú Ingibjörg, ekkja Mr.
Gunnars J. Goodmundsonar; hún
er ættuð úr Húnavatnssýslu, og
eins var maður hennar; og þar
var sonur hennar, Frímann að
nafni, með frú sína, sem er dóttir
frú Fjeldsted. — Og þá var rit-
höfundurinn H. K. Laxnes, ættað-
ur úr Gullbringusýslu. — Þá var
frú Bachman, ættuð úr Stein-
grímsfirði. Þá var frú Hannesar
Péturssonar frá Winnipeg; hún
er ættuð úr Norður-Múlasýslu. —
Þá var frú Magnússon, ekkja, ætt-
uð frá Skeggjastöðum á Jökuldal
í N. Múlasýslu. Þá var Mr. John
Thorbergson og frú hans og dæt-
ur þeirra; hann er sonarsonur Ei-
ríks Sigurðssonar, sem bjó á Álfta-
bakka í Mýrasýslu, en frú hans er
dóttir Mr. og Mrs. G. Jóhannsson,
sem eg áður hefi nefnt. Þá var
húsasmiður E. R. Elíasson, ætt-
aður úr Vestur Skaftafellssýslu.
Bjálfsagt hafa margir fleiri
landar verið þarna, sem eg ekki
þekti eða var gerður kunnugur. —
En svo kom frú D. Curry frá San
Diego, með frítt föruneyti, fult 40
manns. — Frú Curry er sköruleg
kona og kveður að 'henni líkt og
Þorbjörgu hinni digru dóttur
Ólafs Pá í Hjarðarholti í Dala-
sýslu. En móðir Þorbjargar var
Þorgerður Egilsdóttir frá Borg á
Mýrum. Hún var gift Ásgeiri
goða Knattarsyni í Vatnsfirði;
hún lét 30 manns ríða með sér,
þá hún fór til Sels, og eitt sinn
er hún var í selför, hitti svo á,
að hún kom þar að er bændur voru
búnir að binda Grettir Ásmunds-
son frá Bjarg i í Miðfirði, og
höfðu reist upp gálga og ætluðu
að hengja hann (því hann var þá
sekur skógarmaðurþ En hún
sagði þeim að leysa böndin af hon-
um og sagðist fara með hann heim
til sín. Og leystu þeir hann
strax, og sýndi það hvað mikið
hún hafði að segja, bg fyrir þetta
er hún ódauðleg í sögunni og með
fremstu konum fornaldarinnar,
enda sagði Grettir: “Þess er get-
ið, sem gert er. — Frú Curry er
húnversk að ætttum, og var fað-
ir hennar lengi póstur á milli
Reykjavíkur og Akureyrar og hét
Daníel. En það var ekki í þá
daga neinum heiglum hent að
vera póstur á íslandi.
Eg þekti fæst af hennar fríða
föruneyti, en þeir er eg þekti eru:
Dóttir frú Curry, séra Eyjólfur
Melan, hann er af ættum Sveins
landlæknis iPálssonar; frú hans
var með honum, og er hún ættuð
frá Svarfhóli í Stafholtstungum.
Þá var Mr. Einar Scheving, ætt-
aður úr Skriðdal í Suður Múlas.;
hann er farinn að eldast, en ber
ellina mjög vel, og með honum var
frú hans, einnig úr S. M. sýslu
ættuð, sérlega skemtileg kona. —
Þá var Björgvin, sonur Páls Guð-
mundssonar frá Firði í Seyðis-
fifði, og frúar hans Dóróteu
Guðmundsdóttur, af hinni al-
þektu Krossavíkurætt; frú hans
var einnig meS honum og heitir
Anna Guðmundsdóttir, náskyld
Pétri sál. Jónssyni blikksmið, sem
var 1 Reykjavík. Einnig var með
fósturdóttir þeirra, Miss Anna,
hálfsystir Björgvins, og yngsti
sonur þeirra. — Þá var Jón Lax-
dal; ekkert get eg sagt um ætt
hans, því við vorum ekki kyntir.
Þá var frú Kristbjörg Sigurðar-
dóttir, frá Kambsmýrum í Fnjóska-
dal, nú nefnd Mrs. Pétur Árna-
son; maður hennar er Húnvetn-
ingur að ætt. — Þá var frú Eiríks
Magnússonar; er ættuð úr Barða-
strandarsýslu, úr Reykhóilasveit,
en maður hennar Eiríkur er ætt-
aður úr Ámessýslu, af Briems ætt
og Hjalla ætt. Einnig mætti eg
mjög skemtilegri konu, sem sagð-
ist vera Mrs. Víum, meira fékk eg
ekki að vita um hana. Þá hitti
eg Mr. Orr, sem er ungur, efnileg-
ur maður, giftur, en ekki var frú
hans með honum. Þá voru tvær
efnilegar dætur Mr. Jóns H. Jóns-
sonar, sem er ættaður frá Svarf-
hóli í Mýrasýslu. Þá var Mr.
Hermann, sonur Davíðs Sveins-
sonar læknis Thorsteinsson í
Reykjavík. i— Eg kann ekki feiri
upp að telja af fararfólki frú
Curry. — En svo var eg næstum
búinn að gleyma eihni mjög
skemtilegri konu, sem er ekkja og
heitir Elinborg Þorsteinsdóttir
Jónassonar fná Brekkulæk í Mið-
firði; einnig var hér dóttir henn-
ar, sem er gift þýzkum manni og
gengur undir nafninu Orkni, mjög
skemtileg kona. Þá var Frú Ingi-
björg, gift G. Eyjólfsyni í Utah.
móðir “'Fjallkonunnar”, Miss Ell-
en Jameson; hún er vel íslenzk
og skemtin í ræðum.
Miss Ellen Jameson, sem var
Fjallkonan er bæði fríð og til-
komumikil. Hún er háskóla-lærð
og hefir þá fegurstu söngrödd,
sem eg hefi heyrt, og svo hefi eg
alla heyrt segja, sem hafa heyrt
til hennar. Og það er ekki ofsagt,
að hún skipar fremsta bekk í söng
og hljóðfæraslætti. Hún er skóla-
kennari fná Utah. Faðir hennar
er Guðmundur Eyjólfsson, afi
hennar Eyjólfur Guðmundsson,
kallaður varp-Eyjólfur, frá Eyja-
bakka á Vatnsnesi í Húnavatns-
sýslu, en móðir hennar, frú Guð-
mundar, er Ingibjörg Jónatans-
dóttir Davíðssonar frá Marðar-
núpi í Vatnsdal; en kona Eyjólfs,
afa Miss Ellen, hét Valgerður
Björnsdóttir frá Litlu-Borg í Víði-
dal.
Einnig var hér systir hennar,
Mrs. Dr Funk, Rósa að nafni.
Hún syngur einnig sérlega vel.
Þá var hér frændi þeirra systra,
Mr. H. Líndal, sonur Jakobs sál.
Líndals og frúar hans og barn;
hún er ættuð úr Gullbringusýslu.
Nú fer eg að lýsa, hvað menn
höfðu sér til skemtunar. Dagur-
inn er hafður hátíðlegur og til
skemtunar af því tilefni, að þenn-
an dag fyrir 55 árum, kom Kristj-
án níundi, Danakonungur, sem þá
var, til íslands á tveim skipum,
með fríðu föruneyti, fyrstur allra
konunga, ásamt Valdimar prinz
syni sínum, og færði landsmönn-
um nýja stjórnarskrá, sem gaf
þjóðinni fult löggjafarvald og
fjárforræði. Þetta var 2. eða 4.
ágúst 1874, eða rétt 1000 árum
frá því er Ingólfur Arnarson
hafði reist bygð í Reykjavík, og
skáldið séra Matthías orti til
konungs:
“Stíg heilum fæti á helgan völl,
vor hjartaikæri Snælands sjóli,
er komst frá þinum konungsstóli,
að sjá vor kæru fósturfjöll.
Með frelsisskrá í föðurhendi,
þig fyrstan konung guð oss sendi;
kom heill, kom heill að hjartarót.”
Þegar eg kom hingað með fjöl-
skyldu minni, kl. rúmlega 1, þá
sté forsetinn upp á ræðupallinn
og ávarpaði gestina og sagði þá
velkomna. Þá mintist hann á
fornaldarfrægðina á íslandi og
gullöld landsins, um hnignunþjóð-
arinnar eftir að hún komst undir
konungsvaldið og verzlunarkúgun-
ina, og plágur landsins, og hinar
hörðu búsifjar, er eldur og ís
gerðu landsmönnum. Og svo aft-
ur nú taldi hann með tölum hvað
íslenzka þjóðin tæki mikið gull-
mjöl úr kvörninni Gróttu, og
hversu Fenja og Menja sneru
rösklega kverninni, og menning
þjóðarinnar væri nú mikil, og end-
aði það við dynjandi lófaklapp.
Þá steig upp á pallinn Fjall-
konan, og var mönnum ærið star-
sýnt á hana, því hún var bæði fög-
ur og tilkomumikil, og allir sögu-
fróðir létu sér til hugar koma, að
ekki mundi Hrefna Ásgeirsdóttir
úr Víðidal hafa borið af þessari
Fjallkonu okkar, þó hún hefði
moturinn frá Ingibjörgu systur
Ólafs konungs Tryggvasonar.
Þá söng hún einsöng, kvæði eftir
Mr. H. Halldórsson, og læt eg það
hér með fylgja. Þó hún sé fædd
hér í álfu og meira heyrt af ensku
máli, þá talaði hún íslenzkuna ó-
trúlega vel, en svo voru menn
hrifnir af söng hennar, að allir
stóðu berhöfðaðir og steinþegj-
andi undir söngnum. — Við pían-
óið sat Miss Ottenson og er hún
vel æfð í að leika á það.
Þá töluðu Mr. H. K. Laxnes, Mr.
Jón Laxdal frá San Diego og Mr.
Jón Thorbergsson. Allir töluðu á
góðri íslenzku, nema lítilsháttar,
sem Mr. J. Thorbergsson talaði á
ensku.
Þá kom Mr. Th. Ásmundsson og
kvað fáeinar vísur, til að lofa
mönnum að heyra margra alda
skemtun íslenzku þjóðarinnar,
þegar ekki var annað hljóðfæri
þekt eða brúkað en langspilið.
Þá voru sungnir íslnezkir söngv-
ar; og þá kom upp á pallinn Mr.
Sigurður tónskáld Helgason, og
þar var hann með huga og sál, og
fanst mér hann taka sig líkt út
og faðir hans sál. og Jónas föður-
bróðir hans, eins og þá þeim bezt
tókst að skemta.
Þá var líka leikið á píanóið, og
fjöldi bezta söngfólks söng svo að
menn dreymdi um ísl. lóuklið-
inn og hinn samstilta fuglaklið.
Það var hin bezta sðngskemtun.
Þá kom upp á pallinn frú Curry
og þakkaði fyrir skemtunina, sem
hún hefði notið og hennar föru-
neyti, og vonaði og óskaði að Los
Angeles búar, og hvaða landar
sem gætu, heimsíæktu þá að ári
liðnu í San Diego.
Þar á eftir fóru menn að skemta
sér við ýmiskonar leiki, hlaup og
fleira. Og að endingu kom hér-
lendur maður með myndavél, og
tók sérlega góða mynd af öllum,
sem voru ófarnir á leið heim til
sín. — Þá settust menn upp í bíla
sína, kátir og ánægðir og létu þá
renna til heimila sinna.
Þannig er saga þessa dags—4.
ágústs 1929.— á enda.
Santa Monica Calif.,
1313 19th Street.
Ásgeir Tryggvi Friðgeirsson.
að hlusta á, og án þess að eiga á
hættu að sofna án nokkurs fyrir-
vara. Það er leiðinlegt, sérstak-
lega í kirkjum; en það er nálega
æfinlega ræðumanninum að
kenna.
Jóhannes Eiríksson.
«
Mas
Nú eru menn út um allan heim
famir að átta sig á því, að mál-
snild er ekki í því fólgin, að tala
langt mál, heldur miklu fremur í
því, hvað er sagt og hvernig það
er sagt. Jafnvel afbragðs ræður
geta verið of langar, ef gert er
ráð fyrir, að þrír eða fjórir ræðu
menn tali hver á eftir öðrum sam
tímis. Hugsum okkur, að það séu
þrír ræðumenn, og að hver fyrir
sig tali í klukkutíma. Er það
nokkuð að furða sig á, þótt marg-
ir áheyrenda verði orðnir dauð-
þreyttir á að hlusta og sitja í
vondum sætum, þegar síðasti
ræðumaður hefir lokið máli sínu?
Það er heimskulegt að ætlast
til, að menn eða konur yfirleitt,
geti haft þolinmæði til þess að
veita athygli slíkum orðastraumi,
þótt af 'beztu tegund sé.
Það er enginn efi á því, að sum
ir af ræðugörpunum eru svo
hrifnir af málsnild sinni, að þeir
þreytast aldrei á að hlusta á
sjálfa sig; en eitthvað verður til
bragðs að taka, til þess að venja
þessa menn af þessum ósið, að
talla í klukkutíma eða meira í
eimu og pína þannig fólkið þar til
það veit ekki 'hvað það á af sér
að gera. Eg veit ekkert annað
ráð, en að fylgja dæmi landa
vorra heima á íslandi í þessu efni. í
Þeir eru á undan oss í þessu og
líklega mörgu fleiru.
í stuttu máli hafa þeir það
svona: Þeir fara bara út eða frá,
svo ræðumaður verður bráðlega
fáliðaður eða jafnvel einn eftir.
“Þegjandi bendingar, eru stund-
um um beztar.”
'Einu sinni var niaður í brezka
þinginu, sem hélt afár-langar ræð-
ur. Hann fékk með tímanum
viðurnefnið ”The Dinner Bell”,
því það var segin saga, að þegar
hann stóð upp til þess að tala,
stóðu þingmenn upp hver eftir
annan, afsökuðu sig og þóttust
ætla til snæðings, svo málstofan
varð í einni svipan hálftóm og
stundum galtóm. Hann stóð einn
eftir og varð að hætta nauðugur
viljugur. Það er eitt af afrekum
langrar mælsku, að tala menn út
úr húsum og í fjarlægð burt —
burt frá hinu óendanlega orða-
flóði.
Á þjóðþingum hafa ófyriilleitn-
ir "snápar” löngum notað sér
þennan ótakmarkaða tíma við
ræðuhöld og hafa stært sig af að
halda mótpörtum sínum, helzt
stjórninni, “uppi” svo klukku-
tímum hefir skift; stundum dag
eftir dag á “snaklý”, oft meining-
ar lausu þvaðri, að eins til þess
að eyðileggja tímann fyrir hinum
og koma þannig í veg fyrir að
nokkurt mál, sem þeir eru á móti,
komist í gegn um þingið. Frem-
ur eftirsóknarverðir þingmenn,
eða hitt þó heldur.
Nú er farið að takmarka tím-
ann, sem hver fyrir sig má tala í
einu. Tuttugu, eða jafnvel tíu
mínútur, er allur sá tími, sem
hver maður fær í einu til þess að
tala út í mál þau, sem fyrir liggja,
hvert fyrir sig.
Til eru líka menn, sem álita að
fimm mínútur sé allur sá tími,
sem hver fyrir sig ætti að hafa í
einu, hvernig sem á stendur. Það
er talsvert mikið vit í því, þegar
margir eiga að tala, hver á eftir
öðrum. Það myndi venja menn
af því, sem kalla mætti “jórtur”,
að endurtaka í sífellu og þynna út
það sem maður er einu sinni bú-
inn að segja,—nýbúinn að segja.
Á ailmennum skemtisamkomum
ætti engum að vera leyft að tala
lengur en 20 til 30 mínútur. Menn
ættu að geta sagt alt, sem menn
hafa að segja, á þeim tíma. Ef
svo væri ákveðið, kæmi dansfólk-
ið ef til vill strax, í þeirri von, að
að lifði i gegn um ræðuhöldin og
gæti svo farið að dansa, án þess
að þurfa að halda sér vakandi
undir orðaflóði, sem það ef til vill
skilur ekki, eða kærir sig ekki um
Þörf að skýra frá
Margar húsmæður hafa þörf á
skólastúlkum, til þess að veita sér
nokkra hjálp yfir vetrarmánuð-
ina. Sömuleiðis eru stúlkur hér
og þar, sem óska eftir tækifæri
til að vinna fyrir fæði og hús-
næði, meðan skólinn stendur.
Þessar húsmæður og þessar
stúlkur þurfa að kynnast. Það er
báðum gagn. Eg hefi oft orðið
til þess, að þær kyntust. Eg vil
einnig nú hlutast til um það, að
þetta geti orðið. Framkvæmdir í
iþessu efni eru nú þegar byrjaðar.
Auðvitað gjöri eg þetta verk fyrir
Jóns Bjarnasonar skóla, jafnvel
þótt eg hafi stundum gjört það,
þegar aðrir skólar áttu 1 hlut.
Nú vil eg biðja alla, sem hér
eiga hlut að máli, stúlkur og hús-
mæður, að láta mig tafaríaust
vita um óskir sínar. Haustið er
senn komið og skólastarf er afar-
skamt fram undan. Þess vegna
má þetta ekki dragast. Ein stúlka
hefir þegar beðið um pláss, sem
eg hefi ekki enn getað vísað
henni á. Þar er tækifæri fyrir
einhverja húsmóður. Það má
segja frá því, að þegar eg hefi
auglýst eftir svona plássum i Free
Press, hefi eg ætíð fengið nógar
umsóknir, en eg kýs fremur góða
staði á íslenzkum heimilum. Vil
eg nú biðja íslenzku húsmæð-
urnar, að láta það ekki dragast,
að láta mig vita um það, ef þær
hafa þörf á hjálp skólastúlku í
vetur.
Drengur.
Eg veit líka um dreng, sem
þráir tækifæri til að halda áfram
námi. Er kominn eins langt og'
kent er, þar sem hann á heima, en
gæti því aðeins komið til Winni-1
peg, til að halda áfram námi, að
hann gæti unnið fyrir fæði og
húsnæði. Hver vill nú gefa menta- i
fúsum dreng tækifæri?
CUNARD LINE
1840—1929
Elzta eimskipafélagið, sem siglir frú Canada.
Skólagjald.
Oft hefir Jóns Bjarnasonar skóla
verið fundið það til foráttu, að
nemendur þyrftu þar að borga
skólagjald, en ætti kost á ókeypis
kenslu í öðrum skólum. Þetta hef-
ir nú ekki verið að öllu leyti rétt,
eins og allir þeir vita, sem reynt
hafa. Wesley College, sem ís-
lenzkir nemendur hafa mikið sótt,
hefir ávalt sett skólagjald, og það |
hærra en skóli vor. Það hafa
nunnuskólamir einnig gjört, og
sömuleiðis fylkis háskólinn.
Nú býður Jóns Bjarnasonar
skóli frí-kenslu öllum nemendum
níunda bekkjar, en $50 skólagjald
í hinum bekkjunum. Á skrifstofu
skólaráðsins fyrir Winnipeg-borg,
þegar eg spurði eftir gjaldi, var
mér sagt það, að allir, sem ekki
eiga heima í borginni og ekki
eiga þar eignir, verði að borga
fyrir börn sín í miðskólum borg-
arinnar (9. til 12. bekk) $6 í
byrjun hvers mánaðar. Það gjör-
ir samtals $60 yfir árið. Ekki
verður því þá neitað, að Jóns
Bjarnasonar skóli býður utan-
bæjar nemendum óviðjafnanlegt
tækifæri.
Umsóknir.
Skólanum eru nú að berast um-
sóknir nýrra nemenda, úr ýmsum
áttum. Bezt væri fyrir alla, sem
hafa skólagðngu í huga, að hugsa
það mál sem vandlegast og ráða
það sem fyrst.
Menn snúi sér að séra Rúnólfi
Marteinssyni, 439 Lipton St. Tals.
33 923, eða Miss S. Halldórsson,
Lundar, Man.
Ritlingur um skólann sendur
öllum, sem æskja þess. Næsta
skólaár hefst miðvikudaginn 18.
sept. R. M.
Cunard línan veitir ágætar sam-
göngur milli Canada og Noregs, Sví-
þjóðar og Danmerkur, bæði til og frá
Montreal og Quebec.
Eitt, sem mælir meö því að feröast
meS þessari línu, er þaS, hve þægilegt
er aS koma viS í London, stærstu borg
heimsins..
Cunard línan hefir sérstaka inn-
flutningaskrifstofu i Winnipeg, fyrir
NorSurlönd. Skrifstofustjórinn er
Mr. Carl Jaoobsen, sem útvegar bænd-
um íslenzkt vinnufólk vinnumenn og
vinnukonur, eSa heilar fjölskyldur.—
ÞaS fer vel um frændur ySar og vini,
ef þeir koma til Canada meS Cunard
línunni.
SkrifiS á ySar eigin máli, eftir upp-
lýsingurruog sendiS bréfin á þann staS,
sem gefinn er hér aS neSan.
öllum fyrirspurnum svaraS fljótt
og ySur aS kostnaSarlausu.
270 Maln St.
WINNIPEG, Man.
36 Wellinftton St. W.
TORONTO, Ont.
227 St. Sacrament St.
MONTREAL, Que.
Nú er rétti tíminn að
borga Lögberg
MARTIN & CO. ■■■■
SÝNUM NO HINA
FALLEGU FATAGERÐ
Fyrir haustið 1 929
Leiðrétting.
Box 11, Árborg, Man., 15. ág. ’29.
Kæri ritstjóri Lögbergs—
Eg ætla að biðja þig að gjöra ] I
svo vel og leiðrétta í næsta blaði
f jórar prentvillur, sem hafa orð-1
ið í æfiminningu mannsins míns
sáluga, Guðmundar Jónssonar,
sem birtist í Lögbergi 8. ágúst:
1. Faðir hans hét Jón og var
Bjarnason, en ekki Björnsson, eins
og sagt var í blaðinu. 2. Bróð-
ir hans, sem nefndur er Kristjón
í blaðinu, heitir Kristján. 3. Anna
systir hans er kona Gísla Jónas-
sonar, en ekki Gísla Jónssonar.
4. Kona hins látna er Herdís.
dóttir Jónasar Þorsteinssonar í í
Djúpadal í Greysis bygð, en ekki
Jóns Þorsteinssonar, eins og sagt
var í blaðinu. Vinsamlegast,
Mrs. Herdís Jónsson.
KOMIÐ OG VELJIÐ OR
Veljið það bezta og fullkomnasta;
enginn þarf að borga alt út í hönd.
) i
Vorir hcegu borgonar-
skilmáiar
\ . »
Gera kaupin auðveld. Með því að borga
smátt og smátt í margar vikur eða mán-
uði, verður það ótrúlega auðvelt að
kaupa jafnvel það, sem bezt er.
(Með ánægju bjóðum vér yður að
nota vora
Hægu Borgunarskilmála
Komið bara inn og spyrjist fyrir.
Vér byrjum haustið með miklu
úrvali.
NÝMÓÐINS YFIRHÖFNUM
VANDLEGA VÖLDUM.
AU»r óvanalega fallegar. Stórir kragar og nppslög úr völdum
loðskinnnm. Því ekki að fá yður yfirhafnir nú, þar sem þér
þurfið ekki að borga alt út í hönd
KLÆÐIS-YFIRHAFNIR
FURSKREYTTAR
*19 ,s til '98 50
FUR-YFIRHAFNIR
J65 (KI til !350“
NÝJUSTU KJÓLAR
J12 ,s til '29 s#
Búðin opin til kl. 10 á laugardögum.
2nd Floor
Winnipeg
Piano Bldg.
MARTIN & CD.
PORTAGE
AT
HARGRAVE
EASY PAYMENTE LTD.