Lögberg - 05.09.1929, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. SEPTEMBER 1929.
Bls. 5.
Karlakór Reykjavíkur
fer norður og vestur um land.
Alla ferðian var veður hið á-
kjósanleg-asta. Að vísu tafði þoku-
slæðingur ofurlítið, en kyrðin var
svo mikil, að varla var hægt að
segja að skipið haggaðist, og var
heilsufar því óvenjulega gott.
“Stemningin” um borð var eft-
ir þessu, stundum þykir mönnum
leiðin milli hafna nokkuð löng, en
nú þótti mönnum oftast helzt til
fljótt til hafnar komið. Nógir voru
söngkraftarnir og nóg var af æsku
og fjöri til þess að fylla hverja
stund einhverjum leik eða gamni.
Hvar sem skipið kom, var skot-
ist í land og sungið, á Bíldudal í
norðurleifi, ísafirði í báðum leið-
um, Siglufirði tvisvar í norður-
leið, Akureyri tvisvar, Kristnesi,
Patreksfirði, Flatey og Stykkis-
hólmi í suðurleið, eða alls 11 sam-
söngvar og allstaðar fyrir fullu
húsi. — Sumtaðar var sungið í
kirkjum, og þá oftast tekin nokk-
ur fjörmeiri lög á eftir fyrir utan
kirkjuna. Vinnu var hætt á ýms-
um stöðum meðan söngflokkurinn
stóð við, svo að fólk fengi kost á
að hlýða á, svo sem á Bíldudal og
/Patreksfirði. Víða kom fólk mjög
langt að og yfirleitt var ekki hægt
að sjá annað en að mönnum gæt-
ist hið bezta að söng kórsins.
Aðal viðstaðan var á Akureyri,
þar var staðið við í tvo daga, og
er alveg óhætt að fullyrða það, að
þeim tveim dögum gleymir enginn
af þeim, sem í för þessari voru.
Það er nú fyrst náttúrufegurð-
in, þegar Eyjafjörður er baðaður
i sól og sunnanvindi. Ómögulegt
er að segja hvað er fallegast, inn-
siglingin, höfnin og kaupstaður-
inn eða sveitin fram af. Það eitt
er víst, að það er alt yndislegt og
þarf þá engan metnað að hafa um,
hvað fegurst sé.
0g svo er fólkið. Á Akureyri er
karlakór, sem heitir Geysir. Þetta
söngfélag var komið niður á
bryggju kl. 8 um morguninn og
tók á móti okkur með ágætum
söng, og þetta félag kvaddi okkur
að kvöldi annars dags. Og alt þar
á milli haifði það forgöngu að svo
innilegum móttökum og sannri
gestrisni, að það munu varla nein-
ir leika eftir Akureyringum.
Það hvílir sérstakt andrúmsloft
yfir höfuðstað Norðurlands. Fólk-
>'ð er þar fjörlegra, upplitsdjarf-
ara, framgjarnara, en í nokkrum
öðrum bæ á íslandi. Bærinn er
ekki enn orðinn stærri en það, að
honum má ná með, svo að segja
öllum. Andinn er sá, að vera með.
Fýlupokar hljóta að þrífast illa á
Akureyri. Akureyrarbúar eiga
eitthvað af þeim barnslega ákafa,
sem stundum lyftir því Grettis-
taki, sem aðrir mundu gefast upp
við (sbr. Kristneshælið), og eftir
þessa för hlýtur maður að hafa
þá trú, að það kunni engir eins
vel að taka móti gestum og þeir.
Kvæðið, sem söngfélagið Geys-
ir söng á bryggjunni við komu
Karlakórs Reykjavíkur var þetta:
Út um fjörð og breiðar bygðir
Berast skal hið gamla lag.
Bræður sverja bræðrum trygðir.
Blessum allir þennan dag.
í tónum búa töfrar mestir,
Tónar stytta dægrin löng.
Heill sé ykkur, göfgu gestir,
Gleðjið alt með fögrum söng.
Krýndir söngsins sigurljóma
Siglið þið inn Eyjafjörð.
Látjð fagra, frjálsa hljóma
Fljúga dátt um loft og jörð.
Nú er sumar söngs og ljóða,
Sólbrend æska stígur dans.
Vindar strjúka vanga rjóða. .
Velkomnir til Norðurlands!
Höfundur lét ekki nafns síns
getið, en flestum mun virðast það
æði svipað Davíð. — Eftir þetta
var haldið í bifreiðum fram að
Grund í brakandi sólskini. Þar var
mætt í grashvammi fyrir ofan bæ-
inn, og varð naumast kosin fegri
árdegisguðsþjónusta þenna sunnu-
dagsmorgun, enda ræður og söng-
ur í samræmi við það. Hefi eg
sjaldan eða aldrei heyrt “Ó, guð
vors lands” hljóma fegur en þar.
Á samsöngvunum bæði kvöldin
veittu Akureyrarbúar Karlakór
Reykjavíkur svo góðar viðtökur,
að það verður áreiðanlega til stór-
mikillar hvatningar. Lauk síðari
samsöngnum með ódæma fagnað-
arlátum, ræðuhöldum og marg-
endurteknum söngvum.
Fyrra kveldið var slegið upp
faguri veizlu á Hótel Akureyri,
með söng og fjölda af ræðum, en
síðara kvöldið gekk svo að segja
allur mann'fjöldinn beint af sam-
söngnum niður á bryggju, og tók-
ust þar smá ræður og söngur á
víxl milli skips og lands og með
árnaðaróskum og húrrahrópum. —
Og jafnvel þegar skipið rendi fyr-
ir Oddeyrina, var þar enn fyrir
mannfjöldi, sem farið hafði í bif-
reiðum þangað út eftir. Heyrðist
síðast óp og söngvar þegar skipið
rendi með fullum skrið út Eyja-
fjörð.
í suðurleið var sungið í annað
sinn á ísafirði og að þeim sam-
söng loknum söng karlakór fsa-
fjarðar kvæði það, sem fer hér á
eftir, og Ort hafði verið til Karla-
kórsins af G. Geirdal:
Þér sigurglöðu söngsins menn,
Þér sigrið enn,
þér heillið enn.
Þér lokkið söngsins leyndarmál
af lindartungu, úr brimsins sál.
Þér sækið fram,
sem fljót á strönd,
á frægðarbraut —
um loft og höf og lönd,
með pálma í hðnd.
ENROLL NOW
for the
Fall Term
The DOMINION
Business College
A Complete Educational Service
With the erection of two new buildings to house
our Branches in Elmwood and St. James, The Do-
minion Business College places at the service of the
people of Winnipeg and Manitoba facilities for com-
mercial education unequalled in the whole of Canada.
Each building of the “Dominion” is fully equipped
to render a complete service to its students.
INDIVIDUAL INSTRUCTION
DAY AND EVENING CLASSES
POMÍN/ON
Branch Schools
in Elmwood and St. James
Svo farið vel um saltan sjá
með söngsins þrá
og eld í brá!
Vér kyrjum glatt vort kveðju-lag
við kostarýran þakkarbrag.
Vor söngbæn er:
að öðlist þér
þá orku og snild,
sem list að marki ber!
Svo farið vel !
Já, farið vel!
Ferðasögu þessa mætti langa
rita. Væri t. d. vert að segja nokk-
uð frá veizlu, sem söngfélagið
Vísir á Siglufirði hélt okkur milli
samsöngvanna og þeim hlýlegu
viðtökum, sem flokkurinn fékk á
Patreksfirði, en hér skal þó stað-
ar numið.
Þó skal þess enn getið, að Sig.
Pétursson, skipstjóri á Gullfossi,
gerði alt sem hann gat til þess
að gera ferðina sem ánægjuleg-
asta. Að lokum vildi eg mega
biðja Morgunblaðið að flytja öll-
um þeim, sem á einhvern hátt
stuðluðu að því að gera Karlakóri
Reykjavíkur ferðina ánægjulega,
alúðar-þakkir. Er enginn vafi á,
að slíkar ferðir sem þessar geta
stórlega orðið til hvatningar og
lærdóms, bæði þeim félögum, sem
taka þátt í þeim, og hinum, sem
hlýða á. Er því nokkurs virði að
þær takist sem bezt.
__Mgbl.. Magnús Jónsson.
Um Island
og íslenzka málaralist
Álit Poul Uttenreitters rithöfund-
ar. — Hann ætlar að gefa út bók
um Guðmund Thorsteinsson.
Þegar heildarsýningin á verkum
Guðmunar sál. Thorsteinssonar
var haldin hér um árið, var um
það talað, hve nauðsynlegt það^
væri, að það yfirlit sem fékst þar,j
yfir hin margbreytilegu listaverk
hans og listastarfsemi, glataðist
ekki, að fullu, er sýningarmunir
dreifðust aftur til eigendanna. Þá
gekst Þorsteinn Sch. Thorsteins-
son lyfsali fyrir því, að Jón Kal-
dal tæki ljósmyndir af allmörgum
mynanna, með það fyrir augum
að hægra væri síðar meir að gefa
út bók um Guðmund Thorsteins-
son og verk hans.
Nú hefir Þorsteinn Sch. Thor-
steinsson fengið hinn danska rit-
höfund, Poul Uttenreitter, til þess
að skrifa um G. Th., og annast um
danska útgáfu af bókinni. En
samtímis mun koma út íslenzk út-
gáfa með sömu myndum.
Poul Uttenreitter var persónu-
lega mjög kunnugur Guðmundi
Thorsteinsson í mörg ár. Hann
hefir um langt árabil lagt stund
á rannsóknir og athuganir í mynd-
list, skrifað um sýningar og ritað
æfisögu nafntogaðra listamanna.
Áður en hann tókst á hendur að
sjá um útgáfu bókarinnar um
Guðmund Thorsteinsson, vildi
hann koma hingað til Jandsins,
og með því fá ýmsan kunnugleik
um æfi G. Th. og list hans, er
hann átti erfiðara með að afla sér
erlendis.
Hann var hér á mánaðar ferða-
lagi í sumar og tók sér far með
Gullfossi .síðast heimleiðis. Áður
en hann lagði af stað, hafði Morg-
unblaðið tal af honum.
,— Það hefir verið mér óbland-
vísi og listrænu samræmi. Á eg
þar fyrst og fremst við hús eftir
Sigurð Guðmundsson húsameist-
ara.
Um íslenzka málaralist farast
Uttenreitter orð á þessa leið:
Á tiltölulega stuttum tíma hefir
íslenzka þjóðin eignast mjög fjöl-
breytta málaralist, sem sambæri-
leg er nútímalist annara þjóða.
Þegar þess er gætt, hve þjóðin er
fámenn, er það blátt áfram stór
furða, hve mikið hafi hér unnist
á sköminum tíma, eins og sýndi
sig á íslenzku sýningunni, sem
haldin var í Höfn í hitteðfyrra og
síðar í þýzkalandi, þar sem það
kom greinilega í ljós, að íslenzk
málaralist stendur jafnfætis list
nágranna þjóðanna.
Af henni verður og séð, að ís-
lenzkir málarar fylgjast með í því
sem gerist á sviði listarinnar er-
lendis, enda þótt list þeirra ætíð
beri sérkenni hins íslenzka lands-
lags.
Er á það var minst, hvort Utt-
enreitter teldi að á íslenzkri mál-
aralist væri einhver sérkennileg-
ur þjóðlegur blær, komst hann
þannig að orði:
Danski málarinn Giersing sagði
eitt sinn, að öll þjóðleg list væri
lítilsvirði, en öll mikil list væri
þjóðleg. Detta mér þau ummæli
í hug í þessu sambandi. íslenzkir
málarar hafa auðsjáanlega ekki
innilokað sig frá erlendum áhrif-
um, með það eina fyrir augum, að
framleiða eitthvað í “þjóðlegum
stíl”. Og það er vel. En í allri
góðri list, kemur hið þjóðlega í
ljós; þegar málarinn hefir eitt-
hvað verulegt til brunns að bera,
þá kemur það ósjálfrátt fram af
hvaða bergi hann er brotinn.
í íslenzkri náttúru ríkir að
staðaldri fjölbreytni mikil og alls-
konar andstæður. Eins er um ís-
lenzka málaralist. Svo eg taki
dæmi af málurunum tveim, Ás-
grími Jónssyni og Jóni Stefáns-
syni: Ásgrímur málar ljósmikl-
ar, listrænar “impressionistiskar”
myndir, en myndir Jóns eru al-
vörugefnar, stórfengilegar, þar
sem hann dregur höfuðeinkenni
landslagsins fram, svo sérkenni
þess og tign njóti sín sem bezt.
Mjög er það bagalegt fyrir ís-
lenzka listamenn, hve erfitt þeir
eiga með að vera í sambandi við
listamenn annara landa. Þeir
verða að vinna verk sín árum
an, án þess að geta fengið veru-
lega haldgóða ‘Tcrítík” á því, sem
þeir gera.
Það er þeim því hin mesta nuað-
syn, að fá verk sín sýnd við og við
í útlöndum. Þá fá þeir tækifæri
til að fá samanburð á list sinni
og annara, og fá sönnur á, hvar
þeir eru komnir.
Þó íslenzka sýningin í Höfn um
árið væri haldin með liðsinni hins
opinbera, þá get eg fullvissað um
að dómar þeir, er sýningin fékk,
voru ritaðir með það eitt fyrir
augum, að gagnrýna og dæma sýn-
inguna sem réttast. Um hlífð eða
óviðeigandi kurteisi var ekki að
ræða.
SEALED TENDERS addressed to
the undersigned and endorsed ‘‘Tender
for addition to Public Building, Dauphin,
Man," will be received until 12 o’clock
noon (daylight savinff), Tuesday, 8ept-
ember 24, 1929, for the eonstruction of
an addition to the Publlc Building at
Dauphin, Man.
Plans and specification can be seen
and forms of tender obtained at the
offices of the Chief Architect, Depart-
ment of Public Works, Ottawa, the
Resident Architect, Dept. of Public
Works, Customs Building, Winnipeg,
Man, and the Postmaster, Dauphin,
Man.
Blue prints can be obtained at the
office of the Chief Architect, Dept. of
Public Works, by depositing an accept-
ed bank cheque for the sum of $20.00,
payable to the order of the Minister of
Public Works, which will be returned
if the intending bídder submit a regular
bid.
Tenders will not be considered unless
made on the form supplied by the De-
partment and in accordance with the
conditions set forth therein.
Each tender must be accompanied by
an accepted cheque on a chartered
bank payable to the order of the Min-
ister of Public Works, equal to 10 per
cent. of the amount of the tender.
Bonds of the Dominion of Canada or
bonds of the Canadian National Rail-
way Company will also be accepted as
security, or bonds and a cheque if re-
quired to make up an odd amount.
By order,
S. E. O’BRIEN,
Secretary.
Department of Public Works,
Ottawa, August 29, 1929.
Menn þeir, er um sýninguna rit-
uðu í Höfn, eru viðurkendir list-
dómarar.
Hinir góðu dómar, er sýningin
fékk og það frá mönnum, sem
aðhyllast mismunandi stefnur á
list, ættu að geta orðið til allmik-
illar uppörfunar fyrir íslenzka
málara yfirleitt.
Að lokum mintist Uttenreitter^á
það erindi sitt hingað, að undir-
búa bókina um Guðmund Thor-
steinsson.
Eg hefi séð hér ýmislegt, segir
hann, af verkum G.. Th., sem eg
eigi hafði séð áður. Og eg fæ
að ýmsu leyti fyllri skilning á
listarstarfsemi hans, en eg hafði
áður, nú er eg hefi séð landið.
Mest þótti mér vitanlega varið í
að sjá hér í fyrsta sinni aðal-
verk hans, hið stærsta og tilkomu-
mesta, altaristöfluna, “Kristur
læknar sjúka.” Er hún óefað eitt
af mestu verkum íslenzkrar nú-
tímalistar, er verður að varð-
veitast í tilvonandi listasafni rík-
isins, þar sem almenningur getur
fengið tækifæri til að kynnast
henni. Altaristöflu þessa málaði
G. Th. suður í ltalíu skömmu áð-
ur en hann dó. — Mgbl.
Björgunarstöðin í Sandgerði.
Reykjavík, 3. ágúst.
Á sunnudaginn var vígð björg-
unarstöðin í Sandgerði. Hafði
stjórn 'SIysavarnafélagsins boðið
þangað suður eftir, blaðamönnum
og fleirum. Um morguninn var
björgunarbátnum “Þorsteini” sem
gefið hafði Þorsteinn Þorsteins-
son í Þórshamri, siglt suður eft-
ir. Þegar hann kom suður eftir,
fóru til móts við hann sex róðrar-
bátar, flöggum skreyttir. Meðan
á vígsluathöfninni stóð, var bát-
urinn undir sigurboga, er á var
in ánægja, segir Uttenreitter, að
koma hingað til íslands. Eg hefi
fengið tækifæri til að sjá talsvert
af landinu, farið austur fyrir
Fjall, um Borgarfjörð, vestur í
Dali og síðan til Norðurlands með
Gullfossi.
Sérkennilegast við ísland í aug-
um útlendinga, er það, hve til-
breytingar eru hér miklar og
snöggar. í litum landsins, alt
'frá sorta hraunanna,: í hvíta jök-
ulskalla, og í veðráttunni, eins og
t. d. er við sigldum í hráslaga-
veðri gegn um is á Húnaflóa og
inn til Akureyrar, þar sem ríkti
sól og sumarveður. Eg hefi ferð-
ast talsvert um Norðurálfu, en
hvergi séð neitt svipaða náttúru-
fegurð. Fegurð landsins er að
vísu nokkuð þungbúin, en hún er
ekki síður hrífandi fyrir það.
Áður en eg kom hingað, hafði
eg allmikil kynni af íslenzkri mál-
aralist, en eg skil hana enn betur,
eftir að eg hefi kynst landinu.
í hin stórfengilega umhverfi ís
lenzkrar náttúru, er einkennilegt
að sjá bæ eins og Reykjavík. Hér
ber sem kunnugt er, mest á báru
járni, járnbentri steinsteypu og
þakpappa, og er mest af þessum
nýtízkubyggingarefnum notað, án
Jjess að gerð sé nokkur alvarlegi
tilraun til að fá samræmi og list-j
rænan svip á húsin.
Þó vil eg taka það fram, að
innan um alt bárujárnið og bygg-
ingakumbaldana, koma menn auga
á hús, sem teiknuð eru með smekk
VERULEG KJÖRKAUP
Hin nýja
ROYAL PRINCESS
RAF HREINSUNARYÉL
Með áhöldum til að vaxbera og
og fægja gólf fyrir
$49.50 út í hönd
eða
$1.00 út í hönd og $1.00 á viku
(Mánaðarborganir ef óskað er),
Lítill auka-kostnaður ef borgað er
smátt og smátt
Hreinsunaráhöld $8.50 aukreitis
Skoðið þessa undravél í
Hydro búðinni, 55 Princess Street.
Sjáið hvernig hún vinnur.
WínnípeöHiidro. ph«ne
848 133
55-59 IgaíPRINCESSST.
Fishermen’s Supplies Limited
Umboðsmenn fyrir—
Tanglefin Fiskinet, tilbúin af National Net and Twine Co.
Brownie kaðla og tvinna.
Vér höfum í Winnipeg birgðir af
Tanglefin Fiskinetjum, með lögákveðinni möskvastærð.
Maitre kagla og tvinna.
Kork og blý.
Togleður fatnað.
Komið og sjáið oss, þegar þér komið til Winnipeg, eða skrif-
ið oss og vér skulum senda yður Verðlista og sýnishorn.
Fishermen’s Supplies Limited
401 Confederation Life Bldg. Winnipeg. Sími 28 071
CUNARD LINE
1840—1929
Elzta eimskipafélagið, sem siglir Canada.
1M53 Jupcr At«.
KDMONTON
1M Plnder Block
SASKATOON
4*1 Lancaeter Bldj.
CALGARY
270 Maln St.
WINNIPEG, Man.
34 Welllnftton St. W.
TORONTO, Ont.
227 St. Sacrament St.
Cunard Hnan veitir ágætar sam-
göngur milli Canada og Noregs, Sví-
þjóðar og Danmerkur, bæði til og frá
Montreal og Quebec.
Eitt, sem mælir meö því að ferðast
meiS þessari línu, er þaö, hve þægilegt
er að koma viS í London, stærstu borg
heimsins.
Cunard línan hefir sérstaka inn-
flutningaskrifstofu í Winnipeg, fyrir
Norðurlönd. Skrifstofustjórinn er
Mr. Carl Jacobsen, sem útvegar bænd-
um íslenzkt vinnufólk vinnumenn og
vinnuíkonur, eða heilar fjölskyldur.—
Það fer vel um frændur yðar og vini,
ef þeir koma til Canada með Cunard
línunni.
SkrifiS á yðar eigin máli, eftir upp-
lýsingum og sendið bréfin á þann stað,
sem gefinn er hér að neðan.
ÖHum fyrirspurnum svarað fljótt
og yður að kostnaðarlausu.
Osi
letrað: “Velkominn, Þorsteinn,
fylgi þér gæfan”. Skýli það, sem
bátnum er ætlað, er stór, járn-
klæddur timburskúr, með dyrum
á báðum göflum.
Vígslu-athöfnin hófst kl. 2 og
talaði þá séra Eiríkur Brynjólfs-
son. Næstur talaði Þorsteinn Þor-
stöinsson og afhenti björgunar-
stöðinni bátinn. Magnús Jóns-
son, bæjarfógeti, mælti fyrir
minni hjónanna í Þórshamri, Þor-
steins Þorsteinssonar og konu
hans. Sungið var kvæði, er ort
hafði Ágúst Jónsson, og stjórnaði
Matthildur Finnsdóttir söngnum.
Kl. 6 hófst guðsþjónusta undir
berum himni og talaði séra
Brynjólfur Magnússon í Grinda-
vík. Að lokum talaði formaður
Slysavarnafélagsins, Jón Berg-
sveinsson. Að öllu var vígsla þessi
hin ánægjulegasta. — Vörður.
SEALED TENDERS addressed to the
underslgned and endorsed “Tender for
Public Building, Gretna, Man.,” will be
received until 12 o’clock noon (daylight
saving), Friday, September 13, 1929,
for the construction of á Public Building
at Gretna, Man.
Plans and specifications can be seen
and forms of tender obtained at the of-
fices of the Chief Architect, Depart-
ment of Public Vgorks, Ottawa, the
Resident Architect, Customs Bldg., Win-
nipeg, Man., and the Postmaster,
Gretna, Man.
Tenders will not be considered unless
made on the forms supplied by the De-
partment and in accordance with the
conditions set forth therein.
Each tender must be accompanied by
an accepted cheque on a chartered bank
payable to the order of the Minister of
Public Works equal to 10 p.c. of the
amount of the tender. Bonds of the
Dominion of Canada or bonds of the
Canadian National Railway Company
will also be accepted as security, or
bonds and a cheque if required to make
up an odd amount.
By order,
S. E. O'BRIEN,
Secretary.
Department of Public Works,
Ottawa, August 23, 1929.
■MARTIN & CO..
Nýjir kjólar
fyrir haustið
Verðið eins lágt og verið getur.
Hœgir borgunarskilmálar
Tilbúnir úr Satin, Georgettes og
Crepes de Chine.
Ghic gerð.
$12.75 $15.75
$19.75 $24.75
Það er þægilegt að borga smátt
og smátt.
FALLEGAR
Skreyttar YFIRHAFNIR
fyrir haustið
$19.75 til $97.50
Nú er tími að velja sér yfirhöfn.
Vér höfum gott úrval af
FUR-YFIRHÖFNUM
Goat, Wambat, Muskrat, Electric
og Hudson Seal.
$65 til $350
10% niðurborgun. Afgangurinn
í litlum mánaðar- eða viku-borg-
unum. — Furkápunum haldið við
kostnaðarlaust í heilt ár.
Því ekki að fá yfirhöfnina strax, rneðan úr miklu er að
velja, þar sem þér þurfið ekki að borga fyrir hana út í hönd?
Búðin opin til kl. 10 á laugárdögum.
MARTIN & CO
EASY PAYMENTS LTD.
2nd Floor Wrpg. Piano Bidg. — Portage and Hargrave
V