Lögberg - 05.09.1929, Síða 8
Bls. 8.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. SEPTEJVIBER 1929.
Betra haframjöl og betra postulín í
hinum nýju “Double-Sealed” pökkum
Robin Hood
Rapid Oa
Ur bænum
Skáldkonan, Mrs. iLaura G. Salv-
erson, hefir verið stödd í borg-
inni síðan fyrir helgina.
Sjúkrasjóðstombóla stúkunnar
Heklu No. 33, verður að öllu for-
fallalausu haldin mánud. þann 7.
okt. n. k.í Nánar auglýst síðar.
Mr. og Mrs. G. J. Oleson, Glen-
boro, Man., voru í borginni á
sunnudaginn.
Séra K. K. ólafson, forseti
kirkjufélagsins, og frú hans,
leggja af stað í dag, miðvikudag,
'heimleiðis frá Reykjavík, eftir
því sem frézt hefir.
Mr. og Mrs. O. Anderson, Bald-
ur, Man., voru stödd í borginni í
vikunni sem leið.
Mr. Hjörtur Lárusson, hIjóm-
fræðingur frá Minneapolis, hef-
ir verið í borginni nokkra undan-
farna daga.
Mrs. M. W. Dalman, pianokenn-
ari, að 778 yictor St., er nú byrj-
uð að kenna á ný, og tekur á móti
nemendum að heimili sínu. Sími:
22 168.
Messuboð 8. sept. 1929 — Að-
Elfros (á ensku)i kl. 11 f. h. og
Hólar (á íslenzkuji kl. 3 e. h. og
að Elfros (á ensku) kl. 7.30 e. h.
Allir boðnir og velkomnir. — Vin-
samlegast Carl J. Olson.
Stúkan Skuld No. 34, I.O.G.T.,
efnir til sinnar árlegu tombólu
fyrir sjúkrasjóð stúkunnar, sem
haldin verður mánudaginn 23. þ.
m. Allir meðlimir stúk. eru bróð-
urlega ámintir um að aðstoða
nefndina, sem kosin hefir verið,
til að standa fyrir tombólunni,
með allri hjálp eg liðveizlu, sem
hver og einn getur veitt. Nánar
auglýst síðar um alla þá kjðr-
drætti og kjörkaup, sem verða á
Skuldartombólu *23. sept. næst-
komandi. Munið því eftir degin-
um 23. þ.m. Nefndin.
Mrs. William Eccels frá Lund-
ar, Man., hefir dvalið í borginni
nokkra undanfarna daga, í heim-
sókn til vina, og ættingja. Hún
hélt heimleiðLs á þriðjudaginn.
Miss Matthildur Halldórsson
fór norður til Lundar á þriðju
daginn og ráðgerði að dvelja þar
um þriggja vikna tíma.
Séra Haraldur Sigmar messar
að Gardar kl. 11 f.h. á sunnudag-
inn 8. sept., Eyford kl. 3 e.h. og
í Vídalínskirkju kl. 7.30 e. h., ensk
messa.
Mrs. W. J. Hellis, frá Killarney,
Man., kom til borgarinnar síðast-
liðið mánudagskvöld, og dvaldi
hér fram á laugardagsmorguninn.
Mrs. Hellis var áður María Björn-
son frá Cypress, Man.
Látið ekki hjá liða að fjölmenna
á hljómleika þá, sem hr. Tryggvi
Björnsson efnir til í Fyrstu lút-
ersku kirkju* þann 10. þ.m.
Mjiðvikudag, 21. ág., andaðist
Soffía Theodora Einarsdóttir á
heimili bróður síns, Johephs Ein-
arssonar nálægt Hensel, N. Dak.
Var hún 84 ára að aldri, og hafði
síðustu árin verið mjög heilsu-
biluð. Soffía hafði aldrei gifst.
Var fædd í Skriðdal í Suðurmúla-
sýslu, og fluttist til Ameríku 1886.
Vann fyrir sér framan af, fór í
húsmensku hjá Joseph bróður sín-
um fyrir mörgum árum. Síðustu'’
árin hefir Jóhanna dóttir Josephs
séð um hana og stundað af mikilli
alúð. Hún var jarðsungin í graf-
reit Vidalínssafnaðar föstudaginn
23. ágúst.
Sýningin.
Á þriðjudagskveldið í þessari
viku feldi borgarráðið í Winnipeg
þá tillögu frá fjármálanefndinni,
að afhenda sýningarnefndinni
Iandspildu þá í Kilonan, sem
gjaldendur bæjarins ákváðu, í vor
með atkvæðagreiðslu, að skyldi^
tekin fyrir væntanlega sýningu í
Winnipeg. Féllu atkvæðin þann-
ig, að átta greiddu atkvæði með
tillögunni, en níu á móti, og var
hún þar með feld. Alljr hinir svo
nefndu “Labor” bæjarráðsmenn
greiddu atkvæði gegn tillögunni
og þar að auki þeir T. Boyd og J.
Fred. Palmer. Þetta þýðir vafa-
laust, að ekkert verður meira úr
þessu sýningarmáli fyrst um sinn.
WONDERLAND
Cor. Sargent
and Sherbrook
Doora Open
Daily 6.30
Sat. 1.00 p.m. v ■ W ■ ■ ^ ■■■■■■ ■"■ ■ ■ M0 •
WINNIPEO’8 COSIE8T NEIOHBORHOOD THEATRE.
Mon. - Tues. - Wed.- (Next week)
NANCY CARROLL
»
Thur. - Fri. - Sat. (This Week)
GLENN TRYON in
“IT CAN BE DONE
MONTE BANKS in
“FLYING LUCK”
Comedy—“FISHING POOL”
FINAL RECKONING, 6th Chapter.
((
BUDDY (Chas.) ROGERS
ABIE’S IRÍSH ROSE”
MANCHU LOVE
(In natural Colors)
A Heart Throbbing Romance!
A Real Treat.
Smjör frá Manitoba hefir feng-
ið mörg verðlaun á sýningunni í
Toronto, og bendir það á, að
Manitobabúar séu smjörgerðar-
menn miklir. Það vekur sérstak-
lega eftirtekt, að smjörgerðarhús-
ið á Lundar, The Maple Leaf
Creamery, hafði þar fjóra sýning-
armuni smjörs, og fékk fyrstu
verðlaun fyrir þá alla. Smjör-
gerðarhús þetta er eign íslend-
inga og hafa þeir stjórnað því ein-
göngu alt frá byrjun.
Mr. og Mrs. Alex Johnson komu
heim til borgarinnar síðastliðið
laugardagskveld, úr ferðalagi suð-
ur um Bandaríki. Dvöldu þau
meðal annars nokkra daga í New
York.
Heimkoma
Vestur-“lslendinga”
Menn hafa staðlð á öndinni af
hrifningu, síðan hinir ágætu sendi-
herrar Vestur-“lslendinga” voru
hér á ferðinni í vetur, af því þeir
höfðu góð orð um að gefa 400 rúm
í Landspítalann, fyrir að fá að
sofa þar sjálfir. Nú er upplýst,
að hinn margumtalaði ríkisstyrkur
þeirra vestra, sem alt komst í bál
og brand út af, er veittur til þess
að þeir geri reklame fyrir Mani-
toba, og lokki íslendinga þangað.
Auðvitað dettur oss ekki í hug, að
Bíldfell hreyfi hönd eða fót til
þeirra hluta, heldur hafi loforð
hans um það verið vanalegt Ame-
rican bluff. En er þá ekki ástæða
til að halda, að spítala-rúmin sé
annað bluff-ið frá? Vitaskuld
mætti líka hugsa sér, að ríkis-
styrkurinn eigi að ganga einmitt
fyrir rúmin. Er þá vonandi, að
sjúklingunum sofnist vel í þeim,
ef þau reynast þannig fengin. —
Spegillinn, Rvík 29. júní 1929.
Hvaða dýr er sterkast?
Það er fíllinn! munu líklega
flestir halda. Það getur nú verið
sönnu næst. En ef aflið er mælt
í hlutföllum við þunga dýrsins,
þá verður annað ofan á. E.f svo
er látið teljast til, að dýrið dragi
eitt pund móti ihverju einu pundi
af þunga sínum,, þá verður hest-
urinn fremstur í flokki dýranna.
Hesturinn dregur 1% pund á móti
hverju einu pundi af þunga sín-
um; næstur honum gengur úlf-
aldinn, hann dregur % úr pundi.
Fíllinn er þriðji í röðinni, og þar
næst uxinn. Ef vér færum oss
lengra niður eftir, þá kemur það
upp, að aflið vex að því skapi, sem
dýrið er smærra. Smádýr eins og
rottur, kanínur og því um líkt, eru
að tiltölu miklu sterkari en fíll-
lnn. Skordýrin eru enn sterkari
að tiltölu. Maurinn getur borið
margfalda þyngd sina og flóin
stokkið 100 sinnum hæð sína. —
Hmbl.
Canada
Mánudaginn 29. júlí andaðist
Sigríður Magnúsdóttir, eiginkona
Kristjáns Björnssonar frá Klúk-
um í Eyjafirði. Sigríður var sjálf
einnig ættuð úr Eyjafirði. Hún
dó á heimili tengdasonar og dótt-
ur, Mr. og Mrs. G. F. Björnson við
Mountain, þar sem hún hafði
dvalið nærfelt öll síðustu 20 ár-
in. Kristján, seinni maður henn-
ar, lifir hana, há-aldraður og
blindur nærfelt síðustu 20 árin.
Sigríður var lengi framan af
hraust, en síðari árin var heilsa
hennar mjög þrotin og síðasta
árið var hún blind. Hún kom til
Ameríku 1876. Hún var dugnað-
arkona, góðgjörn og hjálpfús.
Hún var jarðsungin í Mountain-
grafreitnum 1. ágúst af sóknar-
prestinum, séra H. Sigmar.
Wonderland Leikhúsið.
Leikurinn, sem sýndur verður á
Wonderland leikhúsinu þrjá
fyrstu dagana af næstu viku,
“Abie and His Irish Rose”, er
jafnvel óvanalega skemtilegur og
fallegur. Flestir eða allir leik-
endurnir leysa hlutverk sín prýð-
isvel af hendi. Fólk ætti ekki að
sitja sig úr færi að sjá þessa
mynd.
Skógareldar og sléttueldar mikl-
ir hafa nú að undanförnu gengið
víða í Manitoba fylki og einnig í
norðanverðu Ontario og Saskat-
chewan. Hvað Manitoba snertir,
eru eldarnir aðallega í norðan-
verðu fylkinu, en ná þó á sumum
stöðum all-langt suður eftir.
Undanfarna daga hafa t. d. verið
miklir eldar rétt vestan við Win-
nipeg Beach, og um helgina, var
mikill reykur í Winnipeg, sem
stafaði af skógareldunum. Nú að
undanförnu hefir fjöldi manna
verið að vinna að því, á mörgum
stöðum í fylkinu, að varna út-
breiðslu eldanna og gera alt sem
hægt hefir verið til að varna því,
að þeir kæmist að bæjum og
bændabýlum. Mun það hafa hepn-
ast furðanlega, þó þeir hafi hins
vegar gert mikinn skaða á engj-
um og ökrum auk skóganna. í
dag, þriðjudag, er mikil rigníng,
og hjálpar það vonandi til að
draga úr eldunum.
* * *
Byggingaleyfi gefin út í Win-
nipeg á þessu ári, námu um mán-
aðamótin síðustu $8,957,700, og
er það $921,800 meira en í fyrra í
ágústmánaðarlok. Talið er áreið-
anlegt, að töluvert meira en tíu
miljónum dollara verði varið til
bygginga í Winnipeg, áður en ár-
ið er úti.
Geðsmunir dýra.
í dýragarðinum í Lundúnum er
kvenapi einn, sem gæzlumennirn-
ir eru í stökustu vandræðum með.
Hún vill ekki giftast fyrir nokk-
urn mun. Af ofsafengnum geðs-
munum sínum, er hún nefnd Grýla.
Grýlu hafa verið sýndir margir
fríðir karlapar; og gæzlumennirn-
ir hafa neyðst til að hætta við
bónorðið, því annars hefði lífi
biðlanna verið hætta búin. Einu
sinni komu þeir sérlega geðsleg-
| um og vel vöxnum karlapa í næsta
: klefa við Grýlu; en þá stakk hún
! krumlunni út á millL rimlanna og
j reif handfylli sina af hári úr höfði
j hans í einu hendingskasti og ygldi
I sig svo ógurlega, að gæzlumenn-
| irnir urðu að flytja veslings bið-
ilinn burtu hið fljótasta.
Samt hefir það komið fyrir, að
þau dýr hafa tekið saman, sem
virtust vera hin ólíkustu til góðr-
ar sambúðar. Pauper-dýrið er
orðlagt fyrir eitthvað annað en
friðsemi, og Pauper-hjón ein eru
hinar ruddalegustu skepnur, sem
nokkurn tíma hafa verið haldnar
í dýragarðinum í Lundúnum. Eru
þau kölluð Satan og Maud. Það
var einmitt þess vegna, að gæzlu-
mönnunum, þóttu þau eiga vel
saman. Ef þau dræpu ekki hvort
annað í fyrsta skifti, er þeim væri
hleypt saman, þá mundi samlíf
þeirra verða gagnlegt fyrir þau
bæði. Nu voru dyrnar opnaðar
milli búranna og þá hófust nú
hveitibrauðsdagarnir fyrir þeim.
Karlinn be renn á sér sársmerkin
eftir fyrsta fundinn, og loðfeld-
urinn á kerlingunni var lengi á
eftir með svörtum og rauðum
skrámum þvert og endilangt. —
En eftir fyrsta kastið, sem var ó-
fagurt, fóru þau að bera virðingu
hvort fyrir öðru og svo innsigluðu
þau heimilisfriðinn með ofurlitl-
um, svörtum pauper-ketling. —
Gæzlumennirnir þorðu ekki að
gefa þ^im báðum samtímis, því
það hefði orðið ofraun rándýrseðli
þeirra. — Hmbl.
RAGNAR H. RAGNAR
PIAN0KENNARI
Nemendur, er njóta vilja pianokenslu hjá Ragnari
H. Ragnar, geta byrjað nú þegar.
Nemendur búnir undir öll próf, bæði byrjenda-
próf og A. T. C. M.
Ragnar H. Ragnar var fyrrum kennari við Páls-
son’s Academy of Music, og hefir nú í þrjú ár verið
nemandi Eva Clare.
Allar upplýsingar gefnar að
Kenslustofu, 693 Banning Str.
Phone 34 785
Guðrún S. Helgason, A.T.C.M.
kennari í
Píanóspili og hljómfræði
(Theory)«
Kenslustofa:
540 Agnes St. Fónn; 31 416
PRINCESS FLOWER SHOP
Laus blóm—Blóm í pottum
Blömakraut fyrir öll tækifæri
Sérstaklega fyrir jaröarfarir.
COR. SARGENT and VICTOR
Phone 36 102
Eitthvað
fyrir ekkert
Hann fann tíu dollara gull-
pening fjnrir átta árum, en
síðan hefir hann engan
fundið og ef alt fer eins og
vanalega gengur, kemur það
ekki aftur fyrir.
Hann segir, að þetta hafi
orðið sér dýrkeypt reynsla.
Kom honum til að treysta á
lukkuna. / Hann tapaði átta
dýrmætum árum og komst að
þeirri niðurstöðu að heimsk-
ingjar einir treysta á lukk-
una. Hinir hygnu spara.
Sparið peninga yðar hér.
Province of Manitoba
Savings Office
Donald and EHice
and 984 Main St.
Mannfagnaður
í Portland, Oregon.
Þann 18. ágúst siðastliðinn,
söfnuðust saman íslendingar í
Portland, Oregon, til þess að
minnast íslands, uppruna síns og
ættar. Hartnær hálft annað
hundrað manns, mun hafa sótt
mót þetta, er sagt er, að verið
hafi i alla staði ánægjulegt. Voru
þangað komnir gestir frá Tacoma,
Everett og Seattle.
Ræður fluttu þeir séra B. Jó-
hannson og Barði G. Skúlason,
lögmaður. Auk þess fóru fram
margskonar íþróttir, er margir
tóku þátt í.
Þess skal getið, að við þetta
þetta tækifæri gaf Mr. Skúlason
íslendingafélagi þessu, gJæsileg-
an íslenzkan fána. — Stjórn ís-
lendingafélagsins i IPortland, er
nú þannig skipuð: W. A. Albert,
forseti; Mrs. Zeuthen, skrifari;
Mrs. Layman, Mrs. Tonwsend og
séra B. Jóhannsson.
SAFETY TAXICAB C0. LTD.
Beztu bílar í vcröldiuni
Til taks dag og nótt. Sann-
gjamt verð. Sími, 23 309.
Afgreiðsla: Leland Hotel.
N. CHARACK, forstjóri.
Björg Frederickson
pianokennari
byrjar aftur kenslu 4. sept.
Nemendur búnir undir próf.
Telephone: 35 695
NEW H0MES
Sherburn St. near Sargent.
5-room stucco bungalows; beautiful
and artistic in design; oak floors and
finish, recess bath and tile floor in bath-
room; all the latest features; guaran-
teed to be well built and warm. Prices
$4,950 to $5,500. Easy terms.
A two-story residence, 6 spacious
rooms and a heated sunroom; the best
house that you can buy in the district.
Exceptional value at $6,400. Terms;
650 cash, $60 monthly.
We also have some very attractive 5
and 6-room homes on Oxford St., River
Heights. Prices ranging from $5,500
to $6,800.
SIGMAR, JACOBSON AND CO.
Owners and Builders.
Phone 89 081 978 Ingersoll St.
EKKI OF SEINT
Dragið ekki að kaupa
kæliskáp, bara af því
að sumarið er bráðum
á enda. Kæliskápur er
nauðsynlegur á öllum
tímum árs, og verðið
er svo lágt og borgun-
arskilmálar svo "hægir,
að það er óafsakanlegt
að vera án hans. Símið
og spyrjið um verðið.
RCTIC
ICEsFUELCai
459P0RTACIML
QwwN Huéiotr*
PHONE
42321
EF ÞÉR hafið í hyggja að byggja, þá tryggið yður hjá osí
TIMBUR
The McArthur Lumber & Fuel Co., Ltd.
Cor. Princess and Higgins Ave., Winnipeg. Sími 86 619
Gert í Winnipeg
Allar tegundir af rafáhöldum fyrir heimilið. Einnig
allskonar aðgerðir. Hlutir silfraðir og nickel litaðir.
SÍMI: 24 267 .
GARRY ELECTRIC FIXTURE CO., LIMITED
120 LOMBARD ST. - WINNIPEG
Open at 6.30 p.m.
Saturday l p.m.
- ROSE -
We.t Enda
Fineat Theatre
THUR. - FRI. - SAT. (This Week)
DON’T MISS
ii
99
IN OLD ARIZONA
100% Talkinrj Feature
with
EDMUND LOWE and
WARNER BAXTER
SPECIAL ADDED ATTRACTION
SAT. MATINEE ONLY
TOM MIX
“SKY HIGH”
SERIAL
COMEDY
MON., TUES., WED. (Next week)
“A BIG SPECIAL”
Starring
JACK HOLT and
DOROTHY REVIER
in
“FATHER & SON
»»
A Talking Feature
A Picture No One Can Afford to Miss
Also—
COMEDY
NEW8
100 herbergi,
með eða án baðs.
Sanngjarnt
verð.
SEYMOUR HOTEL
Sími: 28 411
Björt og rúmgóð setustofa.
Market og King Street,
C. G. Hutchison, eigandi.
Winnipeg - Manitoba
Eina hótelið er leigir herbergi
fyrir $1.00 á dag. — Húsið eld-
trygt sem bezt má verða. —
Alt með Norðurálfusniði
CLTJB HOTEL
(Gustafson og Wood)
652 MalnSt. Wlnnipeg
Ph. 25 738. Skamt norðan við
C.P.R. stöðina. Reynið oss.
FUNDARB0Ð
Með því að íslendingadagsnefndinni hafa borist raddir
um það, að efnt muni verða til hátíðahalds hér vestra um
sama leyti og þúsund ára minningarhátíð Alþingis stendur
yfir heima á íslandi 1930, þá álítur hún það skyldu sína, að
boða til fundar í Goodtemplarahúsinu 12. september kl. 8 e. h.,
til að leggja þetta mál fram fyrir almenning.
Nefndin vill því biðja alla íslendinga, sem áhuga hafa
fyrir þessu máli, að mæta á fundinum, svo hægt verði að taka
ákvarðanir til undirbúnings sem allra fyrst.
Æskilegt væri, ef íslendingar í nærliggjandi bygðum, sem
hefðu löngun til samvinnu viðvíkjandi hátíðahaldinu 1930,
sendi erindsreka á þennan fund.
J. J. Samson, forseti.
Sig. Björnson, ritari.
Sumar og Vetur
Maturinn ætti æfinlega að vera geymdur þar sem hitinn
er mátulegur, vegna þess, að þannig er hann hollastur.
Heilsan er fyrir öllu, en hitt er líka þýðingarmikið, að þér
sparið peninga með því að geyma matinn eins og vera ber. í
KELVINATOR KÆLISKÁP
Það borgar sig fljótlega.
Skoðið þá í vorri nýju áhaldabúð í
POWER BUILDNIG, Portage oá Vauéhan
Seldir með hægum borgunarskilmálum.
Komið í búðina í Power Building, Portage Ave., eða 1
búðir vorar að 1841 Portage Ave., St. James, og Morion og
Marion og Tache St., St. Boniface.
WIHHIPEG.ELECTRIC
COMPAHY-
“Your Guarantee of Good Service.’
Business Training Pays—
especially
Success Training
More than 2700 employment calls for our graduates were
registered with our Placement Department during the
past twelve months, and more than 700 in May, June
and July of this year.
Fall Term opens August 26th
DAY AND EVENING CLASSES
If you cannot enroll tlien you may start at any time.
Our system of individual instruction makes this possible.
WRITE, PHONE OR CALL
Corner Portage Ave. and Edmonton St.
WINNIPEG MANITOBA
5SÍS555555555S5555555S55555555555555555555555555555555555555555*