Lögberg - 31.10.1929, Side 2
Bls. 2
LÖGBJEJRG, FIMTUDAGINN 31. OKTÓBBR 1929.
Bamadagurinn í
Eftir ísak Jói
Hvaða dagur er í dag?
Hvers vegna eru allir sporvagn-
ar og flestir bílar skreyttir flögg-
um? Af hverju er Kóngsgatan
skreytt enda á milli? Og hvi eru
skipin á höfninni svo skrautbúin
í dag?
Eitthvað á þessa leið varð mér
að spyrja sjálfan mig, er eg kom
út á götur Gautaborgar að morgni
hins 7. september siðastl. haust.
Það var flest, sem fékk ferðalang-
inn til að sperra eyrun og hvessa
sjónir sínar. Veðrið vakti jafnvel
athygli. Það hafði verið svo ó-
notalegt og úrilt alt sumarið. Nú
helti sólin geislaflóði sínu yfir
þessa borg Gautanna og haust-
golan dró andann í runnum og
rjóðrum.
Eg gekk ekki lengi duilnn þess,
sem öllum bar að vita. Dagblöðin
sögðu það, og margt annað stað-
festi frásögn þeirra. “Barnadag-
urinn” var runninn upp.
En í Gautaborg voru það nú
reyndar þrír dagar í röð, 7., 8. og
9. september. Á “barnadaginn”
er gengist fyrir fjársöfnun, fá-
tækum börnum til hjálpar og upp-
eldis. Allar borgir á Norðurlönd-
um hafa slíkan dag — eða daga —
einhvern tíma á árinu. Um þörf-
ina dettur engum í hug að deila.
Að því starfa menn samtaka og ó-
skiftir — allir eitt. Allir, yngri
og eldri, keppast um að hjálpa
þessum afskiftu nýgræðingum
þjóðfélagsins. Menn vita sem er,
að þaðan geta einnig komið kapp-
ar og kvenskörungar, sem birtast
þegar þeirra vitjunartímí er kom-
inn og borga þá þjóðfélaginu
skuldina með margföldum rentum.
í Gautaborg gengst “Félag
barnadagsins” fyrir þessu hjálp-
arstarfi. Hyggi maður að þeim,
sem stýra þessu félagi, og sjá um
framkvæmdir, sést, að þar eru
engir aukvisar að verki. Þar get-
ur að líta ekki minni menn en
þrjár nafnkunnar konur, fræðslu-
málastjóra borgarinnar, prófess-
or, rektor, skólastjóra, ritstjóra,
byggingameistara, prest o. s. frv.
En félag þetta er stutt af öllum
almenningi og flest atvinnufyrir-
tæki borgarinnar veita því mikla
hjálp.
Víkur nú sögunni aftur til barna-
dagsins, sem hér verður sagt frá.
Bezt mun að fara að ráðum Karls
Friðriksonar, skólastjóra við Nord-
skólann í Gautaborg. Hann er
einn í stjórn félagsins, og telur
hyggilegast að heimsækja skrif-
stofu barnadagsins. Þegar þang-
að kemur, eru annir svo miklar,
að afgreiðsla fæst ekki strax.
Meðan beðið er, gefst kostur á að
gefa gætur að því, sem þarna fer
fram. ótal símar eru í gangi, og
hafa þeir, sem við þá eru, nóg á
sinnj könnu. Fólkið streymir inn
og út. í þessum fólksstraum má
sjá börn, verzlunarskólanemend-
ur, mentaskólanemendur, stú-
denta, að ógleymdum öllum ungu
og fallegu stúlkunum. Alt er fólk
þetta að bjóða þjónustu sína,
taka merki til sölu o. s. frv.
En nú kemur skrifstofustjórinn,
Harry Holmquist rektor. Hann er
alúðlegur og greinir frá öllu þvi,
sem mann fýsir að vita um þetta.
Skemtanir barnadagsins eru
tvennskonar, úti- og inniskemtan-
ir. Framan af annaðist félagið
báða þessa skemtiliði. Nú er það
orðin venja, að ýms atvinnufyrir-
tæki borgarinnar annast útiskemt-
anirnar, sem fara fram á götum
borgarinnar. Inngangseyrir er
þar enginn greiddur, en þó er
vissara, að vera við öllu búinn og
hafa budduna í réttum vasa og
einhverja aura í henni. Mun ferð-
in þá síður verða tafin af allskon-
ar aðvífandi freisturum. Stjórn
barnadagsins hrósar happi yfir að
hafa komið þessum lið skemtun-
arinnar yfir á hin ýmsu atvinnu-
fyrjrtæki, en á hinn bóginn mega
atvinnufyrirtækin vel við una,
því að á þessum degi gefst þeim
kostur á að vekja athygli á sér
með auglýsingum, sem koma jafn-
an flatt upp á áhorfendur. Gera
þeir þetta oftast með skrúðfylk-
ing allskonar farartækja, bif-
reiða, hestavagna o. s. frv. Far-
artæki þessi eru skreytt af hug-
kvæmni og smekkvísi eigenda. Er
um það eigi lítil kepni, hver veki
mesta athygli. Þessum farartækj-
um er svo ekið í endalausri lest
um aðalgötur borgarinnar og á-
horfendur skifta tugum úsunda.
En þetta kemur sér vel og er yieð
ráði gert, því að stjórn barnadags-
Gautaborg 1928
ison, kennara.
ins lætur- selja merki o. fl. á göt-
um úti. Er þá gott að geta lagt í
hópinn og haft sem flesta í höggi.
Inniskemtanir allar sér stjórn
barnadagsíns um. Eru t. d.
hljómleikar, dansleikar o. f.l En á
Liseberg, aðal skemtistað borgar-
innar, (Tivoli Gautaborgar), á
stjórn félagsins beinan og óbein-
an þátt í ýmsum skemtunum inni
og undir beru lofti. Auk þess
leggja leikhús, kvikmyndahús,
danshallir og aðrir skemtistaðir
borgarinnar nokuð af mörkum til
dagsins. Inngangseyrir þar kost-
ar jafnan nokkuð meira barnadag-
inn, en helmingur hreins ágóða
rennur til dagsins. Kaffihús sjá
múgnum fyrir likamlegum þörf-
um. Láta þau ekkert sparað til
að hæna fólk að þennan dag og
nokkuð af hreinum ágóða dagsins
gengur til barnadagsins. Þá held-
ur félagið hlutaveltur og rekur
happadrætti.
Þegar skrifstofustjórinn hefir
lokið máli sínu, fær hann mér
spjald, sem veitir aðgang að flest-
um skemtunum barnadagsins. Eg
læt auðvitað í veðri vaka, að eg
geti keypt mig inn, til þess að
styrkja þetta málefni. En það er
ekki við það komandi. “Gestur úr
fjarlægu frændlandi er sjálfsögð
undanatekning”, segir hann, og
kveður hlýlega. Eg flýti mér út
í sólskinið — út í streymandi líf-
ið. ,‘Og einmitt í því að komið er
út, fara um götuna einkennisbún-
ir kallarar, ríðandi á hestum.
Kalla þeir hástöfum í horn sín svo
að undir tekur í höllum og hreys-1
um. Þeir eru að boða komu barna-
dagsins.
Frá hátalara við eitt aðaltorg
borgarinnar heyrist raust eins há-
skólakennara, sem tjáir í stuttri
ræðu tilgang hátíðahaldanna. —
Sýndi hann fram á, hve göfugt
það væri að starfa fyrir þetta mál-
efni og taldi það eitthvert mesta
gæfumerki einstaklinga og þjóða,
að minnast smælingjanna.
Nú var orðinn uppi fótur og
fit í borginni. Alt var á ferð og
flugi. Það er ekkert áhlaupaverk
að alnboga sig áfram í mann-
þrönginni. Þó verður ekki þver-
fólað fyrir fólki, sem er að selja.
Bezt er að kaupa strax merki og
næla því samstundis á sig, til þess
að hafa frið. Þó nægir þetta ekki
altaf.
Börn, búin eins og .Indíanar,
birtast svo óvart í mannþrönginni,
að maður rekur upp stór augu.
Þau ráðast ófeimin að hverjum
sem er, eru kæn og fylgin sér.
Eg vil minnast hér á einn slík-
an “Indíana” dreng. Hann vatt
sér að mér og bauð mér merki
barnadagsins. “Eg er búinn að
kaupa fjögur merki, eins og þú
sérð,” sagði eg. “Já, en það er
bara eitt eftir,” segir drengur.
Eg leit í kassann hjá honum, sá
að þetta var rétt og keypti merk-
ið. En eg gat ekki varist brosi,
þegar eg sá, að snáði lék sömu
brellu við þann næsta • og þar
næsta. Hafði hann aldrei nema
eitt merki í kassanum í einu, en
fiskaði viðbótina í forðabúri, er
hann bar í barmi sínum. Má ætla,
að drenghnokki þessi verði ein-
hvern tíma liðtækur kaupmaður,
En í þetta sinn var það Bamadag-
urinn, sem mataði krókinn af við-
skiftakænsku hans. Fleiri munu
og hafa unnið vel, því að merkin
seldust upp á öðrum degi.
En sagan er ekki hálfsögð. Á
hverju götuhorni eru ungar blóma
rósir í þjóðbúningi. Þær standa
við kút, sem í eru hlutaveltumið-
ar. “Þær hafa nóg á kútnum þess-
ar”, varð manni ag hugsa, er þær
hvöttu vegfarendur til að freista
gæfunnar, með einbeitni, sem fer
ungum stúlkum vel. Eg vil kaupa
af þessari, sem stendur þarna við
brúna. Mér lízt bezt á hana. Hún
segir, eins og reyndar allar hinar,
að það séu aðeins vinningar eftir.
En eg hugsa, að hún segi satt
þessi. Og Ijvernig væri annars sá
maður gerður, sem ekki vildi þá
vinna til þess að verða 2 krónum
fátækari fyrir það að fá að tala
við þessa yndislegu stúlku um
stund?
En satt að segja, þá höfðu pilt-
arnir engan frið á sér þennan
dag. Ungu stúlkurnar eltu þá
bókstaflega á röndum og gengu
ófeimnar á eftir þeim. Mátti sjá,
að flestir kunnu piltarnir þessu
vel, en nokkrir miður.
Kvenfólkið mátti nú líka gæta
sín. Menn voru settir því til höf-
uðs.
Ef þú, lesari minn, ert ung
stúlka, skaltu líta á manninn, sem
kemur þarna á móti okkur. Hann
er klæddur eins og spanskur naut-
vígamaður, eða hvað maður á að
segja, — þessi náungi, sem er
málaður í framan, og búinn í lit-
klæði. Hann fer allgeyst og á hon-
um er vígamóður. En honum mun
falla allur ketill í eld, ef þú læðir
nokkrum aurum í kolluna, sem
hann ber framan á sér. Muntu
fá fyrir þetta einn miða og svo
ylhýrt bros. Segja mátti, að göt-
urnar væru allan daginn krökar
af þessum sjálfboðaliðum, sem
seldu af þeim dugnaði, að aura-
sálinni var jafnvel enginn vegur
að sleppa undan þeim.
En nú er bezt að hafa augun
hjá sér. Þarna kemur skrúðfylk-
ingin, sem skrifstofustjórinn sagði
okkur frá áðan. Það er endalaus
lest einkennisbúinna farartækja.
Þau eru skreytt með ýmsum hætti
eftir þóknun og smekk hvers eig-
anda. Mikið ber á blómskrautinu,
og mjög er vandað til alls frá-
gangs. Á eða í bifreiðunum eru
oft gerfibúnir eða dulbúnir menn.
Á einni bifreiðinni eru eintómir
birnir, sem leika allskonar listir;
á annari er vindmylla. Menn
standa hjá henni og kasta öðru
hvoru litlum mjölpökkum inn í
mannþröngina, og verða af þessu
ýtingar og ærsl. Ein bifreiðin var
eins og turn, gerður af blómum.
Þegar minst varði, reis þar upp
ung stúlka, sem stráði blómum
yfir manngrúann. Eitt sinn komu
nokkrir heljarstórir ,‘Persil”-
'pakkar þranpnandi. Það voru
menn svona broslega búnir. Og
nokkuð aftarlega í skrúðfylking-
unni kemur bifreið með verzlun-
arskóla nemendum. En lestina rek-
ur vöruflutnings bifreið með heil-
an hóp af skelilhlæjandi stúdent-
um. Hver silkihúfan upp af ann-
ari. Báðir þessir flokkar seldu
happadrættismiða fyrir b'arnadag-
inn. Hvort mátti nú betur, í-
þjappað verzlunarvit eða akadem-
isk nafnbót?
Skrúðfylking þessi kom áhorf-
endum í gott skap, svo að kvein-
stafir peningabuddunnar, sem oft
þurfti að opna, léku eins og vind-
ur um eyru. En alt fékk á sig
stórborgarsnið.
Um kvöldið, þegar fór að dimma,
hófst kappsigling vélbáta — lysti-
bát'a — um ála og sund borgar-
innar. Eigendur bátanna annast
þetta. iBátarnir eru skreyttir
kertaljósum, sem fá lit sinn af
þeim marglitu pappírsluktum, sem
kertaljósin standa í. Kappið er
um það, hvaða bátur þyki bezt
skreyttur. En um það dæmir á-
horfendasægurinn á bökkunum.
Klappað er óspart lof 1 lófa, þegar
vel þykir hafa tekist. Lognvær
kvöldblíðan kysti garða og torg
og haustmyrkrið grúfði yfir borg-
inni. — Marglitu Ijósin, sem
leiftruðu í bárum borgarálanna,
gera kvöldið ógleymanlegt.
Þessi dýrðardagur hafði sitt
kvöld, eins og allir aðrir dagar.
Friður og só færðist yfir borginai
Göturnar urðu auðar. Umferðin
hætti. Óp sölubarnanna, Indíána-
klæddu, heyrðust ekki lengur. Og
raddir allra fallegu stúlknanna
voru þagnaðar.
Menn gengu til rúms með góðri
samvizku og urðu fegnir hvíldinni
eftir erfiði dagsins, og létu sig
dreyma um árangur næstu daga,
sem voru helgaðir sama mark-
miði.
Á Liseberg, aðalskemtistað borg-
arinnar, og á öðrum skemtistöð-
um, var vel kvikt alla dagana. Inn-
gangseyrir var þó hálfu meiri
þessa daga en annars. En það
hafði engin áhrif, því að menn
vita, að það sem umfram er, á að
renna til góðs málefnis, barna-
dagsins.
Aldrei hafði fleira fólk heim-
sótt Liseberg, en síðasta dag há-
tíðahaldanna. Þá komu þangað
eins margir menn og allir Reykja-
víkurbúar, eða 25 þúsundir.
Flugeldarnir í Liseberg, sem
vandað var mjög til, voru síðasti
liður hátíðahaldanna. Fólkið starði
í þögulli hrifningu á Ijósakólfana,
sem klufu myrkurgeiminn, og
sprungu svo í ótal sólir, hnetti og
halastjörnur, allavega litar. Það
var eins og í þeim speglaðist dýrð
og sigur barnadagsins.
Margar samstarfa hendur höfðu
hér unnið mikið og þarft verk.
Sýrur í maganum
valda meltingarleysi
Beztu læknar segja hiklaust, að
í nálega níu tilfellum af hverjum
tíu, orsakist veikindi í maganum,
svo sem meltingarleysi, gas og
annað því líkt, af vatnskendum
sýrum í maganum, sem særa hina
afar fíngerðu húð, sem er innan í
maganum, og veldur það hinum
miklu óþægindum, sem alt maga-
veikt fólk kannast við.
Þú þarft ekki að nota fæðu, sem
sögð er sérstaklega auðmelt, en
sem oft gerir meira ilt en gott.
Láttu hana vera, en fáðu þér hjá
lyfsalanum Bisurated Magnesia,
og taktu eina teskið af duftinu
eða fjórar töflur í vatni rétt eftir
máltíð. Þetta bætir þér í magan-
um og kemur í veg fyrir, að sýr-
urnar og gasið myndast, er veld-
ur þér svo mikils sársauka. Bisur-
atel Magnesia (duft eða töflur,
ekki lögur af neinu tagi) er melt-
ingarfærunum skaðlaust, og lang-
bezta magnesia sem til er fyrir
magaveika. Þúsundir manna brúka
það og geta því notið fæðunnar
með ánægju og þurfa ekki að ótt-
ast, að sér verði ilt af henni.
í fyrra höfðu safnast um 100,000
kr. — hundrað þúsund krónur. —
Nú bjuggust menn við, að það
yrði snögt um meira, svo vel hafði
alt gengið.
Nú spyrja menn: “Til hvers er
svo alt þetta fé notað?” Það er
notað til þess að gefa svöngum
börnum mat, klæðlausum föt, skó-
lausum skó. Því er varið til að
annast andlegt og líkamlegt upp-
eldi tæringarveikra barna, til að
styrkja dagheimili barna, sem ann-
ars fara á mis við nauðsynlega
umhyggju. f sem fæstum orðum
sagt, því er vari,ð til að styrkja
hverskonar viðleitni tij bættra
uppeldisskilyrða og sannara lífs.
Máíefnið er göfugt og kraftur
þess mikill. Sameinaðir fylkja
menn sér um þetta. Nafnkunnir
menn ganga þar á undan og fjöld-
inn fylgir dæmi þeirra. Fólkið
trúir á það málefni, sem slíkir
menn fylkja sér um.
Þegar barnadagurinn stóð yfir í
Gautaborg síðastliðið haust, var
aðeins rúm vika til þingkosninga.
Sjaldan mun kosningabarátta í
Svíþjóð hafa verið harðara sótt.
Kosningaflugritum rigndi yfir
fólkið úr flugvélum, sem svifu yf-
ir borginni. En börnin samein-
uðu menn. Barnadaginn var öll
pólitík lögð á hilluna. Allir, hvaða
stjórnmálatrú, sem þeir höfðu,
unnu sameinaðir að heillaríkum
árangri dagsins. Svo, sterkum
tökum taka þessi stórmál frænd-
ur vora.
“Barnavinafélagið Sumargjöf”,
starfar að því sama hér og “Fé-
lag barnadagsins” í Gautaborg.
Fyrsta markmiðið er dagheimili
fyrir börn. Sumardagurinn fyrsti
er fjársöfnunardagur þess, eins
og kunnugt er. Ef við værum eins
duglegir og Gautaborgarbúar, ætti
með sama hlutfalli að mega safna
hér um 10,000 kr. — tíu þúsund
krónum — þann dag, en vel væri
þó fyrri. Þess væri óskandi, að
sem flestir tækju frændur vora til
fyrirmyndar og veittu þessu stór-
máli drengilegan stuðning.
í “Sumargjöfinni”, ársriti Barna-
vinafélagsins, sem kemur út í
dag, verður sagt nánar frá því,
hvað Svíar gera fyrir sína minstu
bræður. — Lesb.
Eg þóttist heyra
Eg þóttist heyra þröst við tún,
en þar var engin lóa,
er vatt sér hátt af heiðarbrún
og hafði vakið spóa.
Hann fór því einn að syngja söng,
og söng um fuglakvakið,
um fjallagrösin Ijúf og löng
og lamað andartakið.
Þá kom þar til hans, Ijúf í lund,
lóa, og settist niður,
er vaknað hafði’ af værum blund
sem vaktur fuglakliður.
Hún söng um frelsis fornan eið
og frið á heiðar brúnum,
um sæluríkan sólarmeið,
er sveif þar ofar túnum.
Hún söng þar meira, sæl og blíð,
um sólar bjartan daginn,
um lauf I móa, logn í hlíð
og ljúfan fugla haginn,
um börn , er áttu blíð og hrein
sér björg við hreiðrið smáa,
er fljúga síðar frjáls um geim
með fuglakvakið háa.
Erl. Johnson.
Þýzkalandsför
Úr Ferðasöguþáttum eftir
Áma Óla.
Höfundur þátta þessara, sem
birtust í Morgunblaðinu, var einn
í hópi þeirra glímukappa, er á síð-
astliðnu sumri ferðuðust frá ís-
landi til Þýzkalands, til þess að
sýna þar list sína, íslenzku glím-
una. Eftirfarandi þátt ritar hann
frá Hamborg 10. sept.
Frá Kaupmannahöfn til Kiel.
Það er þá fyrst til máls að taka,
er vér lögðum á stað frá Kaup-
mannahöfn snemma morguns hinn
3. þ.m. Fórum vér með járnbraut-
arlest þvert yfir Sjáland til Kor-
sðr, þaðan með ferju til Nyborg á
Fjóni, síðan með lest yfir Fjón til
Stribe og með ferju til Frederica
og síðan suður Jótland. Padburg
heitir landamærastöðin, en ekkert
urðum vér þar fyrir neinum ó-
þægiqdum. Var að eins litið á
vegabréf okkar og það látið
nægja, og engin farangursrann-
sókn.
í Rendsburg komu þeir á móti
oss Reinh. Prinz og Lúðvik Guð-
mundsson. í Neumunster var skift
um vagn og fengum vér nú stór-
um verri vagn heldur en dönsku
vagnana, sem foru með fóðruðum
sætum og ekki nema fyrir 8 menn
hver, en þetta var stór, ferhyrnd-
ur kassi, með sætum^trébekkjum)
fyrir 9 menn, en 11 er ætlað að
standa þar.
Skamt frá Rendburg er brú ýf-
ir Kiel-skurðinn. Er hún afarhá,
til þess að öll skip geti siglt undir
hana, hvað há sem siglutré þeirra
eru. Fer lestin fyrst í hring und-
ir brúna, og skrúfar sig þannig
smám saman í hæð við hana. Um
það leyti, sem vér komum þar,
datt á náttmyrkur, og til Kiel
komum vér ekki fyr en kl. 9 um
kvöldið og vorum þá orðnir all-
þreyttir.
Móttökurnar í Kiel.
Prinz hafði útvegað oss öllum
samastað, flestum á heimilum
fólks, sem skildi annað hvort
dönsku eða norsku. Var það fólk
komið á járibrautarstöðina til þess
að taka á móti oss. Yfirleitt hafði
Prinz búið alt undir komu vora
bæði þar og annarsstaðar og sýnt
í því framúrskarandi dugnað og
ósérplægni. Það varð mitt hlut-
skifti, að búa við annan mann í
nýjum stúdentagarði, sem tekur
til starfa í haust. Er hann ætlað-
ur 25 stúdentum og er rétt hjá
háskólanum. í öðrum stúdenta-
garði, Christian Albrecht Haus, á
Prinz heima, og þangað lentu þrír
og margir fleiri átu þar. Þessi
stúdentagarður er fyrir 35 og fá
ekki aðrir inngöngu þar en þeir,
sem skara fram úr á einhvern hátt
í skólanum, eða þykja mjög efni-
legir.
Háskólinn í Kiel.
Morguninn eftir hittust allir hjá
háskólanum. Er háskólinn alveg
bygging, en “útihús” hans eru
engu óveglegri. Eru þau gríðar-
mörg, liklega eitthvað milli 10 og
20. Þar eru “klinikur”, tilrauna-
stofur, sjúkrastofur o. s. frv. Hafa
víst flestar deildir háskólans hús
út af fyrir sig. Fyrir framan há-
skólann er yndisfagur garður og
stendur minnismerki Vilhjálms I.
í miðjum garðinum. Há tré um-
lykja garðinn á þrjá vegu, en
minni tré og runnar innar og rað-
að þannig niður, að fjölbreytni
verður í svip og lauflit. Inst í
garðinum eru J valllendisskákir,
Ijósfrænar að lit, en skrautleg
blómbeð hingað og þangað eins
og djásn í fagurri umgjörð.
Kiel-fjörðurinn og baðstaðirnir.
Eins og fyr hefir verið frá skýrt
hér í blaðinu, fórum vér í skemti-
ferð út Kiel-fjörð.
Ljómandi er fallegt að sigla út
Kiel-fjörðin. Baðstaðir, veitinga-
hús, hallir og skógarlundir á báð-
ar hendur. 'Til Laboe komum vér
eftir klukkustundarsiglingu og fór-
um auðvitað allir í bað. Sjórinn
var miklu kaldari en við bjugg-
nmst við, engu betri en í Skerja-
firði, en loftið, var hlýtt, um eða
yfir 30 gr. Fjöldi barna var
þarna að baða sig og voru sum
þeirra ekki há í lotfinu, ársgömul
og tveggja ára. Þar voru líka
aldraðar konur, gráar fyrir hær-
um og gamlir ístrubelgir á spóa-
löppuin. í Ijósbleikum fjörusand-
inum lá svo fólk á eftir og fékk
sér sólbað. Mátti sjá að sumar
ungu stúlkurnar voru þessu van-
ar, því að þær voru orðnar kaffi-
brúnar á hörund. í sandinum eru
mörg körfuskýli, sem menn geta
setið í, iþegar hvast er, og fengið
þannig skjól og notið sólarinnar.
Vér komum til Laboe, sem fyr
er getið, en dvöldum þar ekki
nema stutta stund, en fórum það-
an fótgangandi eftir skógargötu
til annars baðstaðar, sem heitir
Heikendorff, og er nokkuð inn
með firðinum. — Er það einhver
sú skemtilegasta leið, sem hugs-
ast getur. Skiftast þar á hólar og
gil, en alt er vaxið himinháum
skógi, og er hann ekki þéttari en
svo, að sólin nær að skína á skóg-
svörðinn, og er þar mjög grösugt
og ólíkt því, sem er í dönskum
skógum. Á sumum stöðum hafði
skógurinn þó verið gjörhögginn
í stríðinu um stórar spildur, en nú
er farið að græða þar aftur og
klæða nýjum skógi, og eru trén
orðin svo sem mittishá, eða rúm-
lega svo.
Skipasmíðastöðvarnar og önnur
stórvirki.
Daginn eftir fórum vér að
skoða “Deutsche Werke”, sem áð-
ur voru hinar nafntoguðu her-
skipasmíðastöðva^ keisarastjórn-
arinnar. Nú eru tþær eign hluta-
félags. Þarna var margt merki-
legt að sjá, enda vorum vér hátt á
þriðju klukkustund að fara , gegn
um hinar ýmsu deildir. Enginn
mátti hafa myndavél með sér og
ekki máttu menn heldur skrifa
hjá sér upplýsingar um stöðina í
þvi skyni að birta þær opinber-
lega. Veldur það mestu þar um,
að þarna er enn herskipasmíða-
stöð stjórnarinnar, og sáum vér
eitt beitiskip í smíðum. Það á að
verða 10 þús. smál. og er fallbyss-
unum svo sérstaklega fyrir komið,
að hægt er að skjóta á bæði borð
samtímis. Hin önnur herskip Þjóð-
verja sáum vér ekki. Þau voru í
heimsókn í Stokkhólmi.
Seinna um daginn fórum vér
að skoða Kiel-skurðin og “slús-
urnar” í honum. Eru þær sem
kunnugt er, hið mesta mannvirki,
og skurðurinn líka. Sigling um
hann eykst árlega og er nú orðin
svo mikil, að fleiri skip geta ekki
farið um hann á ári (eitthvað 200
á dag).
Skamt fyrir ofan stíflurnar er
brú yfir skurðinn, Hochebrugge
(Háabrú)i. Ber hún nafn með
réttu, því að ekkert skip í heimi
mun hafa svo háar siglur, að það
komist ekki undir hana. Af
brúnni er dásamlegt útsýni yfir
nágrennið, fjörðinn, skurðinn og
borgina.
I Neumunster.
Daginn eftir komum vér til
Neumunster, og skoðuðum eina
af klæðaverksmiðjum borgarinn-
ar. Þær eru rúmlega 30, og var
þetta einhver sú minsta; hafði þó
um 60 vefstóla. í stærstu verk-
smiðjunni vinna 1100 manns og
þeirri næststærstu 800. Þarna eru
líka 16 leðursverksmiðjur.
Þar skoðuðum vér einnig sund-
laug bæjarins. Er hún Qpin, en
háir torfgarðar alt umhverfis
hana til skjójs. Uppsprettulindir
eru í botninum og endurnýja vatn-
ið á viku, en ekki var það þó geðs-
legt, kolmórautt af sandi. Þó ber
ekki á því, að menn kveinki sér
við að nota laugina af þeim á-
stæðum, og var þarna mesti sæg-
ur af skólatelpum að baða sig og
synda.
Höfnin í Hamborg.
í gærmorgun var farið með oss
á báti um Hamborgarhöfn. Hún
er ekkert smásmíði. Ef maður
ætlar að ganga hafnarbakkana að
—------------i
NÝR VEGUR TIL AÐ AUKA
KRAFTA SÍNA.
Fólk, sem er orðið slitið og veik-
burða og framkvæmdarlítið og
kjarklaust, ætti að reyna Nuga-
Tone, þetta ágæta meðal, sem gef-
ur öllum aðal Jíffærunum meira
afl, styrkir taugarnar og vöðvana,
sömuleiðis hjartað, lifrina, nýrun
og öll meltingarfærin og veldur
þvi, að þér finst þú verða eins og
nýr maður.
Nuga-Tone er óviðjafnanlegt við
magaveiki, lifrarveiki, lélegri melt-
ingu, veikum nýrum, blöðrusjúk-
dómum, taugaveiklun af þunnu
blóði, höfuðverk, svima, andremmu
og þrautum í maganum og mörgu
fleira af slíku tagi. Nuga-Tone
eykur blóðrásina og bætir yfirleitt
heilsuna ótrúlega fljótt og vel.
Kauptu það í einhverri lyfjabúð.
Reyndu það, í 20 daga og ef það
reynist ekki eins og þú vonast eft-
ir, þá skilaðu afganginum og þú
færð peningana endurborgaða. —
Varastu eftirlíkingar, ekkert jafn-
ast við Nuga-Tone. *
endilöngu, þá eru það röskar 10
dagleiðir. í höfninni liggur alt af
aragrúi skipa og er talið, að þar
séu að jafnaði 20 þúsundir sjó-
manna. Bæði í iþessu og öðru er
stórborgarbragur á Hamborg, eru
íbúar hér enda 1% miljón, og
Hamborg mesta verzlunarborg á
meginlandi Evrópu. Enn fremur
skoðuðum vér neðanjarðargöng
undir Elbe. Þau eru tvö, og er
farið norður fyrir ána um önnur,
en suður um hin. Gríðarmiklar
lyftur er við báða enda. Er ekið
inn i þær bílum og hestvögnum og
ýmist dregið upp á ýfirborð jarðar
eða látið síga niður, og er það
griðarhátt.
Að lokum skoðuðum vér far-
þegaskipið “Albert Ballin” og svo
hina risavöxnu granítstyttu af
Bismarck. Til marks um stærð-
ina, má geta þess, að langatöng
er 1 meter á lengd og sverðið,, sem
karlinn styðst fram á, er 10 metr-
ar á lengd. Og undir þessari risa-
mynd er samsvarandi fótstallur
og alt minnismerkið hið svip-
mesta. — Mgbl.
PILSVARGUR OG MAÐURINN
HENNAR.
í London var nýlega mál á döf-
inni, sem vakti allmikið umtal.
Ullarmatsmaður einn, Cyril Sweet-
mann að nafni, var kærður fyrir
fjölkvæni. Maðurinn var að allra
dómi skikkanlegasta grey. En
hann átti fyrir konu svarra mik-
inn, er aldrei lét hann í friði.
Tók kerling af honum alla pen-
inga, er hann vann sér inn, og lét
hann aðeins hafa einn pakka af
sígarettum á viku. Er hún komst
að því, að hann kunni að leika á
fiðlu, sendi hún hann út á kvöld-
ín á lítið veitingahús, þar sem
hún hafði dálítið upp úr honum,
með því að láta hann leika þar á
fiðlu. Hann átti að vera kominn
heim kl. 10 á hverju kvöldi.
Einu sinni kom hann ekki fyr
en kl. hálf ellefu. Þá var kella
svo vond, að hún lokaði hann úti.
En einn góðan veðurdag ákvað
Sweeting með sjálfum sér, að upp
frá þeim degi vildi hann vera hús-
bóndi á sínu heimili, og hafa í
fullu tré við konuna. En til þess
þurfti hann að fá sér aðra konu.
Hann strauk því heiman að. Og
ekki leið á löngu unz á vegi hans
varð ung og ástúðleg kona, sem
honum Jeizt vel á. Giftu þau sig
í snatri eftir venjunnar reglum
og lifðu í sælu hjónabandsins í
hálfan mánuð. En þá sló sam-
vizkan Sweeting. Fór hann til
lögreglunnar og sagði upp alla
sögu. Og konan hans nýja og
ástúðlega fylgdi honum á lögreglu-
stöðina með tárvotum augum. —
Rosedale Kql
Lump $12.00 Stove $11.00
FORD COKE $15.50 Ton
SCRANTON HARDKOL
POCA LUMP og
CANMORE BRICQUETS
Thomas Jackson & Sons
370 COLONY ST. PHONE: 37 021