Lögberg - 25.06.1931, Side 3

Lögberg - 25.06.1931, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 25. JÚNÍ 1931. Bls. 3. Sérstök deild í blaðinu ÆFILOK TÝRU. Stjúpa föður míns var hjá foreldrum mín- Hm, J>egar eg var barn. Var hún minnug vel og fróð um margt. Dýravinur var liún betri en í meðallagi, að minni hyggju, og sýndi það á margan hátt. Sagði hún okkur börnunum ýmsar sögur um vit og háttu dýra, er mér þóttu næsta merkilegar. En flestar þær sög- Hr hafa með árum skolast svo í minni mínu, að eg treysti mér ekki til að fara rétt með þær. Þó er sú undanskilin, sem hér fer á eftir, enda hafði hún senmma mikil áhrif á mig, eins og amma sagði okkur hana. Amma mín ólst upp á bæ þeim, er Froðholts- hjáleiga heitir, og er hann oinn af hinum svo- nefndu Bakka'bæjum, sem allir liggja sunnan Þverá, en teljast þó til Rangárvalla. Stendur bærinn ú bökkum Þverár, vestarlega þó. En þar er árbakkinn hár á dálitlum kafla, og áin nokkuð aðdjúp. Þegar amma var unglingur, var þar á heim- ilinu tík, sem kölluð var Týra. Var hún fjár- bundur ágætur, athugul yel og svo vitur, að oft virtist mega af háttum hennar draga þá álykt- nn, að hún hefði fullkomlega mannsvit. Sagði amma margt til marks um það, þótt eg kunni frá fæstu því að segja, eftir svo langan tíma. Á vorin varði Týra tún og engjar með svo mikilli árvekni, að þar þurfti enginn maður um oð baúa, og mátti á feama standa, livort að nótt var eða dagur. Þegar Týra var orðin fjörgömul, fór henni að daprast sýn, og varð að lokum alblind, að því er bezt var vitað. Gat hún þá lítið farið, on lá flesta daga inni í baðstofu fyrir framan rúm húsbónda síns. Þá bar svo til einhverju sinni fyrri hluta vetrar, er flestir heimamenn voru staddir í baðstofu, að tilrætt var um beilsufar Týru. Sagði þá einhver, að bezt inundi að lóga henni; hún væri orðin gagnslaus öieð öllu, en hin mesta gustuk, að hlífa henni við að lifa vetrarkuldana. Húsbóndinn lagði fátt til þessara mála, en Varð litið til Týru, þar sem liún lá á sínum vana stað. Eftir nokkra stund sagði liann þó *neð hægð: “Ó-já, það er víst þýðingarlaust, liún sé látin lifa lengi úr þessu, greyið að að tarna. Þið getið tekið hana, piltar, ein- hvern tíma þegar eg veit ekki af því. ’ ’ Og var svo ekki fleira um þetta rætt í það sinn. Týra hafði ekki bært á sér á meðan þetta tal fór fram. En þegar því var slitið, og horf- Jð að öðru efni, stóð hún upp og dróst fram úr baðstofunni, án þess að því væri veitt sérstök athygli þá í svipinn. En er nokkur stund var bðin og Týra kom ekki inn aftur, eins og hún atti vanda til, var farið fram í bæ og mt að svipast eftir henni; fanst hún þá hvergi, hvem- sem leitað var, og leið svo kveldið og nóttin. ^aginn eftir var leitinni haldið áfram og fanst þá Týra, rekin upp úr ánni, á eyri vestur með bakkanum. Og var það álit allra ó heimilinu, aÓ um slys væri ekki að ræða, heldur mundi Týra hafa fyrirfarið sér fram af árbakkanum. Hún hafði hlustað eftir því, sem sagt var 1 baðstofunni og skilið það; orðin voru fá, en í fullri meiningu: hún var orðin til einskis nýt ug fólkinu til leiðinda. Ef til vill hafði hún baft óljósan grun um þetta áður, en sárast fann hún til undan vissunni þeirri, að hús- óndinn taldi henni orðið ofaukið á heimilinu. óg þegar sú vissa var fengin, var ekki eftir Ueinu að bíða — þú tók hún til sinna ráða og varð fyrri til að framkvæma það, sem húsbóndi hennar ympraði á við pilta sína. Amma mín var vön að Ijúka sögunni eitt- bvað á þessa leið: “Þetta litla atvik sannar okkur það, að dýrin skilja mál manna, þó okkur gruni það ukki. Gleymið þess vegna aldrei, bömin góð, að uga þannig orðum ykkar í áheym dýranna, uð þið særið þau ekki, því að þau eiga sínar til- Þnningar eins og við mennirnir. ” Eg var að eins bam, þegar amma sagði mér sögu þessa, og þó sat mér kökkur í hálsi og uiér vöknaði um augu, er eg hugsaði til vesal- ings Týru, og hve mikið hún hefði hlotið að ^ða, er hún skreiddist fram úr baðstofunni í ^íðasta sinn, ráðin í því, að leita ekki framar a núðir fólksins. Og enn er það svo, að einhver uudarlegur klökkvi grípur mig í hvert sinn, sem bugurinn hvarflar til æfiloka Týru gömlu. ' Lýrav. Katrín Pálsldóttir. Ránargötu 13. VITUR IIUNDUR. Mé hefjr alt af þótt gaman að lesa sögur af skynsömum dýrum; þess vegna hefir Dýra- yerndarinn verið mér kærkominn hin síðari ar- Mig hefir líka stundum langað til að hripa upp og senda blaðinu ýmislegt, sem eg kann ra dýrum að segja og vitsmunum þeirra. En a drei hefir það þó komist í framkvæmd fyrir mer, og hafa til þess legið ýmsar ástæður, sem eg birði ekki um að greina. En nú ætla eg uier til gamáns, að reyna að færa í stíl dálitla s°gu af hundi, sem eg átti fyrir allmörgum arum. i . bfuudur þessi hét Kolur, og þótti með af- ^rigðum vitur. Væri auðvelt að telja mörg æm.i Því til sönnunar, en hér verður látið að segja að eins frá einu litlu atviki, er tr °í? fleirum verður lengi minnisstætt. SOLSKIN Fyrsta haustið, sern Kristján Kristjánsson bjó í Efri-Gróf í Villingaholtshreppi, bað hann mig að skreppa til sín og vera lijá sér, eins og tvo daga, við smíðar. Eg átti þá heima í Irpu- holti. Var Kristján þá öllum ókunnugur hér, nema mér, enda höfðum við verið skipverjar á sama skipi í margar vertíðir og vorum mjög góðir vinir. Eg varð því við þessari bón Kristjáns þegar eg átti hægt um vik, og bjó mig árla morguns, dag einn um haustið, til þess að finna hann. Reið eg sem leið liggur niður hjá Vatnsenda og Villingaholti, alt að Efri-Gróf. Rann Kolur með mér, eins og hans var venja, er eg fór eitthvað að heiman. Hestinum, sem eg reið að Efri-Gróf, var slept lausum, og mátti hann gera hvort hann vildi: fara eða vera. Enda var hann að jafnaði hag- spakur, en átti þó til á stundum að sækja í tiippastóð, þegar svo bar undir. Nú bar ekkert til tíðinda um daginn, og héldu báðir kyrru fyrir, klárinn og Kolur. En þegar komið var á fætur næsta morg- un, var hesturinn horfinn, og var ekkert um það fengist eða gerð nein leit að honum, enda taldi Ivristján engin vandkvæði að koma mér heimleiðis. — Leið svo að þeim tíma, er matur var á borð borinn. Átti þá að gefa Kol, en þá fanst hann hvergi og gegndi ekki, hvemig sem kallað var. Um hvarf Kols var ekki heldur neitt fengist, enda bjóst eg ekki við öðru, en að báðir mundu skila sér heim, klárinn og Kolur. Eg var svo í Gróf þennan dag og nóttina eftir. En næsta morgun hélt eg heimleiðis. Þótti mér þá undarlega við bregða, er eg frétti, að hvor- ugur væri heim kominn, klárinn eða Kolur. Sennilegast þótti mér, að hesturinn hefði kom- ist í stóð, eins og líka kom á daginn. En hvað dvaldi Kol og hví var hann ekki kominn, eins og hann var tryggur og lieimaelskur? Að víAi var mér sagt, að hann liefði sem snöggvast gert vart við sig daginn áður, en hvarf svo aft- ur áður en nokkur vissi af. Þegar fram á daginn leið, sá eg hvar hestur- inn kom og Kolur með honum. Komu báðir, sem leið liggur, frá Yatnsenda, og var þar yfir mýri að fara. Það þótti mér næsta einkenni- legt við þetta ferðalag, að þegar hesturinn nam staðar til þess að bíta, þá settist hundurinn hjá honum. En ef hesturinn vildi snúa sér við, á meðan liann var að bíta, reis Kolur upp og glepsaði í snoppuna á honum, svo að klárnum var nauðugur einn kostur að snúa sér í þá átt, er Kolur vildi vera láta. Þetta lét hann ganga og þannig þokuðust þeir áfram, þangað til báð- ir voru komnir lieim að túngarðsliliðinu. Þá yf- irgaf Kolur hestinn og kom hlaupandi til mín heim á hlað. Fagnaði hann mér með miklum gleðilátum og fór ekki dult, að hann var kátur vel, en þó drjúgum upp með sér. Síðar frétti eg, að Kolur liefði flæmt hest- inn úr stóði á Villingaholtsholti. Drengur frá x Skúflæk sá til Kols og þótti hann hafast skrít- ið að. Hann beit í hæla hestsins og rak hann áfram, hljóp svo fram með honum og snerist í kringum hann, eftir því sem við átti, þar til hesturinn stefndi í rétta átt og lötraði heim á leið. að sást líka til þessara ferðalanga, bæði frá Villingaholti og Vatnsenda, og bar öllum saman um, að Kolur herfði einn ráðið ferðinni. En um ferðalagið mátti segja, að það gekk hægt og bítandi. Ekki þóttist ég í vafa um, hvaða erindi Kolur átti lieim daginn áður. Þá var hann að vita um, hvort hesturinn væri kominn heim,- En þegar svo var ekki, fór liann að leita að honum, ákveðinn í því að koma klárnum heim, og það tókst honum, eins og nú hefir verið lýst. Fleiri sögur mætti tilfæra um Kol, en þessi ber af öðrum. — Þegar Kol var skipað að reka skepnur, þar sem ungviði var með, svo sem lömb, kálfar og folöld, sem oft er þá aftast, þá kom aldrei fyrir að liann skifti sér neitt af því, heldur hljóp hann alt af fram hjá ungviðinu og í fullorðnu skepnurnar. Ungviðið taldi liann ekki við sitt hæfi; og þó að talið sé “hunds- legt” að ráðast á lítilmagna, þá sá enginn Kol gera það Enda var liann stoltur og stór í lund, og mátti jafnvel kallast grimmur, ef misjöfnu var að skifta. Jón Brynjólfsson, —Dýrav. Vatnsholti í Flóa. Fyrir börn og unglinga Ilverjar eru skyldur olckar við dýrin? Um það munu allir vera sammála, að án dýranna getum við ekki lifað, þess vegna er okkur skylt að fara vel með þau, en því er nú ver, að því er mjög ábótavant. Það mun flest- um vera það ljóst, að meðferð á skopnum er afar-slæm, þótt hún sé mun betri en áður var. Mönnum finst skepnumar vera skapaðar fyrir þá, og þeir liafi leyfi til að fara með.þær eins og þeim sýnist. En hafa þeir það? Nei, skepnurnar hafa jafn mikið leyfi til að lifa eins og þeir, og þ,egar þeir svifta þær frelsinu, þá eiga þeir að fara vel með þær. Oft sér mað- ur það, að ef hesturinn getur ekki hlaupið eins hart — eða dregið eins þungt og maður vill, þá er hann barinn miskunnarlaust. Mér finst það ekki heldur nein umhyggju- semi, þegar hundar eða kettir gjóta, að taka öll afkvæmin frá þeim, það hlýtur líka hver Iieilbrigður maður að finna með sjálfum sér. Margir halda því fram, að dýrin hafi ekki vit á því, hvernig með þau er farið. En það er bygt á rökum, að þau gera sér grein fyrir því. Því er það, að séu mennirnir góðir við dýrin, launa þau það aftúr með trygð. Við höfum þess vegna alls ekkert leyfi til þess að eiga skepnur, ef við förum ekki vel með þær. Við erum skyldug til að gæta allrar varúðar gagnvart þeim. Siyurlijörtur Pétursson, Fljótum. —Dýrav. (12 ára). SLUNGINN KÖTTUR. Saga þessi gerðist fyrir nokkrum árum í gistihúsi einu í Parísarborg. Húsfreyjan átti kött, sem mjög var hænd- ur að henni og elti liana jaínan um borgina, er liann sá sér færi. Eitt sinn á meðan húsfreyja var úti í borg- inni, liafði einn gesturinn, ungur og myndar- legur maður, sem enginn grunaði um græsku, brotist inn í svefnherbergi hennar og látið greipar sópa um skrautgripi hennar og aðra verðmæta muni, er hami fann þar. En áður en honum tókst að laumast á braut með þýfið, lieyrði hann að húsfreyja var að koma upp stigann og því enginn kostur fyrir hann að komast út úr herberginu, án þess að hún yrði J>ess vör. Sá hann þá ekki annað ráð fyrir hendi, en reyna að fela sig í herberginu, og í því skyni skreið hann í mesta ofboði undir rúmið og hugðist láta þar fyrir berast, þangað til eitthvað vænkaðist um. En kisa var að vanda í fylgd með húsmóð-. ur sinni og hefir víst grunað, að eitthvað ó- venjulegt mundi á seiði uppi á loftinu. Hún setti kryppu upp úr bakinu og hárin risu á skrokki hennar. Og um leið og húsfreyja ýtti upp hurðinni, sem að eins féll að stöfum, þaut kisa hvæsandi inn í herbergið og hvarf undir rúmið. Þar læsti hún klónum á kaf í mann- garminn og kom J>á heldur en ekki hljóð úr horni undan rúminu. Fór þá húsfreyju margt að gruna, þreif í bjöllustrenginn og komu þjónar hennar sam- stundis á vettvang. Sá þá þjófurinn, að ekki var til neins að dyljast lengur og skreið fram undan rúminu, skjálfandi af hræðslu og veinandi, því enga miskunn var hjá kisu að finna. Hún réðst á mannaumingjann með kjafti og klóm, svo að verja varð hann fyrir henni að síðustu. Innan lítillar stundar kom lögreglan á vett- vang og hirti þjófinn. Kom þá í ljós, að þetta var slunginn þjófur, sem hafði mörg smærri og stærri innbrot á samvizkunni og lögreglan ver- ið á hnotskógum eftir um nokkurn tíma. En af kisu er það að segja, að hún varð mjög fræg af þessu afreki og í hávegum höfð á gistihúsinu, ekki að eins af húsfreyju og þjón- um hennar, heldur og öllum gestum, sem sög- una heyfðu. — Dýrav. ÚTIGANGSHESTUR. 1 glugganum liamaðist grenjandi hríð, svo geigvænleg fannkoma ógnaði lýð og storm-hörpu strengjanna sláttur. 1 byljunum gnötruðu bæjarhús forn, er beljandi hristi þau illviðra norn, og smár virtist mannlegur máttur. 1 rúminu húsbóndinn rólega svaf, sem rjúkandi kófinu vissi ’ann ei af, °g byljum, er bæinn hans liristi. Þar skýldi ’onum æðardúns yfirsæng hlý, og ánægður var hann þar bólinu í að hvílast, sem líkaminn lysti. En skamt út frá bænum við holtbarð eitt liátt J>ar hríðin og ofviðrið reyndu sinn mátt, stóð aumingja útigangsliestur. Hann þekti ekki klappandi húsbónda hönd, en haftið og klafana—þrældómsins bönd—. Margur er mannúðarbrestur. Um lit'hans gat ekki neinn ókunnur sagt, því óveðrið gaddaðan kufl hafði lagt á horaða kroppinn hans kalda. Og brynjaður klaka í kuðung liann stóð, en kringum liann drifhvítum sköflunum hlóð. — Hvers átti sá aumingi’ að gjalda? Og löng honum fanst þessi niðdimma nptt, því nákuldinn lamaði vesælan þrót, en langmest af hugrinu leið liann. Hann stóð svona skjálfandi’ og skímunnar beið, en skilninginn sljóvgaði vægðarlaus neyð, svo komandi deginum kveið liann. En bóndinn í rúminu hástöfum hraut og hirti ekki um aumingjans langvinnu þraut, er hamstola hríðarnar þjóta. En — æskilegt væri að svíðingur sá, er saklausu skepnunum níðist svo á, sín hæfileg laun mætti hljóta! —Dýrav. Sigtyrveig Friðriksdóttir,. Kálfsstöðum. DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: 21 834 Office tímar: 2—3 Heimlli 776 VICTOR ST. Phone: 27 122 Winnipeg, Manitoba H. A. BERGMAN, K.C. tslenzkur lögfrœOingur Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P. O. Box 1656 PHONES: 26 849 og 26 840 DR. 0. BJORNSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: 21 834 Office tlmar: 2—3 Heimili: 764 VICTOR ST. Phone: 27 586 Winnipeg, Manitoba W. J. LÍNDAL og BJÖRN STEFÁNSSON íslenzkir lögfrœOingar á öðru gólfi 325 MAIN STREET Talsími: 24 963 Hafa elnnig skrifstofur að Lundar og Gimli og eru þar að hitta fyrsta mið- vikudag I hverjum mánuði. DR. B. H. OLSON . 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: 21 834 Office timar: 3—5 Heimili: 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba J. T. THORSON, K.C. tslenzkur lögfrœOingur Skrifst.: 411 PARIS BLDG. Phone: 24 471 DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: 21 834 Stundar augna, eyrna, nef og kverka sjúkdóma.—Er að hitta kl. 10—12 f. h. og 2—5 e. h. HeimiU: 373 RIVER AVE. Talsiml: 42 691 J. Ragnar Johnson B.A., LL.B., LL.M. (Harv.) íslenzkur lögmaOur 910-911 Electric Railway Chambers. Winnipeg, Canada Slmi 23 082 Heima: 71 753 Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham and Kennedy Phone: 21 213—21144 Heimlli: 403 675 Winnipeg, Man. G. S. THORVALDSON BA, LL.B. LögfrceOingur Skrifstofa: 702 CONFEDERÁTON LIFE BUILDING Main St. gegnt City Hall Phono: 24 587 DR. A. BLONDAL 202 Medical Arts Bldg. Stundar sórstaklega kvenna og barna sjúkdóma. Er aS hitta frá kl. 10—12 f. h. og 3—6 e. h. Office Phone: 22 296 HeimiU: 806 VICTOR ST. Sími: 28 180 E. G. Baldwinson, LL.B. tslenzkur XögfrœOingur 809 PARIS BLDG., WINNIPEG Residence Office Phone: 24 206 Phone: 89 991 Dr. S. J. JOHANNESSON stundar lœkningar og yfirsetur Til viðtals kl. 11 f. h. til 4 e. h. og frá kl. 6—8 að kveldinu 532 SHERBURN ST. SlMI: 30 877 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteigrnasalar. Leigrja hús. Út- vega peningaián og eldsábyrgð af öllu tagi. Phone: 26 349 Drs. H.R.& H.W.Tweed Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUST BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE: 26 545 WINNIPEG A. C. JOHNSON 907 Confederation Life Bldg. WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tekur að sér að ávaxta sparifé fólks. Selur eldsábyrgð og blf- reiða ábyrgðir. Skriflegum fyr- irspurnum svarað samstundis. Skrifstofus.: 24 263—Heimas.: 33 328 Dr. A. B. INGIMUNDSON Tannlœkntr 602 MEDICAL ARTS BLDG. Simi: 28 840 Heimilis: 46 054 DR. C. H. VROMAN Tannlceknir 505 BOYD BLDG., WINNIPÉG Phone: 24 171 Dr. Ragnar E. Eyjolfson Chtropractor Stundar sérstaklega Gigt, Bak- verk, Taugaveiklun og svefnleysi Skriítst. simi: 80 726—Heima: 39 265 STE. 837 SOMERSET BLDG. 294 PORTAGE AVE. G. W. MAGNUSSON Nuddlœknir 91 FURBY ST. Phone: 36 137 Vlðtals tlmi klukkan 8 til 9 að morgninum DR. A. V. JOHNSON tslenzkur Tannlæknir 212 CURRY BLDG., WINNIPEG Gegnt pó3thúsinu Simi: 23 742 Heimills: 33 328 A. S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur líkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaCur sá bezti Ennfremur selur hann allskonar mlnnisvaröa og legsteina. Skrifstofu talstmi: 86 607 Heimilis talsími: 58 302 Skrítlur eftir Wessel. Wessel sá heldri mann vera að dorga með fiskistöng; hann virti fiskimanninn fyrir sér. Hinn varð reiður af því, að V essel skyldi \ ei a að horfa á sig og spurði: “Á hvað gónið þér 1 ” —-“Eg horfi á fiskistöng yðar,” svaraði Wes- sel —- “Vitið þér þá hvað fiskistöng er?” — “ Já,” svaraði Wessel, “það er prik með ormi á öðrum endanum en iðjuleýsingja á liinum.” S M Æ L K I. í litlu sænsku þorpi, sem Sollen- tuna heitir, er sjóður sem stofnað- ur var fyrir 20 árum og átti að verja til styrktar “hreinum jóm- frúm.” í þessi 20 ár hefir engin sótt um styrk úr sjóðnum og er hann nú orðinn 11 þús. krónur. Á gistihúsi nokkru í Noregi bað gestur veitin'gamann að ljá sér vekjaraklukku. Já, hana getið kér fengið, mælti veitingamaður og kom að vörmu spori aftur með vekjara- klukku og lagði hana á grúfu á borðið. Gesturinn ætlaði að taka hana, en þá sagði gestgjafinn: •— Nei, hún verður að liglgja svona, því að hún getur ekki geng- ið nema hún liggi; annars stendur hún. Hænan: Nú skal ég gefa þér gott ráð. Kjúklingur: Hvað er það. Hænan: Þegar þú ert orðin full- orðin hæna, skaltu verpa einu eggi á dag, og þá verður þú ekki höggvin. Svertingi: Læknir, læknir, eg hefi gleypt munnhörpuna mína. Læknir: Svona, svona, verra gat það verið, t. d. trumba.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.