Lögberg - 25.06.1931, Síða 6

Lögberg - 25.06.1931, Síða 6
Bls. 6. LÖGBERG, FIMTUDAGINN 25. JÚNÍ 1931. LYDIA EFTIR ALICE DUER MILLER ! Hann hélt svo áfram viðstöðulaust, að telja fram það, sem sannast hefði fyrir réttinum, og lagði sérstaklega mikla áherzlu á það, hve tím- inn hefði verið stuttur, frá því Miss Thorne hefði farið frá Miss Bellington og þangað til slysið vildi til. “Mikil ábyrgð hvílir á yður, herrar mínir, í þessu máli. Verjandi málsins virðist.halda, að íiinir ríku njóti ekki jafnréttis við hina fátæku fyrir dómstólum þessa lands. Það hefir ekki verið mín reynsla. Mér skyldi þykja vænt um, ef eg gæti trúað því, að hinir fátæku ættu liægra með að ná rétti sínum, heldur en hinir ríku, en ég get það ekki. í mánuðinum sem leið, var drengur dæmdur í þriggja ára fangelsi, hér í þessum réttarsal, fyrir minna afbrot, heldur en hé er um að ræða. Hann hafði ofan af fvrir sér með því að keyra léttan flutningsbíl g sann- anirnar gegn honum voru ekki nærri því eins augljósar eins og hér á sér stað. Vér tókum oss þetta nærri, en vér litum svo á, að réttvísin yrði-að hafa framgang. Ef þér lítið svo á, að sannanir séu fyrir því, að hin ákærða hafi fram- ið það lagabrot, sem húji er kærð fyrir, þá vænti ég þess, að þér látið ekki yðar eigin til- finningar hafa nein áhrif á úi’skurð yðar, en að þér hafið nægilegan kjark og ráðvendni til að gera það, sem rétt er. Eg vænti þess, að þér úrskurðið, að hin ákærða sé sek.” Siðagætirinn lýsti nú yfir því, að þeir sem vildu fara út úr dómsalnum, gætu gert það nú, en meðan dómarinn talaði, gæti enginn komið inn eða farið út. Það fór enfinn. Siða- gætirinn lokaði hurðinni og stoð upp við hana. Wiley vék sér að Iiydíu og hvíslaði að henni, a*ð hún skyldi ekki láta þetta tal sak- sóknarans, um mismunandi stéttir, auð og fá- tækt, fá mikið á sig. að hefði litla þýðingu nú á dögoim. Það var alveg óþarfi að segja Lydíu þetta. Allur hennar áhugi hafði skyndilega horfið, þegar sókn og vörn málsins var lokið. Hún varð þess vör, að það var þungt loft í réttar- salnum og að hún var sjálf þreytt. Hún hafði sjaldan á æfinni fundið eins mikið til þre>Ttu. Dómarinn sneri stólnum sínum þannig, að hann sneri sjálfur að kviðdómendunum. Það var eins og hann væri að setja sig í stellingam- ar, og hann fór hægt að öllu. “Háttvirtu kviðdómendur,” sagði hann, “vér erum nú komnir á það stig málsins, að það er mín skylda að skýra málið fyrir yður, með nokkrum orðum, frá sjónarmiði laganna. Þér vitið, að lögin gera greinarmun á skyldum dómara og skyldum kviðdómenda. Þér einir hafið vald til að segja til um það, hvort hinn sakborni sé sekur eða ekki, en lagaskýringum dómarans ber yður að fylgja. Þér megið ekk- ert tillit taka til þess, hvort yður finast lögin réttlát, eða ranglát; hvort þér sjálfir kynnuð að geta búið til betri lög.” “Dæmalaust er þessi gamli maður leiðin- legur,” hugsaði Lydía. “Það er engu líkara, en hann hafi beinlínis ánægju af að segja alt þetta.” Dómarinn hélt áfram, og fór nú að skýra það, hvað kviðdómendum bæri að taka trúan- legt og hvað ástæða væri til að efast um. Hann sagði, að efinn mætti ekki vera bygður á neinni ímyndun. Efinn væri réttmætur, ef hann væri bygður á skynsamlegum ástæðum, sem hægt væri að gera grein fyrir. Lydíu fanst mikil fjarstæða, að maður fengi laun fyrir að segja þennan hégóma. Hún hafði aldrei á æfi sinni fundið eins mikið til leiðinda, eins og einmitt nú. “Eg verð að draga athygli yðar að þrítug- asta kafla hegningarlaganna. Þar segir, að þegar stigbreyting er gerð á afbrotum, þá beri kviðdóminum að ákveða hvaða stigi afbrotið eða glæpurinn tilheyri, þegar hann finni hinn á- kærða sekan. Að verða mannsbani, er einn af slíkum glæpum. Hér er um fyrsta og annað stig að ræða.” Lydía hélt, að ef kviðdómendurnir vissn þetta ekki nú þegar, þá hlytu þeir að vera hálf- vitar, sem aldrei gætu skilið neitt, en dómarinn hélt áfram að skýra málið. “Ef þér komist að þeirri niðurstöðu, að hin ákærða sé ekki sek um manndráp, sem teljast megi til fyrsta stigs, þá ber yður að athuga, hvort hún sé sek um annars stigs manndráp, það er að segja, hvort óafsakanleg óvarfærni af hennar hálfu hafi orðið þess valdandi, að Drummond misti lífið. Þér verðið að nota dóm- greind yðar til að komast að réttri niðurstöðu og þér verðið að gæta allrar sanngirni—” Dæmalaust var þetta leiðinlegt! Hún leit til kviðdómendanna og hún sá, að þeir hlust- uðu með mestu athvgli á hvert orð, sem dóm- arinn sagði. Hún sannfærðist alt í einu um, að þetta mundi nú bráðum á enda. “Ef þér komist að þeirri niðurstöðu, að hér sé ekki um manndráp að ræða, þá ber vður að fríkenna hina ákærðu. Ef þér hins vegar er- uð sannfærir um að hún sé sek, þá eigið þér ekkert um það að hugsa, hvaða hegning liggur þar við. Það ber dóamarnum að ákveða. Nú hefi ég skýrt lögin fyrir yður, herrar mínir. ér hafið hlustað á allan gang málsins og fram- burð vitnanna. Yðuner frjálst að trúa fram- burði vitnanna, eða trúa honum ekki, eða þá að einhverju leyti, en ekki að öllu leyti, eftir því sem dómgreind vðar vísar yður til. Athugið alla málavöxtu ein3 nákvæmlega eins og þér getið og látið svo dómgreind yðar ráða úr- skurðinum. Dómarinn j>agnaði. Kviðdómendurnir .stóðu upp úr sætum sínum og gengu hver á eftir öðrum inn í herbergið, sem þeim var ætlað. Alveg viðstöðulaust var byrjað á næsta máli, og það byrjaði nókvæmlega eins og mál Lydíu — “réttvísin gegn—’ Lydía vildi Iielzt mega sitja kyr. Henni faust hún engan mátt hafa til að standa upp. En hún sá fljótt, að hér var ekkert um að gera, hún varð að fara. Sá næsti beið þess, að setj- ast í sætið hennar, Itali, órakaður og óásjáleg- ur. Með honum var lögmaðui-, sem var svo stór, að ítalinn sýndist eins og dvergur við hliðina á honum. Þegar hún fór út, lieyrði hún, að skrifarinn var að kalla nöfn kviðdóm- endanna. “William Roberts. ”' •“FyrSta sæti.” Homans dómari var töluvert upp með sér af því, hvað alt gengi fljótt og greiðlega í sín- um réttarsal. XII. KAPITULI Mörg af blöðunum í New York höfðu eitt- hvað um þetta mál að segja morguninn eftir, auk þess að segja frá því sem almennum frétt- um. Ritstjórarnii- létu líka í ljós sína skoðun. Þegar Lydíu var færður morgunmaturinn í rúmið, voru henni líka færð ýms af blöðunum, og hún las með mestu stillingu' alt sem þar var að finna um þetta mál. Blöðin höfðu margt að segja um það, hve hve nauðsynlegt það væri, að fólk lærði að haga svo ferðum sínum um þjóðvegina, að öðrum stafaði eigi hætta af. Það væri ósköp til þess að vita, hve gálauslega margir keyrðu bíla, sér- staklega unga kvenfólkið, og þá ekki sízt ríkis- fólkið, sem margt áliti, að sér væru flestir veg- ir færir. Of mikil vægð í þessu efni gæti verið skaðleg. Lögin yrðu að ganga jafnt yfir alla. Þetta og annað þessu líkt höfðu blöðin að segja. Svo flestir eða allir voru ánægðir með mála- lokin? Það leit ekki út fyrir annað. En blaðamennirnir vissu víst ósköp lítið um það, sem þeir voru að tala um. Þeir sögðu það, sem þeir héldu að lesendurnir vildu heyra. Gremj- an var það, sem vfirgnæfði alt annað í huga hennar. Henni hafði liðið ósköp illa, þegar kviðdómurinn gaf sinn úrskurð. Henni hafði liðið (þolanlega þá klukkutíma, sem hún beið eftir úrskurðinum. Hún hafði verið nálega tilfinningarlaus og svo sem ekk- ert verið um það að hugsa, hver úrskurðurinn yrði. En þetta hafði alt breyzt, þegar hún fékk að \úta, að kviðdómurinn hafði komist að niðurstöðu í málinu. Hún beið með afskap- legri óþreyju meðan nafnakallið fór fram í síðasta sinn. Svo var henni sagt að standa upp og snúa sér að kviðdómendunum, eða for- manninum öllu heldur, Josiah Ilowell, sem var maður sköllóttur og æði gamallegur. Hann var næstum hræðilega alvarlegur. Lydía setti sig í stellingarnar. Hún horfði beint á hann og hún var að hugsa um það, hvaða rétt þessi maður hefði í raun og veni til þess að hafa áhrif á forlög sín og framtíð. Það var þó ékki þessi maður, sem hún var eig- inlega að hugsa um, heldur saksóknarinn, sem hún vissi a,ð beið úrskurðarins með engu minni óþolinmæði heldur en hún sjálf. “Hver er úrskurður yðar?” heyrði hún að sagt var. “Sek eða saklaus?” “Sek um manndráp á öðni stigi,” svaraði formaðurinn. Lydía vissi vel, að allir litu til hennar. Hún hafði heyrt um einhvern, sem hafði orðið svo mikið um úrskurð kviðdómsins, að það hafði lireint og beint liðið yfir hann. En það líður ekki yfir neinn af reiði, og reiðin var það, sem yfirgnæfði alt annað í huga hennar. reiðin við þennan mann, sem nú hafði fengið það sem hann hafði vilað. Þetta var næstum óþolandi, að standa þarna og geta ekkert aðhafst, en vita óvin sinn hælast um með sjálfum sér, þó hann gerði það ekki upphátt. Hún sá engin ráð til að taka frá honum þá gleði. Kviðdómendunum var þakkað og þeim var sagt, að þeir hefðu nú lokið skyldum sínum. Wiley var að fá því framgengt, að hún mætti vera frjáls, þangað til málinu hefði verið á- frýjað og yfirrótturinn hefði gefið sinn úr- skurð. Hún stóð þarna einsömul, stilt og ró- leg. Hún var að hugsa um það, að einhvem- tíma skyldi heimurinn fá að vita, með hvaða móti þessi úrskurður hefði verið fenginn. Hún hafði lifað reglusömu lífi meðan á málinu stóð. Engan þátt tekið í félagslífinu og vaida séð nokkurn mann, nema Wiley og nánustu vini sína. En nú var engin ástæða til að lifa svona kyrlátu lífi lengur. Hún hélt meir að segja, að það væri ekki nema rétt og mundi gera sér gott, að sýna heiminum, en þó sérstaklega Mr. O’Bannon, að hún væri ekki yfirbuguð og hefði ekki mist kjarkinn. Hún ætlaði ekki að skoða sjálfa sig í tölu glæpa- manna, f)á honum hefði tekist að telja þessum kviðdómendum um, að þar ætti hún heima. Hún keypti sér töluvert af nýjum og fall- egum fötum, og fór út á hverju kveldi og dans- aði fram undir morgun og svaf' fram á hádegi. Hún komst í kynni við enskan leikara, sem Ludovic Blythe hét, og var ekki nema svo sem tvítugur að aldri, en hafði mikið sjálfsálit og var talsvert hrokafullur. Yinu mhennar lík- aði mjög illa, að hún liefði nokkurn kunnings- skap við hann. Samkvæmt hans ráðum^ ákvað hún að fara til Englands í júlímánuði og útvegaði sér far- rými. Wiley sagði henni, að það væri heldur ólíklegt, að yfirrétturinn hefði þá kveðið upp úrskurð í máli hennar, og ef ekki, þá gseti hún ekki farið. Hún svaraði ekki öðni en því, að það gerði þá ekkert til, þó bún útvegaði sér farrými, eða hefði það víst. , Hún gerði ráð fyrir, að vera lengst í Lon- don, svo sem mánuð í Yenice og tvær vikur í París til að kaupa fatnað og koma svo heim í október. “Ætlar þú að koma hingað?” spurði Miss Bennett. “Auðvitað. Hvar ætti ég að vera annars staðar?” svaraði Lydía. “Þú heldur ekki, að eg láti hrekja mig út úr mínu eigin liúsi?” En það dróst, að dómur væri upp kveðinn, og Lydía varð að hætta við ferðina til Evrópu. Hún var afar óánægð út af þessu. “Þessir gömlu dómarar eru mestu sila- keppir,” sagði hún. “Nú hafa þeir tekið sér hvíld í tvo mánuði, og eg get ekki komist burt fyr en í séptember.” Hún sagði þetta þannig, að það var auðskilið, að hún þóttist gera mikið fyrir lög landsins, að breyta fyrirætlunum sín- um þannig, bara til að hlýða þeim. Hún hafði heyrt, að O’Bannon hefði farið til Wyoming, og ætlaði að vera þar mánaðar- tíma til að hvíla sig. Hún var að hugsa um, að fara eitthvað vestur, þar sem hún bafði ekki komið. En í þess stað leigði hún sér liús í New- port og var þar yfir ágústmánuð. Blythe kom þangað, til að vera þar yfir sunnudag, en var þar í tvær vikur. Honum fór að lítast betur á May Swayne, heldur en á Lydíu,, en þar með var vinskapnum við Lydíu lokið. Hún lét hann fara og May kærði sig heldur ekkert um hann. Þessar tvær stúlkur voru eins góðar vinstúlk- ur eins og áður. Albee kom til að heimsækja hana, en hann gat ekki staðið við nema einn dag. Hann var önnum kafinn, eins og vanalega. *EIann var nú að sækja um að verða kosinn Senator og var alveg viss um, að hann mundi ná kosn- ingu. “Mér fellur Bobby einna bezt,” sagði hún einu sinni við Benny. “Hann ætlast ekki til alt of mikils. Mér er ómögulegt að þola þessa ungiu, ráðríku menn. Ef þeir fá ekki öllu að ráða, þá er ekki hægt að hafa eitt meira saman við þá að sælda. Fái þeir að ráða, þá gera þeir mann að engu, maður verður bara vesal- ingur. ” KAUPIÐ AVALT LUMBER hjá THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD. HENRY AVE, EAST. - - WINNIPEG, MAN. Yard OffJce: 6th Floor, Bank of HamUton Chamhers. Elinóra gat þess, að Lydía hefði boðið sér að koma til sín í Newport og vera þar í mánuð. “Ætlið þér að fara?” spurði O’Bannon og var óvanalega hvass í máli. Hún sagðist ekki ætla að fara, en O’Bannon sýndist jafnvel ekki ánægður með það svar. “Eg skil ekki hvernig í ósköpunum þér get- ið verið vinstúlka hennar,’ sagði hann. “Ef þér bara þektuð liana, þá munduð þér viðurkenna, að hún hefir marga ágæta kosti.” “Hún hefir vafalaust marga kosti, en hún, notar þá alla, svo sem vitsmuni sína og fegurð. algerlega í eigingjörnum tilgangi.” “Það veit enginn, nema sá, sem reynt hefir, hve fjarska góð hún getur verið við þá, sem henni þykir vemlega vænt um. Hún vill alla skapaða hluti fyrir þá gera.” “Fyrir alla muni, við skulum ekki tala meira um hana,” sagði O’Bannon og kvaddi og fór. Hann skrifaði henni bara einu sinni, en liún gat alt af fengið að sjá bréfin, sem hann skrif- aði móður sinni. Hún sá gömlu konuna aft um þessar mundir, og hún gerði alt sem liún gat til að hlynna að henni og var henni fram- úrskarandi góð. “Eg vil að Dan fái að njóta góði-ar hvíld ar,” sagði Mrs. O’Bannon. “Hann hefir ekki verið vel frískur . Hann hefir ekki sofið vel og hefir verið erfiður í skapi, og það er ekki líkt Dan að vera svoleiðis.” O’Bannon kom heim í lok ágústmánaðar, sólbrendur og heldur magur, en hann sagði að heilsan væri í góðu lagi og sér liði ágætlega. Það fyrsta, sem hann spurði móður sína, var það, hvort hún hefði heyrt nokkuð um mál Lydíu Thorne. “Ertu mikið um það að hugsa?” spurði móðir hans. “Alls ekki. Þeir geta ekki breytt neinu þar,” svaraði hann. Lydía bauð Elinóni að vera hjá sér allan ágústmánuð, en hún 'þáði það ekki og bar því við, að hún gæti ómögulega verið í Newport. En í raun og veru.vildi hún ekki vera með Lydíu og helzt ekki þurfa að tala við hana, um þessar mundir. 1 hvert sinn, sem þær sáust, reyndi Lydía alt sem hún gat til að evðileggja vináttu þeirra Elinóru og O’Bannons. Áður hafði hún ekkert gert úr þessu, og hún liafði bara hlegið að því, en nú var öðru máli að gegna, því hún fann fullvel, að vináttan var að mestu leyti farin út um þúfur. Hún sá hann sjaldan, og ef það kom fyrir, þá var þó engin innileg vinátta milli þeirra lengur, þó hann vitanlega væri ávalt góðlátlegur í viðmóti gagnvart henni og vinsamlegur. Elinóra elskaði O’Bannon, en þá þannig, að tilfinningar hennar gagnvart honum máttu eins vel nefnast vinátta, eins og ást. Hún mundi hafa gifst honum, ef hann hefði farið fram á það, en hún mundi hafa gert það fyrst og fremst til að tryggja sér félagsskapinn við hann. Hún mundi hafa verið nokkurn veginn ánægð, ef hún hefði haft tryggingu fyrir því, að þau gætu alt af búið í nágrenni hvort við annað, og- notið þeirrar ánægju að finnast oft. En þá átti hún a hættu, að einhver önnur stúlka tæki hann frá henni, ef þau væru ekki gift. Hún vissi vel, að hann var bráðlyndur mjög og hún trúði því sjálf, að þar gæti hún haft góð áhrif á hann. I ramkoma hans gagnvart sér, fanst henni benda í þá átt, að það væri einhver önnur stúlka, sem hann tæki fram yfir sig, en hún þekti svo vel til hans, að hún vissi, að auk hennar sjálfr- ar var Alma Wooley eina stúlkan, sem hann hafði nokkurn vinskap við. Það gekk eitthvert slúður úm það, að þeim væri nokkuð vel til vina, en Elinóra gerði ekki mikið úr því. Ilenni fanst hún skilja fullkomlega, hvernig vináttu þeirra væri varið. Alma hafði afarmikið álit á O’Bannon og hélt að hann væri öðrum mönn- um meiri maður og vitrari og betri. Hún var lionum mjög þakklát fyrir alla meðferð hans á málinu og þó sérstaklega fyrir það, að hann hafði gert elskhuga hennar að hetju, sem held- ur hefði látið lífið, en að vanrækja skyldu sína. í hennar huga var Lydía mesta misendis mann- eskja. Hana grunaði, að O’Bannon hugsaði eitthvað líkt því líka. Hann hafði aldrei orð að segja um Lydíu. Elinóra mintist stundum eitthvað a hana. En það var eins og að kasta steini í hyldjúpt hafið. Það fékk ekkert berg- mál af neinu tagi. Það var að eins einu sinni, sem hann mintist á hana, og það var þegar hann kom til að kveðja Elinóru, áður en hann lagði af stað til Wyoming. Það var mikill ferðahugur í honum, því hann langaði til að komast til fjallanna, sofa undir beru lofti og glyyma, um stund að minsta kosti, öllum og öliu þarna austurfrá. Dæmalaust, geta karlmenn verið óvægln- ir, sagði hún. “Eg gæti ekki sagt vini mín- um, að mér þætti vænt um að fara burtu frá honum, jafnvel þó eitthvað kynni að vera hæft í því.” “Þetta er óþverraverk, sem eg hefi á hendi,” sagði hann. “Eg er alt af að senda fólk í tugthusið, og flest af því er ekkert verra en annað fólk, og kannske ekkert verra en ég sjálfur.” ÁRSLOK 1930. 1 aldahöf öll síga síðast ár, með sár og dauða. — Spilling, fals og tál. — Með slys og mæðu, þrungin tregatár, fþau tæmast 'burt og hverfa í myrkur-ál. Það gamla o!g vonda brennir tímans bál; en biðjum gott og 'nýtt oss þróist hjá. — Nú hverfur ár, með allskyns glys og prjál, en aldrei máist það af tímans skrá. — Það skal kvatt í kvöld,—en geymt sem muna má. Sælt, nýja ár! Kom hraust til starfs og stríðs, með stefnu nýja, heilbrigð réttarvöld. Hrek burtu kulda, léttu okið lýðs, og láttu hverfa neyð og þun’gbær gjöld, svo hljóma megi þökkin þúsundföld, og þjóðin fái að lifa glaða stund. — Sýn störfin merk, við endað æfikvöld, og engan lát sitt grafa dýra pund. -— Þessa allir óska heitt, — þú gefir 'gull í mund. Lát sundrung víkja. Beindu hugsun hátt til heilla og sigurs stefni viljinn rétt. Lát eining ríkja, veittu veikum mátt, og vernda fósturjarðar sérhvern blett. — Og veit að bíði blessun hverri stétt, svo batni hagur, — læknist þjóðarmein.— Varðenglar lýðsins saman sitji þétt, hin sanna og rétta blómgist trúargrein. Þá verður okkar þjóð ei byrluð bölvun nein. —Vísir. Jens Sæmundsson. To High School Students School is the right time to enter upon a business training. Immediately following the close of High The Holiday months will see you well on your way if you enroll by July 1. Make your reservation now. In any case give us the opportunity of dis- cussing with you or your parents or guardians the many advantages of such a commercial education as we impart and its necessity to modern business. The thoroughness and individual na- ture of our instruction has made our College the popular choice. Phone 37 181 for an appointment. DOMINION BUSINESS COLLEGE Branches at ST. JAMES and ELMWOOD The Mall DAVID COOPER, C.A. President.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.