Lögberg - 01.10.1931, Page 1
PHONE: 86 311
Seven Lines
Rtijng
m
zlg&>** For
ited
í®*8
Service
and Satisfaction
PHONE: 86 311
Seven Lines
,v
For
Better
Dry Cleaning
and Laundry
44. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN I. ÓCTOBER 1931
NUMER 40
Jónas Hall dáinn
Hann andaðist að heimili sínu
í Gardarbygð í North Dakota, að-
faranótt mánudagsins í þessari
viku. Er þar merkur Vestur-ís-
lendingur til grafar genginn, sem
vert væri að minnast nánar en
kostur er á í þetta sinn.
Jónas Hall var fæddur 1. ágúst
1852, í Grjótárgerði í Fnjóskadal.
Foreldrar hans voru Hallgrímur
Ólafsson frá Svertingsstöðum í
Kaupang&veit og Sigríður Jónas-
dóttir frá Veturliðastöðum í
Fnjóskadal. Árið 1874 'gekk hann
að eiga Sigríði Kristjánsdóttur
frá Hóli í Kinn, og sama ár flutt-
ust þau hjón til Ameríku. Synir
þeirra eru sex á lífi: Steingrímur,
hljómfræðingur í Winnipeg; Jó-
hann Gunnar, Arthur Freeman,
Astvaldur Kjartan, Jacob Friðrik
og Vilhjálmur Franklin.
Fyrst settist Jónas Hall að í
Muskoka í Ontariofylki, en flutt-
ist 1877 til Nýja Islands, en til
Gardar 1880 og bjó þar alt af
síðan, eða í hálfa öld og eitt ár
betur. Búnaðist þeim hjónum,
Jónasi Hall og konu hans, mjög
vel og hefir heimfli þeirra um
langt skeið verið eitt af hinum
mörgu rausnar- og myndar-heim-
ilum í Gardarbygð.
Um langt skeið tók Jónas Hall
mikinn þátt í félagsmálum ýmsum
í bygð sinni og var vel til þess
fallinn, því hann var prýðilega
greindur maður og vel að sér, og
var jafnan mikils meirinn af þeim,
er honum kyntust.
Jarðarfðrin fer fram í dag 30,
september.
Sendir heim
Um tvö hundruð brezkar mann-
eskjur, karlar, konur og börn, hafa
rétt nýlega verið send frá Banda-
ríkjunum til lEnglands, vegna þess
að mennirnir höfðu enga atvinnu
og gátu því ekki haft ofan af fyr-
ir sér og sínum. Tók Bandaríkja-
■stjórnin heldur þann kost, að senda
þetta fólik heim til síns eigin
lands, heldur en að leggja því til
lífsframfæri. Þetta brezka fólk,
það sem fullorðið var af því, hafði
fluzt til Bandaríkjanna á síðast-
liðnum tíu árum, en í þessum hóp
voru þó nokkur börn, sem fædd eru
í Bandaríkjunum. Engu að síður
tóku þó hlutaðeigandi embættis-
menn á Bretlandi við öllu fólk-
inu.
Hornáteinn lagður
Á laugardaginn var hornsteinn
lagður að háskólabyggingunni,
sem verið er að byggja í Fort
Garry. Fór sú athöfn fram með
all-mikilli viðhöfn og var margt
fólk þar saman komið. Dr. S. P.
Matiheson erkibiskup framkvæmdi
athöfnina og John Bracken for-
sætisráðherra flutti ræðu. Veðrið
var eins ákjósanlegt eins og vera
mátti. Þetta er fyrsta byggingin
af þremur, sem ráðgert er að
reistar verði þarna suður frá, til
afnota fyrir háskóla Manitoba-
fylkis, auk mahgra og stórra bygg-
inga, búnaðarskólanum tilheyr
andi, sem þegar eru bygðar. Bygg-
ingin er nú komin undir þak, en
mikið er enn eftir að gera við
hana að innan. Hún er fjórar
hæðir, að meðtöldum háum kjall-
ara, gerð úr höggnum steini og
falleg mjög og virðist með af-
bri'gðum vönduð og traustleg.
Kenslustofurnar eru margar og
stórar og bjartar og verða mjög
vistlegar, þegar þær eru full-
gerðar.
Hon. Frank Stanfield
fylkisstjóri í Nova Srotia, andað-
ist hinn 25. sept. 59 ára að aldri.
Fanst dáinn í rúmi sínu um morg-
uninn, í fylkisstjórahúsinu í Hali-
fax. Hann var fylkisstjóri síðan
•3. desember 1930.
I silfurbrúðkaupi
Mr. og Mrs. P. Dalman
26. September 1931.
Að líta yfir liðinn fjórðung aldar
er ljúft, þar eining krýndi verk og ráð,
þá renna saman raddir þúsundfaldar
og reynslan verður helgu ljósi stráð.
Þó komi haust að liðnu lífsins vori,
er lán í för, ef hjörtun geyma yl,
með lífsins trú og ljós í hverju spori
á leið er bendir hærra sigurs til.
í ykkar fylgd á förnum æfi vegi
vér fundum gleði, vinar-lund o!g yl,
nú ljómar sól á sigur-blíðum degi
og signir þetta merka tímabil.
Sé traust í hjarta, aldrei mœðir elli,
en andinn vakir hrifinn bernsku draum,
því ást og dygðir ætíð halda velli,
þó annað hverfi burt með tímans straum.
Vor tíð er hröð með örlaganna óði
og atvik mörg, er valda sæld og neyð,
og því er dagsins dýrmætasti gróði
af dygð og trú að fága gefið skeið.
A Að vina minni vaki Ijós í hjarta
og veginn faðmi lífsins auðnu hag,
við aldarfjórðungs endurminning bjarta.
með ást olg þakkir fyrir liðinn dag.
M. Markússon.
Byrjað—Hætt
Fyrir skömmu var byrjað að
grafa fyrir undirstöðum að stórri
byggingu til viðauka við Manito-
ba háskólann. Unnu þar 230 menn
og var unnið allan sólarhringinn
o!g verkinu hraðað sem mest, svo
það yrði svo langt á veg komið
áður en frost leggjast að, að hægt
væri að halda því áfram í allan
vetiur. Réðist fylkisstjórnin í
Manitoba í þetta fyrirtæki nú, í
þeim tilgangi fyrst og fremst, að
bæta nokkuð úr atvinnuþörfinni.
En það var gert með þeim skiln-
ingi, að sambandsstjórnin legði
fram helminginn af kostnaðinum
við að koma upp byggingunni.
Hafði sambandsstjórninni verið
tilkynt, snemma í september, að
byrjað yrði á þessu verki, o'g
hafði hún þá ekkert við það að
atihuga, en ekki samþykti hún það
þó statt og stöðugt. Liðu nú nokkr-
V
ir dagar og verkinu var haldið á-
fram. Komu þelr þá hér til Win-
nipeg, Senator Robertson verka-
málaráðherra, og T. G. Murphy,
innanríkisráðherra. Er þá fylkis-
stjórninni tilkynt af þeim, að sam-
bandsstjórnin geti ekki fallist á,
að veita fé til þessa fyrirtækis.
Úti af þessu hafa nokkur skeyti
farið milli þeirra, Robertson, sem
að undanförnu hefir verið í Van-
couver, og Clubb, ráðherra opin-
berra verka í Manitoba, og einnig
hefir Mr. Clubb átt^tal við Mr.
Murphy um þetta mál. Hefir það
alt farið á eina leið, og um miðja
vikuna sem leið þóttij Mr. Clubb
vonlaust um, að sambandsstjórn-
in væri með nokkru móti fáanleg
til að veita fé til þessa fyrirtæk-
is. Var þá verkinu hætit og öll von
um atvinnu við þessa miklu bygg-
ingu horfin, í bráðina.
Með þessu fyrirbæki hefir fylk-
isstjórnin mælt eindregið, enda
ætlaði hún að greiða helminginn
af kostnaðinum. En einnig hefir
bæjarráðið í Winnipeg mælt
sterklega með því, viðskiftaráðið,
félag iðjuhölda og félög iðnaðar-
manna. lEkkert af þessu tekur
sambandsstjórnin til greina, en
fer eftir ráðum einhverra í Win-
nipeg, isem enginn veit hverjir eru
— ekki enn þá.
Ralph Webb
borgarstjóri í Winnipeg, hefir lýst
yfir því, að hann verði enn í kjöri,
í sjötta sinn, við bæjarstjórnar-
kosningarnar í næsta mánuði.
Skærur milli kommúniéta
og lögreglunar í
Winmpeg
Á mánudagSkvéldið lenti í tölu-
verðum skærum milli kommúnista
og lögreglunnar í Winnipeg. Var
þetta í grend við City Hall, enda
halda kommúnistar þar aðallega
fundi sína, þó þeir fari líka ein-
staka sinnum suður til stjórnar-
bygginganna við Broadway, til að
bera þar fram kröfur sínar við
fylkisstjórnina. Byrjaði þetta
þannig, að nefnd manna, af liði
kommúnista, vildi fá að tala við
bæjarstjórnina, þar sem hún sat
á fundi. Var P. O. Woods fyrir-
liði þeirra. Vildu sumir af bæj-
arstjórnarmönnunum leyfa þetta,
en sumir ekki, en niðurstaðan varð
sú, að Woods oíg þeim sem með
honum voru, var synjað viðtals í
það skifti, með 11 atkvæðum gegn
7. Var honum vso vísað út, og
bæjarráðið hélt áfram sínum
störfum. Þegar Woods kom út,
sagði hann að sér hefði verið
synjað viðtals og sér hefði verið
vísað út, og urðu þá æsingar all-
miklar meðal mannfjöldans, sem
úti beið, og áður en langt leið,
lenti í sbærum milli kommúnista
og lögreglunnar, þe!gar hinir fyr-
nefndu gerðu aðra tilraun til að
koamst á fund bæjarráðsins. Lög-
reglumennirnir notuðu barefli
sín, en hinir grjót og múrsteina,
sem þeir höfðu safnað að sér.
Þrír af lögreglumönnunum meidd-
ust töluvert og einhverjir af hin-
um líka, en um það eru ekki Ijós-
ar sagnir. Sjö menn voru teknir
fastir, en mál þeirra hefir ekki
verið rannsakað eða dæmt, þegar
þettia er skrifað. Tveir eða þrír
af bílum bæjarráðsmannanna, sem
stóðu fyrir utan bæjarráðshúsið,
voru líka eitthvað dalaðir o'g
brotnir með grjótkasti.
Reykjavík, 29. ágúst. | Séra Octavíus Thorláksson flutti
Hinn stóri og myndarlegi al- erindi í Samkomuhúsinu i fyrra-
þýðuskóli á höfuðbóli Snorra^kvöld og sýndi skuggamyndir frá
Sturlusonar, Reykholti, er nú* Japan í sambandi við það. Stóðu
nærri fullgerður og tekur til starfa; myndirnar í sambandi við náttúru
Bretar afnema gull sem
undirátöðu gjaldmiðils
Það þótti miklum tíðindum sætia,
fyrir rúmlega viku síðan, að brezka
þinlgið, samkvæmt tillögum stjórn-
arinnar, afnam þau lagaákvæði,
að gull 'skyldi vera undirstððu
gjaldmiðill á Bretlandi. Allir
stjórnmálaflokkar virtust vera
þessu samþykkir og það mætti
engri verulegri mótstöðu. Mun Verkfall
þebta aðallega gert vegna þess,
að gullstraumurinn út úr landinuj Verkföll eru ekki tíð um þess-
var orðinn svo afar mikill, að til | ar mundir, sem eðilegt er, þar sem
vandræða þótti horfa. Allar aðr-j atvinnuleysið er svo afar tilfinn-
ar þjóðir, sem eitthvað áttu hjá [ anlegtv Þó hefir verkfall staðið
Bretum, kröfðust þess, að fáj yfir nokkrar undanfarnar vikur í
skuldir sínar borgaðar í gulli. j Estevan kolanámunum í Saskatche-
Gullið streymdi óhóflega til wan. Þeir, sem þar lögðu niður
Frakklands, en þó einkum til
í haust. Skólastjóri verður Krist-
inn Stefánsson cand. theol., sem í
fyrra var kennari á Laugarvatni.
Aðrir kennarar við skólann verða,
eftir því, sem blaðið hefir heyrt,
sr. Einar Guðnason í Reykholti,
Þórir Steinþórsson bóndi í Reyk-
holti og Þorgils Guðnason, hinn
!góðkunni íþróttamaður, áður
kennari á Hvanneyri. M’ún hann
annasti sundkensluna. Verður
sundlaugin í Reykholti sú glæsi-
legasta, sem enn er til í landinu.
Skólahúsið stendur rétt við
Snorralaug. Það er hitað með
vatni úr hvernum Skriflu, þann.
ig, að hveravatni er veitt í þró
utan við húsið, en ferskt vatn er
leitt í pípum gegn um þróna, hitn-
ar þar og rennur síðan í hita-
leiðslu hússins. — í Reykholti
mun í vetur verða veitt viðtaka
um 60 nemendum, og mun vera
hver síðastur að tryggja sér þar
aðgang. — Síðan í júlíbyrjun hef-
ir háskólahúsið verið sumarbú-i
staður fyrir kaupstaðafólk, sen»
leitar hvíldar í sveitinni, og 'gistd-
staður fyrir ferðamenn. Eru þar
veitingar á boðstólum allan dag-
inn fyrir þá, sem um veginn fara.
En Reykholb er alve!g í leiðinni,
þegar Kaldadalsvegurinn er farinn
milli Norður- og Suðurlands. Næst
Laugarvatni er hið nýja skólahús
í Reykholti vafalaust bezti gisti-
staður, sem völ er á í sveit yfir
sumartímann. — Tíminn.
Bandaríkjanna. Hverjar afleið-
ingarnar af þessu kunna að verða,
er sjálfsagfe mjö!g erfitt að segja
um enn sem komið er. En Bretar
sjálfir taka þessu með mikilli
stillingu og virðast óhræddir við
þessar ráðstafanir þings og stjórn-
ar. Hafa Viðskiftin aukist síðan
og meira að gera eftir en áður.
En afleiðingin hefir orðið sú, sem
sjálfsagt var búist við, að sterl-
ingspundið hefir fallið mikið í
verði í New York, og víðar, og er
nú komið ofan fyrir fjóra dali.
Á þessu mun það einnig bygt, að
Canada dollarinn hefir líka fall-
ið þar í verði o!g komist ofan í 92
centis. Að sjálfsögðu hefir það
mikil áhrif á viðskifti milli Can-
ada og Bandaríkjanna, því þrábt
fyrir alla tollgarða, eru alt af
mikil viðskifti milli þessara landa.
Jafnframt þessu hafa Bretar
einnig hækkað bankavexti úr 4%
upp í 6 per cent. Síðustu fréttir
segja, að Norðurlönd, Noregur,
Svíþjóð og væntanlega Danmörk,
muni fylgja dæmi Breba og af-
nema gull," sem undirstöðu gjald-
miðils.
Japanar og Kínverjar
Þrátb fyrir töluverðar skærur
milli þessara tveggja þjóða, út af
Manchuriu málunum, hefir þó
ekki enn sem komið er, dregið til
fulls ófriðar milli þeirra. Stend-
ur þar þannig á, að Kínverjum
tilheyrir landið, en Japanar eiga
þar afar mikilla hagsmuna að
gæta. Reynist oft svo, að þar verð
ur samkomulagið ekki sem bezt.
Síðustu fréttir segja, að sumstað-
ar í Kína hafi Kínverjar sýnb Jap-
önum yfirgang og ójafnað og
jafnvel myrt suma þeirra. Er ekki
ólíklegt, að það hafi illar afleið-
ingar.
vinnu, eru um 600. Of lítið kaup
og ekki nógu gott fæði segja
verkamennirnir að sé orsökin fyr-
ir verkfallinu. Nokkrar tilraunir
hafa verið gerðar til að koma á
samkomulagi, en ekki hefir það
hepnast enn. Að einhverju leyti
mun verkinu haldið áfram, því nú
Dómur í máli kommúnistianna,
sem sakaðir voru um forgöngu í
uppþotinu sem varð á bæjar-
stjórnar fundi í vetur, var kveð-
inn upp í undirrétti 24. þ.m. Þor-
steinn Pétursson hlaut 60 daga:
Guðjón Benediktsson 30 daga o'g
Jónas Guðmunrsson 15 daga ein-
falt fange^si 'Sikilyrðisbundið.
Magnús Þorvarðsson hlaut 60
daga og Georg Knudsen 30 daga
fangelsi, báðir dæmdir áður. Og
IHaukur Björnsson var dæmdur í
100 kr. sekt, eða sjö daga einfalt
fengelsi. — Tíminn.
landsins, atvinnuhætti og daglegt
líf Japana, menningu þeirra og
trúarbrögð. Var í senn ánægju-
legt og fróðlegt að horfa á mynd-
irnar frá þessu fjarlæga landi og
hlusta á frásagnir prestsins um
gulu menningarþjóðina austur
þar.
Séra Octavíus er fæddur og al-
inn upp í Bandaríkjunum og hefir
aldrei komið til íslands fyr en nú.
Hann er ættaður frá Stóru-Tjörn-
um í Þingeyjarsýslu þar bjó Þor-
lákur föðurafi hans, en séra Oct-
avíus er sonur séra Steingríms
Thorlákssonar, sem er prestur í
Ameríku. Hann hefir sbarfað að
kristniboði í Japan síðan 1916. Er
hann nú á leið til Vesturheims og
ætlar að dvelja þar hjá frænd-
fólki sínu um tíma. Kona hans og
börn eru með í förinni. Sonur
þeirra hjóna, 12 ára að aldri, spil-
aði á fiðlu á isamkomunni í fyrra-
kvöld og var gerður að hinn bezti
rómur.
Séra Octavíusi er orðið dálítið
stirt um að mæla á íslenzka tungu
og er það ekki að undra, eftir svo
langa dvöl meðal Japana.
Að lokinni myndasýningunni á-
varpaði Steingrímur læknir gest
þenna nokkrum vel völdum orð-
um og þakkaði honum fyrir kom-
una hingað. Höfðu þeir kynst
eitthvað í New York fyrir mörg-
um árum.
í nóbt brann íbúðar- og brauð-
gerðarhús Stefáns Sigurðssonar
bakarameistara við Strandgötu
hér í bænum, til kaldra kola. Litlu
sem engu af innanstokksmunum
varð bjargað. — Dagur.
Ótrúlega miklir skattar
Skattar, sem fólk á Bretlandi
þarf nú að greiða, eru svo háir,
að það er næstum ótrúlegti Ein-
hleypur maður, sem hefir $1,800
tekjur á árinu, eða sem svarar $150
á mánuði, sem er mjög algengt
kaup hér í landi, þarf að greiða í
tekjuskatt $353 á ári. Einhleypir
menn, sem ekki vinna fyrir meiru
en $10 á viku, og kvæntir menn,
sem vinna fyrir $15 á viku, verða
líka að greiða tekjuskabt. Auð- •
ngir menn verða að greiða svo
gríðarlega háan skatt, að hann get-'
ur numið 70 per cent af tekjum
þeirra. Blaðið “Chicago Tribune”
fer nokkrum orðum um þetta mál,
og telur það engum vafa bundið,
að slík skattbyrði hljóti að verða
þjóðinni til niðurdreps, einstak-
lingarnir geti ekki lifað sæmilegu
lífi og atvinnurekstur geti ekki
borið sig.
Akureyri, 25. ágúst.
Nær því öll síldveiðaskipin eru
nú búin með veiðileyfi sin. Þó
eiga reknetabátar lítið eitt eftir.
er sízt af öllu skortiur á verka-1 Hefir útflutiningsnefndin ákveðið
mönnum. En verkfallsmenn eru
margir og þeir reyna vitanlega alt
sem þeir geta að varna því, að
aðrir menn vinni þarna. Ekki er
þó hægt að segja, að tál nokkurra
verulegra óeirða hafi þar dregið,
enn sem komið er.
Kol fundin í Manitoba
Nýlega hafa kol fundist norð-
an við Turtle hæðirnar, einar sex
mílur suðaustan við bæinn De-
loraine, sem er sunnarlega í Mani-
tobafylki vestanverðu. ;Sagt er að
kol þau, sem hér hafa fundist, séu
allgóð, og betri en vanaleg Sour-
iskol, sem hér eru mikið notuð.
Menn frá Brandon eru þarna að
fást eitthvað við kolatekju og selja
kolin fyrir tvo dali tonnið við
námuna, og ætiti það að koma sér
vel fyrir þá, sem eiga heima þar
í nágrenninu. Hvað mikið kann
að vera þarna af kolum og jafn-
vel hvernig þau kunna að reyn-
ast, er víst mjög óvíst enn. Eh
jarðfræðingur, sem er í þjónustu
fylkisstjórnarinnar, mun nú vera
að rannsaka þetta.
William M. Bannatyne
lögregludómari, andaðist að heim-
ili sínu í Winnipeg hinn 25. f. m.
Hjartabilun varð banamein hans.
Hann var fæddur í Winnipeg 16.
ágúst 1964 að heimili foreldra
sinna, sem þó var á Bannatyne
Ave., rétt niður við Rauðána. Var
faðir hans A. G. B. Bannatyne,
einn af frumbyggjum Winnipeg
borgar.
að bæta tíu þúsund tunnum við
veiðileyfin og fellur það aðalega
í hlut þeirra skipa, sem ekki hafa
fengið uppbót á þeim áður. Nokk-
uð hefir orðið vart við sólsuðu í
síldinni eftir hitana um daginn.
Hefir útflutningsnefndin ákveðið
að flokka tuttugu þúsund af fyrst
veiddu saltsíldinni. Búið er að
verka hér við Eyjafjörð meira en
nokkru sinni áður. — Vísir.
Siglufirði, 29. ágúst.
Innbroti var framið í fyrrinótt
hjá Friðbirni Níelsisyni kaupmanni
og stolið 1400—1500 kr. í pening-
um. Sölubúð, skrifstofa og vöru-
geymsla er á neðri hæð, en íbúð
Friðbjarnar á efri hæð. Þjófur-
inn hefir farið inn um bakdyrn-
ar, gegnum vörugeymslu og sölu
búð og inn á skrifstofuna og stol-
ið peningunum þar úr járnskáp.
Skápurinn var opinn, þegar kom-
ið var að og óbrotinn, en peninga-
kassar og skúffur uppbrotið. í
húsinu varð enginn neins var.
Enginn sérstaklega grunaður. —
Vísir.
Akureyri, 29. ágúst.
Nýlátin er að Kífsá í Krækl-
ingahlíð ekkjan Þorgerður Guð-
mundsdóttir 102% árs gömul. Hef-
ir hún sennilega verið elzta kon-
an á landinu. 108 afkomendur
hennar eru á lífi. — Vísir.
Stórfeldar veðurathuganir
hér í Reykjavík
Hingað kom í gærmorgun hol-
lenzkt eftirlitisskip, “Nautilus” að
nafni. Eru með skipi þessu flug-
menn tveir úr hollenzka hernum,
sem eiga að athuga hér flugvöllu
og önnur flugskilyrði.
Eins og kunnugt er, er alþjóða
samstarf komið á laggirnar, um
það að gera kerfisbundnar rann-
sóknir nœsta ár á veðurfari og
öðrum náttúrufyrirbrigðum um
alt Norður-íshafið.
f sambandi við rannsóknir þess-
ar á að gera veðurathuganir hér
á íslandi, og hafa Hollendingar að
sögn tekið að sér að annast þær
athuganir hér í Reykjavík. f sam-
bandi við þær á að rannsaka hita-
stiig og raka uppi í loftinu, svo oft
sem flugfært er. Eiga hinir hol-
lenzku flugmenn að fara alt upp
í 5,000 metra hæð, til þessara at-
hugana. •
Hollenzkur veðurfræðingur,
Cannegieter að nafni, á að hafa
yfirumsjón með athugunum þess-
um. Hann er einn helzti veður-
fræðingur Hollendinga, og ritari
í alþjóða gambandi veðurfræðinga.
Hann gat ekki komið með Nautil-
us hingað, eins og hann hafði ætl-
að sér. En hann mun koma hing-
að síðar.
Flugmenn þeir, sem hingað
komu í gœr, henta Vish og van
Giesen. Þeir fóru hér um um-
hverfið í gærdag með Þork. Þor
kelssyni veðurstofustjóra.
Búisfc er við, að þessar veður-
athuganir Hollendinga byrji hér
þ. 1. ágúst að sumri. — Mgbl. 10.
sept.
Gandhi og Indlands-
fundurinn
Enn sem komið er, fréttist held-
ur lítið af fundinum, sem nú er
haldinn í London til að ræða um
Indlnadsmálin, eða samband Ind-
lands við Bretland. Fréttirnar
þaðan eru helzt af hinum mikla
indverska leiðtoga, Mahatma
Gandhi. Blöðum og tímaritum
verður nú mjög Iriðrætt um hann.
‘.Mahatma” nefna Indverjar þenn-
an leiðtoga sinn, og er það orð
þýtt á ensku ,‘Great Soul”, mikill
andi, spámaður, meistari, eða
eitthvað því líkt. Enginn maður
■ætti síður skilið, en hann, að vera
kallaður sælkeri. Þessi viður-
kendi lelðto!gi miljónanna á Ind-
landi, gengur hálf-nakinn, hefir
ekki annað sér til viðurværis, en
geitamjólk, hnotur og eittihvað
lítilsháttar af aldinum. Á skip-
inu, sem hann kom með til Eng-
lands, svaf hann á trébekk og lof-
aði ketti, sem skipinu tilheyrði,
að vera þar hjá sér.
Kröfurnar, sem Gandhi ber fram
fyrir hönd þjóðar sinnar, eru þær,
að Indland sé algerlega sjálfstætt
o!g óháð öllum brezkum yfirráðum.
Hann krefst ekki skilnaðar við
Bretland, en hann krefst þess, að
Indland ráði algerlega sínum eig-
in málum, og hafi rétt til að segja
skilið við Bretland, ef því sýnist
það hagkvæmara, þegar tímar líða.
Ekkert er honum sjálfum and-
stæðilegra heldur en stríð. Hann
segist vera viss um, að heimurinn
sé dauðþreyttur á blóðsúthelling-
um og að hann sé að leita að ein-
hverri leið til að komasti hjá þeim
ósköpum, og að hann geri sér von-
ir um, að hið forna menningar-
land, Indland, megi verða til þess,
að vísa mannkyninu þar á rétta
leið.
Hvað Gandhi kann að verða á-
gengt, er enn algerlega óvíst.
Brezkir stjórnmálamenn hafa um
þessar mundir mörgu að sinna.
Akureyri, 3. sept.
Sigfús Halldórs skólastjóri kom
heim með Goðafossi fyrir síðustu
helgi. Hefir hann dvalið vestan
hafs síðan í vor.
Manndráp og meiðingar
'Síðustu fréttir af kolaverkfell-
inu í Estevan eru þær, að þar hafi
á þriðjudaginn lent í bardaga
milli verkfallsmanna og lðgregl-
unnar. Segir fréttin, að tveir
verkfallsmenn hafi þar beðið banú,
fimm særht og aðrir fimm, er bara
voru áhorfendur, og tólf lögreglu-
menn. Fjörutíu lögreglumenn voru
sendir frá Regina til Estevan á
þriðj udagskveldið.
Bókmentafélagsbækurnar eru nú
komnar. Þær eru fjórar: Skírnir,
Stærðfræðir, eftir A. N. White-
head (Guðm. Finnbogason ís-
lenzkaði), íslenzkt fornbréfasafn
(1554) og Anuálar 1400—1800,
II, 5.— Efnisskrá Skírnis er þessi:
Handrit og handritalestur o!g út-
gáfur, eftir Finn Jónsson. Orsak-
ir hljóðbreytinga í íslenzku, eftir
Guðm. Finnbogason. Latiínuskól-
inn 1872—78, eftir Finn Jónsson.
Kaupstaðaferðir 1880—90, eftir
Odd Oddsson. Þjóðabandalagið,
eftir Einar Arnórsson. íslending-
ar og dýrin, eftir Guðm. Finn-
bogason. Um Gauk Trandilsson,
eftir Guðna Jónsson. Eiríkur í
Bót og Eiríkur á Rangá, eftir Ein-
ar Jónsson. Sambúð húsbænda
og hjúa á lýðveldistímanum, eft-
ir Árna iPálsson. Síðan eru rit-
fregnir og skýrslur og reikningar
félagsins. — Mgbl.