Alþýðublaðið - 22.07.1960, Blaðsíða 1
ISamhandiö flutti inn bíla fyrir olíufé -
Heimildarlaus flutningur milljóna í doll-
urum og pundum - Skrytin flugvélakaup
- Höfuðvitnum ber ekki saman
ISVONA auglýsti Politiken íslandsútgáfu sína, j:
sem kom út í Höfn í gær og í dag er1 til sölu hér i!
heima. Alþýðuhlaðsmyndin skýrir sig sjálf. !•
(Ljósm. Gísli Gestsson). <•
«WWW—.■...,.>WVm*WWWMWWWWWWWWWWMV
RANNSÓKNARDÓMARARNIR í gjaldeyrismáli Olíufélagsins faf, og HÍS,
þeir Gunnar Helgason og Guðmundur Ingvi Sigurðsson, gáfu í gær út ítarlega
tilkynningu um niðurstöður á rannsókn á mörgum þáttum málsins. í skýrslunni;
koma meðal annars fram þessi atriði:
1) Olíufélagið h.f. hefur 1950—
58 haft í tekjur vegna leigu
olíugeyma í Hvalfirði 877 833
dollara, sem nema á núver-
andi gengi 33,3 milljónm
króna. Árið 1954 voru $ 145-
000 (5,5 millj. kr. nú) af þessu
fé flutt í reikning Olíufélags-
ins hjá skrifstofu SÍS í New
York. SÍS virðist hafa notað
féð til bifreiðakaupa, en end-
urgreiddi 1956. Skýrt er frá
framburði Vilhjálms Þór og
þriggja starfsmanna SÍS um
þessi atriði.
5) Dómararnir hafa í fórum sín
um bréf frá Essa Export Cor-
poration, dagsett 8. júní 1953,
þar sem framkvæmdastjórn
félagsins feJÍSt á opnun reikn-
ingsins „Speci'al Account HÍS
nr. 4138“, Neðst á bréfinu
stendur: „cc: M. V, Tlior, Ol-
iufelagid, H.F.“ Þetta gæti
þýtt, að Vilhjálmi Þór hefði
verið sent afrit bréfsins. Hann
kveðst aldrei hafa séð bréfið
fyrr né fengið afrit af því.
Hann hefur, margíterkað að-
spurður, alltaf staðhæft að
hann hefði ekki liugmynd unt
tilvist reikningsins.
6) Dómararnir þakka núVerandi
ráðamönnum Olíufélagsins
mikilvæga aðstoð við upp-
ljóstrun málsins.
Skýrsla rannsóknardóm
aranna er birt í heild á 2.
og 3. síðu.
2) Af $ 220 000 geymaleigu
greiddri 1956 var $ 37 461
(1,4 millj. kr.) stungið und'an
og greitt í reikning Olíufélags
ins hjá SÍS í New York. Hauk
ur Hvannberg lét árin 1954—
56 greiða £ 55 240 (2 millj.
kr.) til Dutler, Herrick &
Marshall í New York, sem
keypti Og- seldi verðbréf fyrir
hann. Fé þetta var greitt úr
reikning Olufélagsins og HÍS
hjá skrifstofu SÍS í New
York.
3) Haukur Hvannberg hefur
keypt og selt flugvélar og not
að til þess fé úr reikningum
hjá Esso Export í New York.
Enn fremur hefur Haukur
opnað reiknin<r og haft við-
skipti við fyrirtækið General
American & Dominion Ex-
port Corp.
4) HÍS hefur haft allmiklar tekj
ur í sterlingspundum og yfir-
leitt gert skil á þeim. Þó hafa
verið lánuð £ 11 500 af reikn
ingi HÍS í Englandi til kaupa
„Litlafells“, olíuskips, sem er
sameign Olíufélagsins og SÍS.
Féð var endurgreitt 1955.
i
Fréttatilkynning frá aðal-
bankastjóra, Vilhj. Þór:
ÉG hef orðið við þeini til-
mælum þess ráðherra,
sem fer með bankamál, að
láta af störfum aðalbanka
stjóra Seðlabankans um
stundarsakir, þar sem því
hefur verið haldið fram,
að það gæti ef til vill flýtt
og greitt fyrir rannsókn
vegna gjaldeyrisskila Ol-
íufélagsins lif,. oe meintra
brota fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra þess.
VilhjálmUr Þór