Lögberg - 09.06.1932, Side 1
PHONE: 86 311
Seven Lines
ftuffi
Soi
ilP
V*T>
r. **'
iied
For
Better
Dry Cleaning
and Laundry
45. ARGANGUR
Dagskrá kirkjuþingsins
(Áætluð.)
Kirkjul)ing Hins ev. lút. kirkjufélags íslendinga í Vestur-
heimi, verður haldið í Fyrstu lút. kirkju í Winnipeg, 16.—20.
júní 1932. Eftirfylgjandi er áætluð dagskrá þingsins:
Fimtudaginn 16. júní, þingsetningarguðsþjónu'sta kl. 8 að
kvöldinu. Séra H. Sigmar prédikar.
Föstudaginn 17. júní, starfsfundir kl. 91—12 f. h. og kl.
2—6 e. h. Að kvöldinu kl. 8, verður söngsamkoma haldin af
söngflokk Fyrsta lút. safnaðar, undir forystu hr. Páls Bardal.
Laugardaginn 18. júní, starfsfundir kl. 9—12 f. h. og kl.
2—6 e. h.. Að kvöldinu' kl. 8, fyrirlestur, séra K. K. Olafson.
Sunnudalginn 19. júní, verður efalaust venjuleg guðsþjón-
usta safnaðarins kl. 11 f. h. — Kl. 3 e. h., trúmálafundur. Um-
ræðuefni: Kristileg sjálfsafneitun. Málshefjandi: cand. theol.
Jóhann Friðriksson. — Kl. 7 að kvöldi, Prestvígsluguðsþjón-
usta. Vígsluþegi: Jóhann Friðriksson, cand. theol.
Mánudaginn 20. júní, starfsfundir kl. 9—12 f. h. og kl.
2—6 e. h. Kvöldið verður helgað heiðingjatrúboði. Séra S.
O. Thorlaksson flytur fyrirlestur. Byrjar kl. 8.
K. K. Ólafson, forseti.
Grímson dómari vinnur
þarft verk
Þess hefir nokkrum sinnum ver-
ið getið í Lögbergi nú að undan-
förnu, aðallega í fréttum frá íslandi,
að GuÖmundur Grímson, dómari,
hafi verið á íslandi og í Danmörku
i vetur, í erindum fyrir flugfélag í
Bandaríkjunum. Er því lesendum
Lögbergs ekki ókunnugt með öllu
um ferð hans og erindi. Samt skal
nú hér nokkuð frekar að því vikið,
þar sem hann er nú nýlega kominn
heim úr þessari ferð.
G. Grímson dómari fór til íslands
og Danmerkur sem umboðsmaður
Trans-American Air Lines Corpora-
tion. Er hugmynd félagsins sú að
koma á loftferðum milli Detroit,
Mich. og Kaupmannahafnar, um
Labrador, Grænland, ísland og Fær-
eyjar. Má í stuttu máli segja, að
erindi Mr. Grímsons hafi gengið
þannig, að allar líkur eru til að inn-
an fárra ára komist á reglulegar og
stöðugar flugferðir milli Detroit og
Kaupmannahafnar, þá leið, sem fyr
er greind.
Mr. Grímson fór fyrst til Islands.
Var erindi hans þar mjög vel tekið
af stjórn og þingi. Kom hann til
Reykjavíkur um þingtímann og
samþykti þingið þegar lög sem heim-
ila fyrnefndu félagi að byggja flug-
stöðvar á íslandi, flytja fólk og
flutning yfir ísland og milli Islands
og annara landa. Fær félagið einka-
leyfi til slíkra flutninga í 75 ár.
Eftir að Mr. Grímson hafði lokið
erindum sínum í Reykjavík fór hann
á fund stjórnarinnar í Kaupmanna-
höfn. Þingið sat ekki meðan hann
var þar. Gat stjórnin því ekki gef-
ið Mr. Grímson fulnaðar svar og
verður það að bíða þangað til þing-
ið samþykkir lög þess efnis, að leyfa
félaginu að fljúga yfir Grænland
°g byggja þar flugstöðvar. Þó gaf
stjórnin félaginu þegar leyfi til að
gera veðurathuganir á Grænlandi,
og hefja tilraunaflug yfir landið, ef
veðurathuganirnar sýndu að það
væri tiltækilegt. Einnig lofaði
stjórnin að veita engu öðru félagi
leyfi til að fljúga yfir grænland á
næstu þremur árum. Gerði stjórnin
í Kaupmannahöfn skriflega samn-
inga við Mr. Grímson, þessu við-
vikjandi. Virðast allmiklir örðug-
leikar á því, að fá leyfi hjá stjórn-
inni i Danmörku til að fljúga yfir
Grænland og byggja þar flugstöðv-
ar. Grænland er “lokað land.” Út-
lendingum er naumast leyft að haf-
ast þar við. Gera Danir þetta í þeim
tilgangi að vernda eina tólf þúsund
Eskimóa sem þar eru. Þeim hefir
lika fjölgað síðari árin. Allar líkur
þykja til að Danir muni fallast á
það, að opna Grænland, hvað þess-
ar flugferðir snertir.
Flugleiðin er fyrirhuguð frá De-
troit, norður yfir Canada til Baffin
eyjar og þaðan til Grænlands, Is-
lands, og Færeyja, Shetlands eyja,
en hin endastöðin verður í Kaup-
mannahöfn. Leiðin er um 4,000
mílur og er búist við að hægt verði
að fljúga alla þessa leið á 48 klukku-
stundum. Flugstöðvarnar verða 12
alls og verður oft skift um flugvél-
ar og flugmenn.
Hefir Guðmundur dómari Grim-
son í ferð þessari unnið þeirri hug-
mynd, sem hér er um að ræða, afar
mikið gagn, og allar líkur eru nú
til að þess verði ekki langt að bíða,
að hún komist í framkvæmd.
Nýtt ráðuneyti á
Þýzkalandi
Þess var getið í síðasta blaði að
Bruening-stjórnin hefði sagt af sér.
Hindenburg forseti fól Franz von
Papen að mynda nýtt ráðuneyti og
hefir hann nú gert það. Þessi nýi
kanslari aðhyllist stefnu hægri-
manna og það þeirra, sem íhalds-
samastir eru. Það þykja mjög litl-
ar líkur til að þessi nýja stjórn geti
haldið völdum nema rétt í bráðina,
því hún hefir ekki nærri nægilegt
þingfylgi til þess. Verður þá líklega
aftur gengið til kosninga, og eftir
því að dæma hvernig kosningarnar
fóru þar síðast, má búast við að nú
sé að því komið að Hitler taki við
völdunum sem, forsætisráðherra, þó
hann væri ekki kosinn forseti í vor.
Ef til vill verða ekki neinar stór-
breytingar á Þýskalandi fyrir það.
Sumt af hans stóru orðum þýða
kannske ekki sérlega mikið.
Reynt að senda vopn
til írlands
Frétt frá London, í vikunni sem
leið, segir að reynt hafi .verið af
Rússumi, að koma vopnum til suð-
urhluta írlands, sem haldið er að
þeir fríríkismenn hafi ætlað að hafa
við hendina, ef til verulegs ósam-
komulags skyldi koma milli þeirra
og Norður-írlendinga, en það er vel
kunnugt, að stefna lýðveldismanna
á Suður-írlandi er sú, að sameina
landið alt i eitt lýðveldi. Úr þess-
ari tilraun varð ekkert í þetta sinn
og segir fréttin að skipið, sem
vopnin flutti hafi fengið aðvörun
um að bresk herskip væru á sveimi
fyrir ströndum Irlands og hafi það
þá snúið aftur. Það er ekki vel
hægt að segja hvað satt kann að
vera í þessari frétt, en naumast er
hún sennileg.
WINNIPEG.ýMAN., FIMTUDAGINN 9. JÚNÍ 1932
NUMER 23
Islenzku tímaritin
(Framh.) ----------
Þá hefir séra Kristinn Daníels-
son þýtt ritgjörð um “Hvernig
Robert James Lees kom upp um
Jakob kviðristara” (Jack the
Ripper). Lees þessi er nýlega
dáinn, hann var frábær miðill og
máttugur í góðum verkum. Fyr-
ir dulargáfu sína kom hann
þorpara þeim, sem hér um ræðir
í hendur lögreglunnar. Muna
flestir eftir því, er sögur gengu
um glæpamann þennan í London,
en fáum hefir verið kunnugt um
afdrif hans eða hver hann var,
fyr en eftir að Lees dó.
“Upprisan og lífið,” prédikun
eftir Árna Sigurðsson fríkirkju-
prest, flutt 5. okt. 1930, er lifandi
boðskapur, fluttur í anda sálar-
rannsóknanna, eða með fullri
samúð til þeirra. Það er kristin-
dómur og víðsýni og lotning í
þessari prédikun, sem hafin er
yfir hjáræmulegar trúarkreddur,
sem hindra framför kirkjunnar á
svipaðan hátt eins og efnishyggj-
an gerir hjá sumum hinum svo
kölluðu frjálslyndu kirkjum, sem
í raun og veru eru ekki annað en
pólitiskir klúbbar.
Annað mergilegt í þessu hefti
er: “Hvernig vitið þér það?” eft-
ir E. H. Kvaran; “Dulrænar mynd-
breytingar efnisins” eftir Sigurð
H. Kvaran; “Dulheyrn og fjar-
sýni” eftir Jakobínu Þ. Þórðar-
dóttur frá Laugabóli. Segir hún
frá ýmsum merkilegum fyrir-
brigðum, sem gaman er að lesa.
“Ýms dularfull fyrirbrigði" eft-
ir Þórð Kárason á Stóra Fljóti í
Biskupstungum; “Sýn” eftir Ing-
veldi Pálsdóttur frá Akri, og “Þau
voru ekki lengi að hittast.” Eru
þessar fjórar síðasttöldu ritgerð-
ir sama efnis, skýra frá dulrænum
fyrirburðum, sem engin ástæða er
að efast um að séu sannir. —
Morgunn mun eiga sammerkt
með flestum íslenzku timaritun-
um, að hann hefir fremur fáa
kaupendur hér vestra, en hann
flytur mikinn fróðleik, og það
ætti enginn að skemmast við að
lesa hann, því andinn er góður, þó
honum máske skeiki í ýmsu.
Iðunn lifir á gömlum og nýjum
merg. Gamla iðunn var vinsæl hjá
íslenzku þjóðinni, hafði merkilegt
bókmentalegt gildi eins og mörg
hin betri íslenzku tímarit. Þegar
Iðunn reis upp aftur, úndir rit-
stjórn þeirra Jóns ólafssonar,
Einars H. Kvaran o'g Dr. A. H.
Bjarnasonar, fagnaði þjóðin henni
yfirleitt og varð ekki heldur fyrir
neinum vonbrigðum. Hér voru
menn á ferðinni með bókmenta-
smekk og frábæra hæfileika. Jón
Ólafsson var hinn rithæfasti og
einn skemtilegasti maður í tilbót
hjá íslenzkri þjóð á meðan hann
sat uppi; en hans naut ekki lengi
við, hann var kominn á gamals
alduV; hann dó einu ári eða svo
eftir að Iðunn fór að koma út.
Söknuðu margir að hann fékk ekki
lokið við ritkafla þann, er hann
var hafinn að skrifa, “Endur-
minningar æfinjtýramannsins.”
Átti hann margt í fórum sínum
til að skrásetja frá æfintýraríkri
æfi. Einar H. Kvaran var aðeins
við ritstjórnina fyrstu tvö árin,
hætti þá, svo Dr. A. H. Bjarnason
hafði þá Iðunni einn um nokkur
ár, eða þar til hún var seld
Ma!gnúsi Jónssyni, er var ritstjóri
í tvö ár. Þá tóku' við Árni Hall-
grímsson og Eiríkur Albertsson
En síðan 1928 hefir Árni Hall-
grímsson einn verið ritstjóri tíma-
ritsins.
Af þessu sést, að Iðunn hefir
verið í höndum rithæfustu manna
og hefir hún flutt lesendum sín-
um mikinn fróðleik þau ár, sem
hún hefir komið út; jafnvel þó
maðúr sé ekki öllu samþykkur, sem
þar hefir verið á borð borið. Ið-
unn er eitt af þeim ritum, sem í
í almennings höndum ætti að
vera; hefir hún máske náð einna
mestri útbreiðslu íslenzkra tíma-
rita hér vestra; er það þá samt
mest fyrir dugnað og árvekni
útsölumannsins, hr. Magnúsar Pet-
erson í Norwood, sem sökum trygð-
ar sinnar við íslenzka fræði-
mensku hefir lagt sig allan fram
að útbreiða hana sem mest; hefir
hann þar og þarft verk unnið. Þó
tel eg ekki Iðunni, eins og eg hefi
áður sagt, bezta tímaritið sem út
er gefið á íslandi. En þeir fimtán \
árgangar, sem út eru komnir af,
henni, erú hverju bókasafni merki-]
leg viðbót og prýði.
“Skáldsögur og ástir” er fyrsta
ritgjörðin í síðasta hefti Iðunnar.
skrifuð af séra Ragnari E. Kvar-
an í Árborg, Man. Er tilefni og
þungamiðja þessarar ritgjörðar,
sögur tvær, sem nýlega eru komn-
ar út á Islandi: “Þú vínviður
hreinn’, eftir Halídór Kiljan Lax-
ness, og “Skálholt”, eða fyrra hefti
þessa skáldverks, “Jómfrú Ragn-
heiður”, eftir Guðmund Kamban
Þessir höfundar eru báðir sér-
kennilegir og fara ekki sömú leið
og aðrir; er það mikill kostur á
manni, hvort sem er rithöfundur
eða hvert annað starf er hann
hefir á hendi í mannfélaginu, að
hafa sjálfstæðar skoðanir, vera
frumlegur og brjóta leiðir; en sá
maður verður að hafa skarpa dóm-
greind og spámannsgáfur. Enginn
maður vinnur sér frægð, þó hann
sé öðru vísi en aðrir menn, nema
því að eins að hann hafi eitthvað
til brunns að bera, sem auðgað
getur líf manna og fært einhvern
sannleika, sem verðmæti hefir, eða
list, sem getur staðið straumfall
tmans. Nýr boðskapur er ekkki
betri en gamall boðskapur að eins
vegna þess, að hann er nýr; og
gamalt er ekki betra en nýtt, að-
eins vegna þess að það er gamalt.
Hvort sem er verður að hafa verð-
gildi, ef það á að lifa, og þola eld-
inn. Eg hefi ekki lesið: “Þú vín-
viður hreinn”, en ýmislegt hef)
eg lesið eftir Laxnes; hann er all-
slingur að skrifa, en ritháttur
hans er ekki aðlaðandi, og ef hann
á að verða mikill spámaður, verð-
ur hann að taka sér allmikið fram
og taka nýja stefnu. /
Það mun óhætt að fullyrða, að
það léttvægasta í íslenzkri rit-
mensku, sé skáldsagnagerðin. Eru
þó mörg 'gullkorn í íslenzku' skáld-
sagnuagerðinni; en samt, þegar
öllu er á botninn hvolft, þá stend-
ur nú gamli Jón Thoroddsen með
‘Mann og konu’ og ‘Pilt og stúlku’
einna fremst í flokki enn sem kom-
ið er. Enginn hefir dregið hreinni
eða betri myndir úr íslenzku þjóð-
lífi en hann gerir þar, nema Gest-
ur Pálsson, sem mestur snilling-
ur hefir verið íslenzkra söguskálda,
þó ekki sé mikið að vöxtum er eft-
ir hann liggúr. Búrfells feðgarn-
ir og Gróa á Leiti í Pilti og stúlku
og Grímur meðhjálpari og Egill
sonur hans, Hjálmar tuddi og Sig-
valdi á Stað í Manni og konu,
eru persónur, sem aldrei geta
gleymst lesandanum og alt hefir
sinn stóra þátt í því, að vekja at-
hygli á afkárahætti og öfug-
streymi í íslenzku þjóðlífi; þá er
ástin dregin þar upp í skýrum og
hreinum litum; hin sanna ást
þeirra Indriða og Sigríðar, Þórar-
ins og Sigrúnar, sem grundvölluð
er á bjargi, ást hins göfuga, and-
lega eðlis, sem upphefur mann-
inn í hærra veldi, göfgar hugar-
farið og flytur hann nær guði, en
sem er í beinni andstöðu við þá
ást svo kallaða, sem að eins tendr-
ast við eld jarðneskra hvata—
J
Gúðsþjónustur í Fyrstu lútersku kirkju,
Sunnudaginn 12. júní:
1. —Ensk messa, kl. 11 f. h.
2. —Islenzk messa, kl. 7 e. h.
Við þessa guðsþjónustu prédikar
séra N. [Steingr. Thorlaksson.
ástríðanna — sem leitt hefir svo
margan manninn til glötunar í
lífinu, en sem þó miklu fremur
hefir tælt saklausar ungar stúlk-
ur o'g eyðilagt líf þeirra. Sú ást
skapar aldrei hefðar sæti í huga
og hjarta manna eða kvenna, sem
siðfágaða hugsuú hafa.
Einár H. Kvaran skipar merki-
legt sæti með íslenzkri þjóð, sem
skáldsögu'höfundur, og margar
sögur hans eru ágætar. Þá hefir
Kristín Sigurðardóttir skrifað nafn
sitt með stöfum, sem ekki fljótt
mást. Skáldsaga hennar, “Gest-
ur”, er með beztu íslenzkum
skáldsögum; og margir fleiri hafa
skrifað góðar sáldsögur eða skáld-
sögukafla, þó e'g hirði ekki að fara
fleiri orðum um það hér.
í ljóðagerð stendur þjóðin mik-
ið framar. Á 19. öldinni átti ís-
lenzka þjóðin glæsilegri hóp af
stórskáldum, heldur en nokkur
önnur þjóð eða mannhópur í til-
tölu við fólksf jölda, og í söguritun
hefir hún unnið sér ódauðlegan
orðstír fyr og síðar. Fornaldar-
bókmentirnar er minnisvarði þeirr-
ar kynslóðar, og mörg fræg sögu-
rit seinni tíðar og samtíðar manna
hafa auðgað bókmentasafn þjóð-
arinnar, svo sem mannkynssaga
Páls Melsteðs; Einokúnarverzlun
Dana/ og Oddur j Sigurðsson o.
fl. eftir Jón J. Aðils; Menn og
mentir siðaskiftaaldarinnar 0. fl.
eftir Dr. P. Eggert Ojlason, og
síðast en ekki sízt Kristnisaiga,
Dr. Jóns Helgasonar biskups, sem
er bæði afreksverk og listaverk.
Nú er þetta orðinn all-nokkur
útúrdúr, og vil eg nú snúa mér aft-
ur að ritgjörð þeirri, er eg nefndi
og sem fyrst stendur í síðasta
hetti Iðunnar, og verð eg að dvelja
við hana um stund. Frh.
Ralph Maybank
AriÖ 1929 var Ralph Maybank
kosinn bæjarráðsmaður í annari
kjördeild í Winnipeg, með miklum
atkvæðaf jölda.
I tvö ár gegndi hann þessu em-
bætti og komu þá í ljós hans miklu
leiðtogahæf ileikar, dugnaður og
góðgjarn skilningur á hinum erfiðu
högum almennings.
Annað árið var hann formaður
þeirrar nefndar, sem sá um að
hjálpa þeim, er atvinnulausir voru.
Gegndi hann því vandasama verki
með mikilli góðgirni og svo hag-
kvæmlega, að flestir munu vel við
una.
Mr. Maybank er aðeins 42 ára að
aldri, en hann hefir verið afar starf-
samur um æfina. Hlann hefir verið
'algengur verkamaður, járnbrauta-
maður, blaðamaður, lífsábyrðar um-
boðsmaður og námsmaður. Síðan
hann var fjórtán ára hefir hann
sjálfur jafnan brotist áfram og
jafnan vitað hvað hann vildi. Nú
stundar hann lögmannsstörf í lög-
mannafélaginu Maybank and Gunn.
Hann hefir verið áhugasamur og
duglegur og látið mikið til sin taka
í frjálslynda flokknum, og verið
honum til mikils gagns. Það verður
litið eftir hag Winnipeg-bæjar, ef
Ralph Maybank kemst á þing.
Þingmannsefnið og
fíflarnir
Webb borgarstjóri í Winnipeg,
lætur svo sem hann sé óánægður við
fylkisstjórnina í Manitoba, eins og
reyndar allir íhaldsmenn, sem sjálf-
ir gætu einhvern hag af því haft, að
þeirra flokkur kæmist til valda. Mr.
Wjebb er að reyna að konxast á þing
og útásetningar við gerðir stjórnar-
innar heldur hann að sé helsta ráð-
ið til að ná kosningu. Þeir halda
það allir. En hans aðfinningar við
stjórnina eru dálítið öðruvísi heldur
en annara, en rétt eins réttmætar og
haldgóðar. Það sem hann finnur
einna helst að stjórninni er það, að
hún hafi vanrækt að uppræta fífl-
ana á hinum stóra grasfleti kring
um þinghúsið. Hann segir ekkert
um þessa miklu ííflamergð alstaðar
annarsstaðar i borginni. En það
stendur ekki til. Þeir koma ekki
fylkiskosningum við. Komist Mr.
Webb á þing og hans flokkur til
valda, þá ætlar hann að sjá um það,
að þessir fíflar á þinghússvellinum
verði ekki lengur svona vitleysislega
margir. Og hann sér ekki betur, en
kjósendurnir í St. James, og því ná-
grenni, ættu að kjósa sig af þessum
ástæðum. Hann ætti náttúrlega að
réttu lagi að verða ráðherra—fífla-
ráðherra—og hann verður það von-
andi ef svo ólíklega skyldi til tak-
ast, að ihaklsmenn, og Webb þar
með, beri hærri hlut við kosningarn-
ar. Það veitir víst ekki af, að hafa
duglegan fíflaráðherra, ef sá flokk-
ur kemst til valda í Manitoba. Og
Webb er fjarskalega duglegur. Vér
höfum oft heyrt hann sjálfan segja
það.
Það hefir verið gert töluvert háð
að Mr. Webb út af þessum fíflum.
En hans ástæða fyrir því, að skifta
ætti um stjórn, er alveg eins góð
eins og ástæður hinna, hvorki betri
né verri. Jafn viturlegar og rétt-
mætar. Þær eru í nákvæmu sam-
ræmi við öll önnur fíflalæti íhalds-
manna í Manitoba um þessar mund-
ir.
Hvernig greiða skal
atkvæði
Atkvæðagreiðslan í öðrum kjör-
dæmum þessa fylkis heldur en Win-
mpeg, fer nú fram með nokkuð
öðrum hætti heldur en verið hefir.
Kjörseðlarnir eru ekki merktir með
x eins og gert hefir verið, heldur
með tölustöfum. Segjum t. d. að
sex menn séu í kjöri í einu kjör-
dæmi. Kjósandi setur þá töluna 1
aftan við nafn þess frambjóðanda,
sem hann helst vill kjósa og svo töl-
una 2 við nafn þess, sem hann vill
næst helst, o. s. frv. En þýðingar-
lítið er þó að setja nokkra tölu við
fleiri en tvö eða þrjú nöfn, þar sem
aðeins einn á að kjósa. Kjósandi
má ekki halda að það spilli fyrir
sínum manni, þó hann greiði öðrum
2. 3. eða 4. atkvæði. Þau atkvæði
koma ekki til greina fyr en útséð er
um, að sá sem maður hefir greitt
I. atkvæði hefir ekki náð kosningu.
Enginn skyldi því hlifast við að
greiða 2. og 3. atkvæði, því þau at-
kvæði geta haft mikið að þýða.