Lögberg - 30.11.1933, Síða 8
Bis. y
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 30. NÓVEMBER, 1933.
Úr bœnum og grendinni
G. T. spil og dans á hverjum
þriðju- og föstudegi í I.O.G.T. hús-
inu, Sargent Ave. Byrjar stundvis-
lega kl. 8.30 aÖ kvöldinu, $23.00 í
verðlaun. Gowler’s Orchestra.
Athygli skal vakin á auglýsingu
hér í blaðinu frá S. Sigurjónssyni,
738 Banning St., -Winnipeg, um
bækur og rit er hann hefir til sölu.
“Senior Hockey’’ i Olympic
skautaskálanum, Church og Charles.
Vikings og St. Norbert les Cana-
diens, laugardaginn 2. des., kl. 8
e. h.
Hjálpið íþróttafélaginu með því
að koma á leikana. Þetta er fyrsti
leikurinn og því áríðandi að fjöl-
ment verði.
Samkoman, sem haldin verður, af
Jóns Bjarnasonar skóla, í samkomu-
sal Fyrstu lútersku kirkju kl. 8 á
fimtudagskvöldið 1 þessari viku ætti
að verða ánægjuleg. Þar fer fram
stuttur leikur. Ennfremur skemta
söngflokkar Miss Halldorson með
íslenzkum og með enskum söng.
Þar verður og fleira til að vekja
unað. Kaffi og brauð handa öllum.
Inngangur er ekki seldur en tekið á
móti gjöfum við dyrnar. Allir vel-
komnir.
Athygli skal hér með dregin að
skemtisamkomu, sem fram fer í
fundarsal Fyrstu lútersku kirkju,
þann 11. desember næstkomandi.
Munu margir hlakka til að sjá Mar-
ionettes brúðurnar leika sem lifandi
fólk, og það sem þær segja, fer
fram á íslenzku. Þá er það hreint
ekkertj smáræðis tilhlökkunarefni,
að fá að hlýða á Mrs. W. J. Lindal,
eins snjöll og hún er. Með söng og
hljóðfæraslætti skcmta Mrs. K. Jó-
hannesson og Mr. Ragnar Ragnars.
Þá verða og um hönd hafðar skraut-
sýningar, er tákna sjö stig mann-
legrar æfi; fylgir þessu öllu söngur
og hljóðfærasláttur. Þeir, sem til
þekkja, vita hve ánægjulegt er að
hlusta á Mrs. Hercus, Johnson bræð-
urna og Jack McArton. — Þessi
sjaldgæfa skemtun verður haldin
undir umsjón deild No. 1; kvenfé-
lags Fyrsta lúterska safnaðar.
Jóns Sigurðssonar félagið heldur
fund á þriðjudagskveldið þann 5.
desember næstkomandi á heimili
Mrs. J. Kristjánsson, 788 Ingersoll
Street, klukkan 8.
Souris Kol
Deep Seam Lump and Cobble
$6.25
Upper Seam Lump and Cobble
$5.50
Af þessum kolum eru margar
tegundir. Við seljum þá beztu.
Halliday Bros.
Símar 25337—25338
JOHN ÓLAFSON umboðsm.
Heimili: 250 Garfield St.
Simi 31 783
"Sjálfsvernd er ýmnum í brjóst
layln, cr ekki verðskulda hana."
Firth Bros.
Yfirhafnir, nýjar í Winnipeg,
$19.50, $21.50
og yfir
hver um sig frá $5.00 til $10.00
meira virði. Kostar ekkert að
skoða þær.
ósótt föt og yfij-hafnir $2 5.00 til
$35.00 vjrðj fyrir
$15.00
Keynið Firth Bros. handsaumuð
Budget alfatnaði 4
$18.50
Firth Bros. Ltd.
ROY TOBEY, Manager
417'4 POKTAGE AVE.
Sími 22 282
Skuldar-fundur í kvöld (fimtu-
dag)
Mr. Jón Ólafsson málmfræðingur,
sem lengi ’hefir starfað i þjónustu
Vulcan Iron Works félagsins hér í
borginni, lagði af stað áleiðis til
Skotlands, ásamt frú sinni og syni
síðastliðinn laugardag, og ráðgerði
að dvelja í Aberdeen að minsta
kosti fram undir vor.
Dr. Tweed verður á Gimli föstu-
dagana þann i. og 8. desember næst-
komandi.
Mr. Sigv. Jónsson frá Leslie,
Sask., var staddur í borginni í byrj-
un vikunnar.
Mr. W. H. Paulson, fylkisþing-
maður í Saskatchewan, kom til
borgarinnar síðastliðinn laugardag,
ásamt frú sinni. Höfðu þau hjón
aðeins stutta viðdvöl að þessu sinni;
hurfu heimleiðis aftur á mánudags-
kveld.
Mr. Paulson leit allra snöggvast
inn á skrifstofu Lögbergs. Hann
er enn bráðern, þrátt fyrir háan
aldur, og fyndinn og skemtilegur að
vanda.
Kristrún í Hamravík.
Ný skáldsaga með þessu nafni,
eftir Guðmund G. Hagalín, hefir
mér verið send til sölu hér vestra.
Er hún 200 bls., prentuð með stóru
letri á góðan þykkan bókapappír.
Verðið er $i.6o, að meðtöldu póst-
gjaldi. Svo hefi eg nú sent til allra
kaupenda Kvöldvökur io.—12. hefti,
svo að þeir hafa þá fengið allan yf-
irstandandi árgang. Og gleymið nú
ekki að senda mér andvirði þeirra,
$i-75» fyrir jólin.
Magnús Beterson,
313 Horace Ave., Norwood,
Man.
Jón Bjarnason Academy—Gjafir:
Christian Sivertz,
Victoria, B. C...........$ 1.00
St. Paul’s Ladies’ Aid,
Minneota, Minn.............25.00
í minningu um 15. nóv.,
(Winnipeg) ................25.00
íslenzka kvenfélagið, Leslie,
Sask.......................15-00
í umboði skólaráðsins votta eg
hér með alúðlegt þakklæti fyrir
þessar gjafir.
S. IV. Melsted,
gjaldkeri skólans.
Séra Jóhann Friðriksson messar
í Lundarsöfnuði kl. 3 e. h. næsta
sunnudag. Munið eftir biblíu-klass-
anum.
Guðsþjónusta i kirkju Konkordía
safnaðar boðast sunnudaginn þriðja
desember, sem er fyrsti sunnudag-
ur í jólaföstu og fyrsti sunnudagur
kirkjuársins.
Þess væri óskandi að menn sæu
sér fært að byrja kirkjuárið með
því að fjölmenna við þessa guðs-
þjónustu.
Messan byrjar klukkan tvö eftir
hádegi.
ó1. ó1. C.
Kvenfélag sambandssafnaðar
heldur “Silver Tea” og sölu á heima-
tilbúnum mat i fuúdarsal kirkjunn-
! ar í dag (föstudag)’ kl. 2 e. h. og að
kvöldinu.
Séra Jóhann Bjarnason messar
væntanlega á þessum stöðum í Gimli
prestakalli, næsta sunnudag, þ. 3
j des., og á þeim tíma dags er hér
J segir: í gamalmennaheimilinu Betel
j kl. 9.30 f. h., og í kirkju Gimlisafn-
! aðar kl. 7 að kvöldi. Óskað er eftir
að fólk sinni þessu og fjölmenni
við messurnar.
Sunnudaginn 3. des. hefir séra H.
j Sigmar guðsþjónustu í Eyford
! kirkju kl. 2 'é. h. og í Akra Hall kl.
7.30. Messan á Eyford fer fram á
íslenzku, en messan á Akra á ensku.
Fólki öllu úr norðurbygðum boðið
sérstaklega að taka þátt í þeirri
guðsþjónustu. Eftir þá messu held-
ur ungmennafélagið á Akra fund.
Til ^orgyðjunnar
Eg leiður er að stara á lífsins glit
og prjál.
Mið langar svo að gjörþekkja mína
eigin sál.
t samúðinni einungis sjálfan mig eg
finn,
það sorg mín er og gleði—já, aðal
heimur minn.
Eg þrái svo að hlusta á vorsins
hörpu hljóm,
á haustvindanna óma—þann lífsins
skapadóm,
á sumarfugla kliðinn, það fagra
megin mál,
á munarraddir andans, er berast sál
frá sál.
Þær veigar vil eg teiga er þyrstri
svala sál,
þann sönginn vil eg heyra, er Skuld-
ar kveður mál,
þau ljóðin vil eg syngja er hjartans
hörpu slá,
þær hugar-rúnir lesa, er vitsins sam-
úð ná.
Ó, kom þú til min, Freyja, min vors-
ins drauma dis
og dveldu hjá mér þangað til sól úr
ægi rís.
Og kendu mér að elska það alt, sem
fegurst skín.
Hvað auga mitt fær gripið og notið,
send til mín.
Ó, sýn mér í þann heim, þar sem
sjálfur Baldur býr,
og birt mér hverja mynd, sem er
ávalt hrein og skir.
Ó, sýndu mér það alt, sem er heilagt,
satt og hátt,
og hjálpa mér að ígrunda veruleik-
ans mátt.
Ó, sýn mér upprás sólar í sannleiks
réttu mynd,
og sanna mér að réttlætisgyðjan ei
sé blind.
Og sýn mér upp á vizkunnar háa
hefðar tind,
og hjálpa mér að finna þá tæru
Mýmis-lind.
ó\ B. Benediktsson.
Nýr félagsskapur
Hin siðustu ár hefir það verið í
hugum nokkurra rnanna, að vel færi
á þvi, að fyrverandi nemendur
Jóns Bjarnasonar skóla stofnuðu til
félagsskapar sín á milli. Af tilraun-
um til framkvæmda i þessu efni
varð þó ekkert, þangað til séra
Sveinbjörn Ólafsson, fyrverandi
nemandi skólans, nú prestur í Lester
Prairie í Minnesota-ríki, skrifaði á
árinu liðna þeim, sem ritar þessar
línur, hvatti til ákveðinna fram-
kvæmda í þessu máli og hét liðveizlu
sinni til að hrinda þvi af stað. Fram-
kvæmdir dvöldust samt nokkuð
vegna þess, að timaleysi hindraði
það, að hann fengi skrá yfir alla
fyrverandi nemendur. Á síðastliðnu
sumri ferðaðist hann hingað til borg-
arinnar og áftum við þá samtal,
nokkrir menn, um þessa hugmynd.
Það samtal leiddi til þess að fundur
var boðaður öllum fyrverandi nem-
endum skólans, eftir því sem unt
var að vita um þá, í Jóns Bjarna-
sonar skóla, þriðjudaginn 8. ág. I
nefndinni, sem vann að því að boða
fundinn voru þeir Hermann Mel-
sted, Jón Bjarnason og Jón Mar-
teinsson. Þann dag kom saman
nokkur hópur, milli 40 og 50 manns.
Séra Sveinbjörn var þar og stýrði
fundinum, en Lárus Melsted var
skrifari. Var málið þar alt ítarlega
rætt og allir virtust vera þess fýs-
andi, að umræddur félagsskapur
væri stofnaður. Nefnd var þar kos-
in til að semja lagafrumvarp og
undirbúa næsta fund, sem ákveðið
var að halda föstudaginn 15. sept.
í nefndina voru kosin: Jón Mar-
teinsson, Hermann Melsted Edgar
Johnson, Mrs. Lena Goodman,
Claude Main og Sam Shewczuk.
Hinn fyrstnefndi var kosinn for-
maður nefndarinnar og stjórnaði
fundinum 15. sept. Þá var kominn
saman álíka hópur og á fyrri fund-
inum. Þar var lagafrumvarpið rætt
og með litlum breytingum samþykt.
Þar voru og kosnir fyrstu embættis-
menn féiagsins. Má því telja þetta
stofnfund félagsskaparins. Kosnir
embættismenn eru þessir:
Forseti, Harald J. Stephenson;
vara-forseti, Sam Shewczuk; skrif-
ari, Mrs. Lena Goodman; vara-
skrifari, Snjólaug Sigurdson; fé-
hirðir, Otto Bjarnason ; vara-féhirð-
ir, Lily Bergson.
Þessi öll skipa stjórnarnefnd fé-
lagsins og þessir fjórir í viðbót: •
Lárus Melsted, Hermann Melsted,
Iíarry Sloker, Njáll Bardal. Heið-
ursforseti er séra Rúnólfur Mar-
teinsson.
Tilgangur þessa félags er sá, að
efla samband með þeim, sem hafa
verið nemendur skólans og veita
skólanum þann stuðning sem unt er.
Fyrsta samkoma þessa félags-
skapar var haldin í St. Regis Hotel
föstudaginn 27. okt. Var þar mál-
tíð framreidd og ræður voru flutt-
ar. Var þar myndarlegur hópur
fyrverandi nemenda samankominn.
Einnig voru þar skólaráðsmenn og
nokkrir aðrir vinir. í alt sátu sam-
sætið um 100 manns, og má það
teljast ágætt í fyrsta sinn.
Að lokinni máltíð ávarpaði for-
seti samkomuna, sagði frá tilgangi
félagsins og las nokkuð úr lögunum.
Bergþór E. Johnson mælti fyrir
minni skólans, en því ávarpi svaraði
séra Rúnólfur Marteinsson. Dr. Jón
Stefánsson flutti ræðu fyrir hönd
skólaráðsins. David Gustafson
mælti fyrir minni kennara og Miss
Salome Halldorson svaraði. Fé-
hirðirinn, Otto Bjarnason, skýrði
samkvæminu frá ýmsu viðvíkjandi
fjármálunum; Mr. A. S. Bardal
flutti nokkur ávarpsorð til félags-
ins. Hermann Melsted stýrði al-
mennum söng. Samkoman var hin
ánægjulegasta. Hvert andlit lýsti
fögnuði og engan heyrði eg minnast
á samkvæmið án þess að láta í ljósi
gleði yfir mótinu. Margir þeirra
er þar komu saman voru með Öllu
ókunnugir, en allir áttu það sam-
eiginlegt að hafa tilheyrt Jóns
Bjarnasonar skóla.
Samkomunni sleit með dansi.
Hljóðfærasveit A. G. Bardals spil-
aði.
Um framtíð félagsskapar þessa
skal ekkert sagt, en hann sýnir kær-
leika til Jóns Bjarnasonar skóla og
þakklæti fyrir veruna þar. Sam-
koman var þrungin af fögnuði.
R. M.
Akjósanlegt eldsneyti í kvaða veðri sem er
MONOGRAM COAL
Lump or Cobble $5.50
Stove............... $4.75
Ekkert aukreytis fyrir kol þó þau sé í pokum
WOOD’S COAL COMPANY, LTD.
590 Pembina Highway
45 262 - PHONE - 49 192
West End Order Office:
W. Morris, 679 Sargent Avenue
PHONE 29 277
Frá Fálkum
Vetrarvertíð er nú byrjuð og
byrinn blæs þýðlega í skautasegl
æskunnar. Mest er það fyrir gofug-
mensku og áhuga mentamanna þess-
arar borgar; slógu þeir skjaldborg
umhverfis tjaldbúð Fálkans siðast-
liðið haust þegar leitað var til þeirra [
í Fálka kreppunni.
Þökk sé þeim og öðrum, sem af
áhuga fyrir æskulýðnum hjálpuðu
til að koma því í framkvæmd að
hægt væri að halda starfinu áfram
þennan vetur.
Leikfimi fer fram undir umsjón
hr. Karls F. Kristjánssonar; hann
er vel kunnur öllum fyrir fimni
sina’á sviðum íþróttanna. Hefir fé-
lagið ráðið hann til að þjálfa drengi
14 ára og yngri. Allir, sem enn
hafa ekki gjörst félagar ættu ekki að
draga það lengur því við höfum tak-
markað húsnæði.
Unglingar, mánudagskvöld kl.
7—8 e. h.; eldri drengir, sama dag,
kl. 8—10 e. h.; stúlkur, þriðjudags-
kvöld kl. 7—10 e. h., í fundarsal
Sambandssafnaðar. Hockey á föstu-
dögum, í Sherburn Park, frá 7—9
e. h.
Stúlknadeildin hefir flutt sig úr
I.O.G.T. húsinu vestur á Banning
St. i samkomusal Sambandssafnað-
ar.
Hockey félagið, sem er deild í
þessu félagi hefir nú tekið á leigu
Sherburn Park skautaskálann og
verða þar 4 ílokkar æfðir í vetur,
aðeins þó drengir 14 ára og yngri.
Ef íslendingar notuðu nú þetta
tækifæri sem að undanförnu, ætti
ekki að líða á löngu áður en þíð
fáið að sjá al-íslenzka flokka. Róm
var ekki bygð á einum degi, svo er
með “hockey”. Það tekur að minsta
kosti 4 til 5 ár að ná saman góðum
flokk, og reynslan hefir sýnt það að
þetta er aldursskeiðið, sem mest á-
ríðandi er að drengir fái góSa þjálf-
un.
Verða þar við hendina menn til
að taka á móti drengjunum og leið-
beina þeim. Gjaldið er sama og fyr-
ir inni-iþróttirnar.
Karl.
CARL THORLAKSON
úrsmiSur
Peningar fyrir gamla gull- og
silfurmuni, sendir með pústi um
hæl.
699 Sargent Ave., Winnipeg
Heimasimi 24 141
"BJAItMI”
kostar $1.50 árgangurinn. Nýir áskrif-
endur fá I kaupbætir eldri árgang blaðs-
ins, eða 60c virði af neðantöldum bðk-
um og smáritum.—Gðð jðlagjöf.
Bækur og Smárit ttl Sölu:
pess bera menn sAr (fæst um
miðjan desember) ..............$1.00
í skóla trúarinnar, Minningarrit um
Ólafíu Jóhannsdðttur, nú ..... 1.25
Vitranir Sundar Singh, 6b........ 0.50
í bandi ...................... 1.00
í fðtspor hans I. 4 0e; I. og II. 0.80
í bandi ...................... 1.25
Tvær smásögur, Guðr. Lárusd...... 0.25
Helgi hinn magri, fyrirl. dr. J. Bj. 0.30
Ld'ðð úr Jobsbðk, Vald. bisk. Briem 0.30
Úr blöðum frú Ingunnar Dahl...... 0.15
Úm Zinsendorf og Bræðrasöfnuð.... 0.15
Páll Kanamori, postuli Japana.... 0.25
Árásir á kristindðminn, E. Levy.... 0.15
Sðkn og vörn, Dixon ............. 0.15
Hvers vegna eg gerðist kristinn.... 0.10
Vekjarinn 6, Hinzta kvekjan,
Um lfkræður .................. 0.15
Aðalmunur gamallar og nýrrar
gufræði, S. A. G.............. 0.15
Sonur hins blessaða, S. Á. G..... 0.15
Hegningarhússvistin í Reykjavík,
S. A. G....................... 0.15
Nýtt og gamalt, I—III, (S. A. G.)
hvert lOc, öli ............... 0.25
Friðurinn við vlsindin, séra Stef.
Sigurðsson I Vigur ........... 0.05
Skerið upp herör, séra F. Fr..... 0.10
Ræða við biskupsvígslu V. Briem 0.05
Heimatrúboð, S. Á. G............. 0.05
Trumbuslagarinn, Cox ............ 0.15
Andatrú vorra ttma, R. Vald...... 0.15
Ýms ofangreind smárit heft saman 0.60
Islenzk myndakort, 5c hvert, 6 f. 0.25
Hefi fleiri rit og bækur, sendi skrá sé
um beðið.
S. SIGURJÓNSSON,
738 Banning St., Winnipeg.....
HEMSTITCHING
leyst af hendi flðtt og vel. Pant-
anir utan af landi afgreiddar með
mjög litlum fyrirvara. 5c | yardið
Helga Goodman
809 ST. PAUL AVE., Winnipeg
(áður við Rose Hemstitching)
Funeral Designs and Sprays
SARGENT FLORISTS
Nellie McSkimmings
678 SARGENT AVE.,
viÖ Victor St.
BúÖin opin aÖ kveldi og á
sunnudaga. Sími 35 676
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annast greiðlega um alt, aem aS ■
flutningum lýtur, aináurn eða atör-
um. Hvergi sanngjarnara verð.
HeimilL 762 VICTOR STREET
Slmi: 24 500
WEVEL CAFE
692 SARGENT AVE.
PHONE 37 464
Par hittast Islendingar, utan sem
innanbæjar, við máltfðir og hið
nafntogaða þjððrækniskaffi.
Soffia Schliem,
Thura Jonasson.
Distinguished Citizens
Judges, Former Mayors, Noted Educationlsts, Editors, Leading
La~.vyers, Doctors, and many I’rominent Men of Affairs—send their
Sons and Daughters to the
D0MINI0N
BUSINESS COLLEGE
When men and women of keen discernment and sound judgement,
after full and painstaking enquiry and investigation, select the
Dominion Business College as the school in which their own sons
and daughters are to receive their training for a business career,
it can be taken for granted that they considered the many ad-
vantages offered by the Dominion were too important to be over-
looked.
The DO.YllNION BUSINESS COLIÆGE
today offers you the best business courses money can buy, and that
at a cost that brings it easily within your reach.
An ordinary business course ho longer fills one’s requirements. It
is the extra measure of skill and knowledge conferred by a Do-
minion Training that singles one out for promotion in any modern
business office.
It has always been a good investment to secure a Dominion Train-
ing—but today, more than ever, it is important that you secure
the best obtainable in order to compete worthily in the years to
come.
/
Our Schools are Located
1. ON THE MALL. 3. ST. JOHNS—1308 Main St.
2. ST. JAMES—Corner 4. ELMWOOD—Corner
College and Portage. Kelvin and Mclntosh.
JOIN NOW
Day and Evening Classes
You May Enroll at Any One of Our Four Schools With Perfect
Confidence.