Lögberg - 25.01.1934, Page 4

Lögberg - 25.01.1934, Page 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 25. JANÚAR, 1934. Íogberg OeflB öt hvern fimtudag af T B E COLUMBIA P R E 8 8 L 1 M I T E D 69» Sargent Avenut Winnipeg, Manitoba Utanáakrift ritstjórans. EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVE WINNIPEG, MAX. VerO ts.oo um drið—Borpist iyrirfrnm The "Lögberg" ls printed and published b> The ColumWa t-reae, Limited, 695 Sargent Ave.. Winnipeg. Manitoba PHONEB S0 32T—86 328 Eimskipafélag Islands Með stofnun Eimskipafélags Islands, þann 18. janúar 1914, hefst margþætt umbóta og athafna tímabil í sögu hinnar íslenzku þjóðar; forustumenn hennar, ýmsir, höfðu lengi fundið til þess, hvert lífsskilyrði það var í áttina til sjálfstæðis, að þjóðin fengi sjálf ráðið siglingum sínum, og hagað þeim eftir þörfum landsmanna. í boðsbréfi því, er sent var út í því skyni, að fá menn til þess að leggja fram hlutafé til stofnunar Eimskipafélags íslands, voru þessi einkunnarorð: “Navigare necesse'’— siglingar eru nauðsyn. Undirtektir þjóðar- innar voru hinar beztu; safnaðist þegar á fyrsta ári það mikið fé, að talið var fært að stofna félagið, og undirbúa smíði tveggja skipa; varð hluttaka það almenn, að með einsdaunum mun vera með J)jóðinni; mun tala iiluthafa vera um 14,000. Árið 1913, voru þrír vestur-íslenzkir at- hafnamenn, Jieir Ásmundur P. Jóhannsson, Árni Eggertsson og Jón Tryggvi Bergmann, staddir heima á Fróni; áttu forvígismenn Eimskipafélags hugmyndarinnar tal við þá og spurðust fyrir hjá þeim um afstöðu Vest- ur-lslendinga til málsins; riðu þessir þrí- menningar á vaðið með því að kaupa 10,000 króna hlutabréf í fyrirtækinu, hver um sig. Jafnframt hétu þeir því, að vinna að hluta- söfnun vestra, er nema skyldi í alt 200,000 krónum. Kusu Vestur-lslendingar nefnd, er með höndum hafði fjársöfnun í hinum ýmsu nýbygðum Islendingra vestan hafs; gekk hún það rösklega fram, að á tiltölulega skömm- um tíma hafðist inn alt það hlutafé, er fram á var farið. Á stofnfundi félagsins, er hald- inn var í Reykjavík þann 18. janúar 1914, mætti af hálfu vestur-íslenzkra hluthafa, J. J. Bíldfell. Sæti hafa átt í framkvamdar- nefnd félagsins, frá stofnun þess, og eiga enn, þeir Asmundur P. Jóhannsson og Árni Egg- ertson, er sótt hafa til skiftis ársfundi þess. Sama árið og Eimskipafélagið var stofn- að, hófst heimsstyrjöldin mikla. Þann 16. apríl árið á eftir, kom Gullfoss, fyusta skip félagsins, til Reykjavíkur. Sökum þess hve miklum annmörkum það var bundið, ófrið- arins vegna, að halda uppi siglingum við England og Danmörku, varð það að ráði að skipið skyldi hefja siglingar til Ameríku, og hélt það þeim stöðugt uppi nokkuð á fimta ár, landi og lýð til ómetanlegrar blessunar. Eimsklipafélag Islands hóf göngu sína með einu skipi; nú hefir það sex skip í förum, auk vöruflutningaskipa, er það tekur annað veifið á leigu. Eins og gefur að skilja hafa siglingar batnað að stórum mun síðan Eimskipafélag- ið tók til starfa, og ferðafjöldi milli Islands og útlanda, ásamt Ipættum strandferðum, auk- ist í beinu hlutfalli við þá aukningu, sem orð- ið hefir á skipastól félagsins. Árið 1871, hagaði siglingum þannig til, að eitt skip fór 7 ferðir milli Islands og Dan- merkur. Tíu árum síðar voru skipin orðin tvö, og fóru þau 9 ferðir milli Islands og út- landa; hélzt svipað ástand um nokkuð langt skeið. Á árinu 1930, fóru skip Eimskipafé- lagsins 52 ferðir milli Islands og útlanda, auk allmargra strandferða. Skip Eimskipafélagsins sigla samtals 180 þúsund sjómílur á ári. Siglingaleiðin um- hverfis jörðina er talin rúmar 22 þúsund sjó- mílur; sé miðað við það, verður sýnt, að skip- in hafa siglt nærri því 8 sinnum umhverfis jörðina á ári. Leiðin, sem skipin sigla, er þau fara kringum land og koma við á helztu höfnum, er um 1,000 sjómílur, en öll siglinga- leiðin umhverfis landið með ''Áðkomum á að- alhöfnum, er um 1,500 sjómflur. Á ári hverju hafa skipán 8-900 viðkomur á höfnum úti um land. Á millilandaferðunum hefir Eimskipa- félagið jafnaðarlega hagnast vel; hið sama verður, því miður, ekki sagt að því er strand- ferðimar áhrærir, eða siglingar til hinna smærri hafna; þó hefir félagið ekki látið sér þetta fyrir brjósti brenna; það hefir talið sér skylt að sjá öllum landshlutum fyrir sam- göngum, og siglt á þær hafnir, er þörf höfðu fvrir það, hvort sem það borgaði sig eða ekki. En af þessu hefir það leitt, að félagið hefir ekki ávalt getað greitt hluthöfum sínum arð. Sem dæmi, til sönnunar því, hve þjóðin hefir auðgast á starfrækslu Eimskipafélags- ins, má benda á það, að flutningsgjöld og far- gjöld með skipum félagsins námu á 15 áram freklega 30 miljónum króna. Fé þetta hefðu landsmenn orðið að greiða til útlanda, ef félagið hefði ekki verið til, og sennilega tölu- vert meira, því eitt af því sem félagið fyrst I og fremst stuðlaði að var það, að flutnings- gjöld og fargjöld yrði lægri á Islandi en ann- arsstaðar hjá nálægum þjóðum. Vöruflutningar með skipum Eimskipa- félagsins milli Islands og útlanda, hafa stöð- ugl aukist, og eiga vitanlega eftir að aukast, eftir því sem það eykur skipastól sinn. Síð- ustu árin* sem skýrslur hafa verið teknar (1926—1928) hefir inn- og útflutningur auk- ist úr 40 þúsund smálestum upp í 63 þúsund smálestir á ári. Hollvættir íslenzkrar þjóðar hafa stað- ið vörð um Eimskipafélag Islands frá því er það fyrst hóf göngu sína, og fram á þenna dag; það hefir orðið þjóðinni fjöregg til manntaks og athafna. 1 tilefni af tvítugs afmæli félagsins, efndi stjórnarnefnd þess til afmælisfagnaðar þann 18 þessa mánaðar. Ur því veizluhaldi barst þeim Ásmundi P. Jóhannssyni, Árna Eggerts- syni og J. J. Bíldfell svolátandi símskeyti: “Stjórn Bimskipafélags íslands saman- söfnuð á hátíðafundi á Reynistað vegna 20 ára afmælis Eimskipafélagsins, sendir yður hjartanlegar þakkir og vinakveðjur út af starfi yðar öllu frá upphafi vega félagsins. Islenzk þjóð fagnar samvinnu við Vestur- Islendinga. ”—Eggert Claessen. Svar þeirra þriggja Vestur-lslendinga, er hér um ræðir, var á þessa leið: “Eggert Claessen, Reynistað, Reykjavík: Hjartans þakklæ)t(i fyrir \^inakveðjur. Við óskum yður og meðstjórnendum Eim- skipafélagsins allrar blessunar og félaginu vaxandi gengis.’’ Framkvæmdarstjóra starf Eimskipafé- lagsins, hafði með höndum frá stofnun þess og fram til 1. júní, 1930, Emil Nielsen, merk- ur athafnamaður og Islandsvinur, danskur að uppruna. Við tók af honum, núverandi framkvæmdarstjóri, Guðmundur Vilhjálms- son, maður áhugasamur og skyldurækinn, sem þá er bezt getur. 1 ræðu á aðalfundi Eimskipafélagsins, þann 24. júní í fyrra, komst Guðmundur Vil- hjálmsson meðal annars þannig að orði: “Framtíð Eimskipafélagsins er komdn undir velvild þjóðarinnar og fullum skilningi á hvaða þýðingu félagið hefir fyrir landið og þjóðina. — Menn mega ekki gera þær kröfur til félagsins, að það geti á öllum tímum kept við flutningsgjöld útlendra skipafélaga, sem ekki eru að neinu leyti bygð á því, hvað sigl- ingarnar raunverulega kosta, heldur eru miklu fremur framkomin með það fyrir aug- um, að betra sé að taka að sér flutninga fyrir lítóð, heldur en að verða af þeim, og sigla skipunum tómum. Þetta er hættuleg braut að fara inn á og gæti leitt til þess, að skipin sigldu m)eS fullfermi en þói með stórtapi. Menn mega heldur ekki krefjast þess af Eim- skipafélaginu á þessum erfiðu tímum, að það geti séð hverri einustu smáhöfn á landinu fyrir beinum og tíðum samgöngum við útlönd og jafnframt fyrir fullkomnum strandferð- um. Fjárhagur félagsins leyfir slíkt ekki að svo stöddu, en vera má, að einhverntíma kunni félagið að geta leyst þetta erfiða hlut- verk. “Keppinautar Eimskipafélagsins hafa ekki grætt á siglingum sínum síðastlið- ið ár og þarafleiðandi ekki getað greitt hlut- höfum ágóða.—Þegar á alt er litíð, þá verður ekki annað sagt, en að niðurstaðan af rekstri síðastliðins árs sé viðunandi. — Að vísu hef- ir félagið ekki getað greitt hluthöfunum á- góða, enda naumast slíks að vænta, þegar tekið er tillit til kreppunnar og innflutnings- haftanna. — Afsþriftir skipanna hafa verið í samræmi við það, sem talið er hæfilegt. “Eg lít svo á, að fjárhagur félagsins geti ekki talist góður, fyr en það á tækin, það er skipin, skuldlaus og þarf ekki að veðsetja þau útlendum lánardrotnum. Að þessu marki verður að stefna, en því verður ekki náð, nema með samstarfi alþjóðar, sem skilur og viðurkennir starf þessarar stofnunar sem réttilega hefir verið kölluð óskabarn þjóðar- innar. ”— Atvinnuvegir og við- skifti á árinu 1933 Eftir Guðlaug Rósinkranz Þegar horft er til baka yfir liðna árið, fer ekki hjá því, aS manni finnist, að bjartara hafi verið yfir því en næsta ári á undan. Við nán- ari athugun kemur líka í ljós, að hefir verið yfirleitt meiri og vöru- verð hækkandi. Þessi staðreynd gef- ur okkur góðar vonir, bjartsýni og framfarahug, þrátt fyrir það þótt viðskiftajöfnuðurinn sé ekki eins góður og við hefði mátt búast. Skal hér nú nokkuð drepið á helztu atriði í atvinnulífi voru og verzlun á liðna árinu. Tíðarfarið. Tíð var góð um land alt, spretta var ágæt alstaðar og nýting góð á heyjum að Suðurlandi og Borgar- firði undanteknum. Á Suðurlandi var úrkoma meiri en á undanförn- um árum og rigndi sumstaðar meira en áður eru dæmi til hér á landi. Voru s. a. s. stöðugir óþurkar á Suðurlandi. Eigi gat heitið að snjór félli á jörðu alt haustið, fram að nýári, gránaði aðeins snöggvast, en tók fljótlega upp aftur, og mun það vera einsdæmi að svo sé. Blóm sprungu út um jól og fólk fór jafn- vel á grasafjall. Hey voru yfirleitt mikil og góð og litlu búið að eyða af þeim um nýár, þar eð hestar og sauðfé víðasthvar hefir gengið al- gjörlega úti fram að nýári. Bústofninn. Rúpeningi hefir alt af verið að fjölga hér á landi síðustu 3 árin. Seinustu tölur hagstofunnar eru fyr- ir árið 1932. í fardögum það ár var sauðfé alls á landinu 706,415, nautgripir 29,925, hross 46,318, geit- fé 2,644 °g hænsn 54,694. Sér- staklega hefir sauðfé og hænsnum fjölgað mikið. Mörg stór hænsna- hús hafa risið upp í grend við Reykjavík og í grend við þorp og bæi víða um land. 1 fyrrahaust var fleira fé sett á en undanfarið, sök- um þess, hvað kjötverðið var lágt, og hinsvegar mikil hey. Á þessu ári mun því bústofn landsmanna hafa verið rrtun rrteiri en hann hefir nokkru sinni fyr verið. Sláturfé var því með flesta móti i haust. Hjá Sláturfélagi Suður- lands var t. d. slátrað hér í Reykja- vík, Hafnarfirði og Akranesi 50 þúsundum f jár, og er það mun meira en nokkuru sinni fyr. Fé var J)ó heldur rýrt. Var veikindum kent um, þvi óvenjumiklir kvillar voru í fé á síðastliðnu ári, sérstaklega ill- kynjuð ormaveiki er mest bar á í landléttari sveitum, þar sem fé geng- ur mikið úti og lítið er gefið. Síðastliðið haust mun hafa verið sett álíka margt á og í fyrrahaust. Garðyrkjan. Jarðeplauppskeran var miklu rrteiri í ár en á undanförnum árum. En kartöflusýki gerði mjög vart við sig á Suðurlandi og i BorgarfirSi, svo mikill hluti af uppskerunni í þessum héruðum varð ónýtur. Sér- staklega bar mikið á sýkinni á Akra- nesi, Eyrarbakka og Stokkseyri. Reynt var að verjast kartöflusýk- inni með þvi að sprauta með blá- steinsupplausn og dufti, og varð það töluvert til bóta, ef það var gert nógu snemma. VerðiS á kartöflum var frá 14—18 kr. tunnan í heild- sölu. Sennilegt er talið að framleitt sé nú svo ríiikið af kartöflum hér á landi, að nægilegt sé með sömu neyzlu og á undanförnum árum hef- ir verið. M jólkurbúin. Frarrtleiðsla mjólkurbúanna var með minsta mlóti. Smjör varð að flytja inn síðari hluta sumars og í haust. Lögin, sem samþykt voru á síðasta reglulegu þingi, um aS blanda smjörlíkið með ísl. smjöri í ákveðn- um hlutföllum (5%), gátu ekki komið til framkvæmda, sökum srrtjörskorts. Heildsöluverð rjóma- bússmjörs hefir verið kr. 3.30 pr. kg- Sjávarútvegurinn. Samkvæmt skýrslu Fiskifélagsins hefir fiskaflinn í ár verið mun meiri en í fyrra. 1. des. 1932 var fisk- 1 meir en þriðjung aldar hafa Dodd’a Kidney Pills verið viðurkendar rétta meðalið við bakverk, gigt. þvagteppu og mörgum öðrum sjúkdómum. Fást hjá öllum lyfsölum, fyrir 50c askjan, eða sex öskjur fyrir $2.50, eða beint frá The Dodd’s Medicine Co., Ltd., Toronto, ef borgun fylgir. aflinn 56 þús. smálestir en á sama tíma i ár er hann 68,440 smálestir af þurrum fiski. Aflinn er því 1. des. í ár 12,440 smálestum meiri en í fyrra.- Síldveiðarnar. Síldveiðarnar gengu ágætlega framan af sumri, en síldin hvarf snögglega síðast í ágústmánuði. Síldaraflinn, talinn í tunnum, var i ár sem hér segir: Söltuð síld ............... 71,820 Matjesíld..................109,728 Kryddsíld ................. 21,166 Sykursöltuð síld............ 3,234 Sérverkuð síld ............ 13,098 Samtals 219,046 í fyrra var öll sérverkaða (þar í innifalin matjesild, sykursöltuð og kryddsíld) og saltaða síldin 247,053 tn. — Bræðslusíldin er aftur á móti miklu meiri í ár en í fyrra. 1932 voru 524,752 hl. látnir í bræðslu, en í ár 758,198 hl. eða 226,- 446 hl. meira brætt í ár en í fyrra, síldarmjölið og olían hefir og verið meiri. Skip, sem gengu til veiða. í ársbyrjun voru 38 togarar en 2 fórust á árinu, Skúli Fógeti í fyrra- vetur og Geysir í haust. Þá mán- uði, sem flest skip voru á veiðum hér, voru 37 togarar (22 frá Reykja- vík, 11 úr Hafnarfirði, 2 frá Pat- reksfirði, 1 frá ísafirði og 1 frá Önundarfirði), 22 línuveiðarar, 213 vélbátar yfir 12 tonn, 264 vélbátar (trillubátar) og 60 róðrarbátar. Skipverjar á öllum þessum flota voru á sama tíma 6,615. Iðnaður. Á undanförnum árum hefir iðn- aður færst allrrtikið í vöxt hér á landi. Þau iðnfyrirtæki, sem áður hafa verið starfrækt, hafa verið rek- in með svipuðum hætti í ár og und- anfarið, en flest nokkuð verið aukin. Ríkið keypti Pauls-síldarverksmiðj- una á Siglufirði og, starfrækti hana, (en hún var ekki starfrækt í fyrra). Smjörlíkis verksmiðjurnar hafa heldur aukið framleiðslu sína og mun hér nú vera framleitt nægilega mikið smjörliki til neyslu í landinu. Sjóklæðagerðin hefir verið aukin. Vinnufata- og veiðarfæragerðir hafa verið settar á laggirnar og virð- ast ganga ágætlega. Mjólkurniður- suðuverksmiðja Kaupfél. Borgfirð- inga hefir heldur aukið framleiðslu sína. Súkkulaðiverksmiðjan Freyja hefir og töluvert fært út kvíarnar og sömuleiðis efnagerðirnar. Ullar- verksmiðjurnar hafa unnið úr meiri ull í ár en undaníarið. Verið er að byggja tíö og auka ullarverksmiðj- una Gefjurí á Akureyri. Vélarnar hafa verið bættar og er verið að koma fyrir ullarþvottavélum og kamgarnsvélum. Getur þá verk- smiðjan aukið framleiðslu sína að miklum mun, og íramleitt nýjar og miklu betri og áferðarfallegri dúka en hingað til hefir verið hægt. Gæru- verksmiðjan á Akureyri hefir verið rekin með svipuðu fyrirkomulagi og í fyrra, og í ár hefir garnaverk- smiðjan í Reykjavík verið starfriðkt. Þenna tiltölulega hraða vöxt iðn- aðarins má sjálfsagt mikið Jiakka ínnflutningshöftunum. Hinsvegar má og sjálfsagt nokkuð þakka bættri framleiðslu, sem fengist hefir við meiri þekkingu og reynslu. Verzlun og viðskifti. Útlit er fyrir að viðskiftajöfnuð- urinn, þrátt fyrir góðæri, mikla framleiðslu og hækkandi vöruverð, muni verða mjög óhagstæður, og er þar um að kenna miklum innflutn- ingi á árinu. Verðmæti innfluttrar vöru á árinu til 1. desemþer, var kr. .• . .. . 'r tfSK' ■f-ðf..- 41,264,000. Á sama tíma í fyrra var verðmæti innfluttrar vöru kr. 32,052,431. Innflutningurinn er þannig 9,212,569 kr. meiri í ár en í fyrra. Nýja Dagbl. 31. des. Frá Ocean Falls, B.C. n jan., ,1934. Herra ritstjóri, Einar P. Jónsson, Winnipeg, Man.: Um leið og eg óska þér, og Lög- bergi farsæls nýárs, þá legg eg hér innan í ávísun fyrir tveggja ára á- skriftargjald rrtjtt, að upphæð $6.00 fyrir blaðið frá nóv. 32 til 34. — Betra seint en aldrei- Eg er að vona að Lögberg geti haldið áfram að koma út framvegis, því án íslenzku blaðanna er óhugs- andi að við sem íslendingar hér í álfu ættum langa hfdaga fyrir hönd- um. Héðan úr þessu plássi er fátt að frétta. nema einn þann mesta snjóa- vetur, sem hér hefir komið s.l. 18 ár. Vanalega fellur hér lítill snjór, en nú hafa fallið hér um 7 fet alt í alt; til jafnaðar um 4 fet á jafn- sléttu. Það byrjaði að snjóa hér í miðj- um nóvember og hélt því út allan desember, en nú er byrjað að rigna, svo snjórinn er nú aðeins orðinn um 2 fet á jafnsléttu. og er þó þetta þorp alveg fram við sjó. Hér eru aðeins örfáir íslendingar, og muntu geta ráðið það af því, að eg er víst sá eini í þessum bæ, sem kaupi Lögberg (og Heimskringlu kaupi eg líka). — Og mun eg gera það framvegis eins lengi og eg hefi nokkur aura-ráð! Eg legg hér með nokkur erindi í minningu um Sigurð Jóhannsson, sem eg vil biðja blaðið að prenta, ef ekki er alt rúm í því upptekið næstu viku eftir að þú færð þessar línur. Með beztu óskum og bróðurhug, er eg þinn einl. Þórður Kr. Kristjánsson. Sigurður Jóhannson (Minning) Enn—er einum færra íslending í Vestri— Með hug, sem stefndi hærra, Og hjartans löngun beztri Að stofna kjörland stærra Með starfi, trú og lestri. Einn af sönnum sonum Sinnar frónsku nfóður, Eftir öllum vonum, Án æðri skóla, fróður. Telst til heiðurs honum, Að hann var drengur góður! Hann var hreinn í máli, Með hagyrðingum betri; Viljinn var úr stáli Til vinnu, í ræðu og letri. Hans skap var nálíkt Njáli, 1 næðingum, á vetri. Hann var hygginn maður, í hug og lund bjó festa. Á sólskin sanntrúaður Og sigur alls hins bezta. Á Guð sinn trúði’ ’hann glaður —Það gæfu held eg mesta. Við hvern, sem hús hans sótti Hann var kátur, ræðinn; í augum sást ei ótti, En ógleymd hjartagæðin; Og gestum gaman þótti Að gömlum þul með kvæðin. Þú gamli góðvin—Siggi! í Guðsdýrð ef þú lifir? Þó lík í moldu liggi Og lærðir syngi yfir,( Sál þín sveig minn þiggi, —Mér seinna úr eilífð skrifir. Þórður Kr. Kristjánsson. P.S.—Hinn látni var andarannsókna vinur, eins og höfundur þessara stefja. Þ. K. K.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.