Lögberg - 15.02.1934, Page 1
47. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 15. FEB. 1934
NÚMER 7
PRA ISLANDI
Bylting í Austurríki
Sósíalistar gera uppreisn gegn Dollfuss-stjórninni. Þús-
undir manna drepnar. Ástandið mjög ískygcf'Uegt.
Frakkar lnóta að senda her sinn stjórninni til hjálpar.
B.F.JARSTJÓRNARKOSN-
INGAR í REYKJAVIK
Úrslitin urðu þessi:
atkv.
SjálfstæSisflokkur..........7,043
Alþýðuflokkur ......•—.......4,675
Kommúnistar.................1,147
Framsóknarfl................1,015
og E-listinn ................ 399
Samtals...................14,279
Auðir seðlar voru ...............56
Ógildir seðlar voru.......—•.... 22
AIls ...............14,357
Samkvæmt þessu komu flokkarnir
að bæjarfulltrúum, sem hér segir:
Sjálfstæðisflokkur ..........8
Alþýðuflokkur ...........•••■5
Kommúnistar .................1
Framsóknarfli................1
E-listinn —•.................o
Alls ............15
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
hlutu atkv. sem hér segir (brotum
slept) :
Guðm. Isbjörnsson 7,024; Bjarni
Benediktsson 6,786; Jakob Möller
6,430; Guðrún Jónasson 6,294;
Guðm. 6,0991 Jóhann Ólafson 5,863;
Sigurður Jónsson 5,631 ; Pétur
Halldórsson 5,408.
Fulltrúar Alþýðuflokksins hlutu
atkv. sem hér segir:
Stefán Jóh. Stefánsson 4,672;
Jón A. Pétursson 4,516; Ólafur
Friðriksson 4,361; Guðm. R. Odds-
son 4,204; Jóhanna Egilsdóttir
4,049.
Fulltrúi Framsóknarfl. hlaut at-
kvæði sem hér segir:
Herm. Jónasson 1,004.
Fulltrúi kommúnista hlaut atkv.
sem hér segir:
Björn Bljarnason 1,144.
—Tekið úr Mbl.
KOSNINGIN A
ISAFIRÐI
Kosningin 20. janúar, fór þann-
ig:
atkv.
Sjálfstæðismenn .............498
Sósíalistar ....... ••••......561
Kommúnistar .................117
Þannig fengu SSjálfstæðismenn
4 fulltrúa, sósíalistar 4 og kommún-
istar 1.
Fulltrúar Sjálfstæðismanna sem
kosnir voru eru þessir:
Jón S. Edwa)d, konsúll; Jófi.
Eyfirðingur; Finnbjörn Finn-
björnsson, málari; Gísli Júlíusson,
skipstjóri:
Fulltrúar sósíalista eru þessir:
Finnur Jónsson, Guðm. G. Haga.
lín, Hannibal Valdemarsson, Jón
SSigmundsson og fultrúi kommún-
ista Eggert Þorbjarnarson.
—Tekið úr Mbl.
KOSNINGIN A
SIGLUFIRÐI
Bæjarstjórnarkosning fór fram á
Siglufirði 13. janúar. Á kjörskrá
voru 1,225. Þátttaka í kosningunni
var mikil. 1017 kusu.
Listar voru fjórir, Sjálfstæðis-
niann, Framsóknar, Alþýðuflokks-
ins og kommúnista.
t bæjarstjórn voru kosnir 3 Sjálf-
stæðismenn, 2 Alþýðuflokksmenn,
2 Framsóknarmenn og 2 Komniún-
istar. _____
KOSNINGIN I
IIAFNARFIRÐI 13. JAN.
Úrslit kosninganna urðu þessi:
atkv.
Alþýðuf lokkurinn .........990
Sjálfstæðisflokkurinn .....823
Kommúnistar.......••••...... 39
Korri Alþýðuflokkurinn að 5
mönnum en Sjálfstæðisflokkurinn 4.
KOSNINGIN A
AKUREYRI
Kosning á 11 mönnum í bæjar-
stjórn á Akureyri fór fram
Á kjörskrá voru um 2,200 og neyttu
rúmlega 1950 atkvæðisréttar síns.
Kosið var um 6 lista og féllu at-
kvæði á þessa leið:
A-listi, Alþýðuflokkurinn ... .210
B-listi, Kommúnistar .......••••406
C-listi, bæjarstjóralistinn ....355
D-listi, Framsóknarmenn ........377
E-listi, íhaldið ...............410
F-listi, iðnaðarmenn.....-—..154
Þessir menn voru kosnir í bæjar-
stjórnina:
Af A-lista: Erlingur Friðjóns-
son; af B-lista: Steingrímur Aðal-
steinsson verkamaður og Þorsteinn
Þorsteinsson verkam'.; af C-lista:
Jón Sveinsson, bæjarstjóri og Jón
Guðlaugsson, bókari; af D-lista:
Vilhjálmur Þór, kaupfélagsstjóri
og Jóhannes Jónasson, yfirfiski-
matsmaður; af E-lista: Sigurður
Hlíðar, dýralæknir, Stefán Jónsson,
útgerðarmaður og Jón Guðmunds-
són, smiður; af F-lista: Jóhann
Frimann, kennari.—N. dagbl.
FLÝGUR RJÚPAN TIL
GRÆNLANDS?
Út af hinu óskiljanlega hvarfi
rjúpunnar með nokkurra ára milli-
bili, hefir mörgum komið til hugar
að hún muni flytja sig búferlum til
Grænlands, og hafa ýmsar athug-
anir fremur stutt þá skoðun. Nú í
seinasta “Náttúrufræðing” segir
Jón Guðlaugsson svo frá: Um
miðjan desember 1919 var eg stadd-
úr á Hellisheiði vestanvert við
Skálafell. Það var frost og tals-
verður snjór. Eg heyri vængja-
þyt yfir mér, og sé hátt uppi rjúpna-
hóp, á að giska 1000—1500. Eg
hefi aldrei séð rjúpur fljúga eins
hátt eins og þessi hópur gerði. Þær
komu austan að og héldu í útnorð-
ur. Eg horfði á eftir hópnum eins
lengi og eg sá til þeirra og þær
lækkuðu ekkert flugið.—Mbl.
FERÐIR FUGLANNA
Urtönd, sem merkt var við Hús-
eyjarkvísl í Skagafirði 6. ágúst í
sumar, var skotin hjá Baldwins-
town í Wexfordsýslu í írlandi hinn
15- nóvember. Urtarungi, sem
merktur var hjá Grímsstöðum við
Mývatn 26. júní í sumar, var skot-
inn 15. nóvember í Downssýslu í
írlandi. Skúfönd, merkt á hreiðri
hjá Grímsstöðum við Mývatn 14.
júní í sumar var skotin hjá Loch
Ennel i Westmeathsýslu í írlandi
26. nóv. Fullorðin rita, sem merkt
var á Sauöárkróki 9. júlí í sumar
var drepin hjá Fogo-eyju hjá New
Faundlandi, líklega í nóvember, en
skýrslu vantar um stað og dag.
--- —Mbl.
VÉLBATURINN BLIKI
Milli kl. 12 og 1, 17. janúar sást
frá Hofsási í kagafirði tvímastrað-
ur vélbátur hvítur að lit, og rak
hann fyrir sjó og vindi og virtist
hafa bilaða vél. Báturinn gaf neyð-
armerki, en á Hofsós var enga hjálp
hægt að veita sökum óveðurs. Var
þá símað til Sauðárkróks, en þar lá
vélbáturinn “B,rúni” frá Siglufirði,
og var honum gert aðvart og fór
hann bátnum til hjálpar og tókst
honum að koma honum inn á höfn-
ina í Hofsási. Bátur þessi reýndist
að vera vélbáturinn “Bliki” frá
Akureyri. Hann hafði farið frá
Akureyri áleiðis til Sandgerðis og
lenti i óveðri og bilaði vélin, og misti
báturinn alt lauslegt ofan þilja svo
sem legufærin, segl og vatn, en
menn hafði ekki sakað.—N. dagbl.
HITLER OG PÓLVERJAR
Samningar hafa nú tekist með
Hitler og pólsku stjórninni um
helztu vandamál þessara ríkja.
Báðar þjóðirnar hafa lofast til að
útkljá öll mál á friðsamlegan hátt,
og að halda gerða samninga. Samn.
ingarnir' standa til tiu ára.
Óvinátta milli þessara tveggja
þjóða hefir þrásinnis, síðastliðið ár,
stofnað friðarmálum álfunnar í
stórhættui Aðallega hefir verið
þrætt um afstöðu Austur-Prúss-
lands, sem Pólland fékk umráð yfir
að stríðinu loknu. Þá finst Þjóð-
verjum að Pólverjar séu yfirgangs-
samir í Danzig, sem á að heita frjáls
borg, en er nú að mestu í höndum
Póllands.
Samningar þessir mælast vel fyrir
hjá flestum nema Rússum, sem sjá
sér hættu búna, ef Þjóðverjar
skyldu veita Póllandi lið, ef til ó-
friðar drægi.
ST. SOPHIA
Þessi fræga kirkja, sem nefnd
hefir verið “gimsteinn kristninnar,”
var bygð af Justinan mikla og vigð
á jóladag 538. Árið 1453, þegar
Mikligarður (Istambul) féll í hend-
ur I'yrkja var henni breytt í musteri
af Múhameðstrúar mönnum, og
bættu þeir við hana turnum og ýmsu
öðru útflúri en létu hylja altaris-
töflur og helgi myndir með máli eða
steypu.
Hinn frjálslyndi stjórnarformað-
ur Tyrklands, Mutsapha Kemel
Pasha hefir nú gefið samþykki sitt
til að lagfæra það, sem skemt hefir
verið, og hefir amerískur byggiiiga-
meistari umsjón með verkinu.
ÞINGSETNING
Fylkisþingið i Manitoba var sett
með mikilli viðhöfn á fimtudaginn
8. febrúar.
Fylkisstjórinn, McGregor, las há-
sætisræðuna.
Stjórnin lét í 1 jós ánægju sína
með samninga þá, sem gerðir voru
við sambandsstjórnina um styrk til
atvinnulausra. Einnig var því lýst
yfir að stjórnin hefði í hyggju að
breyta lögunum um sölu hlutabréfa
og stofnun nýrra fyrirtækja, með
það fyrir augum að vernda alþýðu
gegn sviksamlegum aðferðum fjár-
glæframanna. Einnig mun vera i
hyggju að samræma alla löggjöf á
þessu sviði, þannig, að hún verði
hin sama í öllum fylkjunum.
Annars var fátt af nýmælum í
hásætisræðunni.
LÆKNISHJALP
Læknafélag Winnipegborgar hef-
ir gefið til kynna að það sjái sér ekki
fært að veita atvinnulausum mönn-
um læknishjálp án endurgjalds,
nema líf manns liggi við. Hingað
til hafa læknar 'unnið mikið verk
fyrir litla borgun og mega þeir ef-
laus.t vart við því fremur en aðrir,
að vinna án endurgjalds.
Þegar bæjarráðið fékk þessa til-
kynning reyndi það að semja við
fylkisstjórnina um að borga að
nokkru leyti kostnað í sambandi við
þetta, svo framarlega sem sambands-
stjórnin legði einnig fram sinn skerf.
Bracken forsætisráðherra tók því
f jarri og kvað f járhaginn svo slæm-
an að ekki væri ráðlegt að bæta
neinu við útgjöld fylkisins. Einnig
hélt hann því fram að þetta væri
mál, sem einungis snerti bæjarráðið.
Nú hefir bæjarráðið ákveðið að
greiða allan kostnaðinn í næstu þrjá
mánuði. Verður dreginn upp texti
sem ákveður hver greiðslan skal
vera í hverju tilfelli, en þeim, sem
þessarar læknishjálpar njóta verður
Ieyft að kalla þann lækni, sem það
æskir eftir.
FRÆGUR GESTUR
:
Blaðamaðurinn velþekti, Oswald |
Garrison Villard kom til borgarinn- J
ar á mánudaginn og flutti erindi |
sama kvöld í Dominion leik-.
húsinu. Ræðuefni var “Hitler |
Grave Menace to Civilization.” Fór
ræðumaður hörðum orðum um
stjórn Hitlers og kvað allri veröld
hættu búna af stefnu hans. Sagði
hann að jafnvel smærri ríkin, svo
sem Danrriörk og Svissland væru
nú óðum að hervæðast til að ^eta
varist yfirgangi Þjóðverja.
Mr. Villard er ritstjóri hins fræga
blaðs “The Nation.” Blað þetta hef-
ir hvað eftir annal birt ljótar sögur
af framferði Nazista og sagði ræðu-
maður að nú varðaði það fimtán
ára fangelsisvist að eiga það í fórum
sínum á Þýzkalandi.
SORGLEGT SLYS
Frá Vegreville, Alta., er skrifað
12. febr., a§ 18 ára drengur, Andrew
Terisio að nafni, hafi orðið fyrir
skoti og særst hættulega.
Þetta orsakaðist þannig að verið
var að sýna smáleik í þorpi nokkru
þar 1 grendinni og átti einn leik-
andinn að skjóta á dreng þennan
með marghleypu sinni. Kúlan hafði
verið tekin burt, en pappír þjappað í
skothylkið til að halda að púðrinu.
Þegar á leiksviðið kom var skotið
úr byssunni en framhlaðið fór í
gegnum kvið drengsins og féll hann
meðvitundarlaus á gólfið. Læknar
telja vafasamt að hann lifi.
GRIKKIR OG INSULL
Samucl Insull, fyrrum talinn einn
voldugasti auðmaður Bandaríkj-
anna, en nú landflóttamaður, í
Grikklandi, á það á hættu að Grikk-
ir feki hann úr landi. Eins og kunn-
ugt er hefir Bandaríkjastjórnin, nú
í meir en heilt ár, reynt að ná hon-
um þaðan, en ekki tekist. Insull
strauk úr landi til að forðast refs-
ingu, þegar hin stórkostlegu hluta-
félög hans urðu gjaldþrota, og skutu
þá Grikkir skjólshúsi yfir hann.
Hafði hann á þeim tíma, sem hann
var ríkastur oft hlaupið undir bagga,
f járhagslega, með grísku stjórn-
inni. Nú munu Grikkir ekki treyst-
ast til að neita kröfu Bandaríkjanna
um að framselja hann.
RRETAR ÓÁNÆGÐIR
Tollastefna frönsku stjórnarinnar
hefir vakið megna óánægju hjá
breskum verzlunarmönnum 'Og er
talið líklegt að stjórnin breska muni
skerast í leikinn og hækka enn meir
tolla á innfluttum vörum frá Frakk-
landi. ! Tollur hefir nú þegar verið
hækkaður um 20% á klæðnaðar-
vörum af ýmsum tegundum.
Bretar segja að Frakkar hafi sýnt
Bandaríkjunum. meiri tilhliðrunar-
semi í þessu efni, enda mun Frökk-
um ant um að geta selt sem mest
að vínföngum til Bandaríkjanna nú,
þegar bannið er numið úr gildi.
Flið svonefnda “quota system”,
sem Frakkar nota mikið, er mjög ó-
vinsælt hjá flestum þjóðum.
Síðusfu vikur hefir mikið verið
rætt um væntanlegan ófrið milli
þessara tveggja þjóða. Rússar segja
að Japanar hafi i hyggju að ráðast
á Mongólíu, en ef svo fer er Síbería
í stórhættu og um leið allur her
Rússa á því svæði, sem þá yrði svift-
ur öllum samgöngutækjum við Rúss-
land.
Rússar láta nú vinna að því dag
og nótt að leggja aðra járnbrautar-
teina á Síberíu-brautina, en með því
Blóðugir bardagar milli hersins og
byltingarmanna, hafa verið háðir um
land alt, þó hefir mest verið barist i
Vínarborg. Karl Marx fjölhýsið,
eitt stærsta í heimi, var fyrst aðal-
vigi sósíalista, en hefir nú að mestu
verið eyðilagt af stórskotaliði stjórn-
arinnar. Fleiri hundruð konur og
börn, sem áttu þar heima mistu lífið
eða særðust hættulega.
Einnig hefir verið barist af grimd í
flestum iðnaðarhverfum stærri borg-
anna, og á stjórnin fult í fangi með
að bæla niður uppþotin.
Frakkar og Bretar hafa varað
Þjóðverja við að skifta sér nokkuð
af þessum málum, en Nazistar býða
rólegir og virðast trúa því, að þegar
lýkur, verði skoðanabræður sínir
komnir í meirihluta þar í landi.
Óánægja með stjórn Engelbert
Dollfuss kanzlara hefir magnast dag
frá degi. Nazistar þar í landi eru
að færast í aukana með degi hverj-
um og hafa boðið stjórninni byrg-
ÓKYRÐ 1 FRAKKLANDI
Ástandið í Frakklandi fer stöðugt
versnandi. Allsherjar verkfall
byrjaði á mánudaginn var um.land
alt og stöðvuðust samgöngur að
mestu.
Sósíalistar eru hræddir um að ein-
valdsstjórn kæmist á í landinu, með
tilstyrk fascista, og ætla þeir að
sporna við því af öllum mætti. Þann-
ig hefir oft slegið i bardaga og all-
margir verið drepnir, bæði af verka-
mönnum og lögreglu. Verstu óeirð-
irnar hafa orðið í París og Mar-
seilles, en annars er alt landið í upp-
námi.
Stjórn Deladiers féll á fimtudag-
inn var, og Gaston Doumergue var
þá falið að mynda nýja stjórn.
Lægði þá ofsann í bráð, en þegar
sýnt var, að stjórnin yrði aðallega
mynduð úr hægri flokkum (íhalds-
mönnum) þá byrjuðu kommúnistar
og sósialistar á nýjan leik, og skip-
uðu verkfall. Síðan hafa þúsundir
manna gengið kröfugöngur dag eftir
dag, bæði í París og annarsstaðar og
heimtað að hin nýja stjórn léti af
völdum.
Enn er ekki hægt að segja hvern-
ig fer, en núverandi stjórn er skipuð
þeim beztu mönnum, sem hægri
flokkarnir eiga völ á, og tekst þeim
ef til vill að stilla til friðar, ef sam-
komulag næst við royalista og fas-
cista um að láta af óspektunum. En
þó svo færi, er mjög hætt við að
sósíalistar og kommúnistar, sem eru
fjölmennir þar í landi, geri stjórn-
inni ófært að sitja til lengdar, án
þess að ganga til kosninga.
Hin nýja stjórn hefir tekið á-
kveðna stefnu í utanríkismálun-
um, sem ekki spáir góðu um sam-
komulagið í Evrópu. Fyrst hækk-
getur flutningur allur til stöðv-
anna á þeirri braut, aukist um helm-
ing. Enn er mikið ógert af þessu
verki, og á meðan vilja Rússar ekki
berjast, ef hjá því verður komist.
Annars treysta Rússar mest á sinn
öfluga flugher til að sigra Japana,
ef til ófriðar kæmi. I því tilfelli
yrði flugherinn látinn ráðast á
Tokio og aðrar stórborgir, sem tald-
ar eru vanarlausar gegn slíkum á-
rásum. x
in hvað eftir annað. Þegar útlit var
fyrir að kanzlarinn myndi ætla að
taka öll ráð af þinginu, til að mæta
þessari hættu, gerðu jafnaðarmenn
uppþot í Vínarborg og öðrum stærri
iðnaðarborgum landsins, og sló þá í
blóðugan bardaga við stjórnarher-
inn, en kommúnistar og jafnaðar-
menn boðuðu til allsherjar verk-
falls. Stjórnin mætti þessari ráð-
stöfun með því að lýsa landið undir
herstjórn, og blossaði þá ófriðurinn
upp í öllum stærri borgunum.
Mesta hættan, sem af þessu kynni
að stafa er sú, að Nazistar nái völd-
um og geri tilraun til að sameinast
Þýzkalandi. Á móti þvi hefir
franska stjórnin barist i fleiri ár, og
gæti jafnvel svo farið, að hún not-
aði her sinn4il að varna þvi, að svo
yrði. Hvað af því kynni að hljótast,
þorir maður ekki að geta sér til.
Evrópuþjóðirnar horfa á þessi vand-
ræði með ótta og skelfingu.
uðu þeir tollana gegn brezkum vör-
um enn einu sinni, og nú er sagt að
þeir þverneiti að taka til greina til-
lögur Breta viðvíkjandi því að
Þýzkaland fái að vígbúast til jafris
við aðrar þjóðir.
BRETAR SLAKA TIL
Brezka stjórnin hefir sent áskor-
un til Frakka þess efnis að nauð-
synlegt sé að viðurkenna rétt Þýska-
lands að hervæðast til jafns við
aðrar þjóðir og hefir ítalska stjórn-
in tekið í sama strenginn.
Ekki þykir liklegt að Frakkar
taki þessu vel, en Bretum mun skilj-
ast að samomrilag náist ekki, fyr en
Þýskaland gengur aftur í Þjóða-
bandalagið, en þð er áskilið af Breta
hálfu, ef samningar skyldu takast
um þetta mál.
RÚSSAR ÓHRÆDDIR
Stríðsmálaráðgjafi Rússlands, Vor-
oshiloff sagði nýlega í ræðu, sem
hann flutti í Moscow að nú þyrftu
Rússar ekki að hræðast nokkurt
stórveldið, því landher þeirra væri
nú eins fullkominn að öllum útbún-
aði og hugsast gæti.
Ráðherrann var harðorður i garð
Japana og hótaði þeim öllu illu, ef
þeir gerðu nokkra tilraun til óspekta
í Síberíu. Sagði hann þjóð sína
neydda til að víggirða landamæri sín
,á þessu svæði, svo að þeir gætu var-
ið sig, ef á þá yrði leitað.
AFSTAÐA BRACKENS
Bracken stjórnarformaður lýsti
því yfir í þinginu í fyrradag að lög-
gjöf um takmörkun á hveitisáning
myndi að öllum líkindum ekki ná
fram að ganga á þessu ári, nema svo
færi að uppskeran yrði meiri í haust
en síðastliðið ár. Neitaði hann stað-
hæfingu Sandford Evans að stjórn-
ir Sléttufylkjanna hefðu átt upptök-
in að þeirri ráðstöfun, sem Bennett
gerði í þessu máli á Lundúna-fund-
inum i fyrrasumar. Samt sem áður
kvað stjórnin þvi hlynt að reynt sé
að minka framleiðslu hveitis í fram-
tíðinni, nema eitthvað rætist fram
úr með sölu þess til Evrópu.
Ekkert markvert hefir borið til
tíðinda í þinginu enn sem komið er,
að því er séð verður, nema hvað
John Queen, leiðtogi verkamanna-
flokksins lýsti þvi yfir að flokkur
lians myndi reyna að fá launaskatt-
inn afnuminn.
Stalin spáir ófriði
Stjórn Rússa telur stríð milli Rússa og Japana í nánd.