Lögberg - 08.03.1934, Blaðsíða 1
47. ARGANGUR
FRÁ ÍSLANDI
HELGI SIGURÐSSON
verkfræÖingur hefir verið ráÖinn
deildarverkfræðingur undir yfir-
stjórn bæjarverkfræðings, til þess aÖ
hafa á hendi verklega stjórn vatns-
og hitaveitunnar. Biyr j unarlaun
hans eru ákveÖin kr. 550.00 á mán-
uði.
BORGARRIT ARI
Jón Þorláksson borgarstjóri flyt-
ur frumvarp til viðauka við sam-
þykt um stjórn bæjarmálefna
Reykjavíkur. í frumvarpi þessu er
gert ráð fyrir nýju embætti, þ. e.
borgarritara, er gegni störfum
borgarstjóra í forföllum hans.
“Borgarritari annast og daglegar
afgreiðslur fyrir hönd borgarstjóra,”
segir í frumvarpinu. Borgaritari
skal og hafa yfirumsjón með inn-
heimtu fyrir bæinn og flytja mál
bæjarins fyrir undirrétti.—N. dagbl.
UM FATÆKRA
LÆKNISST ÖÐINA
hafa sótt læknarnir Bragi Ólafsson,
Árni Pétursson, Halldór Stefáns-
son, Sveinn Gunnarsson, Kristín
Ólafsdóttir, Daníel V. Fjeldsted,
Jón Kristjánsson, Bergsveinn Ól-
afsson og Kristinn Bjarnason. Bæj-
arstjórnin ræður hver ráðinn verð-
ur.—N. dagbl.
SKJALDARGLIMA
“Ármanns” var háð í Reykjavík 7.
febr., í 22. sinn. Keppendur voru
sjö að þessu sinni. Skjöldinn vann
Lárus Salómonsson. Er þetta í
þriðja sinn í röð er hann vinnur
skjöldinn og hefir því fengið hann
til eignar. Fjórum sinnum hefir
Ármannsskjöldur alls verið unninn
til eignar, tvisvar af Sigurjóni Pét-
ursyni, einu sinni af Sigurði Thor-
arensen og einu sinni af Lárusi
Salómonssyni.—Dagur.
ELDSVOÐII
HOSAVIK
Húsavík 13. febr.
Eldur kom upp í kembivélahúsi
Kaupfélags Þingeyinga kl. 1 í dag.
Húsið var mannlaust, en menn urðu
fljótt varir við eldinn, og slökkvi-
liðið kom þegar á vettvang, og tókst
því að slökkva eldinn. Skemdir
urðu ekki miklar. Málið er í rann-
sókn.—Mbl.
FISKOTFL UTNING URINN
Óseld eru nú í landinu um 6,300
tonn af fyrra árs afla. En verið er
að leigja ]orj ú skip til útflutnings á
þeim afla, svo telja má, að allur
fiskur fyrra árs verði farinn og seld-
ur> þegar fiskur frá næstu vertíð
verður markaðshæfur. Hefir fisk-
veðið haldist óbreytt.
Óvenjuleg vandkvæði á verkun
saltfisksins hér á landi árið sem leið,
hefir torveldað sölu hins mikla afla.
Aðalorsakir voru hinir illræmdu ó-
þurkar hér sunnanlands, og óvenju-
legir hitar fyrir norðan.—Mbl.
LINUBYSSUR
hefir Kveldúlfur keypt handa öllum
togurum sínum. Ennfremur hafa
togararnir Max Pemberton, Garðar
og Surprise fengið línubysur. Esjan
sömuleiðis, og pöntuð hefir verið
Hnubyssa handa Súðinni. Alliance
hefir pantað línubyssur handa öllum
togurum sínum. Það er ekki lagaleg
skylda að hafa þessar byssur um
borð, en hver skipaeigandi ætti að
telja það borgaralega skyldu sína,
að láta skip sín hafa þær, því að þar
með er öryggið á sjónum aukið
mjök mikið.—Mbl.
SATTMALASJÓD UR
Úr hinum danska hluta hans verða
nú veittar 20 þús. kr. samkvæmt
skipulagsskrá sjóðsins: til þess að
treysta menningarsamband íslands
og Danmerkur; til eflingar íslenzk-
um rannsóknum og vísindum; til
styrktar íslenzkurn námsmönnum.
Styrkur er veittur til sérnáms og al-
mennrar fræðslu (þar á meðal til
ferðalaga, dvalar við lýðháskóla o.
s. frv.) til útgáfu vísindarita og
fræðirita o. fl.—Mbl.
OTFLUTNINGUR
íslenzkra afurða nam í janúar
3,041,600 krónum og er það 1,160,-
200 kr. meira heldur en á sama tíma
i fyrra, og er það ekki vegna þess
að útflutningur hafi verið meiri,
heldur hefir vöruverð verið þetta
hærra. Þó hefir nú verið flutt út
fryst síld fyrir 23,670 krónur en
engin í fyrra og eins rotuð skinn
fyrir 12,660 kr., en engin í fyrra.
ísfiskútflutningur hefir verið um
þriðjungi minni en í fyrra, en þó
hafa fengist um 146 þús. kr. meira
fyrir fiskinn núna. Ullarútflutn-
ingur hefir verið miklu meiri en í
fyrra, svo nemur nær 19 þús. krón-
um.—Mbl.
balfaraféla GIÐ
hefir tekið að sér að hafa forgöngu
í því sjálfsagða menningarmáli að
koma hér upp bálstofu sem allra
fyrst. Skorar það á alla hugsandi
menn að styðja þetta mál með því
að ganga í félagið. Árgjald er 3
krónur, en æfigjald 25. kr.—Mbl.
MALAFERLI OT AF
ISLENSKUM SALTFISKI
Fyrir nokkru stefndi spanska
firmað Rovira Vallhonrat í Barce-
lona “De private Assurandörer” i
Kaupmannahöfn fyrir Sö- og
Handelsretten og kröfðust 100,000
króna skaðabóta fyrir skemdan salt-
fisk, sem þetta firma hafði vátrygt.
Fiskur þessi var sendur frá Ak-
ureyri 31. janúar 1931, með norska
flutningaskipinu “Karen” frá
Haugasundi og var vátrygður fyrir
200,000 krónur. Skipið fékk áfall
á leiðinni og varð að leita inn til
Belfast. Þar var farminum skipað
á land og gert við skipið. Þegar
fiskurinn var tekinn upp úr skipinu
kom í ljós að hann var meira og
minna skemdur, sennilega af sjó.
Eftir viðgerðina var óskemda fisk-
inum skipað út aftur og skipið hélt
áfram til Barcelona, skilaði þar af
sér þeim 6,000 pökkum, sem
spanska firmað átti að fá og hélt svo
áfram til Italíu. Þar skipaði það
upp 16,000 pökkum, og segir vá-
tryggingarfirmað, að þeir hafi mátt
heita óskemdir.—Mbl.
“MADUR OG KONA”
hefir nú verið sýnt 20 sinnum, alt
af fyrir fullu húsi, og verður sýnt
í 21. sinn annað kvöld. Er þetta
langtum meiri sýningarfjöldi á jafn
skömmum tíma, en þekst hefir hér
áður, og ber ótvíræðan vott um hver
ítök hið vinsæla skáldverk Jóns
Thoroddsens á hjá fólki.
—Mbl. 14. febr.
GJALDÞROT
telur hagstofan að hafi orðið hér
á landi 24 alls, árið sem leið, gegn
39 árið 1932. Af þeim voru 10 í
Reykjavík en 6 í öðrum kaupstöðum
landsins. Að 5 gjaldþrotunum
stóðu hlutafélög, en samvinnufélög
aðeins að einu.—Dagur.
I WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 8. MARZ 1934
NÚMER 10
CUNARD-WUITE STAR
LTD.
Bresku eimskipafélögin Cunard
og White Star hafa sameinast. Hið
nýja félag verður kallað Cunard-
White Star Ltd., og verður eitt
stærsta félag þeirrar tegundar, í
heimi.
Breska stjórnin gaf samþykki sitt
við þessari ráðstöfun, og veitti um
leið 3 miljónir sterlingspunda til að
Cunard gæti lokið við hið risava»na
skip sitt, seni' hálfgert hefir staðið
í skipakvíum við Clyde-ána. Skip
þetta verður hið stærsta sem enn
hefir verið bygt, eða 73,000 smá-
lestir. Skipastóll þessa nýja félags
verður 25 hafskip, að burðarmagni
615,000 smálestir.
Hugmyndin með samsteypu þess-
ari mun vera sú að tryggja Bretum
sem bezta afstöðu i samkepninni við
aðrar þjóðir um sjóflutninga.
Síðastliðin ár hafa stórþjóðirnar
kepst um að eiga sem: hraðskreiðust
skip til Atlantshafs ferða. Fyrir
tveim árum voru þýsku skipin Brem-
en og Europa hraðskreiðust. Árið,
sem leið varð ítalska hafskipið Rex
fljótast í förum milli Evrópu og
Ameriku. Næsta ár verður Nor-
mandie, sem Frákkar hafa í smíð-
um, að líkindum enn hraðskreiðara
en Rex, og þegar Bretar tj úka við
Cunard-báknið, verða þeir, um hríð
að rninsta kosti, öðrum fremri i
þessu tilliti.
GLÆPAMAÐUR BRÝST ÚR
VARÐHALDI
Einn illræmdasti glæpamannafor-
ingi Bandaríkjanna, John Dillinger,
slapp úr fangelsi í Crown Point í
Tndiana, á laugardaginn var.
Dillinger er sagður að hafa drep-
ið.marga menn og rænt ótal banka
um æfina. Llann er maður ungur
og vel hraustur, hugaður og djarfur,
en hið mesta illmenni.
Hafði hann náð í trjábút og teglt
hann til svo að hann verð í laginu
eins og skammbyssa, ef fljótt var á
litið. Dillinger komst einhvern veg-
inn úr klefa sínum. Eftir það
hræddi hann alla fangaverði, sem
urðu á vegi hans, með byssunni, rak
þá inn í klefana og læsti þá inni.
Síðan náði hann í bíl og ók burtu.
Með honum fór svertingi nokkur,
sem dæmdur hafði verið til lifstíðar
fangavistar, og tveir menn aðrir,
sem neyddir voru til fararinnar.
Þessum tveimur slepti Dillinger eft-
ir litla stund, en til hans sjálfs og
svertingjans hefir ekki enn spurst.
Þykir Bandaríkjamönnum það hin
mesta skömm að illvirki þessi skyldi
látinn sleppa úr varðhaldi.
OLYMPISKU LEIKIRNIR
Olympisku leikirnir verða vænt-
anlega háðir í Berlín 1936. Eru
Þjóðverjar óðum að undirbúa sig,
og farnir að leggja út skeiðvöllinn
nú þegar. Á hann að jafnast á við
þann, sem gerður var í Los' Angeles
r932> °g talinn var sá fullkomnasti
sem þektur hefir verið. Þykir það
mikill vandi að gera hann svo að
vel sé. Hann þarf að vera renni-
sléttur og grjótharður, svo að engum
I
1
snúist fótur, og svo að ekki verði
sleipt í spori. Þá er búið að velja
skíðahlaupunum stað, á fjalli einu,
og er það ætlun manna, að þar megi
gera skíðabraut svo góða, að takast
megi að stökkva þar 300 fet. Að
þvi marki hefir verið kept í mörg
ár, en enginn komist nær en 282 fet.
Norðmenn eru allra manna færastir
i þessari fögru iþrótt, sem nú er að
ná miklum vinsældum hér í álfu.
iinefaleikar
ftalinn Primo Carnera, sem nú er
talinn mesti hnefaleikari heimsins,
kepti við Bandaríkjamanninn Lou-
ghran á íöstudagskvöldið var, í
Miami Florida.
Carnera bar sigur úr býtum í þess-
ari viðureign og heldur því enn
meistara-nafnbót sinni.
Áhorfendur borguðu um 50,000
dollara til að sjá menn þessa berjast
og var það mjög lítið, hjá því sem
oft hefir verið.
ftalinn er tröll að vexti. Hann er
6 fet og 7 þumlungar á hæð og veg-
ur 266 pund. Var hann 86 pundum
þyngri en Loughran. Þrátt fyrir
mikinn vaxtar- og kraftamun, tókst
risanum ekki að leggja hinn að velli
algjörlega. Samt var Loughran
nokkuð meiddur en Carnera var
aldrei í hættu. Þeir börðust í 45
mínútur, eins og reglugjörðin mæl-
ir fyrir, þegar kept er um heims-
meistara nafnbót í hnefaleik.
FRA FRAKKLANDI
Lítið gerist nú um stórtíðindi á
Frakklandi. Gaston Doumergue,
sem falið var að mynda stjórn, eftir
fall Daladiers, er enn við völd.
Stjórn hans hefir tekist að koma á
friði í landinu eftir uppþotin í París
snemma í febrúar, og virðist þingið
vera fylgispakt við nýja ráðherrann,
hvað lengi sem það endist.
Doumergue heimtaði af þinginu,
að sér væri gefið vald til að semja
um tollmálin við aðrar þjóðir, þeg-
ar nauðsyn krefði, og einnig leyft
að hækka eða afnema tolla að þing-
inu forspurðu. Þingmenn, féllust
loks á þessa ráðstöfun og sýnir það,
betur en nokkuð annað, hve smeikir
þeir eru.
Rannsókninni á Stavisky hneyksl-
inu heldur enn áf ram, en lítið virð-
ist skýrast því viðvikjandi, enn sem
komið er. Svo mikið er þó sannað,
að flestir stjórnmálamenn Frakka
eru á einhvern hátt við þessi fjár-
svik riðnir. Líklega hefir þeim þó
flestum verið ókunnugt um, að Sta-
visky væri annar eins svikari og nú
er á daginn komið.
Það hrvðjulegasta í þessu máli er
þó morð dómarans, Albert Prince.
Þessi maður var sagður öllum brell-
um Staviskys nákunnugur, og hafði
í fórum sínum ýms skjöl, sem óefað
hefðu reynst merk gögn í málum
þessutn. Dag nokkurn í vikunni sem
leið var dómarintt gintur burt fra
heimili sínu; og sama kvöld fanst
lik hans, hryllilega útleikið, á járn-
brautarteinum skamt frá smáþorpi
einu. Þetta gerðist daginn áður en
Prince átti að bera vitni fyrir rann-
sóknarnefnd þingsins í París.
Stórveldin auka herskipaflota sína
Nú sem stendur virðist ólíklegt að
samkomulag náist með stórþjóðun-
um, um takmörkun herbúnaðar.
Bretar, sem gjarnan vildu minka
flota sinn, smám saman, þora það
ekki, eins og sakir standa. Flota-
ráðið hefir nú lagt fyrir enska þing-
ið frumvarp um $282,750,000 f jár-
veitingu. Með fé þessu á að byggja
4 herskip og 20 smærri skip. Flot-
inn eykst ekkert, samt sem áður, því
árlega verður að taka frá notkun
elstu skipin. Þá er í ráði að bæta
2,033 mönnum við sjóliðið.
Bandaríkin hafa einnig í hyggju
að styrkja flota sinn til muna.
Frakkar hafa í smíðum bryndreka
afarstóran, Dunkerque, eitt smærra
skip (cruiser) og tvo kafbáta.
Italir, sem hræðast franska flot-
ann, munu ætla sér að byggja nýjan
bryndreka, jafn stóran Dunkerque.
Keppa stórveldin þannig hvert við
annað og verður ekki séð hvað af
því kann að hliótast.
Bandaríkjastjórnin að kaupa jarðir
af bœndum
Eitt af því, sem Roosevelt forseti
vill koma í framkvæmd er að leggja
í eyði stórar spildur af landi, sem
svo er illa fallið til ræktunar að
bændur geta ekki með góðu móti
framfleytt sér og sínum. Hefir nú
komið til tals að stjórnin kaupi 20
til 40 miljón ekrur af þessu ófrjóa
landi, og verða þá bændur að flytja
sig búferlum til betri héraða.
Með þessari ráðstöfun yrðu heil-
ar sveitir lagðar í eyði en aðrar
myndu byggjast í staðinn, þar sem
landgæði eru meiri.
Stjórnin myndi eflaust sjá þeim
bændum fyrir landrými, sem flytja
vilja, og hjálpa þeim að setja sig
niður aftur.
Þessi hugmynd er talin skynsam-
leg og góð, en oft mun það reynast
erfitt að koma bændum til að yfir-
gefa jarðir sínar, þótt þær séu bæði
smáar og lélegar. En geti stjórnin
boðið nógu góð kjör, er ekki ómögu-
legt að þetta geti tekist.
SAMBANDSÞINGIÐ
Frá Sambandsþinginu er lítið að
frétta. Stjórnarandstæðingar hafa
borið fram nokkur frumvörp til
laga og hafa þau öll verið feld.
Frjálsylndi flokkurinn gerði tillögu
um að Canada fengi sérstakt flagg,
í stað Breta fána. Sú tillaga var
feld. Sömuleiðis fár um tillögur
Heaps og Woodsworth um breyt-
ingu á innflytjendalögunum.
Nefndin, sem kosin var til að
rannsaka atvinnumálin, heldur á-
fram starfi sínu, og hefir þegar
grafið upp ýmislegt, sem áður var
á huldu. Hefir nefndin sannað að
lámarks kaupgjaldslögin eru að
engu höfð í austurfylkjunum, og
vinna margir fyrir sama sem engu
kaupi.
Lögunum er ekki framfylgt, eða
þá svo slælega að til athlægis er
orðið. Til dæmis er sagt að skó-
smiður í smáþorpi einu í Quebec
hafi verið sektaður 10 dollara fyrir
að borga ungum stúlkum, sem fyrir
hann unnu, $1.50 fyrir 75 klst.
vinnu, eða 2 cent á tímann.
FRA FYLKISÞINGINU
Þingið hefir nú fjárlagafrum-
varpið til íhugunar, og hafa enn
engar breytingar verið gerðar á því.
Lögin utn takmörkun hveitifram-
leiðslú verða lögð fyrir þingið bráð-
lega. Búist er við að engin tilraun
verði gjörð til að takmarka sáningu,
en ekki mun Canada leyft að selja
meira hveiti úr landinu, en ákveðið
er í Lundúnasamningnum.
Ur bænum
Hið nýstofnaða Ungmennafélag
Fyrsta lúterska safnaðar virðist ætla
að fara vel af stað. Hefir það ráð-
ist i að gefa út ofurlítið mánaðar-
blað, og er fyrsta tölublaðið nýkom-
ið (marz-blaðið). Þetta litla blað
er hið snotrasta og hefir inni að
halda ýmsar fréttir, sem félagsmenn
varða. Forseti félagsins, Mr. A. V.
Johnson, skrifar inngangsorð, og
Dr. B.. B. Jónsson ritar stutt ávarp
til yngra fólksins. í blaðinu er
snoturlega rituð grein, “Iceland is
Brought to the Screen.” Hún er
um íslenzkar myndir, sem sýndar
voru á einu leikhúsi borgarinnar, vik
una sem leið. Mr. Sig. Bardal var
kosinn ritstjóri blaðsins en Vera
Johannsson og Ingi Stefánsson hon-
um til aðstoðar.
Eins og skýrt er frá á öðrum
stað hér í blaðinu ætla nokkrir nem-
endur Jóns Bjarnasonar skóla að
sýna leikrit John Masefields, “The
Locked Chest,” í samkomusal Fyrstu
lútersku kirkju, 13. marz, kl. 8.
Leikurinn, sem bygður er á atburð-
um úr Laxdæla sögu, er í einum
þætti. Hann er hinn skemtilegasti
aflestrar. Miss Beatrice Gislason
hefir æft leikflokkinn. Leikendur
allir koma fram í þeirrar tíðar bún-
ingum og verður eflaust mörgum
forvitni á að sjá leiksýningu þessa.
Um fiskimál
I síðasta tölublaði “Lögbergs” og
sömuleiðis í ensku blöðunum, hafa
borist fréttir um innflutningsbann á
fiski til Bandaríkjanna, sem Senator
Bland frá Virginia, virðist eiga
frumkvæði að. Mér þykir líklegt að
þessar fréttir hafi valdið alvarlegum
hugsunum, sérstaklegahjá fólki, sem
stundar fiskiveiðar í þessu landi.
Margir hafa leitast fyrir um upp-
lýsingar hjá mér, i þessu sambandi.
Þessi lagagrein, sem senator Bland
hygst að koma í gildi er gömul og
hefir verið uppvakin af einhverjum,
sem lítið skyn virðist bera á málið,
það, hvort fiskur frá Canada virki-
leka komi í bága við sölu og verð
fiskjar þar syðra. Eg álít að þessi
tillaga fái ekki þann stuðning, sem
hún þarfnast til að öðlast gildi. og
álít eg að fiskimenn þurfi ekki að
bera kvíðboga fyrir þessu.
Strax þegar mér barst afrit af
þessari tillögu þóttist eg sjá að nauð-
syn væri að veita þessu máli at-
hygli. Eg hafði tal af ráðherra
fiskimálanna í Manitoba, og fullviss-
aði hann mig um, að þótt þeir ótt-
uðust ekki framgöngu frumvarps-
ins, þá myndu þeir gera alt, sem í
þeirra (stjórnarinnar) valdi stæði,
til að stemma stigu við framgangi
þess. Sömuleiðis væri það nú þegar
alvarlega tekið fyrir í Ottawa. Þar
næst skrifaði eg allmörgum við-
skiftafélögum minum í Bandarikj-
unum, sem kaupa mikið af fiski frá
þessu fylki, og benti þeim á að nauð-
syn væri að þeir mótmæltu þessari
tillögu, og hefi eg þegar fengið
bréf frá flestum beirra, sem hljóða
svipað því, sem hér fylgir:
Gentlemen:
Att: G. F. Jonasson
In receipt of your letter and with
refenence to the bill of Mr. Bland,
we are taking this up with our con-
gressman in our district.
This man evidently does not know
much about the fish business, or he
would not be as radical as to pre-
sent a bill like this to the House of
Representatives.
Trusting this bill will be killed,
we remain
Yours respectfully,
H. LEVY.
Þingmaður okkar, Skúli Sigfús-
son, símaði mér í dag að stjórnin
hafi samþykt framlenging á vertíð-
inni, þar til 24. þ. m.; það er að
segja svo framarlega að sala og verð
á fiski haldist, en annars þar til að
fiskimönnum verði tilkynt að hætta.
Fisksala hefir reynst fremur góð
síðari hluta vetrarins, og líkur benda
til betri markaðar í framtíðinni. Ef
marka mætti eitthvað af þessari at-
vinnugrein, þá mætti ætla að tímar
fari nú batnandi yfirleitt.
Allur fiskur úr kælihúsum er nú
uppseldur og greið sala fyrir fisk
jafnóðum og hann er veiddur. Verð
er einnig betra en áður, og væri von-
andi að aðrar afurðir landsins hækk-
uðu að sama skapi.
G. F. Jónasson.