Lögberg - 08.03.1934, Page 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 8. MARZ, 1934.
Ræða
flutt á Fróns-móti 1934
Kæru íslendingar!
Ef eg á vin, þá er mér ekkert eins
umhugað um og aS honum gangi alt
sem bezt, eins og sagt er.
En þaÖ, aÖ ganga alt sem bezt, álít
eg aÖ sé, fyrst og fremst, aÖ taka
framförum í öllu góÖu og sem aÖ
þroska veitir.
Vegna þess, aÖ eg tel ísland einn
af mínum allra beztu vinum, ætla eg
að segja ykkur frá ýmsum framför-
um, sem orðið hafa þar síðustu 50
árin.
í raun og veru væri þetta nóg ef ni
í marga fyrirlestra svo þiS getið
nærri aÖ eg verÖ aÖ fara fljótt yfir
sögu á þeim stutta tima, sem eg ætla
aÖ tala.
Á þessum árum hafa orðið stór-
kostlegri framfarir bæÖi á landi og
þjóð, heldur en á nokkrum öörum
50 árum í sögu íslands.
Til þess aÖ þiÖ fáiÖ sem glegst
yfirlit yfir þessar framfarir þá ætla
eg aÖ taka samanburð á hlutunum
eins og þeir voru fyrir aldamót og
eins og þeir eru núna.
Því miður getur þetta þó ekki
orðið svo nákvæmt sem skyldi, vegna
þess aÖ eg er of ungur til þess að
skýra frá því, sem var fyrir aldamót
af eigin reynslu, en verð þar að
fara eftir því, sem mér hefir verið
sagt af eldri mönnum og því, sem eg
hefi lesið sjálfur.
Viðvíkjandi þeim tölum, sem eg
nefni, verð eg að fara eftir minni
mínu.
Fyrir 50 árum bjó þjóðin nær
eingöngu í torfbæjum, því mjög fá
timbur- eða steinhús voru þá til á
íslandi.
Torfbæir þessir voru margir ó-
upphitaðir, óþrifalegir, illa lýstir,
loftlitlir og þröngir.
Oft var það að hjónin á þessum
bæjum höfðu svefnherbergi út af
fyrir sig, en alt hitt fólkið svaf og
hafðist við í sama herberginu.
Oft var þó ekki nema eitt íbúð-
arherbergi eða “baðstofa” til á
bænum, svo að bændurnir i þá daga
hefðu getað sagt það sama og skó-
smiður nokkur í Reykjavík á að
hafa sagt við borgarstjórann, þegar
hann var að biðja um sveitarstyrk.
“Hversvena viltu fá sveitar-
styrk?” spurði borgarstjórinn.
“Af því að eg þarf meira hús-
næði,” svaraði skósmiðurinn.
“Hve mikið húsrúm hefir þú?”
spurði borgarstjórinn.
“Eg hefi skóaravinnustofu, svefn-
herbergi, setustofur eldhús, búr,
gestastofu og botðstofu,” svaraði
skósmiðurinn.
“Hvaða ósköp eru að heyra
þetta!” sagði borgarstjórinn, “ein-
hver hefir nú minna en sjö herbergi
í húsnæðiseklunni.”
“Herbergin eru ekki sjö, borgar-
stjóri góður,” svaraði skóarinn —
“því þetta er alt í sama herberginu.”
Svo að eg snúi mér aftur að efn-
inu, þá var enginn læknir og engin,
eða illa lærð, ljósmóðir til þess að
vera við fæðingu barns í þá daga.
Sængurkonur og börn nutu miklu
verri aðhlynningar þá, en nú gerist;
t. d. dóu 130—150 börn af hverj-
um 1,000 á fyrstu 24 klst. eftir fæð-
ingu, en nú deyja 25—30 af hverj-
um 1,000 á sama tíma.
Ef þessi börn, sem lifðu af fyrsta
sólarhringinn fengu svo síðar barna-
veiki (diptheria) eða aðra umferða-
sjúkdóma, þá dóu mjög mörg, því
bæði þektu menn ekki ráð við þess-
um sjúkdómum, gátu ekki stöðvað
útbreiðslu þeirra og læknar fáir og
vankunnandi.
Á þessum árum, sem hér um ræð-
ir var óþrifnaður mjög almennur á
íslandi, t. d. var börnum leyft að
umgangast hundana alt of mikið,
sem flestir voru sullaveikir. Mörg
þessara barna fengu sullaveiki (hy-
tatid cyst).
Nú er sullaveiki svo að segja horf-
in á íslandi og eg veit aðeins um eitt
einasta dæmi, þar sem sjúklingur
var yngri en 30 ára, en um og fyrir
síðustu aldamót inátti svö heita að
annarhver maður væri með sulla-
veiki.
Ekki var nærri öllum börnum
kent að Iesa eða skrifa, sbr. gamla
máltækið: “Ekki er bókvitið látið í
askana,” en flestir lærðu þó að lesa ■
af sjálfum sér og var það því að
þakka hversu námfúsir íslendingar
hafa alt af verið.
Undir eins og börnin komust á
legg voru þau látin vinna baki
brotnu víðast hvar og fengu lítið að
sofa, einkanlega á sumrin.
Það sem unglingum var kent í
uppvextinum var “kverið” svokall-
aða. Stúlkum var kent að prjóna,
spinna, kemba, mjólka, gera skó og
þ. u. 1.
Ef stúlkur áttu efnaða foreldra,
voru þær kallaðnr heimasætur og
látnar læra hannyrðjr og jafnvel
skrift og reikning. Þeim var þá oft-
ast komið fyrir hjá prestkonunni,
sem venjulega var bezt að sér í
þessu í héraðinu.
Sama var að segja um rikra
manna syni, sem oft voru “settir til
menta.”
Annars fengu flestir piltar að
draga til stafs, eins og kallað var,
en meginið af tímanum gekk þó í
vinnu og mér er óhætt að segja að
margir þessara unglinga hafi unniö
meira en þrek levfði.
Meðalaldur þessa fólks var miklu
styttri en meðalaldur manna er nú.
Helstu atvinnuvegir íslendinga,
fyrir aldamótin, voru landbúnaður
og sjóróðrar.
Garðrækt var þá lítil, en er nú
mikil og almenn.
Menn.slóu tún sin og engjar með
orfum og ljáum, en nú nota þeir
sláttuvélar mjög víða, enda er unn-
ið kappsamlega að sléttun túna.
Menn stóðu við sláttinn frá kl. 3
eða 5 á morgnana. til kl. 10—11 á
kvöldin. Þeir voru því sí-þreyttir
og sifjaðir, enda afkastalitlir.
Sjóróðrar voru stundaðir á opn-
um bátum, Sjálfsagt þótti að fara
matarlaus á sjóinn og margir fóru
vatnslausir.
E'f menn lentu svo í hrakningum,
sem oft kom fyrir, þá bættist hungr-
ið og þorstinn við kuldann og vos-
búðina, erfiðið og óvissuna, sem
þessir menn áttu við að stríða.
Matarhæfi manna var mjög ó-
brotið. Helstu fæðutegundir voru
soðinn fiskur og kjöt, harðfiskur,
skyr eða skyrhræringur og kaffi.
1 Flest sveitafólk hafði líka nægilega
j mjólk, smjör, kæfu og slátur.
Mjög margir í sjávarþorpunum
höfðu sáralítinn mjólkurmat og
kjöt, en lifðu aðallega á fiski, kaffi
og grautum.
íþróttir voru mjög lítið iðkaðar
aðrar en glíman, og margir kunnu á
! skautum.
Flutningar og samgöngur voru
erfiðar því alt var flutt á hestum
eða borið á bakinu, enda voru engir
eða illir vegir og fáar brýr.
Samgöngur við útlönd voru strjál-
ar og óáreiðanlegar.
Eg verð að láta þessa stuttu og
ófullkomnu lýsingu nægja, en ætla
! nú að telja upp sumar þær fram-
j farir, sem orðið hafa hjá okkur, og
segja ykkur frá hvernig viðhorfið
er þessi síðustu árin.
Hver er sjálfum sér næstur, og
þessvegna ætla eg að byrja á fram-
förum í heilbrigðis- og læknisfræði
á íslandi þessi ár.
í staðinn fyrir 4 lækna um miðja
síðustu öld, eru nú líklega um 200
læknar á landinu.
Eg þarf ekki að minnast á hvað
læknavísindunum hefir farið fram
þessi ár, en eg ætla að leggja mikla
áherzlu á, að læknastéttin íslenzka
hefir kveðið niður einhvern þann ó-
geðslegasta draug, sem fylgt getur
nokkurri þjóð og nokkrum manni, en
það er sóðaskapurinn. Sóðaskapur
var algengur á íslandi, en er nú
fyrirlitinn af miklum meirihluta
landsmanna.
Sjúkrahúsin islenzku þola fylli-
lega samanburð við það, sem bezt er
hjá öðrum þjóðum.
Fyrir aldamótin voru engar hjúkr-
unarkonur til, en nú höfum við fjöl-
menna og vel Iærða hjúkrunar-
kvennastétt. Ljósmæður eru nú
fleiri og betur að sér.
Alþýðufræðsla er mikil og góð,
miðað við það, sem er hjá öðrum
þjóðum.
Alt skólafólk er skoðað af lækn-
um, til þess að hægt sé að varast að
börn eða unglingar, með hættulega
sjúkdóma, geti sýkt frá sér.
Skólafólk leggur stund á fleira
en bóklegt nám, t. d. sund, glímur,
kappróðra, knattleiki, leikfimi, hlaup
o. fl. Sund er t. d. skyldunámsgrein
við flesta barna- og unglingaskóla.
Stúlkur læra matreiðslu og þrifn-
að í barna- og húsmæðraskólum.
Þær læra lika um næringargildi og
I vitamin-magn fæðutegunda.
Næstum undantekningarlaust
ganga ungar stúlkur á húsmæðra-
skóla áður en þær gifta sig. Þar
læra þær, auk matreiðslu, að stjórna
heimili, að þvo matarílát, húsmuni,
fatnað og þ. h., að ganga um beina,
að gera heimilin vistleg á ýmsan
hátt, meðferð ungbarna, hannyrðir
og jafnvel vefnað og fatasaum.
Enda verð eg að segja að til eru
mörg frábærlega myndarleg og þrif-
leg heimili á íslandi, og þeim fer
stöðugt fjölgandi.
Nú kemur varla fyrir að börn
deyi úr barnaveiki. Ef næmir um-
ferðasjúkdómar ganga eru þeir
stöðvaðir áður en þeir ná mikilli út-
breiðslu.
Tala holdsveikra (lepers) mun
hafa verið um 200 eftir miðja síð-
ustu öld, en nú eru þeir 18 á öllu
landinu.
Að fólk verði úti er orðið miklu
sjaldgæfara en áður var, hvort sem
það er að þakka betri klæðnaði,
bættum samgöngum eða meiri fyr-
irhyggju.
Húsnæði er miklu meira og betra
en áður fyr og er alt af að batna.
Mjög margir hita nú hús sín með
hveravatni eða rafmagni, sem fram-
leitt er með lækjunum, sem alstað-
ar eru. Og nú er í ráði að hita öll
hús í Reykjavík með hveravatni, en
aðeins nokkrir tugir húsa hafa þeg-
ar verið hitaðir þar á þennan hátt
og reynst ágætlega. Hveravatn er
lika notað til að hita upp vermireiti
(hot houses), en í þeim rækta menn
allskonar kálmeti, blómtegundir og
ýmsa ávexti, t. d. tómata, melónur,
vínber o. fl.
Atvinnuvegir landsmanna eru nú
miklu fjölbreyttari en áður. Aðal
atvinnuvegir eru þó þeir sömu, það
er fiskiveiðar og landbúnaður.
En í staðinn fyrir litlu, hættulegu
og erfiðu opnu bátana eru nú koin-
in stór og vönduð gufuskip.
I staðinn fyrir orfið, ljáinn og
hrifuna eru nú víða sláttu- og
rakstrarvélar.
Nýtísku mjólkurbú eru viða.
Þessi bú framleiða smjör, skyr og
margs konar osta. Þau gerilsneyða
einnig mjólkina.
Ýmiskonar verksmiðjur hafa ver-
ið reistar á síðari árum. T. d. er
framleitt kex og kökur, súkkulaði
og allskonar sætindi, ýmsar krydd-
tegundir, kerti, sápur, gólfvax, skó-
áburður, ilmvötn og ýmis fegurðar-
lyf, .skófatnaður, niðursoðinn fisk-
ur og kjöt, kaffibætir, gosdrykkir
og öl, smjörlíki, jurtafeiti o. fl.
Úr íslenz!ku ullinni eru nú unnir
góðir dúkar til fatnaðar. Menn
framleiða líka allskonar fatnað, t. d.
vinnufatnað, sjóklæði, o. fl.
Flutningar og samgöngur eru
orðnar ærið ólíkar því, sem var fyr-
ir aldamótin.
Vegir, sem skifta hundruðum
kílómetra eru lagðir árlega og flest-
ar ár eru brúaðar. Vitanlega hafa
ekki verið efni á að leggja góða
vegi, en þessar vegabætur má þó
telja þrekvirki, þegar tekið er tillit
til hvað landið er strjálbygt og ó-
greitt yfirferðar.
Bifreiðar eru nú aðallega notaðar
til fólks- og vöruflutninga, en skip
með ströndum fram.
Samgöngur við útlönd eru næst-
um daglegar.
Talsími og ritsími liggja um land-
ið þvert og endilangt, svo að á sum-
um stöðum má svo heita að sími sé
á hverju heimili. Útvarp (radio)
er líka afar víða.
Margar fleiri framfarir mætti
telja, en eg læt hér staðar numið
vegna þess að eg vil ekki þreyta
ykkur um of.
En þrátt fyrir þessar miklu
breytingar og framfarir, hafa báð-
ar þessar kynslóðir, sem eg hefi sagt
frá, átt því láni að fagna að alast
upp á íslandi, þessu undralandi, sem
hvergi á sinn líka í heiminum, að
fjölbreytni og náttúrufegurð.
Eg get ekki stilt mig um að drepa
á helstu einkenni íslands:
Það, sem ferðamenn taka helst
eftir, eru hinir afar fallegu og marg-
breytilegu litir í íslenzku landslagi,
og hvað loftið getur verið tært, hvað
fjöllin eru margbreytileg að lögun
og litum, t. d. hefir Esjan, sem er
I f jall nálægt Reykjavík, veriS kölluð
“þúsund lita fjallið.”
Svo koma allir hverirnir, eldfjöll
og eldgýgir, hraunbreiður og hraun-
hellar, gjár og klettar, sléttur, dalir,
drangar og standberg, jöklar og
vötn/ár og lækir, svo skiftir þús-
undum, með óteljandi fossum. Að
sumrinu eiga sumir kost á að sjá
miðnætursólina í allri sinni dýrð, en
að vetrinum blika hin stórkostlegu
norðurljós.
Alin upp við þessa einkennilegu
og töfrandi náttúru hefir hin gáf-
aða, íslenzka þjóð alt af haft tæki-
færi til að hugsa og skilja, enda hefir
hún alt af haft brennandi löngun tii
að fræðast hvernig sem högum
hennar hefir verið háttað, jafnvel
þó hún hafi stundum átt að búa við
f‘is og hungur, eld og kulda, áþján,
nauðir, svartadauða,” eins og eitt
skáldið okkar sagði.
Af þessum ástæðum er það, að
ísland á fleiri stórskáld og önnur
andleg stórmenni, en nokkur önnur
þjóð, samanborið við fólksfjölda.
Þetta kann nú sumum að virðast
mont, en geta þeir þá bent á nokkra
þjóð, sem skarar fram úr íslend-
ingum? Menn verða að muna það
að öll íslenzka þjóðin er ekki nema
helmingur íbúatölu WSnnipegborg-
ar. En þrátt fyrir þessa afarlágu
íbúatölu hafa þó helztu menningar-
þjóðir heimsins stofnsett sérstakar
háskóladeildir (University Facul-
ties) í íslenzkum fræðum. Og víða
í þessum stóru og mentuðu löndum
eru íslenzkir háskólakennarar, og
sumir þeira þykja jafnvel skara
fram ép. Máli mínu til sönnunar
þarf eg einu sinni ekki að fara
lengra en í læknaskólann hérna í
Winnipeg.
Að öllu þessu athuguðu finst mér
vel þess vert fyrir alla þá, sem eru
af íslenzkum ættum, að muna það
og kappkosta að tileinka sér það
bezta, sem til er hjá íslenzku þjóð-
inni. enda á eg enga ósk betri að
færa ykkur, landar mínir hérna
vestanhafs, heldur en þá, að þið
reynist eins framsæknir og takið
eins miklum framfcrum hérna í nýja
landinu, eins og landarnir í gamla
landinu hafa tekið á síðustu 50 ár-
um og munu gera á næstu hálfri öld.
ú ó. J. ófeigsson.
Menningarstofnanir
Vestur-Islendinga
Þegar saga Vestur-lslendinga
verður rituð, hvort heldur það verð-
ur gert af þeim sjálfum', eða fræði-
mönnum annara þjóða, þá er það
einn brennipunktur, sem aðal áherzl-
an verður lögð á,—ein mynd, sem
öðrum fremur verður sýnd,—ein
spurning, sem spurt verður að,—
einn dómur, sem upp verður kveð-
inn, og hann verður um hin menn-
ingarlegu áhrif þeirra í þessari álfu,
og á þjóðirnar, sem þeir dvöldu hjá,
á meðan að hin sérkennilegu þjóð-
areinkenni þeirra voru nógu skýr
til þess að greina þá frá öðrum.
Með þá fullvissu fyrir augum, er
nauðsynlegt að við séum sívakandi í
öllum okkar menningarmálum og á
varðbergi fyrir velferð þeirra og
sóma.
Það verður ekki annað sagt, en
að fram að þessum tíma þá hafi
Vestur-íslendingar svarið sig í ætt
þeirra manna, sem fyllilega skilja
þann raunverulega sannleika að
maðurinn lifir ekki af einu saman
brauði — þeir hafa að sjálfsögðu
skilið þá skyldu hvers heiðarlegs
manns, að sjá sér og sínum fyrir
daglegu brauði, en með það eitt
hafa þeir aldrei verið ánægðir.
Menning þeirra, framfaraþrá þeirra
og skilningur þeirra, krefst meira og
hefir krafist frá upphafi vega
þeirra í þessu landi, og þeirri þrá
og þeim skilningi hafa íslendingar
reynst trúir fram á þennan dag.
Vestur-íslendingar voru ekki bún-
ir að vera lengi í þessari heimsálfu,
^egar þeir mynduðu með sér félags-
skap, stofnuðu vikublöð og bygðu
kirkjur, sem þeir hafa eflt og hald-
ið við nú í meira en hálfa öld. Stór-
fé hafa þeir lagt i þessar stofnanir
og viðhald þeirra af fúsum og
frjálsum vilja, sökum þess, að minn-
ingar hugsjónir þeirra kröfðust þess.
Fyrst framan af sneri þessi menn-
ingarstarfsemi að íslendingum sjálf-
um, eða með öðrum orðum, það var
áframhald af menningarlegri starf-
semi þjóðar þeirrar, sem þeir voru
nýkomnir frá, en þegar árin liðu,
breyttist það viðhorf þannig, að
samband og samvinna við þjóðir
þær, sem þeir voru búsettir hjá, fór
sívaxandi. Eldri mennirnir hægðu
á störfum sínum og lýðust, sem vakti
aftur þá veglegu hugsun að búa
þeim sameiginlegt heimili, þar sem
þeir gætu notið endurminninga sinna
og eytt síðustu æfiárunum í friði, ó-
hultir fyrir hrakningi og skorti, og
lýsir sú stofnun, Betel, ljósum skiln-
ingi íslendinga á afstöðu þeirra
gagnvart hinum vaxandi viðskiftum
þeirra við þjóðirnar, sem þeir eru
búsettir hjá, og lofsamlegum bróð-
urhug og menningarþroska gagnvart
skyldum þeirra sjálfra við hina
eldri samverkamenn þeirra og þjóð-
bræður. Eins og sagt hefir verið,
þá sneri öll þessi starfsemi, og snýr
enn, að mestu leyti, að íslendingum
sjálfum; en hvað er um viðhorfið,
sem hin vaxandi viðskifti og sam-
neyti við þjóðirnar, sem við vorum
komnir til kröfðust? Hvernig átti
það að vera? Áttum við, eða eigum
við, að láta reka þar á reiðann og
gera okkur að góðu að falla inn í
fylkingarnar, þar sem atvikin báru
okkur að þeim? Eða áttum við að
reisa merkið líka á því sviði og leita
fram í samræmi við lífsskoðun og
eðlisinnræti norrænna manna hvar
sem þeir fara?
Þetta voru spurningar, sem láu
þung á hugum leiðtoga Vestur-ís-
lendinga um og eftir aldamótin sið-
ustu. Þeir séra Jón Bjarnason og
séra Friðrik Bergman, sem með
réttu má nefna aðalleiðtoga þeirra
á því tímabili, hugsuðu þetta mál
mjög rækilega og niðurstaðan varð
sú, hjá þeim báðum, og f jölda mörg-
um öðrum mætum samtiðarmönnum
þeirra, að við þyrftum ekki, og ætt-
um ekki, að vera undirlægjur ann-
ara, heldur í sameiningu og ein-
drægni að sigla þann sjó sjálfir, og
það var upp úr þessum hugsunum
og viðhorfi, að islenzki skólinn,
Jóns Bjarnasonar skóli, var stofn-
aður, til þess að vera lifandi tákn
framsóknar- og menningarþroska
Islendinga í Ameríku.
Allar þessar stofnanir hafa átt
góðum viðtökum að mæta hjá Is-
lendingum yfirleitt. Þeir hafa skilið
þörf þeirra og annast hag þeirra, og
skilið einnig það, að stofnanir þess-
ar eru hornsteinar menningarlegs
þroska þeirra, sem þjóðarbrots í
þessari álfu og að án þeirra voru
þeir, sem sérstök heild, úr sögunni.
En það er ein af þessum stofnun-
um, sem eg geri að aðal umtalsefni
mínu nú, Jóns Bjarnasonar skóli; sú
stofnunin, sem sérstaklega blasir við
og grípur inn í þjóðlíf það, sem við
erum búsettir í. Skólinn er nú rúm-
lega tvítugur að aldri og á þeim tima
hafa innritast i hann næstum tólf
hundruð stúdentar, bæði íslenzkir og
annara þjóða, sem nú gegna vanda-
sömum og þýðingarmiklum stöðum
bæði í Canada og 1 Bandaríkjunum.
Á þessu tímabili hefir skólanum
auðnast að ávinna sér tiltrú og virð-
ing mentamáladeildar Manitoba-
fylkis og annara mentamanna, sem
honum hafa kynst, og hann hefif
aukið virðingu og traust íslendinga
út á við að miklum mun, svo mikil-
um, að eg segi hiklaust, að engin
stofnun þeirra hefir gert það betur,
og lætur það að líkum, því skólinn
átti að vera, og hefir verið, tákn
þess, sem lífrænast hefir verið hjá
þjóð vorri og haldbest, andlegs at-
gerfis. Hvort að skólanum hefir
auðnast að ná þvi takmarki til fulls,
geta verið deildar meiningar, en
hinu, að honum hafi þegar áunnist
mikið, því neitar enginn sá, er sann-
gjarn vill vera.
Þegar maður lítur yfir þessi tutt-
ugu, eða tuttugu og eitt ár, sem
skólinn hefir starfað, þá er margs
að minnast: einlægra vina og stuðn-
ingsmanna, sem skólinn hefir ávalt
átt, óeigingjarns starfs, sem kenn-
arar og aðrir velunnarar skólans
STYRKIR TAUGAR OG VEITIR
NÝJA HEILSU
N U G A-T O N E styrkir taugarnar,
skerpir matarlyst, hressir upp á melt-
ingarfæri, stuðlar að værum svefni. og
bætir heilsuna yfirleitt.
NUGA-TONE hefir gengið manna á
meðal í 45 ár, og hefir reynst lconum
sem körlum sönn hjálparhella. Notið
NUGA-TONE. pað fæst í öllum lyfja-
búðum. Kaupið hið hreina NUGA-
TONE, því fá meðöl bera slíkan árang-
ur.
hafa hvað eftir annað lagt á sig, og
síðast þess atriðis, að íslendingar
skyldu hafa haft þrek til þess, að
leggja út í, að vera veitandi, eins vel
og þiggjandi, á mentamálabraut
stórþjóðar í framandi landi. Þó á-
vextir starfsins hefðu ekki verið
aðrir en þeir, þá er sú staðreynd
ein nóg til að varpa ljóma á feril og
sögu Vestur-íslendinga um öll ó-
komin ár.
Þegar vér lítum fram, er útlitið
og ástandið ekki svo glæsilegt, því,
landar góðir, það er algjörlega und-
ir ykkur komið hvort skólinn getur
haldið áfram, eða að hann veröur
að hætta. Kreppan hefir krept að
1 honum og sett hann í fjárþröng, er
nemur $3,000.00, og ef sú upphæð
ekki fæst, þá verður þessi menning-
arstofnun Vestur-Islendinga að falla
og með henni þá líka öll von þeirra
og viðleitni til beinnar þátttöku í
mentamálum þessarar álfu, og einn-
ig frá því sjónarmiði, til menning-
firlegra áhrifa á vort eigið fólk.
Ekki þarf eg að fara mörgum orð-
um um það, hversu alvarleg að spor-
in eru, sem við Vestur-íslendingar
stöndum nú í, né heldur um það,
hversu grátlegt mótlæti það væri, ef
skólinn yrði að hætta, því eg vona
að það komi ekki fyrir, og þá von
mina byggi eg á veglyndi og dreng-
skap Islendinga, sem mér vitanlega
hefir aldrei brugðist, þegar um vel-
ferðarmál þeirra hefir verið að ræða.
I sambandi við fjárhag skólans,
er skylt að benda á, að allrar var-
kárni, í sambandi við kostnað, hef-
ir verið gætt. Kaup kennara fært
niður nálega um helming, og öllum
öðrum útgjöldum haldið niður sem
unt er. Með þessum $3,000.00, sem
hér um ræðir þarf að borga rekstur-
kostnað við skólann $1800.00 og
$1200.00 í skatt af skólaeigninni,
sem er um $20,000 virði, svo hún
verði ekki seld.
Þegar eg svo sendi þessa áskorun
um fé skólanum til handa, frá mér,
í nafni skólanefndarinnar, þá er hún
ekki aðeins stíluð til þeirra manna
og kvenna, sem árlega hafa styrkt
skólann, og sérstakra velunnara
hans, heldur til allra íslendinga, því
skólamálið er í insta eðli sínu mál
allta íslendinga, þótt ýms innbyrðis
afstaða hafi dreift kröftum okkar i
þvi máli sem öðrum að undanförnu.
Við ættum pú, og ávalt, að minnast
þess, að hvort heldur er um að ræða
trúmál eða önnur menningarmál vor,
að vér erum allir á leiðinni að sama
tjaldstaðnum; gjörir minst til úr
hvaða átt að mann ber að honum.
Aðal atriðið er, að samkomulagið
hafi verið gott og athafnirnar bróð-
urlegar á leiðinni. Eg sendi svo
þessar athuganir út til íslendinga, í
því trausti, að þeir taki þeim vel og
hlaupi undir bagga og bjargi skól-
anum frá falli. Ef 3000 íslendingar
af þeim 30—40,000, sem í Ameríku
eru, vildu senda skólanum $1.00
hver, þá væri spilið unnið og skól-
anum borgið. Má eg ekki vonast
eftir að svo verði?
J. J. Bíldfell,
Formaður skólanefndar
Jóns Bjarnasonar skóla.
Allar gjafir sendist til féhirðis
skólans, S- W. Melsted, 673 Danna.
tyne Ave., Winnipeg, Man., sem
birtir viðurkenningu í íslenzku viku-
blöðunum.
—Frænka, sagðirðu ekki að eg
mætti eiga krónuna, sem þú mistir,
ef eg gæti fundið hana?
—Jú, barnið mitt.
—Þá á eg hjá þér 50 aura, því
að þetta var ekki nema 50-eyringur.
Lesb. Mbl.
Maöur kaupir frímerki og sleikir
það.
—Heyrið þér, segir hann, það er
ekkert lím á þessu frímerki.
—Eg veit það. Þér eruð tíundi
maðurinn, sem reynir það í dag.
—Lesb. Mbl.