Lögberg - 28.06.1934, Page 8

Lögberg - 28.06.1934, Page 8
8 LÖGBERGr, FIMTUDAGINN 28. JÚNÍ, 1934 Úr bœnum og grendinni G. T. spil og dans, verÖur hald- iÖ á föstudaginn i þessari viku og þriÖjudaginn í næstu viku i I.O.G.T. húsinu á Sargent Ave. Byrjar stundvíslega kl. 8.30 að kvöldinu. 1. verðlaun $15.00 og átta verð- laun veitt, þar að auki. Ágætir hljóðfæraflokkar leika fyrir dans- inum.—Lofthreinsunartæki af allra nýjustu gerð eru í byggingunni. — Inngangur 25C.—Allir velkomnir. Skuldar-fundur í kvöld (fimiu- dag) Sigurður Skagfield, söngvari, fór af stað til Evrópu á mánudagskveld- ið. Hann hefir dvalið hér vestra í ein þrjú ár og heimsótt margar bygð- ir íslendinga. Hafa margir orðið hrífnir af söng hans og munu þeir allir sakna þess að hann er nú far- inn. Svanhvít Jóhannesson kunngjörir að hún hefir fengið leyfi til að flytja mál fyrir hærri réttum (admitted to the Bar). Hún tekur að sér hvaða lögfræðisstöf sem er eftir 1. júlí. Skrifstofa hennar verður eins og áður að 609 McArthur Building með McMurray and Greschuk. I æfiminningu Hallfríðar Ólafíu Johnson, í síðasta blaði, er sagt að móðir hennar hafi verið Kristín Sigurðardóttir. Þetta er ekki rétt, á að vera Kristín Jónsdóttir. Einnig stendur að Stefán Þorlákur, sonur Guðjóns Johnson, búi að Maitland, Man., á að vera Maidstone, Sask. Samkoma, til arðs fyrir Jóns Bjarnasonar skóla verður haldin í Gimli Hall föstudaginn 6. júh' kl. 9. e. h. Estelle Reid verður var með flokk sinn, sem skemtir með dansi, söng og allskyns íþróttum. Inngang- ur fyrir fullorðna 35C og fyrir börn 15C. Dans á eftir — Gimli Old-time Orchestra. ÆTTATÖLUR peir menn og konur, sem af Is- lenzku bergi eru brotnir geta fengið samda ættartölu sina gegn sanngjörnum ömakslaunum meö pvf að leita til mín um það. OUNNAR pORSTEINSSON Kvenfélag Fyrsta lút. safnaðar heldur fund í samkomusal kirkjunn- ar í dag (fimtudag) kl. 3 e. h. Mr. og Mrs. A. C. Johnson og sonur þeirra, A. V. Johnson tann- læknir, lögðu af stað í skemtiferð til Calgary, Alta., fyrir helgina. Mrs. Th. H. Johnson lagði af stað fyrir nokkru í skemtiferð til Toronto, New York og Madison, Wis., þar sem vinir hennar og kunn- ingjar búa. Miss Margrét Björnson, dóttir Ólafs Björnsonar læknis, er farin til Hartford, Con., í heimsókn til móðursystur sinnar, sem þar býr. Mr. Gísli Ólafsson frá Morden, Man., er staddur í bænum þessa daga. Dr. Rögnvaldur Pétursson fór af stað til íslands á mánudagskveldið. Hann býst við að dvelja heima nokk- urn tíma. Einnig ætlar hann sér að sitja þing Únítara, sem haldið verður í Kaupmannahöfn í júlí. Hann kemur aftur til Winnipeg í haust. Mannalát Á laugardaginn 23. júní s. 1. lézt að Árborg, Man., Sigurður Eiríks- son Hólm, 63 ára að aldri. Hinn látni skilur eftir konu sína Guðrúnu og f jögur börn. Hann var jarðsung- inn í Árborg á miðvikudaginn af séra Sigurði Ólafssyni. What are you going to do when school is over? Have you thought of taking a Commercial Course? The Columbia Press, Limited, can place you with any of the following Commercial Schools of the city. SUCCESS BUSINESS COLLEGE DOMINION BUSINESS COLLEGE ANGUS SCHOOL OF COMMERCE HOOD BUSINESS COLLEGE Come in and talk this over with us for it will be to your advantage to consult us. We are offering you a discount of 25% of the regular tuition fee. The Columbia Press Limited 695 Sargent Ave. Winnipeg, Man. Messuboð FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA Guðsþjónustur næsta sunnudag, 1. júli, verða með venjúlegum hætti; ensk messa kl. 11 f. h. og íslenzk messa kl. 7 að kveldi. Guðsþjónustur í Vatnabygðum sunnudaginn 1. júli: í Elfros kl. 10 f. h.; í Wynyard kl. 2 e. h.; i Mozart kl. 4 e. h., og kl. 7.30 e. h. í Kanda- har. íslenzk guðsþjónusta í Mozart, en hinar á ensku. — K. K. Ólafson. Guðsþjónustur boðast hér með í kirkju Btetel-safnaðar sunnudaginn 1. júlí og við Amaranth þ. 8. sama mánaðar. Verð eg tilbúinn að taka fólk til altaris og vinna önnur störf. Mig langar til þess að fá að sjá sem flesta við guðsþjónustur þessar. —Y. 5. C. Messuboð í Lundar og Lúters söfn. Guðsþjónusta í Lúters söfn. kl. 2 e. h., surfnud. 1. júlí og í Lundar söfn. kl. 8 e. h. Ferming og altarisganga í Lundar söfn., sunnud. 8. júlí kl. 2 e. h. Jóhanri Fredriksson. Aœtlaðar messur í júlímánuði: 1. júlí, Hnausa, kl. 2 síðd. (altaris- ganga; 1. júlí, Riverton, kl. 8 síðd.; 8. júlí, Árborg, kl. 11 árd.; 8. júlí, Framnes, kl. 2 síðd.; 8. júlí, Geysir, kl. 8.45 síðd.; 15. júlí, Riverton, kl. 11 árd.; 15. júlí, Víðir, kl. 8.45 síðd.; 22. júlí, Árborg, kl. 11. árd.; 22 júlí, Riverton, kl. 2 síðd.; 22. júli, Geysir, kl. 8.45 siðd.; 29. júlí, Hnausa, kl. 11 árd.; 29. júlí Geysir, kl. 2 siðd.; 29. júli, Árbbrg, kl. 7 siðd. 5". Ó. . Messur í prestakalli séra Guðm. P. Johnson verða sem hér segir:— Sunnudaginn 1. júlí í Foam Lake söfnuði; sunnudaginn 8. júlí í West- side skóla; sunnudaginn 15. júlí í Hallgrímssöfnuði, Hólar; sunnu- daginn 22. júlí í Kristness skóla. Messað verður i kirkju Melankton safn. að Upham, N. Dak., sunnud. þ. 1. júlí n. k., kl. 1 e h Séra Bjarni A. Bjarnason prédikar. Allir boðn- ir og velkomnir. Sunnudaginn 1. júlí messar séra H. Sigmar í Gardar kl. 11; í Ey- ford kl. 3 og Mountain kl. 8. Sama sunnudag messar séra Steingrímur Thorlakson i Vídalíns kirkju kl. 11 f. h. og í Péturs kirkju kl. 3. The Watch Shop Diamonds - Watches - Jewelry Marriage Licenses Issued THORLAKSON & BALDWIN Watchmakers & Jewellers 699 SARGENT AVE., WPG. KOMIÐ TIL OKKAR Góðir, ootaðir, Bílar Við höfum mikið úrval með lágu verði. Chevrolet of Oldsmobile umboðsmenn. CONSOLIDATED MOTORS LTD 235 MAIN ST., Sími 92 716 Moldi (Framþ. frá bls. 2) það var hversu hann var minnugur á áningarstaði. Það vildi oft til, að hann tók af mér ráðin og þaut út úr götunni, þegar hann sá staði, þar sem við höfðum áð einhverntíma fyrir mörgum árum. Alloft hefir það legið við borð, að við Moldi brytum í okkur beinin, því að klárinn fór svo að segja á hvað sem var, og stundum sá hvor- ugur torfærurnar fyr e'n um seinan. Þá var það venjulega eina ráðið að renna sér yfir ef unt var, og á þeim stundum vórum við áreiðanlega samhuga. Moldi var líka snillingur að stökkva. Því miður hefi eg aldrei mælt langstökk hans. Eg heyrði sagt að það hefði verið mælt einu sinni af mönnum, sem sáu til okk- ar álengdar, en ekki vissi eg hvað það reyndist. Oft kom mér það vel, að Moldi var áræðinn. Man eg ein- kannlega eftir einu atviki í því efni. Eg var á ferð ofan úr Mývatnssveit ásamt fleirum. Það var sumarið 1919. Við riðum norður frá Hellu- vaði. Það var á dálitlum kafla upp- hlaðinn vegur, nýlegur, og lá þráð- beint norður og var töluvert undan- hald. Moldi var glöggur á góðan veg, og þarna kom okkur saman um stökkið. Samferðamennirnir voru alllangt á eftir. Þegar spretturinn mundi um það hálfnaður komum við að opnu ræsi, sem lá þvert yfir veginn, og voru veggir hlaðnir úr grjóti. Kastið var svo mikið á hest- inum, að nú varð að fara, sem fara vildi. Allra snöggvast lagði klárinn sig hér um bil niður að jörðu, en hóf sig upp á augabragði og tókst þá á loft. Auðvitað flaug hann yfir og kom hvergi nærri ræsinu. Hefði Moldi stöðvað sig á ræsisbrúninni, þá hefði eg líklega háttað þarna hjá steinunum og samleið okkar lokið að fullu. Tvisvar hefir Moldi runnið í leir- flögum að haustlagi. 1 bæði skiftin á harða stökki. Þá hefi eg kastast langt fram af honum. Einu sinni hljóp hann með mig á kaf í dý. Það þótti mér ilt, þvi að þar var nóg rúm fyrir okkur báða. í fjórða skifti var hann á harða stökki með mig í þýfðum viðarmó. Það var snemma að vorlagi. Þá varð alt í einu heldur rótlítið undir framfót- unum og er ekki að orðlengia það, að klárinn steyptist þarna. Þá hrökk reiðinn í sundur og gjörðin líka, og mér sýndist fljúga stór hrafn fyrir ofan mig í loftinu, en það var aðeins hnakkurirtn. Þegar eg leit svo upp aftur, þá var klár- inn þotinn sína leið með beizlistaum- inn uppi á makkanum. Það, sem hjálpaði mér ætíð, þegar svona vildi til, var það, hvað Moldi var með af- brigðum líkamaléttur, jafn knár hestur. Þess vegna var fallið alt af svo létt. Aldrei hefi eg lánað Molda—þar hefi eg staðist allar freistingar—og örsjaldan hefi eg lofað manni á bak honum, án þess að eg vissi annað, en það væri alveg óhætt. Enda hefir hann aldrei orðið valdur að slysi. Þó lá nærri einu sinni, og þá yfir- sást mér illa, því að eg lofaði dreng um fermingu á bak Molda berbak- aðan. Það endaði með því, að klár- inn hristi drenginn af sér, en ekki urðu meiðslin alvarleg, sem betur fór. Einu sinni var Moldi á harða stökki með mig, og þá varð alt í einu kind fram undan á veginum. Það var svo sem ekki um annað að gera, en að láta hann stökkva yfir hana, og það tókst líka ákjósanlega. Eins og áður er sagt, þá hefir Moldi verið alla æfi sína mjög styggur. Og það, sem verst var, að hann forðaðist alt aðhald og alla mannabústaði. Eg muridi ekki ná honum frekar en aðrir, nema vegna þess, að eg þekki hann betur. Þó hefir hann alt af gert þann mun á mér og öðrum, að hann lofar mér Jakob F. Bjarnason TRANSFER Annast sreiBlega um alt, tem «6 flutnlmrum lýtur, amáum »8a irtrtr- um. Hvergrt aanngjamaxa ver8 Heimill: 762 VICTOR STRKET Slmi: 24 S00 að ná sér, ef hann er með hnakk og beizli. Lofi hann öðrum það, þá er það fyrir eitthvað sérstakt. Oft hefir mér gramist óþægðin í Molda, en oft hefir mér líka þótt vænt um hana. Einu sinni bar svo við, að handsamá átti hann á öðrum bæ, á- samt fleiri hestum. Hestarnir voru reknir inn í túngirðingu, og þar var krept að þeim í kröppu horni. Náð- ust þeir undir eins allir nema Moldi. Nú var þrengt að honum með hin- um hestunum og gættu þeirra þrír menn, en sá fjórði tók að sér að læðast að Molda. Við svona tæki- færi var Moldi jafnan mjög otur- eygður og svo reistur, að hann sýnd- ist nærri hálfu hærri en hann var í raun og veru. Það var þá líkast því, sem hann logaði allur innan. Nú er að segja frá manninum, að hann stekkur í faxið, þegar hann sér sér færi, en þá stóð ekki á sveiflunni, og skifti engum togum, að maðurinn lá á vellinum eins langur og hann var. Rauf klárinn síðan fylkinguna í einni svipan og slapp í heiðina. Maður þessi er hinn mesti liðleika- maður, stór og handsterkur. Hann á heima í Húsavík og heitir Helgi Flóventsson. Moldi hefir aldrei ver- ið tekinn með valdi. En við það hefi eg ekki getað ráðið á ferðalögum, að menn hafi stokkið í faxið á hon- um, og hefir þá alt af farið á sömu leið fyrir þeim og Helga. Hafi stallbræður Molda eitthvað viljað áreita hann, þá er þar svipað um að segja, og aldrei hefi eg séð nokkurn bera hærri hlut, en aftur á móti séð marga fá illa útreið. Einu sinni varð eg t. d. að hjálpa hesti, sem eg gat ekki betur séð en Moldi væri að bíta á barkann. Þeir voru heima á túni, tveir einir, og sinn- aðist eitthvað. Hinn hesturinn var jarpur að lit og hét Blakkur, rosk- inn dugnaðarklár, sem mótbýlis- maður minn átti. Alt í einu berast óhljóð mikil heim á hlaðið og sé eg þá að klárarnir eru komnir í hár saman og bítast af miklum móði. Þetta var í brekku. Nú rísa þeir hvor á móti öðrum og lenti Blakkur í hallanum og steypir Moldi honum þarna aftur á bak, og kemur Blakk- ur niður á hrygginn. Lýtur Moldi þá niður að honum og bítur um barkann. Þá hljóp eg til og bjargaði klárnum á fætur, en þá var Moldi svo reiður orðinn, að hann þreif kjaftfylli sína í vangann á Blakk, sem hrein við hátt, og tók á rás sem harðast, en Moldi fylgdi honum eftir og slepti ekki takinu. Þegar hér er komið sögunni þá áttum við Moldi heima á Héðins- höfða á Tjörnesi. Þar eru góðir vetrarhagar fyrir hesta, og er þar oft margt af gönguhestum. Vetur- inn 1926-27 gengu þar þrír hestar alveg af, nema hvað eg tók af þeim það allra versta og gaf þeim þá stundum tuggu. Gerði eg það vegna hestanna en ekki eigandans. Moldi hefir stundum gengið fram að há- tíðum, en heim leitaði hann jafnan þegar harðnaði um. Oft kemur það fyrir þegar hart er nokkuð, skyrðir og lækir uppbólgnir og svellað yfir, að Moldi er kominn einn þangað í hagann, sem bezt er, og hefir þá félaga hans brostið áræði til þess að fylgja honum. Oft hefi eg líka tek- ið eftir þvi, þegar betri er tíð, að ef hestaflotinn færir sig eitthvað til, þá er Moldi ætíð fyrstur af stað. Sama er á sumrin í heiðahögunum, en þá er ungviðið oft óhlýðið og fer í aðra átt, en Moldi vill. Þá stendur hann oft lengi og biður. Sjaldan hefi eg orðið þess var að Moldi væri næmur á veðurbreyting- Sendið áskriftargjald yðar fyrir “The New World,” mán- aðarrit til eflingar stefnu Co-operative Commonwealth Federation í Canada. Aðeins EINN dollar á ári sent póstfrítt Útgefendur The New World 1452 ROSS AVE. Winipeg, Manitoba ar, og þó mun svo vera. A. m. k. tók eg einu sinni greinilega eftir því, að hann vissi á sig vont veður. Það var einn dag í góðu veðri og góðri tíð, aðeins seinna en um miðj- an dag, að Moldi, sem annars er alt annað en hússækinn, kemur heim úr haganum, og var með honum hest- uririn, sem hýstur var í sama húsi. Moldi rölti heim að húsi sínu og inn og hinn á eftir. Eg lét þá sjálfráða og fór að smala fé mínu, en rétt þegar eg er kominn af stað, þá skell- ur yfir illviðri og man eg að eg blotnaði svikalaust. , , Ætla eg nú ekki að segja fleira af Molda í þetta sinn, þó að margt rif j- ist upp þennan daginn, sem eg verð að láta ósagt. Hann er nú orðinn grár fyrir hærum, en skapið er hið sama, þegar því er að skifta. Að visu sýnist mér vera að koma í augu hans eitthvert vonleysi, en þó ber hann ellina vel. Líklega er hann farinn að finna tökin hennar, en er i vafa um, að sér takist að fleygja henni á völlinn, eins og Helga forð- um. Elli gamla er handsterk og missir aldrei af taki sínu, enda mun hún verða hlutskarpari en allir aðtir, sem stokkið hafa í faxið á Molda mínum. En illa man eg honum þá marga yndisstund, ef eg * læt Elli leika hann hart. Óskar Stefánsson, frá Kaldbak. —Dýraverndarinn. “Enginn er of gamall til að læra —ncma hann sé innan við tvítugs aldur.” Þetta er það merkasta Byrjar 4 fimtudaginn hjá FIRTH BROS. LTD. Beztu Flannels—2 og 3 pc. léttar yfirhafnir. Ágæt Tweeds—hundrað mismun- andi efni og litir. Tilsniðin $19.50 til $24.50 Karlmannaföt með tvennum buxum $30 til $35, afbragðs góð föt, nýj- asta snið. Sparið yfir $10.00. Hvað mikið sem þið hafið að gera PU takið ykkur tlma til að heim- sækja okkur. p& getið þið sann- færst um það að engir hafa betra að bjóða. 14 geymdir fatnaðir þessa viku, Verð $15.00 Buxur við gömlu fötin $5.75 og yfir. Firth Bros. Ltd. 41714 PORTAGE AVE. Gegnt Power Bldg. ROY TOBEY, Manager. Talslmi 22 282 224 NOTRE DAME AVE. Winnipeg, Man. Phonb 96 647 MEYERS STUDI0S LIMITED Largest Photographic Organiza- tion in Canada. STUDI0 PORTRAITS C0MMERCIAL PH0T0S Family Groups and Children a Specialty Open Evenings by Appointment LAFAYETTE H0LLYW00D Studios Studios t89 PORTAGE Av. SASKATOON Winnipeg, Man. Sask. We SpeciaUze in Amateur Developing and Printinp Porflii Þér fáið aldrei betri fata- hreinsun fyrir jafn litla pen- inga, eins og hjá PERTH’S Smá viðgerðir ókeypis—öll föt ábyrgst gegn skemdum, Fötin sótt til yðar og skilað aftur. Sanngjarnt verð. Alt þetta styður að því að gera PERTH’S beztu fatahreinsun- arstofuna. • • • 482 & 484 PORTAGE AVE. Sími 37 266 P.O. Box 608 Reykjavík, Iceland. 10 Þing Bandalags lúterskra kvenna verður haldið að BALDUR og GRUND, Manitoba dagana 6., 7. og 8. JÚLÍ, 1934 Þingstörf byrja kl. io f. h., 6. júlí. Tekið verður á móti skýrsl- um framkvæmdarnefndar og erindreka og nýjum meðlimum. KI. 2 e. h.—Erindi flyturMrs. V. Bljarnason, Langruth, Man., “Gildi samvinnunnar.” Kl. 8 e. h.—Erindi flytur Miss Svanhvít Johannesson, L.L.B., Wínnipeg, Man., “Of eða van” — Erindi flytur Mrs. O. Stephensen, Winnipeg, Man., “Friðarmál.” Laugardaginn 7. júlí, á Grund, Man. Kl. 10 f. h.—Starfsfundur. Kl. 2 e. h.—Erindi flytur Mrs. S. Olafson, Árborg, Man. Kl. 8 e. h.—Erindi samið af Mrs. Dora Lewis, Seattle, Wash. —Erindi flytur Dr. D. A. Stewart, Ninette, Man. Á öllum fundum nema morgun-fundunum fer fram söngur og hljóðfærasláttur. — Sameiginleg guðsþjónusta í Kirkju Frelsis safnaðar kl. n f. h., sunnudaginn 8. júlí. ^^ll^llln^l)lllllllllnllllllll■^IlIllg^Hl^Hllll^lllllllnllllll«llllllll^lllllllllllllllllllllllllllllnlllIlllllllllllllllllllBB^^lllH^llnlll^ln^lllllnllllllllll^lnl^nmlffillnlllllll[llllllllllnnlnll^^lllml[^llllln[llllllIlll^l^lll^lllll^ll^lllllll^lllllllllllllllnll^lll1lnl[l1^lllMllll[ll^l1lllmm[ll|l^lllI)ll|l|llllll|||l|llll^ I THOSE WHOM WE SERVE | IN THE FIELD OF COMMERCIAL PRINTING §| AND PUBLISHING BECOME LASTING FRIENDS = BECAUSE— OVER THIRTY YEARS EXPERIENCE IN ENGRAV- INQ, PRINTING ANI) PUBUSHING IS PART OF THE SERVICE WE SELL WITH EVERY ORDER WE DELIVER. I COLUMBIA PRESS LIMITED 695 SARGENT AVENUE - WINNIPEG - PHONE 86 327

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.