Lögberg - 19.07.1934, Blaðsíða 7

Lögberg - 19.07.1934, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. JúLl, 1934 7 Sigurmundur Sigurðsson Fyrrum kaupmaður í Árborg. Fæddur 12. sept. 1865. Dáinn 19. marz 1934 Sigurmundur SigurÖsson var fæddur á Stóruvatnsleysu, á Vatnsleysuströnd, í Gullbringusýslu, ár og dag sem aÖ ofan er greint. FaÖir hans var Sigurður Jónsson, út- vegsbóndi á Stóruvatnsleysu, sjógarjmr og dugnaðarmaSur, er bjó í mörg ár stór- búi á hinni ofannefndu jörð. Kona Sigur'ðar Jónssonar, og móðir Sigurmundar, var Oddný Hannesdóttir, bónda frá Hjalla í Ölfusi. Átti Hannes bóndi fjölda barna og er mikill ættbálkur frá honum kominn. Árið 11876 afréðu þau Sigurður út- vegsbóndi og Oddný kona hans, að flytja af landi burt, til Vesturheims. En þegar á átti að herða varð Sigurður afhuga för- inni. Vildi hætta við að fara. Til þess var Oddný ófáanleg. Hún vildi freista gæfunnar í liinni nýju heimsálfu. Varð út af þessu ákveðinn meiningarmunur. Leiddi þetta til þess, að þarna skildi með þeim hjónum. Oddný afréði að fara með öll börnin, sennilega í þeirri von, að Sigurður maður hennar kæmi bráðlega á eftir. Þau hjón höfðu eignast f jórtán börn alls. Voru níu af þeim á lifi, fimm piltar og fjórar stúlkur. ,Hugðist Oddný nú að taka þau öll með.sér vestur um haf, i þeirri von, að vel mundi ungu og upprennandi fólki vegna í hinu nýja og auðuga landi. Þegar hópurinn lagði af stað, fylgdi Sigurður bóndi konu sinni og börn- um til skips. Þegar konan og börnin voru að fara um borð, fann Sigurður mjög til þess, hve hann var að verða einmana. Hafði hann orð á því. Þótti honum ærið ójafnt skift meði þeim hjónum, ef öll börnin færu með móður þeirra, en hann hefði ekkert þeirra eftir. Er þá sagt, að hann hafi spurt, klökkur í huga, hvort enginn drengjanna vildi nú verða eftir hjá sér. Jú, einn drengj- anna, Sigurfinnur að nafni, bauðst til að verða eftir með föður sínum.' Varð það úr, að hann fór hvergi. Fór hvorugur þeirra feðga nokkurn tíma til Ame- ríku. Sigurfinnur varð röskleika maður, sjógarpur mikill sem faðir hans, og atkvæða formaður um margra ára skeið þar heima á æskustöðvum sínum, á Vatnsleysuströnd. Mér er enn í minni stormdagur einn á Faxaflóa, þegar eg var unglingur og var á sjó með formanni af Álftanesi. Gerði ofsarok. Fórust þann dag einir þrír bátar við innanverðan Faxaflóa. Var einn af þeim áttæringur af Vatnsleysuströnd, formaður Auðun að nafni. Kom Sigurfinnur þar að sem áttæringur Auðuns var á hvolfi, og sem næst helmingur skipshafnar á kjöl. Hinir voru sokknir í djúpið. Fékk Sigurfinnur bjargað öllum, ér enn voru lifandi. Þótti þ>að rösklega gert og lánlegt atvik um leið. Mun Sigurfinnur hafa haft friska drengi innanborðs, eins og oftast var hjá afburða formönn- um á íslandi.— Börn þeirra Sigurðar Jónssonar og Oddnýjar Hannesdóttur, þau er upp komust, voru þessi: (1) Oddný, Mrs. Sylvan. Þau hjón áttu lengi heima i Winnipeg. Er hún nú látin fyrir allmörgum árum. (2) Vilborg, Mrs. Christie; er enn á lífi. Mun eiga heima vestur i landi. * (3) Sigríður, nú dáin fyrir æðimörgum árum. • (4) Sigurný Guðlaug, Mrs. Currie; nú ekkja, á heima vestur i Sas- katchewan. (5) Kristján Lífmann, átti lengi heima á Gimli. Var hann jafnan nefndur báðum nöfnum í tali manna á milli. Fór svo, að Lífmanns nafnið var tekið upp sem ættarnafn. Uppeldissonur hans er Thór Lífman, í Árborg, nú sveitar-oddviti í Bifröst-sveit.—Kristján er látinn fyrir mörgum árum. (6) Hannes. Dáinn fyrir löngu siðan. (7) Jón. Sömuleiðis dáinn fyrir löngu. (8) Sigurfinnur, áður nefndur. Fór í sjóinn á endanum, eins og marg- ir aðrir sjógarpar Islands. (9) Sigurmundur. Hann var næst yngstur allra systkina sinna, og yngstur þeirra, er fluttu vestur með móður sinni 1876. Landnámsjörð Oddnýjar Hannesdóttur var í Árnesbygð, í Nýja íslandi, rétt við Winnipegvatn. Var þar nefnt á Oddnýjarstöðum og heitir svo enn. Bjó Oddný þar með börnum sínum i mörg ár. Fóru þau smátt og smátt í burtu, giftust og fóru að eiga með sig sjálf, eins og gerist. Þegar Sigur- mundur var orðinn fulltíða maður, og hin systkinin flest eða öll farin í burtu, tók hann við búsforráðum hjá móður sinni. Bjó hann fyrst á Oddnýjar- stöðum, en síðar á eigin landnámsjörð sinni, í Geysisbygð, vestanverðri, er hann nefndi á Hvítárvöllum, rétt norðanvert við Islendingafljót. Þaðan flutti hann loks til Árborg, og setti þar upp verzlun, þá er járnbrautin frá Winnipeg var lengd þangað norður. Þar andaðist Oddný hjá syni sínum og tengdadóttur, í góðri elli, fyrir allmörgum árum. Sigurmundur Sigurðsson var tvígiftur. Var fyrri kona hans Sigþrúður Guðmundsdóttir, frá Litlasandi á Hvalfjarðarströnd. Þau giftust 2. apríl 1891. Börn þeirra hjóna urðu fimm alls. Mistu þau eitt þeirra í æsku. Fjögur eru á lifi. Þau eru sem hér segir: (1) Sigurður. Kona hans er Clara Tirchmann, af þýzkum ættum. Þau búa að Seven Sisters Falls hér í fylki. (2) Páll. Á fyrir konu Sigríði Sigfúsdóttur Einarssonar, bónda á Ljósalandi í Breiðuvík. Þau hjón búa einnig að Seven Sisters Falls, þar sem þeir bræður hafa timburverzlun og sögunarmylnu. (3) Margrét Guðmundina. Á fyrir mann Sigurð Torfason. Hann stundar múraraiðn. Þau hjón eru búsett á Gimli. (4) Emily Oddný. Maður hennar er Matthew Gretchen. Stundar rakaraiðn. Þau eiga heima í Winnipeg. Eftir níu ára sambúð misti Sigurmundur Sigþrúði konu sína, árið 1900. Voru drengirnir þá enn á unga aldri og stúlkurnar kornungar. Nálægt fimm árum síðar giftist Sigurmundur í annað sinn. Er seinni ? kona hans Svanbjörg Sigfúsdóttir bónda Jónssonar, frá Blónísturvöllum í Gfeysisbygð. Þau giftust þ. 30. júlí 1905. Börn þeirra Sigurmundar og Svanbjargar, seinni konu hans, urðu átta alls. Mistu þau tvö í æsku. Hin sex eru á lífi, fjórar stúlkur og tveir drengir. Þau eru sem hér segir, talin eftir aldri, að því er eg bezt veit: (1) Pálmi. (2) Svanbjörg. (3) Oddný. (4) Sigurmundur Óskar. (5)Helga Guðrún, og (6) Sigrún. Er ein stúlkan gift, Oddný. Maður hennar er Guðjón Ingvar Bergman. s Foreldrar hans eru Guðmundur J. Bergman og Guðrún Jónsdóttir kona hans. Þau eru ættuð úr Miðfirði í Húnavatnssýslu, en búa nú, og hafa búið lengi, í Geysisbygð í Nýja íslandi. ? Sigurmundur Sigurðsson var maður vel viti borinn. Hann var elju- maður og dugnaðar. Sístarfandi að þeim viðfangsefnum, er fyrir hendi ■voru. Gat verið þungur fyrir og stífur, ef honum fanst að ganga ætti á rétti hans, eða ef misbjóða skyldi málefni, er hann hugði gott vera og hann hafði með höndum. Hann var ágætlega liðtækur í hverju því starfi, er hann vildi sinna og rétta hjálparhönd. Hann var hinn samvinnuþýðasti maður i störfum bindindismanna í Árborg og féhirðir stúkunnar þar í mörg ár. Unni J hann þeirri starfsemi mjög, var æfinlega viljugur að taka á sig kostnað og § fyrirhöfn í því sambandi, og var manna þassasamastur að sækja fundi og að rækja vel starf sitt að öllu leyti. Sigurður var einn með hinum fyrstu er mynduðu samtök til að stofna rjómabúið í Árborg. Var ráðsmaður þess býsna lengi á fyrstu árunum, ' einmitt á þeim árum þegar sú stofnun var rétt að komast á fastan grundvöll. Var hann betur staddur fjármunalega en flestir hinir, er í félaginu voru, og lánaði hann þá oft félaginu peninga, er þess þurfti með í bilif og studdi fyrir- j tækið með ráði og dáð. Hélt hann ráðsmenskunni áfram fyrst eftir að hann stofnaði verzlun sina í Árborg, en lét síðan af því starfi. Mun hann þó hafa haldið áfram að vera meðeigandi í félaginu og í stjórnarnefnd þess lengi á þeim árum. Hagur rjómabúsins varð snemma þýsna góður, og var í blóma á þeim árum þegar eg var í Árborg. Vissi eg og, að sumir fremstu og helztu menn þeirrar stofpunar, svo sem Gestur Oddleifsson í Haga, er. löngum var ; þar í stjórnarnefnd, og Jón Sigurðsson póstafgreiðslumaður að Víðir, og fyrrum oddviti í BifrÖst-sveit. er lengi var í stjórnarnefnd og ráðsmaður fé- lagsins, mintust Sigurmundar jafnan með hlýhug og þakklæti fyrir það hve vel hann hefði reynst félaginu, og það einmitt á þeirri tíð þegar þvi lá mest á í og hagur þess og tilvera var í allmikilli hættu. Ekki var Sigurmundur sjálfur i söfnuði í Árborg, en lét sér vel líka að kona hans og börn væru þar. Sum af eldri börnum hans og öll yngri börnin voru bæði skírð og ferm í Árdalssöfnuði. Studdi hann og söfnuðinn eins og hann væri í honum. Kona hans, sem er hin mesta myndarkona, var jafnan starfandi í kvenfélagi safnaðarins. Öll börn Sigurmundar, bæði þau eldri og yngri, eru gott, ungt fólk. Drengirnir allir bráðduglegir, vinnugefnir og reglusamir. Dæturnar allar góðar konur og stúlkur, og myndarlegar hver um sig. Þegar Hudsonsflóa leiðin átti að vera í þann veginn að opnast, hér á árunum. fekk Sigurmundur fljótt hug á að ráðast í einhver verzlunar fyrir- tæki á þeim stöðvum. Hann var upplagður athafnamaður, frumherji i lund, kjarkmaður og úrræðagóður. Réði hann loks við sig að flytja alfarinn til Churchill og setja þar upp verzlun. En svo komu alls konar tafir á því að leiðin opnaðist og leyfi fengist hjá landsstjórninni, að flytja mætti til hinnar væntanlegu, komandi borgar. Gat varla heitið, að Sigurmundur, kona hans og börn væru fyllilega búin að koma sér fyrir í Churchill, þegar hann varð að fara í lækninga-erindum til Winni- ’ peg og ganga þar undir uppskurð. Virtist fyrst sem uppskurðurinn mundi koma að góðu gagni, var allhress og leið bærilega, en þyngdi bráðum aftur 5 og var þá með það sama farinn.— Jarðarförin fór fram frá kirkjunni LÁrborg á annan í páskum. Stór- mikill fjöldi fólks þar saman kominn. Kona hans og öll börn hans þar við- ( stödd. Séra Sigurður Ólafsson, og sá er linur þessar ritar, töluðu þar báðir. ; Eg hafði haft messu á páskadag úti í Mikley, um fjörutíu mílur vegar frá i Árborg, og taldi næstum ómögulegt, er talað var við mig í síma, að eg gæti komið til að vera við jarðarförina. Engin hröð ferð væntanleg úr Mikley til lands, sizt svo fljótt að í tíma væri. En ferðatæki nútímans haía gjör- breytt öllum gömlum ferðaáætlunum. Snjóbíll var sendur út til Mikleyjar og var ekið með þægilegum hraða alla leið til Árborg um kvöldið. í Um ættir Sigurmundar er mér ekki kunnugt að öðru en þvi, er þegar ^ hefir verið tekið frarn. En af vel þektum, nákomnum ættingjum hans, er að minsta kosti einu hér vestra, sem mér er kunnugt um, það er dr. Sig. Júl. Jóhannesson. Þeir Sigurmundur og hann voru systrasynir.— Fyrst framan af árum mínum í Nýja íslandi, þegar eg var að Hnausum og i Árborg, var viðkynning min við Sigurmund heitinn fremur lxtil. Síðar bar fundum okkar meira saman. Og þegar við urðum samvinnumenn, bæði i stúkunni i Árborg og að nokkuru leyti í kirkjumálum, varð viðkvnning okkar talsvert mikil. Sýndi hann mér frá því fyrsta, að viðkynning okkar hófst, gott viðmót, en varð sífelt hlýrri í huga og vingjarnlegri, eftir því sem viðkynningin varð meiri. Gat eg naumast kosið á betri samherja, kurteisari né vinsamlegri, en Sigurmundur var, í öll þau ár. sem við unnum saman í stúkunni í Árborg. Ýmsir þeir. er þektu Sigurmund Sigurðsson á seinni árum hans og voru ■ með honurn í einhverju starfi, munu sjá eftir honum. Kona hans og börn ( syrgja þar látinn ástvin. Og við, sem þektum Sigurmund svo vel og höfðum notið góðvilja hans og vinsemdar i mörg ár, hefðum glaðst yfir því, að sjá ■! honum auðnast að hafa líf og heilsu til að ryðja sér og sínum nýja braut, með sínum alkunna dugnaði og framtakssemi, í einni af hinni nýjustu, væntanlegu stórborgum heimsins, þeirri stórborg Vesturheims, er á sennilega fyrir hendi að hafa niikil viðskifti við ísland og verða framtíðar samfundastaður frænda og vina beggja megin hafsins, um komandi aldir,— Jóhann Bjarnason. j Þörf á bindindi Aldrei hefir verið meiri þörf á bindindi en nú. En aldrei hefir ver- ið meiri deyfð í bindindismálum en nú. Það er eins og allir séu hrædd- ir við eitthvað. Enhvað? Jú, vín- vinir eru að minsta kosti hálf hrædd- ir við bindindismenn. Og það er aðallega við þögnina og svefninn. Bindindismenn sofa sætt, en hvort þá dreymir nokkuð, veit enginn, því þeir þegja. En hvað lengi ætla þeir að þegja? Ja, það er nú spurs- málið. Líklega á meðan þeir eru hræddir. En við hvað eru þeir þá hræddir ? Við svo margt. Þeir eru hæddir við áfengið, áhrif þessá æskuna. Þeir eru hræddir við vínvaldið. VTið laga- valdið, sem er á móti þeim. Þeir eru hræddir við áhugaleysi alþýðu. þeir eru hræddir við blöðin, sem flest eru á íuóti þeim. Þeir eru hræddir við kirkjurnar, sem margar eru andstæðar, aðrar sem játa sig með bindindi, gera ekkert nema að játa að þær séu með. Þeir eru hræddir við læknana, sem aldrei segja orð um bindindi, nema með sárfáum undantekningum. Þeir eru liræddir við vísindin, sem erú notuð á móti þeim. Þeir eru hræddir við sjálfa sig, það er, sína eigin starfs- menn, sem ekkert starfa og þeir vita ekki hvort þeim megi treysta. Sann- arlega hafa því bindindismenn á- stæðu til að vera hræddir. F.r þá nokkur sérleg furða, þó þeir sofi. Máske þeir vakni einhvern tíma. En hvað óttast þá vínmenn? Fýrst af öllu sina vondu samvizku, sinar illu hvatir, sín ljótu myrkraverk og afleiðingar þeirra á þjóðfélagið. Þeir óttast vaknandi almenningsálit. Þeir óttast siðferðisþroska alþýðu, vakn- andi kærleika, trú á hið góða og sanna, uppreistaranda vaxandi menn- ingar. Þeir óttast sanna bindindis- menn. Vínmenn eru hræddir við þögn og svefn bindindismanna. Þeir vita að eftir langvarandi dauða-logn brestur á öskrandi óveður. Stundum er það ógurlegur hvirfilbylur. Svo dreym- ir sofandi menn vanalega. Hver veit hvað bindindismenn er að dreyma? Stundum rætast draumar. Máske vínf jendur sé að dreyma um uppreist. Hver veit? Við slíka drauma eru vínmenn hræddir. Þeir eru hræddir við það sem þeir vita ekki hvað er. Óvissan er óttalegri en vissan. Upp úr þögninni stigur ein rödd. Það er enskur prestur í Winnipeg. Svo koma fáeinar raddir. Svo hljómar ein rödd i stúkunni Skuld. Islenzkur læknir talar. Nokkrar raddir vakna. Fjöldinn þegir, en blóð tilheyrendanna fer að hreyf- ast. Það er borin upp tillaga, hún er þegjandi samþykt. Svona hafa sumar byltingar byrjað. Úr svona smárri eldkveikju hefir oft orðið stórt bál. En er þá næg orsök til að kyndað sé bál ? Því læt eg bindindis- menn svara sjálfa. En min skoðun er sú, að þeir, sem ekkert eldsneyti eiga i sálu sinni, séu lélegir bind- indismenn. Winnipeg góðtemplarar halda fundi í hverri viku. Þeir halda bindindisandanum lifandi. Þeir starfa eftir mætti. Þeir hafa kosið sér árlega embættismenn, ásamt stúkum utan Winnipeg. Þessir em- bættismenn eru nefndir Stór-stúka. Hvað eru þessir menn að gera ? Má- ske þeir séu að gera alt sem hægt er. Einn þeirra er æðstur. Hvar er hann á fundarkvöldum undir- stúknanna? Heyrði hann röddina, sem birtist í dagblöðunum? Því kom hann ekki á fundi vora, þó ekki væri nema til að segja oss hvað hann heyrði ? Er hann að gera skyldu sina sem stór-templar ? Því svari hver fyrir sig. En eru allir ánægðir? Þeir, sem eru ánægðir með starfsemi ENDURVEKIÐ ÆSKUFJÖRIÐ NUGA-TONE er dásamlegt meSal fyrir ejúkt og lasburSa fólk. Eftir vikutíma, eSa svo, verSur batans vart, og við stöðuga notkun fæst góð heilsa. Saga NUGA-TONE er einstæð í sinni röS. Miijónir manna og kvenna hafa fengið af hvt heilsu þessi 45 ár. sem það hefir verið í notkun. NUGA- TONE fæst í lyfjabúðum. Kaupið að- eins ekta NUGA-TONE, því eftirliking- ar eru árangurslausar. stór-stúkunnar, eru víst ánægðir með flest. Nú er að koma timi til að vakna, __tími til að tala. Tími til að hrópa. Það er kominn tími til að blóð þeirra, sem fallið hafa fyrir eitur- eggjum vínsins, komi yfir þá seku. Þeir, sem með vopnum vega skulu fyrir vopnum falla. Hefndin hróp- ar í himininn. Eða máske ekkert sé að. Máske tslendingar hafi ekki um nein sár að binda. Engar ekkjur drykkjumanna. Engar grátandi mæður. Engin föðurlaus drykkju- nxanna börn. Engin harmþrungin systir. Engin sorgbitin utinusta. Það er margt fleira að nú á tim- um, en ofdrykkjan, ]xað er satt. En skal þá böli bætt á böl ofan? Læknar eitt böl annað böl? Ekki mun prestinum, sem talaði liafa fundist það. Nú stendur yfir alheims atvinnu- leysi, hungur og vonleysi. I mörg ár er búið að vara við þessu ástandi. Nú er það kornið. Bindindismenn hafa barist á móti vínsölu og of- drykkju. Þeir hafa beðið um hjalp. Þeir hafa beðið löggjöfina, visind- in, kirkjuna, alþýðuna, en ,enga á- heyrn fengið. Og svo er þeim bnxl- að um að bindindi sé gagnslaust og þeir heimskir draumóramenn. Og svo hafa sumir þeirra farið að trúa þvi sjálfir og lagt árar i bát,—bara leikið sér að málefninu—verið á- nægðir með að spjátra með merkið um hálsinn á einlægum ferðalögum, sjálfum sér til ímyndaðrar dýrðar. Og alþýðunni til skemtunar. Nú er hörmunga tíð. Hér selur stjórnin okkar áfengi i nafni alþýð- unnar. Á almenningskostnah legg- ur hún tálsnörur fyrir syni vora og dætur. Tukthúsin eru full af drykkjumönnum og glæpamönnum, sem framið hafa glæpi í ölæði. Og svo eru þúsundir atvinnulausar og svelta, en bjórknæpur og ólöglegar svínastíur eru opnar. Landsstjórn- in fæðif tugi þúsunda, — hundruð þúsunda að nafninu til, en selur á- fengi þeim sem enn hjara án sveitar- styrks. ] Þetta er sá tími, sem reynir á þol manna. Þeir, sem nú geta sofið, ættu að vera sofnaðir að eilifu. Nú er ekki timi til að gráta, þó gráts- efnið sé ærið nóg. Nú er tími til að hefjast handa. Reyna eitthvað. Hugsa upp ráð. Ræða málin saman. Nú gildir orðtakið: allir eitt! Nú er tími til að spyrja: Hvað myndi Kristur segja, ef hann stæði xneðal vor ? Nú er ekki úr vegi að spyrja: Hvað vill kristinn maður gera? Er nokkur maður kristinn nú á dögum ? Hvað er að vera kristinn maður? Hver vill svara þvi í hjarta sínu? Hvað megnar heilinn án hjartans? Er upprisa i nánd? Upprisa mann- dómlegrar menningar. Tákn tím- anna benda í þá átt. Annað hvort verður nú inn manndómlegi maður að tísa upp eða öll vor menningar- tilraun er til dauða dænid um alla eilifð. Þeir, sem ekki sofa vita að svona er ástandið alvarlegt á þess- ari stundu. Og án bráðra og rót- tækra athafna getur engin upprisa átt sér stað. íslendingar ! Vaknið nú og hef j- ist handa; gjörið yðar hlut—alt sem þér getið. Það er yðar hlutverk. Ekkert minna en það. Á. B. Benedictsson. FJARPEST geisar nú í Rangárvallasýslu, eink- um i Landeyjum og hrynja ær niður. Valda veikinni garnaormar og lungnaormar. I haust var sýktu fé gefið inn meðal frá N. P. Dungal lækni við þessari veiki og virtist því batna, en i vetur og einkutu i vor hefir veikin tekið sig upp aftur og kenna menn nokkuð um lélegum heyjum.—Mbl. 15. júni.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.