Lögberg - 13.09.1934, Qupperneq 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. SEPTEMBBR, 1934
7
Þuríður Indriðadóttir Long
Fædd 21. júní 1859; dáin 13. júní 1934
Hún var stór og sterk í flestu,
störfum sínum brást hún eigi.”
Grímur Thomsen.
Árstíðirnar vekja mismunandi tilfinningar. Vorinu fylgja
vaknandi vonir; sumrið flytur sigrandi starfsþrá; haustinu er
samfara djúp og dulræn viSkvæmni.
Á vorin vaxa laufin á limi skógarins og þéttast smátt og
smátt dag frá degi þangaÖ til hann er orðinn allaufgaður.
Þannig stendur hann lífrænn og limprúður þangað til fyrstu
laufin falla—og svo falla þau hvert af öðru—þá er' komið
haust.
Þegar farið er eftir kenningu Einars Benediktssonar og
augun látin aftur til þess að geta séð betur, og þannig litið yfir
liðna æfi vor íslendinga hér i álfu, þá hljóta að vakna hjá oss
sams konar tilfinningar og þær, sem árstíðirnar skapa.
Þegar vér fylgjum til grafar einum samferðamannanna,
sem vér höfum þekt lengi—og þegar vér jafnframt íhugum
hversu tíðar þær grafargöngur hafa verið síðustu árin, þá
minnumst vér þeirra vordaga þegar starfið var hafið með vakn-
andi vonum; vér sjáum sumaræfi frumbyggjanna með hinu
sigursæla þreki—og svo horfum vér nú á fallandi blöð hinna
bliknandi runna, þar sem innan skamms standa aðeins eftir
örfá hinna fyrstu trjáa.
Og hjá því er ekki hægt að sleppa að söknuður fylgir falli
“frumskóganna,” jafnvel þótt aðrir enn þá fegri rísi upp af
rótum þeirra; því það er sígildur sannleikur, sem Guðmundur
skáld Guðmundsson sagði að:
“Sama rósin sprettur aldrei aftur,
þó önnur fegri skreyti veginn þinn.”
Þuríður Indriðadóttir Long var fædd 21 júní árið 1859, í
Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu á íslandi. Foreldrar hennar
voru þau Indriði bóndi Davíðsson og Friðbjörg Einarsdóttir
kona hans. Ólst hún upp hjá þeim þangað til hún var 14 ára;
þá misti hún föður sinn. Dvaldi hún eftir það hjá Þórði
Guðjóhnsen á Húsavík um nokkurn tíma, en fluttist þaðan fyrst
til Mývatnssveitar og síðar til Hólsfjalla.
Árið 1889 flutti hún til Vesturheims, en hafði þá verið
um tíma i Reykjavík hjá Pétri biskupi Péturssyni. Kom hún
beint til Winnipeg og átti þar heima alla æfi síðan.
Á jóladaginn 1897 giftist hún eftirlifandi manni sínum
Bergsveini Matthíassyni Long; er hann ættaður úr Reyðarfirði í
Suður-Múlasýslú. Bjuggu þau hjón fyrst á Elgin Ave., síðar á
Maryland St. og síðast um Iangan tíma á Alverstone St.
Bergsveinn er listasmiður og smíðaði sjálfur öll húsin, sem
þau bjuggu í; áttu þau hjón jafnan hið prýðilegasta heimili.
Þeim varð þriggja barna auðið; það fyrsta, sem var
drengur, mistu þau, en tvö eru á lífi: Georg Frímann verk-
fræðingur í Chicago, kvæntur hérlendri konu, og Friðbjörg
Jóhanna, gift Victor Jónassyni, er hann sonarsonur Jónasar
Helgasonar tónskálds; þau lijón eiga nú heima í húsi foreldra
hennar á Alverstone stræti og er faðir hennar þar hjá þeim.
í>rjú systkini hinnar látnu eru á lífi: Mrs. Jóhanna Ólafs-
son í WSnnipeg, Mrs. Hólmfríður Friðriksson í Blaine og Sig-
tryggur Indriðason í Árborg, Man.
Árið 1918—inflúenzuárið—veiktist Mrs. Long alvarlega,
og fékk aldrei fulla heilsu eftir það. Hún lézt á Almenna spítal-
anum í Winnipeg 13. júní 1934, og var þá rétt 75 ára gömul.
Þuríður Long var sannkallaður kvenskörungur og auk þess
“drengur góður” eins og sagt er um Bergþóru konu Njáls. Hún
var gædd frábæru þreki og starfskröftum, sem hún beitti bæði
í þarfir heimilis síns og þeirra málefna, sem hún tók ástfóstri
við. Var það fyrst og fremst bindindismálið. Hún var starf-
andi og leiðandi i stúkunni Heklu um f jörutíu ára skeið og má
ýkjulaust fullyrða að þau hjón hafi átt sér fáa líka að einlægni,
áhuga og dugnaði í þeim málum. Auk þess var Mrs. Long
' starfsöm mjög i Skjaldborgarsöfnuði meðan hann var við lýði,
undir umsjón hins vinsæla kennimanns séra Rúnólfs Marteins-
sonar.
En þótt hún tæki mikinn þátt og góðan í þessum málum
vann hún samt aðallega heimilinu og lagði fram krafta sína því
til heilla; fylgdist þar að dugnaður og ráðdeild, og var heimilið
hið allra myndarlegasta. Áttu þar margir hinna yngri athvarf
um skemri eða lengri tíma, bæði piltar og stúlkur—sérstaklega
námsfólk, sem var þar ár eftir ár. Leit Mrs. Long eftir hag
þess og þægindum eins og hún væri móðir þess.
Hin látna var bókelsk kona og hafði lesið ósköpin öll af
íslenzkum ljóðum, sem hún'kunni mörg utanbókar; áttu þau
þar sammerkt hjónin, því Bergsveinn er hinn mesti bókavinur,
eins og alt hans fólk.
Mrs. Long var samhent manni sínum í hvívetna, og þegar
hann misti heilsuna, fyrir nokkrum árum, stundaði hún hann
með hinni mestu alúð og nákvæmni, þangað til kraftar hennar
voru með öllu þrotnir.
Hér hefir vissulega horfið úr hópi íslendinga vel gefin
kona, gædd kjarki hinna íslenzku fornkvenna og auk þess góð
móðir og trú eiginkona.
Sig. Júl. Jóhannesson.
l|llilii.liiii|i""^niii,i:. .,liiii,.,ii;iiiiiiiiii]iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii;iiiiiiiiiiiiii!iiiiii;iiiiiiiiiii;iiiiiiiiii;ii;iiiiiiiii ...iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
KAUPIÐ AVALT
LUMBER
THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD.
HENRT AVENUE AND AEGTLE STREET.
WINMPKG, MAN. PHONE 95 551.
Safnað af G. Hjartarsyni,
Steep Rock, Man.
O. J. Olson, $6.00; Sigriður Rob-
Ferðasaga
(Framh. frá bls. 2)
með að halda tárunum til baka. Um
kvöldið keyrði hún mig til Olsons
og sótti töskuna mína.
Næsti dagur var 23. desember, og
var sannkallaður happadagur. Eg
mætti úti á götu stúlku, sem eg hafði
aðeins kynst í Rochester, og bauð
hún að lána mér 5 dali, sem eg með
gleði þáði, helst vegna þess að mér
var mjög mikið áhugamál að borga
Mrs. Olson næturgreiðann. Seinna
þennan sama dag gekk eg niður i
búð og sé eg þá hvar svertingi kem-
ur eftir götunni. Eg tek eftir þvi
að hann ber þósttösku. Eg gaf mig
á tal við hann. Hann sagðist þekkja
íslenzka fjölskyldu þar skamt frá,
en sér væri ekki leyft að gefa neinar
upplýsingar um verustaði fólks.
Hann hefir víst séð undrunarsvip-
inn, sem kom á andlit mitt, því hann
bætti við: Það er á móti lögunum
hér. — Ekki vil eg að þú brjótir
lögin mín vegna, sagði eg og gekk
á burt. Eg var aðeins komin nokk-
ur skref, þegar hann kom á eftir
mér og spurði hver væri ástæðan til
þess^að mig vantaði að finna ís-
lendinga. Eg sagði honum eins og
var. Þá benti hann mér á stórt hús
sem stóð uppi á hæð þar skamt frá,
og segir: í þessu húsi búa áreiðan-
lega landar þínir; og bætir svo við
um leið og hann fór—ágætis fólk.
Eg verð að geta þess að eg hefi
alt af haldið mikið af svarta litnum,
enda reyndist hanji mér vel í þetta
sinn. Eg gekk rakleitt upp að hús-
inu og drap á dyr, og var þeim lok-
iö upp af Mrs. J. Þorbergsson.
Þarna hitti eg ekki aðeins landa,
heldur einnig reglulega, íslenzka
gestrisni. Til þessara hjóna var eg
alt af velkomin, meðati eg dvaldi í
Los Angeles. Þau sögðu mér að
skamt þar frá byggi íslenzk kona,
sem héti Mrs. Ortner, og vegna þess
hve vel kunn og kynt hún væri í
borginni, þá væri ekki ómögulegt
að hún kynni að geta útvegað mér
eitthvað að gera; hún væri ágætis
kona og hefði oft hjálpað vinnulaus-
um stúlkum að fá atvinnu.
Daginn eftir, sem var 24. desem-
ber, heimsótti eg Mrs. Ortner, og
bauð hún mér strax til sín, og til
hennar flutti eg á jólakvöldið. Hjá
þeim hjónum var eg til 28. desern-
ber, að Mrs. Ortner útvegaði mér
vinnu úti í Hollywood, hjá enskum
hjónum, og átti eg að líta eftir barni
þeirra, tveggja ára stúlku. Hjá
þessum hjónum var eg til 4. júní,
að eg fekk ferð alla leið til Winni-
peg, með systur Mrs. Ortner.
'Einn dag, nokkuð löngu eftir að
eg kom í þessa vist, kallaði Mrs.
Ortner mig í síma og sagði mér að
Mr. og Mrs. A. Thorgrímson, sem
væri góðir kunningjar sínir, ætluðu
að hafa spila-“party” næsta laugar-
dagskvöld, og æsktu eftir að það
kæmu sem flestir landar, og gat þess
um leið að eg mundi hafa skemtun
af að vera með og eg mundi kynn-
ast þar löndum. Þangað fór eg og
skemti mér ágætlega. Þar var spil-
að sungið og dansað og eg er viss
um að þaðan fór enginn svangur
heim.
Á meðal þeirra, sem eg hitti þar
voru þau Mr. og Mrs. Skúli Bjarna-
son, og buðu þau mér að heimsækja
sig áður en eg færi til baka aftur,
og það gerði eg. Mr. Bjarnason
beið þar sem eg átti að fara út úr
sporvagninum, til þess; að fylgja
mér heim til sin. Þau hjón eiga
indælt heimili rétt utan við Los
Angeles. Hjá þeim dvaldi eg allan
eftirmiðdaginn og langt fram á
kvöld. J5vo fylgdi Mrs. Bjarnason
og synir þeirra mér heim, og keyrði
eldri drengurinn bílinn. Eg dáðist
að hve gætilega hann keyrði, jafn-
ungur. Einnig heimsótti eg Tóhann
Bjarnason, sem lengi bjó i Winni-
peg; hann býr hjá börnum sínum;
þau eiga mjög skemtilegt heimili.
Þau tóku mér ágætlega vel.
Síðustu þrjá dagana dvaldi eg
hjá Mr. og Mrs. A. Thorgrímson,
þar var eg sannarlega heima hjá
mér. Þau hafa sérstakt lag á því,
hjónin, að láta manni líða svo ein-
staklega vel meðan maður er hjá
þeim. Mrs. Thorgrímson og dætur
hennar tvær eyddu sínum eftirmið-
deginum hvor til þess að fara með |
mig um borgina og sýna mér það I
markverðasta.
Enda eg svo þessar línum með
kærri kveðju og þakklæti til allra
fslendinga, sem eg kyntist á þessu
ferðalagi.
Lína- Gillis.
ATH.'—Það sem aðallega kom
mér til að skrifa þessar línur var
það, að gefa litla skýringu til þeirra,
sem hafa þreytt heilann á að húgsa
um hvaðan eg hafi haft peninga í
alt þetta ferðalag.—L. G.
LISTI
yfir gjafir í jarðskjálftasjóðinn
Áður auglýst .............$494.05
Júl. Jónasson og fjölskylda
Winnipeg ...................5-°°
Mrs. W. Thorsteinsson, Wpg. 1.00
Oddbj. Magnússon, Winnipeg 3.00
Miss H. Kristjánsson, Wpg. 2.00
Agnes Gunnlaugsson, Wpg. 1.00
J. G. Johnson, Winnipeg .... 2.00
Olga Sigriður Dalman,
New York............... 2.00
Saftíað af Guðna Brynjólfssyni,
Churchhridge, Sask. og Jóni
Gíslasyni, Bredenbury, Sask.
John Gíslason, Bredenbury, $1.00:
Björn Thorbergson, Bredenbury,
$1.00; Guðgeir Eggertsson, Breden-
bury, 50C; Kristján Kristjánsson,
Bredenbury, 50C; E. Gunnarsson,
Bredenbury, 25C; Mrs. E. Gunn-
arsson, Bredenbury, 25C ; Sveinbjörn
Gunnarsson, Bredenbury, 25C; E. G.
Gunnarsson, Bredenbury, 250; G. J.
Markússon, Rredenbury, 50C; T.
Thorbergson, Bredenbury, 50C : Mr.
og Mrs. G. F. Gíslason, Bredenbury,
50C: K. Johnson, Bredenbury, 50C;
Ónefndur í Bredenbury, 50C; Bína
Anderson, Bredenbury, ioc; S.
Loptson, Bredenbury, 50C; Mrs. C.
Thorwaldson, Bredenbury, 25C; H.
Loptson, Bredenbury, 25C; H. O.
Loptson, Bredenbury, 50C; S. Svein-
son, 25C: Ingvar O. Gíslason, Bred-
enbury,25c; Séra S. S. Christopher-
son, Bredenbury, 50C; Miss G.
Christopherson, Bredenbury, 50C;
Mrs. Kristín Johnson, Churchbridge,
50C; John E. Johnson, Churchbridge,
25C; Oli E. Johnson, Churchbridge,
25C; Hermann Sigurðsson, Church-
bridge, 50C; Mrs. G. Gunnarsson,
Churchbridge, $1.00; Ingi Laxdal,
Clnirchbridge, 15C; Mr. og Mrs. Th.
Laxdal, Churchbridge, $1.25; Mrs.
E. Einars, Churchbridge, 250.; Mr.
og Mrs. S. Bjarnason, Church-
bridge., 50C; Mr. og Mrs. A. John-
son, Churchbridge, 50C; Mr. og Mrs.
E. A. Eyjólfsson, Churchbridge,
50C; K. Eyjólfsson, Churchbridge,
$1.00; Mrs. A. Árnason, Church-
bridge, 30C; J. A. Eyjólfsson.
Churchbridge, 25C; Gísli Árnason,
Churchbridge, 50C; E. Hinriksson,
Churchbridge, $1.00; Mr. og Mrs.
B. E. Hinriksson, Churchbridge,
50C; G. Sveinbjörnsson, Church-
bridge, 25C; Mr. og Mrs. M. Magn-
ússon, $1.00; W. Magnússon,
Churchbridge, 50C; Mr. og Mrs. O.
Gunnarsson, Churchbridge. $1.00;
Mr. og Mrs. August Magnússon,
Churchbridge, 50C; Mrs. B. Thor-
leifsson, Churchbridge, $5.00: R. E.
Hedman, Clnirchbridge, 25C: T. S.
Valberg, Churchbridge, $1.00; Har-
old yalberg, Churchbridge, 25C;
Björn S. Valberg, Churchbridge,
25C; Mr. og Mrs. K. O. Oddson,
Churchbriclge, 50C; Mr. og Mrs. H.
Marvin, Churchbridge, 50C; Mr. og
Mrs. Westman, Churchbridge, 30C;
,1. Hinriksson, Churchbridge, $1.00;
Mrs. M. Hinriksson, Churchbridge,
50C; A. O. Olson, Churchbridge,
$1.00; Mrs. G. S. Breiðfjörð,
Churchbridge, $x.oo; Pálína .Tohn-
son, Churchbridge, $1.00; G. C.
Helgason, Churchbridge. $1.00; M.
Sveinbjörnson, Churchbridge, 50C,
Mr. og Mrs. G. Sveinbjörnsson,
Churchbridge, $1.00; O. Svein-
björnsson, Churchbridge, 25C; Ingi-
björg Westman. Churchbridge
$1.00; T. B. Johnson, Churchbridge,
50C; Mrs. Ingibjörg Rjörnsson,
$1.00; Jón Valberg, Churchbridge,
$1.05; Magnús Bjarnason, Church-
bridge, $1.00; Guðni Brynjólfsson,
Churchbridge, $1.00; Karolina
Gunnarsson, Churchbriclge, 25C.
Alls.............$43-U
Safnað af Jónasi Ólafssyni,
Arnes, Man.
Mr. og Mrs. Ólafsson, Arnes,
$1.00; Pálmi Lárusson, Gimli, 50C;
G. Thorkelsson, Nes, $1.00: Fred
Johnson, Gimli, 25C; Björn Thor-
kelsson, Nes, 25C; H. Thorkelsson,
Girnli, 25C; K. Thorkelsson, Nes,
25C; Lítið ítak, Nes, ioc; A. Sig-
urðsson, Árnes, 25C; Valdi Jónas-
son, Árnes, 25C; Óli Jónasson,
Árnes, 25 ; Thorey Jónasson, Árnes,
25C; Ólafur Jóúasson, Árnes, $1.00;
Mrs. Anna Helgason, Árnes, $1.00;
Lena Johnson, Árnes, 15C; Mrs.
Leifi Helgason, Árnes, 25C; Axel
Melsted, Árnes, 25C; Mr. og Mrs.
F. Helgason, Árnes, $1.00: P. B.
Pétursson, Árnes, 50C; Th. Peter-
son, Hnausa, 25C; Mrs. G. Johnson,
Árnes, 50; Guðm. EUasson, Árnes,
25C; Mrs. Margrét Elíasson, Árnes,
25C; Guðrún J. Thorkelson, Árnes,
5oc; Kristjana M. Thorkelson, Ár-
nes, $1.00; Jón J. Thorkelson, Ár-
nes, 2$c; Jóna Thorkelson, Árnes,
ioc; Mr. og Mrs. S. J. Thorkelson,
Árnes, 55C; Metta G. Thorkelson,
Árnes, ioc; Guðr. K. Thorkelson.
Árnes, ioc; Júlíanna E. Thorkelson,
Árnes, ioc; Fríða Thorkelson, Ár-
nes, ioc; Sigurjón Thorkelson, Ár-
nes, ioc; Kristján H. Thorkelson,
Árnes, ioc; Jón Jónasson, Árnes,
25C; Hjörtur Guðmundsson, Árnes,
$1.00; H. Sigurðsson, Árnes, $1.00.
ertson, $1.00; Ingim. Erlendson,
$1.30; John Thorsteinson, $1.00;
Mrs. H. E. Snidal, $1.00; Jón Stef-
ánsson, $1.00; F. E. Snidal, $5.00;
K. N. Snidal, $1.00; G. Hjartarson,
$4.00.
Alls............$21.30
Alls í sjóði.....$5$9-53
Orð til Sveins
Kæri fornkunningi, Sveinn Á.
Skaftfeld. Eg las eftir þig mjög
skemtilega grein í Hkr. (5. sept.).
Við hana langar mig til að gjöra
tvær smá-athugasemdir. Önnur er
sú að eg “vilji hella úr reiðiskálum
mínum yfir vestur-íslenzku skáldin,
en lyfta undir Pétur.” Þessi álykt-
un þín er ekki rétt. Það eru leir-
skáldin, sem eg beini örvyun mínurn
að, en þó aðallega aö ritdómurum
vorum. Sérstaklega fyrir hlutdrægni
þeirra.
Hin aths. er viðvikjandi ristj.
Lögbergs, Stefáni Björnssyni. Hann
hefði aldrei látið frá sér annan eins
ritdóm og þú vitnar i.
Stefán var ekki i bænum þegar
þessi umræddi ritdómur var birtur.
Höf. hans var þáverandi aðstoðar-
ristj. Lögbergs. En Stefán hlaut að
eins heiðurinn af að bera ábvrgð á
þessum fagra gimstein íslenzkrar
ritvizku. S. B. Benedictsson.
Alls.............-$15-25
— - INNKÖLLUNAR-MENN LÖGBERGS
M. Elíason
Amaranth, Man .... B. G. Kjartanaon
Akra, N. Dakota . B. S. Thorvardson
Árborg, Man
- Árnes, Man
Baldur, Man
■ Bantry, N. Dakota
1 Bellingham, Wash
Belmont, Man
Blaine, Wash Thorgeir Simonarson !
Bredenbury, Sask
• Brown, Man J. S. Gillis
Cavalier, N. Dakota....
Churchbridge, Sask
Cypress River, Man
Dafoe, Sask ...» J. G. Stephanson ;
Darwin, P.O., Man. ...
Edinburg, N. Dakota...
Elfros, Sask .. .Goodmundson, Mrs. J. Hi
I Garðar, N. Dakota
Gerald, Sask
Geysir, Man
Gimli, Man
Glenboro, Man
Hallson, N. Dakota ....
Hayland, P.O., Man. ...
Hecla, Man
Hensel, N. Dakota
Hnausa, Man
I Ivanhoe, Minn
Kandahar, Sask
Langruth, Man
Leslie, Sask
Lundar, Man
Markerville, Alta
Minneota, Minn
[ Mountain, N. Dak S. J. Hallgrimson
Mozart, Sask
Oak Point, Man
Oakview, Man
Otto, Man
Point Roberts, Wash....
Red Deer, Alta
Revkjavík, Man
Riverton, Man Björn Hjörleifsson
Seattle. Wash J. I. Middal
! Selkirk, Man W. Nordal
Siglunes, P.O., Man. . J. K. Jonasson
] Silver Bay, Man........
Svold, N. Dakota
Swan River, Man
Tantallon, Sask
Upham, N. Dakota
Vancouver, B.C
Víðjr, Man
Vogar, Man
Westbourne, Man
Winnipegosis, Man.... Finnbogi Hjálmarsson
Wynyard, Sask