Lögberg


Lögberg - 03.01.1935, Qupperneq 1

Lögberg - 03.01.1935, Qupperneq 1
48. \RG\NGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 3. JANÚAR 1934 NÚMER 1 NORRÆNN KLÚRRUR I VINARBORG Fyrir tveimur árum var í Vínar- borg stofnaður norrænn klúbbur, “Skandinavischer Klub in Wien” og voru stofnendur hans aðallega þaS fólk, sem fór sem börn til Norðurlanda á þrengingarárum stríðsins og dvaldist þar lengri og skemri tíma. í sambandi við þenn- an klúbb eru líka klúbbar hinna ýmsu Norðurlanda. Fyrir skömmu flutti barón Hans v. Jaden fyrirlestur i klúbbnum uiji ísland og sýndi 80 skuggamyndir héÖan. Auk þess voru menn látnir hlusta á 4 grammófónplötur meÖ íslenzkum söngvum, þar á meðal “Ó, guð vors lands,” og hlýddu menn á það standandi. Söngkonan Frieda Elsner söng fjögur lög eftir Kaldalóns. J. Schopka konsúll hafði gefiÖ klúbbnum stóran íslenzan fána og blakti hann nú í fundarsalnum í fyrsta skifti.—Mbl. BANKARAN I ASHERN Síðastliðinn föstudag rændu tveir ungir illvirkjar útibú Com- merce bankans í þorpinu Ashern hér í fylkinu og námu á brott meÖ sér 84,500 í fríðu; böröu þeir niður bankastjórann, O. B. McGiffin, eftir aÖ hann hafði þverneitaÖ skip- un þeirra um aÖ hypja sig tafar- laust inn í öryggisskáp bankans, á- samt ungfrú C. Ford, stúlku, er um bókhald útibúsins annaÖist. ; skutu þeir jafnframt á og særÖu, Mr. C. D. Anderson, forstjóra rjómabús- ins í þorpinu, er í sömu andránni bar þar aÖ. SíÖan hrööuöu ræn ingjarnir för sinni norÖur á bóg nn í sleða. Jafnskjótt og hljóðbært varð um atburð þenna, hóf ríkis- lögreglan leit með aöstoð borgar- anna í grendinni, og tókst henni eft- ir langa og harða útivist, að rekja slóð þeirra til bændabýlis eins, er liggur um þrjár mílur vestur af Moosehorn, en þar höfðu þeir tek- ið sér bækistöð. Er lögreglan gerði vart við sig á bænum, skaut annar ræningjanna sig samstundis til dauðs, en hinn var þegar handsam- aður. Sá, er sjálfsmorð drýgði, hét Peter Winters úr Birch Lake héraði, 24 ára að aldri. Hinn, sem tekinn var í gæzlu, heitir Ephraim Kortz, og er 23 ára gamall; var hann f lutt- ur hingað til borgarinnar og fer hér fram rannsókn í máli has einhvern liinna næstu daga. ATTA MANITORA LÖG- FRÆÐINGAR FÁ K.C. NAFNBÓT Samkvæmt tilkynningu frá dóms- málaráðgjafa Bracken stjórnarinn- ar í Manitoba, Hon. W. J. Major, hefir átta lögfræðingum í fylkinu verið veitt K.C. nafnbót. Eru það þeir J. W. Arsenych, Stuart S. Gar- son, M.L.A., J. Allison Glen, fyrr- »ui sambandsþingmaður, C. V. Mc- Arthur, Archie MacCauley, D. O. Ovens, John K. Sparling og Max Steinkopf. KJöRINN TIL RORGAR- STJóRA í ST. RONIFACE Síðastliðinn föstudag fóru frant borgarstj orakosningar i St. Boni- face. Úrslitin urðu þau, að fram- bjóðandi hins óháöa verkamanna- flokks, G. H. Barefoot, náði kosn- ingu með 215 atkvæðum umfram keppinaut þann, er næstur honum komst. Fimm keptu í alt um em- b.ætti þetta. Hinn nýkjörni borg- arstjóri er rúmlega hálf fimtugttr að aldri og hefir um allangt skeið verið í þjónustu Canadian National járnbrautarfélagsins. SVEINN THORVALDSSON, kaupmaður Samkvæmt fregnum er birtust í dagblöðum Winnipegborgar á nýársdaginn, hefir konungur Breta sæmt hr. Svein Thorvaldsson kaupmann í Riverton hinni svonefndu Empire Order; er þetta mikil virðing og ntakleg. Mr. Thorvaldsson kom ungur til þessa lands og hefir með afburða dugnaði rutt sér sjaldgæfa braut á sviði iðju og athafnalifs. Mr. Thorvaldsson nýtur góðs álits í héraði og þykir í hvívetna hinn mesti mannkostamaður. Til Friðriks Sveinssonar n sjötugs afuueli hans. í nafnfrægðaríki þeir nema sér lönd, .sem námsfórnir listinni bera, sem gáfu’ ‘ihenni óskiftan hug sinn og liönd og höfðu’ ekkert annað að gera. Já, þeir eiga heiður og hefð fyrir alt:— En hærra í röðinni stendur sá þulur, ssm listinni þjónustu galt með þreyttar og starflúnar hendur. Um hug ’hans sló birtu þess liimneska báls, er hitar burt jarðneskar fannir; hann fékk ekki notið þess nema til hálfs, því neituðu daglegar annir. Þær burstann í hendi ’hins margfróða manns, 'því miður, oft dæmdu að þegja, sem beið eins og túlkur að hugsjónum hans og liafði frá mörgu að segja. Við finnum hve þjóðræknis fleyið er valt, —að flest er þar sundrað og tapað,— en þökkum þér, Friðrik, í einlægni alt, sem önd þín og mund hefir skapað. Og hamingjan signi þín sjötíu ár og sál þína gefi’ okknr lengur, sem alt af var björt eins og himininn liár, og hrein eins og óspiltur drengnr. Sig. Júl. Jóhannesson. 1 Hnitbjargarholti Hitti eg uppi’ í holtunum hjónaleysin fín, einn af prúðu piltunum, sem pressar fötin sín og eina af stoltu stúlkonum með sterkjað kragalin — líkleg til að leika sér við ljóð og dans 0g vín. Þá reis fögur draumadýrð frá dauða í brjósti mín’— hún var fín og hýalín, hunangsbrauð og Rínarvín. Þarna uppi á þúfunum þ'au höfðu faðmað, kyst---- horfði eg á hann um stund og hana af mestu lyst, af því hún var svo yndisleg ástarmjúk og þyrst. Ástin þegir alla vega, eins og fugl á kvist’ og ástin talar eilíflega og er í hjörtun rist— greindir nærri geta og reyndir gleðja.st síðast meira, en fyrst. Klappaði eg á kollinn hennar, kvaddi líka ihann. Brostu til mín bæði í einu, en blessuð sólin rann— þau liafa séð, að þetta var þögul bæn og enn geymdi minning gamla stund— glöddust þarna tvenn! Gekk eg heim af góðum fund’. Geng til þeirra senn, ástarsæll og syng.jandi, í sátt við alla guði og menn. Hérna kemur, kæra mín, " kvæðisbrotið mitt, sem eg sagðist ætla’ að vrkja um ástaskotið þitt og láta prenta, litli, fíni ljósálfur, svo alt sé kvitt. Síst af öllu svík eg, hvað eg sver við nafnið þitt, og nú er eg líka að láta það í Ijóðastafnið mitt— þig eg set í sama stað, í sólskin alla vega litt. Alt er geymt og engu gleymt, elskulegu börn— oft eg hjala einn og mala eins og Gróttakvörn, kveðst ei á við ramma risa, en raula þetta á svanatjöm; en eg er líka stundum stór og sterkur eins og hvítabjörn. —Hljómi ungar ástatungur vfir þessi holtabörn, ljómi og svífi yfir ykkur Æolsharpa og’ konungörn! Sigurður Sigurðsson \ frá Arnarholti. FRIÐRIK SVEINSSON SJÖTUGUR Á siÖastliðið sunnudagskvÖld var hr. FriÖriki Sveinssyni málara, haldið fjölment samsæti i kirkju Sambandssafnaðar í tilefni af sjö- tugsafmæli hans. Var þetta marg- háttaður mannfagnaður (og mikið um ræðuhöld. FriÖrik Sveinsson er gáfumaður og listrænn meö fágætum. Því miður hefir hann aldrci átt þá að- stööu í lífinu, að geta helgað list- inni óskifta krafta. Hann er hið mesta prúðmenni og ern sem ung- ur væri. Lögberg færir honum innilegar árnaðaróskir á afmælis- daginn. DÓM SFORSETl KVONGAST » Þann 29. desember síðastliðinn, voru gefin samati i hjónaband Sir Gordon Hewart dómsforseti í hæstarétti Breta og ungfrú Jean Stewart, hjúkrunarkona. BrúÖgum- inn er 64 ára að aldri, en brúðurin stendur á þrtugu. Ekki varð hljóð- bært um hvað til stæði fyr en einni eða tveimur klukkustundum áður en hjónavígslan fór fram í Tattridgc kirkjunni í Hartfordshire. AFTURHALDSMENN SKERA UPP HERÖR Með tilliti til þess hve mjög fer nú að draga að sambandskosning- um, komu allmargir af forsprökkum afturhaldsflokksins til fundar við Hon. T. G. Murphy, innanríkisráð- gjafa á Fort Garry hótelinu hér í borginni. Voru þar mættir allflest- ir sambandsþingmenn flokksins héðan úr fylkinu, auk fylkisþing- manna og þeirra annara, er ant !áta sér um Bennett-stjórnina og lífdaga hennar. Mun nokkuð hafa verið rætt þar um undirbúning kosninga og fylgisöflun.. Dagblöð borgar- innar láta þess getið, að flestir fundarmenn hafi verið því mótfalln. ir, að til kosninga yrði gengið fyr en í fyrsta lagi í ágústmánuði næst- komandi. ISLENSK LISTSÝNING I HÖEN Á fullveldisdaginn 1. desember, var opnuð íslenzk listsýning að Charlottenborg i Höfn. Sýnendur eru þeir málararnir Þorvaldttr Skúlason og Jón Engilberts, og Sigurjón Ólafsson myndhöggvari. Stjórn Akademisins danska bauð þessum ungu listamönnum að halda þar sýningu þessa.—Mbl. 4. des. TUTTUGU ARA AFMÆI.I ÁriÖ 1914 var þjóðkirkjan' í Hafnarfirði bygð og vígð i desem- ber sama ár. Áður þurftu Hafnfirðingar að sækja kirkju að Görðum á Álfta- nesi, en það gátu þeir náttúrlega ekki sætt sig við, eftir að fólki f jölg- aði að nokkru ráði í Hafnarfirði. Minningarathöfnin hófst með messu í kirkjunni kl. 5 síðd. Séra Garðar Þorsteinsson prédikaði. Samsæti var haldið í Goodtemplara- húsinu um kvöldið og sátu það hóf hátt á annað hundrað manns, safn- aðarmenn og gestir þeirra. Meðal gestanna voru þeir dr. theol. Jón Helgason biskup og Bjarni Jónson dómkirkjuprestur. Mbl. 4. des. TEKJUHALLI Á BRETLANDI Símað er frá Lundúnum þann 1. þ. m., að skýrslur fjármálaráðu- nevtisins brezka við lok október- mánaðar síðastliðins, hafi borið með sér $550,000,000 tekjuhalla. En nú hefir fjármálaráðgjafi tilkynt, að í lok fjárhagsársins tnuni verða um þó nokkttrn tekjuafgang að ræða. Fjárhagsár Breta endar síðasta febrúar næstkomandi. FJÓRTÁN TEKNIR AF LÍFl Á mánudaginn þann 31. desem- ber síðastliðinn, voru fjórtán rúss- neskir commúnistar teknir af lífi í Leningrad eftir að hafa verið fundn- ir sekir í herrétti um það að hafa verið beinlínis og óbeinlínis valdir að morðinu á Sergel Kiroff, hátt- standandi embættismanni Soviet- stjórnarinnar og einka trúnaðar- nianni Stalins. ■ ÓLEYFILEGAR ÚTVARPS- STÖÐVAR í Memel-héraðinu í Lithauen hefir þessa dagana heyrst til tveggja óleyfilegra útvarpsstöðva, sem senda á sömu öldulengd og stððin i Kow- no, og eyðileggja útvarp frá henni á stóru svæði, enda er þvt lýst yfir i útsendingum stöðvatina, að þær séu beinlínis settar ttpp til þess að trufla fyrir Kowno. Útvarpsstjórn- in í Lithauen er að láta rannsakc málið, og þykir líklegt að önnur stöðin muni vera nálwgt höfninni í Memel, Truflunarstöðvar þessar senda báðar á þýzku, og kalla sig afkáralegum nöfnum. TJÓNIÐ I ÞINGEYJARSÝSLU í ofznðrinu 27. október Komnar eru til Júlíusar Havsteen sýslumanns matsgerðir yfir tjón það, sem varð á Þórshöfn, Kópa- skeri og á Tjörnesi í ofviðrinu og stórbriminu þ. 27. október. Á Þórshöfn er tjónið metið á kr. 22,940. Af því er tjón á fasteign- um metið á kr. 8,650. Þar skemd- ust meðal annars byggingar og fisk- hús. Tjón á bátum er metið á kr. 6,230, en tjón á salti og fiski kr. 8,060. Á Kópaskeri urðu skemdir á bryggju er metnar eru á kr. 3,500. En auk þess tók brim þar olíu og bensín fyrir nokkur þúsund krónur. Á jörðunum Núpaskötlu, Odds- stöðum og Rifi á Melrakkasléttu urðu skemdir á túnum og varplönd- um og á Skinnalóni tapaöist trillu- bátur. Á Tjörnesi mistu menn 7 báta. Er bátstapi á ísólfsstöðuin tilfinnanlegur. Þar fór trillubátur. Auk þess brotnaði fiskhús í Kerl- ingarvík, er Páll Kristjánsson á Húsavík átti.—Mbl. 2. des. EINRÆÐIJ BOLIVIU Dr. Salamanca, forseti Bolivíu hefir tekið í stnar hendur æðstu yf- irstjórn hermálanna í landinu. Sam- kvæmt síöustu fregnum er búist við að þjóðstjórn, með einræðisvaldi, verði komið þar á laggirnar, og hafi hún í hyggju að semja frið við Paraguay. Miklar kröfugöngur hafa undan- farið farið fram í landinu. Fregn- irnar unt ófarir þær, sem her Boli- vtu beið nýlega virðast nít vera orðnar á hvers manns vitorði í landinu, og hafa þær mjög stutt aö því, að vekja andúð meðal þjóðar- innar gegn áframhaldandi ófriði. Slys á Vesúvíus Þann 29. þ. m. varð járnbrautar- slys á Vesúviusfjalli, þar sem 12 manns létu lif sitt. MEN’S CLUB Á þriðjudagskvöldið þann 8. janúar, 1935, verður skemtifundur í Men’s Club í samkomusal Fyrstu lútersku kirkju. kl. 6.30. Ræðu- maður verður séra Jakob Jónsson. Mikiö verður þar og um íslenzka söngva, er ætlast er ti! að allir taki þátt í. Þetta verður alislenzkt skemtikvöld, og má því vafalaust búast við fjölmenni miklu. Framreidd verður máltíð á fundt þessum og verður sezt að borðum stundvíslega kl. 6.30.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.