Lögberg - 21.02.1935, Side 1
48. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN„ FIMTUDAGINN 21. FEBRÚAR 1935
NÚMER 8
BÝÐUR SIG FRAM 1
CIIURCHILL
Á framboðsfundi frjálslynda
flokksins, höldnum í bænum Pas,
þann 14. þessa mánaðar, var Hon.
Thomas H. Crerar útnefndur sem
þingmannsefni í Churchill kjördæmi
viS næstu sambandskosningar. Dr.
Daniel Baldwin frá Benito var einn-
ig í vali. Er kunnugt varð um ár-
slit aS lokinni talningu atkvæða, bar
Pr. Baldwin fram uppástungu þess
efnis að útnefning Mr. Crerars
skyldi viðtekin í einu hljóði og varS
það að ráði.
Mr. Crerar hefir alllengi verið við
opinber mál riðinn. Tók hann sæti
í bræðingsstjórn þeirri, er Sir Ro-
bert Borden stofnaði til árið 1917;
því næst tókst hann á hendur for-
ustu hins svonefnda framsóknar-
flokks, en dróg sig í hlé af stjórn-
málasviðinu árið 1925.
Er. Mr. King endurskipaði ráðu.
neyti sitt 1929, tókst Mr. Crerar á
hendur forustu járnbrautarmála-
ráðuneytisins, leitaði kosningar í
Brandon kjördæmi 1930 og beið þar
lægra hlut.
ÁTTATÍU' OG TVEGGJA
ARA
A föstudaginn þann 15. yfirstand-
andi mánaðar, átti Sir Rodmond
Roblin fyrrum stjórnarformaður
Manitobafylkis, áttatíu og tveggja
ára afmæli. Er hann fæddur i
Sophiasburg í Ontariofylki þann 15.
dag febrúarmánaðar árið 1853 : nýt-
ur liann enn ágætrar heilsu og gefur
sig driúgum r.ð viðskiftamálum. Sii
Rondmond átti í f jórðung alclar 'sæti
á fylkisþingi, en hefir verið búsett-
ur í Manitoba í frek fimtíu og tvö
Efnilegur vísmdamaður
IIAUPTMANN FUNDINN
SEKUR OG DÆMDUR
TIL LÍFLÁTS
Á miðvikudagskvöldið þann 13.
þessa mánaðar féll tjaldið við lok
síðásta þáttar í réttarhaldinu yfir
Bruno Richard Hauptmann, tré-
\ smiðnum þýzka, er sakaður var um
að hafa rænt syni þeirra Lindbergh’s
hjónanha fyrir því nær tveimur ár-
um og myrt hann. Var Hauptmann
fundinn sekur af kviðdómi og
dæmdur til aftöku þann 18. marz
næstkomandi. Réttarhaldið stóð
yfir í þrjátíu og tvo daga, og kostaði
sókn málsins New .Tersey ríki nokk-
uð yfir hálfa miljón dala. Verjend-
ur Hauptmanns hafa þegar hafist
handa í þá átt að áfrýja Iíflátsdóm.
'num.
FYRIRSPURN I
SAMBANDSÞINGI
Mr. E. J. Young, liberal þing-
maður fyrir Weyburn kjördæmið í
Saskatchewan, bar fram í vikunni,
sem leið, fyrirspurn í sambandsþing-
lnu um það, hvort nokkuð væri til i
þeim orðrómi, að sambandsstjórnin
hefði lagt fram fé til fylgisöflunar
lögskylduðu sölufeamlagi eggja og
•difugla; var fyrirspurninni beint til
landbúnaðarráðgjafans, Mr. Weir’s.
,rt'st ráðgjafanum fyrst í stað ekki
*eni Iéttast um að gefa ákveðið svar.
f'nna hafðist það þó upp úr honum
^anitoba hefði fengið $io,ocx>,
■ askatchewan $20.000 og Alberta
$20,000.
GLENBORO curling
flokkurinn gengur
BTGRANDI AF H6LMI
Svo fóru leikar, að í Curling sam-
epni þeirri, sem háð var hér í borg-
inm 1 sambandi við gestavikuna, að
0 ’ urinn frá Glenboro gekk sig^-
andi af hólmi í úrslita-kappleik á
laugardaginn var.
Jersey Archeological Society og
ýmsum fleiri fræða og vísindafé-
Iögum.—
Skapgerð dr. Helga er slík. að
vænta má mikils af honum, endist
honum heilsa og líf; auk farsælla
námshæfileika hefir hann þá festu
til brunns að beray er sigurvænleg
má teljast við vísindastörf, hverrar
tegundar sem eru. Vinir hans árna
honum glæsilegrar framtiðar og
fagna yfir sigurvinning hans.
HELGI JOHNSON, Ph.D.
S
Þessi ungi og gáfaði mentamaður,
sem hér verður stuttlega minst, er
sonur þeirra hjónanna Gísla prent-
smiðjustjóra Jónssonar frá Háreks-
stööum i Jökuldalsheiði og Guðrún-
ar H. Einnsdóttur frá Geirólfsstöð-
um í Skriðdal. Er Helgi fæddur á
Akureyri þann 6. dag febrúarmán-
aðar árið 1903.
Hugur Helga hneigðist snemma
til lærdóms; kom fram hjá honum
á ungum aldri óvenju næm íhyglis-
gáfa -til skilgreiningar því, er fyrir
augu og eyru bar. Var hann því
settur til menta þótt fremur væri
þröngt um fjárhag foreldranna.
Helgi innritaðist við háskóla Mani-
toba fylkis um haustið 1922, að
loknu undirbúningsnámi við Win-
nipeg'TJxfl'egiate Institute, og upp
frá þeim tima má með fullum rétti
segja að námSferill hans stefndi
frá einni sigurvinning til annarar.
Fræðigreinar þær, er Helgi lagði
stund á við háskólann voru einkum
og sér í lagi jarðfræði og efnafræði;
hlaut hann hin svonefndu Isbister
verðlaun og lauk háskólaprófi um
vorið 1926, með lofsamlegum vitnis-
burði; tók hann margvíslegan þátt í
félagslífi háskólastúdenta; var með-
al annars Science Faculty Editor að
stúdentablaðinu “Manitoban.”
Að loknu námi við háskóla Mani-
tobafylkis, hóf Helgi framhaldsnám
við háskólann í Toronto, er sæmt
hefir hann doktorsnafnbót fyrir
jarðfræðilegar rannsóknir; stundaði
hann þar nám um þriggja ára skeið
við hinn bezta orðstír; er doktors-
ritgerð hans um “The Stratigraphy
and Palaentology of the Cataract
Formation of Ontario.” Ritgerð
þessi er óprentuð enn, þó líkur séu
til að hún verði birt að nokkru leyti,
eða öllu, áður en langt um líður.
Meðan dr. Helgi dvaldi í Toronto,
gerðist hann félagi í Royal Canadian
Institute og the Canadian Institute
of Mining and Metallurgy. Um
haustið 1929 var Helgi valinn til
fvrirlestrahalda við Rutgers ríkis-
háskólann í New Jersey og kenslu
í jarðfræði. Að þremur árym liðn-
um var honum veitt prófessors-em-
bætti það í jarðfræði við þá rnenta-
stofnun. er hann nú gegnir.. Þó
Helgi sé enn ungur, hefir hann vak-
ið á sér víðtæka athygli fyrir vís-
indalegar ritgerðir sínar; svo sem
“Cretaceous Dinosaur Tracks in
New Jersey,” birt í “Ceramic Age”
1931; “Organic Structures in the
Neda Iron Ores.” Bull. G. S. A.
♦
1932 og “Palaeoecology of Some of
the Palozoic Iron Ores,” Bull. G.
S- A- 1933.
Dr. Ilelgi er meðlimur unt þessar
mundir í mörgum vísindafélögum,
svo sem: The American Association
of American Professors; The Pal-
eontological Society of America;
The Geological Society of America;
The Association for the Advance-
ment of Science; The American
Geographical Society; The New
STARFRÆKSLA VIÐ
GÓÐIJM ARANGRI
Samkvæmt skýrslu, er ráðgjafi
símamálanna, Mon. W. J. Major,
lagði fram í fylkisþinginu þann 15.
þessa mánaðar, nam hreinn ágóði af
starfrækslu símakerfis Manitoba-
fylkis á árinu sem leið $261,952;
hefir ágóðinn aukist um $73,378 frá
j því árið þar á undan.
ÞJÓÐHÖFÐINGI LÁTINN
Þann 13. þ. m., lézt í borginni
Bagdad, fyrrum konungur í Hedjaz,
Ali, 55 ára að aldri; var hann kon-
ungur í þessu litla Araba-riki aðeins
skamma hríð; hafði hann með hönd-
um herforustu gagnvart Tyrkjum í
heimsstyrjöldinni miklu frá 1914.
LÖG UM ÞINGFARARKAUP
Samkvæmt frumvarpi til laga, er
lagt hefir verið fram i fylkisþing-
inu i Saskatchewan, og alveg vafa-
laust nær fram að ganga, verður
þingfararkaup ákveðið $i,8oq í stað
eldri laga hér að lútandi, er ákváðu
þingmönnum $2,000 á ári.
ENGIN SULTARLAUN
Norman Sorpmerville, K.C., lög-
fræðilegur ráðunautur) Bennett-
stjórnarinnar, við konunglegu
Stevens-Kennedy rannsóknarnefnd-
ina í Ottawa,- hefir nú haft þann
starfa með höndum því nær í ár, ojf
fengið í kaup $150 á dag, auk út-
gjalda hans í þessu sambandi, er
greiðast eftir reikningi. Starfi Mr.
Sommerville er ólokið enn, og fær
hann því eitthvað yfir $25,000 fyr-
ir ómak sitt.
DREGIÐ ÚR ÚTGJÖLDUM
HÁSKÖLANS
*
Samkvæmt ársskýrslu háskóla-
ráðsins, er lögð var frarn í íylkis-
þinginu þann 13. þessa mánaðar,
i hafa útgjöld við starfrækslu Mani-
tobaháskólans á fjárhagsári því, er
endaði þann 30/ágúst X934, lækkað
um $169,338, borið saman við árið
á undan.
RANNSÓKN Á FRAM-
LEIDSLU KOSTNAÐR
Mr. Ásmundur Loptsson, þing-
maÖur í fylkisþinginu í Saskatche-
wan, fyrir Pheasant Hills kjördæm-
ið, hefir borið fram tillögu til þings-
ályktunar, er í sér felur áskorun til
fylkisstjórnarinnar um að rannsaka
með hverjum hætti helzt megi svo
draga úr framleiðslukostnaði bún-
aðarafurða, að bændur njóti sann-
gjarnar ,eftirtekjn af erfiði sínu.
AFGREITT TIL ÞRIÐJU
UMRÆÐU
Frumvarp sambandsstjórnar um
trygging gegn atvinnuleysi, var af-
greitt til þriðju umræðu í sambands-
þinginu í einu hljóði, síðastliðinn
mánudag.
ÚRSKURÐUR I IIÆZTA-
RÉTTI BANDARIKJANNA
Síðastliðinn mánudag kvað hæzti-
réttur Bandaríkjanna upp úrskurð
í sambandi við tryggingu í gulli, er
mjög gekk viðreisnarlöggjöf Roose-
velts forseta í vil. Féll úrskuröur-
inn á þá leið, að þeir aðiljar, er þætt-
ust eiga heimting á að fá vexti af
stjórnarveðbréfufh greidda x gulli,
yrði að sætta sig við greiðslu í seðl-
um, þó eigi væri virði nema freklega
sextiu cents dollarinn.
Skráning atvinnuleysingja í R.vík.
Síðastliðna þrjá daga hefir farið
fram skráning atvinnulausra manna
og kvenna hér i bænum. Hefir
skráningin farið fram í Goodtempl-
arahúsinu frá kl. 10—8 daglega.
Þegar skráningunni lauk í gær,
höfðu gefið sig frarn 695 atvinnu-
leysingjar, þar af 6 konur. Lang-
samlega flestir af þessum mönnum
áttu fyrir f jölskyldu að sjá, og voru
þó nokkuð margir, sem höfðu 8—10
manns í heimili.
Talið er að nxargir, einkum ein-
likvpir atvinnuleysingjar. hafi ekki
gefið sig- fram við skráningu: talið
það enga þýðingu hafa. Er at-
vinnuleysið tilfinnanlegt urn þessar
mundir.
Seinast þegar atvinnuleysingja-
skráning fór fram 1. nóv. f. á. voru
skráðir 719 atvinnúleysingjar urn
þetta leyti í fyrra, 1. febr., voru
skráðir 554 atvinnuleysingjar.
N. dagbl. 3. febr.i
UMMÆLI UM MISS RÓSU
HERMANNSSON
eftir Commander L. Jeffrey, nafn-
kendan listclómara:
“Sé yður ant um það, sem fagurt
er, þá blustið á Rósu Hermannsson
syngja íslenzka, norska og sænska
söngva; það er afar fágætt að heyra
þá svo vel sungna hér í álfu.
“Ei glóir æ á grænum lauki’’;
efni þessa garnla söngs er að alvit-
ur Drottinn gefur oss ekki alt, er
vér æskjum i einu. Við fáum sól-
skin og dögg—eða dögg án sólskins,
sólskin án daggar eða hvorugt, og alt
er það oss fyrir beztu. Þá var
norska lagið “Að færa heinx eldi-
viðinn og vatnið.” Það getur nú ver-
ið skemtilegt, ef kærastan er með.
Það voru óbrotnir Norðurlanda
þjóðsöngvar, ágætlega sungnir, og
vér erurn nógu gamaldags til að
hafa trú á þjóðareinkennum Norð-
urlandabúa, og oss langar til að
heyra Rósu, “íslqnzku sóleyjuna’’
syngja á ensku líka.”
Landsbankinn efndi í haust til
samkepni urn teikningar á væntan-
legri sambyggingu milli Ingólfs-
hvols og Landsbankahússins. Dóm-
nefndina skipuðu bankastjórarnir
Georg Ólafsson og L. Kaaber, Guð-
jón Samúelsson prófessor, Jón Hall-
dórsson skrifstofustjóri og Jón G.
Mariasson aðalbókari. Nefndinni
bárifst uppdrættir frá sex húsameist-
nrum. Þótti henni engin þeirra
hæfur til að fá 1. verðl., en veitti
hinsvtegar Gunnlaugi Halldórssyni
2. verðlaun, 500 kr. og 200 kr. að
auki„ Sigurði Guðmundssyni 2. verð-
laun, 500 kr., og Þorleifi Eyjólfs-
syni 300 kr. fyrir tillöguuppdrætti
sína.
Jón Júlíus
Fæddur 19. júlí 1857 — Dáinn 9. sept. 1933
Nú fækkar ótt hið frónska lið,
sem fyrst liér lagði braut,
um nýrrar álfu sóknar svið
með segulstál í þraut'.
Ein þessum ^terka stofni frá
er stefnt þeiim unga lýð,
að hef;ja mark af manndóms þrá
0g mátt við dagsins stríð.
Eg mætti þér um morgunstund
á minni æfilleiÖ, .
með frjálsa, glaða ljúfa lund,
er léttir dagsins skeið;
( og síðan löngum sá eg þig
með sama hlýju brag,
og liðin atvik minna mig
á margnn sólskins dag.
Þó skorti fallvalt auÖsins afl
þú áttir göfga lund,
0g lékst með gleði lífsins tafl
um lúða æfistund.
Og þín var ætíð ylrík hönd
með andans hvöt og þrá
að verma mæddra munar lönd
og meinum bægja frá.
Haf þökk frá mér og mörgum þeim,
sem með þér gengu braut.
Um kvöld er sælt að halda heim
frá heimsins glaum og þraut.
Hjá ástvinunum mæt og mest
þín minning lifir heið,
er þína kosti þektu bezt
á þinni förnu leið.
M. Markússon.
KONUR TEKNAR AF LIFI
Tvær konxir vorii hálshöggnar í
Berlín siðastliðinn þriðjudagsmorg-
un, eftir að hafa verið fundnar sek-
ar um að hafa ljóstað upp leyndar-
málum í sambandi við hervarnir
þjóðverja. Var önnur þeirra baró-
nessa Benita von Berg, háttstand-
andi hefðarfrú í samfélagslífi Ber-
línar. Var konum þessum fundið
það til saka, að þær heföu veitt
Capt. George von Snosowsky, pólsk-
um riddaraliðsforingja ýmsar upp-
lýsingar viðvík.iandi hernaðarráð-
stöfunum og viðbiinaði þýzku þjóð-
arinnar.
Draugurf ?) í Skagafirði
Fvrri hluta þessarar viku hafa
staðið yfir réttarhöld í Skagafirði út
af fáhevrðum atbtirði, og hefir
sýslumaður látið f réttaritara * út-
varpsins í té þá frásögn, sem hér
fer á eftir:
Á Grófargili í Seiluhreppi búa
ung hjói'P^-konan 22 ára—með barn
sitt, missirisgamalt. Á miðjum
engjaslætti, þegar hjónin voru á
engjum, hafði dag einn verið farið
í bæinn og borið út ýmislegt dót, en
þessu var þá enginn meiri gaumur
gefinn. Svo þegar haustaði að, og
dimma tók, fór það að vilja til, þeg-
ar bóndi var ekki heima, að kynleg-
ir gestir komu og börðu að dyrum
—en enginn sást er út var komið.
Bærinn var barinn utan, og lagst
var á glugga með orgi og óhljóðum,
einkum þegar myrkt var, á kvöldi
eða *nóttu. Stundum var farið í
stofu í frambænum, brotnir þar
gluggar, og öllu 'umtumað. Þessu
sfotaði nokkru fyrir jól.
Annan janúar, kl. 6 að kvöldi. var
bóndi í fjárhúsi, en konan fór í f jós,
og er innangengt i það úr bænum.
Skildi hún eftir barnið, sofandi í
rúmi í baðstofu. Eftir skamma
stund hljóíSar barnið ákaflega, og
rýkur konan inn. Er þá barnið
hprfið úr rúminu, og brotin rúða á
baðstofunni en barnið fann konan
undir borði, og var enginn áverki á
því.
Síðasta heimsókn af þessu tagi
var kl. 7 að morgni 19. janúar. Þá
var piltur, bróðir bóndans, í fjósi.
Er þá kastað grjóti inn um fjós-
gluggann. í þessu. kemur konan út
á hlað, og sér mann hlaupa i áttina
til gilsins, sem er í túninu, og bær-
inn dregur nafn af. Ekki þekti
nún manninn, enda var ekki orðið
bjart af degi.
STJÓRNA R-VINS4LAN
Samkvæmt skýrslu, er Hon. W. J.
Major lagði fram í fylkisþinginu á
föstudaginn var, hafði umsetning
stjórnarvínsölunnar í Manitoba á
síðastliðnu fjárhagsári, numið $4,-
210,071. Hreinn ágóði á árinu nam
$992,068,29. •
Úr borg og bygð
ÞÖKK TIL VINA MINNA
Með línum þessum votta eg fyrir
hönd mína og barna minna, hjart-
anlegar alúðar þakkir þeim hinum
mörgu vinum, f jær og nær, er auð-
sýndu mér og börnunum ógleyman-
lega samúð við sviplegt fráfall minn.
ar elskuðu eiginkonu og móður
þeirra, með fögrum blómsveigum og
kærleiksríkri hluttekning á einn og
annan hátt. Guð launi þeim öllum
á þann hátt, er alvizku hans bezt
þóknast.
Staddur í Winnipeg 20. febr. 1935.
F. Erlindson.
Dr. A. B. Ingimundson, tannlækn-
ir verður að hitta í Riverton, Man.,
þriðjudaginn 26. febrúar n.k.
MEN’S CLUB
Karlaklúbbsfundurinn i Fyrstu
lútersku kirkju síðastliðið þriðju-
dagskvöld var ágætlega sóttur og
hinn ánægjulegasti í hvívetna. Er-
^ indi það um Pólland og sögu þess,
j er Mr. Dubiensky flutti, var fróð-
1 legt og skipulegt. Mr. Pétur
Magnús skemti með söng. Dr. A.
Blöndal skipaði forsæti á fundin-
um.
Mr. Finnbogi Erlindson, kaup-
rnaður frá Cormorant Lake, Man.,
dvelúr í borginni um þessar mundir,
ásamt börnum sínum.
Sýslumaður hefir þegar yfirheyrt
í rétti 18 menn af næstu bæjum, og
nokkra fleiri, en ekkert hefir orðið
vxppvíst ennþá. —N. dagbl.
*