Lögberg


Lögberg - 21.02.1935, Qupperneq 1

Lögberg - 21.02.1935, Qupperneq 1
48. ARGANGUR WINNIPEG, MAN„ FIMTUDAGINN 21. FEBRÚAR 1935 NÚMER 8 BÝÐUR SIG FRAM 1 CIIURCHILL Á framboðsfundi frjálslynda flokksins, höldnum í bænum Pas, þann 14. þessa mánaðar, var Hon. Thomas H. Crerar útnefndur sem þingmannsefni í Churchill kjördæmi viS næstu sambandskosningar. Dr. Daniel Baldwin frá Benito var einn- ig í vali. Er kunnugt varð um ár- slit aS lokinni talningu atkvæða, bar Pr. Baldwin fram uppástungu þess efnis að útnefning Mr. Crerars skyldi viðtekin í einu hljóði og varS það að ráði. Mr. Crerar hefir alllengi verið við opinber mál riðinn. Tók hann sæti í bræðingsstjórn þeirri, er Sir Ro- bert Borden stofnaði til árið 1917; því næst tókst hann á hendur for- ustu hins svonefnda framsóknar- flokks, en dróg sig í hlé af stjórn- málasviðinu árið 1925. Er. Mr. King endurskipaði ráðu. neyti sitt 1929, tókst Mr. Crerar á hendur forustu járnbrautarmála- ráðuneytisins, leitaði kosningar í Brandon kjördæmi 1930 og beið þar lægra hlut. ÁTTATÍU' OG TVEGGJA ARA A föstudaginn þann 15. yfirstand- andi mánaðar, átti Sir Rodmond Roblin fyrrum stjórnarformaður Manitobafylkis, áttatíu og tveggja ára afmæli. Er hann fæddur i Sophiasburg í Ontariofylki þann 15. dag febrúarmánaðar árið 1853 : nýt- ur liann enn ágætrar heilsu og gefur sig driúgum r.ð viðskiftamálum. Sii Rondmond átti í f jórðung alclar 'sæti á fylkisþingi, en hefir verið búsett- ur í Manitoba í frek fimtíu og tvö Efnilegur vísmdamaður IIAUPTMANN FUNDINN SEKUR OG DÆMDUR TIL LÍFLÁTS Á miðvikudagskvöldið þann 13. þessa mánaðar féll tjaldið við lok síðásta þáttar í réttarhaldinu yfir Bruno Richard Hauptmann, tré- \ smiðnum þýzka, er sakaður var um að hafa rænt syni þeirra Lindbergh’s hjónanha fyrir því nær tveimur ár- um og myrt hann. Var Hauptmann fundinn sekur af kviðdómi og dæmdur til aftöku þann 18. marz næstkomandi. Réttarhaldið stóð yfir í þrjátíu og tvo daga, og kostaði sókn málsins New .Tersey ríki nokk- uð yfir hálfa miljón dala. Verjend- ur Hauptmanns hafa þegar hafist handa í þá átt að áfrýja Iíflátsdóm. 'num. FYRIRSPURN I SAMBANDSÞINGI Mr. E. J. Young, liberal þing- maður fyrir Weyburn kjördæmið í Saskatchewan, bar fram í vikunni, sem leið, fyrirspurn í sambandsþing- lnu um það, hvort nokkuð væri til i þeim orðrómi, að sambandsstjórnin hefði lagt fram fé til fylgisöflunar lögskylduðu sölufeamlagi eggja og •difugla; var fyrirspurninni beint til landbúnaðarráðgjafans, Mr. Weir’s. ,rt'st ráðgjafanum fyrst í stað ekki *eni Iéttast um að gefa ákveðið svar. f'nna hafðist það þó upp úr honum ^anitoba hefði fengið $io,ocx>, ■ askatchewan $20.000 og Alberta $20,000. GLENBORO curling flokkurinn gengur BTGRANDI AF H6LMI Svo fóru leikar, að í Curling sam- epni þeirri, sem háð var hér í borg- inm 1 sambandi við gestavikuna, að 0 ’ urinn frá Glenboro gekk sig^- andi af hólmi í úrslita-kappleik á laugardaginn var. Jersey Archeological Society og ýmsum fleiri fræða og vísindafé- Iögum.— Skapgerð dr. Helga er slík. að vænta má mikils af honum, endist honum heilsa og líf; auk farsælla námshæfileika hefir hann þá festu til brunns að beray er sigurvænleg má teljast við vísindastörf, hverrar tegundar sem eru. Vinir hans árna honum glæsilegrar framtiðar og fagna yfir sigurvinning hans. HELGI JOHNSON, Ph.D. S Þessi ungi og gáfaði mentamaður, sem hér verður stuttlega minst, er sonur þeirra hjónanna Gísla prent- smiðjustjóra Jónssonar frá Háreks- stööum i Jökuldalsheiði og Guðrún- ar H. Einnsdóttur frá Geirólfsstöð- um í Skriðdal. Er Helgi fæddur á Akureyri þann 6. dag febrúarmán- aðar árið 1903. Hugur Helga hneigðist snemma til lærdóms; kom fram hjá honum á ungum aldri óvenju næm íhyglis- gáfa -til skilgreiningar því, er fyrir augu og eyru bar. Var hann því settur til menta þótt fremur væri þröngt um fjárhag foreldranna. Helgi innritaðist við háskóla Mani- toba fylkis um haustið 1922, að loknu undirbúningsnámi við Win- nipeg'TJxfl'egiate Institute, og upp frá þeim tima má með fullum rétti segja að námSferill hans stefndi frá einni sigurvinning til annarar. Fræðigreinar þær, er Helgi lagði stund á við háskólann voru einkum og sér í lagi jarðfræði og efnafræði; hlaut hann hin svonefndu Isbister verðlaun og lauk háskólaprófi um vorið 1926, með lofsamlegum vitnis- burði; tók hann margvíslegan þátt í félagslífi háskólastúdenta; var með- al annars Science Faculty Editor að stúdentablaðinu “Manitoban.” Að loknu námi við háskóla Mani- tobafylkis, hóf Helgi framhaldsnám við háskólann í Toronto, er sæmt hefir hann doktorsnafnbót fyrir jarðfræðilegar rannsóknir; stundaði hann þar nám um þriggja ára skeið við hinn bezta orðstír; er doktors- ritgerð hans um “The Stratigraphy and Palaentology of the Cataract Formation of Ontario.” Ritgerð þessi er óprentuð enn, þó líkur séu til að hún verði birt að nokkru leyti, eða öllu, áður en langt um líður. Meðan dr. Helgi dvaldi í Toronto, gerðist hann félagi í Royal Canadian Institute og the Canadian Institute of Mining and Metallurgy. Um haustið 1929 var Helgi valinn til fvrirlestrahalda við Rutgers ríkis- háskólann í New Jersey og kenslu í jarðfræði. Að þremur árym liðn- um var honum veitt prófessors-em- bætti það í jarðfræði við þá rnenta- stofnun. er hann nú gegnir.. Þó Helgi sé enn ungur, hefir hann vak- ið á sér víðtæka athygli fyrir vís- indalegar ritgerðir sínar; svo sem “Cretaceous Dinosaur Tracks in New Jersey,” birt í “Ceramic Age” 1931; “Organic Structures in the Neda Iron Ores.” Bull. G. S. A. ♦ 1932 og “Palaeoecology of Some of the Palozoic Iron Ores,” Bull. G. S- A- 1933. Dr. Ilelgi er meðlimur unt þessar mundir í mörgum vísindafélögum, svo sem: The American Association of American Professors; The Pal- eontological Society of America; The Geological Society of America; The Association for the Advance- ment of Science; The American Geographical Society; The New STARFRÆKSLA VIÐ GÓÐIJM ARANGRI Samkvæmt skýrslu, er ráðgjafi símamálanna, Mon. W. J. Major, lagði fram í fylkisþinginu þann 15. þessa mánaðar, nam hreinn ágóði af starfrækslu símakerfis Manitoba- fylkis á árinu sem leið $261,952; hefir ágóðinn aukist um $73,378 frá j því árið þar á undan. ÞJÓÐHÖFÐINGI LÁTINN Þann 13. þ. m., lézt í borginni Bagdad, fyrrum konungur í Hedjaz, Ali, 55 ára að aldri; var hann kon- ungur í þessu litla Araba-riki aðeins skamma hríð; hafði hann með hönd- um herforustu gagnvart Tyrkjum í heimsstyrjöldinni miklu frá 1914. LÖG UM ÞINGFARARKAUP Samkvæmt frumvarpi til laga, er lagt hefir verið fram i fylkisþing- inu i Saskatchewan, og alveg vafa- laust nær fram að ganga, verður þingfararkaup ákveðið $i,8oq í stað eldri laga hér að lútandi, er ákváðu þingmönnum $2,000 á ári. ENGIN SULTARLAUN Norman Sorpmerville, K.C., lög- fræðilegur ráðunautur) Bennett- stjórnarinnar, við konunglegu Stevens-Kennedy rannsóknarnefnd- ina í Ottawa,- hefir nú haft þann starfa með höndum því nær í ár, ojf fengið í kaup $150 á dag, auk út- gjalda hans í þessu sambandi, er greiðast eftir reikningi. Starfi Mr. Sommerville er ólokið enn, og fær hann því eitthvað yfir $25,000 fyr- ir ómak sitt. DREGIÐ ÚR ÚTGJÖLDUM HÁSKÖLANS * Samkvæmt ársskýrslu háskóla- ráðsins, er lögð var frarn í íylkis- þinginu þann 13. þessa mánaðar, i hafa útgjöld við starfrækslu Mani- tobaháskólans á fjárhagsári því, er endaði þann 30/ágúst X934, lækkað um $169,338, borið saman við árið á undan. RANNSÓKN Á FRAM- LEIDSLU KOSTNAÐR Mr. Ásmundur Loptsson, þing- maÖur í fylkisþinginu í Saskatche- wan, fyrir Pheasant Hills kjördæm- ið, hefir borið fram tillögu til þings- ályktunar, er í sér felur áskorun til fylkisstjórnarinnar um að rannsaka með hverjum hætti helzt megi svo draga úr framleiðslukostnaði bún- aðarafurða, að bændur njóti sann- gjarnar ,eftirtekjn af erfiði sínu. AFGREITT TIL ÞRIÐJU UMRÆÐU Frumvarp sambandsstjórnar um trygging gegn atvinnuleysi, var af- greitt til þriðju umræðu í sambands- þinginu í einu hljóði, síðastliðinn mánudag. ÚRSKURÐUR I IIÆZTA- RÉTTI BANDARIKJANNA Síðastliðinn mánudag kvað hæzti- réttur Bandaríkjanna upp úrskurð í sambandi við tryggingu í gulli, er mjög gekk viðreisnarlöggjöf Roose- velts forseta í vil. Féll úrskuröur- inn á þá leið, að þeir aðiljar, er þætt- ust eiga heimting á að fá vexti af stjórnarveðbréfufh greidda x gulli, yrði að sætta sig við greiðslu í seðl- um, þó eigi væri virði nema freklega sextiu cents dollarinn. Skráning atvinnuleysingja í R.vík. Síðastliðna þrjá daga hefir farið fram skráning atvinnulausra manna og kvenna hér i bænum. Hefir skráningin farið fram í Goodtempl- arahúsinu frá kl. 10—8 daglega. Þegar skráningunni lauk í gær, höfðu gefið sig frarn 695 atvinnu- leysingjar, þar af 6 konur. Lang- samlega flestir af þessum mönnum áttu fyrir f jölskyldu að sjá, og voru þó nokkuð margir, sem höfðu 8—10 manns í heimili. Talið er að nxargir, einkum ein- likvpir atvinnuleysingjar. hafi ekki gefið sig- fram við skráningu: talið það enga þýðingu hafa. Er at- vinnuleysið tilfinnanlegt urn þessar mundir. Seinast þegar atvinnuleysingja- skráning fór fram 1. nóv. f. á. voru skráðir 719 atvinnúleysingjar urn þetta leyti í fyrra, 1. febr., voru skráðir 554 atvinnuleysingjar. N. dagbl. 3. febr.i UMMÆLI UM MISS RÓSU HERMANNSSON eftir Commander L. Jeffrey, nafn- kendan listclómara: “Sé yður ant um það, sem fagurt er, þá blustið á Rósu Hermannsson syngja íslenzka, norska og sænska söngva; það er afar fágætt að heyra þá svo vel sungna hér í álfu. “Ei glóir æ á grænum lauki’’; efni þessa garnla söngs er að alvit- ur Drottinn gefur oss ekki alt, er vér æskjum i einu. Við fáum sól- skin og dögg—eða dögg án sólskins, sólskin án daggar eða hvorugt, og alt er það oss fyrir beztu. Þá var norska lagið “Að færa heinx eldi- viðinn og vatnið.” Það getur nú ver- ið skemtilegt, ef kærastan er með. Það voru óbrotnir Norðurlanda þjóðsöngvar, ágætlega sungnir, og vér erurn nógu gamaldags til að hafa trú á þjóðareinkennum Norð- urlandabúa, og oss langar til að heyra Rósu, “íslqnzku sóleyjuna’’ syngja á ensku líka.” Landsbankinn efndi í haust til samkepni urn teikningar á væntan- legri sambyggingu milli Ingólfs- hvols og Landsbankahússins. Dóm- nefndina skipuðu bankastjórarnir Georg Ólafsson og L. Kaaber, Guð- jón Samúelsson prófessor, Jón Hall- dórsson skrifstofustjóri og Jón G. Mariasson aðalbókari. Nefndinni bárifst uppdrættir frá sex húsameist- nrum. Þótti henni engin þeirra hæfur til að fá 1. verðl., en veitti hinsvtegar Gunnlaugi Halldórssyni 2. verðlaun, 500 kr. og 200 kr. að auki„ Sigurði Guðmundssyni 2. verð- laun, 500 kr., og Þorleifi Eyjólfs- syni 300 kr. fyrir tillöguuppdrætti sína. Jón Júlíus Fæddur 19. júlí 1857 — Dáinn 9. sept. 1933 Nú fækkar ótt hið frónska lið, sem fyrst liér lagði braut, um nýrrar álfu sóknar svið með segulstál í þraut'. Ein þessum ^terka stofni frá er stefnt þeiim unga lýð, að hef;ja mark af manndóms þrá 0g mátt við dagsins stríð. Eg mætti þér um morgunstund á minni æfilleiÖ, . með frjálsa, glaða ljúfa lund, er léttir dagsins skeið; ( og síðan löngum sá eg þig með sama hlýju brag, og liðin atvik minna mig á margnn sólskins dag. Þó skorti fallvalt auÖsins afl þú áttir göfga lund, 0g lékst með gleði lífsins tafl um lúða æfistund. Og þín var ætíð ylrík hönd með andans hvöt og þrá að verma mæddra munar lönd og meinum bægja frá. Haf þökk frá mér og mörgum þeim, sem með þér gengu braut. Um kvöld er sælt að halda heim frá heimsins glaum og þraut. Hjá ástvinunum mæt og mest þín minning lifir heið, er þína kosti þektu bezt á þinni förnu leið. M. Markússon. KONUR TEKNAR AF LIFI Tvær konxir vorii hálshöggnar í Berlín siðastliðinn þriðjudagsmorg- un, eftir að hafa verið fundnar sek- ar um að hafa ljóstað upp leyndar- málum í sambandi við hervarnir þjóðverja. Var önnur þeirra baró- nessa Benita von Berg, háttstand- andi hefðarfrú í samfélagslífi Ber- línar. Var konum þessum fundið það til saka, að þær heföu veitt Capt. George von Snosowsky, pólsk- um riddaraliðsforingja ýmsar upp- lýsingar viðvík.iandi hernaðarráð- stöfunum og viðbiinaði þýzku þjóð- arinnar. Draugurf ?) í Skagafirði Fvrri hluta þessarar viku hafa staðið yfir réttarhöld í Skagafirði út af fáhevrðum atbtirði, og hefir sýslumaður látið f réttaritara * út- varpsins í té þá frásögn, sem hér fer á eftir: Á Grófargili í Seiluhreppi búa ung hjói'P^-konan 22 ára—með barn sitt, missirisgamalt. Á miðjum engjaslætti, þegar hjónin voru á engjum, hafði dag einn verið farið í bæinn og borið út ýmislegt dót, en þessu var þá enginn meiri gaumur gefinn. Svo þegar haustaði að, og dimma tók, fór það að vilja til, þeg- ar bóndi var ekki heima, að kynleg- ir gestir komu og börðu að dyrum —en enginn sást er út var komið. Bærinn var barinn utan, og lagst var á glugga með orgi og óhljóðum, einkum þegar myrkt var, á kvöldi eða *nóttu. Stundum var farið í stofu í frambænum, brotnir þar gluggar, og öllu 'umtumað. Þessu sfotaði nokkru fyrir jól. Annan janúar, kl. 6 að kvöldi. var bóndi í fjárhúsi, en konan fór í f jós, og er innangengt i það úr bænum. Skildi hún eftir barnið, sofandi í rúmi í baðstofu. Eftir skamma stund hljóíSar barnið ákaflega, og rýkur konan inn. Er þá barnið hprfið úr rúminu, og brotin rúða á baðstofunni en barnið fann konan undir borði, og var enginn áverki á því. Síðasta heimsókn af þessu tagi var kl. 7 að morgni 19. janúar. Þá var piltur, bróðir bóndans, í fjósi. Er þá kastað grjóti inn um fjós- gluggann. í þessu. kemur konan út á hlað, og sér mann hlaupa i áttina til gilsins, sem er í túninu, og bær- inn dregur nafn af. Ekki þekti nún manninn, enda var ekki orðið bjart af degi. STJÓRNA R-VINS4LAN Samkvæmt skýrslu, er Hon. W. J. Major lagði fram í fylkisþinginu á föstudaginn var, hafði umsetning stjórnarvínsölunnar í Manitoba á síðastliðnu fjárhagsári, numið $4,- 210,071. Hreinn ágóði á árinu nam $992,068,29. • Úr borg og bygð ÞÖKK TIL VINA MINNA Með línum þessum votta eg fyrir hönd mína og barna minna, hjart- anlegar alúðar þakkir þeim hinum mörgu vinum, f jær og nær, er auð- sýndu mér og börnunum ógleyman- lega samúð við sviplegt fráfall minn. ar elskuðu eiginkonu og móður þeirra, með fögrum blómsveigum og kærleiksríkri hluttekning á einn og annan hátt. Guð launi þeim öllum á þann hátt, er alvizku hans bezt þóknast. Staddur í Winnipeg 20. febr. 1935. F. Erlindson. Dr. A. B. Ingimundson, tannlækn- ir verður að hitta í Riverton, Man., þriðjudaginn 26. febrúar n.k. MEN’S CLUB Karlaklúbbsfundurinn i Fyrstu lútersku kirkju síðastliðið þriðju- dagskvöld var ágætlega sóttur og hinn ánægjulegasti í hvívetna. Er- ^ indi það um Pólland og sögu þess, j er Mr. Dubiensky flutti, var fróð- 1 legt og skipulegt. Mr. Pétur Magnús skemti með söng. Dr. A. Blöndal skipaði forsæti á fundin- um. Mr. Finnbogi Erlindson, kaup- rnaður frá Cormorant Lake, Man., dvelúr í borginni um þessar mundir, ásamt börnum sínum. Sýslumaður hefir þegar yfirheyrt í rétti 18 menn af næstu bæjum, og nokkra fleiri, en ekkert hefir orðið vxppvíst ennþá. —N. dagbl. *

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.