Lögberg - 21.02.1935, Page 2
9
LÖGBERG, FIMTUDAGINN ■ 21. FEBRÚAR 1935.
Athugasemd
ÞaÖ sætir furSu hversu spiritista
hreyfingin er orðin róttæk heima á
íslandi, og hvað menn, í skjóli trú-
arinnar, eru farnir aÖ slaka á rann-
sóknum, þegar um bot5 eða skeyti
frá öðrum heimi er aS ræÖa, eÖa svo
virÖist greinin “Agnes og Friðrik”
benda á, sem kom út í Lögbergi io.
jan. þ. á.
Þetta vekur mér eftirtekt frekar
fyrir þaÖ, að það er á vitund allra
manna, þeirra, sem fjallað hafa að
marki um þessi efni, að þrá-endur-
tekin reynsla hefir fengist fyrir því
hve miklum mistökum þessi sam-
bandsskeyti eru undirorpin, og hins
GEFINS
Blóma og matjurta frœ
ÚTVEGIÐ EINN NÝJAN KAUPANDA AÐ BLAÐ-
INU, EÐA BORGIÐ YÐAR EIGIÐ ÁSKRIFTAR-
GJALD FYRIRFRAM.
Frœið er nákvœmlega rannsákað og ábyrgst að öllu leyti
TAKIÐ ÞESSU KOSTABOÐI!
Hver gamall kaupandi, sem borgar blaðið fyrirfram, $3.00 áskrift-
argjald til 1. janúar, 1936, fær að velja 2 söfnin af þremur númerum,
1., 2. og 3 (I hverju safni eru 6tal tegundir af fræi eins og augíýsingin
ber með sér).
Hver, serti sendir tvö endurnýjuð flskriftargjöld, $6.00 borgaða
fyrirfram, getur valið tvö söfnin af þremur, nr. 1., 2, og 3, og fær nr. 4
þar að auki.
Hver, sem útvegar einn nýjan kaupanda og sendir áskriftargjald
hans, $3.00, fær að velja tvö söfnin úr nr. 1., 2. og 3., og fær nr. 4 þar
að auki. Hinn nýi kaupandi fær einnig að velja tvö söfnin nr. 1., 2. og
3., og fær nr. 4. þar að auki.
Allir pakkar sendir möttakanda að kostnaðarlausu.
No. 1 COLLECTION—Vegetables, 15 Packets
BEETS, Detroit I>ark Hed. The best all round Beet. Sufficient
seed for 20 feet of row.
CABBAGE, Enkliuizen. Good all round variety. Packet will grow
1,000 lbs. of cabbage.
CAB.KOTS, Haif Ixmg Chantenay. The best all round Carrot.
Enough seed for 40 to 50 feet of row.
CUCl'MBER, Early Forlune. Pickles, sweet or sour, add zest to
any meal. This packet will sow 10 to 12 hills.
IiETTl'CE. Grantl Rapids. Loose Leaf varíety. Cool, crisp, green
lettuce. This packet will sow 20 to 25 feet of row.
LETTECE, Hanson, Head. Ready after the Leaf Lettuce.
OXIOV, Yellow Globc Danvers. A splendid winter keeper.
OXIOX. Wliite I*ortngaI. A popular white onion for cooking or
pickles. Packet will sow 15 to 20 feet of drill.
PAKSNTP, Ilalf Ixing Guernsey. Sufficient to sow 40 to 50 feet of
drill.
PIJMPKIX, Sugar. Packet will sow 10 to 15 hills.
KADISH, Frcnch Breakfast. Cool, crisp, quick-growing variety.
This packet will sow 25 to 30 feet of drill.
TOMATO, Earliana. The standard early variety. This packet will
produce 7 5 to 100 plants.
TERXIP, VVhite Sttmmer Tahle. Early, quick-growing. Packet
will sow 25 to 30 feet of drill.
FLOWER GARDEX, Surjiri.se Flower Mixture. Easily grown
annual flowers blended for a succession of bloom.
SPAGHET'rt, Malabar Melon. or Angel’s Hair. Boil and cut off the
top and the edible contents resemble spaghetti.
No. 2 COLLECTION
SPENCER SWEET PEA COLLECTION
8 — REGELAR FELL SIZE PACKETS — 8
AVALAXCIIE, Clear White. AESTE.V FREDERICK,
WHAT JOY, Cream. Lavender.
ROSIE, Deep Pínk * tvt
BARBARA, Salmon. WARRIOR, Maroon.
CHARITY", Crimeon. AMETHYST, Blue.
No. 3 COLLECTION—Flowers, 15 Packets
EDGING BORDER MIXTERE. MATIIIOIjA. Evening scented
ASTERS, Queen of the Market, stocks.
the earliest bloomers. im vnvrm-ii TI, „ . , .
BACHELOR’S BETTON. Many 1 balanced
_ , mixtured of the old favorite.
new shades.
CALENDELA. New Art Shades. NASTERTTEM. Dwarf Tom
CALIFORNIA POPPY. New Thumb. You can never have
Prize Hybrids. to° many Nasturtiums.
CLARKIA. Novelty Mixture. PETETNIA. Chpice Mixed Hy-
CLIMBERS. ^Flowering climb- brids.
ing vines rfíixed. POPPY. Shirley. Delicate New
COSMOS. New Early Crowned Art ghadeg.
and Crested.
EVERLASTINGS. Newest shades ZINNIA. Giant Dahlia Flowered.
mixed. Newest Shades. f
No. 4—ROOT CROP COLLECTION
Note The Ten Big Oversize Packets
BEETS, Half Iiong Blood (Large PARSNIPS. Early Short Round
Packet) (Large Packet)
CABBAGE, Enkhuizen (Large RADISH, ... French ... Breakfast
Packet) (Large Packet)
CARROT. Chantenay Half Long TIRNIP Purple Top Strap
(Laree Packet) Tjeaf' (LarRe Packet)- The
early white summer table
ONION, Yellow Globe Danvers, turnip.
(Large Packet) TERNIP, Swede Canadian Gem
LETTUCE, Grand Rapids. This (Large Packet)
packet will sow 20 to 25 feet ONION, White Pieklink (Large
of row. Packet)
Sendið áskriftargjald yðar í dag
(Notið þennan seðil)
To THE COLUlilBIA PRESS, LIMITED, Winnipeg, Man.
Sendi hér með $.........sem ( ) ára áskriftar-
gjald fyrir “Lögberg.” Sendið póst frítt söfnin Nos.:
Nafn .......................................'..........
Heimilisfang ..........................................
Fylki ..................................................
vegar skylda hvers manns, sem ann
þessum málum, að fara ekki of
djarflega, því málefninu getur orð-
ið þaö meiri skaði en gróði bíði það
hnekki fyrir vöntun á vitlegri rann-
sókn, og trúartraustið eitt látið ráða.
í greininni er sagt að skeytið
mælti svo fyrir, að herra yfirréttar-
dómari Páll Einarsson skyldi kvadd-
ur til ráða, og verður ekki annars
vart en hann hafi lagt í byrjun svo
gagngerða trú á söguna, að•rann-
sókn öll væri þýðingarlaus. Þetta
atriði út af fyrir sig er eftirtekta-
vert. Vegna afstöðu hans í mann-
félaginu, hefir hann vafalaust feng-
ið reynslu fyrir því hversu rann-
sóknir í málum eru þarfar, og
margt komið í ljós með þeim, sem
annars hefði verið dulið.
Eða að engum þótti ómaksins vert
að rannsaka það sem prófgengt var,
áður lagt var upp í norðurferðina.
Til dæmis mátti prófa hvað bækur
sögðu um aftöku þeirra Friðriks og
Agnesar og gröfina. Herra Hofdal
kveðst þó lita í sögu Natans og
Skálda-Rósu eftir Brynjólf frá
Minna Núpi, en ekki finna þær
upplýsingar er hann leitaði að, svo
hann verði að fara eftir leiðsögn
Agnesar. Hann virðist ekki vita
að fleiri menn rituðu um það efni en
Br., svo sem Gísli Konráðsson í
Natans sögu og Espólín í Árbókun-
um. Honum einnig, að ætla má,
verið ókunnugt 'um að saga Natans
eftir Br. er afar óábyggileg. Ekkert
er rannsakað hvort þessi “gamli
Magnús” er til á Sveinsstöðum, eða
höfðahvarfið oþ höfðaflutnings
sagan, sem ekki var þýðingarlaust;
raunar var ekki hægt að rannsaka
fyrirfram hvar höfuðin voru niður-
komin, en hitt mátti finna í kirkju-
bókum hvort þessi “gæðakonari
góða” Þingeyrar prestskonan var
til, og jafnvel hvort líkur voru fyrir
að hún hafi haft ráð á sendimanni
um nótt að koma fyrir höfðunum, |
og frá Þingeyrum og fram að gröf- '
inni mun sem næst 5)4 kílómeter.
Þetta alt, ef vel spilaðist úr, var
ekki smáræðis trygging fyrir að
annað sannaðist, jafnskjótt og verk-
ið hefði framgang. Þetta.álíta hlut-
aðeigendur þarflausan undirbúning,
ef til vill syndsamlega vantrausts-
yfirlýsingu á orð Agnesar, og trúin
látin ganga í stað rannsóknar.
Agnes segir, að svikuli vinnumað-
urinn hafi grafið höfuðin “sem
svarar feti norðífn við dysina, þar er
malarbornara.” Og á dysina hafði
Agnes vísað með þessum orðum:
“Það er í hásumars sólsetursátt, séð
frá aftökupallinum og skamt frá
honum.” Auðskilið í norður, því þá
gengur sól i æginn um eða undir kl.
12 að nóttunni.
M^rgar sögur benda á raunalega
litlar framfarir hjá framliðnum
verum, og í kveðskap, hefir þótt
kenna áberandi afturfara. Skyldi.
Agnes i lífinu ekki hafa þekt á
klukkuna, og því ekki nota hana við
átta-lýsinguna? Þessu er ekki hægt
að svara, en óvíða voru klukkur
komnar 1830, og því þurfti að senda
oft út á kvöldvökunni eða þíða hél-
una af glugga, til að vita hvað
stjarnan var langt gengin, og þá
miðað við dags eyktamörk.
^vo fanst gröfin 12. m. norðvestan
við aftökupallinn.
EFTIRMALI
Árið 1830 hjó bóndi sá á Sveins-
stöðum í Þingi, er Erlendur hét ^
Árnason. Kona hans var Guðrún j
Jónsdóttir bónda á Sveinsstöðum og ,
konu hans Guðrúnar Gísladóttur. J
Hafði maður hennar Jón Magnús- J
son látist 1818. Síðar giftist hún
Hallgrími djákna til Þingeýrar-
klausturs Jónssonár ;• bjuggu þau á
einhverjum hluta jarðarinnar.
Auk barna þeirra Erl. og Guðrún-
ar, sem ólust upp hjá foreldrum
sínum, voru einnig á heimilinu tveir
vinnumenn, hét annar Sigvaldi, en
hinn Vigfús, föðurnöfn þeirra veit
eg ekki.
Vigfús fór suður á hverjum vetri
og réri vetrarvertíðina við Faxaflóa,
en framan af vetri og til þess hann
fór suður, hirti hann féð einkum
úti, og stóð oft yfir því í haga, sem
þar var sveitarsiður.
Þennan vetur, 1830, 12. jan. voru
þau tekin af Friðrik og Agnes, sem
kunnugt er, og fór það fram á þrí-
stöpli, og einmitt þar sem hann hélt
KAUPIÐ AVALT
LUMBER
hjá
THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD.
HENRY AVENUE AND ARGYLE STREET
WINNIPEG, MAN. PHONE 95 551
fé sínu til haga. Þegar höfuðin
höfðu verið sett upp á stangirnar,
blöskraði Vigfúsi að þurfa að hafa
þau stöðugt fyrir augunum, og vérð-
ur það til þess aS hann ræðst í að
taka þau niður og grafa. Það leið
nú samt ekki langur timi til þess það
barst út að höfuðin væru horfin af
ströngunum, og varð tíðrætt um
hver valda mundi, og ekki örgrant
að ugg slæi ekki að fólki. Alt í
einu kom yfirvaldsskipun þess efnis
að hefði nokkur maður gerst' svo
djarfur að taka niður höfuðin,
skyldi sá sami koma þeim upp sem
snarast; annars ^æta afarkostum.
Leizt nú Vigfúsi ekki á blikiijna, og
snaraði upp höfðunum. Þegar svo
það barst út að höfuðin væru á sín-
um stað, beið ekki lengi að Ólsen á
Þingeyrum kæmi meS menn með
sér, tók ofan höfuðin og gróf opin-
berlega.
Steinunn hét eitt barna þeirra Erl.
á Sveinsstöðum og konu hans, hún
var fædd 1826 og ólst upp á Sveins-
stöðum til þess foreldrar hennar dóu
1843. Hún giftist Guðmundi Jóns-
syni frá Gafli; fóru að búa 1850, á
Torfalæk á Ásum; að Mörk i Lax-
árdal fluttu þau 1867. Þar létust
þau 1896 og 1898.
Eg, sem skrifa þetta er sonur
þeirra, og sagði móðir mín St. Er-
lendsdóttir mér þessa sögu, og var
hún aldrei i hámælum höfð, en það
sagði hún að vafalaust hefði Ólsen
grunað eins og var, þar sem Vigfús
stóð þarna yfir hvern dag, en al-
þýðan varð að una við ágizkun; og
er svo sagan ekki lengri.
Hvorki Gísli Konráðsson né
Brynjólftir getur um að höfuðin
hafi horfið af stöngunum. Espólín
einn getur þess.
Gísli fer svofeldum orðum um
gröf þeirra Friðriks og Agnesar:
. . . .“voru þau dysjuð í lægð lítilli
á hólnum norðan til við aftökustað
inn og snúið út og suður.”
í febrúar 1935.
Erlendnr Guðmnndsson frá Mörk.
Skýring *
Þann 9.. janúar 1935 kom út í
Heimskringlu ítarleg og greinagóð
ritgerð um gömlu og alkunnu vísuna
“Ketil velja konurnar.”
Ritgerðin er eftir Erlend GuS-
mundsson frá Mörk. Eg leyfi mér
að taka fáein orð úr niðurlagi grein-
arinnar:
“Niðurstaðan verður þá þessi:
vísan er eldri en frá 1860 og ekki
eftir konu og höfundurinn ófund-
inn sem í upphafi greinarinnar.
Hér í bænum Selkirk er öldruð
kona, skýr og greinargóð og vel
skáldmælt; heitir húri fullu nafni
Nanna Álfheiður Jónsdóttir (An-
derson). Frásögn hennar um vísuna
“Ketil velgja,” o. s. frv. er á þessa
leið:
“Eg er fædd 1850; foreldrar mín-
ir Jón Jónsson og Jórunn Jónsdóttir
bjuggu þá á Höfða við Höfðaströnd
í Skagafirði. Mig minnir helzt það
vera árið 1858 að faðir minn kom
eitt sinn úr kaupstað dálítið hreyfur
af vini. Þá var eg í eldhúsinu hjá
Jórunni móður minni. Þegar fað-
ir minn kom inn og sá ketilinn yfir
eldinum mælti hann fram þessa
vísu:
“Ketil velgja konurnar;
kaffi svelgja forhertar,
ófriðhelgar alstaðar,
af því fjölga skuldirnar.”
Móðir mín svaraði:
Bændur svína brúka sið,
belgja vínið sinn i kvið,
skæla trýnið, skoppa á hlið
skynsemd týna og réttum frið.
Og enn segir Nanna: “Foreldr-
ar mínir voru bæði uppalin í Eyja-
firði; hann í Höfðahverfi, en hún í
Grenivík. Bæði voru þau vel hag-
orð; það sýna þessar vísur, en fóru
mjög dult með þá gáfu sina, þess-
vegna liggur svo fátt eftir þau, eins
og fleiri, sem ekki vilja láta bera
mikið á sér.”
Selkirk 6. janúar, 1935.
Sveinn Á. Skaftfeld.
AuATCHI LATINN
Hinn 28. desember lézt í Haag
hinn nafnkunni japanski lögfræð-
ingur, Adatchi, 65 ára að aldri
Hann mun hafa verið allra Japana
kunnugastur ástandinu í Evrópu og
hugsunarhætti hvítra manna. Hann
hafði gegnt mörgum trúnaðarstörf-
um í Evrópu, var fyrst við japönsku
sendisveitirnar í París og Róm.
Ilann var einn af fulltrúum Jap-
ana er gerðu friðarsamningana við
Rússa 1908. Á árunum 19x6—1928,
var hann sendiherra Japana í Belgíu,
síðan sendiherra í París. — Eftir
stríðið var hann kosinn forseti
nefndar þeirrar, sem átti að jafna
deilumál þjóðanna, forseti þeirrar
nefndar er hafði deilu Ungverja og
Rúmena til meðferðar, foi'seti í
Korfu-málinu, forseti á fundinum,
þar sem rædd voru deilumál Eystra-
saltsríkjanna, deilan um Efri-Slesíu,
o. s. frv. Hann var fulltrúi Japana
i Þjóðabandalaginu og árið 1928
var hann gerður að forseta friðar-
dómstólsins í Haag, og er hann á
Norðurlöndum kunnastur fyrir af-
skifti sín af Grænlandsdeilu Norð-
manna og Dana.
För í Húnaþing
Eftir Sigurð Guðnmndsson
skólameistara.
(Framh.)
Karl Strand segir svo frá kom-
unni að Örlygsstöðum:
“Erásögnin um Örlygsstaði (frá-
sögn Sturlungu sjálfrar) var lesin.
Skólameistari skýrði söguna og
sýndi okkur örnefnin. Við gátum
í hugum okkar séð hópana koma
hægt og sígandi vestan úr Tungunni
og vestan úr brekkunni,—síga sam-
an eins og þunga skýflóka í óveðri.”
Ekki man eg nú athugasemdir
mínar á Örlygsstöðum. Þær hafa
verið sundurlausar, enda var þeim
ivarpað af munni fram, eftir því sem
mér í svipinn datt í hug. Eg hefi
sennilega vikið að því, hve nánir
frændur bárust hér á banaspjót.
Grimdin á Örlygsstöðum er dæmi
þess, hve sif jar og frændsemi mega
sín lítils í stjórnmálasnerrum, þeg-
ar barist er um hagsmuni og verald-
arvöld, og “terror” eður ótti drotn-
ar í landinu. Landinu var þá stjórn.
að af hræðslu, að svo miklu leyti
sem því var stjórnað á þeirri óstjórn-
aröld. Af því að þeir höfðingjarn-
ir þorðu ekki að treysta hverir öðr-
um, voru þeir hræddir um líf sitt af
hvers annars völdum, og þvi þorðu
þeir oft og einatt ekki að gefa grið.
Það var rökvísi hræðsjunnar, sem
ENDURVEKIÐ ÆSKUFJÖRIÐ
NUGA-TONE er dásamlegt meCal
fyrir sjúkt og lasburða fólk. Eftir
vikutíma, eða svo, verður batans vart,
og við stöðuga notkun fæst góð heilsa.
Saga NUGA-TONE er einstæð f sinni
röð. Miljónir manita og kvenna hafa
fengið af því heilsu þessi 45 ó.r. sem
það hefir verið t notkun. 'NUGA-
TONE fæst I lyfjahúðum. Kaupið að-
eins ekta NUGA-TONE, því eftirliking-
ar eru árangurslausar.
Við hægðaleysi notið UGA-SOL —
bezta lyfið, 50c.
r : | INNKÖLLUNAR-MENN LÖGBERGS • < > « > <
• > > • Arras, B. C
Amaranth, Man
Akra, N. Dakota
Árborg, Man
Árnes, Man
Baldur, Man
Bantry, N. Dakota. .....
Bellingham, Wash
Belmont, Man
Blaine, Wash
Bredenbury, Sask
Brown, Man
Cavalier, N. Dakata
’ Churchbridge, Sask
i Cypress River, Man
: Dafoe, Sask J. G. Stephanson
Darwin, P.O., Man
! Edinburg, N. Dakota....
Elfros, Sask .. Goodmundson, Mrs. J. H.
Garöar, N. Dakota
Gerald, Sask
Geysir, Man
• Gimli, Man
Glenboro, Man
Hallson, N. Dakota
Hayland, P.O., Man
! Hecla, Man
Hensel, N. Dakota
Hnausa, Man
Ivanhoe, Minn
Kandahar, Sask J. G. Stephanson
Langruth, Man
læslie, Sask
Lundar, Man
! Markerville, Aita
Minneota, Minn
Mountain, N. Dak S. J. Hallgrimson
■ Oak Point, Man
. Oakview, Man
: Otto, Man
Point Roherts, Wash S. J. Mýrdal
Red Deer, Alta
Revkjavik, Man
Riverton, Man
Seattle, Wash J. J. Middai
Selkirk, Man
Siglunes, P.O., Man. .,..
■ Silver Bay, Man
Svold, N. Dakota
• Tantallon, Sask
Upham, N. Dakota
Víðir, Man
, • Vogar. Man
Westbourne, Man
Winnipegosis, Man
Wynyard, Sask l