Lögberg - 14.03.1935, Page 1
PHONE 86 311
Seven Lines
For
Better
Dry Cleanini’
3nd Laundn
48. ARG4NGUR |j WINNIPEG, MAN„ FIMfTUDAGINN 14. MARZ 1935 || NÚMER 11
IÞRÖTTAMÓT
Hin árlega samkepni um “hockey
horn” ÞjóÖræknisfélagsins fór fram
eins og til stóð fimtudagskveldiS 7.
marz og föstudagvkveldið 9. marz.
Fyrra kveldiS féllu leikar svo aÖ
Sigurvegarar reyndust Gimli, Fálkar
og Pla-Mors, á móti Árborg, Maple
Leaf og Selkirk, sem allir léku á-
gætlega, þó lukkan væri meS hin-
um fyrnefndu flokkum og réði
leikslokum.
Munu flestir áhorfendur hafa
farig hefnt það kveld meÖ þá til-
finningu í brjósti að bæði Árborg
og Selkirk flokkarnir hafi sýnt sér-
staka prúðmensku engu síður en
leikni í “hockeyekki sízt ef tekið
er tillit til hins stutta undirbúnings,
sem Árborg hafði og á hann þakkir
skilið allra íþróttavina, fyrir ótrauða
þátttöku í móti þessu.
Síðara kveldið léku sigurvegarar
þannig: Gimli sigraði Cardinals og
Pla-Mors sigra Fálka. Stóðu þá
Gimli og Pla-Mors einir eftir. Var
nú komin talsverður glímuskjálfti í
flesta er þessir flokkar runnu sam-
an hvor á móti öðrum, sem lauk með
frægum sigri fyrir Gimli flokkinn,
er gengu sigrandi af hólmi með hið
fagra “Horn” Þjóðræknisfélagsins.
Samkepni þessi fór prýðilega
frarn og var það mikið að þakka
hinni ótrauðu framkomu þeirra Dr.
Á. Blöndal og S. Thorsteinssonar
frá Selkirk.
Þátttakendur í úrslitaleiknum:
Gimli—G. Sinclair, O. Solmund-
son, Johnson, F. Solmundson, E.
Sinclair, E. Ellison, Anderson,
Howes, O’Connor, Hickman.
Pla-Mors — Forrest, Einarson,
Fordyce, Hussell, A. Johannesson,
Dot, Munro, R. Johannesson, S.
Kline, J. Johannesson.
Dóntarar—Chris. Friðfinnsson og
Gordon Skinner.
Viðstaddnr.
FJARHA GSÁÆTLUN
WINNIPEG-BORGAR
Féhirðir Winnipegborgar, Mr. H.
C. Thompson, hefir tilkynt fjár-
málanefnd bæjarstjórnar, að tekju-
halli á árinu 1935, muni nema $392,-
876, eins og nú horfi við.
Gert er ráð fyrir að hækka stór-
utn fasteigna- og verzlunarskatt
borginni til tekjuauka. Félag eitt í
Toronto, Assessment Appraisers
Ltd., er haft hefir með höndum
tndurskoðun skattkerfis Winnipeg-
borgar fyrir bæjarstjórnar hönd,
•nælir nteð að $788,945 verði á ár-
lnu innheimtir í hækkuðum sköttum.
^ erða það einkurn og sérílagi bank-
ar- deildabúðir, keðjubúðir, ölgerð
arhús og tryggingafélög sem borga
eiga brúsann.
WERKUR lögspektngur
LATINN
Rinn 6. yfirstandandi mánaðar
lézt í borginni Washington, Oliver
W,endell Holmes, fyrrunt dórnari í
hæstarétti Bandaríkjanna, því nær
94 ára að aldri. Eftir að hafa gegnt
dómara-embætti í yfirrétti Massa-
chusetts-rikis urn tuttugu ára skeið,
var honum veitt embætti í hæzta-
Tétti hinnar amerísku þjóðar, árið
1902; var það að ráði Theodore
Roosevelts þáverandi forseta. Fað-
lr *lans var kunnur rithöfundur og
samdi meðal annars bókina “Aristo-
crat of the Rreakfast Table.” Hinn
látni öldungur gaf sig og allntikið
við ritstörfum, einkum lögfræði-
legs efnis. Jarðarförin fór frarn í
Arhngton grafreit, þar sem rnörg
stórmenni amerísku þjóðarinnar
bera beinin.
SIGURÐUR B. EIRICKSON
Þessi vinsæli íslendingur hefir
starfað samfleytt í 30 ár við Farrn-
ers and Merchants National Bank i
Minneota, Minn. Var hann i til-
efni af þessu eftirminnilega starfs-
afmæli heiðraður með veglegu sam-
sæti.
Mr. Eirickson er Austfirðingur
að ætterni, en fæddur í Minneota.
Hefir hann tekið mikinn og góðan
þátt í félagsmálum íslendinga syðra,
og er nú forseti Sankti Páls safn-
aðar.
NÝJUSTU FRÉTTIR
Fruntvarp sambandsstjórnarinn-
um trygging gegn atvinnuleysi, hef-
ir verið afgreitt frá neðri málstof-
unni og fengið öldungadeildinni til
meðferðar.
Hon. Robert Weir, landbúnaðar-
ráðgjafi, hefir tilkynt að þeim á-
kvæðum laga um sölu búnaðaraf
urða, er lúta að skyldubundinni
samlagssölu alifugla og eggja, verði
ekki beitt í Sléttufylkjunum, með
þvi að nýafstaðin atkvæðagreiðsla
urn málið hafi leitt í Ijós, að skoð-
anir bænda á því séu mjög skiftar.
í Manitoba var ákveðinn meirihluti
andvígur þvingunarsölu fyrirmæl-
um téðra laga.
Hin nýja, canadiska peningastofn-
un, Central Bank, tók formlega til
starfa síðastliðinn mánudag. Banki
þessi er stofnaður samkvæmt lögum
síðasta sambandsþings.
MET / BILAKSTRI
Á fimtudaginn þann 7. þessa
mánaðar, setti hinn brezki Öku-Þór,
Sir Malcolnt Cainpbell, met i bíl-
akstri, nteð því að aka bíl sínum
yfir 276 mílur á klukkustund.
Kappakstur þessi fór fram við
Daytona Beach i Florida-rikinu.
Mælt er að Sir Malcolm hafi oftar
en einu sinni verið hætt kominn
rneðan á kappakstrinum stóð.
Mark það, sem Sir Malcolm hafði
sett sér var það, að aka 300 mílur á
klukkustund. Hvort hann lætur sliks
freistað á ný, ntun enn eigi ráðið að
fullu, þó nokkrar líkur séu til að
svo verði.
KREFST STÚRFELDRA
ATVINNUBÓTA
MANNVIRKJA
Hon. W. R. Clubb, ráðgjafi opin-
berra verka i Byacken-stjórninni,
hefir í bréfi til verkamannaráðgjafa
Sambandsstjórnarinnar, Hon. W. A.
Gordons, farið fram á það, að Sam-
bands- og fylkisstjórn stofni i sam-
einingu til atvinnubóta fyrirtækja í
fylkinu, er nema- hálfri sjöundu
miljón dala. í bréfi sínu lætur Mr.
Clubb þess getið, að á síðastliðnu ári
hafi viðhorf atvinnumálanna innan
vébanda fylkisins ekki breyzt til
batnaðar svo nokrku nemi, og þar
af leiðandi sé skjótra úrræða þörf.
Ófrétt er enn um undirtektir Mr.
Gordons ntálaleitan þessari viðvikj-
andi.
Vordagur
(Eftir Mary Carolyn Davies)
Glatt skein sól á vori, með guði var
eg ein;
gekk eg úti’ í skógi og settist þar
á stein.
Söng eg var við fugla um dýrð, sem
aldrei dvín;
drottinn samdi lagið, en orðin voru
min.
Or borg og bygð
íslenzka bygðin í Norður Dakota
hefir afráðið að minnast 75 ára af-
mælis hr. K. N. Júlíus, Dakota-
skáldsins, með fagnaðarmóti, laug-
ardagskveldið 6. apríl kl. 6.30 e. h.
Framkvæmdarnefndinni virðist rétt
að geta um þetta i íslenzku viku-
blöðunum nú þegar, svo að vinir
hans og velunnarar víðsvegar fái
þegar að vita um þetta; því öllum
nær og fjær er hérmeð boðið að
taka þátt í þessu fagnaðarmóti.
Hverjir, sem kynnu að vilja koma.
en hafa ekki til neinna sérstaka að
hverfa hér syðra, og hverjir. sem
vildu senda skáldinu skeyti. sem þeir
óska að komi fram á þessari sam-
komu. eru beðnir i því sambandi að
skrifa annaðhvort J. J. Myres.
Crystal, N. Dak. eða séra H. Sig-
mar, Mountain, N. D.
Mr. Oscar Goodman starfsmað-
ur við útibú Royal bankans að
Pearson, Man.. dvelur i borginni um
þessar mundir.
Mr. Ingvar Magnússon frá Wyn-
yard. Sask., er dvalið hefir hjá syst-
ur sinni Mrs. G. Olafson að Cali-
ento. Man. siðastliðna þrjá mánuði,
fór vestur á föstudaginn var.
Dr. Kristján J. Austman frá
jWynyard, Sask., liggur á Almenna
sjúkrahúsinu hér í borginni allþungt
haldinn. Var hann fluttur hingað
að vestan um helgina.
Mr. Björgvin Johnson frá Moun-
tain, N. Dak., var í borginni í vik-
unni sem leið.
Mr. Gunnar Th. Oddson frá
Mountain, N. Dak., kom til borg-
arinnar á fimtudaginn í vikunni sem
leið og hélt heimleiðis daginn eftir.
Mr. Sigurður Sigurðsson kaup-
ntaður frá Calgary kom til borgar-
innar á mánudagsmorguninn. Var
hann á leið til Austur-Canada í inn-
kaupa erindum fyrir verzlun sína.
Mr. Sigurðsson rekur húsgagna-
verzlun í Calgary í stórum stil. Gerði
hann ráð fyrir að dvelja austan-
lands í hálfsmánaðartíma.
Mrs. Helga Westdal frá Wyn-
yard, Sask., er dvalið hefir hér í
borginni undanfarandi, lagði af stað
heimleiðis síðastliðið þriðjudags-
kveld.
Dr. A. B. Ingimundsson tann-
læknir verður i Riverton á þriðju-
daginn þann 19. þ. m.
Meiri afmœlisgjafir til Betel
Ásmundur P. Jóhannsson, Winni-
peg, $100.00; Magnús skáld Mark-
ússon, 5 eintök af ljóðmælum hans
“Hljómbrot.”
Innilega þakkað,
Jónas Jóhannesson, féh.
675 McDermot Ave.
SJÓNLEIKURINN “.APINN”
verður leikin í Mountain, N. Dak.,
föstudagskveldið 22. ntarz' og laug-
ardagskveldið 23. marz. Bæði
kveldin verður tjaldið dregið upp og
byrjað stundvíslega kl. 8.30 e. h.
Aðgangur 35C fyrir fullorðna, 20C
fyrir unglinga í high school og ioc
fyrir unglinga innan 14 ára aldurs.
Kaffi fæst keypt undir eins og leik.
urinn er á enda, í neðri sal sam-
komuhússins. “Music” áður en
Ieikurinn byrjar og milli þátta. Fyll-
ið húsið bæði kveldin. Ágóðinn af
leiksamkomum þessum verður all-
ur gefinn Víkursöfnuði á Moun-
tain.
Hon. L). G. AlcKENZIE
SALA BÚPENINGS TIL
ENGLANDS
Landbúnaðarráðgjafi fylkisstjórn.
arinnar í Manitoba, Hon. D. G. Mc
Kenzie, hefir farið frarn á það í
fylkisþinginu að veitt verði fjárhæð
nokkur í þeim tilgangi að senda um
Churchill iskipsfarm af búpeningi
héðan til Englands, með það fyrir
augum að opna þar nýjan markað
fyrir þessa tegund framleiðslunnar.
I Er ráðgert að keyptir verði aðeins
j úrvals gripir til þessarar sendingar.
Uppástungu Mr. McKenzie hefir
verið tekið vel, og má liklegt telja
að hún nái fram að ganga.
íslendingurinn J. Middal, er heima
á að Furby Street, hér í borginni,
hefir nú nýverið lokið samfleyttri
54 ára þjónustu hjá Hudsons Bay
verzlunarfélaginu. Hefir hann all-
an þenna tínia gegnt sendimanns-
stöðu: flutt jreninga rnilli búðarinn-
ar og bankanna og þar fram eftir-
götunum. Ensku dagblöðin geta
þessa atburðar og hins ennfremur,
að Mr. Middal hafi aldrei tapað degi
frá vinnu og aldrei komið seint í
vinnu á morgnana. Nú er hann 74
ára að aldri.
Mr. O. H. Oddson trésniíðameist-
ari frá Chicago, er dvalið hefir að
Lundar, Man. um hríð, lagði af stað
suður á þriðjudagskvöldið.
MEN’S CLUB
Governor J. C. Downie of the
Provincial Gaol will address the
Men’s Club of the First Lutheran
Church in the church parlors on
Tuesday, March igth, at 6.30 p.m.
A dinner will be served at a small
charge. Men, your are cordially in-
vited to hear this interesting and
colorful speaker and his message to
us. We anticipate a large attend-
ance, so be on time. Remember the
time and the place, First Lutheran
Church, March i9th, at 6.30 p.m.
Miss Rósa Hermannsson, söng-
konan góðkunna kom til borgarinn-
ar síðastlið|inn sunnudagsmorgun
austan frá Toronto. Heldur hún
söngsamkonui í Fyrstu lútersku
kirkju í kvöld (fimtudagskvöldið
þann 14. marz). Treysta má því,
að hér verði um verulega ánægjulegt
söngkvöld að ræða. Miss Herinanns-
son er gædd prýðilegri söngrödd, er
hún hefir lagt mikla alúð við. Hún
dvelur aðeins stuttan títna í borg-
inni og verður þetta sennilega þess-
vegna eina tækifærið til þess að
hlýða á söng hennar hér í borg,
fvrst um sinn. Mr. Ragnar H.
Ragnar verður við hljóðfærið.
ÚTGJÖLD TIL HERS OG
FLOTA
Samkvæmt f járlagafrumvarpi
stjórnarinnar brezku, er lagt hefir
verið nýlega fratn í þinginu, er gert
ráð fyrir stórauknum fjárframlög-
um til hers og flota. Fjárveiting
sú, er stjórnin krefst til flotans,
nemur $291.843,000 og er $17,000,-
000 hærri en upphæðin á árinu sem
leið. í svipuðum hlutföllum verð-
ur hækkun útgjalda til landhers og
loftflota. Talið er vist að frjáls-
lyndi flokkurinn og flokkur hinna
óháðu verkamanna, muni bera fram
i sameiningu vantraustsyfirlýsingu á
hendur þjóðstjórninni vegna afstöðu
hennar til hermálanna í heild og út-
gjalda í því sambandi. Sir Herbert
Samuel, foringi frjálslynda flokks-
ins á þingi, hefir verið næsta ber-
orður i garð stjórnarinnar upp á
síðkastið og nuggar henni um nasir
að öllu samningabraski hennar við
aðrar þjóðir um öryggi og frið, hafi
nú lokið með lítt verjandi kröfum
um aukin útgjöld til vígbúnaðar.
VIÐSJAR A BALKAN-
SKAGA
Síðastliðinn hálfan mánuð, eða
því sem næst, hafa Grikkir átt í inn.
byrðis styrjöld, er orsakað hefir all-
mikið mannfall. Samkvæmt sím-
skeytum frá Aþenuborg þann 2. þ.
m., er áætlað að hátt á fimta þús-
und manns hafi fram að þeim tíma
látið lífið í þessari orrahríð. Mest
hefir að blóðsúthellingunum kveðið
i Makedóníu. Getið er þess að skot-
ið hafi verið á heimili stjórnmála-
víkingsins viðkunna Venizelosar,
fyrrum forsætisráðgjafa, og að hann
hafi eitthvað særst og væri flúinn
úr landi. Fremur eru þó fregnirn-
ar um þetta þokukendar.
Ekki er það sjáanlegt að um ann-
að sé barist á Grikklandi en völdin
ein, eða með öðrum orðum það,
hverjir með þau skuli fara í bráðina,
þvi um róttæka stefnu eða stétta-
baráttu sýnist ekki vera að ræða.
Flogið hefir það þó fvrir að komið
gæti til mála að afleiðing þessarar
innbyrðis styrjaldar yrði sú, að
Grikkir settu á fót hjá sér konungs-
stjórn. Mælt er að Tyrkir hafi við-
búnað mikinn og ætli sér auðsjáan-
lega að vera til taks ef svo byði við
að horfa.
TEKJUSKATTUR /
CANADA
Samkvæmt skýrslu, er framsögu.
maður íhaldsflokksins, Rt. Hon.
Arthur Meighen, lagði fram í öld-
ungadeild Sambandsþingsins þann
6. þ. m., nam tekjuskattur sá, er
Sambandsstjórnin innheimti á síð-
i astliðnu ári $61,608,732.
FRÁ ÍSLANDI
Eggert Stefánsson söngvari fer
héðan næstkomandi mánudag áleiðis
til Bretlands á Dettifossi. Víðkunn-
ugt kvikmyndafélag i London, sem
hefir látið gera kvikmynd á Shet-
landseyjum, setti sig fyrir nokkru í
satnband við Eggert Stefánsson og
bað hann um að vera sér til aðstoð-
ar um útvegun sönglaga, sem ætti
við Shetlandseyjamyndina.
Sig. Júl. Jóhannesson þýddi.
Hvað verður um vikublöðin, og
Vestur-Islendinga án blaðanna?
Þannig hugsa vafalaust margir um þessar mundir, hvort sem
þeir kveða upp úr með það eða ekki.
Að Vestur-íslendingar án íslenzku vikublaðanna, yrði eins
og höfuðlaus her, getur ekki orðið um deilt.
Án stuðnings af hálfu blaðanna, hefði menningarleg samtök
vor og framsóknar viðleitni, átt að sjálfsögðu margfalt erfiðara
uppdráttar en raun hefir á orðið, og margt af þvi sennilega aldrei
komist í framkvæmd, sem við nú njótum metnaðar af, ef ekki
hefði verið fyrir atbeina þeirra. Af þeirri ástæðu er það að
Vestur-íslendingar skulda blöðunum margfalt meira en áskriftar-
gjöldunum neniur, þó sú upphæð sé engan veginn smáræði.
Á ýmsum sviðum vestur íslenzks þjóðlífs, virðist nú, góðú
heilli, bjartara umhorfs en við hefir gengist í háa herrans tíð.
Góðhugur og skynsamlegt mat samstarfs þarfarinnar, skýtur nú
rótum þar sent áður spratt illgresi sundrungar og vantrausts.
Þjóðræknismál vor, í hinum viðtækari skilningi, njóta meiri og
almennari samúðar en áður, og verður það að teljast góðs viti.
Með falli islenzku vikublaðanna yrði fótum kipt undan starfsem
inni á því sviði, sem og því öðru flestu, er til umbóta miðar i
varanlega menningarátt og oss til þjóðernislegrar sjálfsverndar.
Á sumri því, er nú fer í hönd, stendur til að Vestur-lslend-
ingar minnist með virðulegu hátíðarhaldi eða hátíðarhöldum, sex-
tiu ára varanlegs landnáms sins i Canada. Hann er engan veginn
óverulegur sú þáttur, sem blöðin hafa átt í því, sem á hefir unnist
á því erfiða, en litbrigðaríka tímabili. Það yrði saga til næsta
bæjar, ef einn þáttur slíkrar minningar yrði útför blaðanna.
Vér trúum því ekki að Vestur-íslendingar vilji blöðin sín
feig. Hinu trúum vér betur, og teljum það likara eðli þeirra sem
arfþega hins norræna stofns, að þeir bregðist nú vel við, hver og
einn, og greiði eigi aðeins andvirði yfirstandandi árgatigs blaðanna,
heldur og allar eldri skuldir við þau líka; en slíkt nemur stórfé.
Virðingarfylst,
TPIE COLUMBrA PRDSS, LTD.,
Cor. Toronto and Sargent.
pr. F. Stephenson.
THE VÍKINGr PRESS, LTD.,
Cor. Sargent and Banning.
pr. Rögnv. Pétursson.
\
Úr Vísi 15. febrúar.
Falcons vinna frœgan sigur í Senior Hockey
samkepninni á mánudagskvöldið þann 11 þ.m.
Vinna kappatitil Manitobafylkis og vekja nýja von um
frækilega framtííS. Háðu þeir árslitaleik sinn með 2-0
við San Antonio flokkinn.
Þessi nýja sigurvinning Faloons ldýtur að verða Is-
lending'um hið mesta fagaiaðarefni og spáir góðu um
glæddan áhuga á hinni fögru og lietjulegu hockey-íþrótt.