Lögberg - 18.04.1935, Qupperneq 5
LÖGBÐRG, FIMTUDAGINN 18. APRÍL, 1935.
5
Fyrverandi keisari á blömasýningu.
Á mynd þessari sézt Vilhjálmur fyrverandi pýzkalandskeisari á
blómasýningu í Heamstede í Amsterdam. Hollenzk stúlka er að festa
blóm í hnappagat á yfirfrakka öldunpsins.
a8 sér, eða á annan hátt stuðla að
útgáfu 50 ára minningarrits skólans,
sem þá verður fullbúiÖ til prentunar.
Um leið og yður tilkynnist þetta
viljum vér beina þeirri spurningu til
yðar, hvort þér viljið ekki gerast
félagi sambandsins, hvort sem þér
hafið tök á því að sækja stofnfund
eða eigi. Bliðjum við yður að fylla
út meðfylgjandi eyðublað og senda
til nefndarinnar ekki seinna en i
apríl-lok n. k.
Með kærri kveðju,
Snorri Sigfússon, formaður
Þórarinn Björnsson, ritari.
Steindór Steindórsson,
Friðrik J. Rafnar,
Davíð Stefánsson,
Ólafitr D. Jóhannesson,
Ingimar Eydal.
ATH.—Bréf þetta, sem sent er
Lögbergi til birtingar af hr. Snorra
Sigfússyni, mælir með sér sjálft.
Því er ætlað að ná til Möðruvellinga
og Gagnfræðinga af Akureyri vestan
hafs, og er vel að því verði sem al-
mennast sint.—Ristj.
Aðsent
Þetta er gamaldags yfirskrift,
sem oft birtist í íslenzku blöðunum
hér á fyrri árum við bréfakafla og
stutt greinakorn. Þessi fyrirsögn
gildir um þetta, þar sem hvorki er
um ritgerð né fréttabréf að ræða,
heldur einungis aðsent rabb frá
gömlum Winnipegbúa og velunnara
Lögbergs. Hugur sendandans leitar
oft á fornar slóðir, austur yfir hin
hrikalegu Klettafjöll og staðnæmist
hjá kunningjum og góðvinum í Win.
nipeg.
Mér barst ekki alls fyrir löngu í
hendur himinblár miði frá Columbia
Press Ltd., þar sem eg var vinsam-
lega mintur á að borga Lögberg fyr-
irfram og “þéraður” um leið. Eg
brást fljótt við og sendi nú hér með
miða til baka, sem gerir rnig skuld-
lausan við blaðið.
Það er engin ný bóla, þó kvartað
sé undan treglegri innheimtu blað-
anna. Menn vilja ekki án þeirra
vera, og þess vegna ber þeim skylda
til að annast um greiðslu þeirra í
réttan gjalddaga.
Mér fellur vel við Lögberg, og
það gerir flestum hér. Um daginn
hitti eg kunningja minn, og sagði
hann við mig að nú væri “reglulega
góður gáll á Lögbergi,” og ortum
við í því sambandi vísu.
Þið hafið lesið alt um óveðrið
mikla og va tnsflóðið, sem geysaði
hér um slóðir ekki alls fyrir löngu,
og enn hafa verið slíkar hellirigning-
ar, að elztu menn muna vart annað
slíkt, og kallar fólk hér þó ekki alt
ömmu sina í þessum skilningi. En
nú er jörð komin skrúðgræn undan
vetrarklæðum.
Gamla vísu lærði eg á undómsár-
um mínum heima á íslandi, þó eg
muni nú reyndar ekki eftir hvern
hún er, sem mig hefir oft langað
til að kveða við raust undanfarinn
rigningakafla; en hún er svona:
Drjúgum vex í dýjunum,
Drottinn gefi að batni.
Skelfing fer úr skýjunum
af skæru og hreinu vatni.
Eg hefi þó stilt mig um að kveða
vísuna við raust, með því að þeir
sem standa mér nú næstir myn<Ju
ekki njóta hennar án útskýringar;
konan mín er ensk, og gæti svo auð-
veldlega farið að hún héldi að eg
væri genginn af göfJunum, ef eg
færi að tóna eitthvað, sem hún botn.
aði ekki vitund í. Talsvert er hún
samt farin að komast niður i frétt-
um, sem í Lögbergi birtast, og er
henni blaðið kærkominn gestur engu
síður en mér.
Slæ eg svo botninn i línur þess-
ar með innilegum óskum til Lög-
berginga og annara vina í Winnipeg.
Vancouver, B.C., 15. marz, 1935.
G. H. Hjaltalín.
Borgið Lögberg!
Fréttir
frá Eeslie-bygðinni í Saskatcheivan.'
Nýlega voru gefin saman i heilagt
hjónaband, þau Mr. Harry Night-
ingale og Miss Dóra Jósepsson;
brúðguminn er af enskum ættum,
en brúðurin er dóttir þeirra merku
hjóna Mr. og Mrs. Hjálmars Jó-
sepsson, sem búið hafa mörg ár í
Leslie-bygðinni. Miss Dóra Jóseps-
son útskrifaðist af kennara skólan-
um i Regina fyrir nokkrum árum
síðan, og hefir hún stundað kenslu
mest í Oakla, Sask., og getið sér
hinn bezta orðstir i hvívetna ; hún er
vel gáfum gædd, og mjög prúð og
skemtileg í öllu viðmóti.
Mr. Harry Nightingale er ungur
og skemtilegur inaður, vel skynsam-
ur, ræðinn og félagslyndur; hann
er fæddur heima á Englandi, og kom
til þessa lands fyrir nokkrum árum
siðan.
Þeim ungu og nýgiftu hjónum,
Mr. og Mrs. Nightingale, var haldið
veglegt samsæti þann 8. apríl s. 1., í
Westside skólanum, mun þar hafa
verið samankomið nokkuð á annað
hundrað manns.
P
Fyrst var stinginn brúðkaupssálm-
urinn, Hve gott og fagurt og indælt
er, þvi næst var lesin bæn. Fyrstur
tók til máls Mr. Mundi Halldórsson,
talaði hann vel og skemtilega svo
allir gátu hlegið ; þar næst var sung-
ið, Hvað er svo glatt. Söngurinn
var leiddur af hinum velþekta söng-
manni Páli Magnússyni, þá tók til
máls séra Guðmundur Páll, talaði
hann fyrir minni brúðhjónanna, og
h'inna vellátnu heiðurshjóna, for-
eldra brúðarinnar, sem nú sátu i há-
sæti, við hlið hinna ungu hjóna. Því
næst var sungið, Fósturlandsins
freyja, þar eftir kvað sér hljóðs Mr.
Thomas Halldórsson, talaði hann
nokkur falleg og velvalin orð, um
leið og hann afhenti brúðhjónunum
dálaglega peningaupphæð, með inni-
legustu hamingjuóskum frá öllum
hygðarbúum, til hinna ungu og efni-
legu brúðhjóna; þvi næst var sung-
ið Eg man þá tíð, í minni hún æ
mér er. Þá tók til máls Mrs. G. P.
Johnson, og fór hún nokkrum hlýj-
um orðum um Jósepssons fólkið,
og lét ánægju sína í ljós til þeirra
kvenna, er stofnað höfðu til þessa
gleðimóts; þá var sungið. Ó fögur er
vor fósturjörð um friða sumardaga.
Eftir þann söng tók til máls Mr.
Páll Guðmundsson; hann talaði vel
og nokkuð lengi. Pál! er ágætlega
máli farinn, og hefir gott lag á því
að krydda tölu sina með hlægileg-
um setningum; eftir tölu Páls reis
úr sæti heiðursgesturinn, Mr. Night-
ingale og þakkaði með mörgum vel-
völdum orðum, þá miklu ánægju og
þá gleði, sem hann hefði orðið að-
njótandi á þessu kvöldi, og að hann
hefði ekki orð til að láta í ljós sitt
innilegasta hjartans þakklæti til
allra bvgðarbúa, eins og þeir ættu
skilið. Þar næst var sungið, Ó,
Guð vors lands, ó lands vors'guð.—
Svo eftir að allir með djúpri lotn-
ingu höfðu sungið okkar fagra
þjóðsöng, þá bað forseti samkom-
unnar alla að rísa úr sætum sinum
og ganga i fylkingu fram hjá hásæti
brúðhjónanna, og óska þeim til ham-
ingju með handabandi, og var það
gjört, nema hvað flestalt kvenfólkið
hreytti dálítið út af boðinu með því
að kyssa brúðina.
Þá voru frambornar rausnarlegar
veitingar, og nutu menn og konur
fæðunnar með hjartans einlægni og
mikilli gleði, og ekki minkaði það
ánægjuna, að Mr. Páll Magnússon
hélt uppi íslenzka og indæla söngn-
um, ásamt nokkrum söngelskum
mönnum og konum, sem hann hafði
valið sér til fylgdar.
Eftir veitingar byrjaði unga fólk-
ið að stíga dans, en aðrir skemtu
sér með því. að spila á spil og nokkr-
ir með skemtilegum samræðum; alt
gekk þetta upp á hið ákjósanlegasta
og hélt glaumurinn og gleðin áfram
þar til kl. 3 næsta morgun; fóru þá
allir heim til sín, glaðir í huga. Séra
Guðm. P. Johnson stjórnaði sam-
sætinu.
Nú virðist vera að aukast og glæð-
ast félagslegur áhugi, á meðal landa
vorra í þessari nýlendu. Heyrst
hefir að íslenzka lúterska kvenfé-
lagið i Leslie ætli að hafa feykna
stóra skemtisamkomu á sumardag-
inn fyrsta, og þar verði til skemt-
unar íslenzkar ræður og íslenzkir
söngvar og margt fleira, svo lika
þar sem lúterska kvenfélagið er al-
þekt fyrir sérstakan dugnað og mikl-
ar framkvæmdir á félagslegu sviði í
þessari bygð. þá efast enginn um
að sumardagurinn fyrsti verður einn
af þeim al-islenzkustu skemtidög-
um, sem haldinn hefir verið í Leslie,
og víst er það að íslenzku konurnar
okkar vonast eftir alveg troðfullu
fundarhúsinu í Leslie á sumardag-
inn fyrsta.
Einnig hefir íslenzka þjóðræknis-
félagið ákveðið skemtisamkomu í
Leslie snemma í maí n. k. og munu
landar vorir nú þegar vera byrjað-
ir að ræskja sig og búa sig undir
dynjandi þjóðræknissöngva, og eng-
inn vafi mun á því leika að einnig
sú fyrirhugaða samkoma, verði á-
gætlega sótt, enda hefir þjóðræknis-
stúkunni í Lesliebygðinni aukist
mikið meðlimaf jöldi hið síðastliðna
ár.
Lengi lifi al-islenzka félagslifið í
íslenzkum nýlendum!
G. P.
Sigurrós (Gísladóttir)
Stevenson
lEFIMINNING
Þann 18. febrúar s.l. lézt á sjúkra-
húsinu í Hallock, Minn., Sigurrós
Stevenson, kona Guðjóns Stevenson
í Pembina af afleiðing af uppákurði
við innvortis meinsemd, rúmlega 64
ára; hún hafði nokkuð lengi átt við
heisluleysi að stríða, var síðast á of-
annefndu sjúkrahúsi í 6 vikur, var
alt gert sem mögulegt var að bæta
henni heilsuna, en mannlegur kraft-
ur gat þar engu áorkað; tíminn var
kominn, og hún var kölluð burt til
æðra starfs.
Sigurrós heitin var fædd á Sól-
heimum í Sæmundarhlið í Skaga-
fjarðarsýslu 6. janúar 1871; for-
eldrar hennar voru Gísli Arason
og Sigurlaug kona hans (mér er
ekki gunnugt um hvera manna hún
var). Ólst hún upp hjá foreldrum
sínum að Geitagerði við Reynistað
þar til að hún var 16 ára; fór þá
austur á land til Seyðisfjarðar og
var þar í 2 ár. 18 ára fluttist hún
til Ameríku og settist að í Milton i
N. Dak., árið 1890 giftist hún eftir-
lifandi manni sínum, Guðjóni Stev-
enson, settust þau að og byrjuðu
búskap við Milton, og bjuggu þar í
6 ár; voru svo á ýmsum stöðum,
þar til árið 1904, að þau komu til
Pembina, keyptu sér heimili og voru
þar ætið síðan.
Þau Guðjón og Sigurrós eignuð-
ust tvær dætur ; eldri dótturina Jónu
Sigurlaugu mistu þau uppkomna ár-
ið 1916. indæla stúlk og vel gefna;
var það þeim þungur harmur. Hin
dóttirin Oddný Margrét er á lífi og
er gift Mr. V. W. Olmy (yfirmaður
á sjúkrahúsi) í San Matis, Calif.
Þau eiga einn son, einnig tóku þau
til fósturs dreng, Alfred Freeman
að nafni, og ólu hann upp. Hann
vinnur fyrir Bandaríkjastjórnina og
er búsettur í Lancaster, Minn.
Þrjú systkini Sigurrósar eru á
lífi, tveir bræður, Bogi og Guð-
mundur, báðir á íslandi, og ein
systir, Steinunn, gift Eiríki Bjarna-
syni, búsett við Geysir i Manitoba,
Canada.
Sigurrós var mjög vel gefin, og
mesta myndarkona í öllu, heimili
hennar var regluleg fyrrmynd og
gestrisnin var þar á hæsta stigi, enda
oft gestkvæmt þar, því æfinlega var
tekið vel á móti manni, hvernig sem
á stóð. Hún var mikið gefin fyrir
bækur og las mikið ; fylgdist vel með
öllu sem gerðist; hún var trúgefin
kona og tilheyrði íslenzka söfnuðin-
um i Pembina alt af meðan hann
var starfandi; hún vann í safnaðar-
nefnd í fjölda mörg ár, seinni árin
sem féhirðir; var það bæði vanda-
samt og erfitt starf, sérstaklega er
fólki fór að fækka í söfnuðinum.
Hygg eg að hún hafi átt drjúgan
þátt í að halda starfseminni við eins
lengi og gert var, annars hefði það
liðið undir lok miklu fyr en varð.
Það sem hún tókst á hendur, það
gerði hún vel, enda bar fólk mikið
traust til hennar, og því trausti brást
hún aldrei; hennar er því sárt sakn-
að, ekki einungis af ástvinunum,
heldur einnig öllum, sem þektu og
kyntust henni. Hún bjó sig undir
dauðann í einlægri trú á Guð og
frelsara sinn, og svo eg noti hennar
eigin orð, hún þakkaði Guði fyrir
hinn góða eiginmann, sem hann gaf
henni og sem alt gerði til að láta
bæta þrautir likamans.
Jarðarförin fór fram frá heimil-
inu og íslenzku kirkjunni í Pembina
þann 22. febrúar, að viðstöddu
miklu fjölmenni. Séra H. Sigtoiar
frá Mountain jarðsöng. 'Friður
Guðs hvíli yfir moldum þinurn.
Vinur.
Nemið brott bólgu og blóðrensli
GYLLINIŒÐAR
(Hæmorrhoids)
Með Zam-Buk Herbal Ointment
Ointment 50c — Medicinal Soap 25c
Mannalát
Laugardaginn 13. apríl s. 1. fór
fram jarðarför John Johnsonar að
Baldur, Man. Hann var sonur Arn-
bjargar Johnson ekkju Kristjáns
Johnsonar, sem voru meðal frum-
byggja Argyle-bygðar og ætíð í
fremstu röð bygðarfólks. John eða
Jack, eins og allir þektu hann, var
ágætur “ís curling” leikari og var
í hópi þeim, er reyndi sig við beztu
menn Bretlands í þeim leik, fyrir
nokkrum árum. Ilann veitti nú um
langt skeið forstöðu húnaðarverk-
færa verzlun þeirra bræðranna þar
í Baldur og var vinsæll verzlunar-
maður. Heimili hélt hann með
móður sinni og systrum alla tíð og
var þeim ástríkur sonur og bróðir.
Jarðarför hans fór fram að við-
stöddu miklu fjölmenni og mergð
var þar blómsveiga, sem vottuðu
vinsældir hins dána. Séra E. H.
Fáfnis og séra W. T. Allison, D.D.
aðstoðuðu.við jarðarförina.
aður af Völlum i Suður-Múlasýslu,
fæddur þann 1. janúar árið 1849.
Hann var tvíkvæntur. Jarðarförin
fór fram frá kirkju St. Páls safnað-
ar í Minneota.
Nýlátin er í Selkirk, Man., Mrs.
Helga Fredrickson, kona Magnús-
ar Fredrickson þar i bænum. Var
hún systir Kristjáns Cryer hér
í borginni. Séra Theodore Sigurd-
son jarðsöng hina látnu.
Jarðarför Márusar Doll, er lézt á
spítala hér í bænum þ. 29. marz s.l.
fór fram i Mikley laugardaginn þ.
6. apríl og var mjög fjölmenn. Séra
Jóhann Bjarnason jarðsöng. Við
húskveðjuna á heimili Márusar, að
Lundi í Mikley, söng Skúli Sigur
geirsson sóló, en við athöfnina í
kirkjunni söng sóló Jón Sigurgeirs-
son. Auk séra Jóhanns, er talaði
McFATDEN FRÆ KOSTAR LlTIÐ
EN FRAMLEIÐIR MIKIÐ
Stærri en venjulegir pakkar at Mc-
Fayden fræi—aðeins 3c—4c hver
Pví að borga 5c og lOc?
Mestu hlunnindin við McFayden
fræ liggja ekki i lágu verði, heldur
hinu, að hver tegund um sig af
reyndu fyrsta flokks útsæði, tryggir
mesta og bezta uppskeru, og sendast
beint heim til yðar en koma ekki frá
umboðssölu hylkjunum í búðunum.
Fræ er lifandi vera. pvi fyr er
það kemur þangað, sem því skal sáð,
þess betra fyrir það sjálft, og þann
er sáir.
bæði á heimilinu og í kirkjunni flutti
erindi Jónas skáld Stefánsson frá
Kaldbak. Var það erindi flutt við
athöfnina í kirkjunni—Márus Doll
var góðum hæfileikum búinn og
vinsæll. Var um allmörg ár for-
maður Mikleyjarsafnaðar. Sömu-
leiðis átti hann sæti í sveitarráði um
æði langt tímabil, og það á þeirri
tíð þegar meira var sózt eftir þeim
sætum en nú er orðið.—Márus læt-
ur eftir sig mörg uppkominbörn,
flest nú gift fólk, nema yngstu dæt-
ur hans tvær , sem eru að læra hjúkr-
unarfræði. Alt saman mjög mynd-
arlegt fólk. Kona Márusar var
Ingibjörg Brynjólfsdóttir, ágætis-
kona, er andaðist úr spönsku-veik-
inni haustið 1918. Misti hann þá
einnig elzta son sinn í sömu vikunni,
efnispilt, nítján ára, er Jónas hét.—
Tvéir bræður hins látna eru á lífi
hér vestra og voru viðstaddir jarð-
arförina. Þeir eru Eyvindur Dall í
Riverton og Kristinn Doll, á Flugu-
mýri í Mikley.—
Þann 9. þ. m. lézt að heimili dótt-
ur sinnar, Mrs. A. H. Rafnson i
Minneapolis, Jón E. Johnson, ætt-
KREFJIST DAGSETTRA PAKKA
Hverjum manni ber réttur til að
vita að fræ það, sem hann kaupir
sé lífrænt og nýtt. Með nýtízku á-
höldum kostar það ekkert meira, að
setja dagsetningu á pakkana, þegar
frá þeim er gengið.
pvl A EKKI DAGSETNINGIN AÐ
STANDA?
Hin nýja breyting á útsæðislög-
unum krefst ekki dagsetningar á
pökkunum, en við höfum samt enga
breytingu gert.
KYNNIST ÚTSÆÐI YÐAR
Hver pakki og hver únza af Mc-
Fayden fræi, er dagsett með skýru
letri. McFayden fræ er vlsindalega
rannsakað og fult af llfi; alt prðfað
tvisvar. Fyrst rétt eftir kornslátt,
og svo aftur I Dominion Seed Testing
Laboratory.
Væri McFayden Seeds sent I búðir
I umboðssölu pökkum myndum vér
eiga mlkið ðselt .1 lok hverrar árs-
tlðar. Ef afganginum væri fleygt,
yrði þar um sllkt tap að ræða, er
hlyti að hafa I för með sér hækkað
verð á útsæði. Ef vér gerðum þaO
ekki, og sendum það út I pökkum
aftur, værum við að selja gamalt
fræ. pessvegna seljum vér aðeins
beint til yðar, og notum ekki um-
boðssöluhylkin; fræ vort er ávalt
nýtt og með þvl að kaupa það, eruð
þér að tryggja árangur og spara.
BIG ?5c Seed Specíal
Tíu pakkar af fullri
stærð, frá 5 til 10 centa
virði,'fást fyrir 25 cents,
og þér fáið 25 centin til baka með
fyrstu pöntun gegn “refund cou-
pon,” sem hægt er að borga með
næstu pöntun, hún sendist með þessu
safni. Sendið peninga, þú má senda
frímerki. Safn þetta er falleg gjöf;
kostar lítið, en gefur mikla uppskeru.
Pantið garðfræ yðar strax; þér
þurfið þeirra með hvort sem er.
McFayden hefir verið bezta félagið
síðan 1910.
Bandormur
Margir menn, konur og börn, nota
hin og þessi meðöl árangurslaust við
ýmsu, sem álitið er að gangi að þvl,
sem von er til, þar sem um bandorma
ræðir. Merki þess koma oft fram 1
lystarleysi, stundum þó I úeðlilega
mikilli matarlyst, gráhvltri tungu,
höfuðverk, þreytukend, meltingar-
leysi, óværum svefni, andremmu;
fylgja þessu oft sárindi I hálsi, dap-
urlyndi og veiklun I taugum og þar
fram eftir götunum. Bandormar eru
mjög mismunandi að lengd; getur
stundum svo farið að þeir verði frá
4 5 til 50 fet á lengd. Eins og gefur
að skilja, veltur mikið á að sllkur
óvinafagnaður sé numinn með öllu á
burt úr llkamanum, með þvl að dvöl
hans þar verður æ hættulegri með
hverjum degi sem liður. Að láta það
afskiftalaust að bandormur nái að
þroskast I manni dag eftir dag og ár
eftir ár, er með öllu ósæmilegt og ó-
verjandi. Tanex drepur ekki band-
orminn á svipstundu, því til þess
þyrfti það mikið eitur, er riða myndi
sjúklingnum að fullu. En Tanex
lamar svo starfsemi bandormsins, að
áhrif hans verða smátt og smátt að
engu. Efni þau, sem Tanex er sam-
sett af hafa hreinsandi áhrif á alt
líkamskerfið.
Taka má Tanex að morgni og nær
það venjulegast fullri verkun á
klukkustund.
Tanex er ekki selt I lyfjabúðum,
heldur sent beint til sjúklingsins frá
efnastofunni. pað er ekki sent
C.O.D. Lækninga skerfur með fullri
forskrift kostar $5.00. Sé yður ant
um að losna við bandorm, þá sendið
eftir Tanez nú þegar. Aðeins selt
hjá Royal Laboratory, 607 Royal
Bldg. Box 104 Windsor, Ont. (Klipp-
ið þessa auglýsingu úr blaðinu, geym-
ið hana og sýnið hana vinum yðar:
þeir geta orðið yður þakklátir
seinna).
NEW-TESTED SEED
Hvery Packet Dated
BEETS—Detroit Dark Red. The best
all round Red Beet. Sufficient
seed for 20 ft. of row.
CARROTS—Half Long Chantenay.
The best all round Carrot.
Enough Seed for 40 to 50 ft.
of row.
CUCUMBER--Early Fortune. Pickles
sweet or sour add zest to any
meal. This packet will sow 10
to 12 hills.
LETTUCE—Grand Rapids, Loose
Leaf variety. Cool, crisp, green
lettuce. This packet will sow 20
to 25 ft. of row.
ONIO.N—Yeliow Globe Danvers. A
splendid winter keeper.
ONION—White Portugal. A popular
white onion for cooking or
pickles. Packet will sow 15 or
20 ft. of drill.
PARSNIP—Half Long Guernsey.
Sufficient to sow 40 to 50 ft. of
drill.
RADISH—French Breakfast. Cool,
crisp, quick-growing variety.
This packet will sow 25 to 30
ft. of drill.
TURNIP—White Summer Table.
Early, quick-growing. Paekét
will sow 25 to 30 ft. of drill.
SWEDE TURNIP—Canadian Gem.
Ounce sows 75 ft. of row.
$2QO°.°Cash Pi izes$?OQ£.°
I hveiti áætlunar samkepni vorri, er
viðskiftavinir vorir geta tekið þátt I.
Upplýsingar I McFayden Seed List,
sem sendur er með ofangreindu fræ-
safni, eða gegn pöntun.
ÓKEYPIS.—Klippið úr þessa aug-
lýsingu og fáið ókeypis stóran pakka
af fögrum blómum.
Miklll afsláttur til félaga og er
frá þri skýrt í frœskránni.
McFayden Seed Co., Winnipeg