Lögberg - 20.06.1935, Page 1
PHONE 86 311
Seven Lines
m
a
a
|V»' ^
>vc'rV''^"V Dry Cleíning
3nd Laundrj
Por
48. \RG\NGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 20. JÚNÍ 1935
NÚiMER 25
Erindrekar hins nýafstacfna
Ungmennaþings í Winnipeg,
ásamt nefnd þeirri úr Kirkju-
fclaginu, er að stofnun Ung-
mennasambandsins vann.
Dagskrá Júbilíþings Kirkjufélagsins
FIMTÍU ÁRA AFMÆLI 19.—25. JÚNÍ, 1935
FÖSTUDAGINN 21. júní, kl. 8 e. h.—Stutt guðsþjónusta,
Séra N. S. Thorláksson prédikar. A eftir flytur Dr. B. B.
Jónsson fyrirlestur.
LAUGARDAGINN 22. júní, kl. 9 - 12 f. h., starfsfundur;
kl. 2-6 e. h. starfsfundur; kl. 8 e. h., enskt hátíðarmót,
kveðjur.
SUNNUDAGINN 23. júní, kl. n f. h.—Ensk afmælishátíðar-
guðsþjónusta, séra K. K. Ólafson prédikar.
Kl. 3 e. h.—Mót Sameinuðu kvenfélaganna.
Kl. 7 e. h.—íslenzk afmælishátíðar-guðsþjónusta, séra R.\in-
ólfur Marteinsson prédikar.
MÁNUDAGINN 24. júní, kl. 9-12 f. h., starfsfundur.
Kl. 2-6 e. h., starfsfundur. %
KI. 8 e. h.—Söngskrá helguð hátíðarhaldinu; söngflokkur
Fyrsta lúterska safnaðar, undir stjórn hr. Páls Bardal.
ÞRIÐJUDAGINN 25. júní, kl. 9- 12 f. h., starfsfundur.
Kl. 2-6 e. h., starfsfundur.
Kl. 8 e. h., íslenzkt mót. Hátíðarlok.
" K. K. ÓLAFSON, forseti.
Ur borg og bygð
Mr. James Johnson frá Ama-
ranth, Man., var staddur í borginni
seinni part fyrri viku, ásamt frú
sinni og syni.
Mrs. John David Eaton (Signý
Stephenson), er dvalið hefir undan-
farinn hálfsmánaðar tíma hér í borg-
inni í heimsókn til foreldra sinna,
Mr. og Mrs. F. Stephenson, 694
Victor Street, fór austur til heimilis
síns í Toronto á laugardaginn. Með
henni fór austur til nokkurra vikna
dvalar systir hennar, frú Anna
McKay.
Mr. Árni Ólafsson frá Brovvn
P.O., Man., l<om til borgarinnar á
föstudaginn var, ásamt frú sinni og
syni. Fólk þetta dvaldi hér fram
yfir helgina og hélt heimleiðis á
mánudaginn.
Dr. Jón A. Bildféll, er dvalið heL
ir við háskóla á Skotlandi síðan í
haust, kom til borgarinnar í vikunni
sem leið. Hafði hann nokkra við-
stöðu í Detroit, og kom með hon-
um hingað Hrefna systir hans, á-
samt syni sínum, í heimsókn til for-
eldra sinna, Mr. og Mrs. J. J. Bíld-
fell. Dr. Bíldfell er í þann veginn
að leggja af stað vestur til Borden,
Sask., til þess að gegna læknisem-
bætti í þvi héraði. Dr. J. P. Páls-
son hefir stundað; þar (lækningar
undanfarin ár, en er nú á förum til
íslands.
Dr. Richard Beck frá Grand
Forks, N. Dak., liélt af stað heim-
leiðis ásamt fjölskyldu sinni á laug-
ardaginn var, eftir tveggja daga
dvöl hér í“borginni.
Mr. J. T. Johnson frá Blaine,
Wash., kom hingað til borgarinnar
á fimtudaginn í fyrri viku, ásamt
frú sinni, og Mrs. D. Davidson,
einnig frá Blaine. Komu þau norð-
an úr Nýja íslandi, og voru þau
Mr. og Mrs. Einar Einarsson frá
Gimli í förinni. Ferðafólk þetta
lagði af stað samdægurs vestur til
Vatnabygðanna í Saskatchewan í
heimsókn til ættingja og vina. Mr.
Johnson er fæddur á Gimli, en frú
hans í grend við Hallson í North
Dakota.
Mr. Dan. Líndal frá Lundar,
Man., var staddur í borginni á föstu-
daginn var.
Mr. Jakob Hinriksson frá Ed-
nionton, er nýlega koniinn til borg-
arinnar, ásamt fjölskyldu sinni, og
ráðgerir að dvelja hér alt að mánað-
artíma. Mr. Hinriksscxn brá sér
norður til Gimli um helgina, í heim-
sókn til móður sinnar, frú Ásdísar
Hinriksson.
Hr. Friðrik Guðmundsson rit-
höfundur frá Mozart, Sask., kom
til borgarinnar fyrir helgina og mun
dveljast hér 9iokkurn tíma. Mr.
Guðmundsson fór suður til Moun-
tain á þriðjudaginn, ásamt séra Jó-
hanni syni sínum, presti að Lundar,
til þess að vera við hátíðahöld
kirkjufélagsins.
Séra Jóhann Fredriksson frá
Lundar, kom til borgarinnar síðast-
liðinn fimtudag, með son sinn til
lækninga. Var drengurinn skorinn
upp samdægurs á Almenna sjúkra-
húsinu. Dr. Númi Hjálmarsson var
í för með séra Jóhanni.
Mrs. Sigurður Björnsson að 679
Beverléy St., fór í bíl vestur til
Moose Jaw, Sask., siðastliðinn laug-
ardag, ásamt börnum sínum tveim-
ur, þeiin Ingimar og Ednu, og
tengdamóður sinni, Mrs. Magnús-
son, í heimsókn til sonar síns, Björns
A. Björnsson og frúar hahs, er þar
eiga heima. Ferðafólk þetta ráð-
gerði að verða um hálfan mánuð að
heiman.
Mr. Sveinn Thofvaldson kaup-
maður í Riverton dvaldi í borginni
um helgina, ásamt frú sinni. Frí-
múrarar í Selkirk héldu þeim hjón-
um veglegt samsæti í tilefni af því,
er hans hátign George Bretakon-
ungur kvaddi Mr. Thorvaldson til
félaga í Regluj hins brezka veldis.
Við hátíðár-guðsþjónustuna í
Fyrstu lútersku kirkju á sunnudags-
inorguninn kemur, kl. 11, syngur
ungfrú Christene Gunnlaugson, sú
er góðan orðstýr gat sér á ítalíu
undir nafninu Leonita Lanzoni.
Síðastliðið ár hefir Miss Gunnlaug-
son verið yfirkennari í söngfræða-
deild Baldwin College í Virginia,
skamt frá Washington.
Mrs. Helga Tighe frá Winnipeg.
osis, dóttir þeirra Jónasar .píatió-
kennara PáEsonar og Emilíu Páls-
son, kom til borgarinnar á mánu-
dagskvöldið, ásamt Óskari tengda-
bróður sínum. Fóru þau norður til
Selkirk á miðvikudaginn, en lögðu
af stað heimleiðis um kvöldið.
Mrs. Halldór Bjarnason, 704
Victor Street og Anna dóttir henn-
ar, hjúkrunarkona, fóru vestur til
Davidson, Sask., J vikunni sem leið,
í heimsókn til dóttur og systur, Mrs.
John Vopni. Þær komu heim síð-
astliðinn mánudag. Miss Bjarna-
son fer til New York á laugardag-
inn kemur, þar sem hún hefir un,d-
anfarandi stundað hjúkrunarstörf.
Fyrirlestur um efnið Var og er og
verða mun, flytur séra Björn B.
Jónsson á fyrstu samkomu kirkju-
þingsins í Winnipeg, nú á föstu-
dagskvöldið kemur. öllu fólki er
boðið á samkomu þessa.
Að heimili þeirra Mr. og Mrs.
Hjálmar A. Bergmans, 221 Ethel-
bert St., stóð brúðkaupsveizla
einkar rausnarleg, síðari hluta laug-
ardagsins 15. þ. m. Giftu þau hjón
þar dóttur sína, Ethel Ingibjörgu,
Joseph Trelawney Vyvian May,
ungum fésýslumanni hér í bor^, Dr.
Björn B. Jónsson framkvæmdi
hjónavígsluna. Miss Claudia Berg-
man frá Minneapolis lék brúðarlag
á slaghörpu við innkomu brúðar-
innar, og söng í lok athafnar mjög
fagurt lag. Margt var gesta í boð-
inu og var stundin öllum gleðileg.
Brúðhjjóinin eru nú á skemtiferð
suður um Bandaríki.
Mannfagnaður
Á laugardagskvöldið þann 15.
yfirstandandi mánaðar, var þeim
Páli S. Pálssyni skrifstofustjóra og
frú Ólínu Pálsson, haldið veglegt
silfurbrúðkaupssamsæti í fundarsal
Sambandssafnaðar, er mikill mann.
fjöldi tók þátt í. Var þar farið
eftir prentaðri skemtiskrá, og er
slíkt til stórra bóm frá því sem oft
viðgengst, er svo að segja hver og
einn veizlugesta er óundirbúinn
kvaddur til máls. Dr. Rögnvaldur
Pétursson stýrði samsætinu. Hófst
þessi eftirminnilegi mannfagnaður
með því að syngja nokkur vers úr
brúðkaupssálminum “Hve gott og
fagurt og indælt er. Ræðurnar, sem
allar voru stuttar, og þeim mun
betri, fluttu Dr. Rögnvaldur Péturs-
son, Capt. Joseph B. Skaptason, frú
Hólmfriður Péturssorl, hr. Jiakob
Kristjánsson, Dr. M. P>. Halldórs-
son, frú Jóhanna G. Skaptason, J. J.
Bíldfell, hr. Sveinn Thorvaldson,
M.B.E. og Dr. Sveinn E. Björns-
son. Að lokinni hinni reglubundnu
skemtiskrá, ávörpuðu silfurbrúð-
hjónin þeir hr. Gísli Johnson, séra
Philip Pétursson og hr. Ingi Borg-
fjörð, guðfræðanemi. Á milli ræð-
anna var sungið margt íslenzkra
þjóðsöngva. Veizlukostur allur var
hinn ríkmannlegasti. Forkunnar
fagrar minjagjafir voru þeim Pálson
hjónum afhentar frá viðstöddum
vinum og fjarverandi velunnurum,
auk þess sem þeim barst hinn mesti
aragrúi samfagnaðarskeyta víðsveg-
ar að. Samsæti þetta bar ótvíræðan
vott um vinsældir þær og virðingu,
er silfurbrúðhjónin hvarvetna njóta.
Páll S. Pálsson er fjölhæfur og
liðtækur íslendingur hvar sem leið
hans liggur; hann er gott skáld og
listrænn mjög. Frú Ólína er glæsi-
leg ágætiskona, er tekið hefir, ásamt
manni sínum, all veigamikinn þátt í
félagsmálum Vestur-Islendinga.
Þau hjón eru enn tiltölulega ung,
og er þess að vænta að þeim megi
auðnast um Iangt skeið, að vaka og
vinna í þjóðfélagi voru.
Systurdóttir frú Ólínu, Geraldine
Florence Einarsson, afhenti henni
yndisfagran blómvönd í tilefni af
silfurbrúðkaupsfagnaðinum.
VEKUR ATHYGLI A SVIÐI
DRAMATISKRAR LISTAR
I höfuðborg British Columbia-
fylkis, Victoria, býr islenzk kona,
Mrs. Rósa Semple (Rósa Egilsson),
er vakið hefir á sér allmikla athygli
eigi aðeins í Victoria, heldur og um
alt fylkið, fyrir afrek sín og áhuga
á sviði dramatískrar listar. Það er
ekki einasta að kona þessi hafi sam-
ið leikrit, heldur hefir hún stjórnað
sýningu þeirra líka.
Á nýafstaðinni leiksamkepni, er
háð var í Victoria, og 35 leikflokk-
ar tóku þátt í, sýndi Mrs. Semple
þann af leikjum sínum, er “Ghost”
nefnist; er þetta skopleikur, er hlaut
hið mesta lof af hálfu dómenda og
áhorfenda, og lék Mrs. Semple sjálf
aðalhlutverkið. Lady Margaret
Tupper skipaði forsæti í dómnefnd-
inni.
Mrs. Rósa Semple átti um eitt
skeiðl heima hér í Wjnnipeg, og
minnast hennar vafalaust margir frá
þeim tímum.
Það er gott til þess að vita, er
íslendingar vekja á sér athygli í
einhverju þvi, er til verulegs menn-
ingarauka miðar, eins og Mrs. Rósa
Egilsson Semple nú hefir gert á
sviði hinnar dfamatísku listar.
í Fyrstu lútersku kirkju voru
síðastliðinn laugardag gefin saman
í hjónaband John A. Spurway og
Una Sigríður Johnson. Dr. Björn
B. Jónsson framkvæmdi athöfnina.
Mr. S. K. Hall lék á orgelið og Mrs
Hall söng viðeigandi lög á undan og
eftir athöfninni. Á eftir athöfninni
í kirkjunni var margt gesta i veizlu-
boði að heimili Dr. Ólafs Björnsson-
ar, 7Ó4 Victor St. Ungu hjónin
héldu af stað samdægurs til fram-
tíðarheimilis sins, sem verður á bú-
garði skamt frá Dauphin, Manitoba.
Dr. Sveinn E. Björnsson frá Ár-
borg, var staddur í borginni um síð-
ustu helgi, ásamt frú sinni.
Fáein orð um skóla
málið
Eg hefi alt af staðið í þeirri mein-
ingu að Jóns Bjarnasonar skóli hafi
verið bygður sem minnisvarði þess
manns, hvers nafn hann ber, og að
þessum minnisvarða ætluðu íslend-
ingar hér að hlynna og ekki láta
undir lok líða, svo lengi sem íslenzk
kirkja væri við lýði, eða nokkurt
íslenzkt félagslíf gæti hér þróast.
Nú kemur mér þetta alt öðru vísi
fyrir sjónir en eg hafði hugmynd
um áður, þar sem nú er verið að
rífa niður Jóns IJjarnasonar skóla
eða afmá sem stofnun íslendinga
hér, og það með þeirri frekju og
ákafa að undrum gegnir; einmitt
eins og skólinn stæði í vegi allra
framkvæmda og góðs fyrirkomulags
heildarinnar andlega og líkamlega
eða svo er að heyra á greinum þeim,
sem blöðin okkar nú hafa flutt frá
mótstöðumönnum skólans.. (Eg
segi mótstöðumönnum, en það er ef
til vill ekki rétt, þó í sumum atrið-
um greinanna komi svo fyrir sjón-
ir að sé um fleiri en einn að ræða).
Þessi þráláta ásókn kemur nú úr
þeirri átt, sem fáír mundu hafa
búist við, og er afar-skrítið og næst-
um óskiljanlegt, þar sem það er
maður, sem lítið hefir til fram-
kvæmdamála lagt áður, og þar að
auki ætti að koma fram til uppbygg-
ingar en ekki niðurdreps málefnum
meirihluta þjóðarbrotsins hér.
Nú stendur yfir fimtíu ára afmæli
kirkjufélagsins, sem hlýtur að vera
helgað og haldið í minningu manns-
ins, sem það stofnsetti, séra Jóns
Bjarnasonar, og sem lagði alla sína
krafta í að auðga og efla það félag
til hinstu stundar, og það ber hans
menjar og merki til enda. Nú lítur
þannig út sem einn af prestum
kirkjufélagsins sé eins og að hælast
yfir því að ‘þetta kirkjuþing, sem
nú stendur yfir mun afmá með öllu
þann litlu minnisvarða, sem séra
Jóni Bjarnasyni var reistur.
Alt þetta móthald, sem Jóns
Bjapiasonar skóli hefir haft að
mæta, er ekkert annað en óþarfa
mælgi, því skólinn hefir verið ís-
lendingum til heiðurs og þaðan hafa
komið fjölda margir landar vel
mentir og margir komist í góðar
stöður, enda hefir hann haft af-
bragðs kennara frá byrjun.
Eg, sem skrifa þessar línur bið
hr. ritstjóra Lögbergs um að veita
þeim rúm í sínu góða blaði.
G. f. Papfjörð. . .
--------------------------------—---------------------.*
Til Páls og Olínu Pálsson
á tuttugu og fimm áfa giftingarafmæli þeirra
15. júní 1935.
Eg vil stilla minn róm, við hinn indæla óm
Frá alheimsins töfrandi firð.
Þegar loftið er þrungið með hátíða hljóm,
I hjartanu er friður og kyrð.
Sjálf jörðin þá íklæðist ilmandi skart.
Mér andvarinn leikur um kinn.
Við sumarsins töfra, við sólskinið bjart
Æ, sæluna dýpstu eg finn!
Inn á draumanna lönd eg með deginum svíf
Þar sem dásemdir allar eg skil.
Því að líf mitt er æska, og æska mitt Ííf,
Hún er eilíf með hörpunnar spil.
Sem döggvaðar rósir við röðulsins skin
Hún rís upp við straumanna yl.
Hún vekur hvert smáblóm, hvern hávaxinn hlyn,
Sem heyrir þó jörðunni til.
Og því vil eg flétta úr laufunum Ijóð
Til að leggja í vinanna skaut;
Eg vil láta hvert tár, allar sorgir í sjóð
Til að sigra í hættum og þraut
Og gott er þá einnig að hlúa’ að þeim hlyn
Sem hærra upp úr moldinni rís
Þegar stormarnir næða um hið norræna kyn
Og nálin á stofninum frýs.
Það sakar ei hót þó að hættan sé stór
Og þó hvarvetna sýnist oss tál,
Því áranna straumur í úthafið fór
Til arðs fyrir Línu og Pál.
Sem bergmál frá íslenzkum Álfheima kór
í æskunnar lundglöðu sál.
Þau erft höfðu sagnir um Óðinn og Þór,
Og Egil og Gretti og Njál.
Og það mun ei farast sem blómgaðist bezt
A bernskunnar fornhelgu tíð,
Því röm er sú taug sem við fjöllin er fest,
Við fossa og læki og hlíð.
Og þið hafið elskað þær minningar mest
Þá meistarans fegurstu smið.
Og hvenær sem íslenzku ljóðin þú lest
Þá ljúkast upp gróðurlönd fríð.
S. E. Björnsson.