Lögberg - 27.06.1935, Page 1

Lögberg - 27.06.1935, Page 1
48. ARG4NGUR , WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 27. JÚNÍ 1935 NÚMER 26 Hálfrar aldar afmœli kirkjufélagsins Hátíðahöldin að Moiuitain Eftir PROF. RICHARD BECK Allar leiðir lágu til Mountain, North Dakota, á miðvikudaginn var, þ. 19. þ.m.; en þá um kveldið hófust þar vegleg hátíðahöld í tilefni af hálfrar aldar afmæli “Hins Evengelis k-Lúterska Kirkjufélags íslendinga í Vestur- heimi.” Var það svo sem sjálf- sagt, að það merka afmæli væri að einhverju leyti hátiðlegt hald- ið á þeim söguríku stöðvuni-Js- lendinga vestan hafs, því að þar stóð vagga Kirkjufélagsins. Nokkurn kviðboga bera menn jafnan Jyrir veðurfari þegar um slík hátíðahöld er að ræða, og eigi að ófyrirsynju.' En að þessu sinni tóku veður-vættirnar hönd- um saman við bygðarlnia um að gera hátíðahöldin sem veglegust og minnisstæðust. Hreinviðri ríkti hátíðisdagana, er minti á íslenzkt fjallaveður. Sveitavegir voru því allir greiðfærir, og gerði það drjúgum hægara um vik bæði hvað aðsókn og aðdráttu snerti. Menn voru því eins og við átti í hátíðarskapi — sólskinsskapi — og bar enn fleira til þess. Nú blöstu eigi við augum skrælnuð akurlönd og dauðaleg, svo sein verið hafði á undanförnum sumr- um; nú var Dakótabygðin is- lenzka í Pembínahéraði blómleg og búsældarleg ásýndum; “akra- haf—sem Húnaflói” hló þar við sjónum. Og þó fullmikið sval- viðri væri með köflum hátíðis- dagana, glitraði sólskinsgullið ó- sjaldan á Iaufprúðum skóglund- um og gróðurgrænum ökrum. Síðdegis á miðvikudaginn tók fólk að streyma til Mountain úr öllum áttum. óku menn í hlað að Samkomuhúsi bæjarins gegn- um hlið skreytt þjóðfánum Ban- daríkja og íslands; en yfir hliðinu var skilti eitt mikið, sem bauð menn velkomna með viðeigandi áletran, eins og framrétt vinar- hönd. Formaður hátíðarnefnd- arinnar að Mountain, hr. J. J. Myres, og aðstoðarmenn hans, voru til staðar í samkomuhúsinu gestum til fyrirgreiðslu og vísuðu þeim til gististaða þeirra. KL 6 var sezt að kveldverði í samkomu- húsinu og voru borð þá þegar fjölsetin, þó enn fleiri bættust i hópinn síðar. Hátíðahöldin hófust, eins og til stóð, þá um kveldið með til- komum i k i 11 i guðsþjónustu í kirkju Víkursafnaðar að Moun- tain, elztri íslenzkri kirkju í Vesturheimi, þar sem stofnfund- ur Kirkjufélagsins hafði haldinn verið fimtíu árum áður. Var tal- ið, að um 600 manns hefðu verið viðstaddir hátíðar-guðsþjónust- Una, og bar gjaJlarhorn (Ioud speaker) ræður og söng til mann- fjöldans, sem safnast hafði sam- an hjá kirkjunni, og eigi gat rúm fengið innan hennar, þar sem hvert sæti var skipað, og meir en það. Forseti kirkjufélagsins, séra Ivristinn K. ólafsson, prédikaði við hátíðarguðsþjónustuna og flutti tímabæra og áheyrilega ræðu; var það kjarni hennar, að kirkjunni sjálfri, og kirkjulýð, hæri, að leggja á athafnir sínar og líf alt mælikvarða breytni meistara síns, Jesú Krists. Heimapresturinn, séra Har- aldur Sigmar, var fyrir altari við guðsþjónustuna og stýrði altaris- göngu - athöfninni með aðstoð séra Egils Fáfnis frá Glenboro, Man. Tóku'um 150 manns þátt í altarisgöngu, og mun það vera með fjölmennari athöfnum þeirr- ar tegundar vestan hafs. Stærðar söngflokkur og vel æfður, undir stjórn Mrs. H. M. Eastvold (Eriku Thorlaksson), söng hátíðarsöngva við guðsþjón- ustuna, er uku eigi lítið á áhrifa- magn hennar. En yfir henni allri hvíldi samræmur blær helgi og hátíðleika. Átti umhverfið einn- ig sinn þátt í því:—kirkjan, vígð ógleymanlegum minningum í sögu íslenzkrar kristni vestan hafs, og grafreiturinn umhverfis hana, hvílustaður feðra og mæðra bygðarinnar og frumherja í hinu kirkjulega starfi. Fimtudagurinn, aðaldagur há- tíðahaldsins að Mountain, rann upp sviphreinn og svalur. Fyrri hluta dagsins var haldinn þing- fundur í kirkjunni, er margir sóttu, auk klerka og fulltrúa. Á hádegi sátu allir þinggestir mið- degisverð í samkomuhúsinu að Garðar, og skiftu aðkomumenn þá orðið hundruðum. Ekki var þó langt liðið af há- degi, þegar menn streymdu á ný til Mountain, til þess að njóta af- mælishátíðarmóts þingsins, sem haldið var í rúmgóðum og skugg- sælum skemtigarði bæjarins, og byrjaði laust eftir kl. 2. Stýrði forseti kirkjufélagsins, s é r a Kristinn, mótinu, er hófst með því, að söngflokkur hvgðarinnar og þingheimur sungu: “ó Guð vors lands.” Bæjarstjórinn að Mountain, hr. M. F. Björnsson, bauð því næst gesti velkomna með stuttri, en fjörugri ræðu. Rak nú hver ræðan aðra. Séra Hans B. Thorgrímsen, er frum- kvæðið átti að stofnun kirkjulel- agsins, lýsti þeim sögulega við- burði og tildrögum hans; séra N. S. Thorláksson rakti sögu fél- agsins fyrsta aldarfjórðunginn; en dr. Björn B. Jónsson hafði að umtalsefni andlegu straumhvörf- in aldarfjórðunginn síðasta og áhrif þeirra á kirkjufélagið. Var ágætur rómur gerður að ræðum þessum. Fjórði ræðumaður var Richard Beck, og er ræða hans birt á öðrum stað hér í blaðinu. Fluttu þá eftirfarandi prestar kirkjufélaginti kveðjur og vel- farnaðaróskir:—Rev. A. H. Hel- sem, norskur prestur í Grafton, N. Dak., fyrir hönd Norður Dak- SÉRA K. K. ÓLAFSÖN, er endurkosirm var til forseta á nýafstöðnu júbílþingi kirkjufélags- ins. ota deildar norsk-amerisku kirkj- unhar lútersku; Rev. F. Nelsoh, sænskur prestur frá Saskatoon, Sask., fyrir hönd Ágústana synod- unnar sænsku í Bandaríkjunum; og dr. Rögnvaldur Pétursson fyrir hönd “Hins Sameinaða Kirkju- félags íslendinga í Vesturheimi.” Féllu ræður þeirra sýnilega í góð- an jarðveg hjá tilheyrendum, ekki sízt ræða dr. Rögnvaldar. Kveðjur og árnaðaróskir af hálfu Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi flutti ,vara - forseti þess, Richard Beck, í fjarveru forsetans, hr. .1 .1. Bildfells. Milli ræðanna skemti söng- flokkurinn með söngvum á ís- lenzku og ensku. Lauk svo þessu eftirminnilega hátíðarmóti með því, að allir sungu íslenzka og kafiadiska þjóðsönginn. Hat'ðí hinn mikli mannfjöldi—þúsund manns eða þar um bil — verið harla spakur undir langri dag- skrá, þó mörgum þætti svalviðrið úr hófi fram. Notaðist og’mann- tfjöldanum það, sem fram fór, stórum betur fyrir það, að gjall- arhorn fluttu ræður og söng um gjörvalt samkomusvæðið, svo glögt mátti heyra. Var nú kveldverðarhlé, en að því búnu flvkktust menn aftur að samkomuhúsi Mountainbæjar, á ungmennamót það, sem haldið var þá um kveldið í sambandi við kirkjuþingið, og 500—600 manns sóttu. Hr. Ásgeir Bardal frá Winni- peg skipaði forsæti og setti motið með stuttri ræðu. En aðal ræðu- maður var séra Valdimar Eylands frá Bellingham, Washington, er flutti einkar athvglisverða og skörulega ræðu um afstöðu yngri kynslóðar nútíðarinnar til kirkj- unnar. Aðrir, sem til máls tóku, voru séra K. K. ólafsson; séra Egill Fáfnis, er las erindi eftir hr. John Nordal frá Argvle, og frumort kvæði; og hr. Jón Sig- urðsson frá Selkirk, Man. Mikill og góður söngur og liljóðfærasláttur voru einnig á skemtiskránni. Miss Esther Ara- son frá Argvle söng einsöng; en tvísöng sungu þær systurnar Mrs. I.. E. Murdoch og Miss Margaret Eyman frá Selkirk, Man. Söng- flokkurinn söng enn ýmsa söngva, meðal annars nýtt kvæði eftir séra N. S. Thorláksson, er áður var lesið af höfundinum. Mrs. H. M. Eastvold og hr. H. S. Sigmar léku tvileik á fiðlu, en Mrs. H. Sigmar annaðist undir- spilið. Var liðið langt á kveld er þess- ari fjölbreyttu og myndarlegu samkomu sleit, og dreifðist þing- heimur þá í ýmsar áttir. Prestar, fulítrúar og aðrir gestir þingsins sátu skilnaðarveizlu hjá sóknar- prestinum, séra H. Sigmar og frú hans; ræddu um atburðaríkan liðinn dag og rifjuðu upp gömul kynni.' Sama veðursældin hélzt á föstudaginn, er helgaður var þingstörfum fram undir hádegi, en þá söfnuðust menn saman til SR. VALDIMAR J. EYLANDS Þessi vinsæli og gáfaði kenni- maður er fæddur þann 3. marz árið 1901; hann útskrifaðist af Gagn- fræðaskóla Akureyrar 1919 og flutt. ist til Vesturheims 1922. Séra Valdimar lauk B. A. prófi við Con- cordia College, en guðfræðaprófi við Luther Theological Seminary í St. Paul, Minn. Séra Valdimar var vígður til prests þann 21. júní, árið 1925, og þjónar um þessar mundir íslenzkum söfnuðum í Blaine og Point Roberts, ásamt enskum’söfn- uði. Séra Valdimar prédikar við báðar guðsþjónusturnar í Fyrstu lútersku kirkju á sunnudaginn kemur. miðdegisverðar í samkomuhús- inu að Akra, N.D., áður en lagt var af stað til Winnipeg, þar sem framhald þingsins skyldi háð. ★ ★ ★ Þessi einstæðu og veglegu há- tíðahöld að Mountain verða óefað lengi minnisstæð þeim, er þau sóttu. Studdi margt að því:— timamótin merkilegu, sem verið var að minnast, söguríkt og sum- arprútt umhverfið, góðviðrið, samkomurnar ágætu og fjöl- breyttu, og hin mikla aðsókn nær og fjær. ótalið er þó það, sem mest var að þakka, hversu prýði- lega hátíðahöldin tókust:—fyrir- hyggja og ötulleikur undirbún- ingsnefndarinnar og bygðarbúa, sem stóðij að baki forgöngu- mönnunum með eindregnum samvinnuhug, að ógleymdri gest- risninni, sem alstaðar breiddi að- komumönnum faðminn. Sú fagra ættarfylgja íslendinga lifir bersýnilega ágætislífi í Dakota- bygð þeirra í Pembínahéraði; sér ekki á henni minstu ellimörk. Þá áttu konurnar að venju mik- inn og góðan þátt i þvi, hve gest- um varð dvölin skemtileg í bygð- inni, \einkum að því er snerti móttöku þeirra og aðhlynningu. KVenfélög hinna ýmsu safnaða stóðu fyrir framleiðslu miðdegis- og kveldverða handa hinum MISS CAROL FELDSTED Þessi unga og efnilega stúlka, er dóttir þeirra Eggerts gimsteina og skrautmuna kaupmanns Feldsted og frú Jónínu Feldsted. Miss Feldsted vann nýverið fyrstu verðlaun i rit- gerðasamkepni, er margir keppend- ur tóku þátt í. Var ritgerð hennar um Ástralíu. mikla sæg þinggesta ineð þeirri risnu, sem einkent hefir íslenzk- ar konur, alt frá því á dögum fornkonunnar íslenzku, sem gisti- skálann lét gera um þveran al- faraveg. f einu orði sagt; hátíðahöldin voru öllum þeim til stórsæmdar, sem hlut áttu að máli. Mega for- menn undirbúningsnefndar og skemtinefndar að Mountain, þeir hr. .1. ,1. Myres og séra H. Sigmar, vel við una árangur elju sinnar og samverkamanna sinna og kvenna. Heiður bygðarinnar hef- ir vaxið við frammistöðuna að þessu sinni, eins og raunar oft- sinnis áður. En menn höfðu ekki aðeins fundið andans næring og hugar- hressing, og skemt sér, á hinuin ýmsu samkomum hátíðahald- anna. Eins og jafnap hefir verið á kirkjuþingum, og sérstaklega að þessu sinni, voru hér fulltrúar og aðrir gestir úr fjölda mörgum bygðum fslendinga og fjarlægum hver annari. Héldu menn því heimleiðis ríkir að hugljúfum minningum og auðugri að gagn- kvæmum vinarhug, fyrir endur- nýjuð gömul kynni og ný kynni hvers af öðrum. En sú hliðin á , hátiðahöldum sem þessum er 1 ekki lítils virði okkur dreifðum fslendingum á vesturvegum. Blómgist það alt, sem treystir bræðraböndin okkar á meðal, og sendir sundrungarandann út í hafsauga! Fréttabréf Frá Bredenhury í júní 1935. Tvo stóra daga átti bygÖ þessi fyrir stuttu. Hvítasunnuhátíðin kallaði menn saman í guðshús; varð húsið alskipað og gengu sextíu og átta til guðs borðs, ungir og gamlir. Fór athöfn þessi fram í kirkju Konkordía safnaðar. Stundin var hin ánægjulegasta og hátiðleg. Á mánudagskvöldið fór fram gift- ing í kirkjunni; gaf prestur Kon- kordía safnaðar saman þau Gísla Fyjólfsson og Dorotheu Friðriku Jóel. Kirkjah var prýðilega skrýdd blómum og borðum og alskipað hvert sæti meðan athöfnin fór fram. Brúðguminn er sonur Konráðs og Maríu Eyjólfsson hér í sveit, og brúðurin dóttir Mr. og Mrs. Sigfús Jóel í Winnipeg. Veðrið var með því allra ákjósan- legasta. Umhverfis “breiddist hin iðgræna jörð. En yfir guðs blásalur heiði.” Að lokinni athöfn i kirkjunni steig unga fólkið dans í samkomu- sal Konkordía safnaðar i grend við kirkjuna. Þá voru og bornar fram vistir miklar og ágætar og þar með "brúðarkaka” prýðileg með fanga- marki og giftingar-dagsetningu hjónanna, ásamt öðru skrauti. Eftirminnileg verður okkur þessi stund. Guð blessi hin ungu hjón á veg- ferð þeirra. S. S. C. Ur borg og bygð íslendingar í norðurbygðum Nýja íslands hafa ákveðið að halda sína árlegu þjóðminning- arhátíð á Iðavelli við Hnausa þ. 2. ágúst. Mrs. G. F. Gíslason, ásamt dætr- um sínum, þeim Beatrice og Þóru, lagði af stað í gær vestur til Van- couver, þar sem framtíðarheimili þeirra verður. Mr. Gíslason er fyr- ir nokkru farinn vestur, eins og þegar hefir verið getið getið um, og tekist á hendur framkvæmdar- stjórastöðu í Vancouverborg. ÞINGMANNSEFNI / SELKIRK . KJÖRDÆ.MI. Á f jölmennum fundi, sem haldinn var í Stonewall þann 20. þ. m., var Mr. G. S. Thorwaldson lögfræðing- ur, útnefndur sem þingmannsef-ni íhaldsflokksins í Selkirk kjördæmi. Aðfaranótt þess 26. þ. m., lézt hér i borginni Pálína Sigurðsson, föðursystir Guðbjargar Sigurðsson að 626 Agnes Street. Jarðarförin fer fram í dag, þann 27. frá útt’ar- arstofu Bardals. Fréttir af hitnj teútirminnilegu sönghátíð, er söngflokkur Fyrsta lúterska safnaðar efndi til í kirkj- unni á mánudagskveldð var, með aðstoð þeirra frú Sigríðar Olson, Snjólaugar Sigurdson, Pálma Pálmasonar, Walters Dalman og Franks Thorolísonar, verða að biða næsta blaðs, ásamt ýmsu fleiru, er sakir rúmleysis í blaðinu þessa viku komst ekki að. Mrs. Sigurbjörn Sigurðsson frá Riverton, dvaldi í borginni um kirkjuþingstímann, ásamt Agnesi clóttur sinni. Mr. John Hjörtsson, kirkjuþings- erindreki frá Garðar, N. Dak., sem dvalið hefir hér í borginni fram yfir kirkjuþing, ásamt frú sinni og dótt- ur, lagði af stað heimleiðis á mið- vikudaginn. í för með þeim var frú Kirstín Ólafsson og Mr. Gamaliel Thorleifsson. Miss Henrietta Sigurðsson frá Charleson, N. D., dvald í borginni um kirkjuþingstímann. Erindsrekar á 11. ársþing Lút- erskra Kvenna, er haldið var í Winnipeg laugardaginn, sunnu- daginn og mánudaginn, 21., 23. og 24. júní: Frá Langruth, Man., Miss L. Valdimarson, Mrs. J. A. Hannesson; Lundar, Mrs. H. J. Leo; Baldur, Mrs. O. Anderson; Fyrsta Lút. KVenfél., Winnipeg, Mrs. H. G. Henrickson, Mrs. G. M. Bjarnason, Mrs. H. Olson, Mrs. H. S. Bardal; Gimli, Man., Mrs. F. W. Shaw, Mrs. C. P. Paulson; Árborg, Man., Mrs. S. Oddsson, ] Mrs. H. F. Danielson; Árnes, Man., Mrs. Aug. Sigurdson; Riverton, Man., Mrs. Jóhanna Hallson, Mrs. Fred Eyolfson; Trúboðsfél. Fyrsta lút. safn., Mrs. W. Halldorson; Geysir, Man., Mrs. G. O. Gíslason; Glenboro, Mrs. S. E. Johnson; Grund, Mrs. O. Arason; Víðir, Mrs. Guðrún Magnússon; fvrir hönd Hall- grímssafn., Seattle, Mrs. R. Mart- einsson. Mr. Skúli Hjörleifsson verzlun- arstjóri frá Riverton kom til borg- arinnar á mánudaginn ásamt dótíur sinni, Mr. Marino Briem og Mrs. Jóhann Briem. Mrs. Svala Pálsson-Wagner frá Geysir, Man., dvaldi í borginni nókkra undanfarna daga.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.