Lögberg - 27.06.1935, Blaðsíða 3
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 27. JÚNÍ, 1935.
3
hvergi, þótt leitaÖ væri.
—Jæja, þá förum viÖ, sagÖi hún
og vék sér aÖ Guðmundi.
Hann stóð á fætur og horfði á
hana með velþóknun þess manns,
sem kann að meta kvenlegan yndis-
þokka.
Olga Olgeirs var há og grönn—
mátulega grönn. Andlitsfall hennar
var grískt að heildarsvip, en ekki að
hlutföllum, til þess var það ekki
nógu reglulegt. Stranglega dæmt
var andlitið ekki beinlinis fallegt,
en það hafði eitthvað það við sig,
að öllum sýndist það fallegt.
Ef til vill hafa augun átt mestan
þátt í því, þessi gráu, skörpu augu,
sem báru vott um meiri persónuleika
en samkvæmisstjörnur hafa venju-
lega. Hár hennar var ljóst og óað-
finnanlega liðað. Hún var í dökk-
bláu pilsi, gulrauðri peysu og hafði
slegið hvitum trefli um háls sér.
Þessi smekklegi búningur fór ein-
staklega vel við ljósa hárið—og
hreyfingar hennar, unglegar og
fjaðurmagnaðar, gáfu fötunum lif,
svo að þau virtust renna saman við
vöxt hennar og verða óaðskiljan-
legur hluti af henni sjálfri.
Þau höfðu verið úti að aka, farið
langt út úr bænum, en voru nú á
heimleið.Guðmundu^ sat við stýrið
og Olga við hlið hans.
Hann ók hægt.
Allan veturinn hafði hann verið
að eltast við Olgu. Hann hafði
ausið í hana gjöfum og peningum.
Hún hafði tekið á móti hvoru-
tveggja, en einhvernveginn haft lag
á þvi, að snúa hann út af laginu,
þegar hann ætlaði að njóta ávaxt-
anna af erfiði sínu.
En nú var Guðmundur búinn að
komast að þeirri niðurstöðu, að hann
þyrfti að gifta sig og eignast fyrir-
myndar heimili, þar sem eftirsóknar.
verðasta samkvæmisfólk borgarinn-
ar kæmi saman.
Og í allri Reykjavík hafði hann
ekki fundið neina konu, sem væri
þess verð að verða þeirrar náðar að-
njótandi, nema Olgu Olgeirs. Hún
ein hafði þá kosti til að bera, sem
nauðsynlegir voru húsmóður á hans
heimili.
Þetta var hann að hugsa um, á
meðan hann talaði við Olgu, um eitt
og annað. Og hann ásetti sér að
ljúka þessu af. Hann var nýbúinn
að horfa á bíómynd, þar sem þetta
gekk alt saman með amerískum
flugvélahraða.
—Ivonan var skÖpuð til þess að
auka fegurðina í heiminum, sagði
hann.
—Þess vegna leita eg fyrst og
fremst að fegurð hjá kvenfólkinu.
—Aðeins fegurð? spurði hún.
—Einungis fegurð, staðfesti
hann.—Fegurðin er aðalatriðið, þá
kemur alt hitt af sjálfu sér.
—Af sjálfu sér, endurtók hún og
tók vindling úr veski sínu.—Hugs-
um okkur fallega vinnukonu, sem
Læknar verki, bólgu og blóðrás af
PILES
(HÆMORRHOIDS)
læknast með Zam-Buk
Ointment 5Uc. Medicinal 8oap 25c
kemur út úr éinhverju húsi, með
skólpfötu i hendinni. Segjum að
hún sé í rifnum og óhreinum morg-
unkjól, með úfið og ógreitt hár,
kolahrím á nefinu og svart undir
nöglunum,—hvað þá?
Guðmundur Guðmundsson setti
upp móðgunarsvip.
—Eg var að tala um kvenfólk af
okkar tagi, sagð'i hann,—mentað,
fagurt og samkvæmishæft kvenfólk.
—Vinnukonur tilheyra ekki okkar
heimi, þær eiga sér aðra veröld og
annað umhverfi, ófínna og grófara.
Og þar eru líka karlmenn við
þeirra hæfi. Þar er ástin ekkert
annað en hinn ófagri, ótamdi leikur
kynjanna í samræmi við hið lága
menningarstig, sem það fólk stend-
ur á, en í algerðu ósamræmi við
okkar menningu.
—En heyrið þér, sagði Olga með
hæðnisvott' í röddinni,—voruð það
ekki þér, sem buðuð yður fram til
þings fyrir hinar vinnandi stéttir og
útmáluðuð það á umræðufundun-
um, að þær væru allra stétta ágæt-
astar að menningu, siðum og háttum
öllum ?
—Jú, en það sýnir bara það, að
eg skil hið rétta samhengi hlutanna.
Lægri stéttirnar eru margmennar og
þessvegna voldugar. Þær vilja láta
smjaðra fyrir sér. Þess vegna
smjaðrar maður fyrir þeim og not-
ar þær til þess að lyfta sér til vegs
og virðingar.
—Eg skil, svaraði Olga.
—Já, þér skiljið, því að þér eruð
fulltréji hámenningarinhar. Þess-
vegna hafi eg reynt að vinna yður
------vinna ást yðar, sem eg vona
að mér hafi tekist.
—Ekki tekist, svaraði Olga
snögglega.
Guðmundur Guðmundsson stöðv-
aði bilinn.
—Yður hefir misheyrst. Eg
sagðist vonast til að eg hefði unnið
ást yðar, og eg ætla að bæta því
við, að eg vonast til að þér giftist
mér. Við getum ekið til lögmannsins
beina leið.-----Hugsið þér yður
bara, hvílík fyrirmyndar hjón við
yrðum—og hversu margt og mikið
við gætum fegrað og lagað í hinu
reykvíska samkvæmislífi.
Olga kveikti í vindlingnum. Svo
hló hún hátt og hjartanlega.
—Nei, mér misheyrðist ekki. Þér
hafið ekki unnið ást mina og eigið
heldur aldrei eftir að vinna hana.
Guðmundur Guðmundsson ókyrð-
ist i sætinu.
■—Þetta hlýtur að vera misskiln-
ingur.
—Yðar megin ef til vill, svaraði
hún.
—Þér hafið þó tekið við . . .
WHAT ONE GIRL WORE
BY BETTY BROWNLEE
So much has been said about the
popularity of prints for summer wear
that at first thought it w o u 1 d
seem that there could be no more to
say on the subject. However, fash-
ions in prints change just as they do
in the lines of the frocks themselves.
It may be a season of large prints or
a season of small prints. There are
many varieties.
This season print fashions have run
to polka dots, checks and wildflower
patterns and such has been their
popularity that no ehange is indicated
for the rest of the summer.
Dots have been particularly in de-
mand and while, as we said before,
there is slight 'chanCe of the mode
changing in the next few months, the
enterprising textile designers have
fashioned new versions of the dot
prints.
Today we illustrate one of the new
midsummer frocks in an attractive
print which draws upon the dot for
its inspiration. It’s in a pink acetate
fabric with a thumb-tack print in
black. Cut on smiple lines, the skirt
is gored, with a slight flare at the
hemline achieved through the use of
inverted pleats. Being ideal for spec-
tator sports wear, this frock features
the short skirt.
The bodice is smartly tailored, also,
wíth a rather deep opening down the
front, fastened with bone clasps. In-
verted pleats are found in the short
sleeves, which fall gracefully from the
shoulders in cape fashion, and a simple
coilar, of the sports type completes
the picture.
A Smart Frock for Spectator Sports
Wear Is This IjitUe Print in Pink Acc-
tate Fabric With an Amusing Thumb-
Tack Design in Black. Sirnply Tailor-
ed, It Features the Sliglitly Shorter
Skirt Now tlie Trend for Sports aiul
Daytime Frooks.
— ... nokkrum hundruðuð króna
af yður, greip hún fram í. — Það
hefi eg gert af fleirum yðar likum.
Verkamennirnir við höfnina fá
meira kaup fyrir kolavinnu en aðra
vinnu. Hversvegna skyldi eg þá
ekki taka hátt kaup fyrir að vera
með yður og öðrum fulltrúum há-
menningarinnar ? Eg segi yður það
satt, að það er verra en kolavinna.
Olga opnaði nú hurðina og stökk
út úr bílnum.
Strætisvagn stöðvaðist í sama bili
rétt þar hjá. Guðmundur Guð-
mundsson stökk út úr bílnum á eftir
henni, en hann varð of seinn. Hún
var komin upp í strætisvagninn, §em
samstundis ók afstað í áttina til
liorgarinnar.
Enginn skyldi ætla að Guðmund-
ur Guðmundsson væri öreigi, þótt
Olga brygðist. Nei, hann átti marg.
ar aðrar vinkonur, ein þeirra var
lagleg dökkhærð vinnukona fyrir
vestan bæ. Þeirri vinnukonu hafði
hann mætt morgun einn, þegar
hann kom frá veizlugleði og vín-
drykkju. Síðan kom hann þangað
við og við, þegar hann mátti vera
að, og þegar stúlkan hafði ekki öðru
að sinna.
Þessi vinnukona var kölluð
Magga. Hún hafði víst afarerfiða
vist, að minsta kosti fékk hún aldrei
frídag. Á sunnudögum sagðist hún
verða að vinna eins og aðra daga,
og einu sinni kom hann á fimtudegi,
sem hann vissi að var frídagur
vinnukvenna, en þá var hún að
skúra gólf og kvaðst aldrei fá að
fara út í miðri viku.
Aðeins stöku sinnum á kvöldin
fékk hann að koma og heimsækja
hana.
Daginn eftir að hann hafði beðið
ósigur í loka-viðureigninni við Olgu,
fór hann að heimsækja vinnukon-
una um kvöldið.
Hann hafði örvað sig á áfengi og
var því i viðkvæmu hrifningarskapi.
Hann ók í bílnum, sem hann og
nokkrir félagar hans höfðu keypt í
sameiningu, en þóttist hver um sig
einn eiga, þegar mikið lá við að sýn-
ast mikill maður.
Guðmundur fór að hugsa um það
á leiðinni, að eiginlega hefði þetta
ekki gengið neitt með vinnukonuna.
Hann hafði ekki svo mikið sem kyst
hana. En nú skyldi til skarar
skríða.
Honum var það bráðnauðsynlegt
til að hressa upp á sjálfsvirðinguna,
eftir ósigurinn á hinum vigstöðvun-
um.
Líkast til yrði hún samt erfið
viðureignar, þær voru það oft, þess-
ar vinnandi stúlkur. Nú, en jæja,
þá var bara að segjast elska hana
og biðja hennar blátt áfram. Það
hlyti að hrífa, ef hún sæi að alvara
væri í leiknum.
Og Guðmundur Guðmundsson
leit á fötin sín með aðdáun, skoðaði
sig í bílspeglinum og brosti.
Hann gekk upp stigann og barði
að dyrum á vinnukonuherberginu.
—Kom inn!
Hann tók í snerilinn og gekk tígu-
legur og hnarreistur inn í herberg-
ið.
—Góða kvöldið, Magga mín. Nú
skulum við . . .
Hann gleypti setninguna og stóð
eins og negldur við gólfið.
Fyrir framan hann stóð Olga
Olgeirs, nákvæmlega eins búin og
þegar hún fór með honum út að aka
daginn áður.
—Góða kvöldið herra Guðmund-
ur Guðmundsson, sagði hún bros-
andi. — Það gleður mig að sjá
yður. Svo aðAinnukonurnar tilheyra
yðar glæsilega menningarheimi,
þrátt fyrir alt! Þær eiga sér raunar
ófína og grófa veröld, en eins og þér
sögðuð, þó eru þar líka karlmenn
við þeirra hæfi.
—Já, en — en — en, stamaði
hann.
—En, greip stúlkan fram í, —
þetta er nú til dæmis ljósa hárið
hennar Olgu. Svo tók hún af sér
parrukið og fleygði því á bortSið.—
Bíðið eitt augnablik, bætti hún við,
og gekk út úrherberginu.
Eftir örlitla stund kom hún inn
aftur í búningi Möggu, en með föt
Olgu á handleggnum.
Hún benti á Olgugervið.
PROFESSIONAL AND BUSINESS CARDS
PHYSICIANS and SURGEONS
DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office tímar 2-3 Heimili 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bldg. Talsími 26 688 Stundar augna, eyrna, nef og kverka sjúkdóma.—Er að hitta kl. 2.30 til 5.30 e. h. Heimili: 638 McMILLAN AVE. Talstmi 42 691 J Dr. P. H. T. Thorlakson 206 Medlcal ArU Bld*. Cor. Graham og Kennedy 8ta. Phonea 21 212—21 144 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200
l
DR. B. H. OLSON Dr. S. J. Johannesson G. W. MAGNUSSON
216-220 Medical Arts Bldg. Nuddlæknir
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Viðtalsttmi 3—5 e. h. 41 FURBY STREET
Phone 21 834--Office ttmar 4.30-6 Phone 36 137
Heimili: 5 ST. JAMES PLACE 218 Sherburn St.—Sími 30877
Winnipeg, Manitoba Símið og semjið um samtalstfma
BA RRISTERS, SOLICITORS, ETC.
H. A. BERGMAN, K.C. tslenzkur lögfrœöingur Skrífstofa: Room 811 McArthur Butlding, Portage Ave. P.O. Box 1656 PHONES 95 052 og 39 043 J. T. THORSON, K.C. lslenzkur lögfrœöingur 801 GREAT WEST PERM. BLD. Phone 92 756 W. J. LINDAL K.C. og BJORN STEFANSSON tslenzkir lögfrœOingar 325 MAIN ST. (S öðru gólfi) PHONE 97 621 Er að hitta að Gimli fyrsta miðvikud. í hverjum mánuði, og að Lundar fyrsta föstudag
a.
G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. tslenzkur löfffrœöingur E. G. Baldwinson, LL.B. tslenzkur lögfrœölngur
Skrifst. 702 CONFEDERATION LIFE BUILDING Main St., gegnt Clty Hall Phone 97 024 Phone 98 013 504 McINTYRE BLK.
DRUGGISTS DENTISTS
1 Medical Arts Drug Store R. A. McMillan PRESGRIPTIONS Surgical and Sick Room Supplies Phone 23 325 Medical Arts Bldg. Winnipeg, Man. DR. A. V. JOHNSON tsienzlcur Tannlœknir 212 CURRY BLDG., WINNIPEG Gegnt pðsthúsinu Simi 96 210 Heimilis 33 328 Drs. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEG
Phone Your Orders Roberts Drug Stores Limited Dependable Druggists Prompt Dellvery. Nine Stores DR. T. GREENBERG Dentist Hours 10 a. m. to 9 p.m. PHONES: Office 36 196 Res. 51 455 Ste. 4 Norman Apts. 814 Sargent Ave., Wlnnlpeg
BUSINESS CARDS
A. S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur llkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talsimi: 86 607 Heimilis talsími: 501 662 HANK’S HAIRDRESSING PARLOR and BARBER SHOP 3 Doors West of St. Charles Hotel Expert Operatora We specialize in Permanent Waving, Pinger Waving, Brush Curiing and Beauty Culture. 251 NOTRE DAME AVE. Phone 26 070 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgð af öllu tægi. Phone 94 221
A. C. JOHNSON 907 CONFEDERATION LIFE BUILDING, WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tekur að sér að ávaxta sparifé fólks. Selur eldsábyrgð og bif. reiða ábyrgðir. Skriflegum fyrir- spurnum svarað samstundis. Skrifst.s. 96 7 57—Heimas. 33 328 6iO°RE’S r^A/ ^ Ltd. 28 333 LOWEST RATES IN THE CITY Furniture and Piano Moving C. E. SIMONITE TLD. DEPENDABLE INSURANCE SERVICE lteal Estate — Rentals Phone Office 9 5 411 806 McArthur Bldg.
HÓTEL I WINNIPEG
THE MARLBOROUGH SMITH STREET, WINNIPEG "Winnipeg’s Down Trywn SoteJf 220 Rooms with Bath Banquets, Dances, Conventions, Jinners and Functlons of all kinds Goffee Shoppe F. J. FALD, Manager ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST„ WINNIPEG pœgilegur og rólegur bústaOur l miöbiki borgarinnar. Herbergi $.2.00 og þar yfir; með baðklefa $3.00 og þar yfir. Ágætar máltlðlr 40c—60c Free Parking for Ouesta SEYMOUR HOTEL 100 Rooms with and without bath RATES REASONABLE Phone 28 411 277 Market St. C. G. Hutchison, Prop. PHONE 28 411
Corntnall Ijotel Sérstakt verð á viku fyrir námu- og fiskimenn. Komið einte og þér eruð kíæddir. J. F. MAHONEY, framk væmdarstj. MAIN & RUPERT WINNIPEG
It Pays to Advertise in the “Lögberg”
—Sjáið þér til. Þetta er hinn
glæsilegi kvenmaður, sem þér báðuð
að verða eiginkonu yðar í gær,
til þess að lyfta samkvæmislifi
Reykjavíkur á hærra stig. — Ha,
ha, ha, ha! — Og þetta, — hún
benti á sjálfa sig—er Magga vinnu-
kona, sem þér hringduð til í dag
og sögðust ætla að heimsækja í
kvöld. En þér hafið sjálfir sagt,
að í heimi vinnukvennanna sé alt
samband milli karls og konu aðeins
ófagur leikur kynjanna—í samræmi
við hið lága menningarstig, sem
þessháttar fólk standi á.-------
—Og það sæmir ekki fyrir yður
glæsimennið, kvenna gullið, fulltrúa
hámenningarinnar, að eltast við
þessa lægstu tegund kvenna.----
Þess vegna þakka eg yður fyrir
skemtunina og býð yður góða nótt.
Og vinnukonan Magga, fyrver-
andi og ef til vill áframhaldandi
samkvæmisstjarnan Olga Olgeirs,
ýtti Guðmundi Guðmundssyni út úr
dyrunum.
—Lesb. Mbl.