Lögberg - 01.08.1935, Blaðsíða 5
LÖGBEŒtG, FIMTUDAGINN 1. ÁGÚST, 1935.
13
Frá Seattle, Wash.
—24. júlí 1935.—
Þó langt sé nokkuÖ liÖiÖ frá því
aÖ almennar fréttir sáust héÖan í
Lögbergi, þá hefir sá tími ekki leitt
í ljós nein sérstök viðbrigði, frá
því, sem verið hefir í langa tíð; en
beztu fréttirnar héðan, þó engin nýj-
ung kunni að þykja, eru góð veðr-
átta og gott heilsufar yfirleitt manna
á meðal, og er þá ávalt mikið feng-
ið til að auka ánægju og vellíðan
fólks. Yfir höfuð að tala verður því
ekki annað sagt, þrátt fyrir alt öfug-
streymi í rás viðburðanna, en að
almenningi líði hér sæmilega vel.
Að kvarta undan tímunum virðist
að vera gleymt, og menn komnir
yfir það að mestu. Vortiðin hefir
verið hér að heita má yndisleg alt í
gegn; sjaldan ef nokkurn tima hafa
komið hér fleiri sólríkir dagar en á
þessu vori, og vætur aðeins eða
naumast í sumum plássum, nógar til
frjófgunar jarðargróðurs, sem er þó
víðast í meðaliagi. Veturinn frá ný-
ári var einnig góður og mildur, og
flutti með sér fjölda sólbjartra
daga, að undanteknum marzmánuði,
sem var oftast heldur dimmur og
drungalegur í lofti, og þó að méstu
þurviðrasamur; rigndi aðeins part
úr fjörum dögum allan þann mán-
uð. Frost komu hér í janúar þrjá
daga, svo jörð fraus þá að nafninu
til 2 þuml., en þiðnaði innan örfárra
daga. Stöku hitadagar sterkir hafa
komið hér eftir miðjan þennan mán.
uð, og einn dag skrapp upp í 94
gráður, en vanalega hefir hitinn ver-
ið þennan mánuð 50 til 75 gráður.
í athafnalegu tilliti verður ekki
hægt að kveða samskonar lof sem
um veðrið og heilsuna fyrir þann
tíma, sem af er þessu ári. Flest
virðist þar að sitja að miklu leyti
við sama keip og á árinu sem leið,
og styrjöldin í atvinnugreinunum
sumum engu minni nú en þá. Bráð-
um hafa nú gengið tólf vikur í lát-
laust verkfall meðal trjáviðarmanna.
Sögunarmyllum og trjásöluplássum
hefir að mestu verið lokað upp allan
þann tíma, og hefir verkfall þetta
náð yfir alla ströndina frá Mexico-
línu til British Columbia og haldið
tugum þúsunda manna frá atvinnu.
Einnig hefir staðið yfir verkfall
nokkrar undanfarnar vikur milli
fiskiútgerðarmanna og kaupmanna
út af fiskverði, sem nú virðist þó
vera að mestu jafnað; enda máttu
fiskimenn ekki vel við því að kom-
ast ekki út á meðan fiskurinn gekk
hér í sundin, sem nú er að byrja
göngu sína, og lögðu þeir margir
út sunnudaginn þann 21. þessa
mánaðar.
En um myllumanna stríðið er þati
að segja, að nokkrar myllur hafa
verið opnaðar þessa síðustu daga,
undir herliði, til varnar ofsóknum og
meiðslum og jafnvel manndauða;
ganga þær þó ekki nema með hálf-
urn mannafla, enn sem komið er.
í svo mikið'óefni var komið milli
verkveitenda og union-manna, að
ríkisstjórinn hér sem i öðrum
strandfylkjum, fann sig knúðan til
að kalla út lið frá herbúðunum til að
skakka leikinn. En union-menn eru
þrjóskir fyrir og vilja margir hverj-
ir ekki láta undan síga; eru sárir í
anda til ríkisstjórans út af þeim til-
þrifum, og segja það geri ilt verra,
en margir út í frá álita það þó eina
ráðið til að koma á jafnvægi eða
einhvers konar samkomulagi. En að
slíkt verði, getur þó ef til vill átt
nokkuð í land enn.
Ef það væri ekki fyrir þessi enda-
lausu verkföll, sem reka hvert annað
hér á ströndinni, þá hefðu atvinnu-
timar máske verið betri nú en þeir
eru. En verkföllin hefta svo marg-
ar aðrar gerðir manna og hafa ætíð
vond áhrif á alla starfrækslu, hvort
heldur í verklegum sökum eða í
viðskiftalífinu. Þegar engin verk-
föll eru, þá er þó heldur meira líf í
verklegum framkvæmdum og hægra
fyrir með að athafna sig í flestum
greinum. En þrátt fyrir alt truflið
sem verkföllin hafa valdið hér i
borginni á þessu vori, hefir þó mörg.
urn fallist eitthvað til að gera (utan
verkfajlsmanna) og heldur færri
handverksmenn sitja uppi vinnu-
lausir nú, en árið sem leið, sem sjálf-
sagt má þakka hinu mikla bygginga-
láni er ríkisstjórnin veitti til allra
stórborga landsins, og sem Seattle
borg naut einnig góðs af, og sem
gengur alt, eða að mestu leyti, til
aðgerða og viðauka á íbúðarhúsum.
sem gert hefir verið talsvert af á
þessu vori. Um stórbyggingar er
naumast að ræða; þeir riku hafa
víst ekki séð sér fært enn að byrja
á þeim á ný, því örfáar hafa risið
upp af þeirra völdum á síðastliðnum
fimm árum hér í þessari borg.
Þar sem hið vanalega skólafri
stendur nú yfir og f jöldi skólafólks-
ins að skemta sér með heimsóknum
til vina og ættingja nær og f jær, eða
þá heima hjá sér, í skemtigörðum
og. sundplássum; einnig skrifstofu-
og annað strfærkslufólk að hafa
sína frítíma, þá .um leið hvíla ýms
félög sig í tvo til þrjá mánuði, með-
an sólin er heitust á himninum, og
fara víðsvegar út í sumarpllássin
eða eitthvað annað. Eftir venju taka
að mestu leyti félög okkar Islend-
inga sér hvíld frá störfum um há-
sumartímann; á öðrum tímum árs-
ins vinna þau eftir megni, einkum
kvenfélögin, þrátt fyrir peninga-
skortinn, sem er eins og farg á herð-
um okkar margra á þessum timum-.
Erfiðast gengur fyrir okkur nú með
kirkjuna og kennimannshaldið.
WHAT ONE GIRL WORE
BY BETTY BROWNLEE
In the summer wardrobe footgear
should be given especial considera-
tion. Shoeá should be chosen with
an eye to cooiness and comfort as
well as smartness, for the clever girl
will realize that there’s not much
satifaction in stepping out in her best
looking costume with acliing feet.
For this combined smartness and
comfort there is nothing quite like the
sandal. And footwear designers have
excelled this season in creating san-
dals for every occasion which are as
smart as any dress shoe.
A great many women do not rea-
lize this fact and confine themselves
to the wearing of sandals at the beach
or for dancing. But the season’s out-
put is infinite in variety, not only in
type but in color. In linen and other
fabrics they may even be had in two-
toned combinations which will match
any outfit.
Today we illustrate three types of
sandals that, together, will give ser-
vice from early morning until bed-*
time.
The first pair is an innovation in
beach sandals, being of cork with a
sock attached right to the shoe. The
sock is of striped cotton lastex in
bright colors so that it will match any
of your bathing suits or play suits.
The second model is a nice after-
noon sandal with a flat heel done in
white doe skin. Its many perforations
make it an especially cool and com-
fortable item as well as a fitting ac-
cessory to your smartest afternoon
costumes.
The evening sandal is of printed
cotton and with several colors used
in its design, it can be worn with any
evening gown.
These are just three of the many
Samlals That Can Be Worn From
Mornlng Until Night Inclnde, Above,
a New Beaeli Number of C’ork With
a Gaily Striped Cotton I,a,slcx Sock
Attaclied; an Afternoon Sandal of
Whltc Doeskin and an Evening Sandal
In a Colorful Ootton Frint Whieli
May Bc Worn with any Evening Gown.
types shcwn, but there are others for
all occasíons including classic sandals
of Grecian inspiration.
Þessir síðustu tímar hafa sett það
mót á efnahag okkar flestra, að við
getum ekki nema að litlum parti,
staðið straum af þeim kostnaði sem
því fylgir. I nokkuð langa síðustu
tið hefir þessi söfnuður verið að
hálfu leyti án þjónustu síns fasta
prests, séra Kristins K. Ólafssonar,
með sökum þess að söfnuðurinn
hafði ekki efni á að halda prest að
fullu, eins og stendur; svo er kirkja
okkar að öðru leyti með allstórri
skuld ennþá að baki sér, sem gerir
örðugleikana enn meiri. Séra Krist.
inn hefir þjónað undanfarin tvö ár
að parti íslenzku söfnuðunum í
Vatnabygðum í Saskatchewan í
Canada, eins og mörgum er kunn-
ugt, til skiftist við þjónustu sína
hér. Hann kom heim þaðan snöggva
ferð þ. 2. júlí, eftir tveggja mánaða
veru þar nú, og messaði þá hjá okk-
uFþann 7, en fór til baka þann 10.
Fjölskylda séra Kristins býr hér, og
sonur hans, séra Erlingur, prestur
! ensk-lútersks safnaðar i Juneau,
I Alaska, var hér staddur í fritíma
sínum frá söfnuði sínum, og mætti
! föður sínum hér. Hann kom hingað
með konu sinni að norðan í júní
’ mánuði, æn er nú horfinn aftur
1 norður. Hann gaf okkur eina messu
hér meðan hann stóð við; var hann
: lengst af á ferð og sótti kirkjuþing
í Oregon. Hann mun einnig þafa
messað í Blaine og Bellingham, í
fjarveru sóknarprestsins þar, séra
Valdimars Eylands, sem enn var
| austur frá eftir kirkjuþing Islend-
| inga að Mountain og Winnipeg.
1 Einnig gaf séra Carl Olson okkur
1 eina messu, þann 9. júní, í fjarveru
heimaprestsins, séra K. K. Ó.. Séra
Carl var þá enn þjónandi prestur i
: Central lútersku kirkjunni hér i
borg en hefir nú síðan sagt þeim
söfnuði upp og flutt með börnum
1 sínum f jórum til Winnipeg, til nýrr.
! ar stöðu þar, sem mér er ekki vel
kunnugt um hver er.
í langferð til Islands lögðu af
stað héðan séra Albert Kristjáns-
son, prestur únítarasafnaðanna í
Seattle og Blaine, þann 15. maí síð.
astliðinn, en frú Jakobína Johnson
skáldkona þ. i. júní. Var þeim
báðum haldið veglegt samsæti þann
14. maí og beðið allrar fararheilla
og heillar heimkomu með haustinu.
Einnig má geta langferðar frú Dóru
Lewis, “Superintendent of Home
Econo,my Schools,” er lagði af stað
frá heimili sinu hér þann 3. marz
s.l., til höfuðstaðar þessa lands,
Washington, D.C. Aðalerindi henn-
ar þangað var að takast á hendur
(með auknu prófi) yfirumsjón í
ellefu ríkjum, áðurnefndra skóla, i
stað eins rikis, Washington, er hún
hafði umsjón yfir áður. Verksvið
Mrs. Lewis mun vera hér í vestur-
ríkjunum. Henni var haldið virðu-
legt samsæti í samkomusal kirkju
okkar (Hallgrímskirkju) áður en
hún lagði af stað suður. Hefir hún
einu sinni komið heim siðan hún fór,
en þarf alt af að vera á ferðinni
milli þessara ellefu ríkja.
Það er ætið ánægjulegt að sjá
íslendinga eða niðja þeirra komast
hátt í mentastiganum, einkum þeg-
ar þeir bera þá góða stöðu úr býtum,
eins og margir þeirra hafa gert hér
í landi, eftir að námi þeirra var lok-
ið. Margra hefir verið getið opin-
berlega, að verðugu og með heiðri,
cn Var'ke helt til farra þ' Talsvert
111,1; . > hafa útskri fa:t hér at háskól-
anum, en engra hefi eg séð minst í
íslenzku blöðunum að undant vcnum
þeim þremur nemendum er luku
námi þar á þessu ári, og séra Krist-
inn ritaði um svo rækilega og þeim
til verðugs heiðurs, í siðasta Log-
bergi, No. 29. Væri óskandi að
hann gerði það aftur, að skrifa nm
háskólanemendur hér að afloknu
námi þeirra, því það eru aðeins
mentaðir menn, sem eru færir um
það svo vel sé sagt frá. Að kvöldi
þess 5. april hélt séra Kristinn fyrir.
lestur urn samkomulag Vestur-Is-
lendinga; áheyrilegt erindi og vel
flutt. Inngangseyrir gekk í safn-
aðarsjóð. (
Austangestir hafa verið hér í
seinni tíð George Benson frá Minne-
ota, Minn; kom hingað 10. febr. s.l.
og dvaldi hér með kunningjum og
vinum í kringum hálfa aðra viku.
Margt af Minneota-fólki, sem hér
1 býr var glatt að sjá hann. Þann 24.
júní komu 5 manns keyrandi í bíl
frá N. Dakota, systurnar Mrs.
Jensína Olafson frá Hensel og Mrs.
Dýrfinna Þorfinsson frá Mountain,
báðar voru þær i heimsókn til móð-
ur þeirra Mrs. Steinunnar Björns-
son og systkina, sem öll eru búsett
hér. Með þeim systrum voru Gest-
ur Jóhannsson háskólakennari,
Sveinn Jósephson og Magnús Hill-
man. Alt þetta fólk lagði af stað
héðan heimleiðis þ. 2 þ. m. Sömu
leið komu hingað frá Selkirk, Mani.
toba um miðjan þennan mánuð,
ekkjan frú Stefanía Sigurðsson og
börn hennar þrjú, séra Theodore,
Jón læknastúdent og Elín hjúkrun-
arkona. Er það fólk hér enn þegar
þetta er skrifað og heldur til hjá
gömlu vinafólki frá fyrri tíð, er
Mrs. Sigurðsson og maður hennar
séra Jónas Sigurðsson voru búsett
hér. Séra Theodore messaði fyrir
okkur hér s.l. sunnudag við heldur
góða aðsókn. Flutti hann tvær
ræður á ensku og íslenzku.
Mikill undirbúningur er nú hafð-
ur fyrir Islendingadaginn hér við
Silver Lake, þann 4. ágúst, og mun
marga fýsa að sjá þar og heyra
hina nefnkendu ræðumenn, séra
Jakob Jónsson og Barða Skúlason
lögfræðing, báða langt að komna,
ásamt mörgu fleiru, er þar fer fram.
Aðgangur að garðinum aðeins 35C.
Af Islendingum hér í borginni
hafa látist í síðustu tíð þessir:
Þann 21. október s.l. ár, Kristján
Sveinsson, sonur Árna heitins
Sveinssonar í Argylebygð, Mani-
toba og bróðir Mrs. G. Matthíasson-
ar hér í Seattle, 44 ára gamall; eftir
lifa kona og þrjú börn.
Þann 27. sama mánaðar dó kona
Sigurðar Simundssonar lögreglu-
manns, 48 ára gömul; var hún af
frönskum ættum. Áttu þau upp-
komin börn hér í borginni.
Þann 1. marz s.l. dó Mrs. Brancl-
ur Ormson (Margrét), 83 ára að
aldri.
Þann 17. júni s.l. lézt eftir langa
legu Frank R. Johnson (skírnar-
nafn Sigfús Runólfsson), 73 ára
gamall, eftirlifandi ekkja Sigurbjörg
Arngrimsdóttir (Johnson), fjórar
dætur og einn sonur.
H. Th.
Norræna Stúdentamótið
Kaupmannahöfn 26. júní.
Stúdentamótið fór þannig fram í
dag, að fyrrihluta dags voru fundir
haldnir um ýms stéttarmál stúdenta
og önnur menningarmál er þá varða,
og sameiginlegur morgunverður.
Síðari hluta dagsins var farið í bif-
reiðum til Norður-Sjálands og skoð-
aðir þar ýmsir merkir og sérkenni-
legir staðir, og að því loknu var
setin miðdegisveizla og flutti þar
aðalræðuna prófessor Vilhelm An-
dersen.
Um kvöldið var áformað að fara
í Tivoli, þar sem efnt var til sér-
stakra hátíðahalda í tilefni af stú-
dentamótinu, og þar með er hinum
opinbera hluta þess lokið.
Veizlur og önnur hátíðahöld.
Kaupmannahöfn 27. júni.
Á lokahátíð norrænaa stúdenta.
mótsins í gærkvöld, flutti|prófessor
Alexander Jóhannesson, háskóla-
rektor, erindi fyrir íslendinga hönd.
—Hann komst meðal annars svo að
orði, að íslenzka þjóðin væri að vísu
hreykin af fortíð sinni og þeim ljóma
sem af henni stafaði, en hún væri
miklu hreyknari yfir framtíðar-
möguleikum sínum og framtiðar-
hugsjónum.
Norræn stúdentafélög eru nú í
þann veginn að efna til ráðstefnu
að Hindsgavl á Fjóni til umræðu
um ýmis stéttarmál og er í ráði að
þar verði myndað stúdentasamband
Norðurlanda.—Mbl. 28. júní.
HENRY FORD 72 ARA
Á þriðjudaginn þann 30. júlí síð.
astliðinn, átti bilakonungurinn
heimsfrægi, Henry Ford, 72 ára af-
mæli. Nýtur hann enn hinnar beztu
heilsu og tekur fullan þátt í önn og
iðju viðskiftalifsins.
Crescent Creamery
Company Limited
Flytur sínum íslenzku vinum innilegar hamingju-
óskir í tilefni af 60 ára landnámi þeirra í Canada.
Crescent Creamery
Company Limited
hefir haft forgöngu í meira en 30 ár að því er
viðkemur framleiðslu
MJÓLKUR, RJÖMA og ISRJÓMA og SMJÖRS
Sími 37 101
Úr borg og bygð
Mr. Gunnar Th. Oddsson frá
Mountain, N. D., dvelur í borginni
þessa dagana.
Mr. Jón Hafliðason frá Bissett,
Man., er staddur í borginni um
þessar mundir.
Mr. og Mrs. Albert Frederickson
frá Seattle, Wash., eru nýkomin til
borgarinnar ásamt þremur börnum,
í heimsókn til Mr. og Mrs. Olgeir
Frederickson og annara ættingja og
vina. Gera þau ráð fyrir að dvelja
hér í mánaðartíma eða svo. Mr.
Albert Frederickson er sonur þeirra
Mr. og Mrs. Olgeir Frederickson.
Síðastliðinn laugardag voru gefin
saman í hjónaband John Samson
prentari hjá Viking Press Ltd., son.
ur þeirra Mr. og Mrs. Sam Samson,
og ungfrú Sigríður Guðmundson
frá Elfros, Sask. Dr. Rögnvaldur
Pétursson gaf brúðhjónin sarnan að
heimili sinu 45 Home Street.
IBJ
Nýjung í sambandi við
Islendingadaginn á Gimli
þann 5: ágúst
Eg hefi gert ráðstafanir til þess að verða á Gimli á Islend-
ingadaginn þann 5. ágúst, með splunkur nýja flugvél af fulj-
komnustu gerð. íslendingum gefst þarna í fyrsta sinn kostur
á að fljúga með mér sér til skemtunar á þessum stöðvum, og
verðfi aðnjóltandi þeirrar unð^legu Jegurðar sem umhverfi
Winnipegvatns hefir upp á að bjóða við yfirlit úr loftinu.
I hverri ferð tek eg þrjá farþega og kostar farið $2.50 á
mann. Nýtízku útvarpstæki eru til taks i flugvélinni. Það
hefir mentandi áhrif, auk skemtunarinnar, að fljúga yfir fagurt
landslag.
Konnie Johannesson
Alúðarfylztu
Hamingjuoskir
í tilefni af 60 ára landnámi
íslandinga í Canada
Imperial Oil Limited