Lögberg - 05.09.1935, Síða 2
2
LÖGBERGr, FIMTUDAGINN 5. SEPTEMBER, 1935.
Bráðabyrgðar öryggi.
—Sunimers in the Cleveland News.
Hallig Suderoog
(Framh.)
Eg hafði venjulega ánægju af
þessum gestum, því eg sá hér hræri-
graut af öllum mögulegum mann-
tegundum. Öðru hvoru hitti eg ís-
landsvini og íslandsfara, þ. á. m.
aldraðan, þektan listmálara, sem
sagðist hafa komið til íslands og
dvalið þar stutta stund, en það væri
samt fegursti hluti æfi sinnar. Hann
dvaldi hjá Nielsen á Eyrarbakka,
mintist hans með sérstakri hlýju og
sagðist sjaldan eða aldrei hafa not-
ið annarar eins gestrisni og hjá hon. J
um. En þrátt fyrir þetta var það
samt oftar, sem gestir skoðuðu mig
sem náttúruundur ef þeir vissu það,
að eg var íslendingur. Eitt sinn um_
kringdu mig tuttugu kerlingar, fyrst
fórnuðu þær höndum af undrun yfir
því að sjá mann norðan frá fslandi,
síðan skeltu þær á lærin af hrifni
yfir að geta sagt vinkonum sínum
eitthvað nýstárlegt og tóku svo upp
stækkunargler og settu á sig gler-
augu til að rannsaka á vísindaleg-
an hátt hvað augun lægju mikið
skökk í hausnum á mér. og í hverju
að aðalmunurinn á mér og hvítuin
manni væri falinn. Þær skrifuðu
athuganir sínar niður í vasabækur
til að gleyma engu og síðast var eg
ljósmyndaður, bæði að aftan og
framan og á háðum hliðum. Áður
en mér var leyft að fara, köstuðu
nokkrar þeirfa í mig tieyringum,
aðrar gáfu mér brjóstsykursmola
eða myndir innan úr súkkulaði-
pökkum. “Greyið, skelfing verður
hann feginn!” heyrði eg eina kerl-
inguna segja og hún virti mig með
djúpri meðaumkvun fyrir sér eins
og brjóstgóð kerling úr dýravernd-
unarfélagi virðir fyrir sér vingjarn-
legan hund.
Auk þessa eru mér tvö önnur at-
vik frá gestakomu á Súderoog sér-
staklega minnisstæð. Annað gerð-
ist daginn sem eg fór þaðan alfar-
inn, það var um miðjan september
1920. Strákarnir voru þá allir farn-
ir fyrir nokkrum dögum og lifið á
eyjunni var einmanalegt og dauft.
En þá skaut skyndilega upp sjötíu
stúdentum og háskólakennurum frá
|HaIle, sem komu i kynnisför til
eynna að skoða leifar af sokknum
eyjum og upphækkunum, sem enn-
þá mótaði fyrir í sandinum. Þegar
þeir sneru aftur til meginlandsins
varð eg þeim samferða, eg fékk ó-
keypis far með skipinu til Husum,
en á leiðinni þurftu þeir öðru hvoru
að lenda og athuga gamlar minjar í
sandinum.
Á leiðinni tók eg sérstaklega eftir
kvenstúdent nokkrum með heljar-
stórt rautt nef, blásvartar bólgnar
kinnar og augu, sem ranghvolfdust
og hringsnerust í stórum augnatóft-
unum. Hún bar á sér whisky-pela
og saup á öðru hvoru. Þegar hún
var orðin svo drukkin, að hún bæði
riðaði og drafaði, byrjaði hún að
gefa mér hýrt auga, sjálfri sér auð-
sjáanlega til dægrastyttingar, en
mér til ólýsanlegrar andstygðar og
angistar.
Einu sinni þegar við gengum eftir
fjörusandinum kom hún til mín og
spurði mig, hvort eg vildi whisky.
“Nei!” sagði eg önugur.
“Viltu leiða mig?” spurði hún.
“Nei!” sagði eg með áherzlu.
“Kystu mig!”
Eg glápti orðlaus á hana; eg gat
ekkert sagt, aðeinst hrist höfuðið.
Eg var fyrir alvöru farinn að halda,
að hún ætlaði að tæla mig til óskír-
lífis, en hún freistaði mín ekki
“Þú er óuppdreginn helvítis dóni,”
hvæsti hún, þegar bænir hennar
voru allar árangurslausar, og augun
ranghvolfdust meir en áður. Eg
ætlaði að svara henni einhverju, en
þá varð henni skyndilega fótaskort-
ur og hún stakst á bólakaf ofan í
leðjusíki, sem sennilega hefir áður
verið gamall brunnur. Eg dró hana
upp úr, andlitið var kolsvart eins og
á negra og þegar eg loks gat bælt
niður í mér hláturinn stilti eg mig
ekki um að svara henni:
“Og þú ert uppdreginn helvítis
dóni! Dreginn upp úr drullupytti,”
bætti eg við til að útiloka allan mis-
skilning. Þar með var samtali okk-
ar lokið.
Hitt atriðið, sem mér er minnis-
stætt skeði um mitt sumarið á Hallig
Súderoog, í glaða sólskini og steikj _
andi hita. Strákarnir hlupu um eyna
í mittisskýlum eða böðuðu sig í sól.
skininu og skiftu sér ekkert af hin-
m mörgu gestum, sem komnir voru
frá meginlandinu. Það hefir senni-
lega verið eitthvað á fjórða hundr-
að gesta, sem komu þennan dag og
við vorum önnum kafnir að af-
greiða allskonar nærgöngular spurn-
ingar.
“Heyrið þér ungi maður,” sagði
kerlingarhlussa og sneri sér að mér,
“hver stjórnar þes*su drengjaheim-
ili?”
Eg sagði henni það.
Hvort hún gæti ekki fengið að
tala við stjórnandann?
Eg fór til Paulsen’s og sagði hon.
um að það væri kona úti, sem lang-
aði að tala við hann.
Þegar Paulsen kom, byrjaði kerl-
ing óðara á því að ausa yfir hann
óbótaskömmum. Hún sagðist hafa
komið hingað eins og siðleg mann-
eskja með saklausa dóttur sína og
sagðist hafa búist við að koma á
prúðan stað, þar sem alt færi siðlega
fram, en í þess stað væru hér tugir
og aftur tugir stráka, sem hlypu um
í mittisskýlunum . Hún sagði enn-
fremur að sér hefði aldrei verið
boðið annað eins um dagana, sagði
að þetta gæti gjörsamlega spilt sál-
arlífi dóttur sinnar og spurði hvort
það væri virkilega með leyfi Paul-
sen’s að strákarnir sýndu sig al
menningi svona í mittisskýlum.
Paulsen brosti. 1 stað þess að
svara henni nokkru, benti hann strák
að koma til sin, einum af þessum
strákum i mittisskýlunni, hann stóð
álengdar og hlustaði á orðstraum
kerlingarinnar. Annars var kerling
svo hávær og gustmikil, að fólk
streymdi að og umkringdi bæði
hana og Paulsen til að vita hvað um
væri að vera.
“Fritz!” sagði Paulsen þegar
stráksi kom, “þessi kona þolir ekki
að sjá þig í mittisskýlunni. Gerðu
svo vel og farðu úr henni!”
Stráksi, sem var vanur að hlýða,
stóð á næsta augnabliki allsnakinn
fyrir framan hópinn.
“Helvítis þrælmenni eruð þér! Og
dóttir mín! Guð hjálpi mér!” stundi
feita konan, þegar hún sá að rjótt
andlit dótturinnar gægðist yfir öxl
hennar og horfði með eftirtekt á
hinn allsnakta líkama. Hún greip
báðum höndum fyrir andlitið, gaf
dóttur sinni merki um að koma, og
labbaði burt.
Eg hefi sjaldan heyrt slíkan
glymjanda hlátur og þá.
IV.
Það var eina yndislega kvöld-
stund síðla sumars. Úti var logn og
hiti, en byrjaði að húma. Alt var
svo hljótt, svo kyrt og meira að
segja mávarnir og kríurnar, sem
vön voru að garga þarna í þúsunda.
tali, héldu kyrru fyrir. Ekkert rask.
aði samræminu t kyrð náttúrunnar.
Vitaljósin í Ording og á Pellworm
voru kveikt og glampinn frá ljós-
kastaranum á Helgolandi sázt greini-
lega í hálfrökkrinu. En himininn
var þrunginn dimmum, óveðurboð-
andi skýjabólstrum, sem hrönnuðust
hingað og þangað um loftið, en milli
þeirra eygðust heiðbláar himinvakir.
Það dimdi æ meir, var næstum
fulldimt; tunglið kom frant, það óð
í skýjum. Fölur bjarmi þess sendi
daufa, bleika birtu niður til jarðar.
Söngvar og fiðluómar bárust inn-
an úr dagstofunni; þar voru strák-
arnir að syngja kvöldljóðin sin'
áður en þeir gengju til hvílu. Eg
kærði mig ekki um að fara inn, vildi
heldur njóta kyrðarinnar úti. Eg
settist á grasbakka sunnan undir
hú%nu og horfði á skýin og. skin
mánans. Ský heilla mig, þau koma
mér í gott skap og stemning og því
betur sem andstæðurnar í þeim eru
meiri. Þetta kvöld voru andstæð
urnar sérstaklega sterkar : koldimm
ir skýjabakkar, heiðbláar himin-
rendur og bleikur máninn. Eg elska
ský og eg elskaði þau sérstaklega
þetta kvöld. Skin mánans á létt-
gáruðu hafinu kom mér til að risa á
fætur og ganga niður á ströndina.
Á ströndinni sá eg það, sem eg
hafði aldrei séð áður, það voru sæ-
ljós. Mér þótti þau svo töfrandi
fögur að eg gat ekki haft augun af
þeim í heila klukkustund. Þegar
hægar og léttar öldugárurnar bárust
upp að ströndinni voru faldar þeirra
eins og af gulli gerðir eða logandi
eldi. Þannig varð öll strandlengj-
an eitt logandi eldhaf, ein gullin
rönd, og öðru hvoru, þegar máninn
sendi sitt föla skin niður á hafið, þá
var það því líkast sem það væri af
gulli Og silfri gert með dökkblárri
umgerð í kring.
Sjórinn lokkaði mig, dró mig til
sin. í einni svipan var eg kominn
úr fötunum og stóð nakinn á sand-
inum. Eg óð út í gullbárurnar og
lét þær leika um fætur mína. Sjór-
inn var svalur, en samt fanst mér
hann volgur. Eg synti út á djúp-
ið, sem dökknaði hvert sinn, sem
ský dró fyrir tunglið, en sem glitr-
aði þess á milli eins og ólgusjór lif
andi gimsteina. Mér fanst það svo
hressandi og svalandi að synda,
fanst eg teyga í mig alt það, sem
gott var og fagurt, fanst hvert sund-
tak auka mér þrótt og vilja og gefa
mér æsku og yndisleik. Þá stund
ina óskaði eg einskis annars fremur
en að mega synda—synda eilíflega.
Eg sneri við og synti til lands. Eg
átti ekki nema örfáa faðma eftir,
þegar eg sá mann á sundi fyrir
framan mig. Það hlaut að vera ein.
hver fyrirliðanna, því strákarnir
voru allir gengir til hvílu. Mig greip
löngun til að gera honum bylt við,
stakk mér og synti til hans í kafi.
Mér skaut upp rétt fyrir aftan hann
°g eg gre'P utan um öklaliðinn á
honum. En fóturinn var kaldur og
það var köld slepja utan á honum,
sem var næstum búin að koma blóð.
inu til að storkna í æðum mér. Eg
reisti mig við í ofboði, sjórinn náði
mér tæplega í mitti. Framundan
mér morraði lík af karlmanni og út-
limirnir slettust til og frá undan
andvaranum og léttum bárunum.
Það var orðið gulflekkótt og byrjað
að rotna. Það morraði á bakinu á
gyltum haffletinum, maðurinn hafði
bundið sig við fleka og flekinn lyfti
höfði líksins upp úr sjónum. Og nú
sló fölri tunglsbirtu framan í þetta
dauða andlit. Brostin, galopin augu
hins dauða störðu á mig með slikju-
kendu, hryllilegu augnaráði, en út úr
hálfopnum munninum lafði dökt
slý.
Voðalegur hryllingur greip mig
við að horfa á þetta viðbjóðslega
andlit með brostin augu og hálfop-
inn munn. Mér sýndist andlitið ein-
blína á mig með storkandi hatri, og
áður en eg vissi af hljóðaði.eg af
öllum lifs og sálar kröftum. Ó-
stjórnleg hræðsla læsti sig gegnum
mig, eg stóð eins og lamaður í sömu
sporum, kalt vatn rann milli skinns
og hörunds og mér fanst mátturinn
þverra með hverju augtiabliki. Það
hvíldi á mér hryllileg martröð, sem
hélt mér kyrrum í sömu sporum og
batt augu mín við hatursfull augu
Hksins.
Dimman skýjabakka dró fyrir
tunglið og umhverfis mig varð
myrkt. Eg heyrði létt skvamp bár-
anna í f jörusandinum, og mér fanst
slikjað og rotnað líkið strjúkast við
mig um leið og það morraði áfram
í söltum sænum.
Það er hræðilegasta stund, sem eg
hefi lifað.
Zúrich 1933.
—Lögrétta.
Jónas Lie
sliáld heimilis- og
hversdagslífsins.
Eftir próf. dr. phil. Richard Beck.
Nítjánda öldin var vorleysingatími
i þjóðlífi Norðmanna. Einkum var
gróandinn í norskum bókmentum
með afbrigðum, bæði að frjósemi
og fjölbreytni. Noregi fæddist hvert
af burðaskáldið á fætur öðru: —
Ibsen, Björnson, Lie, Kielland og
Garborg, að taldir séu þeir einir,
sem sérstaklega settu svip sinn á
seinni helming aldarinnar. Þegar i
íhinni er borið, að þrjú fyrstnefndu
öndvegisskáld frændþjóðar vorrar
voru fædd innan fimm ára (1828
—33), verður enn þá auðsærra, og
aðdáunarverðara, hver gróska var á
þessum tíma í andlegum lífi hennar.
Þjóðin norska, sem þessi hug-
sjón^ríku^og máttugu skáld vöktu
og víðfrægðu, hefir, eins og vænta
mátti, haldið hátíðleg aldarafmæli
þeirra allra svo sem sæmdi minn-
ingu slikra sona. Lie var yngstur
þeirra þremenninganna, og mintust
Norðmenn hundrað ára afmælis
hans 6. nóvember 1933 með hátíða-
höldum um land alt. Var hann vel
að þeim heiðri kominn, því að hann
var um skeið ástsælasta skáld þjóð-
ar sinnar, rit hans “kærkominn
gestur” á heimilum ríkismanna og
fátæklinga, lærðra og leikra. Með
samúðar- og skilningsríkum lífs-
myndum sínum og mannlýsingum
hefir hann lagt drjúgan skerf til
aukins andlegs þroska landa sinna.
Aldarafmæli Lies var einnig minst
utan Noregs. Þó þjóðrækninn væri,
líktist hann Ibsen og Björnson í því,
áð vera jafnframt alþjóðlegur að
hugsunarhætti, enda dvaldi hann
erlendis mikinn hluta æfinnar. En
það er til marks um vinsældir hans
og heilnæm áhrif út um lönd, að
sumar bækur hans voru þýddar á
ensku, þýzku, frönsku, hollensku,
ítölsku, rússnesku, bæheimsku og
tékknesku. Hreint ekkj fá rit hans
eru meira að segja til í fleiri en
einni þýðingu á sama tungumáli.
Einnig er það eftirtektarvert, að
margar þessar þýðingar voru prent-
aðar í hinum víðlesnustu blöðum og
tímaritum.
Áhrifin af skáldverkum I,ies
hafa einnig náð til íslands, fyrst og
fremst í frumritunum sjálfum, og
eins í þýðingum. Den Fremsynte
(Davíð skygni) kom út neðanmáls i
“ísafold” árið 1909, sem þá mun
hafa verið eitthvert útbreiddasta
blað landsins, og var síðar sérprent
uð. Hefir þessi skáldsaga og fagra
saga hrifið íslenzka lesendur eins og
eftirfarandi dæmi sýna. í bréfi til
mín telur Kristmann rithöfundur
Guðmundsson Davíð skygna meðal
þeirra bóka, sem mest áhrif hafi
haft á hann á bernskuárum; má
einnig sjá merki þeirra áhrifa í
skáldsögu Kristmanns Brúðarkjóll-
inn. í tímaritinu “Jörð” (Rökkur-
skraf, I. árg., 2.—3. hefti, 1931, bls.
276) skrifar ritstjórinn, séra Björn
O. Björnsson á þessa leið: "Davíð
skygni—hjártfólgnasta saga æsku
minnar. Hversu oft hefi eg ekki
vakað á nóttunni yfir þér og teigað
fagnaðarerindi lífsins, ljóssins er
skín í myrkri, af bikarnum fagra og
einkennilega, sem þú réttir mér.
Trúin á lífið stafar af þér inn að
hjartarótum lesandans og styrkir
hans eigin trú. Þú upplýsir hinn
unga um fegurð og þrótt æskuástar
á þann hátt, sem hann gleymir
aldrei; hann er ekki samur maður
eftir.
Eg spurði eitt sinn skólabróður
minn nokkurn í Mentaskólanum,
hvaða skáldsögu honum þætti vænst
um. Davtð skygna, svaraði hann.
Nú er maður þessi einn viðurkend-
asti rithöfundur þjóðar vorrar fyrir
ritgerðir um mentamál. Sömu
spurninguna spurði eg gáfaðan
kennara fyrir fáum árum. Davíð
skygna, svaraði hann.”
Nokkrar hinar merkari styttri
sögur Lies hafa einnig verið þýdd-
ar á íslenzku—“Tobías slátrari,”
“Súsamel” og “Norðf jarðarhestur-
inn,” og að auk fáein hinna ágætu
æfintýra hans. Margir íslenzkir
lesendur munu því minnast hans
með þakklátum hug, og auðsætt, að
hann á fram á þennan dag aðdáend-
ur á voru landi, sem meta kunna list
hans og spaklega hugsun.
Vér íslendingar megum einnig
nmna Jónas Lie fyrir það, að hann
lagði málstað vorum drengilega lið,
í norskum blöðum, þegar vér áttum
við hvað rammastan reip að draga í
stjórnmálabaráttu vorri, kringum
1870. (Smbr. Þorleifur H. Bjarna-
son: “Jónas Lie,” Skírnir, lxxxii,
1908, bls. 261).
Mikill að vöxtum var því lesenda-
hópur Lies víðsvegar um lönd, og
ekki eru þau mörg Norðurlanda-
skáldin, sem átt hafa að fagna jafn.
mildum vinsældum. Af norskum
samtíðarrithöfundum hans voru
Ibsen og Björnson þeir einu, sem
meiri heimsfrægð hlutu.
Á Parísarárum sínum, en hann
dvaldi langvistum þar í borg, kom
Lie fram sem fulltrúi þjóðar sinnar
við ýms opinber tækifæri. Þó fram_
koma hans þegar svo stóð á væri
landi hans jafnan til sæmdar og nyt-
semdar, var hún lítilræði eitt saman-
borið við afrek hans Noregi í hag
með víðlesnum og snildarlegum
skáldsögum hans. Með þeim ber
hann eigi aðeins hróður ættjarðar
sinnar út um heim, heldur glæddi
hann jafnframt að miklum mun
sannari skilning erlendis á þjóðinni
norsku og menningu hennar.
Jónas Lie var auðugri skáldgáfu
gæddur, en fann ekki sjálfan sig
fyr en hann var kominn á fullorðins-
ár, freklega hálf fertugur. Hann
hafði að sönnu fengist við ljóðagerð
frá því á skólaárum sínum, en svip-
lítill var kveðskapur hans og spáði
engu um þá djúpstæðu og miklu
skáldgáfu sem með honum bjó.
Einnig hafði hann unnið talsvert að
blaðamensku; en þó blaðagreinar
hans væru um ýmislegt frábrugðnar
öðrum slíkum skrifum, hefðu 9um
þau einkenni, sem síðar bar mest á
í skáldskap hans, eins og óvenjuleg-
an samruna hugarflugs og raunsæis,
mun fæsta hafa grunað, að í höf-
undinum byggi eitt af höfuðskáld-
um samtíðarinnar. Einn maður sá
þó betur og dýpra, enda var hann
framúrskarandi fundvís á skáld-
gáfu hjá ungum mönnum. Það var
Björnstjerne Björnson. Megum
vér íslendingar muna honum það,
auk margs annars, að hann sá einna
fyrstur manna, hve ríku skáldaeðli
og miklum rtthöfundarhæf ileikum
Jóhann Sigurjónsson var gæddur.
“Hafðu nákvæmar gætur á þessum
unga manni,” skrifaði Björnson
Pétri Nansen, forstjóra Gyldendals
bókaútgáfu, um Jóhann, “í honum
býr mikið skáld.” Telur Jóhann
sjálfur þau ummæli verið hafa
fyrsta sigur sinn á rithöfundarbraut-
inni.
En hverfum aftur að Jónasi Lie.
I ræðu, sem Björnson hélt í Tromsö
INNKÖLLUNAR-MENN LÖGBERGS
Amaranth, Man......................B. G. Kjartanson
Akra, N. Dakota..................B. S. Thorvardson
Árborg, Man.....................Tryggvi Ingjaldson
Árnes, Man..........................E. Finnbogason
Baldur, Man.............................O. Anderson
Bantry, N. Dakota.............. .Einar J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash...........................Thorgeir Símonarson
Belmont, Man............................O. Anderson
Blaine, Wash.................. Thorgeir Símonarson
Bredenbury, Sask........................S. Loptson
Brown. Man..............................J. S. Gillis
Caválier, N. Dak@ta...............B. S. Thorvardson
Churchbridge, Sask.......................S. Loptson
Cypress River, Man......................O. Anderson
Dafoe, Sask........................J. G. Stephanson
Edinburg, N. Dakota...............Jónas £. Bergmann
Elfros, Sask..............Goodmundson, Mrs. J. H:
Foam Lake, Sask .............. J. J. Sveinbjörnsson
Garðar, N. Dakota.................Jónas S. Bergmann
Gerald, Sask.............................C. Paulson
Geysir, Man.....................Tryggvi Ingjaldsson
Gimli, Man............................F. O. Lyngdal
Glenboro, Man...........................O. Anderson
Hallson, N. Dakota................S. J. Hallgrímsson
Hayland, P.O., Man...................J. K. Jonasson
Hecla, Man........................Gunnar Tómasson
Hensel, N. Dakota..............................John Norman
Hnausa, Man......................................B. Marteinsson
Tvanhoe, Minn.............................B. Jones
Kandahar, Sask.................. J. G. Stephanson
Langruth, Man.....................John Valdimarson
Leslie, Sask....................................Jón ólafson
Lundar, Man.....................................Jón Halldórsson
Markerville, Alta......................O. Sigurdson
Minneota, Minn.............................B. Tones
Mountain, N. Dak..................S. J. Hallgrimson
Mozart, Sask...................J. J. Sveinbjörnsson
Oak Point, Man........................A. J. Skagfeld
Oakview, Man..........................Búi Thorlacius
Otto, Man.......................... Jón Halldórsson
Pembina, N. Dak...............................Guðjón Bjarnason
Point Roberts, Wash....................S. J. Mýrdal
Red Deer, Alta........................O. Sigurdson
Revkjavík, Man........................Árni Paulson
Riverton, Man..................................Björn Hjörleifsson
Seattle, Wash..........................J. J. Middal
Selkirk, Man.................................... W. Nordal
Siglunes, P.O., Man..................J. K. Jonasson
Silver Bay, Man.......................Búi Thorlacius
Svold, N. Dakota.................B. S. Thorvardson
Tantallon, Sask..................... J. Kr. Johnson
Upham. N. Dakota................Einar J. Breiðf jörð
Víðir, Man......................Tryggvi Ingjaldsson
Vogar, Man........................... J. K. Jonasson
Westbourne, Man.................................Tón Valdimarsson
Winnipegosis, Man..........................Finnbogi Hiálmarsson
Wynyard, Sask.......................J. G. Stephanson