Lögberg - 31.10.1935, Blaðsíða 7

Lögberg - 31.10.1935, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 31. OKTÓBER, 1935. 7 Islenzk fræði í Englandi Samtnl við Turvillc-Petre Lcktor i Leeds Hér hefir dvalið i sumar ungur enskur mentamaður, Mr. Tur- ville-Petre, sem er lektor í nútíma íslenzku við háskólann i Leeds. Mr. Petre er nýfarinn til Eng- lands, en áður en hann fór átti Morgunblaðið tal við hann. —Hvenær fenguð þér fyrst á- huga á íslenzkum fræðum, spyrj- um vér Mr. Petre. -—Það var strax á öðru stúd- entsári mínu í Oxford, að eg kyntist fornbókmentunum í fyr- irlestrum hjá próf. Tollkien og næsta sumar, 1928, kom eg hing- að til lands til að kynnast landi og þjóð af eigin reynd. Dvaldi eg þá í sex mánuði hér, mest í Reykjavík. Siðan hefi eg komið þrisvar til landsins og ferðast um það þvert og endilangt. Til dæm- is dvaldi eg í Jökuldal og P'ljóts- dalshéraði mestan hluta sumars- ins 1934 til að kynna mér sögú- staði á Austurlandi. —Hvernig hefir yður svo.litist á land og þjóð? —Mjög vel, eins og sjá má af því, að eg kem hingað hvert sum- arið á fadur öðru og vonast til að koma hingað oft aftur. —Er mikill áhugi fyrir íslenzk- um bókmentum og isjenzku við enska háskóla? —Áhuginn fyrir íslenzku eykst ár frá ári, sérstaklega fyrir forn- islenzkunni, en þó hafa nokkrir stúdentar lagt stund á nútima málið og þá einkum í Leeds, þar sem skilyrðin eru bezt, því eins og kunnugt er, er þar stórt safn af íslenzkum bókum, sem háskól- inn keypti fyrir sex árum, af Boga Th. Melsted. íslenzka Bókasafnið i Leeds —Er bókasafnið islenzka i *Leeds mikið notað? —Já, töluvert mikið og það ekki eingöngu í Leeds, heldur eru og bækur lánaðar til annara há- skólasafna i Englandi. En eins og þér getið skilið, vantar mikið á að safnið sé fullkonlið, því að árlega kemur út svo mikið af bókum og blöðum á íslandi, að safnið á.erfitt með að afla sér þess, vegna fjárskorts. En það er eftirtektarvert, að margir íslendingar, bæði bókaút- gefendur og aðrir, hafa stutt safn- ið drengilega með gjöfum. ístcnzkar Bókmentir i Englandi —-Hvert er álit yðar á hinni fyrirhuguðu útgáfu Ejnar Munksgaard á íslenzkum fornrit- um fyrir Englendinga? —Eg efast ekki um að útgáfan myndi hafa hina mestu þýðingu til eflingar áhuga manna í Pmg- landi á íslenzkum fræðum. En geta má þess, að i sumar kom út í Leeds ný útgáfa á Gunnlögs sögu með enskum skýringum og i ráði er að gefa út fleiri sögur þar. Aðalhvatamaður þessarar út- gáfu er prófessor Bruce Dickins, sem er mjög áhugasamur um is- lenzk fr.æði, eins og sjá má af því, að hann hefir áður gefið út ís- lenzk rúnakvæði og er aðal ritstjóri tímaritsins “Leeds Studies,” þar sem hirst hafa greinar um íslenzkar bókmentir. j—Hafið þér fengist mikið við að þýða af islenzku á ensku? —Eg hefi þýtt dálítið en ekki látið prenta neitt ennþá. En nú er í ráði að þýða nokkrar af sög- um Guðmundar G. Hagalíns á ensku. Höfum við frú M. Bene- dikz unnið að því í sumar, með aðstoð manns hennar, Eiríks i Benedikz að snúa á ensku nokkr- um smásögum Hagalíns. Við gerum ráð fyrir að leggja síðustu hönd á verkið í vetur og munu þær geta komið út í Englandi á næsta hausti. —Hvernig haldið þér að mark- aður sé í Englandi fyrir þýðingar lir islenzkum bókinentum? —Um það er ekki hægt að segja fyrir víst ennþá, en eg býst við, að Englendingum muni líka þær vel og ef þessi tilraun hepnast, höfum við fullan hug á að þýða fleiri sögur eftir fleiri höfunda. Islenzk Sýning í Leeds —Það hefir heyrst, að i ráði sé að halda islenzka sýningu í Leeds í haust. —Já, mér er ekki kunnugt um, hvernig því verður háttað, en eg veit að ungum íslenzkum listmál- ara hefir verið boðið að sýna mál- verk eftir sig i Leeds, en annars get eg ekki sagt meira um það, nema að eg á að halda inngangs- fyriríestur minn við háskólann um það leyti, sem ráðgert að sýn- ingin byrji.—Mbl. 28. sept. ISLENZK VIÐSKIFTI OG VESTUR-ISLENDINGAR Frá högum landa vorra vestra. Asmundur P. Jóhannsson segir frá. Ásmundur P. Jóhannsson fast- eignasali frá Winnipeg hefir verið hér á landi síðan í vor. Hann fór heimleiðis í gær með Goðafoss. í gær hitti tíðindamaður blaðsins hann að máli á hótel Skjaldbreið, þar sem hann var týgja sig til ferðar. —Mér er ekki mikið um það gef- ið, segir Ásmundur, að skrifað sé um mig í blöð, en úr þvi við hitt- umst vil eg nota tækifærið til þess að biðja Morgunblaðið að flytja mínar alúðarfylstu þakkir til allra þeirra mörgu, sem sýnt hafa mér frábæra gestrisni á þessu sumri. Oft hefi eg haft ánægju af heimsóknum mín- utn til gamla landsins, en mér er nær að halda, að eg hafi aldrei mætt annari eins gestrisni og i þetta skifti. Síðan barst talið að starfsemi Þjóðræknisfélagsins, en Ásmundur er, seml kunnugt er, meðal helztu forgöngumanna þessa stórmerka fé- lagsskapar. Bókakostur Vestur-Islendinga. Þjóðræknisfélagið á jslenzkt bókasafn, og eru bækur þess lánaðar félagsdeildunum. —En við fáum of lítið af þeim bókum, sem koma út hér heima, seg. ir Ásmundur. Á þessu þarf að ráða bót. Hefi eg hreyft þvi máli, og vona að leiðir verði fundnar til þess að þvi verði kipt í lag. Bókasafn Þjóðræknisfélagsins þarf að geta eignast allar þær bækur, sem koma hér út, og nokkuð er vafið i. Hvert eintak, sem safnið fær af nýtum bókum, fær marga lesendur. Og með því móti kynnast Vestur-ís- léndingar íslenzkum bókakosti. Gæti þetta orðið til þess að auka sölu ís- lenzkra bóká vestra. Félagið hefir lítið Hfé til bóka- kaupa. Stafar þetta m. a. af því, að við höfum á síðustu árum lagt megináherslu á, að auka kenslu barna og unglinga í íslenzku. Við höfum t. d. sett upp náms- skeið í íslenzku í Winnipeg, og feng- ið beztu kennara til kenslunnar. Kensla þessi fer fram á laugardög- um í Jóns Bjarnasonar skóla. Hefir aðsókn að námsskeiði þessu verið mjög mikil. ■Órannsakaðir markaðsmóguleikar. —Mér finst stundum, heldur Ás- mundur áfram, að þið hér heima gefið því ekki nægilega mikinn gaurrt, hve mikils virði það er, eða getur verið fyrir ykkur, að svo margir Islendingar eru vestanhafs, sem hafa hinn mesta áhuga á þvi, að greiða götu allra þeirra málefna, sem islenzku þjóðinni mætti að gagni verða. Það mun t. d. mega rekja til starf- semi Vestur-íslendinga, að nú skuli vera haldið uppi kenslu i íslenzkum fræðum i 31 háskóla vestra. En svo vikið sé að öðru efni. Það er, að því er eg bezt veit mjög órannsakað mál ennþá, hvern mark. að er hægt að fá í Ameríku fyrir ís- lenzkar afurðir. Meðan heimsstyrjöldin stóð yfir, komust allmikil verzlunarsambönd á mili Islands og Ameríku. En því miður lögðust þau viðskifti niður er styrjöldinni lauk. Til þess að rannsaka þetta mál að nýju, þarf ísland aðHá sinn verzl- unarerindreka í Vesturheimi. Hann þarf að vera starfhæfur rtiaður i bezta lagi, með mikla og góða sér- þekkingu í viðskiftamálum þjóðar- innar. Það yrði ekki heppilegt að fela þetta starf Vestur-íslendingi, því hann yrði þar vestra ekki skoðaður að öllu leyti sem erindreki íslands, þar eð hann yrði amerískur ríkis- borgari. En það megið þið vera vissir um, að íslendingar búsettir vestra, myndu styðja mjög starfsemi þessa manns og greiða götu hans. —Hvaða vörur íslenzkar \nyndi helzt vera hægt að selja vestra ? —Um það er ekki mikið hægt að segja í fljótu bragði. Á síðustu ár- um hafið þið fengið góðan markað fyrir lýsi ykkar þar. Hver veit hve mikið væri t. d. hægt að selja þar af síld, þegar þið næst hafið síld af- lögu. Og jafnvel saltfisk.—Norð- menn selja bæði “lút”-fisk og harð- fisk til Ameríku. Ef um framtíðarviðskifti yrði að ræða í stórum stíl, þá er og þess að gæta, að í Ameriku er hægt að kaupa á móti, þær vörutegundir, sem fsland þarj, og þjóðinni eru hent- ugar. Og þegar markaður á annað borð er fenginn fyrir einhverja vöruteg- und í Ameriku, þá er sá markaður tryggur. Hvað uni Roosevelt? Talið barst siðan að núverandi stjórn í Bandaríkjunum og stjórnar. háttum Roosevelts. —Hvað haldið þér um stjórnar- stefnu hans, verður hún framtíðar- stefna Bandaríkjanna? —Það er víst enginn spámaður fæddur enn, sem getur um það sagt, hvort Roosevelt forseti er maður, sem er að koma eða fara; segir Ás- mundur. Hann er maður vandaður og drenglyndur og öllum velviljaður. En það er þungt bákn að stjórna / iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiraiiiiiiimiiiiiiiiiimiiiiiiimi. -:iiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiim I THOSE WHOM WE SERVE I 115 miljóna þjóð, á þessum tímum, með þeim miljónum atvinnuleys- ingja, sem nú eru í Bandaríkjunum. Er íslenzkan að hverfa? —Þér vikuð áðan að íslenzku kenslunni vestra. Á íslenzkan erfitt uppdráttar nieðal ungu kynslóðar- innar ? —Það vil eg ekki segja, enda er það mjög mismunandi eftir því hvar fólkið elzt upp. 1 borgunum er henni meiri hætta búin en úti um sveitir. Enn eru íslenzku landnáms- sveitirnar alíslenzkar. Eins og t. d. í Norður Dakota. Þar var eg í vor á einhverri þeirri skemtilegustu íslendingasamkomu, sem eg hefi þekt. Það var 75 ára afmæli hins víð- fræga og góðkunna kímniskálds okkar, sem allir þekkja undir nafn- inu Káinn. Samkoman var haldin í samkomu. húsi á Mountain. Þar var á sjötta hundrað imíanns. Samkoman stóð yfir í jy2 klst. frá kl. jy2 um kvöldið til kl. 3 um nóttina. — Svo þröngt var í húsinu að 80—90 manns gátu ekki fengið sæti. Alt þetta fólk varð að standa allan þenna tíma, nema hvað setið var udir borðum i eina klukkustund. 'Allan tímann fóru fram ræðuhöld og kvæðaflutningur. Enginn hreyfði sig til brottferðar fyr en að sam- komunni var lokið. Hið aldraða skáld var vitanlega I hrókur alls fagnaðar þarna og lék við hvern sinn fingur. Á þessum slóðum tala ungir og gamlir ekki annað en íslenzku. Islenzk tunga breiðist út! í sambandi við íslenzkuna get eg sagt yður skritna sögu, heldur Ás- mundur áfram. Eins og kunnugt er, eru miklar fiskiveiðar í Winnipegvatni. Þar sein þær eru stundaðar af mestu kappi hafa íslendingar alveg yfir- höndina. , —Greinargóður íslenzkur Winni- pegbúi fór nýlega norður í þessar verstöðvar. Hann sagði mér, að ekki einasta íslendingar töluðu þar íslenzku, heldur og Galiziumenn, Pólverjar og Indíána-kynblending. ar, er vinna þarna með íslendingum. Menn af þessum þjóðflokkum hefðu lært íslenzku í samverunni við hina islenzku fiskimenn þarna. Nú er óldin önnur. Nú er líka öðru máli að gegna, en á fyrstu árum íslendinga vestra. Þá þótti engin upphefð að því að vera íslendingur. íslendingar kornu þangað flestir fátækir ,og umkomulausir. Þeir byrjuðu oftast sem erfiðismenn. En brátt reyndist sá töggur í þeim, að þeir urðu margir verkstjórar. Jafn- framt jukust þeir að áliti og mann- virðingum. Margir klifu þritugan hamarinn til þess að koma börnum sínum til menta. Enda sýnir það sig, að framsækni landa- vestra, hefir komið því til leiðar, að tiltölulega tnargir menn af íslenzku bergi brotn. ir, hafa fengið virðulegar og vanda- miklar stöður í þjóðfélaginu. Enda er það nú orðið svo vestra, að íslendingar eru taldir meðal beztu innflytjenda i Canada; talið að þeir standi þar jafnfætis Bretum. Lengra verður ekki komist. —Mbl. 4. okt. Sumarheimili íslenzkra barna á Gimli. IN THE FIELD OF COMMERCIAL PRINTING AND PUBLISHING BECOME LASTING FRIENDS BECAUSE- OVER THIRTY YEARS EXPERIENCE IN ENGRAV- ING, PRINTING AND PUBLISHING IS PART OF THE SERVICE WE SELL WITH EVERY ORDER WE DELIVER. V COLUMBIA PRESS LIMITED | 695 SARGENT AVENUE - WINNIPEG - PHONE 86 327 == Eins og áður hefir verið getið í islenzku blöðunum þá stóð samband frjálslyndra kvenfélaga fyrir því að hafa sumarheimili fyrir börn á Gimli síðastliðið sumar. Og vegna þess að þetta mál er þess vert að því sé frekari gaumur gefinn langar mig til að biðja blöðin um að birta þessa umgetningu. Eins og kunnugt er þá var þetta sumarheimili á Gimli í sumar fyrsta tilraun okkar í þá átt, og má segja áð hún tækist ágætlega, þegar allir erfiðleikar á slíku fyrirtæki eru teknir til greina. Eiga ýmsir, sem aðstoðuðu við starfið mikið þakk- læti skilið fyrir alla fyrirhöfnina og hversu alt var vel af hendi leyst. Á eg þar fyrst og fremst við þær kon- ur og ungar stúlkur, sem skiftust á að veita heimilinu forstöðu og þá einnig, sem aðstoðuðu við flutning barnanna til og frá, sem hafði óum- flýjanlegan kostnað og tímaeyðslu i för með sér. En. þetta var alt gert með svo góðu geði og viljuglega af hlutaðeigendum, að ekki var hægt að óska þess betra. Einnig ber að þakka öllu því fólki á Gimli, sem var á ýmsan hátt hjálplegt og vildi alt gera til þess að létta undir. Eg gat þess að þessi fyrsta tilraun hefði hepnast vel, og voru um 75 börn á heimilinu í alt þann tíma, sem við höfðum bústaðinn, og held eg að rhér sé óhætt að fullyrða að allir hafi verið ánægðir með aðbúnað og bústjórn. Það eina, sem vakti dálitla óánægju hjá börnunum var, að þau fengu ekki að vera nógu. lengi, og úr því þyrftiað bæta í framtíðinni, ef mögulegt er. Einns og okkur var ljóst í byrjun þá hefir fyrirtæki eins og þetta æði mikinn kostnað í för með sér, og ef það á að vera framitíðar fyrirtæki er nauðsynlegt að hafa vakandi auga á þvi atriði. í sumar höfðum við samkomu í Wyn. yard til arðs fyrir þetta og höfðum þar ofurlitla upphæð til að byrja með. Drýgði svo Sveinn Thorvalds- son þann sjóð með sinni alkunnu rausn og varð þetta til þess að við gátum byrjað á fyrirtækinu þegar í stað. Eg er persónulega öllum þakk- lát, sem hafa lagt þessu máli liðsyrði og liðsinni í einhverri mynd og eg vil geta þess, að við árangur þessarar fyrstu tilraunar hefir okkur aukist talsverður áhugi fyrir því að láta þetta ekki falla niður. Kvœði wn landnám íslendinga á Gimli fyrir 60 árum, flutt á samkomu á Lundar 22. okt. s.l., í minn- ingu um atburðinn. Gimli sézt á vatnsins vestur strönd, við hans sögu tengjast önnur lönd, löngu frægur fyrir vestan haf, flestum landnámsstöðum ber hann af. Nú ber fyrir andans augu mín atburð sem í gegnum þoku skín; síðan liðin eru sextíu ár, samt hann virðist nýr og gildisliár. Þá var haust og hríðarveður kalt, horfinn gróður, dautt og visið alt; þungann stundi aldan upp við sand, íslendingar þegar stigu á land. Komnir voru yfir langa leið; 'landnámið þeim geymdi sorg og neyð hvergi að finna björg né vetrarvörn var þar fyrir konur, menn og börn. Mæður vöfðu börn að brjóstum þá, ■brennheit tárin streyma Drottinn sá; þeirra líf að vernda umfram alt, úti á snjónum gat þeim orðið kalt. Bygt með flýti bjálka hreysi var, börn og konur hýrast urðu þar, þröngt og loftilt, dimt og dauðans kalt, dapurt var að líða þetta alt. Dauðans engill beið með bitran þjör, bauð þar mörgum langtum sælli kjör, kvöl og hungur, konu, barns og manns knúði fast að taka boði hans. Hverjar ráðstafanir Verða gerðar viðvíkjandi framtíðinni er mér ekki ljóst; en eg er þess fullviss að allir þeir, sem höfðu not af þessu í sum- ar, verða fúsir til að leggja því lið á allan hátt. Þetta er sérstætt fyrir- tæki að því leyti að það tók til starfa án þess að hafa nokkurt stofnfé annað en þörfina fyrir það og ör- ugga tj-ú á þann velvilja, sem öll góð viðleitni nýtur yfirleitt meðal okkar fólks. En þetta tvent er nóg, ef vel er með það farið, og við sem eldri erum skuldum í raun og veru æsk- unni fyrir allar ánægjustundir okkar eigin lífs. Ef við gengjum ekki með henni hlið við hlið yrði líf okkar eintrjáningslegt og ánægjusnautt. En með henni getum við verið ör- u§Tg> því hún er sjálf framtíðin, sem við erum að leitast við að gera vel úr garði. Og með það fyrir augum var þessi starfsemi hafin, að leitast við að leggja eitthvað til í þann framtíðarsjóð með því að hlú að okkar efnilega, íslenzka stofni á þenna hátt. Hversu sú viðleitni tekst er auðvitað undir atvikum komið, en málefnið er áreiðanlega þess virði að því sé gaumur gefinn. Þar við bættist böl, sem kvaldi mest: bóluvgikin, þessi skæða pest, dimman mökkva dró þá fyrir sól; dauðinn hafði fundið þeirra ból. i Ógnar skelfing yfir fólkið gekk, allra líf á veikum þræði hékk; þennan vetur margur lífið lét, landnámsfólkið yfir missi grét. N I Vetur leið, en blessað líknar vor landnemunum færði kraft og þor; blessuð sólin bræddi fönn og ís björg og ylur þá var öllum vís. I Sólin skein á grænan skógargeim, glæsilegan, ungan Vesturheim; ; sætum rómi sumarlangan dag sungu fuglar miljón radda brag. ( Líkt og elding leiftri um dimma nótt lífið streymdi gegnum æðar fljótt; ( norrænn andi upp til himins leit endurvakinn lofsverð strengdi heit. Þetta land að leggja undir fót, landið rækta og gjöra vegabót, ' sýna í verki þjóðarrausn og ráð, réttum málstað fylgja í lengd og ! bráð. Marja Bjórnson. Haustslátrun er nú byrjuð af full- um krafti hjá Sláturfélagi Suður- lands. Er búist við, að slátrað verði í haust miklu fleira fé en i fyrra, en þá var slátrað með minsta móti hjá félaginu. Samkvæmt áætlun deildarstjóra Sf. SI. er ráðgert, að Út frá Gimli færðist bygðin fljótt, fólkið vann og stríddi dag og nótt; norrænn hugur hálfa bar það leið, hetjuandinn rikti í lífi og deyð. 1 Verða hér til sóma sinni þjóð, sigri ná, þó tæki líf og blóð, læra alt, var hjartans heita þrá, hæsta manndóms takmarkinu ná. slátrað verði nú í Reykjavík og leiddi hann i gegnum böl og stríð; Hafnarfirði um 6,000 fjár fleira en þjóðin fræg nú syngur sigurbrag, í fyrra. Féð er yfirleitt með vænna sorgarnóttin varð að gleðidag. móti nú. —Mbl. 1. okt. Fyrsta Eimskipafélagsskipið, sem legst við bryggju á Húsavik. I gærkvöldi kom Brúarfoss til Húsavíkur til þess að taka 4,000 skrokka freðkjöts hjá Kaupfélagi Faðmi Gimli framtið björt og góð, fylgi lán og blessun vorri þjóð; Nýja ísland, fræga feðra bygð, fram til dauðajis við þig höldum trygð. Fyrsta landnám feðra og mæðra hér framar öllu, kært og dýrmætt er, fagurt dæmi fengum vér að gjöf, frægðarstjarnan skin á þeirra gröf. Þingeyinga. Skipið lagðist viðstöðulaust við hafnarbryggjuna þótt dimt væri orðið, og var kjötinu ekið til skips í bifreiðum. Heill sá Gimli, goðum vígðri lóð gefinn fyrir löngu vorri þjóð, þar er veglegt minnismerki reist manndóms þjóð, sem alheimur gat treyst. Brúarfoss er fyrsta skip Eitm skipafélagsins sent legst við þessa óryggju. Bátar voru á sjó í gær og öfluðu fremur vel. — Mbl. 5. okt. Þó að líði miljón alda ár, ávalt stendur varðinn tignar hár, Grettistak á Gimli ætið sézt, gjörir ísland víðfrægt, lengst og mest. Vigfús J. Guttormsson.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.