Lögberg - 12.12.1935, Side 1
48. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 12. DESEMBER, 1935
NÚMER^ 50
Jóhann Bríem níræður
Eftir séra Jóhann Bjarnason.
Fáir ná því aldursmarki að verÖa
níutíu ára gamlir. Þykir vel að veriS
þegar menn verÖa áttrætiir. Kve8ja
þeir þá líka heiminn flestir laust eft.
ir þaÖ aldurstakmark. Aðeins fá-
einir fá þá að halda áfram nokkurn
verulegan áfanga í viÖbót.—
Jóhann Rriem er fæddur að
Grund í Eyjafirði þ. 7. des. 1845.
Foreldrar hans voru Ólafur timbur.
maÖur Briem, Gunnlaugssonar
Briem sýslumanns á Grund, og
Dómhildur Þorsteinsdóttir, frá
StokkahlöSum í EyjafirSi.—
Þau Briemssystkyni á Grund
voru tíu aÖ tölu. Elzt þeirra var
Sigríður kona séra Davíðs Guð-
mundssonar á Hofi í Hörgárdal.
Dóttir þeirra, Ragnheiður, giftist
Stefáni bónda og fyrrum alþingis-
manni í Fagraskógi. Þeirra sonur
er Davíð skáld Stefánsson, sá er
hlaut jafnhá verðlaun og Einar skáld
Benediktsson fyrir hátíðarljóð á Al-
þingishátíðinni 1930.
Annað í röðinni af þeim Grundar
systkinum var séra Eggert Ó. Briem,
á Höskuldsstöðum, alkunnur fræði.
maður, gáfumaður og skáld. Aðrir
þjóðkunnir menn voru þeir bræður
dr. Valdemar Briem, skáld og
vígslubiskup, á Stóra-Núpi, og
Haraldur Briem, bóndi a Rannveig-
arstöðum i Álftafirði, er var hinn
mesti málafylgjumaður, svo að hann
vann flest eða öll mál, er hann að
sér tók.
Þrjú systkini komu vestur um
haf. Eitt þeirra var frú Rannveig,
kona Sigtryggs fyrrum þingmanns
Jónassonar,’ fluggáfuð ágætiskona,
látin árið 1916. Þau Jóhann og hún
komu vestur á fyrstu landnámstíð,
árið 1976. Jakob Briem, yngstur
allra systkinanna, kom seinna vestur.
Hann andaðist að Betel, á Gimli, í
janúarmánuði 1934.
Öll eru þau nú Grundarsystkin
farin af sjónarsviðinu nema Jóhann
Briem einn. Ekkert af þeim hefir
náð svo háum aldri sem hann. Þeir
Haraldur og Valdemar urðu áttræð-
ir, eða vel það. Ólafur, er var smið-
ur og stundaði iðn sína lengi á
Norðurlandi, en andaðist i Reykja-
vík fyrir ekki löngu síðan, mun hafa
komist nálægt áttræðisaldri. Var
einn af yngri systkinunum, ef eg
man rétt.—
Kona Jóhanns Briem er Guðrún
Pálsdóttir, ættuð úr Skagafirði,
gáfuð ágætiskona. Hafa þau hjón
nú búið á Grund við íslendingafljót
nokkuð yfir fimtíu ár. Hafa þau
notið hinnar mestu virðingar og
vinsælda í héraði frá þv.í fyrsta.
Börn þeirra Briems hjóna eru
þessi:
Veighildur Mabel. Maður henn-
ar er Percy Wood, skólakennari,
maður af enskum ættum. Munu þau
hjón nú vera búsett í borginni
Regina, í Saskatchewanfylki.
Valdheiður Lára. Á hún einnig
enskan mann er heitir Albert Ed-
ward Ford. Hann er blaðamaður.
Þau hjón eru búsett i borginni
Toronto.
Marinó Páll. Hann er ógiftur.
Veitir nú forstöðu búinu á Grund.
Valgerður Helen. Maður hennar
er Óli Coghill, ættaður úr Reykja-
vík. Þau hjón eru búsett í River-
ton.
Sigtryggur Hafsteinn. Á fyrir
konu Ingibjö'rgu Guðjónsdóttur
Ingimundssonar úr Vestmannaeyj-
um. Þau hjón eru einnig búsett í
Riverton.
Eggert Ólafur. Hann vinnur við
blaðamensku i Toronto. Er giftr.r
maður, en um ætterni konu hans er
mér, því miður, ekki kunnugt.
Öll eru þau börn þeirra Briems
Jóhann Bríem níræður
JÓIJANN BRIEM OG FRO GIJÐRÚN PALSDÓTTIR BRIEM
Á laugardaginn þann 7. þessa
mánaðar, átti hinn prúði öldungur
norður við íslendingafljót, hr. Jó-
hann Briem, níræðisafmæli; bárust
honum og fjölskyldu hans fjöldinn
allur af heillaóskaskeytum víðsveg-
ar að, auk þess sem gestkvæmt var
á heimili þeirra hjóna þenna eftir-
minnilega hátíðisdag, eins og reynd-
ar endrarnær, því er heimilið annál.
að fyrir gestrisni og alúð. Jóhann er
fæddur þann 7. des. 1845 á Grund í
Eyjafirði; sonur þeirra Ólafs timb.
urmanns Briem og Dómhildar Þor-
steinsdóttur frá Stokkahlöðum.
Kom hann vestur í “stóra hópnum”
svonefnda, 1876, og hefir dvalist í
Nýja íslandi jafnan síðan. Þeirra
Briems-hjóna á Grund hinni nýrri
við íslendingafljót hefir áður ver-
ið ítarlega minst hér í blaðinu í sant.
bandi við gullbrúðkaup þeirra, og er
því endurtekning óþörf. Þau hjón
hafa notið aLmanna virðingar í hér-
aði, og njóta enn; enda er þeim við-
brugðið fyrir hýbýlaprýði. 1 safn-
aðarmálum, héraðsmálum og raun-
ar öllum mannfélagsmálum þeim,
er til heilla horfðu, hafa þau Briems.
hjón átt mikilvægan þátt. Lögberg
árnar afmælisbarninu og fjölskyldu
þess blessunar og heilla í tilefni af
þessum sögulega áfangastað.
hjóna gefin hið bezta.
Gullbrúðkaup afarfjölment og
veglegt héldu Rivertonbúar þeim
Briemshjónum vorið 1931.
Jóhann Briem var einn af þeim
er með Sigtryggi Jónassyni á fyrstu
landnámstíð stofnuðu blaðið Fram-
fara. Var hann og eitt af hinum
fyrstu nýlenduskáldumt Nýja ísl.
Kom sumt af kvæðum hans og ljóð.
um í Framfara. Hann var og einn af
stofnendum Bræðrasafnaðar og oft
formaður í safnaðarstjórn. Sömu-
leiðis hefir Mrs. Briem int af hendi
langt og veglegt starf í þeim söfnuði,
bæði í félagi kvenna og sem fræðari
ungmenna í sunnudagsskóla og und.
ir ferming. Þegar lögbundin sveit-
arstjórn komst fyrst á í Nýja Is-
landi þá var Jóhann Briem kosinn
oddviti sveitarráðsins. Varð það
sem á nýlendumáli var kallað
“sýslumaður.” Ýmsir hafa orðið
“sýslumenn” í Nýja íslandi síðan,
en Jóhann Briem varð fyrstur
manna þar til að hljóta þann heiður.
Heimili þeirra Briems hjóna á
Grund hefir verið hið mesta gest-
risnisheimili. Höfðingsskapur og
ljúfmenska ríkt þar jafnan. Mun
fjöldi Vestur-Islendinga minnast
heimsóknanna þar með mikilli á-
nægju. Þá mun og sama mega segja
um ýmsa heldri menn frá íslandi, er
að Grund hafa komið og þar gist.
Þeir munu minnast þeirra höfðings-
hjóna þar með hinum mesta hlýhug,
vinsemd og virðingu. —
Guðrún er einum átján árum
yngri en bóndi hennar. Er hún enn
ungleg í sjón og hreyfingum. Jó-
hann Briem er og ern hið bezta.
Hefir allgóða sjón og heyrn. Fylgist
með vakandi huga með öllu er gerist
hæði heima á íslandi og hér vestra.
Er hinn skemtilegasti í tali enn, er
gesti ber að garði. Lengi lifi þau
sæmdarhjónin, Jóhann og Guðrún
Briem á Grund!
STAKA
Tala i hljóði um það skalt þú,
að þig vilji enginn heyra.—
Sönnust ljóðalist er sú
að ljúka upp þjóðar eyra.
Hjálmar Gíslason.
SKARAR FRAM ÚR
VIÐ NAM
Þess hefir áður verið getið i Lög^
bergi, að Cecil F. Johnson, yngrj
sonur Thomas H. Johnson, fyrrum
dómsmálaráðgjafa Manitobafylkis,
og fru Auroru Johnson hefði farið
héðan úr borg suður til Madison í
Connecticutríki, til þess að setjast
þar að ásamt móður sinni. Er þang-
að kom, innritaðist Cecil við lyfja-
fræðiskólann í New Haven þar í
ríkinu. Hefir hann skarað svo fram
úr við nám, að eigi aðeins er hann
sjálfutn sér til stórsóma, heldur og
íslenzku mannfélagi í heild. Við lok
hins fyrsta námsárs, var Cecil sá
þriðji að ofan af 73 nemendum í
sinum bekk, og hlaut í ýmsum náms.
greinum fyrstu ágætiseinkunn
(100%) en að meðaltali 90 af
hundraði.
Meiriháttar blað, sem gefið er út
í New Haven, beinir orðum sínum
að Cecil á þessa leið:
“Cecil Johnson i Madison, út-
skrifaður af Kelvin Technical High
School í Winnipeg, er í röð þeirra
stúdenta, sem beztan orðstir hafa
getið sér við lyf jafræðisskólann í
Connecticut, og hafði að jafnaðar-
einkunn yfir 90 stig í lok hins fyrsta
skólaárs.”
Lögbergi er það alveg sérstak á-
nægjuefni, að geta flutt lesendum
sínum þessar góðu fregnir af Cecil
F. Johnson, þvi fjölskylda hans er
vinmörg, og hann sjálfur þar engin
undantekning.
IION. ,/AMES MALCOLM
LATINN
Aðfaranótt þess 6. yfirstandandi
mánaðar, lézt að heimili sínu í Kin-
cardine í Ontariofylki, Hon. James
Malcolm, sá er sæti átti í ráðuneyti
Mackenzie Kings sem verzlunarráð.
herra frá 1926 til 1930. Mr. Mal-
colm var fæddur þann 14. dag júli-
mánaðar árið 1880 í fyrnefndum bæ
þar sem hann lézt; hann átti sæti á
sambandsþingi fyrir Bruce North
kjördæmið; naut hann eigi aðeins ó-
skifts trausts samverkamanna sinna
(
í ráðuneytinu, heldur og samþings-
manna sinna yfirleitt, án tillits til
flokka. Við siðustu kosningar var
heilsu Mr. Malcolms þannig farið,
að hann sá sér ekki fært að bjóða
sig fram.
Svo mjög færði Canada út kví-
arnar í viðskiftum sínum út á við
þau árin, sem Mr. Malcolm veitti
verlunarráðuneytinu forustu, að
þjóðin varð í þessum efnum hin
fimta í röðinni af öllum þjóðum
heims. Að slíkum mönnum, sem Mr.
Malcolm var, er mikil eftirsjá, og
það ekki sízt, er þeir falla frá svo að
segja á bezta aldri.
ORKUSAMNINGUM MILLI
ONTARIO OG QUEBEC
FORMLEGA SAGT UPP
FÆR VIÐURKENNINGU
HAROLD BJARNASON
Frá Islandi
Maður hverfur á Jökuldalsheiði
Þann 28. f. m. hvarf Hannes
Stefánsson, vinnumaður í Hjarðar-
haga úr smalamensku á Jökuldals-
heiði.
I smalamenskunni voru 4 menn,
húsbóndi Hannesar, Hannes og 2
unglingar.
MUgguveður var um daginn og
sæmilegt veður næsta dag. Á mið-
vikudag gerði norðanhríð.
Hundur Hannesar kom heim á
fjórða degi.
Mannsins hefir lítið verið leitað.
—Mbl. 14. nóv.
Fannkoman í Þingeyjarsýslu er
einsdcenti á þcssum tímum
Þau tiðindi gerðust á föstudaginn
var, að Hepburn-stjórnin í Ontario,
sagði formlega upp samningum um
orkukaup við fjögur Quebec-félög,
samkvæmt lagaheimild síðasta þings.
Henry-stjórnin hafði gert samninga
þessa og leit Mr. Hepburn svo á, að
þeir væri alt annað en íbúum Ontario
fylkis i hag. Út af þessu máli hefir
staðið styr mikill um Mr. Hepburn,
sem eðlilegt var, því fólk þar eystra
var orðið óvant slíkri röggsemi. Á-
kvæði eru til um það, er heimila
sambandsstjórn að skerast í leik, ef
um er að ræða uppsögn samninga
fylkja á milli, þó sjaldan muni þeim
beitt. Ekki gerir Mr. Hepburn ráð
fyrir að til sliks muni koma. En í
því falli að svo yrði, tjáist hann taf-
arlaust muni rjúfa þing og efna til
nýrra kosninga; kveðst hann ekki
vera í nokkrum minsta vafa um
það hvernig slíkar kosningar hlyti
að falla; í þessu tilfelli yrði mikill
meirihluti kjósenda sér sammála,
þrátt fyrir undirróður af hálfu
orkuhringanna.
RUGBY FLOKKUB WINNI-
PEGBORGAR VINNUR
KAPPATITIL í CANADA
Flokkur þessi, er nefnir sig “Blue
Warriors,” þreytti kappleik við
Hamilton “Tigers” þann 8. þ. m.,
og gekk sigrandi af hólmi með 18
stigum til móts við 12. Vöktu úr-
slitin mikinn fögnuð hér í borginni,
og var sigurvegurunum tekið með
kostum og kvnjum er heim kom.
Við kappleik þenna voru staddir,
auk annars stórmennis, þeir John
Queen, borgarstjóri, Bracken for-
sætisráðgjafi og Gardiner landbún-
aðarráðgjafi sambandsstjórnarinnar.
Sá úr Winnipeg flokknum, er
mest bar á, og leiddi hann til hins
frækilega sigurs, var Fritz Hanson,
gf sænskum ættum.
FUNDURINN I OTTAWA
Á mánudaginn var, hófst fundur
sá í Ottawa milli sambandsstjórnar.
innar og stjórna hinna einstöku
fylkja, er Mr. King hafði lýst yfir að
yrði sitt fyrsta verk, að kveðja til
eftir valdatöku núverandi stjórnar.
Fund þenna, sem talið er að standa
muni yfir í viku, sækja forsætisráð-
herrar fylkjanna allra, sem allir eru
liberal, að undanteknum Mr. Aber-
hart frá Alberta. Stjórn fundarins
hefir með höndum hinn nýi verka-
miálaráðherra, Mr. Rogers.
Fjögur meginmál liggja fyrir
fundinum, og eru þau þessi:
Atvinnumál; skattamál; Fjármál;
Stjórnarskrármálið og væntanlegar
uppástungur um þar að lútandi
breVtingu.
Forsætisráðgjafinn, Mr. King,
setti fundinn og bauð fulltrúa vel-
komna. Þökkuðu stjórnarformenn
fylkjanna hver fyrir hönd fylkis
síns, og fullvissuðu Mr. King um
einlæga samvinnu vandamálum þjóð-
arinnar til úrlausnar.
Þessi ungi íslendingur, er sonur
þeirra Mr. og Mrs. Skúli G. Bjarna-
son, sem Winnipeg íslendingum eru
að góðu kunn af dvöl þeirra hér í
borg, en nú eiga heima í Glendale í
Californíuríki. Harold sonur þeirra,
sá, sem myndin er af, er fæddur í
Winnipeg þann 25. maí 1920, en
fluttist til Californíu með foreldrum
sínutn fyrir hálfu sjötta ári, eða því
sem næst. Stundar hann nám við
Glendaíe Senior High School; hef-
ir hann hlotið verðlaun hvað ofan i
annað fyrir afbragðs námshæfileika
og frábæra ástundun; jafnframt
haft með höndum ritstjórn skóla-
blaðsins árið sem leið.
Nú héfir Harold hlotið fyrstu
verðlaun fyrir ritsmíð í hinni svo-
ngfndu “Unfinished Mvstery” cq,m-
kepni, sem lýtur að úrlausn “Lola
Island” æfintýrisins, eða þáttarlok-
um þeirrar sögu. Botninn, ef svo
mætti kalla það, er á þessa leið:
“Gregg,” whispered the children,
breathlessly, “what are — what are
the — THINGS ?”
“Well, after your mother’s tragic
death, I swore to find the antidote
for the fatal bite of that insect. I
captured some live specimens and
began my research. The ‘Things’
are of the spider family and particu-
larly liké that of the ‘black widow’
variety, although of a different
shape. The ones I had at that time
were about two inches long, with a
pulpy, shapeless body, which in
reality was one big sack of poison,
six tentacle-like legs, and a small,
ugly head'having one main fang or
tooth which injected the poison. I
labored many years, making slow
progress.
“Then, about a year ago, I per-
fected some ‘gland-fluid’ which I
‘shot’ into their bodies. Their
growth was phenomenal and my
work began progfessing rapidly.
But my success in creating larger
specimens nearly proved a fatal
boomerang. I could not stop their
growth! However, being so near to
the end, I had to keep on, intending
to destroy them afterwards. Then,
last night after finding and proving
my serum on Mano, they — well,
you know the rest.”
Gregg leaned back, his heart over-
flowing with thanksgiving and com.
plete happiness. His work was
done.”
SMJÖRGERÐAR FÉLAGIÐ
I RIVERTON
Fregnir hafa nýverið borist um
það að á Royal Agricultural sýning-
unni í Toronto, hafi Samvinnu
Rjómabúið í Riverton, fengið fern
verðlaun, sem hér segir:
Fyrstu verðlaun: Fjórtán punda
kassi saltaðs smjörs, búið til í júli.
Fyrstu verðlaun: Fjórtán punda
kassi saltaðs smjörs, búið til í októ-
ber.
Fyrstu verðlaun: Fjórtán punda
Undanfamar vikur hefir mikil
fannkoma verið í Þingeyjarsýslu,
sérstaklega í uppsveitum — og er
það sumstaðar svo mikið að um há_
vetur minnast menti vart svo mik-
illar fannfergju. Dag eftir dag,
viku eftir viku, hefir meira og minna
kyngt niður af fönn — og austan
krapaslettingur hefir bætt einni
storkuskelinni ofan á aðra — án
þess þó að komið hafi mannfæri —
og er því ekki fært bæja á milli
nema á skíðum.—
Snjóbelti þetta er talið að' liggja
yfir Fnjóskadal,_sunnan Dalsmynn.
is og austur yfir Mið-Kinnarfjöll,
og síðan norðaustur yfir miðjan Að.
aldal og sunnanvert Reykjahverfi. I
sveitum er nær Hggja Skjálfanda og
Axarfirði kvað snjór vera mun
minni, en storkan hefir gert þar
sömu skil, svo að víðast hvar er
jarðlaust. I innsveitum Þingeyjar-
sýslu hefir fé verið gefið inni und-
anfarnar þrjár vikur, og spáir það
ekki góðu, eftir jafn óþurkasama
heyskapartið og var í sumar.
—Mbl. 14. nóv.
kassi ósaltaðs smjörs, búið til í
öktóber.
Fyrstu verðlaun: Tuttugu punda
pakki, búið til í nóvember.
Smjörgerðarmaður sá, er yfirum.
sjón hefir með rjómabúinu, Mr.
Neil Christianson, á miklum vin-
sældum að fagna og hefir getið sér
frábæran orðstír í iðn sinni; hefir
smjör frá þessu rjómabúi unnið
fyrstu og önnur verðlaun hvað ofan
í annað á canadiskum sýningiun.
Skilyrðin til mjólkur og smjör-
framleiðslu umhverfis Riverton, eru
hin ákjósanlegustu; beitiland ágætt,
heyfengur hinn bezti og gnótt heil-
næms vatns.
Rjómabú Riverton héraðs, er
bændaeign. Er Mr. W. G. Rockett,
sem heima á þar í bænum, forseti
þess.
NÝRSENATOR
Síðastliðinn föstudag gerði for-
sætisráðherrann, Mr. King, það
heyrinkunnugt, að Frank P. O’Con.
nor, hefði verið skipaður senator;
fyllir hann sæti það, er losnaði ný-
verið við fráfall Hon. Charles
Murphy. Hinn nýi senator hefir um
langt skeið rekið brjóstsykursverk-
smiðju í Toronto, og staðið framar-
lega í röð iðjuhölda austanlands.
Hann hefir tekið drjúgan þátt í
stjórnmálum og hallast jafnan á
sveif frjálslynda flokksins. Er hann
mikill vinur Mr. Hepburns forsætis.
ráðgjafa Ontario-fylkis, og hefir
veitt honum mjög að málum.
JÓHANN BRIEM NIRÆÐUR
(til hjónanna)
Þið ánægð getið horft um hæl
—því hér er fögur saga—
að hafa lifað sigursæl
um svona langa daga.
Sig. Júl. Jóhannesson.