Lögberg - 17.09.1936, Blaðsíða 1
49. ARG-ANGUS || WINNTPEG, MAN., FIMTUDAGINN 17. SEPTEMBER, 1936. NÚMER 38
»
FAGNIÐ 1 LAND5 % TJORA NUM I ÞUSUNDATALI A MANUDAGI NN A GIMLI!
Margháttaður undirbúningur hafinn að
móttökuhátíðinni á Gimli á mánudag-
inn kemur, þann 21. September
Fjölmennar nefndir að verki úr Winnipeg,
Gimli, Bifröál og Selkirk, er skift hafa
með sér átörfum. Tólf menn kosnir í
allsherjar framkvœmdarnefnd
Haldnir hafa verið tveir fundir í
Jóns Bjarnasonar skólanum, fyrir
tilmæli J. T. Thorson, þingmanns
Selkirk kjördæmis og forseta ÞjótL
ræknisfélagsins. Á fundurn þess-
um mættu eftirgreindir menn, er aS
undirbúningi málsins starfa fyrir
hönd íslendinga í Winnipeg:
Ásmundur P. Jóhannsson
Árni Eggertsson
Jón J. Bíldfell
Hannes Pétursson
Ólafur Pétursson
Gísli Jónsson
Rögnvaldur Pétursson
G. S. Thorvaldsson
Dr. B. B. Jónsson
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
Dr. M. B. Halldórsson
Séra Philip Pétursson
J. B. Skaptason
Th. S. BorgfjörS
P. S. Pálsson
Paul Reykdal
Stefán Einarsson
Dr. B. J. Brandson
Hjáknar A. Bergman
Dr. A. Blöndal
Dr. P. H. T. Thorlakson
Dr. Jón Stefnásson
W. J. Lindal
J. Walter Johannsson
GuSmann Levy
Paul Bardal
A. S. Bardal
Victor B. Anderson
Sigurður Melsted
Séra Rúnólfur Marteinsson
P. Stephenson
Dr. B. H. Olson
A. C. Johnson
E. P. Jónsson
Soffonias Thorkelsson
Thorvaldur Pétursson.
Úr J>essum hópi var kosin fjögra
inanna nefnd, þeir Dr. B. B. Jóns-
son, Hjálmar A. Bergman, J. J.
Bíldfell og Dr. Rögnv. Pétursson,
til þess að eiga sæti og starfa í tólf
manna nefndinni í samráði við J. T.
Thorson og bygðarlaganefndirnar í
Nýja íslandi og Selkirk. 1 þessari
nefnd eiga sæti, auk þeirra fjögra,
sem nú hafa tilgreindir verið, B. J.
Lifman og Sveinn Thorvaldsson, af
hálfu sveitarinnar Bifröst; C. P.
Paulson, B. N. Jónasson, Th.
Thordaráon og Guðmundur Féldsted
fyrir hönd Gimlibæjar og sveitar og
séra Carl J. Olson og R. S. Benson
sem fulltrúar frá Selkirk.
I fjárhagsnefnd eiga sæti—
Ásmundur P. Jóhannsson
Hannes Pétursson
A. S. Bardal
Flutningstæk j anef nd—
Ásmundur P. Jóhannsson
Th. Borgfjörð
Dr. B. H. Olson.
Söngnefnd—
Dr. B. H. Olson
Dr. A. Blöndal
J. Walter Johansson.
Frá Islandi
Maður druknar við bryggju
i Siglufirði
Skipstjórinn af vélbátnum “Sval-
an,” frá ísafirði, féll út af Tynes-
hryggju á Siglufirði í fyrrinótt, og
druknaði.
Skipstjórinn hét Finnur Guð-
mundsson frá Görðum í Önundar-
firði, raaður um fertugt.
Hann var á leið um borð í skip
sitt, er slysið vildi til
Fyrir þremur árum vildi til líkt
slys þarna á sama stað, er skipstjór.
inn á varðbátnum “Ingimundi
gamla,” féll út af bryggjunni um
nótt og druknaði.—Mbl. 22. ágúst.
# # #
10 togarar eru hættir
síldveiðum
í gær slotaði nokkuð veðrinu, sem
verið hefir fyrir Norðurlandi und-
anfarna daga og sem hamlaði síld-
veiðum. Mörg skip fóru út á veið-
ar þegar í gærmorgun, en urðu engr.
ar síldar vör.
Talsverður sjógangur er enn fyrir
Norðurlandi og búast því sjómenn
ekki við að síldin sé komin upp, þó
hún sé fyrir í sjónum.
Tíu togarar eru nú hættir síld-
veiðum og eru þar með taldir 4 tog-
arar, sem byrjaðir eru karfaveiðar,
en það eru Kveldúlfstogaramir Þór-
ólfur, Snorri goði og Gulltoppur, og
togarinn Brimir frá Norðfirði.
Togararnir, sem alveg eru hættir
veiðum og annaðhvort eru lagðir af
stað suður eða komnir, eru: Hannes
ráðherra, Ólafur og Hafnarfjarðar.
togararnir Rán, Hauganes, Sviði og
Júní.
Með b.v. Ólafi, sem fór í gær frá
Djúpavík áleiðis til Reykjavikur,
fóru um 50 farþegar, síldarvinnu-
fólk, sem unnið hefir þar í sumar.
—MW. 22. ágúst.
# # #
Mikil karfaútgerð
ívœndum
Útlit er fyrir að margir íslenzkir
togarar muni stunda karfav^iðar að
afloknum síldveiðum, sem að öllum
líkindum eru að verða búnar að
þessu sinni.
Eins og áður hefir verið frá skýrt,
eru þrír af togurum Kveldúlfs þegar
byrjaðir karfaveiðar og leggja upp í
verksmiðjuna á Hesteyri. Hafa
þeir verið að veiðum' undanfarna
daga á karfamiðunum á Halanum,
en afli hefir verið tregur, enda slæmt
veður. Auk þessara skipa stunda nú
karfaveiðar frá Patreksfirði tveir
togarar og frá Norðfirði einn. Alls
stunda því nú 6 íslenzk skip karfa-
veiðar hér við land og má búast við,
að fleiri bætist í hópinn bráðlega.
Þannig hafa staðið yfir samning-
ar um, að tvö skip frá Alliance og
fjögur frá Kveldúlfi stundi veiðar
fyrir ríkisverksmiðjurnar á Siglu-
firði. En enn hefir ekki verið geng.
ið frá samningunum. Þá munu og
tvö til þrjú skip stunda karfaveiðar
frá Sólbakka.
Karfamiðin, sem “Þór” fann um
daginn fyrir Austurlandi, hafa enn
ekki verið reynd til fullnustu. Tog-
arinn “Brimir” frá Norðfirði er nú
að leita fyrir sér á þeim slóðum.
Ef karfamið reynast auðug fyrir
Austurlandi, má búast við að tveir
togarar fari á veiðar frá Seyðisfirði
og leggi upp í nýju síldarverksmiðj-
una þar, sem verður tilbúin um mán-
aðamótin.
Áætlað er, að ríkisverksmiðjurnar
greiði kr. 5.25 fyrir karfamál komið
til Sigluf jarðar, og kr. 4.00 til Sól-
bakka en til þess þurfa verksmiðj-
urnar að fá styrk frá Sigluf jarðar-
bæ og ríkinu. En þvi miður er al-
veg óráðið enn hve margir togarar
muni stunda karfaveiðar í sumar og
í haust þar sem enn er ekki gengið
frá samningum við ríkisverðsmiðj-
urnar. Mbl. 22. ágúst.
* * #
Reykjavík fær tíu þús.
krónur í afmælisgjöf
Reykjavíkurbær var íánum
skreyttur á þriðjudaginn í tilefni af
150 ára afmælinu. Veður var heldur
hryssingslegt inest allan daginn, en
við og við skein þó sólin.
Hátíðasvipur var á bænum og
götuumferð mikil af spariklæddu
fólki.
9
Hátíðahöldin hófust um morgun-
inn með messu í dómkirkjunni og
messaði séra Friðrik Hallgrímsson.
Lúðrasveitin “Svanur“ lék á Austur-
velli kl. 2 og var þar fjöldi manns
saman kominn. Kl. 3 gekk mann-
f jöldinn upp á Arnarhól og þar söng
Karlakór Reykjavikur nokkur lög.
Lúðrasveit Reykjavíkur lék á
Austurvelli kl. 5 og að því loknu
söng Karlakór K.F.U.M. á Arnar-
hóli. Mikill mannfjöldi hlustaðí á
skemtanir þessar.
Maður einn hér í bwnum, sem
ekki vill láta nafns getið kom á fund
borgarstjóra og afhenti honum 10
þús. kr. að gjöf til bæjarins.
Gefandinn mælti svo fyrir að fénu
skuli á sínum tima skift jafnt milli
byggingu ráðhúss og kirkju hér í
bænum.
Ríkisstjórnin kom í heimsókn til
borgarstjóra til að óska honum til
hamingju með afmælið. Einnig
komu í heimsókn sendiherra Dana
og þýzki ræðismaðurinn.
Heillaskeyti bárust viða að m. a.
frá konungshjónunum, Norges By-
forbund, Berdal, Nissen og Thore-
sen, Seyðisf jarðarkaupstað, Nes-
kaupstað, sýslumanni Þingeyinga,
sýslumanni Skaftfellinga, Lands-
bankanum, póst- og símamálastjóra,
Voldugur söngflokkur karla og
kvenna syngur við móttöku-
fagnaðinn á Gimli
Blandaður kór úr Winnipeg, sem
að standa söngflokkar beggja ís-
lenzku kirknanna, karlakór íslend-
inga og Icelandic Choral Society,
sem hefir verið æfður undir forustu
Mr. Paul Bardals, fer til Gimli og
syngur þar við móttökufagnaðinn á
mánudaginn í tilefni af komu land-
stjórans, lávarðar Tweedsmuir.
Syngur flokkur þessi þjóðsöngvana
Ó Guð vors lands, O Canada og
þjóðsönginn brezka, God Save the
King. Eykur þessi söngflokkur
mjög á hátíðabrigðin.
Lávarður Tweedsmuir
Verzlunarráði íslands, Fél. isl. stór-
kaupmanna, Fél. ísl. matvörukaup-
manna í Rvík. Hinu ísl. prentara-
félagi, Páli Einarssyni hæstarértar-
dómara, (fyrsta borgarstjóra
Reykjavíkur), oddvita Eyrarbakka.
o. fl.—Mbl. 20 ágúst.
* # #
Rúmlega 100 skip stimda
reknetaveiðar frá Siglufirði
Yfir hundrað vélbátar stunda nú
reknetaveiðar frá Siglufirði. Reri
allur flotinn, sem stundar rekneta-
veiðar í fyrradag og kom að í gær.
Fengu flest skipin góðan afla, sum
yfir hundrað tunnur.
Allur reknetaflotinn fór út aftur
í gær.
Á mánudaginn voru saltaðar á
Siglufirði 2276 tunnur af rekneta-
síld og reru þó ekki nema um 40
bátar af 100 vegna óhagstæðs veð-
urs. Hæstan afla fengu Ingólfur
145, Hrönn 140, Erlingur 110, Bára
100.
í sunnudaginn voru saltaðar á
Siglufirði 3366 tunnur af rekneta-
sild. Hæstan afla hafði Bára, 163
tunnur.
Síðan í miðjum ágústmánuði
hefir nær ekkert fengist af síld i
herpinót fyr en í vikunni, sem leið,
að litilsháttar varð vart síldar aðal-
lega austur á Þistilfirði.
Á sunnudaginn komu Ólafur
Bjarnason með 253 tunnur og Hug-
inn Hafnarfirði með 203 tunnur af
herpinótasíld til Siglufjarðar og er
það síðasta herpinótasíld, sem sölt-
uð hefir verið á Siglufirði.
Nokkur herpinótaskip komu til
Raufarhafnar með dálítnn afla s.l.
laugardag og sunnudag.—Mbl. 26.
ágúst.
# * #
Blöðin Politiken, Tidens Tegn og
National Tidende hafa öll flutt lang-
ar greinar um Reykjavík í tilefni af
150 ára afmæli borgarinnar og lýsa
þeirri hraðfara þróun, setn orðið
hefi í Reykjavík á síðustu áratug-
um.—Mbl. 20. ágúst.
Dr. Vilhjálmur Stefánsson
Landkönnuðurinn heimsfrægi, Dr.
Vilhjálmur Stefánsson, dvelur, sem
kunnugt er, á íslandi um þessar
mundir, í erindum amerísks flugfé-
lags, sem er að rannsaka skilyrðin
fyrir væntanlegum flugsam'böndum
milli Ameríku og Norðurálfunnar,
um ísland. Á sunnudaginn var,
flutti Dr. Vilhjálmur erindi yfir
ríkisútvarp íslands. Sumt af því
mátti greina yfir stuttbylgjuviðtæki
í Winnipeg.
Dæmdur í árs fángavist
Blaðamaðurinn enski, George Mc-
Mahon, sá er í sumar sem leið, var
tekinn fastur og sakaður um bana-
tilræði við hans hátign Játvarð
Bretakonung, hefir verið dæmdur
til eins árs fangavistar. I réttinum
bar hann það, að erlend stjórnar-
völd hefði boðið sér þó nokkurt fé,
til þess að skjóta konunginn.
Tólf manna móttökunefndin hélt
fund á Gimli á þriðjudagskvöldið og
komst niður á eftirgreinda ‘hátíðar-
skrá:—
Samkoman hefst stundvíslega kl.
11.45 f. h.
Forsæti skipar bæjarstjórinn á
Gimli, Mr. C. P. Paulson. Verður
fólk þá að vera til staðar. Land-
stjóra mætt við inngönguhliðið i
Gimli Park. Frá hliðinu inn að
ræðupalli verður raðað skólabörn-
um með fána í höndum. Fólki, sem
átt hefir heima í bygðinni síðan 1877
eða lengur, verður skipað í fylkingu
við ræðupall, og þarf því að vera
komið í tæka tið.— j
1. Skólabörn, undir stjórn kenn-
ara sinna, syngja O Canada.
2. Landstjórinn ávarpaður á ís-
lenzku. Ávarp það les Dr. Björn B.
Serstök farþegjalest fer
frá C.P.R. stöðinni í
Winnipeg til Gimli á
Mánudaginn kemur
Lestin fer frá Winnipeg kl.
9.30 á mánudagsmorguninn, og
leggur af stað heim frá Gimli
kl. 4 e. h.
Fargjald fram og til baka
$1.20.
Lestin kemur við í Selkirk,
Winnipeg Beach og Húsavík.
Fargjald fram og til baka frá
Selkirk 70c, Winnipeg Beach
50c og Húsavík 25c. Hálft far
fyrir börn innan 12 ára.
ÍTALIA KAUPIR CANA-
DISKT HVEITI 1 STÓRUM
STIL
Á þriðjudaginn var keypti ítalia
2,000,000 mæla af canadisku hveiti.
Hveitiverzlun ein í kornmiðlarahöll
Winnipegborgar annaðist um söluna.
EMBÆTTA OG SÝSLANA
VEITINGAR
Sambandsstjórnin hefir, sam.
kvæmt lögum siðasta þings, fengið
umráð yfir Bank of Canada. í hina
nýju framkvæmdarstjórn bankans
hefir stjórnin skipað Robert Mc-
Queen, prófessor í hagfræði við
Manitobaháskólann og Robert G.
Coote, fyrrum sambandsþingnmnri
Sameinaða bændaflokksins í Alberta.
Rekur hann bú í grend við Nanton
í Albertafylki.
Til fylkisstjóra i Saskatchewan
hefir verið skipaður Hon. A. P. Mc-
Nab, fyrrum ráðherra opinberra
verka, en í Alberta Philip C. H.
1 Primrose frá Edmonton.
I framkvæmdarráð Canadian
National Railways, 'hafa verið skip-
aðir H. J. Symington, K.C., og R.
J. Moffat. Meðal þeirra, sem skip-
aðir hafa verið í hið nýja útvarps-
ráð, eru þau L. W. Brockington í
Winnipeg, formaður, og Mrs. Nellie
McQlung, rithöfundur í Victoría,
B. C.
KING FORSÆTISRAÐ-
HERRA SÆKIR FUND
ÞJÓÐBANDALAGSINS
Rt. Hon. W. L. Mackenzie King,
forsætisráðherra, lagði af stað áleið-
is til Geneva hinn 12. þ. m. til þess
að sitja þing þjóðbandalagsins. I
för með honum var verkamálaráð-
herrann, Hon. Norman Rogers.
Jónsson. Sama ávarp les í enskrí
þýðingu, Sveinn Thorvaldson, M.
B.E. j
3. Blandaður kór frá Winnijieg
syngur, Ó Guð vors lands.
4. Landstjórinn ávarpar mann-
söfnuðinn.
5. Söngflokkurinn syngur á is-
lenzku.
6. Gestir kyntir ríkisstjóra.
7. Sungið Eldgamla ísafold og
God Save the King.
Skemtiskrá slitið stundvíslega kl.
1 e. h., og landstjóra þá fylgt til dag-
verðar.—
Móttökustaðurinn verður fánum
skrýddur eftir föngum. í nefnd til
þess að semja ávarpið til landsstjór-
ans, voru kosnir þeir Dr. Rögnvald-
ur Pétursson, Dr. Bjöm B. Jónsson
og Hjálmar A. Bergman, K.C.
Sundurliðuð skrá yfir móttöku-
fagnaðinn á Gimli á Mánu-
daginn kemur