Lögberg - 26.11.1936, Síða 1
PHONE 86 311
Seven Lines
' ' yS" 'V For
vM3^" n°>v* Service
c°**
and Satisfaction
49. ARGANGUR
Frá Islandi
Mesta flóð, sem eg hefi
séð í sjötíu ár”
Geysileg sjóflóÖ voru hér við
Reykjavík í gær. Gekk sjórinn yfir
mikinn hluta Örfiriseyjar og vestri
hafnargarðinn, og var að sjá eitt
hvítfyssandi löður yfir garðinn í ó-
lögum.
Enda stóð f jöldi manna við höfn-
ina og á Arnarhóli um kl. 5 í gær
og horfði á hamfarirnar.
“Eg hefi aldrei séð á björtum degi
■önnur eins sjóflóð hér á Seltjarnar-
nesi,” sagði frú Kristín Ólafsdóttir
I Nesi í viðtali við Alþýðublaðið í
morguh, en hún er nú 76 ára og
hefir dvalið allan sinn aldur í Nesi.
Sjórinn fossaði upp á nesið, og
úðinn af brimlöðrinu lék um andlit
manns, þó að maður stæði langt
í jarri.
Flóðin gengu stanzlaust yfir
Grandann og brutu tvær rásir yfir
hann. Gekk sjórinn hér upp að túni
og bar möl og sand mjög langar
leiðir.”
1 Gróttu gekk sjórinn yfir meiri
hluta eyjunnar og tók um 60 metra
af sjóvarnargarði, en hann var
bygður fyrir 14 árum. Við Eyði
hafði sjórinn brotið skjólgarð og
kastað grjóti langt á land, og ýmsar
skemdir hafa orðið á túnum, heyj-
um og mannvirkjum, en þó ekki til-
finnanlega, nema ef til vill á Stóra-
Bjargi.
Viða flæddi yfir veginn suður á
Nes, en hann mun þó ekki hafa
skemst neitt að ráði.
Töluverð flóð urðu í verstöðvun-
um hér sunnanlands. Mest urðu
flóðin í Sandgerði. Þar braut sjór-
inn fisk- og salthús og eyðilagði
pakkaðan fisk og ýrrlsa verðmæta
muni. Er þetta mesta flóð, sem
menn muna eftir í Sandgerði.
Á Eyrarbakka og Stokkseyri
braut sjóinn á sjávargörðum, en olli
ekki skemdum'. I Grindavík og
Keflavík urðu engar skemdir, en
sjórinn gekk þó mjög hátt.—Alþ.bl.
30. okt.
# # #
Bát hrekur til hafs
- Ólafsvík 36. okt.
Úr Ólafsvík símar fréttaritari út-
varpsins, að þar hafi gert í gær-
morgun aftakaveður af suðri. Voru
3 vélébátar á sjó, og náðu tveir
landi, en sá þriðji, Bliki frá Ólafs-
vík, náði belgiskum togara. Komst
bátshöfnin í togarann, og var bát-
urinn bundinn aftan i hann, en veð-
urhæð var svo mikil, að báturinn
slitnaði frá og rak hann talsvert
brotinn til hafs. Vélbáturinn Aðal-
björg frá Reykjavík gerði í gær
ítrekaðar björgunartilraunir. Tókst
þrisvar að koma höndum á bátinn,
en ávalt brotnaði undan böndunum.
—í nótt fór hann enn að leita báts-
ins, en þá fanst hann hvergi.
Skipstjórinn á vélbátnum Blika
var Ingi Kristjánsson, en skipstjóri
á vélbátnum Aðalbjörgu er Einar
Sigurðsson. Bliki var óvátrygður.
Eigendur voru Ingi Kristjánsson,
Edilon Kristófersson og Helgi Jóns-
son og miissa allir aleigu sína.—Vísir
# # #
Skemdir af völdum
sjávarflóðsins
30. október.
Sjávarflóðið í gær hefir valdið
talsverðum skemdum í verstöðvum
sunnanlands.
Frá Akranesi simar fréttaritari
útvarpsins, að í gær hafi orðið
skemdir af sjógangi alt i kring um
Skaga, sérstaklega á fiskreitum, veg-
um og húsum. — Mestar skemdir
urðu hjá Sigurði Hallbjarnarsyni,
útgerðarmanni. Skemdist hjá hon-
um allmikið af fiski, er sjór féll inn
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 26. NÓVEMBER 1936
NÚMER 48
Ofsaveður og hláka ganga í bandalag
með að brjóta upp ís á
fiskivötnum í Manitoba
MR. FRED THORDARSON
bankastjóri.
Þess er getið á öðrum stað hér
i blaðinu, að útibúi Royal bankans
að Sargent og Arlington verði lok-
að um mánaðamótin næstu. Hefir
Mr. Thordarson verið þar banka-
stjóri síðan útibúið var stofnsett.
Mr. Thordarson hefir verið 30 ár í
þjónustu þessa banka og notið al-
mennra vinsælda. Um mánaðamót-
in gefst hinum íslenzku viðskifta-
vinum Royal bankans kostur á að
hitta Mr. Thordarson á útibúinu að
Sherbrook og Sargent, og gera þar
við hann viðskifti sín eins og að
undanförnu.
í fiskhús hans. Auk þess urðu
skemdir á fiski hjá Jóni Halldórs-
syni útgerðarmanni, og Bjarna Ól-
afssyni og Co. — Haraldur Böðv-
arsson, útgerðarmaður, misti út
nokkuð af síldartunnum og hjá hon-
um urðu fleiri skemdir. Allir fisk-
reitir á Akranesi eru stórskemdir og
margir gereyddir. Er þetta brim
eitt hið allra mesta, sem komið hefir.
Hafnargarðurinn skemdist ékki og
báta á legunni sakaði ekki.—Vísir
* # #
Skemdir af livassviðri
í Hafnarfirði
Fréttaritari útvarpsins í Hafnar-
firði simar í morgun kl. 11.30: I
nótt gerði hér i Hafnarfirði vestan
rok. Um kl. 9.30 í morgun fauk
hluti af fiskþvottahúsi, eign Lands-
banka íslands við Strandgötu 52.
Hafði sjórinn grafið undan húsinu.
Fyrir fokinu urðu 7 drengir og einn
fullorðinn maður. Tveir drengir og
fullorðni maðurinn, er heitir Jón
Lárusson, voru þegar fluttir á
sjúkrahús, en fjórir drengir í íbúð
í bæjarþinghúsinu og er hjúkrað
þar. Einn drengurinn var fluttur
heim til sín. Skúli Ingvarsson, 11
ára gamall drengur, varð fyrir mest-
um meiðslumi. öllum líður nú vel
eftir atvikum.—Vísir 30. ókt.
# # #
Eldsvoði á Seyðisfirði
Seyðisfirði 30. okt.
Síðasliðna nótt um kl. 24 varð
vart við eld í úthýsi feðganna Bene-
dikts Þórarinssonar, bankaritara og
Þórarins Benediktssonar, Baldurs-
haga á Seyðisfirði. — Voru flestir
í fastasvefni, og er að var komið,
var húsið alelda og nær engu tókst
að bjarga. Inni brunnu 2 kýr, 1
hestur, nokkur hænsni, 80 hestar
taða, aktýgi, reiðfæri, smíðatól, kjöt
og kálmeti, fatnaður í þvottahúsi
og ýmislegt fleira — alt óvátrygt
nema hús og fatnaður. Upptök
eldsins eru ókunn.—Vísir.
MEIMBOÐ JONS SIGURÐS-
SONAR FÉLAGSINS
Á miðvikudagskveldið í vikunni
sem leið, stofnaði Jóns Sigurðssonar
félagið, I.O.D.E., til heimboðs, eða
réttara sagt stórveizlu, fyrir þá
heimkomna hermenn af íslenzkum
stofni, er í styrjöldinni miklu frá
1914 tóku þátt, og til náðist, ásamt
konum þeirra og nokkrum öðrum
gestum. Safnaðist í veizlusal Army
and Navy félagsins á Young Street,
þetta kveld, freklega tvö hundruð
manns, mestmegnis úr Winnipeg og
grend. Forseti J. S. félagsins, frú
Guðrún Skaptason, setti mótið með
hlýjum og velvöldum inngangsorð-
um og bauð gesti velkomna. Eftir
að allir höfðu komið sér fyrir, var
sezt að spiluro og spilað Contract
Bridge nokkuð fram eftir kveldi.
Voru þá bornar fram hinar rík-
mannlegustu veitingar, er veizlu-
gestir gerðu góð skil.
Stuttar ræður fluttu, auk forseta,
Col. H. M. Hannesson, J. T. Thor-
son, þingmaður Selkirkkjördæmis,
Thorsteinn Gillies og Björn Stef-
ánsson lögfræðingur. Mintust
ræðumenn allir þess lofsverða starfs
er Jóns Sigurðssonar félagið hefði
int af hendi í þágu hermanna af ís-
lenzkum stofni, meðan á styrjöldinni
stóð, sem og margra nytjaverka síð-
ar, svo sem útgáfu minningarritsins
yfir íslenzka hermenn.
Eftir að ræðuhöldunum lauk var
stiginn dans nokkuð fram eftir
nóttu, en um músík við dansinn ann-
aðist Mr. Pálmi Pálmason.
Yfir mannfagnaði þessum ríkti
hlýr samúðarandi og var það auð-
séð á öllu, að allir fundu sig heima.
Jóns Sigurðssonar félagið á almenn-
ar þakkir skyldar af hálfu íslend-
inga fyrir þetta virðulega heimboð
sitt.
NÝTT SÖNGLAG
Núna alveg nýverið er nýkomið á
markaðinn nýtt einsöngslag við
kvæði Þorsteins Erlingssonar “Mig
hryggir svo margt, semi í hug mínum
felst.” Höfundur lagsins er Ólafur
Hallson, kaupmaður að Eriksdale
hér í fylkinu. Lag þetta, þó ekki sé
beinlínis frumlegt, er einkar söng-
hæft og líklegt til þess að ná góðum
vinsældum. Meðspil að laginu hefir
samið Sigurbjörn Sigurðsson, fyrr-
um kaupmaður í Riverton, og er þar
prýðilega gengið frá. Ólafur Hall-
son er maður sérlega hljómrænn og
næmur á söng; mun þetta heldur
ekki vera eina lagið, sem hann hefir
samið. Gunnar Erlendsson, píanisti,
hefir “mimiografað” lagið og gert
það frábærlega vel.
Lag þetta er tilvalin jólagjöf. Það
kostar í vandaðri kápu aðeins 35
cents og fæst hjá Magnúsi Peterson,
313 Horace Street, Norwood, Man.,
og höfundinum að Eriksdale.
VEGLEGT KVEÐJUSAM-
SÆTI I RIVERTON
Á föstudagskveldið var söfnuð-
ust saman í, samkomuhúsi Riverton
bæjar um 400 vinir og samferða-
menn þeirra Mr. og Mrs. Oddur
Ólafsson og f jölskyldu, sem nú eru
alflutt frá Riverton til Winnipeg-
borgar. Mr. Ólafsson var, sem
kunnugt er, kosinn á fylkisþing fyrir
Ruperts Land kjördæmi i sumar. Er
hann hinn mesti athafna og atorku-
maður og kona hans, sem er af
enskum stofni, honum samhent í því
öllu, er í umbótaátt miðar; heimili
þeirra lengi annálað fyrir gestrisni,
og börnin mannvænleg.
Mr. S. V. Sigurðsson hafði orð
fyrir gestum og afhenti Mr. Ólafs-
son skrautlegt úlnliðsúr með fanga-
marki, að gjöf frá viðstöddum vin-
umi. Mrs. G. M. K. Björnsson,
mælti fyrir minni Mrs. Ólafsson og
sæmdi hana að gjöf fagurgerðri
blómaskál úr silfri. En fyrir hönd
bygðarfólks flutti Dr. S. O. Thomp-
son snjalla og mjög rómaða ræðu
fyrir minni heiðursgestanna.
Þau Mr. og Mrs. Ólafsson þökk-
uðu hvort um sig þá velvild og þá
sæmd, er þessi virðulegi mannfagn-
aður bæri vott um. Samkomusal-
urinn var fagurskreyttur, veitingar
rausnarlegar og dans frarn eftir
nóttu. Við dansinn lék Woodlands
Orchestra Hannesar Kristjánssonar
frá Gimli.
Þau Ólafssons hjón eiga víðtæk
og djúp ítök í hugum fjölmennrar
samferðasveitar, sakir glæsimensku
og drengskapar.
ARSFUNDUR FYRSTA
LÚTERSKA SAFNAÐAR
Á þriðjudagskvöldið var hélt
Fyrsti lúterski söfnuður ársíund
sinn í samkomusal kirkjunnar við
góða aðsókn. Skýrslur embættis-
manna báru með sér að safnaðar-
starfið í heild, hafði gengið vel á
liðnu starfsári. Kosnir voru í fram-
kvæmdarnefnd fyrir næsta ár:
Dr. B. J. Brandson, A. C. John-
son, Ch. Sigmar, Fred Thordarson,
J. J. Vopni, J. Hjálmarsson, Th.
Stone, G. F. Jonasson, J. G. Jó-
hannson, Albert Wathne.
Djáknar—
J. J. Swanson, S. O. Bjerringi
B. Johnson, Mrs. H. Nicholson,
Miss V. Jónasson, Baldwin Baldwin,
Mrs. K. J. Backman, Miss Theodora
Hermann, Miss Guðrún Bíldfell,
Richard Vopni.
Yf irskoðunarmenn—
H. J. Pálmason, Paul Bardal.
AÐALFUNDUR ÞJOÐRÆKNIS-
DEILDARINNAR “FRÓN”
Þjóðræknisdeildin “Frón” hélt
ársfund sinn í Goodtemplarahúsinu
á mánudagskveldið var, fyrir hús-
fylli. Fór þar fram kappræða milli
þeirra Dr. Sig. Júl. Jóhannessonar
og séra Jóhanns Bjarnasonar. Frú
Grace Johnson skemti með einsöng
en Ragnar H. Ragnar me$ piano-
spili.
Til forseta var kosinn Ragnar H.
Ragnar; varaforseti, Halldór Hall-
dórsson; skrifari, Hjálmar Gísla-
son, aðstofar skrifari, Carl Jónas-
son; féhirðir, Sveinn Pálmason; að-
stoðar féhirðir, Þorvaldur Péturs-
son; f jármálaritari, Gunnbjörn Stef-
ánsson; aðstoðar f jármálaritari,
Mrs. Salome Backman.
PONTU-VISUR
Það bar til einhverju sinni í brúð-
kaupsveizlu að Þingeyrum í Húna-
vatnssýslu, að þar voru stödd þrjú
skáld eða hagyrðingar. Einn var
Jónatan Sigurðsson, siðar prestur
að Stað i Hrútafirði, annar Páll
Bjarnason, prestur að Undirfelli og
þriðji Jón nokkur Oddsson, djákni
að Þingeyrum. — Þar var og í hóf-
inu Gísli stúdent Magnússon, sýslu-
manns Gíslasonar, síðar prestur að
Tjörn á Vatnsnesi. Hann átti tönn
(pontu) haglega gerða og silfur-
búna. Var hann góður af “tönn”
sinni og mæltist til þess, að hagyrð-
ingarnir þrír kvæði um hana sína
vísuna hver. — Varð Jónatan fyrst-
ur til, enda var því jafnan líkast,
sem honum lægi ljóð á tungu, hve-
nær sem til þurfti að taka. Vísa
hans er á þessa leið:
í vikunni sem leið braut upp ís á
víðflæmum á ýmsum veiðivötnum í
Manitoba. Stafaði af þessu um hríð
feykileg mannhætta á Manitoba-
vatni og Lake Dauphin. Fyrir frá-
bæra karlmensku og kjark lánaðist
þó að bjarga öllum mönnum, að því
Þinn við munn eg minnist greitt
mitt í nunnu-safni;
þér eg unni af þeli heitt,
þú ert sunnu-jafni
Jón kvað:
Sú ber ljóma geddu-geims,
gleður fróma drengi,
fríar dróma angurs eims,
eg það róma lengi.
Páll var síðastur. Vísa hans er
þannig:
Ó, hvað þú ert yndislig
orma- búin -dýnu,
líkt og frúin faðmi mig
fati rúin sínu.
Allar eru vísurnar hringhendur,
en engin verulega góð.
—Vísir 26. nóv.
KARLAKLÚBBUR FYRSTA
LÚTERSKA SAFNADAR
Á miðvikudagskvöldið þann 2.
desember næstkomandi heldur Karla
klúbbur Fyrsta lúterska safnaðar
“Dinner Meeting” í samkomusal
safnaðarins stundvíslega kl. 6.30.
Ræðumaður þetta kveld verður:
PROF. R. O. MacFARLANE
kennari í sagnfræði við Manitoba
háskólann, mælskur maður og víð-
mentur. Talar hann að þessu sinni
um utanríkismál og afstöðu Can-
ada til þeirra. Félagsmenn eru á-
mintir um að koma í tæka tíð.
Hitt og þetta
“Upp” í Grindavík
Eins og allir vita, er táknan átta í
daglegu tali ærið skrítin, villandi og
röng, víða hér á landi. Skagstrend-
ingar og aðrir Húnvetningar segja
t. d. norður á Sauðárkrók og norð-
ur á Akureyri o. s. frv. og er þó
fjarri því, að í norður sé stefnt á
þessum leiðum. Og svona er þetta,
eða þessu líkt, mjög víða uimi land-
ið.
Dr. Bjarni Sæmundsson segir frá
því i “Árbók Ferðafélagsins” þ. á.,
hversu þessu sé háttað hér “suður
með sjó,” Hann segir m. a.:
“Úr Grindavík liggja gamlir veg-
ir “út” eða “suður” í Hafnir, “suð-
ur” eða “niður” í Njarðvíkur
(Skipastíg), “suður” eða “út” í
Leiru og Garð, og “út” á Nes,
“niður” eða “inn” í Voga (Skóg-
fellavegur), “inn” á Vatnsleysu-
strönd o. s. frv., en úr öllum þess-
um bygðum er farið “upp” í Grinda-
vík. Úr “Víkinni” er farið “inn”
og “upp” í Fjall: Móhálsa, og “upp”
að Krísuvík og austur í Herdísar-
vík, Selvog (“Vog”) o. s. frv. Eru
þessar átta táknanir æði torskildar
fyrir ókunnuga, sumar hverjar, eins
og t. d. suður í Njarðvíkur, sem eru
nærri í norður úr Grindavík. En
það er víða margt skrítið í þessu
tilliti.”
Hvalfjörður
Skúli landfógeti Magnússon seg-
ir m. a. svo um Hvalfjörð:
“í júlímánuði gengur árlega mik-
ið af allskonar hval inn i fjörð
þenna. Hefst hann þar við þangað
til seint i ágústmánuði; sagt er og,
er telja má sannfrétt. Flugvélar að-
stoðuðu við björgunina. Netjatjón
er geypilegt og standa nú heilir her-
skarar fiskimanna uppi eignalausir
og ráðþrota. Er hér nú skjótra ráða
þörf ef eitthvað á að greiðast fram
úr vandræðunum.
að hann fæði þar unga sína. Þó
eru þetta ekki hinir eiginlegu, rétt-
nefndu hvalir, heldur Norðurhöfða-
hvalir og tannhvalir (burkopper) og
aðrir slíkir. Þessi hvalamergð hefst
við frá því í júnímánuði í djúpinu
milli Vatnsleysustrandar, Innnesja
og Sviðsins, þar til þeir fara inn í
fjörðinn.” '
Lofvísa sjálfkénd
(Úr Háttlykli Lofts Guttorms-
sonar hins ríka, dr. 1432) :
Mér þykir mengrund skýrust,
mæt, væn, horsk, frið sæta,
hæversk, hæg, ljúf, roskin,
hvít, rjóð, svinn, snjöll, fróðust,
málvitur, mjó, kæn, snotur,
mjúk, dýr, glögg, prúð, hýrust,
háttprúð, fagurhærð, máttig.
—Vísir.
LEGGJA HALD A*
SENDIHERRABÚSTAÐI
Stjórnin á Spáni hefir lagt hald á
embættisbústaði Þjóðverja og ítala
í Madrid. Ber stjórnin það fyrir
sig, að pólitískir flóttamenn frá
ýmsum þjóðum hafi haft þar bæki-
stöð. Hitt þykir þó líklegra að ráð-
stöfun þessi sé gerð vegna þess að
ítalir og Þjóðverjar hafa opinber-
lega viðurkent General Franco og
uppreisnarráðuneyti hans.
OFVIÐRI VIÐ BRETLANDS-
EYJAR
« London 26. okt.
Suðvestan hvassviðrinu, sem ver-
ið hefir nokkra undanfarna daga við
Bretlandseyjar, stóð sem hæst í dag,
en tók að slota er á leið kvöldið.
Fimtán reknestabátar höfðu farið á
sjó frá Solway, og komust þeir með
naumindum í höfn í dag, og einn
þeirra ekki fyr en undir kvöld, og
var þá farið að óttast um hann.
Verst var veðrið á Irska hafinu og
við strendur Norður-Skotlands.
Skip strandaði í kvöld út af Rose
of Mull, við vestanvert Skotland,
og var ekki vitað, hvaða skip það
var.
Á Norður-írlandi fauk tré á ein-
um stað og lenti á járnbrautarlinu
út frá Dublin, og ók Iest á tréð, þar
sem það lá þvert yfir járnbrautina.
Lestin fór út af sporinu og meidd-
ust tveir farþegar.
KVIKMYND
af Vatnajökulsleiðangrinum í sumar
Þess er getið í dönskum blöðum,
m. a. í Kristeligt Dagblad 1. þ. m.,
að dr. Niels Nielsen hafi, auk ým-
islegrar vísindalegrar vitneskju um
eðli og ásigkomulag Vatnajökuls,
haft heim með sér allmargar kvik-
imynda-filmur, sem gert sé ráð fyr-
ir að hann sýni í Landfræðifélaginu
danska áður en langt um liður.
Samtímis muni hann halda fyrirlest-
ur um árangur ferðarinnar. Síðar
er búist við, að dr. Nielsen muni
flytja opinberlega nokkur erindi um
leiðangurinn og sýna kvikmyndim-
ar um leið, máli sínu til skýringar.—
Vísir, 29. okt.
GRElÐItí DR. WARRINER FORGANGSATKVÆÐI
A FÖSTUDAGINN KEMUR
KJÓSIÐ TIL BÆJARFULLTRÚA
1 2. KJÖRDEILD
C. RHODES SMITH - GARNET COULTER
VICTOR B. ANDERSON