Lögberg - 26.11.1936, Blaðsíða 1

Lögberg - 26.11.1936, Blaðsíða 1
PHONE 86 311 Seven Lines ' ' yS" 'V For vM3^" n°>v* Service c°** and Satisfaction 49. ARGANGUR Frá Islandi Mesta flóð, sem eg hefi séð í sjötíu ár” Geysileg sjóflóÖ voru hér við Reykjavík í gær. Gekk sjórinn yfir mikinn hluta Örfiriseyjar og vestri hafnargarðinn, og var að sjá eitt hvítfyssandi löður yfir garðinn í ó- lögum. Enda stóð f jöldi manna við höfn- ina og á Arnarhóli um kl. 5 í gær og horfði á hamfarirnar. “Eg hefi aldrei séð á björtum degi ■önnur eins sjóflóð hér á Seltjarnar- nesi,” sagði frú Kristín Ólafsdóttir I Nesi í viðtali við Alþýðublaðið í morguh, en hún er nú 76 ára og hefir dvalið allan sinn aldur í Nesi. Sjórinn fossaði upp á nesið, og úðinn af brimlöðrinu lék um andlit manns, þó að maður stæði langt í jarri. Flóðin gengu stanzlaust yfir Grandann og brutu tvær rásir yfir hann. Gekk sjórinn hér upp að túni og bar möl og sand mjög langar leiðir.” 1 Gróttu gekk sjórinn yfir meiri hluta eyjunnar og tók um 60 metra af sjóvarnargarði, en hann var bygður fyrir 14 árum. Við Eyði hafði sjórinn brotið skjólgarð og kastað grjóti langt á land, og ýmsar skemdir hafa orðið á túnum, heyj- um og mannvirkjum, en þó ekki til- finnanlega, nema ef til vill á Stóra- Bjargi. Viða flæddi yfir veginn suður á Nes, en hann mun þó ekki hafa skemst neitt að ráði. Töluverð flóð urðu í verstöðvun- um hér sunnanlands. Mest urðu flóðin í Sandgerði. Þar braut sjór- inn fisk- og salthús og eyðilagði pakkaðan fisk og ýrrlsa verðmæta muni. Er þetta mesta flóð, sem menn muna eftir í Sandgerði. Á Eyrarbakka og Stokkseyri braut sjóinn á sjávargörðum, en olli ekki skemdum'. I Grindavík og Keflavík urðu engar skemdir, en sjórinn gekk þó mjög hátt.—Alþ.bl. 30. okt. # # # Bát hrekur til hafs - Ólafsvík 36. okt. Úr Ólafsvík símar fréttaritari út- varpsins, að þar hafi gert í gær- morgun aftakaveður af suðri. Voru 3 vélébátar á sjó, og náðu tveir landi, en sá þriðji, Bliki frá Ólafs- vík, náði belgiskum togara. Komst bátshöfnin í togarann, og var bát- urinn bundinn aftan i hann, en veð- urhæð var svo mikil, að báturinn slitnaði frá og rak hann talsvert brotinn til hafs. Vélbáturinn Aðal- björg frá Reykjavík gerði í gær ítrekaðar björgunartilraunir. Tókst þrisvar að koma höndum á bátinn, en ávalt brotnaði undan böndunum. —í nótt fór hann enn að leita báts- ins, en þá fanst hann hvergi. Skipstjórinn á vélbátnum Blika var Ingi Kristjánsson, en skipstjóri á vélbátnum Aðalbjörgu er Einar Sigurðsson. Bliki var óvátrygður. Eigendur voru Ingi Kristjánsson, Edilon Kristófersson og Helgi Jóns- son og miissa allir aleigu sína.—Vísir # # # Skemdir af völdum sjávarflóðsins 30. október. Sjávarflóðið í gær hefir valdið talsverðum skemdum í verstöðvum sunnanlands. Frá Akranesi simar fréttaritari útvarpsins, að í gær hafi orðið skemdir af sjógangi alt i kring um Skaga, sérstaklega á fiskreitum, veg- um og húsum. — Mestar skemdir urðu hjá Sigurði Hallbjarnarsyni, útgerðarmanni. Skemdist hjá hon- um allmikið af fiski, er sjór féll inn WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 26. NÓVEMBER 1936 NÚMER 48 Ofsaveður og hláka ganga í bandalag með að brjóta upp ís á fiskivötnum í Manitoba MR. FRED THORDARSON bankastjóri. Þess er getið á öðrum stað hér i blaðinu, að útibúi Royal bankans að Sargent og Arlington verði lok- að um mánaðamótin næstu. Hefir Mr. Thordarson verið þar banka- stjóri síðan útibúið var stofnsett. Mr. Thordarson hefir verið 30 ár í þjónustu þessa banka og notið al- mennra vinsælda. Um mánaðamót- in gefst hinum íslenzku viðskifta- vinum Royal bankans kostur á að hitta Mr. Thordarson á útibúinu að Sherbrook og Sargent, og gera þar við hann viðskifti sín eins og að undanförnu. í fiskhús hans. Auk þess urðu skemdir á fiski hjá Jóni Halldórs- syni útgerðarmanni, og Bjarna Ól- afssyni og Co. — Haraldur Böðv- arsson, útgerðarmaður, misti út nokkuð af síldartunnum og hjá hon- um urðu fleiri skemdir. Allir fisk- reitir á Akranesi eru stórskemdir og margir gereyddir. Er þetta brim eitt hið allra mesta, sem komið hefir. Hafnargarðurinn skemdist ékki og báta á legunni sakaði ekki.—Vísir * # # Skemdir af livassviðri í Hafnarfirði Fréttaritari útvarpsins í Hafnar- firði simar í morgun kl. 11.30: I nótt gerði hér i Hafnarfirði vestan rok. Um kl. 9.30 í morgun fauk hluti af fiskþvottahúsi, eign Lands- banka íslands við Strandgötu 52. Hafði sjórinn grafið undan húsinu. Fyrir fokinu urðu 7 drengir og einn fullorðinn maður. Tveir drengir og fullorðni maðurinn, er heitir Jón Lárusson, voru þegar fluttir á sjúkrahús, en fjórir drengir í íbúð í bæjarþinghúsinu og er hjúkrað þar. Einn drengurinn var fluttur heim til sín. Skúli Ingvarsson, 11 ára gamall drengur, varð fyrir mest- um meiðslumi. öllum líður nú vel eftir atvikum.—Vísir 30. ókt. # # # Eldsvoði á Seyðisfirði Seyðisfirði 30. okt. Síðasliðna nótt um kl. 24 varð vart við eld í úthýsi feðganna Bene- dikts Þórarinssonar, bankaritara og Þórarins Benediktssonar, Baldurs- haga á Seyðisfirði. — Voru flestir í fastasvefni, og er að var komið, var húsið alelda og nær engu tókst að bjarga. Inni brunnu 2 kýr, 1 hestur, nokkur hænsni, 80 hestar taða, aktýgi, reiðfæri, smíðatól, kjöt og kálmeti, fatnaður í þvottahúsi og ýmislegt fleira — alt óvátrygt nema hús og fatnaður. Upptök eldsins eru ókunn.—Vísir. MEIMBOÐ JONS SIGURÐS- SONAR FÉLAGSINS Á miðvikudagskveldið í vikunni sem leið, stofnaði Jóns Sigurðssonar félagið, I.O.D.E., til heimboðs, eða réttara sagt stórveizlu, fyrir þá heimkomna hermenn af íslenzkum stofni, er í styrjöldinni miklu frá 1914 tóku þátt, og til náðist, ásamt konum þeirra og nokkrum öðrum gestum. Safnaðist í veizlusal Army and Navy félagsins á Young Street, þetta kveld, freklega tvö hundruð manns, mestmegnis úr Winnipeg og grend. Forseti J. S. félagsins, frú Guðrún Skaptason, setti mótið með hlýjum og velvöldum inngangsorð- um og bauð gesti velkomna. Eftir að allir höfðu komið sér fyrir, var sezt að spiluro og spilað Contract Bridge nokkuð fram eftir kveldi. Voru þá bornar fram hinar rík- mannlegustu veitingar, er veizlu- gestir gerðu góð skil. Stuttar ræður fluttu, auk forseta, Col. H. M. Hannesson, J. T. Thor- son, þingmaður Selkirkkjördæmis, Thorsteinn Gillies og Björn Stef- ánsson lögfræðingur. Mintust ræðumenn allir þess lofsverða starfs er Jóns Sigurðssonar félagið hefði int af hendi í þágu hermanna af ís- lenzkum stofni, meðan á styrjöldinni stóð, sem og margra nytjaverka síð- ar, svo sem útgáfu minningarritsins yfir íslenzka hermenn. Eftir að ræðuhöldunum lauk var stiginn dans nokkuð fram eftir nóttu, en um músík við dansinn ann- aðist Mr. Pálmi Pálmason. Yfir mannfagnaði þessum ríkti hlýr samúðarandi og var það auð- séð á öllu, að allir fundu sig heima. Jóns Sigurðssonar félagið á almenn- ar þakkir skyldar af hálfu íslend- inga fyrir þetta virðulega heimboð sitt. NÝTT SÖNGLAG Núna alveg nýverið er nýkomið á markaðinn nýtt einsöngslag við kvæði Þorsteins Erlingssonar “Mig hryggir svo margt, semi í hug mínum felst.” Höfundur lagsins er Ólafur Hallson, kaupmaður að Eriksdale hér í fylkinu. Lag þetta, þó ekki sé beinlínis frumlegt, er einkar söng- hæft og líklegt til þess að ná góðum vinsældum. Meðspil að laginu hefir samið Sigurbjörn Sigurðsson, fyrr- um kaupmaður í Riverton, og er þar prýðilega gengið frá. Ólafur Hall- son er maður sérlega hljómrænn og næmur á söng; mun þetta heldur ekki vera eina lagið, sem hann hefir samið. Gunnar Erlendsson, píanisti, hefir “mimiografað” lagið og gert það frábærlega vel. Lag þetta er tilvalin jólagjöf. Það kostar í vandaðri kápu aðeins 35 cents og fæst hjá Magnúsi Peterson, 313 Horace Street, Norwood, Man., og höfundinum að Eriksdale. VEGLEGT KVEÐJUSAM- SÆTI I RIVERTON Á föstudagskveldið var söfnuð- ust saman í, samkomuhúsi Riverton bæjar um 400 vinir og samferða- menn þeirra Mr. og Mrs. Oddur Ólafsson og f jölskyldu, sem nú eru alflutt frá Riverton til Winnipeg- borgar. Mr. Ólafsson var, sem kunnugt er, kosinn á fylkisþing fyrir Ruperts Land kjördæmi i sumar. Er hann hinn mesti athafna og atorku- maður og kona hans, sem er af enskum stofni, honum samhent í því öllu, er í umbótaátt miðar; heimili þeirra lengi annálað fyrir gestrisni, og börnin mannvænleg. Mr. S. V. Sigurðsson hafði orð fyrir gestum og afhenti Mr. Ólafs- son skrautlegt úlnliðsúr með fanga- marki, að gjöf frá viðstöddum vin- umi. Mrs. G. M. K. Björnsson, mælti fyrir minni Mrs. Ólafsson og sæmdi hana að gjöf fagurgerðri blómaskál úr silfri. En fyrir hönd bygðarfólks flutti Dr. S. O. Thomp- son snjalla og mjög rómaða ræðu fyrir minni heiðursgestanna. Þau Mr. og Mrs. Ólafsson þökk- uðu hvort um sig þá velvild og þá sæmd, er þessi virðulegi mannfagn- aður bæri vott um. Samkomusal- urinn var fagurskreyttur, veitingar rausnarlegar og dans frarn eftir nóttu. Við dansinn lék Woodlands Orchestra Hannesar Kristjánssonar frá Gimli. Þau Ólafssons hjón eiga víðtæk og djúp ítök í hugum fjölmennrar samferðasveitar, sakir glæsimensku og drengskapar. ARSFUNDUR FYRSTA LÚTERSKA SAFNAÐAR Á þriðjudagskvöldið var hélt Fyrsti lúterski söfnuður ársíund sinn í samkomusal kirkjunnar við góða aðsókn. Skýrslur embættis- manna báru með sér að safnaðar- starfið í heild, hafði gengið vel á liðnu starfsári. Kosnir voru í fram- kvæmdarnefnd fyrir næsta ár: Dr. B. J. Brandson, A. C. John- son, Ch. Sigmar, Fred Thordarson, J. J. Vopni, J. Hjálmarsson, Th. Stone, G. F. Jonasson, J. G. Jó- hannson, Albert Wathne. Djáknar— J. J. Swanson, S. O. Bjerringi B. Johnson, Mrs. H. Nicholson, Miss V. Jónasson, Baldwin Baldwin, Mrs. K. J. Backman, Miss Theodora Hermann, Miss Guðrún Bíldfell, Richard Vopni. Yf irskoðunarmenn— H. J. Pálmason, Paul Bardal. AÐALFUNDUR ÞJOÐRÆKNIS- DEILDARINNAR “FRÓN” Þjóðræknisdeildin “Frón” hélt ársfund sinn í Goodtemplarahúsinu á mánudagskveldið var, fyrir hús- fylli. Fór þar fram kappræða milli þeirra Dr. Sig. Júl. Jóhannessonar og séra Jóhanns Bjarnasonar. Frú Grace Johnson skemti með einsöng en Ragnar H. Ragnar me$ piano- spili. Til forseta var kosinn Ragnar H. Ragnar; varaforseti, Halldór Hall- dórsson; skrifari, Hjálmar Gísla- son, aðstofar skrifari, Carl Jónas- son; féhirðir, Sveinn Pálmason; að- stoðar féhirðir, Þorvaldur Péturs- son; f jármálaritari, Gunnbjörn Stef- ánsson; aðstoðar f jármálaritari, Mrs. Salome Backman. PONTU-VISUR Það bar til einhverju sinni í brúð- kaupsveizlu að Þingeyrum í Húna- vatnssýslu, að þar voru stödd þrjú skáld eða hagyrðingar. Einn var Jónatan Sigurðsson, siðar prestur að Stað i Hrútafirði, annar Páll Bjarnason, prestur að Undirfelli og þriðji Jón nokkur Oddsson, djákni að Þingeyrum. — Þar var og í hóf- inu Gísli stúdent Magnússon, sýslu- manns Gíslasonar, síðar prestur að Tjörn á Vatnsnesi. Hann átti tönn (pontu) haglega gerða og silfur- búna. Var hann góður af “tönn” sinni og mæltist til þess, að hagyrð- ingarnir þrír kvæði um hana sína vísuna hver. — Varð Jónatan fyrst- ur til, enda var því jafnan líkast, sem honum lægi ljóð á tungu, hve- nær sem til þurfti að taka. Vísa hans er á þessa leið: í vikunni sem leið braut upp ís á víðflæmum á ýmsum veiðivötnum í Manitoba. Stafaði af þessu um hríð feykileg mannhætta á Manitoba- vatni og Lake Dauphin. Fyrir frá- bæra karlmensku og kjark lánaðist þó að bjarga öllum mönnum, að því Þinn við munn eg minnist greitt mitt í nunnu-safni; þér eg unni af þeli heitt, þú ert sunnu-jafni Jón kvað: Sú ber ljóma geddu-geims, gleður fróma drengi, fríar dróma angurs eims, eg það róma lengi. Páll var síðastur. Vísa hans er þannig: Ó, hvað þú ert yndislig orma- búin -dýnu, líkt og frúin faðmi mig fati rúin sínu. Allar eru vísurnar hringhendur, en engin verulega góð. —Vísir 26. nóv. KARLAKLÚBBUR FYRSTA LÚTERSKA SAFNADAR Á miðvikudagskvöldið þann 2. desember næstkomandi heldur Karla klúbbur Fyrsta lúterska safnaðar “Dinner Meeting” í samkomusal safnaðarins stundvíslega kl. 6.30. Ræðumaður þetta kveld verður: PROF. R. O. MacFARLANE kennari í sagnfræði við Manitoba háskólann, mælskur maður og víð- mentur. Talar hann að þessu sinni um utanríkismál og afstöðu Can- ada til þeirra. Félagsmenn eru á- mintir um að koma í tæka tíð. Hitt og þetta “Upp” í Grindavík Eins og allir vita, er táknan átta í daglegu tali ærið skrítin, villandi og röng, víða hér á landi. Skagstrend- ingar og aðrir Húnvetningar segja t. d. norður á Sauðárkrók og norð- ur á Akureyri o. s. frv. og er þó fjarri því, að í norður sé stefnt á þessum leiðum. Og svona er þetta, eða þessu líkt, mjög víða uimi land- ið. Dr. Bjarni Sæmundsson segir frá því i “Árbók Ferðafélagsins” þ. á., hversu þessu sé háttað hér “suður með sjó,” Hann segir m. a.: “Úr Grindavík liggja gamlir veg- ir “út” eða “suður” í Hafnir, “suð- ur” eða “niður” í Njarðvíkur (Skipastíg), “suður” eða “út” í Leiru og Garð, og “út” á Nes, “niður” eða “inn” í Voga (Skóg- fellavegur), “inn” á Vatnsleysu- strönd o. s. frv., en úr öllum þess- um bygðum er farið “upp” í Grinda- vík. Úr “Víkinni” er farið “inn” og “upp” í Fjall: Móhálsa, og “upp” að Krísuvík og austur í Herdísar- vík, Selvog (“Vog”) o. s. frv. Eru þessar átta táknanir æði torskildar fyrir ókunnuga, sumar hverjar, eins og t. d. suður í Njarðvíkur, sem eru nærri í norður úr Grindavík. En það er víða margt skrítið í þessu tilliti.” Hvalfjörður Skúli landfógeti Magnússon seg- ir m. a. svo um Hvalfjörð: “í júlímánuði gengur árlega mik- ið af allskonar hval inn i fjörð þenna. Hefst hann þar við þangað til seint i ágústmánuði; sagt er og, er telja má sannfrétt. Flugvélar að- stoðuðu við björgunina. Netjatjón er geypilegt og standa nú heilir her- skarar fiskimanna uppi eignalausir og ráðþrota. Er hér nú skjótra ráða þörf ef eitthvað á að greiðast fram úr vandræðunum. að hann fæði þar unga sína. Þó eru þetta ekki hinir eiginlegu, rétt- nefndu hvalir, heldur Norðurhöfða- hvalir og tannhvalir (burkopper) og aðrir slíkir. Þessi hvalamergð hefst við frá því í júnímánuði í djúpinu milli Vatnsleysustrandar, Innnesja og Sviðsins, þar til þeir fara inn í fjörðinn.” ' Lofvísa sjálfkénd (Úr Háttlykli Lofts Guttorms- sonar hins ríka, dr. 1432) : Mér þykir mengrund skýrust, mæt, væn, horsk, frið sæta, hæversk, hæg, ljúf, roskin, hvít, rjóð, svinn, snjöll, fróðust, málvitur, mjó, kæn, snotur, mjúk, dýr, glögg, prúð, hýrust, háttprúð, fagurhærð, máttig. —Vísir. LEGGJA HALD A* SENDIHERRABÚSTAÐI Stjórnin á Spáni hefir lagt hald á embættisbústaði Þjóðverja og ítala í Madrid. Ber stjórnin það fyrir sig, að pólitískir flóttamenn frá ýmsum þjóðum hafi haft þar bæki- stöð. Hitt þykir þó líklegra að ráð- stöfun þessi sé gerð vegna þess að ítalir og Þjóðverjar hafa opinber- lega viðurkent General Franco og uppreisnarráðuneyti hans. OFVIÐRI VIÐ BRETLANDS- EYJAR « London 26. okt. Suðvestan hvassviðrinu, sem ver- ið hefir nokkra undanfarna daga við Bretlandseyjar, stóð sem hæst í dag, en tók að slota er á leið kvöldið. Fimtán reknestabátar höfðu farið á sjó frá Solway, og komust þeir með naumindum í höfn í dag, og einn þeirra ekki fyr en undir kvöld, og var þá farið að óttast um hann. Verst var veðrið á Irska hafinu og við strendur Norður-Skotlands. Skip strandaði í kvöld út af Rose of Mull, við vestanvert Skotland, og var ekki vitað, hvaða skip það var. Á Norður-írlandi fauk tré á ein- um stað og lenti á járnbrautarlinu út frá Dublin, og ók Iest á tréð, þar sem það lá þvert yfir járnbrautina. Lestin fór út af sporinu og meidd- ust tveir farþegar. KVIKMYND af Vatnajökulsleiðangrinum í sumar Þess er getið í dönskum blöðum, m. a. í Kristeligt Dagblad 1. þ. m., að dr. Niels Nielsen hafi, auk ým- islegrar vísindalegrar vitneskju um eðli og ásigkomulag Vatnajökuls, haft heim með sér allmargar kvik- imynda-filmur, sem gert sé ráð fyr- ir að hann sýni í Landfræðifélaginu danska áður en langt um liður. Samtímis muni hann halda fyrirlest- ur um árangur ferðarinnar. Síðar er búist við, að dr. Nielsen muni flytja opinberlega nokkur erindi um leiðangurinn og sýna kvikmyndim- ar um leið, máli sínu til skýringar.— Vísir, 29. okt. GRElÐItí DR. WARRINER FORGANGSATKVÆÐI A FÖSTUDAGINN KEMUR KJÓSIÐ TIL BÆJARFULLTRÚA 1 2. KJÖRDEILD C. RHODES SMITH - GARNET COULTER VICTOR B. ANDERSON

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.