Lögberg - 10.12.1936, Síða 3
LÖGBERG. FIMTUDAUuN jN 10. DESEMBER 1936
3
þar til hin hræðilega þögn gefur til
kynna að morðunum sé lokið.
Og hversu oft hljóta ekki slíkir at-
burðir að liafa gerst í “catacombun-
um” ? Og hversu oft hafa ekki
böðlarnir myrt þar, og trúarhetj-
urnar liðið píslarvættisdauða.
—Þýtt fyrir kvöldvökufélagið
“Nemó” á Gimli.
Erlendur Guðmundsson.
Silfurfarmur á sjávar-
botni í Höfnum
(Niðurl.) f
Þegar búið var að tæma lestina,
var uppboð haldið á þeim helnjing,
sem bjargað hafði verið i land og
sem selja átti. En hvað mörg stykki
það voru, get eg ekki sagt með
neinni vissu, en í gömlum skjölum,
sem eg hefi með höndurm frá þeim
tímum, er sagt, að selt hafi verið
það sinn sem næst 8 þúsund stykki.
En eg held, að i efstu lestinni hafi
hlotið að vera mikið meira en 16
þús. stykki, þó að allir bitar séu
dregnir frá. Geymur, sem er 360
fet á lengd, 64 fet á breidd og 20
fet á dýpt, rúmar reikningslega séð
miklu meira en 16 þús. planka,
þótt reiknað sé að meðaltali t. d.
16 feta lengd, 8 þml. breidd og 3
þml. þykt.
Kristján Jónsson, sem siðar var
hæstaréttardómari, var þá sýslumað-
ur í Gullbringusýslu, og hélt hann
uppboðið. Var meðalverð á hverri
hrúgu 10—12 kr., en 24 plankar í
hrúgunni (númerinu). Var meiri-
hlutinn af öllu timbrinu keyptur af
Gullbringusýslubúum. En mörg ár
liðu frá því uppboðið var haldið og
þar til enginn plánki sást eftir á
strandstaðnum.
Skipið sjálft, með öllu, sem eftir
var í þvi, keypti H. P. Duus í Kefla-
vík fyrir 301 krónu. En hann bauð
i það fyrir Suðurnesjabændurna, en
ekki fyrir sjálfan sig, og átti alls
enga hlutdeild í skipi eða plönkum
eftir uppboðið.
En þrátt fyrir það, þótt búið væri
að selja shipið með öllu tilheyrandi,
þá var þó uppskipun haldið áfram
upp á helming, eins og áður, en sú
breyting orðin á, að þeir félagar,
Páll, Jpn og Sigurður, voru nú hætt-
ir, en bændur teknir við, og man eg
ekki betur, en að hver sem vildi
mætti skipa upp gegn helmingaskift-
um. Voru 4—6 í hverju félagi, og
var áreiðanlega góða atvinnu að
hafa upp úr þeirri vinnu, þetta frá
10—14 planka i hlut á dag.
Fyrir utan plankana í miðlestinni
var líka aftast í þeirri lest afarstór
borðabunki af rengluborðum, 10—
16 fóta 1., 4—6 þml. br. og 3/4 þml.
þykkum. Var gömlum manni ein-
utm fátækum í Hafnarhreppi leyft
að taka af borða bunkanum eins og
hann gæti flutt i land, fyrir ekki
neitt. En með syni sínum einum
gat hann flutt það mikið í land, að
hann vorið eftir bygði sér snoturt
íveruhús, úr plönkum og borðum,
sem ekki hafði kostað hann einn
eyri, nema aðeins vinnuna.
En auk borðabunkans var líka
aftast í þessari lest afarstór hlaði
af hvítum múrsteini, fleiri þúsundir,
og var víst meiningin að skipa hon-
um öllum upp, þegar timbrið væri
búið úr lestinni, en það fór á aðra
leið. Skipið brotnaði áður en sú
vinna væri hafin.
Seinni hluta septembermánaðar
gerði SV-storm með miklu brimi,
og klofnaði þá skipið í tvent. Og
var, eins og eg áður hefi tekið hér
fram, alveg ótrúlegt, að öll þau
kynstur, sem þá bárust i land af
plönkum og plankabútum, skyldu
geta verið úr einni lest af þremur,
úr sama skipinu. Var á fullu f jögra
kílómetra svæði ein óslitin hrðnn af
timbri, plönkum og stórtrjám úr
skipinu sjálfu. Þegar búið var að
bjarga því mesta undan sjó, nema
stórtrjánum úr skrokknum sjálfum,
var annað uppboð haldið. Hélt það
þáverandi hreppstjóri Vatnsleysu-
strandarhrepps, Ásbjörn Ólafsson í
Innri-Njarðvík. Verð var mjög líkt
og á hinu fyrra uppboði, nema hvað
öll stórtré og síðurnar, sem báðar
voru i heilu lagi, fóru fyrir sama
sem ekki neitt, sökum erfiðleika
þeirra, sem taldir voru á að vinna
að því að rífa þetta tröllasmíði i
sundur. Auk annars á þessu upp-
boði keypti faðir minn aðra siðuna,
og var eg ásamt fleirum í fjölda-
mörg ár að rífa hana og flytja
tímbrið heim að Kotvogi.
Alt var skip þetta eir- eða látúns-
slegið f sjó og sverum koparboltum
neglt , gegnum byrðing, innholt og
garneringu, en hvað margar smá-
lestir af látúni og kopar faðir minn
átti, man eg ekki, eða réttara sagt
vissi ekki. En það var mikið, það
eitt man eg.
Mér hefir talist svo til, að í skip-
inu hafi alt af verið ca. 100 þúsund
plankar, fyrir utan alla plankabúta
og fleira. En hvað varð svo af
öllum þessum ósköpum? Til Reykja-
víkur einnar voru víst fluttir sem
næst 20 þúsund plankar. En hvað
mikið lenti svo í hverjum hreppi
sýslunnar er ómögulegt að segja
neitt urn með vissu, en langsamlega
mest lenti samt í Hafnahreppi. Eg
man, að faðir.'minn seldi austur á
Eyrarbakka, Jóhanni nokkrum
snikkara þar, 400 stykki, og sá þó
víst ekki mikið á hrúgunni. Auk
þess bygði hann 18x9 álna baðstofu,
afar rammgerða, klæddi sjálft íveru-
húsið, sem er 18x12 álnir, alt utan
með 3 þml. ’plönkum, bygði nýtt 5
kúa fjós úr heilum plönkum, og
margt fleira. En alls voru víst bygð
að stofni 9 hús hér í Hafnahreppi,
fyrir utan minni hús, f járhús, hest-
hús, fiskhjalla o. s. frv.
En 'hvað mikið var svo bygt úr
þessum plönkum í öðrum hreppum
Gullbringusýslu, er mér ekki kunn-
ugt um.
Mesti sægur af fólki, nálega úr
öllum landsf jórðungum, kom að
skoða þetta mikla skip. En oft fékk
maður að heyra óp og vein: “Guð
almáttugur” og “Æ, Jesús minn,”
þegar verið var að hala kvenfólkið
upp þennan 17 tröppu Stiga, sem
nálega var lóðréttur upp frá sjó, og
upp að öldustokk skipsins.
Þegar leið á sumarið fór það að
kvisast, að seglfesta skipsins væri
óhreinsað silfur, eða silfurgrjót frá
Mexikó, og væri tneira virði en skip-
ið með öllum farminum. Og spratt
nú upp sannkölluð silfursýki í f jölda
manna. Ep eins og áður er sagt frá,
þá brotnaði skipið áður en byrjað
var á að skipa upp úr neðstu lest-
inni, en ógerningur að komast að
seglfestunni, fyr en plankarnir voru
teknir úr lestinni.
Það er næsta ótrúlegt, en þó satt,
að til þessa dags hefir ekki einn
moli af seglfestu skipsins borist til
lands, í öllum þeim hafrótum, sem
verið hafa síðan að skipið brotnaði,
og ekki hefir heldur sézt einn steinn
af öllum múrsteinshlaðanum:, sem
var í miðlestinni. Það sennilegasta
ér, að þann dag, sem skipið klofnaði,
hafi botninn borist fram á leirinn og
hvolft þar öllu úr sér, og grjótið
svo sokkið niður í leðjuna. En þó
er alveg óskiljanlegt, að ekki ein
steinvala skyldi flækjast í land,
hvorki fyr né síðar, ekki lengra veg
en skipið var frá landi.
En sumar eftir sumar kom Sig-
urður Jónsson járnsmiður hingað i
Hafnirnar, með ýmiskonar útbúnað
til þess að reyna að slæða upp þó
ekki væri nema einn stein af þessu
seglfestugrjóti, en við gáturn aldrei
verið svo hepnir að fá eina steinvölu
af því. Og þó er það áreiðanlega
víst, að seglfestan var silfurgrjót,
því árið eftir strandið kom upp til
íslands maður frá Ameríku, sem var
sendur hingað að spyrjast fyrir um
hvað hefði orðið af seglfestunni, og
staðfesti hann það, sem áður hafði
heyrst, að seglfestan hefði verið
verðmætari en skipið sjálft með öllu
timbrinu.
Þó varð eg einu sinni svo frægur
að sjá einn mola af þessu silfur-
grjóti. Sigurður Ólafsson, smiður
í Merkinesi (föðurbróðir séra Ólafs
fríkirkjuprests), komst eitt sinn
eitthvað langt niður í skipið, fast við
afturstefnið., þar sem kinnungurinn
var rifnaður frá stefninu. Þegar
hann kom upp aftur, var hann með
stein í hendinni, vel hnefastóran,
silfurgráan að lit. Hann fór með
steininn 'heim til sin og bræddi hann
i srniðju sinni, og var mér sagt, að
hann hefði fengið úr honum silfur,
sem svaraði tveirn krónum, en aldrei
sá eg það silfur sjálfur hjá Sigurði.
Þetta er áreiðanlega alt það silfur,
sem komst í umferð eða til nothæfr-
ar brúkunar á Islandi af öllum þeim
hundruðum þúsunda, sem i skipinu
voru af siflri.—Lesb. Morgunbl.
SKILAGREIN
yfir inntektir og útgjöld við
minnisvarða St. G. Steph-
anssonar, Markerville, Alta.
A. —Inntektir alls ......$463.90
B. —Útgjöld:
Minnisvarðinn sjálfur, (áður
auglýSt, 27. nóv. 1935). .$201.50
Girðing umhverfis reitinn:
Stálkeðjur (600 fet)........$65.50
Hliðstólpar, steypun........ 25.00
30 cement stólpar........... 57-85
Cement ..................... 20.50
Járnsmíði ................... 7.00
Mál ....................... 14-35
Myndamót, plötur, o. fl......20.15
Fyrir flutning á möl grjóti,
og cementsstólpum i girð-
inguna .................. 24.00
Alls útborgað..........$438.85
í sjóði (Can. Bank of Com-
merce) ................. 25.05
Samtals ...............$463.90
Skýrsla Ófeigs Sigurðssonar
Skýringar við ofanskráðan reikn-
ing þarf eg ekki margar að gera. Eg
hefi enn ekki ákveðið neitt urn það
hvað gera skuli við það lítilræði,
sem eftir er í sjóðnum, en hefi það
aðeins á huganum að þarflegt muni
vera að mæla veg frá alfaravegi inn
að grafreitnum, en engra upplýs-
inga 'hefi eg aflað mér viðvíkjandi
kostnaði þar að lútandi. Loks skal
eg þá minnast þess að verðugu þeim
mönnum, sem hjálpuðu mér við
gjafavinnu og fleira til að koma
þessu verki í framkvæmd, að það
hefir ekki verið reiknað til peninga
það sem þeir gerðu, þó svo hefði
mátt vera. Eitt af því var það að
Mr. Daníel Mörkeberg flutti fyrir
mig keðjurnar frá Calgary og hing-
að norður í bygð. Munu þær hafa
vigtað um hálft annað tonn, 3,000
pund, en hann vildi enga borgun
þiggja fyrir það. Þá var Mr. E. G.
Johns, v.erzlunarmaður í Red Deer.
Hann gaf mér átta feta járngrind í
hliðið og er hún í tvennu lagi, fjög-
ur fet hver hurð. Nokkrir góðir
drengir í kring um Markerville gáfu
mér eitt og sumir tvö dagsverk við
að koma girðingunni upp, og er eg
þeim mönnum sérstaklega þakklátur
fyrir það hvað þeit unnu vel og
dyggilega við það verk. Maðurinn
sem að steypti póstana fyrir mig er
hr. Ágúst Ásmundsson í Red Deer
bæ, og er hann af öllum sem til hans
'þekkja talinn að vera snillingur og
með afbrigðum vandvirkur við sem-
ents vinnu af öllu tagi. Eg er hon-
um mjög þakklátur fyrir það góða
verk sem að hann gerði á póstun-
um og það fyrir lítið endurgjald, þvi
að efnið sem að fór í póstana kost-
aði $47.85, en hann aðeins tók við
$10.00 fyrir sitt verk og var það
víst æði lítið í samanburði við þann
tíma sem að það tók hann að búa
póstana til og viða að sér efni i þá.
Til dæmis vildi hann ekki hafa það
neitt minna en fjóra jámteina í
hvern póst með krók á hverjum
enda. Tvær eins og hálfs þuml.
pipur eru i gegnum hvern póst til
að draga keðjuna í gegnum. Póst-
arnir eru 6 þml. á annan veginn en
8 á hinn og settir 2 fet niður í jörð-
ina í sementssteypu. Maðurinn, sem
að bygði minnisvarðann og 'hlið-
stöplana líka úr sama efni heitir
Tony Krissganan og er Serbíumað-
ur. Þar lær%i hann sitt handverk,
heima í gamla landinu. Hann er eini
maðurinn hér um slóðir, sem er
hæfur til að vinna svona lagað verk,
og hann er talinn að vera af öllum
sem til hans þekkja, vandvirkur og
samvizkusamur maður. Þeir Hill-
mans bræður bygðu fyrir mig und-
irstöðuna undir minnisvarðann og
gerðu, að eg held, snildarverk á
henni; eg er sérstaklega ánægður
yfir þvi að vita til þessy að verkið
var af öllum, sem að því unnu, unn-
ið af góðvilja og ráðvendni, og gef-
ur það mér um leið góða von um
góða og langa endingu fyrir fram-
tíðina. Eg er öllu því fólki inni-
lega þakklátur, sem að einhverju
leyti hafa hjálpað mér til að koma
þessu verki í framkvæmd, og sér-
staklega er eg þakklátur þeim dr.
Rögnv. Péturssyni og syni hans, og
líka Mr. E. Thorláksson fyrir kom-
una hingað síðastliðið sumar og fyr-
ir þær ágætu ræður, sem, að þeir
fluttu hér við afhjúpunarathöfnina
þann 19. júli síðastliðinn. Eg hefi
fengið bréf frá nokkrum góðkunn-
ingjurn mínum og hafa þau öll lokið
miklu lofsorði á ræðurnar, sem að
von er til.
Eg á von á að þetta, sem að hér
hefir verið framkvæmt verði í fram-
tíðinni aðeins lítil byrjun af því, sem
að verða mun í framkvæmd komið
og það áður en að langir tímar líða.
Eg á von á að til þess verði margir
áhugasamir og góðir menn, bæði
austan hafs og vestan að halda á
lofti minningunni um þenna afburða
gáfumann, sem ávann sér aðra eins
aðdáun fyrir skáldskap sinn sem St.
G. Stephansson, og þar að auki var
hinn ágætasti maður. Kæra þökk
fyrir kornu hans hingað í þessa
bygð, það fáum við aldrei fullþakk-
að. Svo með kærri kveðju til ykkar,
.andar góðir, og með kæru þakklæti
til ykkar allra sem að sintuð liðsbón
minni þegar að eg einn og ókunnur
flestum ykkar, ávarpaði ykkur í
Heimskringlu og Lögbergi fyrir
nærri tveimur árum síðan. — Þegar
eg lít til baka, þá er eg hjartanlega
sáttur við alla menn, þó að undir-
tektirnar yrðu ekki almennari held-
ur en að raun varð á þar sem að eg
var flestum að öllu leyti ókunnug-
ur. Þar af leiðandi vissi fólk ekki
við hvern það skifti, og eðlilega fór
sér því hægt. En góða þökk og
gæfuríka framtíð.
Vinsamlegast ykkar einl. vinur,
Ófeigur Sigurðsson,
Red Deer, Alta.
Silfurbrúðkaup
Þann 16. nóv. siðastliðinn söfn-
uðust yfir tvö hundruð manns í sam-
komuhúsi Selkirk-safnaðar til að
•heiðra og samgleðjast hinum valin-
kunnu hjónum, hr. Ásgeiri og frú
Guðrúnu Bjarnason í tilefni af
tuttugu og fimrn ára giftingaraf-
mæli þeirra. Salurinn var skreytt-
ur með hvítum og bleik-rauðum
“streamers.” Borðin voru mjög
smekklega prýdd með blómum og
blárauðum vax-kertum, auk hins
vanalega borðbúnaðar.
Mrs. Fred Fidler og Miss Emma
Gíslason leiddu heiðursgestina til
sætis um leið og hr. Leo Oddson
spilaði brúðkaupslag á píanóið. Séra
Carl J. Olson var veizlustjóri og á-
varpaði silfurbrúðhjónin bæði á ís-
lenzku og ensku. Frú Margrét J.
Sigurðsson flutti stutta ræðu og las
frjumort kvæði, eftir sjálfa sig, sem
birtist með þessari fréttagrein. Einn-
ig tóku til máls Sveinn Skagfeld,
Trausti ísfeld og Þórður Bjarnason.
Séra Carl, sem veizlustjóri, las á-
varp frá kvenfélagi safnaðarins.
Mrs. Lillian Murdock, Margaret
Eymann, Björg Christianson, Irene
Erickson, G. Eymann, J. Benson,
Th. Thorsteinsson, M. Johnson og
Miss Ruby Epps skemtu veizlugest-
unum með hljómfögrum og indælum
söng. Þar að auk voru ýmsir þjóð-
söngvar sungnir af öllum viðstödd-
um.
Mrs. Davíð Johnson talaði fáein
orð urn leið og hún afhenti heiðurs-
gestunum einkar höfðinglegar gjaf-
ir frá þeim stóra vinahóp, sem var
saman kominn. Á meðal þessara
gjafa var ekta silfurborðbúnaður í
vandaðri hirzlu, nokkur stykki
úr postulíni, líndúkar fyrir borð, og
budda, með silfurpeningum. Að
endingu þökkuðu brúðhjónin fyrir
gjafirnar með einkar velvöldum
orðum og svo voru Þjóðsöngvar Is-
lands og Canada sungnir; og allir
fóru heim í rnjög glöðu skapi.
Konurnar, sem stóðu fyrir þessu
veglega samsæti, voru sem fylgir:
Mrs. Davíð Johnson, Mrs. G. Ey-
mann, Mrs. W. Walterson, Mrs. Th.
Anderson, Mrs. I. Magnússon, Mrs.
H. Thorsteinsson, Mrs. F. Fidler,
Miss E. Gilson, Mrs. Th. Thor-
steinsson, Mrs. J. Peterson og Mrs.
D. Lindorff. Auk þeirra gengu
þessar ungu stúlkur um beina:
Josephine Johnson, Margaret Ey-
man, Laufey Johnon, Sylvia Ben-
son, Eleanor Benson, Thora Peter-
son og Veronica Sveinsson.
Business and Proíessional Cards
PHYSICIANS and SURGEONS
DR. B. J. BRANDSON DR. B. H.OLSON
216-22 0 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og lvennedy Sts. l’hone 21 8 34—Oífice tlmar 2-3 906 047
Consultation by Appointment
Heimili: 214 WAVERLEY ST. Only
Phone 403 288 Heimili: 5 ST. JAMES PLACE
Winnipeg, Manitoba Winnipeg, Manitoba
Dr. Herbert J. Scott Dr. P. H. T. Thorlakson
306-7 BOYD BLDG. 205 Medical Arts Bldg.
Stundar augna-, eyrna-, nef- og kverka-sjúkdöma Cor. Graham og Kennedy Sts.
ViCtalstíml 2-5, by appointment Phone 22 866
Sími 80 745 ReS. 114 GRENFELL BLVD.
Gleraugu útveguð Phone 62 200
DR. ROBERT BLACK DR. JON A. BILDFELL
Sérfrœðingur 1 eyrna, augná, nef 216 Medical Arts Bldg.
og hálssjúkdömum. Viðtalstfmi frá 4-6 e. h., nema
216-220 Medical Arts Bldg. öðruvísi sé ráðstafað.
Cor. Graham & Kennedy Sfml 21 834
Viðtalstimi — 11 til 1 og 2 til 5 Skrifstofusfmi — 22 251 Heimili 238 Arlington Street. Sfmi 72 740
Heimili — 401 991
Dr. S. J. Johannesson DRS. H. R. & H. W.
TWEED
Viðtatstfmi 3-5 e. h. Tannlœknar
406 TORONTO GENERAL
218 SHKRBITRN ST. TRUSTS BUILDING
Sfmi 30 877 Cor. Portage Ave. og Smith St.
PHONE 26 545 WINNIPEG
BARRISTERS, SOLICITORS, ETC.
H. A. BERGMAN, K.C. islenzkur lögfrœOingur J. T. THORSON, K.C.
Skrifstofa: Room 811 McArthur islenzkur lögfrœOingur
Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 800 GREAT WEST PERM. BLD.
PHONES 95 052 og 39 043 Phone 9 4 668
BUSINESS CARDS
Ákjósanlegur gististaOur Fyrir Islendingal Vingjarnleg aðbúð. Sanngijarnt verð. Cornwall Hotel MAIN & RUPERT Sími 94 742 G. W. MAGNUSSON Nuddlœknir 41 FURBY STREET Phone 36137 Símið og semjið um samtalstfma
A.S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur lfkkistur og annast um út- farir. Aliur útbúnaður sá bezti. •Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talsfmi: 86 607 Heimilis talsími: 501 562 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgð af öllu tægi. PHONE 94 221
A. C. JOHNSON 907 CONFEDERATION LIFE BUILDING, WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tekur að sér að ávaxta sparifé fölks. Selur eldsábyrgð og bif- reiða ábyrgðir. Skriflegum fyrir- spurnum svarað samstundis. Skrifst.s. 96 757— Heimas. 33 328 ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPEG pœgilegur og rólegur bústaOur i nviObiki borgarinnar. Herbergi $2.00 og þar yfir; með baðklefa $3.00 og þar yfir. Ágætar máltfðir 40c—60c Free Parking for Ouests
Þetta silfurbrúðkaup var hið veg-
legasta og mjög skemtilegt. Það
verður lengi haft í minnum í Sel-
kirkbæ.
Hr. Ásgeir Bjarnason er vel gef-
inn og fróður maður, ágætur stuðn-
ingsmaður kirkju og kristindóms og
hinn bezti drengur í hvívetna. Frú
Guðrún hefir flestar eða allar kven-
legar dygðir til brunns að bera í rík-
um mæli. Hún hefir ávalt stutt góð
málefni og verið prýði heimilis síns
og mannfélags.
Guð blessi næsta aldarfjórðung
þeirra!
Carl J. Olson.
Ort til Asgeirs Bjarnasonar og
Guðrúnar konu hans í silfur-
hrúkaupi þeirra 16. nóvember
síðastliðinn, í Selkirk
Aldarf jór^ung einn þið hafið
áfram leiðst með kjarki og dug,
ykkar pund því ekki grafið,
erfiðleikum rutt á bug.
Þú ert, Ásgeir, mikilmenni,
mörgum frægri á lífsins braut,
hygginn, framgjarn hjartaprúður
hugdjarfur í hverri þraut.
Fróður ert í fornum sögum,
fróðleik háum unnir mest,
og á þínum æskudögum
ávaxtaðir pund þitt bezt;
listaverk þin lýst þig frægan.
lítt þeim kastað var á glæ;
andans forða áttu nægan
allan fyrir Selkirk-bæ.
Er þín fögur eigin brúður,
úrvalskvenna bezt, eg hygg,
glæðir alt það góða og fagra,
Guð elskandi, vinum trygg.
Nú er greind hin sanna saga,
sem án tafar verður skráð
ykkur sytðji alla daga
eilíf fögur Drottins náð.
Margrét J. Sigurðsson.
The Child's Health Today
is the