Lögberg - 04.03.1937, Blaðsíða 1
fHONE 86 311
Seven Lines
tot'
P ; >**
’ t>*\$sG'íoS For
^poV^ Better
Dry Cleaning
and Laundry
50. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 4. MARZ, 1937
NÚMER9
Fulltrúar og gestir á^Þjóðrœknisþingi 22-24 febr.
(Myndin birtist í Winnipeg Free Press 24. f ebrúar)
Efri röð:—Séra GuÖm. Árnason, Lundar ; Guttormur J. Guttormsson, Riverton. Sigmundur
Laxdal, GarÖar, N. Dak. ,
Neðri róðKristján Indriðason, Mountain, N. Dak.; Próf. Richard Beck, Grand Forks,
N. Dak.; Páll Guðmundsson, Leslie, Sask.; Thorst. J. Gíslason, Brown, Man.; Thorl. Thor-
finnsson, Mountain, N. Dak.
víking, læknir og listamann.—G. H.
Mbl. 5. febr.
# # #
Heita vatnið á Reykjum
í gær bauð bæjarstjórn Reykja-
víkur fréttamönnum blaða og út-
varps að skoða hinn nýja jarðbor,
sem nú er búið að setja upp að
Reykjum í Mosfellssveit. Lagt var
af stað um þrjúleytið. — Á Reykj-
um var fyrir Helgi Sigurðsson
verkfræðingur og 3 verkamenn til
.ið sýna gestunum hið nýja og nokk-
uð umtalaða áhald. Skýrði verk-
fræðingurinn það hvernig unnið
væri að boruninni og annað jmð,
sem viðstadda fýsti að vita.
Borinn er smíðaður i Þýzkalandi
og að nokkru leyti með tilliti til
staðhátta hér; hann kostar 47 þús.
krónur án mótorsins, sem knýr hann,
en imótorinn hefir 28V2 hestafls
orku. Bornum er komið fyrir í fer-
hyrntu húsi turnmynduðu 5 metra á
kant og 10 metra á hæð.
Borstengurnar sjálfar eru 5 metra
langar hver og eru þær ióo talsins,
svo .hægt er að bora 500 metra í jörð
niður. á neðri enda bogstangar er
fest svonefnd borkróna og kjarnar-
ör og eru þær 8 þurrtl. í þvermál,
sem er vidd borholunnar. Borkrón-
urnar eru með tvennu móti, önnur
er tennt að neðan og eru það þessar
tennur, sem vinna sér leið í gegnum
jarðlögin; en hin tegundin er slétt
að neðan en í stað tannanna, sem á
hinni eru, þá eru örsmá stálhögl lát-
in í holuna og lenda þau undir kanta
borkrónunnar og slípa burtu bergið.
Þessi tegund er notuð við harðari
bergtegundir. Innan i borstöngun-
um er leitt vatn niður í holuna frá
dælu, sem dælir 165 lítrum af vatni
á mínútu. Þetta vatn skolar burtu
311u dufti úr holunni, svo að hún
helst ávalt hrein, og með vatninu er
stálhöglum komið niður í holuna.
Innan í borholuna og kjarnarörið
kemur svo súla af berginu, eða jarð-
laginu, sem borað er í gegnum og
eru þessar súlur teknar upp úr hol-
unni jafnótt og kjarnarörin fyllast.
Á Reykjum er nú búið að bora 17
holur með gamla bornurn og er sú
dýpsta þeirra 368 metra djúp, en sú
grynnsta 135 metra. Úr þessum 17
holum koma nú um 110 lítrar af
vatni á sekúndu og er meðalhiti þess
talinn um 85°. Auk þess er talið
að um 40 lítrar af vatni á sek. sé i
uppsprettum, sem hægt er að virkja.
Er talið liklegt, að þetta vatn sé
nægilegt til þess að hita úpp helm-
:nginn af húsum i Reykjavík. —
N. Dagbl. 6. febr.
FJARLAGARÆÐA
iMR. DUmiNGS
A fimtudaginn þann 25. febrúar
síðastliðinn, lagði fj ármálaráðgj af -
inn, Mr. Dunning fram fjárlaga-
frumvarp sitt í sambandsþinginu, og
flutti við það tækifæri áhrifamikla
ræðu. Innflutningstollar hafa lækk-
aðir verið á 179 vörutegundum og
víðtæk rýmkun ráðgerð á forgöngu-
tollinum brezka. Fjárlög Mr. Dun-
nings báru með sér auðsæ einkenni
batnandi viðhorfs á sviði þjóðar-
búsins. í stað geysimikils tekjuhalla
síðastliðið ár, gerir fjárlagafrum-
varpið ráð fyrir því að tekjur og
útgjöld standist á yfir fjárhagsárið
1938 til 1939 eða freklega það.
Frá íslandi
Í5555Í5Í55S555Í5Í5555Í5555555Í5Í5555Í55Í5Í55Í55Í5Í5Í5555Í555555555ÍÍ55WÍ5555555
sporna gegn vandkvæðum af þessu
hefir höf. samið þessa greinargerð.
—Mbl. 30. jan.
# # #
Um Brasilíufarana
Síðastliðið sumar lauk Þ. Þ. Þ.
rithöfundur umsvifamiklu verki og
sótti efniviðinn víða um lönd. Er
það hin sanna saga um íslendinga
þá, er til Brasilíu fóru 1863 og 1873.
Er sagan svo ítarlega rakin frá
byrjun þessa máls og til afkomenda
Brasiliufaranna, sem kostur var á.
En enn hefir ekki tekist að ná í all-
ar þær myndir útflutningsmannanna
og afkomienda þeirra, sem æskilegt
væri að fengjust. Er nú óskað eftir
að ættingjar þessara manna, eða
aðrir góðir menn, sem kynnu að
hafa þessar myndir undir höndum,
eða vita hvar þær eru niður komnar,
vildu vinsamlega senda upplýsingar
í pósti, merktar: “Æfintýrið frá ís-
landi til Brasilíu,” utanáskrift
Hafrafell, Reykjavík,—Mbl. 30. jan.
# # #
Þárður Guðjohmen lœknir
i Rönne, sjötugur
Þórður læknir er sonur Þórðar
Guðjohnsens fyrrum verzlunarstjóra
áýHúsavík og bróðir Stefáns heit.
Guðjohnsen, á Húsavík. Hann tók
stúdentspróf 1887 læknispróf í
Höfn 1896. Hann settist að sem
læknir á Borgundarhólmi og hefir
starfað þar síðan við góðan orðstýr.
Það sást strax á skólaárum, að
Þórði var: margt vel gefið. Hann
var bæði karlmenni og prúðmenni,
þstfefigur og átti auðvelt með að
læra alt nema stærðfræði. Gleði-
maður var hann, bezti drengur og
manna vinsælastur. Hann átti því
láni að fagna, að hafa strax á skóla-
árunum ákveðið takmark. Hann
vildi verða læknir og ekkert annað.
Frá þessu hefir hann aldrei kvikað,
og eg er í engum efa um, að hann
hefir ekki unnið læknisstörf sín með
hangandi hendi, enda hefi eg heyrt
að viðkvæðið hafi jafnan verið á
Bornhólmi, ef maður sýktist alvar-
lega, sem Þórður stundaði ekki;
“Eigum við samt ekki að sækja ís-
lenzka læknirinn?”
Þó læknisfræðin hafi verið Þórði
fyrir öllu, hafði hann nokkur önnur
áhugamál. — í suimarfríum sínum
hefir hann ferðast víða um álfuna
og gengið á fjölda af hæstu fjalla-
Lagarfljótsbrúin ófcer
Lagafljótsbrúin er nú ófær öllum
farartækjum og jafnvel gangandi
mönnum. Vegna aðstöðu verður að-
gerð á brúnni ekki lokið fyr en
lækkar í fljótinu, en gangfært verð-
ur yfir mjög fljótlega.
Það var austasti stauraokinn und-
irbrúnni, sem brotnaði á föstudags-
nótt í óvenju imiklum vatnavöxtum
og ísreki og féll þá niður í fljótið
annar endinn á gólfpallinum á aust-
asta opinu, en hinn endinn situr á
landstöplinum. »
Fljótið er þarna grynst og venju-
lega þur farvegurinn, og þessi oki
er sá eini, sem ekki er varinn með
sterkum ísbrjót. Hefir það ekki
komið að sök þau full 30 ár, sem
brúin hefir staðið.
Aðgerð er þegar byrjuð. Þarf
að setja nýja staura í okann, losa
pallinn í sundur og koma honum
a(tur á.
Lagarfljótsbrúin er lengsta brú
hér á landi, 300 rnetra löng. Hún
var bygð 1905. — Brúin stendur á
29 stauraokum, auk landstöplanna,
sem eru hlaðnir úr grjóti, eru tveir
gildir staurar í flestum okunum, en
þrír í suiimmi og reknir djúpt, því
botninn var mjög gljúpur.
Hvert op er þannig 10 metrar á
vídd. Yfir hvert op eru lagðir tveir
gildir járnbitar, og liggja endarnir
á þverbitum úr járni, sem festa um
leið saman staura okana efst. Á
járnbitana er festur gólfpallurinn,
sem er úr timbri, en ofan á hann er
fest handrið úr járni.—Morgunbl.
29. jan.
* # #
Afkynjan it og vananir
heitir bæklingur, sem er nýkominn
út, eftir Vilmund Jónsson landlækni,
og er bókin greinargerð fyrir frum-
varpi til laga um að heimila í við-
eigandi tilfelluimi aðgerðir á fólki, er
koma í veg fyrir að það auki kyn
sitt. Segir höf. í formála, að
stjórnin muni á næsta þingi flytja
frumvarp til laga um þetta efni, er
hann hefir samið. Ennfremur segir
hann í formála: “Hér er um að ræða
algert nýmæli í ísl. löggjöf, sem ekk-
ert hefir verið rætt né skýrt fyrir
almenningi, en er þess eðlis, að það
miá misskilja á ýmsan veg, ekki sízt
ef svo fer að það sæti útúrsnúning-
um og hártogunum.” En til þess að
Konur sem skipa móttökunefnd Halldóru Bjarnadóttur fyrir
Könd ýmissa félaga
STARFSEMI RAGNARS
H. RAGNAR
Skylt er að metin sé að makleikum
starfseini Ragnars H. Hagnar í
sambandi við nýafstaðna árshátíð
þjóðræknisdeild'arinnar Frón. Mun
það nokkurn veginn almælt, að sjald-
an hafi tekist jafn vel til um íslenzka
samkomu. Einna minnisstæðastur
verður þó að sjálfsögðu barnasöng-
flokkur sá, er Mr. Ragnar æfði og
veitti forustu; voru börnin svo vel
samæfð og báru svo skýrt fram ís-
lenzkt mál, að regluleg unun var á
að hlýða; var þó tími til æfinga mjög
af skornum skamti. Með þessu
leysti Mr. Ragnar af hendi stór-
nytsamt þjóðræknisverk, sem al-
nienningur skuldar honum drjúgum
íyrir.
Efri röð:—Mrs. Ó. Stephensen, Mrs. B. E. Johnson, Mrs. P. S. Pálsson, Mrs. J. P. Markuson.
Neðri röð:—Mrs. Gísli Johnson, Mrs. Finnur Johnson, Mrs. S. E. Björnsson, Árborg.
MISS SALOME
IIALLDÓRSSON
flytur sína fyrstu þingræðu
A föstudaginn yar flutti Miss
Salome Halldórsson, M.L.A. fyrir
St. George kjördæmið, sína fyrstu
ræðu í fylkisþinginu. Fjallaði ræð-
an, eins og eðlilegt var, mest megnis
um Social Credit, því fyrir hönd
þess stjórnmálatrúboðs var Miss
Halldórsson kosin á þing. Lagði
hún áherzlu á það, að mannkynið
hefði leyst framleiðsluþrautina; hins
bæri jafnframt að gæta, að gátan um
réttláta skifting eða úthlutan fram-
leiðslunnar, væri enn óráðin; slíkt
hlyti samt setn áður að vera kleift,
og að því stefndi Social Credit
hreyfingin.
Bæði Winnipeg dagblöðin létu
þess getið, að Miss Halldórsson
| hefði flutt mál sitt all skörulega.
tindum, og marga sem eru fæstum
færir, en hvergi hefir honum verið
jafn tíðförult og um Lappland. Hef-
ir hann rannsakað nákvæmlega ýms-
ar óbygðir þar og öræfi, sem voru
lítt þekt áður, og komist þar í matga
raun. Um þessi Lapplandsferðalög
hefir hann skrifað mikla bók:
“L'andskabsbilleder fra Lapland.”
Er hún í 2 bindum og 650 bls.
I henni eru 1220 teikningar, 30
kort og 6 vatnslitamyndir. Handrit
af þessari miklu og skrautlegu bók
gaf hann Landfræðisfélaginu
sænska, og má ganga að því vísu að
hún verði gefin út á sínutn tíma.
Hann tók fyrir nokkru alvarlegan
sjúkdóm og lét gera á sér mikla
læknisaðgerð. En ekkert var hon-
um fjær skapi en að leggjast í víl og
völ. 1 stað þess fór bann heim til
Islands með konu sinni og dóttur
og tók bíl sinn með sér. Hann fór í
land á Reyðarfirði, þaðan norður
um land og suður sveitir, síðan aust-
ur yfir fjall svo langt sem komdst
varð. Um ferð sína hefir hann
skrifað mikla bók með 300 mynd-
um, og er leitt að hún skuli ekki
koma út.
Þórður læknir býst við að koma
heim i sumar, ef heilsan leyfir. Við
gömlu sambekkingar hans og vinir
hlökkum til að sjá þennan gamla
Utanbœjargestir á þjóðrœknisþingi
(Mynd þessi tekin af ljósniyndara blaðsins Winnipeg Tribune)
Efri röð:—Séra Guðmundur Arnason, Lundar; Tli. S. Thorsteinsson. Selkirk; Séra Sigurður
Ólafsson, Arborg; Kristján Indriðason, Mountain.
Neðri röð:—Dr. Richard Beck, Grand Forks; Grimur S. Grímsson, Gimli; Sveinn Thorvald-
son, Riverton.