Lögberg - 03.06.1937, Síða 1

Lögberg - 03.06.1937, Síða 1
50. ÁRGANGUK WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 3. JÚNÍ, 1937 NÚMER 2-2 KOSIN í HASKÓLARAÐ Mrs. P. H. T. Thorlakson Við nýafstaðnar kosningar til há- skólaráðsins i Manitoba, var Mrs. P. H. T. Thorlakson kosin með miklu afli atkvæða; á hún þessu samkvæmt sæti í háskólaráðinu næstu þrjú árin. Mrs. Thorlakson er útskrifuð í heimilis hagfræði af Manitoba háskólanum árið 1919. Nafn hennar, áður en hún giftist skurðlækninum víðþekta, Dr. P. H. T. Thorlakson, var Gladys Marie Henry; hún er hin mesta atgerfis- kona, og má því óhætt vænta mikils góðs af starfi hennar í þessari veg- legu ábyrgðarstöðu. ARSLOKAHATífí JÖNS BJARNASONAR SKÓLA A fimtudagskvöldið þann 27. tnaí siðastliðinn fór árslokahátíð Jóns Bjarnasonar skóla fram í Fyrstu lútersku kirkju við mikla aðsókn. I hátíðarprógramminu tóku þátt, skólastjórinn séra Rúnólfur Mar- teinsson, James Gillies, Miss Snjó- laug Sigurdson, Jack Brown, Lillian Griffiths, A. R. Magnússon, kennari við skólann og próf. Jóhann G. Jó- hannsson, er flutti aðalræðuna. FRÖKEN IIALLDÓRU BJANNADÓTTUR FAGNAD 1 WINNIPEG í tilefni af konut fröken Halldóru Bjarnadóttur, var haldin samkoma í Fyrstu lútersku kirkju síðastliðið inánudagskveld, að tilstuðlan mót- tökunefndarinnar. Mrs. Finnur Johnson, sem forsæti á í móttöku- nefndinni setti samkomuna með prýðilegum ávarpsorðum, og kynti hinum mörgu samkomugestum fröken Halldóru. Dr. Rögnvaldur Pétursson ávarpaði samkomuna fyr- ir hönd Þjóðræknisfélagsins og bauð hinn góða gest velkominn, en Dr. Björn B. Jónsson þakkaði fröken Halldóru erindi það um ísland, er hún flutti; sagðist ræðumönnum hið bezta. Frú Sigríður Olson skemti með einsöng, og er ó- þarft að taka það fram, að hún hreif áheyrendur sína eins og hún ávalt gerir. Miss Snjólaug Sigurðs- Son var við ihljóðfærið. Ragnar H. Ragnar lék á piano tvö voldug tón- verk, hreint og beint með ágætum. Fröken Halldóra bar á sér raun- verulegan Fjallkonublæ, er hún reis úr sæti í hinum glæsilegá, íslenzka íaldbúningi og flutti erindi sitt; framkoma hennar var aðlaðandi og látlaus; má slíkt hið sama í raun og veru uim erindi hennar segja. Það var auðheyrt á öllu, að hún lét sér ant um að segja satt og öfgalaust frá högum og lífsviðhorfi íslenzku þjóðarinnar, stefnum þeim og straumum, er mest yrði vart; eink- um og sérílagi þó því, er lifnaðar- háttum viðkom, þvi um flokkadeil- ur stjórnmálanna eða fjármál, kvaðst hún sem fæst vilja segja. Enga dul dró fröken Halldóra á það, T. D. PATTULLO, forsœtisráðgjafi í British. Golumhia. Frjálslyndi flokkurinn í British Columbia vinnur glæsilegan kosn- ingasigur á þriðjudaginn. Pattullo- stjórnin endurkosin með miklu afli atkvæða. íhaldsmenn, C.C.F. og utanflokka frambjóðendur fengu aðeins örfá sæti, en Social Credit flokkurinn ekki eitt einasta. að heiimaþjóðin ætti við ýmsa erfið- leika afli að etja; hitt gæti hún samt sem áður staðhæft, að þjóðin mundi fórna öllu, fara alls á mis, sjálfstæði sinu til varðveizlu. Þetta þótti á- heyrendum góð tiðindi; sennilega beztu tíðindin að heiman. *All-ítar- lega rakti fröken Halldóra þróunar- sögu þjóðarinnar yfir síðasta mannsaldurinn, og mátti af því glögglega sjá 'hve framfarirnar liafa orðið því nær óútmálanlega marg- þættar. Að lokinni hinni auglýstu eða reglubundnu skemtiskrá, var sam- komugestuim boðið til ágætra veit- inga í fundarsal kirkjunnar, þar sem þeim gafst kostur á að taka í hönd fröken Halldóru og bjóða hana vel- ■komna. Á öðrum stað hér í blað- inu eru auglýstar þær samkomur, er fröken Halldóra heldur á næstunni út um nærliggjandi, íslenzkar ný- bygðir. Heimilisiðnaðarsýning Frk. Halldóru Bjarnasdóttur Ákveðið hefir verið, að haldið Verði Silver Tea í Eatons Assembly Hall á 7. gólfi Eatons búðarinnar á næstkomandi föstudag, þann 4. júní frá kl. 2:3o til 5130, og að þar fari fram sýning á þeim tegundum heim- ilisiðnaðar og hannyrða, er fröken Ilalldóra flutti með sér að heiman. Segir hún þar gerla frá því, er að hverjum og einum hlut sérstaklega lýtur. Fröken Halldóra hefir með sér f jöldann allan af fögrum og sér- kennilegum munum, sem telja má víst að íslenzkan almenning fýsi að sjá. Má því alveg vafalaust gera ráð fyrir mikilli aðsókn. Svo á það líka að vera, því hér er um þjóð- ræknislegt metnaðarmál að ræða. SIGRUN ANNA JÖIIANNSSON, B.A. Þessi gáfaða stúlka er frá Gimli. Hún hlaut við nýafstaðin háskóla- próf í Manitoba, gullmedalíu þá, sem kend er við Dr. Fletoher, að- stoðarmentamálaráðherra Manitoba- fylkis. Er medalían veitt fyrir Diploma í Education, hæzta einkunn. Frá Islandi Guðm. Björnsson fyrv. landlœknir látinn Guðmundur Björnsson fyrverandi landlæknir lézt að heimili sínu 'hér í Reykjavík, við Amtmannsstíg, i fyrrinótt. Guðmundur sál. fékk hjartaslag fyrir nokkrum árum og hafði aldrei fengið lieilsu síðan. Siðustu mán- uðina hafði hann þjáðst af krabba- meini. Morgunblaðið mun síðar minnast þessa þjóðkunna, mæta manns — Morgunbl. 8. maí. # # # Slys af dynamit-sprengju Tuttugasta og sjötta f. m. vildi það slys til í Skóganesi í Gaulverja- bæjarhreppi, að dynamit hvellhetta sprakk í'höndum 15 ára pilts, sem var að fikta við hana. Við spreng- inguna tók framan af þrem fingrum og var læknis vitjað, sem bjó um meiðslin til bráðabirgða. Tveim dögum síðar var drengur- inn fluttur til Eyrarbakka til frek- ari aðgerða en þar lézt hann í svæf- ingu af hjartaslagi. Drengurinn hét Þórariim Magnússon Öfjörð. Sextán ára systir drengsins meidd- ist nokkuð við sprenginguna en ekki hættulega. Foreldrar barnanna voru ekki heima þegar slysið vildi til.—Mbl. 8. maí. * * # Innan fárra daga verður hyrjað að girða sýktu svæðin Bráðlega verður byrjað að vinna að uppsetningu girðinga þeirra, sem ætlaðar eru til varnar gegn út- breiðslu borgfirszku f járpestarinnar. í gær var girðingarefni skipað út í dráttarskipið Magna og fer hann með það til Borgarness í dag. Það er ætlað í þann girðingararminn, sem liggja skal sunnan við aðalsýk- ingarsvæðið, úr Borgarfirði í Skorradalsvatn og úr Skorradals- vatni 'fram til jökla. — Á laugar- daginn verður byrjað að ráða menn í girðingarvinnuna og verður þá þegar byrjað að setja þessa línu upp, að svo miklu leyti, sem unt er vegna snjóalaga og klaka. Nyrðri línun- um er enn ekki hægt að byrja á vegna snjóalaga. — N. dagbl. 30. sept. # # # Fyrirætlanir á sviði skógrœktarinnar Nýja Dagblaðið hefir leitað sér upplýsinga hjá Hákoni Bjarnasyni skógræktarstjóra um fyrirætlanir á sviði skógræktarinnar hér á landi. —Það væri hægt að fylla mörg blöð, ef eg færi að segja frá þeim fyrirætlunum, sagði Hákon, en það, sem mér liggur hvað þyngst á hjarta, er aðallega tvent. Hið fyrra er það, að sem fyrst verði unt- að ala upp svo mikið af trjáplöntum innan- lands, að okkar eigin þörfum sé fullnægt, og hægt sá að leggja niður allan innflutning á þeim. Skógræktanfélagið hefir sem stendur á hendi allan innflutning THOMAS LEONARD BRANDSON, B.A. Thomas lauk Bachelor of Arts prófi við Manitoba háskólann nú í vor. Hann er sonur þeirra Dr. og Mrs. B. J. Brandson. VALBORG NIELSEN, B.A. Miss Valborg Nielsen er fædd hér í borginni þann 22. dag september- mánaðar árið 1916. Foreldrar henn- ar eru þau Mr. Charles Nielsen, starfsmaður við pósthúsið i Winni- peg, og frú Solveig Þorsteinsdóttir Nielsen. Þessi unga og efnilega stúlka lauk B.A. prófi við háskóla Manitobafylkis' nú í vor með loí- samlegum vitnisburði; lagði hún öðru fremur sérstaklega stund á stærðfræði. Hinir mörgu vinir •Tennar og frændur, árna henni framtíðarheilla. trjáplantna og við gerum okkur alt far um að flytja einungis inn þær trjátegundir, sem líkindi eru til að hér þrífist. Hitt vekur aðeins tál- vonir hjá fólki, að útvega þvi plönt- ur, sem aldrei vaxa úr grasi. En það verður ekki fyr en eftir nokk- ur ár, að 'hægt verður uð leggja þennan innflutning niður. Trjá- plöntur eru venjulega ekki söluhæf- ar fyr en þær eru orðnar 4—5 ára gamlar, en það eru aðeins tvö ár síðan eg gat farið að stækka hina innlendu græðireiti og fjölga þeim. Nú hefir græðireiturinn á Hall- ormsstað verið stækkaður og nýjum reiti verið komið upp í Múlakoti í Fljótshlíð. í ráði er að bæta öðr- um við á næsta sumri og þannig verður haldið áfram. Áður fengum við 7—8000 trjá- plöntur á ári hverju frá Hallorms- stað og Vöglum, í vor verða þær jafnvel ekki nema 6—7,000. Það sem á vantar til þess að bæta úr brýnustu þörfunum, verðum við að fá erlendis. Eg geri ráð fyrir, að það verði um 25,000 plöntur. En að vori fáum við, ef vel árar, a. m. k. 16,000 úr eigin reitum. Og úr því vona eg, að plöntufjöldinn geti fast að þvi tvöfaldast á hverju ári og þá fáum við 1 miljón plantna til sölu árið 1945. Verðið á plöntunum verður jafn- framt lækkað, svo allir geti gróður- sett af kappi. Eg veit, að það er um alt land mikill áhugi fyrir gróðursetningu trjáplantna og við, sem við skógrækt fáumst, höfum jafnvel orðið að halda aftur af fólki vegna þess, að við höfum ekki getað séð því fyrir nægum plöntum. En þegar nóg verður af ódýrum trjáplöntum, munuð þér verða var við, að skrið- ur kemst á skógræktina. Hitt áhugamálið er að girða og friða sem flesta skógarteigana, og líka örfoka lönd i því skyni að græða þau upp að nýju. En við eigum í því efni við erfiða aðstöðu að búa, því fjárveitingin til skógræktarinn- ar er lág. En eg býst samt við, að innan skamms muni verða unt að friða og reyna að græða stór land- flæmi eins og Þjórsárdal og t. a. m. svæðið ofan við Biskupstungur.— N. dagbl. 30. apríl. * * * Kantötukór Akureyrar söng í fyrradag kl. 2 síd. í “Gamla Bíó” fyrir troðfullu húsi í 5. sinn á sex dögum. Var hrifning áheyr- KJARTAN INGIMUNDUR JOHNSON, M.D. Hann er fæddur i Grunnavatns- bygð 14. okt. 1910. Foreldrar Einar og Oddfríður Johnson. Kjartan ólst upp og gekk á barnaskóla á Lundar. Útskrifaðist þaðan úr mið- skóla 1928 og fluttist þá með for- eldrum sínum til Winnipeg þar sem þau hafa búið hjá Stefáni syni sín- um síðan. Kjartan innritaðist við háskólann 1929; útskrifaðist sem læknir 1937. Á tvo bræður, Stefán E. og Bergthor Emil. Er Kjartan ráðinn við almenna spítalann til eins árs, en hygst að leggja fyrir sig sér- fræði i barnasjúkdómum eftir það. enda engu minni en fyrsta kvöldið, og hefði orðið að tvítaka viðfangs- efnin hvert af öðru, ef söngstjór- inn hefði ekki tilkynt að það væri ekki mögulegt, af því að hljómsveit- in væri tímabundin. Þó lintu menn ekki látum við Gunnar Pálsson og Hrein Pálsson, unz þeir höfðu end- urtekið einsöngslögin. Að loknum hljómleikunum stóðu áheyrendur lengi og klöppuðu og hrópuðu á söngstjórann, en þegar hann kom fram á- stjórnpallinn, kvaddi Sigfús Halldórs frá Höfn- um sér hljóðs, og inælti þessum orð- um: Björgvin Guðmundsson! Fyrir tuttugu og sex árum fórstu heiman úr sveitinni þinni, vestur um haf, fátækur og umkomulaus, til þess að leita þar þess 'færis, sem þú sást ekki hér heiimn til þess að þjóna köllun þinni með mætti þínum og megni, sem þú trúðir á ekki síður en köllunina. Tuttugu árum síðar snerir þú aft- ur heimleiðis, fátækur eijn að fé, en ekki lengur umkomulaus, því að nú stóðu að baki þér góðvild og virð- ing þriðja hluta allra íslendinga, sem lífs eru á þessari jörð. Rúmu ári síðar fögnuðum við, sem þá vorum á Akureyri, þessu tónverki þínu, eins og því hefir nú verið fagnað hér. Eftir þann sigur hefði ef til vill imátt ætla að fullnægt væri þeirri heimþrá, sem öll tuttugu árin, sem þú varst utan, hafði verið einn meginþáttur lífs þíns, þrátt fyrir hlýhug þinn og þakklæti í garð Vestur-lslendinga og landsins mikla, sem i félagi veittu þær færið, sem þú leitaðir. Þó var í raun og veru ÚLAFVR ^I’erVRSSON. M.Sc. Ólafur lauk Master of Science prófi við Manitoba háskólann í vor. Hann er sonur Dr. Rögnvaldar Pét- urssonar og frú Hólmfríðar Pét- ursson. ekki nema hálfnað haf fyrir tilfinn- ingum þínum, að þær gætu talið þig alkominn heim, því að ekkert land er til fullnustu unnið fyr en unninn er höfuðstaðurinn. En viðtökurnar, sem borgarbúar hér hafa veitt þér og flokki þínum í söngsalnuim og annarsstaðar, hljóta að reka þig úr skugga um það, að nú ertu sannar- lega kominn heim.—N. dagbl. 30. sept. # # # Framhoð Sjálfstæðisflokkurinn hefir lýst yfir þessum framboðum til viðbótar við þau, sem áður hefir verið skýrt frá: I Rangárvallasýslu: Jón Ólafsson bankastjóri, Pétur Magnússon bankastjóri. í Gullbringu- og Kjósarsýslu: Ólafur Thors. í Snæfellsnessýslu: Thor Thors. í Austur-Húnavatnssýslu: Jón Pálmason bóndi. f - í Norður-Múlasýslu: Árni Jóns- son frá Múla og Sveinn Jónsson, Egilsstöðum. í Vestur-Skaftafellssýslu: Gísli Sveinsson sýslumaður. Jafnaðarmenn hafa lýst yfir þeSs- um framboðuimi: ‘ I Austur-Húnavatnssýslu: Jón SigurðssOn, erindreki. I Eyjaf jarðarsýslu: Erlendur Þorsteinsson, skrifstofustjóri síldar- útvegsnefndar og Barði Guðmunds- son, þjóðskjalavörður. í Gullbringu- og Kjósarsýslu: Sigfús Sigurhjartarson. kennari. I Vestmannaeyjum: Páll Þor- bjarnarson kaupfélagsstjóri. í Borgarfjarðarsýslu: Guðjón B. Baldvinsson, bóndi. í Arnessýslu: Ingimar Jónsson skólastjóri og Jón Guðlaugsson bif- reiðarstjóri. —N. dagbl. 5. maí. VIÐSJAR i EVRÖPU Flugher stjórnarinnar á Spáni varpaði sprengjum á þýzka herskip- ið "Deutchland,” þar sem það lá í höfn, og orsakaði með því dauða 24 manna, auk þess sem 69 særðust meira og minna. Vegna þessa at- burðar varð stjórn Þjóðverja óð og uppvæg, og sendi herskip til Almeria hafnarbæjarins og lét skjóta niður öll varnarvirki. Horfur um frið eru taldar næsta tvísýnar, þó vera ntegi að fram úr ráðist á betra veg. Bretar og Frakkar telja lík- legt að komast megi að samningum við Þjóðverja, er fyrirbyggi heims- stríð, en vantreysta Mussolini; láta óljósar símfregnir þess getið, að hann sé reiðubúinn til þess að senda óvígan her til Spánar til liðs við árásarfylkingar Francos. EINAR ARNASON, B.Sc. Hann er sonur þeirra séra Guð- mundar Arnasonar og frúar hans að Lundar, og lauk í vor prófi í raf- fræði við Manitoba-háskólann.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.