Lögberg - 03.06.1937, Blaðsíða 8
jWMW
8
LÖOBERG, FIMTUDAGINN 3. JÚNl, 1937
Ur borg og bygð
ALVARLEG ASKORUN
•Með því að mjög fer nú að líða
að Kirkjuþingi, er það sérlega á-
riðandi, að þeir, sem enn eiga ó-
goldin áskriftargjöld fyrir Sam-
eininguna, bregðist nú skjótt við og
sendi þau framkvæmdarstjóra blaðs-
ins, án frekari tafar. Þetta
má ekki undir nokkrum kringum-
stæðum dragast lengur, með því að
ársreikningar verða senn fengnir
yfirskoðendum í hendur. Hver ein-
asti kirkjufélagsmeðlimur ' á að
kaupa Sameininguna og greiða and-
virði hennar í réttan gjalddaga.
Virðingarfylst,
Mrs. B. S. Benson, ..
•framkvæmdarstj. Sam.
695 Sargent Ave., Wpg.
Nokkur eintök af Laufblöðum,
safni af sönglöguni, er frú Lára
Bjarnason gaf út árið 1900, fást
keypt á skrifstofu Lögbergs, 695
Sargent. Heftið kostar 50C. Senda
skal andvirðið til Mrs. B. S. Ben-
son.
Ýmsir af söfnuðum kirkjufélags- |
ins eiga enn eftir að leggja fram
ársskýrslur sínar. Eru þeir nú
beðnir að senda þær sem fyrst til
séra Jóhanns Bjarnasonar, Ste. 14
Glenora Apts.^ 774 Toronto St., hér
í borg.—
Móttökunefnd kirkjuþings á
Gimli æskir eftir að fá fregnir um
hve margir eru væntanlegir frá
hverjum söfnuði eða bygðarlagi til
kirkjuþingsins, er byrja á að kvöldi
þess 17. júní næstkomandi. Söntu-
leiðis væri hentugt að fá að vita
hverjir koma. — Skrifa má til séra
B. A. Bjarnasonar, prests á Gimli,
Box 459, eða til Mr. F. O. Lyng-
dals formanns Gimlisafnaðar.
i
Mr. B. J. Lifman, oddviti Bifröst
sveitar, var staddur í borginni á
laugardaginn var.
CHILDREN’S ART EXHIBI-
TION IN AUDITORIUM
ART GALLERY
Al$x I. Musgrove.
A most fascinating exhibition of
work done in the Special Children’s
Saturday Morning Classes held in
the Art Gallery during the winter
months is now on display in the
South ‘Gallery. In Addition to
drawings and pictures in color,
mural decorations, soap carving,
modelling, lino-cuts, stage settings
with puppet figures, here show what
children can do under inspiring
guidance, and in encouraging en-
vironment.
The work is done entirely by
children from 7 to 14 years of age.
It is an exhibition of creative art,
where the idea and its artistic ex-
pression is conveyed by the young
artists, freely realizing their own
visions. The collection is taken from
hundreds of pictures and projects
done during the season. Perhaps
the most striking features in the
show are the large murals, some of
which are about 20 yards long. One
is of the “Development of the Red
River Settlement from Pioneer
Days,’’ another has “Animals from
the North to the South Pole” as its
motif.
The Art Gallery is open, free,
daily from 2 to 5:30 p.m. and
evenings from 7:30 to 9:30 p.m.
Sjónleikurinn “Lighthouse Nan”
í þremur þáttum verður- sýndur af
leikflokki frá Riverton á eftir-
greindum stöðum:
GEYSIR HALL, mánudags-
kveldið þanú 7. júní og í VÍÐIR
HALL þann 11. júní. Leiksýning
hefst á báðum stöðum kl. 9 e. h.
Dans á eftir. Vonast er eftir miklu
f jölimenni.
Samkoma til arðs fyrir Árdals-
söfnuð í Árborg er ráðgert að hald-
in verði þann 25. júní, í Árborg.
Þar kappræða þeir séra Jóhann
Bjarnason og dr. Sig. Júl. Jóhannes-
son. Er fólk beðið að hafa kvöldinu
óráðstafað til þess að getá sótt þessa
samkomu.
Ungmenni fermd í kirkju Árdals-
safnaðar í Árborg, fyrsta sunnudag
eftir trinitatis, af séra Sigurði Ólafs-
syni:
Magnús Benedikt Johnson
Thórunn Anderson
Harald Carl Magnússon
Oscar Brandson
Guðlaug Jónína Björnsson
Norman Sofonias Danielsson
Doris Ólavía Sveinsson.
Þeir B. Björnson og Omar Soli
frá Mountain, N. Dak., komu til
borgarinnar á föstudaginn var og
dvöldu hér fram á laugardag.
Einar Magnússon, Gunnar Thord-
arson og Daniel Halldórsson frá
Hnausa, komu til borgarinnar á
mánudaginn.
Jón Thorsteinsson, Gunnar Alex-
ander og Ingi Eiríksson frá Árborg,
vorti staddir í borginni á mánudag-
inn.
GIAFIR TIL BETEL
Mrs. Guðrún Kristjana Hallson,
Palo AltO, Cal., í minningu um sinn
hjartkæra eiginmann, H. O. Hall-
son. $10.00; Miss Theódóra Her-
tnann, Winnipeg, í minningu uim 16.
maí — 10 flannelette blanckets, 5
bed spreads ; Vinkona á Betel, $2.00;
Mr. S. F. Ólafsson, Winnipeg,
$10.00; Vinkona, $1.00; Miss E.
Sanford, Winnipeg, $2.00.
Kærar þakkir fyrir hönd stjórn-
arnefndarinnar,
I. I. Swanson, féh.
601 Paris Bldg., Winnipeg.
Skemtifundur verður í St. Heklu
í kveld (fimtudag). Ræðu flytur
Mr. E. B. Olson, auk annars, er
verður til fróðleiks og skemtunar.
Að síðustu gefst tækifæri til skrafs
og ráðagerða yfir kaffibollunum.—
Allir G. T. velkomnir.
Fyrirlestra flytur séra K. K. Ól-
afson á eftirfylgjandi stöðum um
efnið: “Halldór Kiljan Laxness og
Kristindómurinn”:
Oak Point, mánudaginn 7- júní,
kl. 8 e. h.
Lundar, þriðjudaginn 8. júní,
kl. 8 e. h.
Silver Bay, miðvikudaginn 9. júní,
kl. 8 e. h.
Oak View, fimtudaginn 10. júni,
kl. 8 e. h.
Hayland Hall, föstudaginn 11.
júní, kl. 8 e. h.
Á eftir fyrirlestrunum mun hann
flytja stutt erindi á ensku til æsku-
lýðsins, ef óskað er eftir.
Málið og fegrið heimilin!
Til þess að veita heimilum yðar ákjósanlega fegrun
ntan og innan, þurfa menn að vera vissir um að velja
réttilega málningarvörur sínar.
Ilið fræga
MASTER-MADE PAINT
þjónar ávalt herra sínum
Við höfum einnig allar tegundir veggjapappírs.
TESKEY’S PAINT STORE
690 SARGFNT AVE. Phone 34 422
Messuboð
FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA
Guðsþjónustur i Fyrstu lútersku
KÍrkju næsta sunnudag, 6. júní,
verða með venjulegum hætti: Ensk
imessa kl. 11 að morgni og íslenzk I
messa kl. 7 að kvöldi.—Sunnudags-
skóli kl. 12.15.
Messur í Vatnabygðum
Næsta sunnudag, 6. júní, flytur
séra Carl J. Olson, BA., B.D., guðs-
þjónijstur í Vatnabygðum sem fylg-
ir:
Mozart, kl. 11 f. h.
Wynyard, kl. 3 e. h.
Kandahar, kl. 7130 e. h.
Seinasta guðsþjónustan verður
á ensku. Allir eru boðnir og vel-
komnir!
Séra K. K. Ólaifson flytur guðs-
þjónustu að Lundar sunnudaginn 6.
júní kl. 2 e. h. Sama dag flytur
hann guðsþjónustu að • Mary Hill
kl. 11 f. h. og að Oak Point kl. 8 að
kvöldinu.
Sunnudaginn 13. júní flytur séra
K. K. Ólafson guðsþjónustur sem
fylgir í bygðunum austan Manitoba-
vatns:—
Hayland Hall kl. 11 f. h.
Oak View (Darwin skóla, kl.
3 e- h-
Silver Bay kl. 8 e. h.
Fundir og messttr í Vatnabygðum
FÖSTUD. 4 júní, kl. 7:30, Söng-
æfing.
SUNNUD. 6. júní, kl. 11 f. h.,
sun nudagaskólinn.
Kl. 2 e. h.^ Messa í Wynyard.—
Prestur og safnaðarnefnd hafa
komið sér saman uim að bjóða
séra Carli Olson að messa í kirkj-
unni á þessum tíma, þar sem ekki
sýnist ástæða til að messa tvisv-
ar á sama stað yfir sama fólki,
þannig að önnur messan hefjist
um leið og hin er á enda. Annars
'hafði messa séra Carls verið boð-
uð kl. 3 e. h.
Kl. 3 e. h., eða þegar að lokinni
inessu, heldur þjóðræknisdeildin
“Fjallkonan” fund á heimili
Gunnlaugs og Halldóru Gíslason.
Verður þar rætt uim íslendinga-
dagshald o. fl. Til skemtunar
verður lesin upp smásaga eftir
ungan, íslenzkan höfund.
Kl. 7 e. h., messa í Grandy.
ATH.—Fundurinh, sem ákveðið
var að halda í kvenfélagi Immanuels
safnaðar næsta sunnudag, verður
haldinn á laugardaginn, á heimili
Steingríms Jónssonar, kl. 2 e. h.
Breytingin er gerð til þess að fund-
artími kvenfélagsins komi ekki í
bága við fund þjóðræknisfélagsins.
Jakob Jónsson.
Sunnudaginn 6. júní rnessar séra
H. Sigmar:
í Vídalínskirkju kl. 11
í Péturskirkju kl. 2 ^30
í Hallsonkirkju kl. 8
Á eftir messu i Vídalíns- og Péturs-
kirkju verða safnaðarfundir til að
kjósa erindreka á kirkjuþing.
Gleymið ekki tímanum. Allir vel-
komnir.
Messur í Gimli prestakalli næsta
sunnudag, þ. 6. júní:
Betel, á venjulegum tíma,-
Gimli, íslenzk messa, kl. 7 e. h.
Sunnudagsskóli Gimli safnaðar
kl. 1130 e. h.
B. A. Bjarnason.
Mr. Sigfús Paulson, sem dvalið
hefir undanfarna mánuði í Swan
River, kom til borgarinnar í lok
fyrri viku.
Mr. og Mrs. S. Tighe frá Saska-
toon, dvöldu nýverið nokkra daga
hér í borginni.
Mr. Grímur S. Grímsson frá
Gimli kam til borgarinnar á mánu-
daginn, og lagði af stað daginn eftir
suður til Milton, N. Dak., í heim-
sókn til systkina sinna og annara
vina. Hann er bróðir Guðmundar S.
Grímssonar héraðsdómara í Rugby
og þeirra systkina. Grímur ráðgerði
að verða um þriggja vikna tíma í
ferðinni.
Hjónavígslur
Að heimili foreldra brúðarinnar,
Mr. og Mrs. Jóh. Christie, 23 Al-
loway Ave., voru gefin saman í
hjónaband láugardaginn 29. maí,
William Lorne Wþtson Curry og
Steinunn Kristjana Christie. Vígsl-
una framkvæmdi dr. Björn B. Jóns-
son. All-margt boðsgesta var við-
statt. Var veizlukostur góður og
skemtun þar á heimilinu áður en
brúðhjónin lögðu á stað í bil í
tveggja vikna skemtiferð til Banda-
ríkja.
Gefin saman í hjónaband af sókn-
arpresti, í á heimili hans í Árborg,
Man., þann 26. maí:
Fredrick Antoníus Martin, frá
Árnes, Man. og Jónína Stefanía
Guðjónsson, Hnausa, Man.
ÞAKKARORÐ
Hér með þakka eg hj artanlega
öllum þeim, er auðsýndu mér rnarg-
háttaða samúð og hlýhug við fráfall
og útför míns elskulega eiginmanns
Stefáns Sigurðssonar, og glöddu
hann á einn og annan veg í veikind-
um hans. Öllum þessum vinum bið
eg góðan Guð að launa hina kær-
leiksríku samúð í garð míns látna
ástvinar, sjálfrar tnín og fjölskyldu
minnar.
Ragnhildur Sigurðsson
og fjölskylda.
552 Home St., Winnipeg
1 lok fyrri viku komu hingað til
borgarinnar Mr. og Mrs. P. N.
Johnson frá Elfros, ásamt Stefáni
syni sínum og Mr. Joel Sigurðsson
frá Mozart, ásamt Barney syni sín-
uim. Þeir Stefán og Barney eru ný-
lagðir af stað áleiðis til Englands,
þar sem þeir hafa fengið fasta stöðu
í flugher Breta. Hugheilar árn-
aðaróskir fylgja þessum ungu mönn-
um út á þá nýju braut, er þeir hafa
valið sér.
Þau Mrs. og Mrs. P. N. John-
son og Mr. Sigurðsson héldu heim-
leiðis á þriðjudagsmorguninn. Með
þeim brá sér vestur til þess að heilsa
upp á fornvini og samferðamenn,
frú Guðríður Johnson, að 512 To-
ronto Street hér í borginni.
SAMKOMUR Frk. HALLDÓRU
BJARNADÓTTUR
íslenzku blöðin, Lögberg og
Heimskringla, fluttu þá frétt síðast-
liðna viku, að fröken Halldóra
l
Bjarnadóttir væri væntanleg heiman
frá íslandi þessa dagana. Nú er
hún komiin til Winnipeg og munu
allir íslendingar vestan hafs taka
undir með íslenzku blöðunum í því
að bjóða hana velkomna. Nú hefir
hún haldið hér sína fyrstu samkomu
við ágæta aðsókn. Hér er á
ferðinni merk og mæt kona, sem
hefir til margra ára unnið með á-
huga að þvi þarfa málefni að vekja
áhuga á og efla íslenzkan heimilis-
iðnað. Hún er ein með þeim
fremstu í hópi þeirra kvenna heima
á íslandi, er hafa gengist fyrir því
að vekja aftur til lífsins hálfgleymid-
ar hannyrðir, sem iformæður okkar
höfðu öldum saman kunnað og unn-
ið að, eins og til dæmis margskonar
tóskap, skrautvefnað, útsaum, tré-
skurð og silfursmiði. Kunna íslenzk-
ar konur nú að gjöra af list iheima á
íslandi, bókband og margt fleira.
Nú er Frk. Halldóra Bjarnadóttir
komin hingað vestur með sýnishorn
af ýmsum heimilisiðnaði og hann-
yrðum. Er það ætlun hennar að
dvelja hér vestra árlangt, ferðast frá
hafi til hafs, meðal íslendinga hér í
álfu, halda fyrirlestra og háfa jafn-
framt muni þá, er hún kemur með
að heiman, til sýnis.
Bráðum leggur Frk. Halldóra
af stað norður til Nýja íslands
og er hér ferðaáætlan hennar þar
norður um bygðirnar.
Samikoma á Gimli—8. júní
Samkoma i Riverton—n. júní
Samkoma í Árborg—15. júni
Samkoma í Selkirk—25. júní.
I næstu viku verður svo auglýst
frekari ferðaáætlun og hvenær Frk.
H. B. hefir samkomur á: Glenboro,
Baldur, Langruth, Lundar. Sömu-
Business Cards
HOSGÖGN stoppuð
Legubekkir og stólar endurbætt-
ir o£ fóðraðlr. Mjög sanngjarnt
verð. ókeypis kostnaðar&ætlun.
GEO. R. MUTTON
546 ELLICE AVE.
Slmi 37 715
Bílar stoppaðir og fóðraðir
JUNE CHICKS—
EGGSIN NOVEMBER
Leghorns $7.50 per 100. Barred
Rocks; White Rocks; Wyandot-
tes; Reds $8.75 per 100. Govt.
Approved. Wire or Phone for
Imniediate Delivery. 100% Alive.
PHONE 33 352
ALEX. TAYLDR HATGHERY
362 FURBY ST., Winnipeg
leiðis í bygðum íslendinga sunnan
línunnar og vestur í Vatnabygðum í
Saskatchewan og Alberta.
Móttökunefndin.
Herbergi til leigu nú þegar, með
eða án húsgagna, að 622 Lipton
Street. Aðgangur að eldhúsi. Mjög
sanngjörn leiga. Upplýsingar veitir
Mrs. Friðrika Sigurðsson þar á
staðnum. ___________
I ríkisfangelsi í New Jersey situr
dauðadæmdur fangi, og hefir hann
verið í fangelsinu í 29 ár. Fyrir
mörgum árum var hann dæmdur til
dauða, en framkvæmd dómsins var
skotið á frest, vegna þess að rann-
saka þurfti, andlegt ástand manns-
ins.
Meðan á þeirri rannsókn stóð,
andaðist dómarinn, sem hafði kveðið
upp dóminn, og samkvæmt amerískri
löggjöf gat dauðadómurinn ekki
kamiist í framkvæmd eftir það.
Funkis-stólarnir eru ekki alt af
sem heppilegastir. T. d. kom það
fyrir um daginn, er einn þriflegur
þingmaður Daiia fékk sér sæti í ný-
tízku stálstól í anddyri þingsins, að
að stóllinn lét undan þunganum, með
braki miklu, og þar sat þingmaður-
inn á brotunum með sín 150 kg.!
Skoti og Gyðingur voru á gangi
saman. Alt í einu beygir Gyðingur-
inn sig og tekur upp einn shilling,
sem hann hafði komið auga á.
Skotinn flýtti sér til næsta augn-
• læknis og lét rannsaka í sér sjónina.
Til þess að tryggja yður
skjóta afgreiðslu
SkuluB þér ávalt kalla upp
SARGENT
TAXI
FRED BUCKLE, Manager
PHONE
34 555 - 34 557
SARGENT & AGNES
VEITIÐ ATHYGLI
Viimumaður óskast á elliheim-
ilið Betel nú þegar. Verður
að búa á staðnum, og vera van-
ur algengum snúningum, svo
sem hirðingu og mjólkun kúa.
Spyrjist fyrir hjá
J. J. SWANSON
601 Paris Bldg., Winnipeg
The Watch Shop
Diamonds - Watches - Jewelry
Agents for BULOVA Watches
Marriage Licenses Issued
THORLAKSON & BALDWIN
Watchmakers & Jewellers
699 SARGENT AVE., WPG.
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annast greiölega um alt, sem aó
flutningum lýtur, smáum eBa
stórum. Hvergi sanngjarnara
verB.
Heimili: 591 SHERBURN ST.
Slmi 35 909
Þér getið aukið
við núverandi tekjur
Umboðsmenn óskast til þess að
selja legsteina. Hundruð af þeim
seld I bygðarlagi yðar. Við
leggjum til sýnishorn og segjum
fyrir um söluaðferðir. Skrifið
eftir upplýsingum til 695 Sargent
Ave., Winnipeg.
Minniát BETEL
1
erfðaskrám yðar
Thorlakson & Baldwin
Oj^enA you, a
Liberal Allowance
|jan.cl^oun. öíd ^Watek.
Trade It in for a New
MEDALUON . . . o
new Bolovo In the color <
choroi of yellow gold.
CANADIAN CUPPER . 17 |
jewels/ streonllnedl In the I
colorandcharmofyellowoold. I
GODDESS OF TIME ..17
jewels/ engraved, round or
square. In the color and charm
or yellow oold
$0075
PRESIDENT ... 21 iewels, I
curved to fit the wrlst. In the
color and charm of yellow oold.
EASY CREDIT TERMS
NO EXTRA CHARGE
Islenzka Bakaríið
702 SARGENT AVE.
Eina Islenzka bakaríið I borginni.
Pantanir utan af landi skjótlega
afgreiddar.
Sími 37 652
KAUPIÐ AVALT
LUMBER
hjá
THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD.
HENRY AVENUE and ARGYLE STREET
Winnipeg, Man. - Phone 95 551
/