Lögberg - 03.06.1937, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGLNN 3. JÚNl, 1937
7
Hallur Olafsson Hallson
Fæddur l(i. ágúst 1853 — Dáinn 27. marz 1937
Hallur Ó. Hallson var imætur maður. Fæddur og uppalinn
í hinu söguríka Rangárþingi, en ættaður bæði af Austurlandi og
suÖvesturhluta Þingeyjarsýslu. Halls-nafniÖ og Ólafs á víxl í
fjölmennri ætt forfeðra hans. \'<iru sumir af þeim prestar og
þjóðkunnir menn, hinir bændur i hinni betri röð þeirrar stéttar.
Tiltölulega ungur maður t'luttist Hallur til Seyðisfjarðar.
Þar giftist liann árið 1884. Kona hans var Guðrún Kristjana
Björnsdóttir (venjulega nefnd hinu síðara nafni eingöngu),
fædd á Suðurlandi árið 1864. Kona með margþætta og merki-
lega hæfileika. Stóð hún rétt á tvitugu er þau giftust og var
ellefu árum yngri en maður hennar. Varð hjónaband þeirra
bæði lánsamt og hið ástúðíegasta.
Til Vesturheims fluttu þau hjón árið 1902. Bjuggu um
nokkurra ára skeið i Silver Bay, við Manitoba-vatn, og farnað-
ist vel. Fluttu siðan búferlum á simærri ábýlisjörð, í grend
við Gimli, en tóku sig svo upp þaðan og fluttu til Calilforniu.
Áttu þau þar heima í býsna mörg ár. Voru þau þar í nábýli
við Björn son þeirra, er þangað hafði flutt fyrir allmörgum
árum. Annar sonur þeirra er Ólafur verzlunarmaður í Ericks-
dale, listrænn maður, er ýmsir kannast við. Með þeim Halls-
sons hjónum var frá fyrstu æsku sonardóttir þeirra, þeim báðum
frábærlega kær, og eins og þeirra eigið barn, Magna Ingibjörg
Ólafsdóttir, nú lækniskona, Mrs. (dr.) Pluimmer, í borginni
Oakland í Californíu.—
1 veðurblíðunni og búsældinni þar suðvestur leið þeiin
Hallsons hjónum ágætlega Þau eignuðust brátt nýtt og fallegt
heimili. Gátu sint störfum er voru bæði þeim hentug og sæmi-
lega arðsöm. Samfélagið með ástvinum og mörgum öðrum vin-
um, er þau eignuðust, var hið ákjósanlegasta. Aðeins eitt var
að: Islenzkt Ifélagslíf var þarna mjög svo takmarkað. Sér-
staklega söknuðu þau þess, að geta ekki sótt íslenzka guðsþjón-
ustufundi. Áttu bæði lifandi og vakandi trú i hjarta. Höfðu
innilegar mætur á FrelSara mannanna og fagnaðarerindi hans.
Leiddi þessi skortur á fullnæging trúarlífsins til þess, að
þau hjón fóru að hugsa til burtfarar úr Californiu. Kom loks
að þvi, að þau seldu eignir sínar þar og fluttu aftur til Gimli,
sumarið 1931. Reistu þau sér þar þegar laglegt og vandað hús
og undu hag sínum hið bezta.—
En nú fór þó brátt heilsu Halls að smáhnigna. Aldurinn,
var að færast yfir hann. Attræðisárið var óðum að nálgast.
Sjónin var að bila. Sumurin á Gimli við vatnið og skógana
grænu, voru þó bæði hressandi og skemtileg. En Manitoba
vetrarnir fóru að verða honum erfiðir. Þolið var ekki það sem
það áður var. Svo höfðu þau hjón orðið eins og afvön hinu
kalda loftslagi, i gegnum alLmargra ára veru í Californíu. Loks
afréðu þau að hverfa burt úr vetrarríki Manitoba. Fluttu þau
alfarin til Palo Alto í Californíu, haustið 1935.
Þau Hallssons hjón hafa æfinlega verið vinsæl, hvar sem
þau halfa verið. Þar sem þau settust nú að höfðu þau áður
verið. Bæði Björn sonur þeirra, kona hans og börn, og margir
aðrir tóku við þeim feginshendi. Húsið, er þau höfðu áður
búið í, keyptu þau til baka. Leið þeim nú eins vel og hægt var
að vonast eftir. Þau höfðu komist á ný í milda loftslagið i
Californíu á hentugri tíð, rétt mátulega til að sleppa við frostin
snörpu í Manitoba, veturinn 1935-6.—
Sjón Ilalls hélzt furðanlega við eftir að hann komst í hlýja
loftslagið aftur. Til hins siðasta hafði hann nægilega sjón til
að komast allra sinna ferða, eins framt og kraftarnir leyfðu.
Var það honum og hinni góðu konu hans mikil huggun.—
Hallur lá imjög stutta legu. Heilsan var bærileg, þar til
hjartaveiklun fór að gera vart við sig. Æjfin var að verða tals-
vert löng. Hann var kominn nokkuð hátt á fjórða ár yfir
áttrætt. Kveðjan var fyrir hendi. Á laugardaginn fyrir páska
kom heimfararleyfið fyrir hinn ferðlúna, mæta mann.—
Hallur Ó. Hallsson var í röð hinna beztu manna. Maður
sæmilega greindur, listrænn í huga, ágætur söngmaður, starfs-
samur og ráðsettur, kristið ljúfmenni, er ánægja var að kynnast
og kom alstaðar fratn til góðs. — Kona hans, Kristjana, var
honum ágætlega samhent og saimiboðin í öllu. Hún er enn við
bærilega heilsu, þetta svipað og áður var. Munu vinir hennar,
hinir mörgu, óska henni ríkulegrar huggunar i harminum og
biðja henni, í Jesú nafni, blessunar á vinamótinu, sem fram
undan er.—
Jóhann Bjarnason.
Erindi
flutt þ. 23. maí á þingi Ung-
metinasambands hins lúterska
kirkjufélags,
af Þór Fjeldsted
Hjartans þökk
Það er nokkuð langt síðan að mér
datt i hug að biðja Lögberg fyrir
fáorða, óíullkomna þakklætisminn-
ing til landanna í Alberta, fjær og
nær. Jóhann minn álítur Red Deer
farsælt bygðarlag; það saimsinni eg
að því viðbættu, að þar búa þeir
friðsömustu og hjálpfúsustu íslend-
ingar sem eg hefi kynst, vestan hafs
sem austan. Það, hversu viðkvæm
hjörtu landanna eru, þegar einhver
þeirra siglir í strand sinni dýrmæt-
ustu gjöf, heilsunni, eins og kom
fyrir okkur 1932.
Þegar eftir kostnað við hús okk-
ar og ferð Jóhanns til Islands, fót-
brotnaði hann og litlu seinna varð
eg blind á öðru auga, en á því fékk
eg nokkra bót fyrir fljóta hjálp
landanna, sem drógu hjálparfánann
að hún. Finnur heitinn Jónsson
bauð okkur alla þá peninga, sem við
þyrftum; Ófeigur Sigurðsson hjálp-
aði Jóhanni og hefði líklega aldrei
kallað eftir því, en Jóhann er glögg-
ur skilamaður.
Þá er ótalin öll hjálp og peninga-
gjafir, fyrst frá kvenfélaginu Vonin
í Markerville og Björgu Jóhannsson.
Þegar eg kom til Calgary, var eg
borin á höndum af öllum löndum,
se.m til min náðu. Hjúkrun á mér
gefin af Mr. og Mrs. Þorvaldson
og Mrs. Reykjalín. Þá er nú eftir
að minnast hans Sigurðar Sigurðs-
sonar kaupmanns í Calgary; hjálp
hans til min er svo yfirgripsmikil,
að eg hefi hvorki upphaf né endi
við það, ef eg færi að reyna að
reikna saman í dollurum alla hans
hjálp til okkar, mundi það enda með
höfuðsvima.
Kæru vinir, fjær og nær, lífs og
liðnir; já, hugur minn hverfur til
þeirra líka, sem sofnaðir eru svefn-
inum langa, meðal þeirra er Stebba
Bjarnadóttir; hún var sú sögufróð-
asta, ættfróðasta, Ijóðfróðasta og
ljóðelskasta manneskja, sem hér
hefir dvalið. Guð blessi minningu
allra vinanna horfnu.
Svo vona eg, vinir mínir, að þið
takið viljann fyrir verkið, um línur
þessar. Kærlega þakka eg góða
samfylgd þessi liðnu 32 ár og tíu
vikna hjálp. Það bezta í þessu lífi
eru góð börn, góðir nágrannar og
Þygg'r vinir, eins og Mr. og Mrs.
Hjálmsson, sem eg hefi þekt nær
50 ár. Verið öll í guðsfriði, kært
kvödd af ykkar gömlu vinu,
Sigurást Daðadóttir Björnson,
Innisfail, Alberta.
Það var guðsþjónusta i kirkju i
Aberdeen. Presturinn lét bera betli-
baukinn um. kirkjuna. Þegar komið
var með hann til Gyðings nokkurs
leið yfir Gyðinginn og tveir Skotar
báru hann út.
Eg hefi valið mér sem umtalsefni
“Gildi og starfshættir ungmennafé-
lagsskapar.” Á æskuárum eru böcn-
in í skjóli heimilanna og njóta á-
hrifa sunnudagsskólans fram á
fermingaraldur. Fram á þennan
tima æfinnar er okkur kent Guðs
orð og lögð er áherzla á að kenna
okkur að verða að góðum félags-
meðlimum. En því miður hætta of
mörg ungmenni að sækja sunnu-
dagaskóla strax eftir fermingu, og
er því á þeim tíma brýn nauðsyn
fyrir áhrif ungmennafélagsskapar,
svo þau berist ekki með straumnum
út á ýmsa villuvegi heimsins. Því
einmitt á þeim tima er karakter
unga fólksins að steypast í því móti
sem þau bera til æfiloka. Þá taka
þau sér fyrirmyndir og leiðtoga og
þá er eini (fullkomni leiðtoginn Jesús
Kristur.
Það verður að vera einhver fé-
lagsskapur, sem getur vakið áhuga
þessara ungmenna og hvetja þau til
að hjálpa öllum andlegum og ver-
aldlegum velferðarmálum. En á
meðan sá félagsskapur er ekki til,
sem ungmennin teljast meðlimir í og
geta fengið sig til að sækja fundi,
er ekki hægt að ætlast til að þau hafi
þá mikinn áhuga til að hjálpa við
þau málefni, sem snerta jafnt yngri
og eldri. Það verður að sýna þeim
fram á það að þau eiga hlut i þess-
um málum.
Það eru máske margir unglingar,
sem ekki gera sér fyllilega grein fyr-
ir þvi að eftir fermingu eru þeir
innritaðir sem meðlimir og starfs-
menn safnaðarins. En allir ungling-
ar hafa sínar orkulindir og séu þær
sameinaðar og beitt í rétta átt, má
rnörgu góðu koma til framkvæmda.
Vegna þess að yngra fólkið skort-
ir reynslu og þekkingu, getur það
ekki átt samleið með eldra fólkinu,
eða tekið þátt í nefndum eða fram-
kvæmdarmálum safnaðarins og
finna sig þess vegna ekki heima
meðal eldra fólksins. Þess vegna
þyrfti hver söfnuður að hafa ungl-
ingafélag.
Fyrsta ungmennafélagið mun hafa
verið stofnað árið 1765 í Basel á
Svisslandi. Bundust þá níu ungl-
ingar ýmsum loforðum undir stjórn
sóknarprests síns. Upp frá þekn
tíma hefir slíkur félagsskapur
blómgast og vaxið, þangað til að nú
munu vera mjög fá lönd í heimi þar
sem hann er ekki búinn að fá góða
rótfestu, og mun hann hvarvetna
vera til góðs og blessunar. Fyrir
hér um bil 40 árum stofnaði hinn
velþekti unglingavinur séra Friðrik
Friðriksson, ungmennalfélag á Is-
landi, og hefir það vaxið og blómg-
ast. Fyrsta ungmennaþing í kirkju-
félagi voru mun hafa vreið haldið
fyrir nærri 12 árum, en náði ekki
verulegri útbreiðslu, þar til fyrir
tveimur árum, að ungmennaþing var
haldið í lútersku kirkjunni í Win-
nipeg, og nú erum við saman komin
til að sitja annað ungmennaþing.
Eg vona að þessi hreyfing hafi náð
fullri rótfestu á meðal unglinga í
okkar kirkjulífi.
Það var gleðiefni fyrir ungmenna-
félögin, þegar kirkjúíélag vort á
júbíl-þinginu 1935 viðurkendi þenn-
an félagsskap, sem starfandi með-
lim kirkjufélagsins. Þessi félags-
skapur er á unga aldri, og hefir má-
ske ekki komið miklu til leiðar enn-
þá, en með meiri þroska má vænta
meiri árangurs af þessum félags-
skap.
Sjálfsagt gætu ungmennafélögin
hjálpað mikið hvert í sínum söfnuði,
því það er svo margt sem þyríti að
gera, sem ekki kemst í framkvæmd.
Mætti néfna t. d. sunnudagsskóla
kenslu, safnaðarsöng og þá líka við-
hald og ýmsar mmbætur á kirkjunni.
En til þess að þetta geti orðið, verð-
ur að vera vakandi áhugi fyrir þess-
um málum.
Á hverjum fundi verður að vera
vist verkefni, sem liggur fyrir, og
það verður að vera vakandi áhugi á
meðal meðlima, til að vinna gott
starf. Ekki er hægt að segja að það
sér skortur á verkefnum. Svo að
þessir félagsskapir blessist, verða
allir meðlimir að finna skyldu hjá
sér að leggja fram hendur til að
hjálpa. Það dugar ekki að draga
sig í hlé, þegar um eitthvert verk er
að ræða. Oft verður það þessum
ungmennafélögum til tálma, að
þau skortir leiðsökn. En þar sem
allir ganga að verki og 'finna það
skyldu sína að leita sér leiðbeining-
ar i ýmsum málum, þar verður og
er góður félagsskapur. Það 'er þá
hlutverk hvers meðlims að vera vilj-
ugur að hjálpa og að draga sig ekki
í hlé þegar einhver verk er að vinna.
Eftir skýrslu frá ýmsum ung-
mennafélögum, má sjá að tilgangur
þeirra er hvarvetna sá hinn sami, að
safna ungmennunum saman í kristi-
legan og góðan félagsskap; að undir-
búa þau undir æfistarf sitt með því
að vekja hið innra lif þeirra, svo
þeir geti verið sér og samferðamönn-
um sínum til hjálpar og blessunar.
Á fundum okkar er tilraun gerð tii
að fá unga ifólkið til að koma fram
feimnislaust og láta hugmyndir sin-
ar í ljós. Eldra fólkið, eins og eðli-
legt er, þreytist og verður að leggja
niður byrðarnar sem hvíla á því,
gagnvart kirkju og velferðarmálum.
Það týnist úr hópnum á hverju ári,
og þá verður yngra fólkið að taka
við. Það yrði í byrjun vandræða-
legt verk sem það væri að vinna, ef
það ‘hefði engan undirbúning. Yngra
fólkið er komandi kynslóðin, sem
verður að taka við af þeim eldri, og
er þessvegna mjög mikilsvarðandi
hvernig er undirbúið fyrir það starf.
Fundir ungmennafélagsins eru
settir með bæn, sálmi og er lesinn
texti úr biblíunni. Ungmennafélög-
in reyna til að koma meðlimum sín-
um til að kynna sér biblíuna svo að
þau finni frekar hjá sér skyldu að
styðja að öllum málum, sem snerta
kirkjuna og jafnvel öll mál, sem
snerta velferð mannfélagsins. Og
ætti ungt fólk að ganga að öllu starfi
í þeiim anda, og mundi það efla kær-
leika og bróðurhug ekki einungis í
hverju félagi, heldur út á við líka.
Grundvöllur lífsins þarf að
byggjast á æskuárum, því þá eru
skilyrðin bezt, þess vegna er það svo
áríðandi að ungmennin séu vel vak-
andi, og stefni að liinu rétta tak-
marki. Áhuginn fyrir starfinu verð-
ur að vera vakandi þrá til að gera
gott og að inna verk sitt vel af hendi.
Söfnuðir vorir þarfnast ungmenna
og er það mikill sigur fyrir hvern
söfnuð, sem hefir öflugt ungmenna-
félag innan sinna vébanda.
Starfsvið ungmennafélaga getur
verið æði víðtækt, og mætti skifta
því í þrjár aðal deildir, svo sem í
trúmála-, mentamála- og skemti-
deild, og væri þá þægilegt að skifta
fundum því samkvæmt. Á trúmála-
fundum mætti hafa sálmasöng,
biblíulestur, ritgerðir og ræður um
menn og konur, sem hafa skarað
fram úr i guðsrikisstarfinu; á
mentamálafundum gætu unglingar
aflað sér þekkingar á landsins gagni
og nauðsynjum, svo þeir geti orðið
þarfir og góðir borgarar þess lands,
sem þeir búa i. Skemtifundum geta
þeir varið til siðferðislegra og góðra
skemtana, og ef einhverjir unglingar
væru með sérstaka hæfileika fyrir
söng, upplestur eða ræðuhöld, mundi
það koma í ljós og gætu þeir haft
tækifæri til að njóta sin. Eins og
þið vitið, nýtur heildin sin betur en
einstaklingurinn og hefir meiri á-
hrif, ef hún lét í ljósi álit sitt um
hvaða mál sem væri, t. d. atvinnu-
leysi, friðarmál o. fl. Atvinnuleysið
er eitt stærsta böl unga fólksins, og
væri því þess vert að ungmennafé-
lögin tækju það til athugunar. Frið-
armálin varða sömuleiðis rniklu fyr-
ir unga fólkið, og ættu öll ung-
mennafélög að lýsa vanþóknun sinni
á stríði og stríðsútbúnaði, og ættu
að skuldbinda sig til að vinna á móti
slíku. öll velferðarmál heimsins
ættu ungmennafélög að láta sig
varða.
Kirkjan á það á hættu að missa
ungmennin eftir fermingu, ef þau
hætta að sækja guðsþjónustur, en þá
taka ungmennafélögin á móti þeim.
Ef þau leggja rækt við skyldu sína,
er framtíð safnaðanna og trúarlífi
einstaklinganna borgið. Það ætti að
vera mark og mið allra fundanna,
að efla og styrkja kristilegan kær-
leika meðal félagsmeðlimanna; með
þvi móti geta þeir unnið mannfélags-
heildinni óimetanlega mikið gagn.
Gangið því öll, yngri og eldri, í ung-
mennafélögin; styðjið þann félags-
skap af heilum 'hug; með því eruð
þið að vinna bæði ykkur og kom-
andi kynslóðum ómetanlegt gagn.
Og mun þá félagsskapurinn bless-
ast og blómgast um ókomnar aldir.
GEFINS
Blóma og matjurta frœ
utvegið einn nýjan kaupanda að blað.
INU, EÐA BORGIÐ YÐAR EIGIÐ ÁSKRIFTAR-
GJALD FYRIRFRAM.
Frœið er nákvœmlega rannsakað og ábyrgst að öllu leyti
TAKIÐ ÞESSU K0STAB0Ð1!
Hver gamall kaupandi, sem borgar blaSiC fyrirfram, J3.00 áskrift-
argjald til 1. janúar 1938, fær að velja 2 söfnin af þremur númerum,
1., 2. og 3 (I hverju safni eru 6tal tegundir af fræi eins og auglýsingin
ber meS sér).
Hver, sem sendir tvö endurnýjuS áskriftargjöld, $6.00 borgaSa
fyrirfram, getur valiS tvö söfnin af þremur, nr. 1., 2, og 3, og fær nr. 4
þar aS auki.
Hver, sem útvegar einn nýjan kaupanda og sendir áskriftargjald
hans, $3.00, fær aS velja tvö söfnin úr nr. 1., 2. og 3., og fær nr. 4 þar
aS auki. Hinn nýi kaupandi fær einnig aS velja tvö söfnin nr. 1., 2. og
3., og fær nr. 4. þar aS auki.
Allir pakkar sendir móttakanda aS kostnaSarlausu.
No. 1 COLLECTION—Vegetables, 15 Packets
BEI5TS, Detroit Dark Red. The best all round Beet. Sufficlent
seed for 20 feet of row.
CABBAGE, Enkhuizen. Good all round variety. Packet will grow
1,000 lbs. of cabbage.
CARltOTS. Half Ix>ng Cliantenay. The best all round Carrot.
Enough seed for 4 0 to 50 feet of row.
CUCUMBER, Early Fortune. Pickles, sweet or sour, add zest to
any meal. This packet will sow 10 to 12 hills.
UICTTUCE. Grand Rapids. Loose Leaf variety. Cool, crisp, green
lettuce. This packet will sow 20 to 25 feet of row.
IiETTUCE. Hanson. Head. Ready after the Leaf Lettuce.
ONION, Yellow Globe Danvers. A splendid winter keeper.
ONION, Wlilte Portugal. A popular white onion for cooking or
pickles. Packet will sow 15 to 20 feet of drill.
PARSNXP, Half Iiong Guernsey. Sufficient to sow 4 0 to 50 feet of
drill
PUMPKIN, Sugar. Packet will sow 10 to 15 hills.
RADISH, French Breakfast. Cool, crisp, quick-growlng variety.
This packet will sow 25 to 30 feet of drill.
TOMATO, Earliana. The standard early variety. This packet wlll
produce 75 to 100 plants.
TURNIP, Wliite Summer Tahle. Early, quick-growing. Packet
will sow 2 5 to 30 feet of drill.
FLOWER GARDEN, Surprise Flower Mixture. Easily grown
annual flowers blended for a succession of bloom.
SPAGHETTI, Malabar Melon or Angel’s Hair. Boil and cut off the
top and the edible contents resemble spaghetti.
No. 2 COLLECTION
SPENCER SWEET PEA COLLECTION
8—NEW BEAUTIFUL SHADES-------8
Regular full size packets. Best and newest shades in respective
color claes. A worth-while saving buying two. See regular Sweet
Pea List also.
SEXTT'TT QUEEN. Pure White.
Five and six blooms on a stem.
WHAT .TOY. A Delightful Cream.
BEAUTY. Blush Pink.
SMILES. Salmon Shrimp Pink.
No. 3 COLLECTION-
EDGING BORDER MIXTURE.
ASTERS, Queen of the Market,
the earliest bloomers.
BACHELOR’S BUTTON. Many
new shades.
CALENDULA. New Art Shades.
CALIFORNLV POPPY. New
Prize Hybrids.
CLARKIA. Novelty Mixture.
CLIMBERS. Flowering climb-
ing vines mixed.
COSMOS. New Early Crowned
and Crested.
EVERIjASTINGS. Newest shades
mixed.
GEO. SHAWYER. Orange Pink.
WETiCOME. DazDzling Scarlet.
MRS. A. SEARLES. Rich I'ink
shading Orient Red.
RED BOY. Rich Crimson.
-Flowers, 15 Packets
MATHIOIjA. Evening scented
stocks.
MTGNONEjFTE. Well balanced
mixtured of the old favorite.
NASTURTTUM. Dwarf Tom
Thumb. You can never have
too many Nasturttums.
PETUNIA. Choice Mixed Hy-
brids.
POPPY. Shirley. Delicate New
Art Shades.
ZINNIA. Giant Dahlia Flowered.
Newest Shades.
No. 4— ROOT CROP COLLECTION
Note The Ten Big Oversize Packets
BEETS, Half Long Blood (Large
Packet)
CABBAGE, Enkhuizen (Large
Packet)
CARROT. Chantenay Half Ixrng
(Large Packet)
ONION, Yellow Globe Danvers,
(Large Packet)
LETTI’CE. Grand Rapids. This
packet will sow 20 to 26 feet
of row.
PARSNIPS, Early Short Round
(Large Packet)
RADISH.....French ... Breakfast
(Large Packet)
TURNIP, Purple Top Strap
Loaf. (Large Packet). The
early white summer table
turnip.
TURNIP, Swede Canadlan Gem
(Large Packet)
ONTON, W’liite Pickllng (Large
Packet)
Sendið áskriftargjald yðar í dag
(Notið þennan seðil)
To THE COLUMBIA PRESS, LIMITED, Winnipeg, Man.
Sendi hér með $...........sem ( ) ára áskriftar-
gjald fvrir “Lögberg.” Sendið póst frítt söfnin Nos.:
Nafn .......................................................
Heimilisfang ...............................................
Fylki ......................................................