Lögberg


Lögberg - 15.07.1937, Qupperneq 3

Lögberg - 15.07.1937, Qupperneq 3
LÖGBEIiGr, FIMTUDAGINN 15. JÚLl 1937 3 En svo er varla nokkur maÖur svo fáfróÖur að vita ekki aÖ afleið- ingar af víndrykkju eru ekki góðar, þó frumverkun víns sé þægileg. Eftirverkun er svo alkunn að hver drykkjurútur þekkir hana og myndi vilja forðast hana ef hann gætti skynsemi sinnar og reyndi að breyta eftir beztu vitund. En ofdrykkjusyndin liggur ekki öll á herðum drykkjumannsins. Vín- bruggarinn ber stóran hluta af þeirri byrði á samvizku sinni. Og vínsalinn, eitursalinn, er engu ósek- ari. Og löggjafinn á eigi minstan þátt í þessari stóru alheimssynd. Þessar stéttir mega skoðast erkió- vinur mannfélagsins. Og ýmsir valdamenn mega skoðast trúir þjón- ar þessa óheillavalds, sem ágirnd og mannhatur er rótin að. Þegar lyft er hræsnisblæjunni ofan af þjóðlífi Canada, þá er auð- velt að sjá að Canada getur ekki skoðast hófsemdar þjóð. Sú þjóð, sem telur aðeins xo eða n miljónir og drekkur út ioo miljón dollara á ári í fengi, er engin hófsemdar- þjóð. En þessu vínflóði er veitt inn í landið, segir alþýðumaðurinn, til góðs fyrir fólkið. Tiundi partur af þessari upphæð gengur í reikning fólksins og lækkar skattana að því skapi. Þá spyr eg hvernig á þvi standi að skattar á fólkinu aukist á hverju ári. Þá er ekkert svar. Og svo má spyrja, því alcohol sé und- anþegið í þeim lögum, er banna eitursölu, eftir að vísindin hafa sannað að alcohol er dauðlegt eitur. “Af því,” segja löggjafarnir, “að fólkið vill drekka þetta eitur, og er fúst til að borga fyrir það. Svo, til að fá $i í skatt getum við selt $io virði af eitri. Það vill heldur borga $i krókleiðis, heldur en leggja hann fram beinleiðis.” Já, það sýnist svo, en hvar kemur þá fram þjóðarvernd og föður-umhyggja stjórnanna? En segjum nú að fólkið gengi í sjálfsbindindi og hætti að kaupa á- fengi. Segjum að alþýðu manna skildist, að sá dalur, sem hún geld- ur í skatt undir vínverzlunar fyrir- komulaginu væri henni helzt tii dýr þegar alt væri skoðað, og breytti svo samkvæmt þeirri skoðun. Væri það ekki hugsanlegt — jafnvel mögu- legt? Jú og eitthvað manndóm- legra og meira í samræmi við heil- brigða skynsemi ? Hvenær sem al- menningsálitið snýst á þá sveif, er bindindismálinu borgið. En þangað til er vínbann óframkvæmanlegt og alt lagakák til einkis. Eg hefi áður — í grein í Lög- bergi — bent á þörfina fyrir að “vernda börnin.’’ Það er varla til svo mikið mannlegt úrþvættí, að hann ekki vilji vernda barnið sitt fyrir hvaða hættu sem: er. Þess vegna voga eg að skora á alla menn og konur, að hef jast handa og gjöra alt, sem hægt er, til að vernda börn- in fyrir hinum áfengislegu véla- brögðum eitursalanna, af því eg veit að það er hægt. Það er hægt með ýmsu móti. Alþýðan getur fengið bindindisfræðslu í barnaskólunum, sunnudagsskólunum og jafnvel hærri skólum; ef hún sýnir nokkra alvöru í því efni. Svo er hægt að stofna unglingafélög, sem bæði glæði bindindisáhuga og byggi upp hjá börnunum félagsanda og sam- úð og gjöri þau að vitrara fólki og betri borgurum. Og þriðja atriðið mætti nefna, þó það yrði fyrir suma foreldra erfiðasti þátturinn í leikn- um. En það er að gefa börnunum góða fyrirmynd í bindindi sem öðr- um efnum. Eg er viss uni að margir feður vildu leggja nokkuð á sig í því efni, jafnvel hætta að sækja hinar dýrð- legu bjórstofur, sem svo víða eru gróðursettar, með leyfi meirihluta atkvæða og venjulegri góðvild og meinleysi. Því atkvæði fólksins eru notuð til að heimila stjórnunum bæði það úr löggjöf sem er gott og ilt, hagstætt og óhagstætt alþýðu- unni. Eins og allir vita^ þá liggja ein- hverjar skoðanir á bak við hverja athöfn. Þess vegna er aldrei þýð- ingarlaust að koma skoðunum inn í ♦ Borgið LÖGBERG! huga barnanna. Kirkjan skilur það vel og breytir samkvæmt því. Ann- ars væri engin trúarskoðun til. Ilið sama á sér stað í öllum skólum, alt frá barnaskólum upp í háskólana. Mæður kenna bömum málið og svo með því lífsskoðanir og siðareglur. Það er þvi hægt að kenna ungdóm- inum hófsemd alveg eins og spar- semi og iðjusemi og allskonar verk- lega þekkingu. Það má kenna börnunum þá trú, að á þeitn hvíli siðferðisskylda að viðhalda og efla þá stofnun, sem nútíðarmenningin byggist á. Þetta er ekki talað út í bláinn. Það er viðurkendur al- mennur sannleikur. Og þessi sannindi hagnýta vín- salarnir sér eins ög eg skal skýra frá með fáeinum dæmum. Hér er partur úr ræðu, sem einn af ræðumönnum á þingi vínsala, sem haldið var í Columbus, Ohio.^ U.S., fyrir nokkrum árum síðan: “Framtíð verzlunar vorrar byggist mikið á því að auka löngun tnanna til að drekka. Menn, sem drekka áfengi deyja eins og aðrir; og hafi Vinlöngunin ekki verið aukin, verða skápar vorir tómir og fjárhirzlur vorar sömuleiðis. Börn vor verða að svelta eða vér verðurn að taka eitt- hvað annað fyrir sem borgar sig betur. Það eru drengirnir, sem vor fram- tíðarvon hvílir á. Eftir að menn ná fullorðins aldri og löngun þeirra í vín hefir verið vakin, breytast þeir sjaldan úr því í þessu tilfelli. Og eg geí þá bendingu, herrar mínir, að 5 cent, sem eytt er til að gefa drengjum fyrir drykk, komi til baka í dollurum í peningaskúf fu yðar, eftir að vínlöngunin hefir verið vakin.” Og umboðsmaður fyrir “The Bartender League” í ræðu í District of Columbia 6. maí 1908::—"Vín- kráin — Saloon-svínastían — í Bandaríkjunum er klúbbur fátækl- inganna. Hún er það næsta stig til að öðlast algjört lýðveldi í þessu landi. Vínkráin er hinn flulkomn- asti skóli, án bóka, í Bandaríkjun- um. Það er meira gott í vínkránni heldur en oss dreymir uin í allri vorri heimspeki. Fullnaðartakmark þeirrar stofnunar er virkilegt bind- indi.” \’æri hægt að koma nokkru yðar til að trúa slíkum kenningum og þessum. Og vilduð þér láta kenna börnunum yðar slíka heimspeki? Svo tek eg hér upp samtal milli trúboða og vínsala. Trúboðinn gengur inn í svínastíuna, sem næst var kirkjunni, sem hann prédikaði í: T.—“Ert þú eigandinn hér?” V.—“Já, hvað vilt þú?” T.—"Mig langar til að fá þenna sal lánaðan fyrir fund á morgun kl. 4.” V.—"Htvaða sort af fundi?” T.—"Kristilegan fund.” V.—“Þú færð hann ekki. Ertu rétt kominn út úr spítala?” T.—“Þér verður borgað.” V.—“Vil ekki peninga. Eg hefi svo mikla peninga, að eg veit ekki hvað eg á að gjöra við þá. Sérðu þetta gull? Sérðu þessa seðla?” L—“Viltu koma á fund til min í kirkjunni kl. 4 á morgun og skýra frá þvi hvernig þú komst inn í þessa verzlun, hvernig þú heldur henni við og hvernig alt gengur?” V.—"Nei, sú kirkja starfar að þvi að koma fólki til himnaríkis, en þessi stofnun kappkostar að koma því til helvítis.” Þessar ræður og þetta samtal sýna glögt hver er stefna og atvinna vin- salanna. Hvað þeim finst áríðandi að ná í ungdóminn. Og hvað á- ríðandi fyrir þá að vekja vínlöngun- ina hjá drengjunum yðar, svo að verzlun þeirra geti haldið áfram og blómgast. Og þeir hafa alveg rétt fyrir sér í því, að þegar vínlöngunin er einu sinni vakin, þá varir hún lengi í mörgum tilfellum. Og sama skilning hafa bindindis- menn á því að koma bindindisskoð- un í huga og hjarta barnantia, þvi að í fleiri tilfellum varir hún áfram. Það er aðeins sá munur á tilgangi þessara gagnstæðu stefna, að önnur leiðir til glötunar, en hin til far- sældar, bæði andlega og líkamlega. Ofdrykkjan eykur þrautir og þján- ingar, spillir heilsunni og styttir líf- ið, gjörir jafnt góða drengi sem lakari að ræflum, að ólánsmönnum, að handbendi þjóðfélagsins, að skað- legum fyrirmyndum bæðká heimil- unum og i öllu sínu umhverfi, og í stuttu máli að eiturlimum á líkama þjóðfélagsins. Það eru eflaust margir, sem trúa því að áfengið sé i ýmsumi tilfellum heilsumeðal. Að það fjörgi sálina, skerpi gáfur, auki hugrekki, stæli vöðva og efli þol og úth'ald við vinnu og íþróttir, skerpi andagift skáldanna, skýri rödd söngtnanna, gjöri hermanninn að kappa og búi til heimsfrægar þjóðhetjur. En þegar efnafræðingarnir fóru að rannsaka efnasamsetningu Alco- hols, og líffræðingamir Tóru að rannsaka verkanir vínandans bæði á sál og líkama, þó kom það gagnstæða í ljós, við það sem talið er upp hér að framan. Þá kom i ljós að alcohol er eiturtegund, sem hefir örvandi áhrif sem frumverkun, sem æsandi lyf, en sem bráðlega leiðir i ljós aðra verkun, sem er deyfandi. Það hefir mjög svipaða verkun og ópíum eiturtegundir, sem löglega eru bannaðar í kaupum og sölum. Eg kem hér með vottorð nokkurra viturra manna, bæði frá fyrri og nýrri tímum. Flestir þeirra eru heiinsfrægir læknar. Gríski heimspekingurinn Teneca segir:— “Ölæðið (ölvun) er ekkert annað en sjálf-orsakað brjálæði.” Shakespeare segir í leikritinu “Othello,” 2. act, 3. scene:— “Ó, þú ósýnilegi andi vínsins, verður þú eigi þektur undir öðru nafni, þá látum oss kalla þig djöful.” Hobbs, enskur heimspekingur:— “Bindindi þýðir það, að halda sér frá öllutn þeim hlutum, sem orsaka hættu og eyðileggingu.” St. Páll:— “Verið bindindissamir.” — “Gæt- ið hófs í mat og drykk og öllum hlutum.” Henry Ford:— “Heili þess manns, sem drekkur áfengi, getur ekki verið fyllilega hraður eða skarpur. Mín reynsla er að það sé ekki um neina temprun að ræða í sambandi við áfengi. Heili og áfengi geta ekki unnið saman.” Sydney Smith:— “Viljir þú hafa heilbrigða hugsun og heilbrigðan líkama, þá sneiddu hjá áfengum drykkjunt.” Lord Horder:— “Traust vort á drykkjumanni verður að vera gagnstætt því trausti er hann hefir á sjálfum sér.” Alcohol It’s Actions on the 9 Human Organism:— “Þegar maður kemst i hættu, sem útheimtir nánustu athugun og dóm- greind, þá er alcohol ekki einungis gagnslaust, heldur fullkomlega og áreiðanlega skaðandi.” Dr. Andrew Allison, Glasgow:— “Drektu eða keyrðu! Reyndu ekki hvorttveggja. Það eru margir, sem fylgja þeirri reglu, þó þeir séu ekki strangir bindindismenn.” Sir Gilbert Barling, F.R.C.S.:— "Eg segi það með þeirri áherzlu sem eg get; að alcohol er ekki nauð- syn nokkrum manni.” Dr. G. Aschaffenburg, Heidel- berg, Germany:— "Áfengisnautnin rýrir úthald verkamannsinjs. S,ú hiugmynd, að hófdrykkja hjálpi starfsmanninum í hans daglegu störfum, er fölsk.” S'ir George Newman, K.C.B., M.D. “Eg þekki enga vísindalega sönn. un fyrir því, að alcohol efli eða styrki hinn náttúrlega kraft líkam- ans( eða að alcohol styrki taugar eða vöðva.” Próf. Max Gruber, Munich :— “Það væri mótsögn gegn reynslu náttúruvísindanna að staðhæfa að eitur, sem skaðar svo bersýnilega, tekið í stórum skamti, sé algjörlega skaðlaust í smærri skamti. Próf. E. P. Cathcart, M.D.:— “Alcohol er vafalaust bæði kostn- aðarsöm og hættuleg munaðarvara.” Journal of American Medical Association:— “Alcohol er eitur í sínu insta eðli, í dropa eða pela, i mörk eða gallónu, í hvaða mæli sem er, er það eitur. Meira eða minna í skamiti breytir ekki eðli þess.” Próf. A. Fovel:— “Alcohol, í hvaða formi, af hvaða skamti sem er, er eiturefni, sem raskar mannlegum líffærum niður til grunna, er mjög hættulegt og skaðlegt fyrir einstaklinginn og þjóðfélagið, og ætti þess vegna aÖ vera fráskilið mannlegri fæðu.” Sir Thomas Oliver, M.D.:— “Vinnutap, svikin vinnubrögð, eyðilögð heilsa, sem afleiðing af drykkjuskap, er alveg óútreiknan- legt.” Dr. Ballantyne:— “Alcohol er hindrun fyrir líf barnsins á öllum stigum tilveru þess.” Ókendur höfundur:— “Kennið hverju barni i öllum skólum, að sá sem drekkur gjöri sig að flóni.” Ókendur höfundur:— “Áfengisnautn foreldranna hefir skaðleg áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu barnsins, jafnvel áður en það fæðist.”—(N. B.) Þessir vitnisburðir koma allir frá heimsfrægum mönnum í ýmsum Business and Professional Cards PHYSICIANS and SURGEONS DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office timar 2-3 Heimili: 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DR. B. H.OLSON Phones: 35 076 906 047 Consultation by Appointment Only Heimili: 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba DR. ROBERT BLACK Dr. P. H. T. Thorlakson SérfrœBingur I eyrna, augna, nef 206 Medical Arts Bldg. og hálssjúkdðmum. 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Cor. Graham & Kennedy Phone 22 866 ViCtalstimi — 11 til 1 og 2 til 5 Skrifstofusimi — 22 251 Res. 114 GRENFELL BLVD. HeimiU — 401 991 Phone 62 200 Dr. S. J. Johannesson Dr. D. C. M. Hallson Stundar skurðlækningar og Viítalstlmi 3-5 e. h. almennar lœkningar 264 HARGRAVE ST. 218 SHERBURN ST. —Gegnt Eaton’s— Slmi 30 877 Winnlpeg Slmi 22 775 BARRISTERS, SOLICITORS, ETC. H. A. BERGMAN, K.C. íslenzkur lögfrœöingur J. T. THORSON, K.C. Skrifstofa: Room 811 McArthur islenzkur lögfrœöingur Bullding, Portage Ave. P.O. Box 1666 800 GREAT WEST PERM. BLD. PHONES 95 052 og 39 043 Phone 94 668 BUSINESS CARDS Ákjósanlegur gististaöur Fyrir tslendingat Vingjarnleg aðbúB. Sanngjarnt verB. DRS. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar Cornwall Hotel 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING MAIN & RUPERT Cor. Portage Ave. og Smlth St. Slmi 94 742 PHONE 26 545 WINNIPKG A.S.BARDAL J. J. SWANSON & CO. 848 SHERBROOKE ST. LIMITED Selur llkkistur og annast um út- 601 PARIS BLDG., WINNIPEG farir. Allur útbúnaBur sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgð af öllu tægi. Skrifstofu talsími: 86 607 Heimiiis talsimi: 501 562 PHONE 94 221 A. C. JOHNSON 907 CONFEDERATION LIFE BUILDING, WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tekur aB sér aB ávaxta sparlfé fðlks. Selur elds&byrgð og bif- reiBa ibyrgBir. Skriflegum fyrir- ipurnum svaraB samstundis. ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPEG pœgilegur og rólegur bústaöur 4 miöbiki borgarmnar. Herbergi Í2.00 og þar yflr; meB baðklefa $3.00 og þar yfír. Agætar máltlBir 40c—60c Skrifst.s. 96 757—Heimas. 33 328 Free Parking for Chiests löndum. Ber eg meira traust til þeirra og þeirra skoðana heldur en þess sem oft kemur frá penna leigðra blaðasnápa, sem svo margt misjafnt hafa að segja á móti bind- indi. Vísindin hafa rannsakað þetta mál rækilega og vitnisburður þeirra er sá grundvöllur, sem ekki verður haggað. Heilbrfgð skynsemi sér hvílíkur fjárhagslegur skaði er að eyða f jármunum þjóða og einstakl- inga fyrir áfengi. Reynslan hefir kent mönnum hvað félagsmálin líða við áfengisnautn, hvað niðurlægj- andi áhrif hún hefir á félagslega sambúð manna, hvaða ófriðar-orsök hún er bæði á heimilunum og um- hverfinu, hvaða siðferðisspillir. Hvaða náið samband er milli vín- nautnar og þess allra lægsta i mann- legum hvötum. Hvað margvislegt heilsutjón hún orsakar. Hvað mörg slys og dauðsföll skrifast í reikning hennar. Læknarnir og dómararnir eru sterk vitni þessu máli til sönn- unar. Dómararnir staðhæfa að 9 af hverjum 10 glæpum megi reikna til áfengisnautnar. Heilbrigð skynsemi, jafnvel án vísindalegrar þekkingar, sér afleið- ingarnar og veit hver orsökin er. Vínnautn, á ýmsu stigi, er það böl, sem menn hafa verið sjónarvottar að frá elztu tímum. Á öllum tímum hafa verið menn, sem mælt hafa á móti ofdrykkjunni og varað við henni. Hver maður skilur að “vont tré getur ekki borið góðan ávöxt,” “að dúfa kemur al'drei úr hrafnseggi” og að “af á- vöxtunum skuluð þér þekkja þá-” Bindindishugsjónin stendur í sama flokki og allar aðrar framfara hugsjónir, svo sem kvenréttindi, al- menn mnnréttindi, miskunnsemi, hluttekning með mönnum og dýr- um, trúfrelsi, málfrelsi og samvizku- frelsi, réttur til lifsins og leitunar eftir farsæld þess og fullkomnari og hærri lífstilveru. Bindindishugsjónin má ekki logn- ast út af, heldur á hún að haldast í hendur við aðrar velferðarhugsjón- ir. Þó bindindismaðurinn viti og skilji að algjört bindindi muni ekki fást fyrir langan tíma enn, þá skoð- ar hann það sina siðferðisskyldu að halda stöðugt i áttina til meiri full- komnunar og fegra lífs. Hann vill kappkosta að leggja sem traustasta undirstöðu undir framtíð barnanna, svo þau megi sem bezt njóta góðs af þeim árangri er honum hefir auðnast að ná í sinni tíð, í baráttunni fyrir þessari hugsjón. 1 nútíð er hver ærlegur maður að starfa af fremsta megni að því, að næsta kyn- slóð megi erfa betri framtíð. Það er föður- og móðureðlið að vilja gefa börnunum betri framtíð. Það vottar framfarasaga mann- kynsins. Hví skyldum vér þá, Islendingar í Vesturheimi, gjörast ættlerar og eftirbátar i þessu efni, eins vel og vér þó dugum á öðrum sviðum þjóð- lifs vors. Látum oss því sækja fram og gjöra vora ítrustu tilraun til að . glæða og efla þessa hugsjón vora — að frelsa æskulýð vorn frá glötun. — Verndum börnin!

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.